Skip to content

S2E11 | Andrea Magnúsdóttir - „Ef ég get það, geri ég það“

August 20, 2026 · 1 h 32 min

Show notes

Fatahönnuðurinn, verslunareigandinn og hlaðvarpsstjórnandinn Andrea Magnúsdóttir, konan á bak við Andrea by Andrea, er gestur okkar í þessum þætti.

Við förum yfir vegferðina frá fyrstu skrefum hennar í fatahönnun og eigin rekstri yfir í að byggja upp vörumerki sem er orðið nátengt hennar persónulega vörumerki. Við tölum um sköpunarkraftinn, frelsið sem hún þarf til að vinna, reksturinn á bak við fallega heiminn og hvað þarf til að skapa upplifun sem fær viðskiptavini til að koma aftur.

Við ræðum líka þróunina í verslunum almennt, fast fashion, hönnunarstuld og minnkandi virðingu fyrir hönnun. Þá segir Andrea frá erfiðu tímabili í lífi sínu þar sem breytingaskeiðið hafði mikil áhrif á líðan hennar, sköpun og vinnu.

Og að sjálfsögðu förum við í hraðaspurningar þar sem Andrea þarf meðal annars að velja á milli útlits og þæginda og þarf að svara hverjum hún myndi.... ríða, giftast eða drepa.

Önnur umræðuefni þáttarins eru meðal annars:

  • Vegferð Andreu í tísku, hönnun og eigin rekstri
  • Munurinn á vörumerkinu Andrea og persónulega vörumerkinu hennar
  • Verslun vs. netverslun og breytt kauphegðun viðskiptavina
  • Heildarupplifun kúnnans og hvað fær fólk til að koma aftur
  • Hvað flokkast raunverulega sem góð kaup — verð, gæði eða hversu mikið flíkin er notuð?
  • Útlit vs. þægindi og sterkt auga Andreu fyrir fagurfræði
  • Starfsfólkskúltúrinn og hugsunin á bak við góða þjónustu
  • Fullkomnunarárátta, persónulegar áskoranir og lífið á bak við vörumerkið

    --

    💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche.
    💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.

    🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson

    📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

All episodes of Vörumerki

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.