Skip to content

S2E10 | Garðar & Lóa hjá GoodGood – Frá eldhúsborði í 10.000 verslanir um allan heim

August 13, 2026 · 1 h 19 min

Show notes

Vörurnar frá GoodGood eru fáanlegar í 31 landi og um 10.000 verslunum, þar á meðal hjá risum á borð við Walmart, Whole Foods, Kroger og Sprouts, og innan skamms bætist Target í hópinn. Færri vita þó kannski að þetta alþjóðlega vörumerki er alíslenskt.

Garðar Stefánsson, forstjóri og meðstofnandi Good Good, og Lóa Fatou, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, eru gestir þáttarins og fara með okkur yfir ótrúlega vegferð vörumerkisins, sem hófst við lítið eldhúsborð í Hafnarfirði fyrir rúmum áratug.

Í þættinum heyrir þú meðal annars um:

  • Hvernig fyrsta Good Good sultan varð til úr umfram lager af sætuefni- og endaði sem metsölusulta á Amazon
  • Hvernig „lítil“ verslunarkeðja reyndist vera 250 með verslanir, og varð stórt stökk inn á Bandaríkjamarkað
  • Hvernig Good Good rataði í The Drew Barrymore Show – og hvað gerðist við söluna í kjölfarið.
  • Mistökin, tollavesenið og stöðugu vandamálin sem fylgja því að byggja fyrirtæki á alþjóðlegum markaði.
  • Hvernig teymið hugsar um vöruþróun, fókus og hvaða vörur eigi að halda áfram með.
  • Hvernig Good Good ætlar sér að sækja enn lengra á bandaríska markaðinn, en þau eru nú þegar í topp tíu í sultum og númer þrjú í súkkulaðismjöri.
  • Hvers vegna Nutella hefur í raun skapað tækifæri fyrir Good Good.
  • Hvaða bragðtegundir þau myndu aldrei framleiða.
  • Og hvers vegna lausnamiðað hugarfar skiptir öllu þegar „það er alltaf eitthvað vesen"

Þetta er skemmtilegt, fróðlegt og hvetjandi spjall og sjaldgæft tækifæri til að skyggnast á bak við tjöldin hjá íslensku fyrirtæki sem á í viðskiptum við nokkrar stærstu verslunarkeðjur heims, og heyra hvað þarf í raun til að byggja vörumerki fyrir heimsmarkað.

--

💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche.
💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.

🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson

📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

All episodes of Vörumerki

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.