Skip to content

S2E8 | Þóra Hrund- Að velja hugrekkið fram yfir eftirsjá

July 23, 2026 · 1 h 31 min

Show notes

Þóra Hrund Guðbrandsdóttir er frumkvöðull, markþjálfi, markaðsfræðingur, gusumeistari og annar stofnenda Munum- vörumerkis sem hófst sem dagbók en hefur síðan þróast í mun stærri sýn og samfélag í kringum heilsu og vellíðan.

Í þættinum ræðum við hvernig hugmyndin að Munum varð til og hvernig dagbókin seldist í allt að 12.000 eintökum á ári, þrátt fyrir vantrú margra á verkefninu í upphafi. Þóra segir einnig frá útrásinni sem þær fóru af stað með, hvers vegna þær ákváðu að hætta við hana og hvað sú ákvörðun kenndi þeim um vöxt, metnað og mikilvægi þess að vita hvenær tími er kominn til að breyta um stefnu.

Þóra ræðir einnig hvernig hún velur verkefni út frá gildunum sínum, hvers vegna hún hefur sagt nei við öruggari leiðum og frá risastóru verkefni sem hún stefnir á að koma í framkvæmd.

Við hlustun færð þú meðal annars:

  • Innsýn í hvernig hugmynd getur orðið að raunverulegu vörumerki
  • Hagnýt dæmi um fjármögnun, vöxt og erfiðar ákvarðanir
  • Lærdóm af útrás sem var stöðvuð og stefnunni breytt
  • Nýtt sjónarhorn á hugrekki, ótta og eftirsjá
  • Skilning á því hvernig gildi geta hjálpað þér að taka skýrari ákvarðanir
  • Innblástur til að láta vaða, jafnvel þótt óttinn sé enn til staðar

Þóra er stútfull af orku og hugmyndum og svo mikilli ástríðu fyrir verkefnunum sínum að það er ekki hægt annað en að fyllast innblæstri og hrífast með. Þetta er þáttur fyrir alla sem eru með hugmynd í maganum, standa frammi fyrir breytingum eða finna að þeir þurfa meira frelsi, meiri gleði og/ eða skýrari stefnu í lífið.

---

💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche.
💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.

🎶 Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson

📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

All episodes of Vörumerki

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.