
Bíddu Bara
- Episodios
- 52
- Se publica
- cada semana
- Último episodio
- 10 Nov 2026
Sobre el podcast
Mömmuhópurinn þinn í eyrunum 🎧
Episodios 52
Afmælisþáttur 🩵 Bíddu bara er 1 árs!! 🎂✨
Bíddu bara er 1 árs!! 🩵🥳🎂Við lítum yfir farinn veg, spjöllum um árið sem er liðið og allt það sem við erum spenntar fyrir framundan.
Hlutir sem við ætlum að ghosta 👻
Það er kominn tími til að ghosta nokkra hluti 👻Mömmusamviskubit, samanburð, tiltektarkvíða og alls konar annað sem fylgir stundum mömmulífinu. Í þættinum förum við yfir það sem við viljum kveðja og röbbum að …
Notas del episodio
Það er kominn tími til að ghosta nokkra hluti 👻
Mömmusamviskubit, samanburð, tiltektarkvíða og alls konar annað sem fylgir stundum mömmulífinu. Í þættinum förum við yfir það sem við viljum kveðja og röbbum að sjálfsögðu um allskonar annað líka.Fjóla uppeldisráðgjafi 💛
Angelia Fjóla Vilhjálmsdóttir, foreldrafræðari, uppeldisráðgjafi og höfundur bókarinnar Þegar hugurinn fer að blómstra, kom til okkar í virkilega áhugavert spjall 💛 Við ræddum bókina, hennar eigin sögu og allt …
Notas del episodio
Angelia Fjóla Vilhjálmsdóttir, foreldrafræðari, uppeldisráðgjafi og höfundur bókarinnar Þegar hugurinn fer að blómstra, kom til okkar í virkilega áhugavert spjall 💛 Við ræddum bókina, hennar eigin sögu og allt á milli himins og jarðar þegar kemur að uppeldi barna. Skapofsaköst, skjátími, svefnþjálfun og margt fleira!
Aðlögun og leikskólaspjall
Við fórum yfir aðlögun í leikskóla og allar tilfinningarnar sem geta fylgt því hjá foreldrum. Ræddum líka lífið með leikskólabarn og fórum um víðan völl í allskonar skemmtilegar umræður 💛
Ásdís Björg - Járnskortur 🩸
Ásdís Björg Pálmadóttir er mamma, nýbökuð amma, stjörnuspekisnemi, íþróttakona, áhrifavaldur og margt, margt fleira. Hún kom til okkar og deildi sinni sögu af járnskorti sem á endanum leiddi hana alla leið til …
Notas del episodio
Ásdís Björg Pálmadóttir er mamma, nýbökuð amma, stjörnuspekisnemi, íþróttakona, áhrifavaldur og margt, margt fleira. Hún kom til okkar og deildi sinni sögu af járnskorti sem á endanum leiddi hana alla leið til Bretlands í járngjöf, eftir að hafa upplifað að hún fengi ekki þá aðstoð sem hún þurfti hér heima.
Miklar blæðingar, meðganga og mikil hreyfing eru meðal þess sem getur haft áhrif á járnbirgðir líkamans og margar konur upplifa einkenni járskorts.
Þátturinn er í boði:
🩵 Fjarðarkaup
🩵 Vörður
🩵 KIDS-WORLD
Hvað er í matinn? 🍽️
Hver kannast ekki við þessa spurning? og hausverkinn sem fylgir því að ákveða hvað á að vera í matinn, dag eftir dag, allt árið um kring. Sérstaklega þegar maður er í orlofi með barn sem er byrjað að borða og …
Notas del episodio
Hver kannast ekki við þessa spurning? og hausverkinn sem fylgir því að ákveða hvað á að vera í matinn, dag eftir dag, allt árið um kring. Sérstaklega þegar maður er í orlofi með barn sem er byrjað að borða og þarf allt í einu að hugsa um 4-6 máltíðir á dag. Lofum skemmtilegu jappi um mat og líka einhverjum höxum til að létta foreldrum lífið!
Haust 🤎🍂
Haustið, Halloween, kertaljós og kósý!Þátturinn er í boði:🩵 Fjarðarkaup🩵 KIDS-WORLD🩵 Vörður🩵 Child´s Farm
Hlutir sem myndu senda aðrar mömmur í "coma" 🤯
Í þessum þætti afhjúpum við okkur aðeins sem mæður og deilum alls konar hlutum sem við gerum, höfum gert eða höfum einfaldlega ekki nennt að hafa áhyggjur af... og sem gætu mögulega sent aðrar mömmur í …
Notas del episodio
Í þessum þætti afhjúpum við okkur aðeins sem mæður og deilum alls konar hlutum sem við gerum, höfum gert eða höfum einfaldlega ekki nennt að hafa áhyggjur af... og sem gætu mögulega sent aðrar mömmur í coma!
Þátturinn er í boði:
🩵 Vörður
🩵 Fjarðarkaup
🩵 Kids-World
🩵 Childs Farm
Valgerður - stjúptengsl
Í þessum ættir fengum við hana Valgerði Halldórsdóttur, félags- og fjölskylduráðgjafa og konuna á bak við stjuptengsl.is til okkar. Við ræddum allt það sem getur reynst flókið í stjúpfjölskyldum og …
Notas del episodio
Í þessum ættir fengum við hana Valgerði Halldórsdóttur, félags- og fjölskylduráðgjafa og konuna á bak við stjuptengsl.is til okkar.
Við ræddum allt það sem getur reynst flókið í stjúpfjölskyldum og foreldrasamvinnu. Hvernig er að sameina fjölskyldur? Hvað gerist þegar upp koma árekstrar og ólíkar væntingar? Og hvernig getum við byggt upp góð tengsl innan fjölskyldunnar?
Valgerður hefur bæði persónulega reynslu af stjúpfjölskyldum og faglega þekkingu á þessum málum, svo þetta varð virkilega skemmtilegt og fróðlegt spjall.
Áslaug - Lífið er kynlíf ❤️
Áslaug Kristjánsdóttir kynfræðingur kom til okkar og ræddi kynlíf og sambönd fólks á barneignaraldri. Það getur verið krefjandi fyrir sambandið að ganga í gegnum meðgöngu, fæðingu og fyrstu árin með ung börn …
Notas del episodio
Áslaug Kristjánsdóttir kynfræðingur kom til okkar og ræddi kynlíf og sambönd fólks á barneignaraldri. Það getur verið krefjandi fyrir sambandið að ganga í gegnum meðgöngu, fæðingu og fyrstu árin með ung börn, þegar tími og orka fara oft í annað en sambandið sjálft.
Sara Scime - bleyjulaust uppeldi og koppaþjálfun 👶🚽
Fengum til okkar Söru Anítu Scime, betur þekkta sem Koppagelluna á TikTok! Sara byrjaði að venja strákana sína tvo á kopp aðeins nokkurra vikna gamla og segir okkur frá bleyjulausu uppeldi, eða "elimination …
Notas del episodio
Fengum til okkar Söru Anítu Scime, betur þekkta sem Koppagelluna á TikTok! Sara byrjaði að venja strákana sína tvo á kopp aðeins nokkurra vikna gamla og segir okkur frá bleyjulausu uppeldi, eða "elimination communication", sem getur sparað manni ansi margar bleyjur og bleyjuskipti!
Mjög áhugavert spjall þar sem Sara gefur góð ráð fyrir börn á öllum aldri. Það er nefnilega aldrei of seint að byrja ✨
Sara Davíðsdóttir - erfið meðganga og hreiðurgerð í flutningum ✈️🏡
Fengum til okkar Söru Davíðsdóttur, einkaþjálfara, flugfreyju og mömmu💛 Sara segir frá afar krefjandi meðgöngu þar sem hún glímdi við mikla ógleði og upplifði að meðgangan færi ekki alveg eins og hún hafði séð …
Notas del episodio
Fengum til okkar Söru Davíðsdóttur, einkaþjálfara, flugfreyju og mömmu💛 Sara segir frá afar krefjandi meðgöngu þar sem hún glímdi við mikla ógleði og upplifði að meðgangan færi ekki alveg eins og hún hafði séð fyrir sér.
Við ræðum líka flutningana hennar frá Barein til Íslands og hvernig það reyndist mun flóknara en hún bjóst við að flytja tvo hunda með sér heim 🐶🐶
Helena Guðrún – missir á meðgöngu og Gleym Mér Ei 🕊️
Helena Guðrún deilir með okkur persónulegri og áhrifamikilli sögu sinni af missi á 15. viku meðgöngu, sorginni sem fylgdi í kjölfarið og lífinu eftir slíka reynslu.Helena situr í stjórn styrktarfélagsins Gleym …
Notas del episodio
Helena Guðrún deilir með okkur persónulegri og áhrifamikilli sögu sinni af missi á 15. viku meðgöngu, sorginni sem fylgdi í kjölfarið og lífinu eftir slíka reynslu.
Helena situr í stjórn styrktarfélagsins Gleym Mér Ei, sem styður við foreldra og fjölskyldur sem missa á meðgöngu eða í og eftir fæðingu.
Í þættinum ræðum við um sorgarferlið, mikilvægi stuðnings og hvernig félagið vinnur að því að litlu ljósin fái að lifa áfram í minningunni.
Þórhildur Þorkels - Tæland í fæðingarorlofinu 🏝️
Við fengum Þórhildi Þorkels til okkar í spjall en hún fór með fjölskyldunni sinni til Taílands í fæðingarorlofinu. Hún fer yfir hvernig það var að ferðast með lítið barn, undirbúninginn og allt það sem við …
Notas del episodio
Við fengum Þórhildi Þorkels til okkar í spjall en hún fór með fjölskyldunni sinni til Taílands í fæðingarorlofinu. Hún fer yfir hvernig það var að ferðast með lítið barn, undirbúninginn og allt það sem við kemur svona ferðalagi. Þórhildur deilir fullt af gagnlegum ráðum og reynslu fyrir þá sem dreyma um að skella sér í svipað ævintýri, hvort sem það er í fæðingarorlofi eða á öðrum tímapunkti í lífinu. Skemmtilegt mömmuspjall um algjöra draumaferð! 🏖️✈️☀️
Orðablik
Fengum Ásdísi og Hjördísi, stofnendur Orðabliks, í spjall um málþroska barna. Hjördís er talmeinafræðingur og Ásdís er með bs í sálfræði. Þær segja okkur frá Orðabliki, deila gagnlegum ráðum til að styðja við …
Notas del episodio
Fengum Ásdísi og Hjördísi, stofnendur Orðabliks, í spjall um málþroska barna. Hjördís er talmeinafræðingur og Ásdís er með bs í sálfræði. Þær segja okkur frá Orðabliki, deila gagnlegum ráðum til að styðja við góðan málþroska barna og ræða hvernig við getum nýtt daglegar stundir til að efla málþroskann. Við förum einnig yfir skjátíma, þær áskoranir sem foreldrar standa frammi fyrir í dag og hvernig hægt er að fjölga gæðastundum fjölskyldunnar án þess að skjár komi til sögu.
Hlutir sem eru peningana virði💰
Í þessum þætti förum við yfir það sem okkur finnst raunverulega vera peningana virði, bæði fyrir börnin og okkur sjálfar 💸👶
Mýtur
Förum yfir mýtur sem við höfum heyrt í gegnum tíðina um meðgöngu, börn og uppeldi. Er virkilega hægt að sjá kyn barnsins á lögun bumbunnar? er satt að börn fái hita þegar þau taka tennur?
Þriðji þriðjungur meðgöngu
Lokum þessari seríu með lokakafla meðgöngunnar – þriðja þriðjungi🤰✨Margir myndu segja að þetta sé mest krefjandi tímabilið. Maginn er orðinn stór, svefninn oft stopull, orkustigið sveiflukennt og biðin eftir …
Notas del episodio
Lokum þessari seríu með lokakafla meðgöngunnar – þriðja þriðjungi🤰✨
Margir myndu segja að þetta sé mest krefjandi tímabilið. Maginn er orðinn stór, svefninn oft stopull, orkustigið sveiflukennt og biðin eftir litla krílinu getur verið löng. Á sama tíma er spennan að ná hámarki og undirbúningurinn fyrir fæðingu og nýtt hlutverk í fullum gangi.
Annar þriðjungur meðgöngu
Annar þáttur af þremur í seríunni okkar um meðgönguna. Í þessum þætti förum við yfir annan þriðjung meðgöngunnar, tímabil sem oft er kallað „hveitibrauðsdagarnir“. Við ræðum hvað einkennir þessa mánuði …
Notas del episodio
Annar þáttur af þremur í seríunni okkar um meðgönguna. Í þessum þætti förum við yfir annan þriðjung meðgöngunnar, tímabil sem oft er kallað „hveitibrauðsdagarnir“. Við ræðum hvað einkennir þessa mánuði, breytingarnar sem eiga sér stað og deilum okkar eigin reynslu á leiðinni💛
Fyrsti þriðjungur meðgöngu
Í þessum þætti förum við yfir fyrsta þriðjung meðgöngunnar, frá því augnabliki sem maður fær já á prófi yfir í fyrstu vikurnar af ógleði, þreytu og alls konar tilfinningum.
Terrible twos og mömmubugun
Yapp session þáttur, fórum yfir lífið og einhvernegin erum við báðar að díla við terrible twos á byrjunarstigi. Smá reality check líka um bugun og hversu erfitt það getur verið að pússla lífinu þegar maður er …
Notas del episodio
Yapp session þáttur, fórum yfir lífið og einhvernegin erum við báðar að díla við terrible twos á byrjunarstigi. Smá reality check líka um bugun og hversu erfitt það getur verið að pússla lífinu þegar maður er með ung börn.
Sumarfrí með börnum
Nú styttist í hið hefðbundna sumarfrí með börnunum☀️Í þessum létta sumarþætti spjöllum við um sumarið framundan, rifjum upp okkar uppáhalds æskuminningar og deilum hugmyndum af hlutum til að gera með börnunum í sumar.
Pabbaspjall - Heimir Daði
Þá er komið að næsta pabbaspjalli!Heimir Daði er 32 ára þriggja barna faðir úr Grindavík. Hann eignaðist sitt fyrsta barn aðeins 17 ára gamall og fer hreinskilnislega yfir hvernig það er að stíga svona ungur …
Notas del episodio
Þá er komið að næsta pabbaspjalli!Heimir Daði er 32 ára þriggja barna faðir úr Grindavík. Hann eignaðist sitt fyrsta barn aðeins 17 ára gamall og fer hreinskilnislega yfir hvernig það er að stíga svona ungur inn í foreldrahlutverkið.
Í þættinum deilir hann einnig reynslu sinni af erfiðum áföllum, þar á meðal foreldramissi.
Elínborg - unga fólkið okkar
Elínborg Ingvarsdóttir er tómstunda- og forvarnarfulltrúi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún brennur fyrir málefnum barna og unglinga og hefur víðtæka reynslu, meðal annars sem forstöðumaður félagsmiðstöðvar og …
Notas del episodio
Elínborg Ingvarsdóttir er tómstunda- og forvarnarfulltrúi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún brennur fyrir málefnum barna og unglinga og hefur víðtæka reynslu, meðal annars sem forstöðumaður félagsmiðstöðvar og umsjónarmaður ungmennaráðs í Grindavík.
Við fengum Elínborgu til okkar í spjall þar sem fókusinn er á ungt fólk – enda verða börnin okkar eldri og þá taka við nýjar áskoranir. Þetta var virkilega áhugavert og fræðandi samtal sem gaf okkur margt til að hugsa um fyrir unglingsárin.
Það er svo mikilvægt að hlúa vel að þessum hópi og tryggja að honum standi til boða faglegt og uppbyggjandi starf í frístunda- og tómstundamálum.
Hafdís - ósýnilegir sjúkdómar
Hafdís Houmøller Einarsdóttir kom til okkar í spjall og segir okkur frá sinni reynslu af því að lifa með ósýnilegum sjúkdómum. Hún ræðir fordóma og skilningsleysi sem oft fylgir, en líka ákvörðunina að verða …
Notas del episodio
Hafdís Houmøller Einarsdóttir kom til okkar í spjall og segir okkur frá sinni reynslu af því að lifa með ósýnilegum sjúkdómum. Hún ræðir fordóma og skilningsleysi sem oft fylgir, en líka ákvörðunina að verða mamma þrátt fyrir áskoranir lífsins. Meðal sjúkdóma sem hún er með eru endómetríósa, vefjagigt og mígreni.
Að byrja vinna aftur eftir fæðingarorlof
Ræðum um það hvernig það er að byrja vinna aftur eftir fæðingarorlof. Hvernig þetta er á sama tíma erfitt en líka svo frelsandi!
Mömmuþáttur
Við settumst niður á mæðradaginn sjálfan og spjölluðum um móðurhlutverkið í allri sinni dýrð 💛Ræðum allt frá því hvað okkur finnst best/erfiðast við móðurhlutverkið, hvað breyttist mest þegar við urðum mömmur …
Notas del episodio
Við settumst niður á mæðradaginn sjálfan og spjölluðum um móðurhlutverkið í allri sinni dýrð 💛
Ræðum allt frá því hvað okkur finnst best/erfiðast við móðurhlutverkið, hvað breyttist mest þegar við urðum mömmur og allskonar mömmuspjall. Dass af ranti líka um nýjast útspil heilbrigðisráðherra!
Ofbeldi í nánum samböndum
Trigger warning: Í þessum þætti er rætt um heimilisofbeldi og ofbeldi í nánum samböndum. Jenný Kristínu Valberg, mamma og starfandi teymisstjóri Bjarkahlíðar ræðir við okkur um ofbeldi í nánum samböndum …
Notas del episodio
Trigger warning: Í þessum þætti er rætt um heimilisofbeldi og ofbeldi í nánum samböndum.
Jenný Kristínu Valberg, mamma og starfandi teymisstjóri Bjarkahlíðar ræðir við okkur um ofbeldi í nánum samböndum.
Sláandi tölfræði sýnir að um 20 prósent íslenskra mæðra eru beittar ofbeldi á meðgöngu, sem undirstrikar hversu mikilvægt er að tala opinskátt um þessi mál.
Jenný, sem hefur mikla reynslu af málaflokknum, fræðir um birtingamyndir heimilisofbeldis, rauð flögg í upphafi sambanda og hvert hægt er að leita eftir hjálp og stuðningi.
Aðskilnaðarkvíði
Í þessum þætti tölum við um aðskilnaðarkvíða, bæði hjá okkur foreldrunum og börnunum. Hvort sem það er í fyrsta skipti sem barnið fer í pössun, næturpössun, til dagmömmu eða byrjar í leikskóla, þá fylgja oft …
Notas del episodio
Í þessum þætti tölum við um aðskilnaðarkvíða, bæði hjá okkur foreldrunum og börnunum. Hvort sem það er í fyrsta skipti sem barnið fer í pössun, næturpössun, til dagmömmu eða byrjar í leikskóla, þá fylgja oft alls konar tilfinningar.
Fæðingarsaga Helgu Dísar
Helga Dís deilir reynslu sinni af erfiðri fæðingu og þeim áhrifum sem hún hafði á fyrstu mánuðina. Hún ræðir bæði andlega og líkamlega vanlíðan og þá áskorun sem fylgdi því að stíga inn í móðurhlutverkið við …
Notas del episodio
Helga Dís deilir reynslu sinni af erfiðri fæðingu og þeim áhrifum sem hún hafði á fyrstu mánuðina. Hún ræðir bæði andlega og líkamlega vanlíðan og þá áskorun sem fylgdi því að stíga inn í móðurhlutverkið við þær aðstæður ❤️🩹
Aquí están los 40 episodios más recientes de 52. Los anteriores están en el feed del podcast.
Podcasts similares
Más podcasts de Para toda la familia¿Es tu podcast?
Confírmalo con una entrada en tu feed: aquí recibes un código, lo añades como podcast:txt en el canal de tu feed y nosotros lo comprobamos. Después tu podcast aparecerá como «verificado» en SoundNode.







