Saltar al contenido
Kerfið
PodcastEducaciónIS

Kerfið

Episodio 11. Að læra bókstafina17 de octubre de 2024 · 42 min
Episodios
37
Formato
Serie: escúchala desde el principio
Último episodio
10 Nov 2026

Sobre el podcast

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni.

Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir

Framleiðsla: Rás 1

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Episodios 37

  1. Betrun 7. þáttur - Áhrif áfalla

    1 h 1 min

    Margir þeirra sem eru dæmdir í fangelsi ljúka afplánun á Vernd en eitt af skilyrðum þess að fá heimild til þess er að vera án vímuefna, í vinnu eða öðrum úrræðum o.s.frv. Fortíðin mótar marga í fangelsiskerfinu …

    Notas del episodio
    Margir þeirra sem eru dæmdir í fangelsi ljúka afplánun á Vernd en eitt af skilyrðum þess að fá heimild til þess er að vera án vímuefna, í vinnu eða öðrum úrræðum o.s.frv. Fortíðin mótar marga í fangelsiskerfinu og snemmtæk íhlutun hefði breytt mörgu. Exit er nýtt verkefni fyrir fólk sem hefur lokið afplánun en flestir þeirra sem enda í fangelsi eru með vímuefnavanda. Viðmælendur: Guðmundur Gíslason, Hafdís Guðmundsdóttir og Þráinn Farestveit. Guðrún Hálfdánardóttir er umsjónarmaður Kerfisins á Rás 1 og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  2. Betrun 6. þáttur - Draumur fangavarðar

    1 h

    Jón Ingi Jónsson fangavörður á sér draum um að auka vægi verklegrar kennslu á Litla-Hrauni því hann gerir sér grein fyrir mikilvægi náms og vinnu í fangelsum landsins. Í þættinum er farið í heimsókn á …

    Notas del episodio
    Jón Ingi Jónsson fangavörður á sér draum um að auka vægi verklegrar kennslu á Litla-Hrauni því hann gerir sér grein fyrir mikilvægi náms og vinnu í fangelsum landsins. Í þættinum er farið í heimsókn á trésmíðaverkstæðið á Litla-Hrauni og rætt við afbrotafræðing og framkvæmdastjóra Verndar um stöðu mála á Íslandi þegar kemur að fangelsum landsins. Viðmælendur í þættinum eru Helgi Gunnlaugsson, Jón Ingi Jónsson og Þráinn Farestveit. Guðrún Hálfdánardóttir er umsjónarmaður og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður þáttaraðarinnar Betrun.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  3. Betrun 5. þáttur - Bílageymsla verður fangageymsla

    1 h 1 min

    Fá dómsmál hafa vakið jafn mikla athygli í íslenskri nútímaréttarsögu og Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Tryggvi Rúnar Leifsson sat í gæsluvarðhaldi í rúm fjögur ár eða yfir 1500 daga í tengslum við rannsókn …

    Notas del episodio
    Fá dómsmál hafa vakið jafn mikla athygli í íslenskri nútímaréttarsögu og Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Tryggvi Rúnar Leifsson sat í gæsluvarðhaldi í rúm fjögur ár eða yfir 1500 daga í tengslum við rannsókn málsins. Þar af í einangrun í Síðumúlafangelsinu á annað ár. Viðmælendur í þættinum eru Hreinn Hákonarson og Tryggvi Rúnar Brynjarsson. Guðrún Hálfdánardóttir annaðist dagskrárgerð og tæknimaður er Lydía Grétarsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  4. Betrun 4. þáttur – Lög og réttur á tímum upplýsingarinnar

    57 min

    Um miðja 18. öldina fjölgaði dómum á Íslandi og því fjölgaði föngum í haldi sýslumanna og af þessu hlaust mikill kostnaður. Sýslumennirnir sendu því konungi bænaskrá og töldu að besta lausnin á þeim mikla …

    Notas del episodio
    Um miðja 18. öldina fjölgaði dómum á Íslandi og því fjölgaði föngum í haldi sýslumanna og af þessu hlaust mikill kostnaður. Sýslumennirnir sendu því konungi bænaskrá og töldu að besta lausnin á þeim mikla kostnaði sem fylgdi sakamönnum væri fundin, einfaldlega að taka þá af lífi. Þetta fæli líka í sér tímasparnað. Í stað þess að þurfa að fara með sakamanninn með sér fram og aftur um landið gæti sýslumaður bæði fellt og fullnægt dómnum á einum og sama deginum. Davíð Þór Björgvinsson, Hrannar Hólm, Hreinn Hákonarson, Már Jónsson og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir eru viðmælendur í þættinum. Dagskrárgerð annaðist Guðrún Hálfdánardóttir og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  5. Betrun 3. þáttur - Fangaflutningar til Finnmerkur

    55 min

    Eins og ekkert sé sjálfsagðara þá eru fimm konur og tólf karlar sett á skip í Kaupmannahöfn og send nánast á heimsenda. Ætli það hafi talist betrun meðal embættismanna að senda fanga norður í Barentshaf í stað …

    Notas del episodio
    Eins og ekkert sé sjálfsagðara þá eru fimm konur og tólf karlar sett á skip í Kaupmannahöfn og send nánast á heimsenda. Ætli það hafi talist betrun meðal embættismanna að senda fanga norður í Barentshaf í stað þess að leyfa þeim að snúa heim til Íslands? Viðmælendur í þættinum eru Eiríkur Hermannsson, Halldór Guðmundsson, Már Jónsson og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir. Guðrún Hálfdánardóttir annaðist dagskrárgerð og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  6. Betrun 2. þáttur – Brennimerktir og ærulausir

    58 min

    Aðstæður almúgafólks um aldamótin 1800 voru skelfilegar eftir hörmulegt tíðarfar um áratugaskeið. Langflestir þeirra sem voru sendir í afplánun í Kaupmannahöfn höfðu gerst sekir um þjófnað, jafnvel bændur sem …

    Notas del episodio
    Aðstæður almúgafólks um aldamótin 1800 voru skelfilegar eftir hörmulegt tíðarfar um áratugaskeið. Langflestir þeirra sem voru sendir í afplánun í Kaupmannahöfn höfðu gerst sekir um þjófnað, jafnvel bændur sem aldrei höfðu gerst sekir um óráðvendni. Viðmælendur í þættinum eru: Eiríkur Hermannsson og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir. Guðrún Hálfdánardóttir annaðist dagskrárgerð og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  7. Betrun 1. þáttur – Íslendingar í dönskum þrælakistum

    56 min

    Málefni fanga í nútíð og fortíð eru umfjöllunarefni þáttaraðarinnar Betrun. Í þáttunum er meðal annars fjallað um Íslendinga sem enduðu í þrælakistum Kaupmannahafnar á átjándu og nítjándu öld. Meirihluti þeirra …

    Notas del episodio
    Málefni fanga í nútíð og fortíð eru umfjöllunarefni þáttaraðarinnar Betrun. Í þáttunum er meðal annars fjallað um Íslendinga sem enduðu í þrælakistum Kaupmannahafnar á átjándu og nítjándu öld. Meirihluti þeirra átti ekki afturkvæmt og endaði ævina í Stokkhúsinu enda aðbúnaðurinn þar skelfilegur. Viðmælendur í þættinum eru: Eiríkur Hermannsson, Hrannar Hólm, Sigríður Hjördís Jörundsdóttir og Þráinn Farestveit. Guðrún Hálfdánardóttir annaðist dagskrárgerð og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  8. 5. þáttur - Börn sem hafa sérstöðu

    1 hTemporada 5 · Episodio 5

    Börn eru allskonar og í fullkomnum heimi ætti það ekki að skipta neinu máli. Þau fengju einfaldlega þjónustu við hæfi, svona eins og lög gera ráð fyrir. En kerfið hefur átt erfitt með að laga sig að breyttum …

    Notas del episodio
    Börn eru allskonar og í fullkomnum heimi ætti það ekki að skipta neinu máli. Þau fengju einfaldlega þjónustu við hæfi, svona eins og lög gera ráð fyrir. En kerfið hefur átt erfitt með að laga sig að breyttum heimi. Viðmælendur í þættinum eru: Guðbjörg Rut Þórisdóttir, Meyvant Þórólfsson og Sara Rós Kristinsdóttir. Tæknimaður er Lydía Grétarsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  9. 4. þáttur - Ræður kerfið við verkefnið?

    59 minTemporada 5 · Episodio 4

    Kerfið er fyrir meðaltalsnemandann sem getur ákveðna hluti en þeir sem ráða ekki við það verkefni eiga á hættu að falla á milli kerfa. Börn sem eru á biðlistum eru með skilgreindan vanda en það vantar nákvæma …

    Notas del episodio
    Kerfið er fyrir meðaltalsnemandann sem getur ákveðna hluti en þeir sem ráða ekki við það verkefni eiga á hættu að falla á milli kerfa. Börn sem eru á biðlistum eru með skilgreindan vanda en það vantar nákvæma skilgreiningu á hvers eðlis hann er. Þegar loksins kemur að lokagreiningu hefur barnið jafnvel beðið í fimm ár, fyrst eftir forgreiningu hjá sveitarfélagi og síðan hjá ríkinu. Viðmælendur í þættinum eru Bóas Valdórsson og Sigurður Árni Reynisson. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  10. 3. þáttur - Staðan versnar bara

    58 minTemporada 5 · Episodio 3

    Embætti umboðsmanns barna hefur í fimm ár safnað upplýsingum um börn og biðlista. Á þeim tíma hafa biðlistarnir bara lengst og ekkert sem bendir til þess að staðan sé að batna. Það skorti umburðarlyndi fyrir …

    Notas del episodio
    Embætti umboðsmanns barna hefur í fimm ár safnað upplýsingum um börn og biðlista. Á þeim tíma hafa biðlistarnir bara lengst og ekkert sem bendir til þess að staðan sé að batna. Það skorti umburðarlyndi fyrir fjölbreytileika mannlífsins og það þekkja svo sannarlega foreldrar barna sem teljast til staðalfrávika frá meðaltalinu á normalkúrfunni. Gestir þáttarins eru Salvör Nordal og Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  11. 2. þáttur - Barist fyrir lífi barnsins

    1 hTemporada 5 · Episodio 2

    Það tekur á að passa ekki inn í kerfið, ekki bara fyrir barnið, heldur alla fjölskylduna. Því við viljum öll það besta fyrir börnin okkar og erum reiðubúin að berjast með kjafti og klóm fyrir þeirra lífi. Já …

    Notas del episodio
    Það tekur á að passa ekki inn í kerfið, ekki bara fyrir barnið, heldur alla fjölskylduna. Því við viljum öll það besta fyrir börnin okkar og erum reiðubúin að berjast með kjafti og klóm fyrir þeirra lífi. Já, svo þau lifi af. Því börn sem eru á jaðrinum, jafnvel hrakin þangað af öðrum, eru í stöðugri hættu. Helga Guðmundsdóttir, Íris Björk Eysteinsdóttir og Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir eru viðmælendur í þættinum. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  12. 1. þáttur - Börn og biðlistar

    59 minTemporada 5 · Episodio 1

    Börnin sem passa ekki inn í kerfið, börnin á biðlistum. Börnin sem þurfa að hafa meira fyrir hlutunum en önnur í almenna skólakerfinu. Börnin sem eru á jaðrinum. Þetta eru börnin sem þurfa mest á öflugu kerfi …

    Notas del episodio
    Börnin sem passa ekki inn í kerfið, börnin á biðlistum. Börnin sem þurfa að hafa meira fyrir hlutunum en önnur í almenna skólakerfinu. Börnin sem eru á jaðrinum. Þetta eru börnin sem þurfa mest á öflugu kerfi að halda. Kerfi sem ekki hafnar þeim heldur styður þau. Anna-Lind Pétursdóttir og Kristján Ketill Stefánsson eru viðmælendur í þættinum en Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  13. 5. þáttur - Verkmennaskólinn á Akureyri

    59 minTemporada 4 · Episodio 5

    Verkmenntaskólinn á Akureyri, VMA, er einn stærsti iðn- og verkmenntaskóli landsins. Eins og víða annars staðar er kennt í öllum skúmaskotum en stjórnendur skólans hugsa í lausnum og eru í góðu samstarfi við …

    Notas del episodio
    Verkmenntaskólinn á Akureyri, VMA, er einn stærsti iðn- og verkmenntaskóli landsins. Eins og víða annars staðar er kennt í öllum skúmaskotum en stjórnendur skólans hugsa í lausnum og eru í góðu samstarfi við vinnustaði á Akureyri þar sem hluti kennslunnar fer fram. Viðmælendur í þættinum eru: Ásta Fönn Flosadóttir, Benedikt Barðason, Elsa Eiríksdóttir, Gunnar Möller, Jóhann Gunnar Jóhannsson og Kristjana Stella Blöndal. Auk þess er rætt við nemendur í VMA. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  14. 4. þáttur FSu og MK

    56 minTemporada 4 · Episodio 4

    Íslenska skólakerfið er bóknámsmiðað og lítil áhersla á verk- og starfsnám í grunnskóla. Þetta er meðal annars að hafa áhrif á áhuga ungmenna á slíku námi. En á síðustu árum hefur áhugi á starfsnámi aukist sem …

    Notas del episodio
    Íslenska skólakerfið er bóknámsmiðað og lítil áhersla á verk- og starfsnám í grunnskóla. Þetta er meðal annars að hafa áhrif á áhuga ungmenna á slíku námi. En á síðustu árum hefur áhugi á starfsnámi aukist sem þýðir að fáir 18 ára og eldri komast inn í vinsælustu greinarnar. Viðmælendur í þættinum eru: Elsa Eiríksdóttir, Guðríður Hrund Helgadóttir, Haraldur Sæmundsson, Soffía Sveinsdóttir, Sigursveinn Sigurðsson og Stella Blöndal. Jafnframt er rætt við nemendur Matvælaskólans og gesti á opnu húsi í MK. Tæknimaður er Lydía Grétarsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  15. 3. þáttur Tækniskólinn

    56 minTemporada 4 · Episodio 3

    Aukinn áhugi er á starfsnámi meðal ungs fólks þrátt fyrir að íslenskt menntakerfi sé mjög bóknámsmiðað. Um leið er þrengt að starfsnámi þegar kemur að húsnæðismálum. Tækniskólinn er stærsti framhaldsskóli …

    Notas del episodio
    Aukinn áhugi er á starfsnámi meðal ungs fólks þrátt fyrir að íslenskt menntakerfi sé mjög bóknámsmiðað. Um leið er þrengt að starfsnámi þegar kemur að húsnæðismálum. Tækniskólinn er stærsti framhaldsskóli landsins og býður upp á fjölbreytt starfsnám. Viðmælendur í þættinum eru: Elsa Eiríksdóttir, Hildur Ingvarsdóttir, Kristjana Stella Blöndal, Þráinn Óskarsson og nokkrir nemendur í Tækniskólanum. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir. 

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  16. 2. þáttur - Skortur á faglegri forystu

    57 minTemporada 4 · Episodio 2

    Það þarf aðhald í skólakerfinu og skólastjórnendur þurfa að nýta niðurstöður Matsferilsins til að skoða hvað gangi ekki nægjanlega vel og hvernig sé hægt að stíga inn og veita aðstoð. Fagleg forysta, eða …

    Notas del episodio
    Það þarf aðhald í skólakerfinu og skólastjórnendur þurfa að nýta niðurstöður Matsferilsins til að skoða hvað gangi ekki nægjanlega vel og hvernig sé hægt að stíga inn og veita aðstoð. Fagleg forysta, eða réttara sagt skortur á henni, er meðal þess sem er rætt um í öðrum þætti Kerfisins. Viðmælendur í þættinum eru Anna Kristín Sigurðardóttir og Auður Soffía Björgvinsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  17. 1. þáttur Mælingar og margt fleira

    58 minTemporada 4 · Episodio 1

    Mjög er rætt um menntamál og fólk hefur ólíkar skoðanir á stöðu skólakerfisins í dag, ekki síst í grunnskólanum. Það er rætt um kennsluaðferðir, símanotkun í skólum, samræmd próf og námsmat í tölum eða …

    Notas del episodio
    Mjög er rætt um menntamál og fólk hefur ólíkar skoðanir á stöðu skólakerfisins í dag, ekki síst í grunnskólanum. Það er rætt um kennsluaðferðir, símanotkun í skólum, samræmd próf og námsmat í tölum eða bókstöfum. Hvort fimmtán ára drengir séu upp til hópa ólæsir og sífellt verri útkomu í PISA. Það hefur aftur á móti minna farið fyrir umræðu um hvers vegna hlutfall íslenskra nemenda sem búa yfir afburðahæfni lækkar á sama tíma og nemendum sem ekki ná meðalhæfni fjölgar. Gestir í þessum fyrsta þætti eru Gunnar Gíslason og Rúnar Sigþórsson.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  18. 7. Virði íslensks stúdentsprófs

    43 minTemporada 3 · Episodio 7

    Borið hefur á því að stúdentsprófin uppfylli ekki kröfur sem erlendir háskólar gera eftir að að námið var stytt í þrjú ár. Fjarnám, samræmi og ósamræmi milli skólaeinkunna og mikilvægi þess að nýta tæknina til …

    Notas del episodio
    Borið hefur á því að stúdentsprófin uppfylli ekki kröfur sem erlendir háskólar gera eftir að að námið var stytt í þrjú ár. Fjarnám, samræmi og ósamræmi milli skólaeinkunna og mikilvægi þess að nýta tæknina til góðra verka. Viðmælendur í þættinum eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Ársælsson, Árni Ólason, Eyrún Arnardóttir, Guðjón Hreinn Hauksson, Hjálmar Gíslason, Magnús Þorkelsson, Matthildur Ársælsdóttir, Miriam Petra Ómarsdóttir Awad og Sólveig Hannesdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  19. 6. Við erum alls konar

    43 minTemporada 3 · Episodio 6

    Við erum alls konar og skólakerfið á að spegla þennan fjölbreytileika. Nemendum á starfsbrautum framhaldsskólanna hefur fjölgað gríðarlega undanfarinn áratug sem og nemendum með erlendan bakgrunn. Nánast allir …

    Notas del episodio
    Við erum alls konar og skólakerfið á að spegla þennan fjölbreytileika. Nemendum á starfsbrautum framhaldsskólanna hefur fjölgað gríðarlega undanfarinn áratug sem og nemendum með erlendan bakgrunn. Nánast allir halda áfram námi að loknum grunnskóla og það getur verið áskorun að mæta öllum. Viðmælendur í sjötta þætti eru: Askur Örn Margrétarson, Árni Ólason, Berglind Halla Jónsdóttir, Eyrún Arnardóttir, Gunnlaugur Magnússon, Hildur Ýr Ísberg, Hjálmar Gíslason, Kristín Þóra Möller, Magnús Þorkelsson, Sigríður Anna Ólafsdóttir og Þóra Þórðardóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  20. 5. Kennaramenntun og faggreinar

    43 minTemporada 3 · Episodio 5

    Það vantar faggreinakennara í ýmsum greinum, þar á meðal í svonefndum STEM-greinum. Vandamálið er að það er of fátt ungt raungreinafólk sem lítur á framhaldsskólann sem sinn framtíðarvinnustað. Viðmælendur í …

    Notas del episodio
    Það vantar faggreinakennara í ýmsum greinum, þar á meðal í svonefndum STEM-greinum. Vandamálið er að það er of fátt ungt raungreinafólk sem lítur á framhaldsskólann sem sinn framtíðarvinnustað. Viðmælendur í fimmta þætti eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Harðarson, Freyja Hreinsdóttir, Guðjón Haukur Hreinsson og Gunnlaugur Magnússon.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  21. 4. Það vantar húsnæði

    43 minTemporada 3 · Episodio 4

    Stjórnendur framhaldsskóla segja það áskorun að koma öllum fyrir sem stunda þar nám. Kennsla fer jafnvel fram í gámum og geymslum og þetta getur haft þau áhrif að færri sæki í verknám en annars væri. Nemendur …

    Notas del episodio
    Stjórnendur framhaldsskóla segja það áskorun að koma öllum fyrir sem stunda þar nám. Kennsla fer jafnvel fram í gámum og geymslum og þetta getur haft þau áhrif að færri sæki í verknám en annars væri. Nemendur sem ekki uppfylla inntökuskilyrði á verknáms-, starfsnáms- eða stúdentsbrautir velja framhaldsskólabraut. Viðmælendur í fjórða þætti eru: Berglind Halla Jónsdóttir, Brynja Stefánsdóttir, Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir, Kristján Ásmundsson, Kristín Þóra Möller, Sigríður Anna Ólafsdóttir, Sólveig Hannesdóttir, Víðir Stefánsson og nemendur í FB og FS.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  22. 3. Námsmat og námsefni

    43 minTemporada 3 · Episodio 3

    Námsmat og námsefni eru stór hluti af starfi innan framhaldsskólakerfisins. Félagslífið er líka mikilvægur hluti af framhaldsskólanum. Gervigreindin er tækni sem ryður sér hratt til rúms í menntakerfinu líkt og …

    Notas del episodio
    Námsmat og námsefni eru stór hluti af starfi innan framhaldsskólakerfisins. Félagslífið er líka mikilvægur hluti af framhaldsskólanum. Gervigreindin er tækni sem ryður sér hratt til rúms í menntakerfinu líkt og annars staðar. Á sama tíma eiga ýmsar námsbrautir undir högg að sækja. Viðmælendur í þriðja þætti Stakkaskipta eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Ársælsson, Hildur Ýr Ísberg, Hjálmar Gíslason, Matthildur Ársælsdóttir og Sólveig Hannesdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  23. 2. Er skólakerfið á villigötum?

    43 minTemporada 3 · Episodio 2

    Vegna þess hversu opin aðalnámskrá framhaldsskóla er þá er framhaldsskólum nánast í sjálfsvald sett hvaða hvaða námsefni er kennt og hvaða hæfni nemendur þurfa að sýna til þess að ljúka námi. Engu að síður …

    Notas del episodio
    Vegna þess hversu opin aðalnámskrá framhaldsskóla er þá er framhaldsskólum nánast í sjálfsvald sett hvaða hvaða námsefni er kennt og hvaða hæfni nemendur þurfa að sýna til þess að ljúka námi. Engu að síður kemur fram í námskránni að í kjarnagreinum skuli námsmat í lokaáföngum til stúdentsprófs taka mið af viðmiðunarprófum sem ráðherra lætur í té eða viðurkennir. Þessu ákvæði er ekki framfylgt. Viðmælendur í öðrum þætti eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Harðarson, Árni Ólason, Eyrún Arnardóttir, Guðbjörg Rut Þórisdóttir og Magnús Þorkelsson.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  24. 1. Samræmi lítið sem ekkert

    42 minTemporada 3 · Episodio 1

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  25. 6. Bekkjarkerfi eða áfangakerfi

    43 minTemporada 2 · Episodio 6

    Framhaldsskólar landsins eru yfir 30 talsins og flestir þeirra geta tekið á móti flestum þeirra sem sækja um skólavist að loknum grunnskóla. Nemendur með erlendan bakgrunn er fjölbreyttur hópur með svipaðar …

    Notas del episodio
    Framhaldsskólar landsins eru yfir 30 talsins og flestir þeirra geta tekið á móti flestum þeirra sem sækja um skólavist að loknum grunnskóla. Nemendur með erlendan bakgrunn er fjölbreyttur hópur með svipaðar væntingar til framhaldsskólans og aðrir nemendur í íslenska skólakerfinu. Aftur á móti efast þau oft um kunnáttu sína í íslensku. Flestir framhaldsskólar eru með áfangakerfi en skólastjórnendur hvetja ungmenni til að horfa á styrkleika sína og velja skóla í samræmi við þá. Viðmælendur í sjötta þætti eru: Eva Dögg Sigurðardóttir, Fríða Bjarney Jónsdóttir, Guðrún Inga Sívertsen, Jón Páll Haraldsson, Kristjana Stella Blöndal, Linda Heiðarsdóttir, Ómar Örn Magnússon, Meyvant Þórólfsson, Steinn Jóhannsson og nemendur í Hagaskóla og Laugalækjarskóla.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  26. 5. Samstarf á milli skólastiga

    42 minTemporada 2 · Episodio 5

    Mjög gott samstarf er á milli stærstu grunnskóla Austurlands og tveggja framhaldsskóla á svæðinu, Menntaskólans á Egilsstöðum og Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað. Þetta hefur gefið góða raun og lögð er …

    Notas del episodio
    Mjög gott samstarf er á milli stærstu grunnskóla Austurlands og tveggja framhaldsskóla á svæðinu, Menntaskólans á Egilsstöðum og Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað. Þetta hefur gefið góða raun og lögð er áhersla á að hverjum nemanda sé fylgt úr hlaði með upplýsingum um viðkomandi. Mikill meirihluti þeirra sem ljúka grunnskólanámi velur bóknám þegar kemur að framhaldsskólanum en verknám hefur unnið á. Bakgrunnur skiptir máli þegar kemur að vali á framhaldsskóla. Viðmælendur í fimmta þætti Kaflaskila eru: Árni Ólason, Berglind Rós Magnúsdóttir, Birgir Jónsson, Elsa Eiríksdóttir, Sigrún Blöndal, Sæberg Sigurðsson og nemendur í Egilsstaðaskóla.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  27. 4. Hvað ef þú passar ekki í boxið?

    42 minTemporada 2 · Episodio 4

    Við komumst ekki í gegnum lífið án stuðnings. Sumir þurfa meiri stuðning en aðrir. Íslenska skólakerfið á að vera án aðgreiningar, en er það svo? Ungmenni með fatlanir þurfa að sækja um framhaldsskóla í …

    Notas del episodio
    Við komumst ekki í gegnum lífið án stuðnings. Sumir þurfa meiri stuðning en aðrir. Íslenska skólakerfið á að vera án aðgreiningar, en er það svo? Ungmenni með fatlanir þurfa að sækja um framhaldsskóla í febrúar, sem sagt ekki á sama tíma og önnur ungmenni. Og það eru ekki óskir þeirra sem hafa mest um það að segja í hvaða skóla þau fá inngöngu í heldur er það fötlunin. Hvort þau passa inn í boxið sem skólinn getur boðið þeim upp á. Í þættinum er einnig fjallað um fjölbreytt námsmat. Viðmælendur í fjórða þætti Kaflaskila eru: Anna Björk Sverrisdóttir, Anna Kristín Sigurðardóttir, Gunnar Gíslason, Ívar Rafn Jónsson, Jón Páll Haraldsson, Linda Heiðarsdóttir, Ómar Örn Magnússon og nemendur í tíunda bekk Laugalækjarskóla.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  28. 3. Góður kennari er gulli betri

    42 minTemporada 2 · Episodio 3

    Góður kennari skiptir miklu máli og kennsla er gefandi starf en um leið erfitt. Það vantar fagmenntað fólk til starfa í grunnskólum landsins og ekki síst í greinum eins og íslensku og stærðfræði. Það er ekki …

    Notas del episodio
    Góður kennari skiptir miklu máli og kennsla er gefandi starf en um leið erfitt. Það vantar fagmenntað fólk til starfa í grunnskólum landsins og ekki síst í greinum eins og íslensku og stærðfræði. Það er ekki nóg að fjölga fagfólki heldur vantar líka nýtt og betra námsefni. Eins má ekki gleyma mikilvægi læsis og lesskilnings á öllum stigum grunnskólans. Viðmælendur í þættinum eru: Gunnar Gíslason, Hjalti Halldórsson, Ívar Rafn Jónsson, Jóhann Örn Sigurjónsson, Jón Páll Haraldsson, Linda Heiðarsdóttir, Oddur Ingi Guðmundsson, Ómar Örn Magnússon, Sigurgrímur Skúlason og nemendur í tíunda bekk Hagaskóla og Laugalækjarskóla.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  29. 2. Samræmt námsmat og einkunnaverðbólga

    44 minTemporada 2 · Episodio 2

    Nýtt samræmt námsmat verður lagt fyrir í grunnskólum landsins vorið 2026. Prófað verður í stærðfræði og lesskilningi en ekkert samræmt námsmat hefur verið í grunnskólum undanfarin ár. Einkunnaverðbólga er …

    Notas del episodio
    Nýtt samræmt námsmat verður lagt fyrir í grunnskólum landsins vorið 2026. Prófað verður í stærðfræði og lesskilningi en ekkert samræmt námsmat hefur verið í grunnskólum undanfarin ár. Einkunnaverðbólga er staðreynd en Ísland er ekkert eyland þar. Viðmælendur í öðrum þætti Kaflaskila eru: Brynhildur Sigurðardóttir, Freyja Birgisdóttir, Linda Heiðarsdóttir, Meyvant Þórólfsson, Sigrún Blöndal, Sigurgrímur Skúlason og nemendur í Egilsstaðaskóla og Laugalækjarskóla.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  30. 1. Aðalnámskrá og hæfniviðmið

    44 minTemporada 2 · Episodio 1

    Undanfarin ár hefur verið unnið að endurbótum á aðalnámskrá grunnskóla enda fékk hún falleinkunn í úttekt sem unnin var fyrir sex árum. Endurskoðuð aðalnámskrá tekur gildi næsta haust og þar hafa greinasvið og …

    Notas del episodio
    Undanfarin ár hefur verið unnið að endurbótum á aðalnámskrá grunnskóla enda fékk hún falleinkunn í úttekt sem unnin var fyrir sex árum. Endurskoðuð aðalnámskrá tekur gildi næsta haust og þar hafa greinasvið og hæfni- og matsviðmið þeirra verið endurbætt og einfölduð. Í fyrsta þætti Kaflaskila er fjallað um aðalnámskrá og hæfni- og matsviðmið. Viðmælendur eru: Auður Bára Ólafsdóttir, Brynhildur Sigurðardóttir, Gunnar Gíslason, Ívar Rafn Jónsson, Jóhann Örn Sigurjónsson, Jón Páll Haraldsson, Linda Heiðarsdóttir, Meyvant Þórólfsson, Ómar Örn Magnússon, Sigrún Blöndal og nokkrir nemendur í Hagaskóla.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

¿Es tu podcast?

Confírmalo con una entrada en tu feed: aquí recibes un código, lo añades como podcast:txt en el canal de tu feed y nosotros lo comprobamos. Después tu podcast aparecerá como «verificado» en SoundNode.

Ajustes

Visualización

Idioma

Determina qué emisoras ves primero en la página de inicio.

Historial

Las emisoras y episodios escuchados recientemente y tus últimas búsquedas solo se guardan en este navegador.

Avisos

Un breve aviso cuando un pódcast que sigues tiene un episodio nuevo. Puedes desactivar pódcast concretos con la campana de su página.

Cuenta

Guarda tus favoritos: en la app y en la web.

Atajos de teclado

/
Abrir búsqueda
Espacio
Reproducir o pausar
← →
En el reproductor: 15 s atrás, 30 s adelante (episodios) · en una fila: siguiente tarjeta
↑ ↓
En una fila: destino dentro de la tarjeta
Inicio / Fin
En una fila: primera o última tarjeta
Esc
Cerrar ventana o menú
?
Este resumen
Reproduciendo ahora

Ir a la emisora

A continuación

    Añade episodios con «A continuación»: sonarán después del episodio actual.