Saltar al contenido
Hlaðvarp Heimildarinnar

Hlaðvarp Heimildarinnar

NuevoEitt og annað: Eitt er að lofa, annað að efna8 de noviembre de 2026 · 8 min
Episodios
803
Se publica
cada dos semanas
Último episodio
8 Nov 2026

Sobre el podcast

Í hlaðvarpi Heimildarinnar má finna fjölbreytta þætti um allt frá pólitík til heiðarlegs skyndibita eða nýjustu græjunnar.

Episodios 803

  1. Eitt og annað: Eitt er að lofa, annað að efna

    8 min

    Flestir leiðtogar vildu draga úr svínaeldi til útflutnings, en útflutningur á grísum hefur aldrei verið meiri.

  2. Eitt og annað: Málverkið af danska kónginum

    9 min

    Í Friðriksborgarhöllinni á Norður – Sjálandi má sjá málverk af dönskum þjóðhöfðingjum, langt aftur í aldir. Fyrsta málverkið af Friðriki X eftir að hann varð konungur Danmerkur var afhjúpað fyrir skömmu. Verkið …

    Notas del episodio
    Í Friðriksborgarhöllinni á Norður – Sjálandi má sjá málverk af dönskum þjóðhöfðingjum, langt aftur í aldir. Fyrsta málverkið af Friðriki X eftir að hann varð konungur Danmerkur var afhjúpað fyrir skömmu. Verkið er umdeilt.
  3. Eitt og annað: Óttast stefnubreytingu hjá DR

    9 min

    Danskir leikarar, leikstjórar, handritshöfundar, myndatökumenn og fleiri sem unnið hafa að gerð leikinna sjónvarpsþátta hjá Danska sjónvarpinu, DR, óttast stefnubreytingu undir stjórn nýs yfirmanns. Minni …

    Notas del episodio
    Danskir leikarar, leikstjórar, handritshöfundar, myndatökumenn og fleiri sem unnið hafa að gerð leikinna sjónvarpsþátta hjá Danska sjónvarpinu, DR, óttast stefnubreytingu undir stjórn nýs yfirmanns. Minni áhersla verði lögð á gerð vandaðra leikinna þáttaraða, sem hafa verið ein helsta skrautfjöður DR mörg undanfarin ár og skapað miklar tekjur.
  4. Eitt og annað: Comté eða ekki Comté

    5 min

    Í Frakklandi gilda mjög ákveðnar reglur varðandi framleiðslu osta, nánar tiltekið eru reglurnar 170 talsins. Mjög strangt eftirlit er með framleiðslunni enda mikið í húfi því franskir ostar eru heimsfrægir …

    Notas del episodio
    Í Frakklandi gilda mjög ákveðnar reglur varðandi framleiðslu osta, nánar tiltekið eru reglurnar 170 talsins. Mjög strangt eftirlit er með framleiðslunni enda mikið í húfi því franskir ostar eru heimsfrægir fyrir gæði. En stundum koma upp vandamál sem erfitt er að leysa, því hafa framleiðendur Comté ostanna fengið að kynnast að undanförnu.
  5. Þjóðhættir #74: Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1

    52 min

    Þennan þátt af Þjóðháttum flytja Kristinn Schram og Auður Viðarsdóttir ykkur beint af þjóðlistahátíðinni Vöku, tekinn upp í lifandi flutningi í Salnum í Kópavogi. Við kynnumst hljóðritasafni Stofnunar Árna …

    Notas del episodio
    Þennan þátt af Þjóðháttum flytja Kristinn Schram og Auður Viðarsdóttir ykkur beint af þjóðlistahátíðinni Vöku, tekinn upp í lifandi flutningi í Salnum í Kópavogi. Við kynnumst hljóðritasafni Stofnunar Árna Magnússonar með Rósu Þorsteinsdóttur, fáum innsýn í dagskrá hátíðarinnar og spjöllum við Atla Frey Hjaltason um þjóðdansa, tónlist og þjóðlistir. Þetta er fyrri þáttur af tveimur þar sem við tökum púlsinn á stærstu þjóðlistahátíð landsins.
  6. Eitt og annað: Tromp á hendi Trumps?

    8 min

    Danski herinn hefur árum saman mátt búa við niðurskurð, sem bæði hefur bitnað á tækjum og mannskap. Slæmur aðbúnaður og léleg laun hafa orðið til þess að færri sækjast eftir hermennskunni. Nýlega varð danski …

    Notas del episodio
    Danski herinn hefur árum saman mátt búa við niðurskurð, sem bæði hefur bitnað á tækjum og mannskap. Slæmur aðbúnaður og léleg laun hafa orðið til þess að færri sækjast eftir hermennskunni. Nýlega varð danski flotinn að aflýsa leiðangri til Grænlands vegna þess að ekki var hægt að manna leiðangursskipið. Slíkar fréttir skaða ímynd flotans og geta verið vatn á myllu Bandaríkjaforseta.
  7. Eitt og annað: 50 þúsund slysagildrusvalir

    6 min

    Á húsum í Danmörku eru að minnsta kosti 50 þúsund svalir sem eru beinlínis hættulegar, að mati Dönsku byggingatæknistofnunarinnar. Fyrir skömmu lést húsvörður íbúðablokkar í Kaupmannahöfn þegar litlar svalir á …

    Notas del episodio
    Á húsum í Danmörku eru að minnsta kosti 50 þúsund svalir sem eru beinlínis hættulegar, að mati Dönsku byggingatæknistofnunarinnar. Fyrir skömmu lést húsvörður íbúðablokkar í Kaupmannahöfn þegar litlar svalir á húsinu hrundu.
  8. Eitt og annað: Ruslið eftir Kanana á Grænlandi

    8 min

    Í tengslum við yfirlýsingar og áhuga Donald Trump um yfirráð og kaup á Grænlandi hefur lítið verið talað um viðskilnað bandaríska hersins á fyrrverandi herstöðvum í landinu. Í þeim efnum er síður en svo allt í sómanum.

  9. Eitt og annað: Af pedalanum á bensíngjöfina

    7 min

    Ungum Dönum sem hjóla daglega í skólann eða til vinnu hefur fækkað talsvert á síðustu árum. Í Danmörku fjölgar bílum ár frá ári og á heimilum þar sem áður var til einn bíll eru þeir nú iðulega tveir, jafnvel þrír.

  10. Eitt og annað: Vonast eftir bandaríska hernum

    8 min

    Þótt meirihluti Grænlendinga vilji ekkert með Bandaríkjamenn hafa gegnir öðru máli um íbúa Narsarsuaq. Þeir binda miklar vonir við að bandaríski herinn komi þar upp herstöð.

  11. Eitt og annað: Glansinn hverfur af stígvélunum

    8 min

    Svartar bjarnarskinnshúfur, rauðir jakkar, bláar buxur, byssustingur og gljáandi stígvél. Þetta er hátíðarbúningur lífvarða dönsku hirðarinnar. Samkvæmt reglum um aðbúnað á vinnustöðum verður nú slakað á kröfum …

    Notas del episodio
    Svartar bjarnarskinnshúfur, rauðir jakkar, bláar buxur, byssustingur og gljáandi stígvél. Þetta er hátíðarbúningur lífvarða dönsku hirðarinnar. Samkvæmt reglum um aðbúnað á vinnustöðum verður nú slakað á kröfum um háglansandi skófatnað varðanna.
  12. Eitt og annað: 50 gráðu frost, 12 menn og 100 hundar

    8 min

    Sirius deild danska hersins er ekki daglega í fréttum en gegnir mikilvægu hlutverki. Þessi fámenna deild á sér langa sögu en nafnið Sirius (Hundastjarnan) er ekki tilviljun. Sirius deildin hefur eftirlit með …

    Notas del episodio
    Sirius deild danska hersins er ekki daglega í fréttum en gegnir mikilvægu hlutverki. Þessi fámenna deild á sér langa sögu en nafnið Sirius (Hundastjarnan) er ekki tilviljun. Sirius deildin hefur eftirlit með stærsta þjóðgarði heims.
  13. Eitt og annað: Þýski bílabransinn í bobba

    8 min

    Flestir stærstu bílaframleiðendur í Þýskalandi eiga í miklum erfiðleikum. Starfsfólki í þýskum bílaverksmiðjum fækkaði um 114 þúsund á síðasta ári og útlitið fram undan er ekki bjart. Kínverjar hafa á örfáum …

    Notas del episodio
    Flestir stærstu bílaframleiðendur í Þýskalandi eiga í miklum erfiðleikum. Starfsfólki í þýskum bílaverksmiðjum fækkaði um 114 þúsund á síðasta ári og útlitið fram undan er ekki bjart. Kínverjar hafa á örfáum árum „reykspólað“ inn á bílamarkaðinn.
  14. Eitt og annað: Fjölgun í hernum veldur vanda

    9 min

    Fjölgað verður um mörg þúsund manns í danska hernum á næstu árum. Slík fjölgun mun, að mati sérfræðinga, hafa mikil áhrif á danskan vinnumarkað og kalla á vinnuafl frá öðrum löndum. Framleiðsla vopna og …

    Notas del episodio
    Fjölgað verður um mörg þúsund manns í danska hernum á næstu árum. Slík fjölgun mun, að mati sérfræðinga, hafa mikil áhrif á danskan vinnumarkað og kalla á vinnuafl frá öðrum löndum. Framleiðsla vopna og skotfæra verður jafnframt stóraukin í Danmörku.
  15. Eitt og annað: Kuggurinn: Á meðal merkustu fornleifa sem fundist hafa í Danmörku

    9 min

    Þegar starfsmenn danska Víkingaskipasafnsins könnuðu hafsbotninn úti fyrir Kaupmannahöfn fyrir nokkrum árum vegna fyrirhugaðra stórframkvæmda grunaði þá ekki að þar leyndist fjársjóður, skipsflak frá 15. öld …

    Notas del episodio
    Þegar starfsmenn danska Víkingaskipasafnsins könnuðu hafsbotninn úti fyrir Kaupmannahöfn fyrir nokkrum árum vegna fyrirhugaðra stórframkvæmda grunaði þá ekki að þar leyndist fjársjóður, skipsflak frá 15. öld. Flakið er talið meðal merkustu fornleifa sem fundist hafa í Danmörku.
  16. Þjóðhættir #73: Jólaskammturinn, laufabrauð og mandarínuát

    43 min

    Þátturinn verður með hátíðlegu sniði því nú nálgast jólin þar sem allskonar kræsingar og lystisemdir verða á borðum landsmanna. Við ferðumst aftur í tímann og heyrum hvað fólk, sem fætt var um aldamótin …

    Notas del episodio
    Þátturinn verður með hátíðlegu sniði því nú nálgast jólin þar sem allskonar kræsingar og lystisemdir verða á borðum landsmanna. Við ferðumst aftur í tímann og heyrum hvað fólk, sem fætt var um aldamótin nítjánhundruð, borðaði í sinni æsku, forvitnumst um laufabrauð í samtíð og fortíð og veltum fyrir okkur ógætilegu mandarínuáti. Gestir þáttarins er miklir matgæðingar, þjóðfræðingarnir Guðrún Gígja Jónsdóttir og Áki Guðni Karlsson. Þau segja okkur frá sínum matarhefðum yfir hátíðarnar og hvort það er eitthvað sem alls ekki má vanta á matardiskinn. Þetta er síðasti þáttur Þjóðhátta á þessu ári og við segjum því að lokum: Gleðileg jól! Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
  17. Eitt og annað: Færa sig sífellt upp á skaftið

    7 min

    Á Eystrasalti og svæðinu þar umhverfis eru mestar líkur á að Rússar reyni að beita hervaldi gegn NATO-ríkjum. Þetta kemur fram í nýju áhættumati Leyniþjónustu danska hersins. Rússar færa sig í auknum mæli upp á …

    Notas del episodio
    Á Eystrasalti og svæðinu þar umhverfis eru mestar líkur á að Rússar reyni að beita hervaldi gegn NATO-ríkjum. Þetta kemur fram í nýju áhættumati Leyniþjónustu danska hersins. Rússar færa sig í auknum mæli upp á skaftið og sýna ógnandi framferði.
  18. Þjóðhættir #72: Sjálfbærni og matarhættir

    44 min

    Hvernig getum við lifað sjálfbærara og betra lífi fyrir okkur sjálf og heiminn þegar kemur að því hvað við látum ofan í okkur? Gestur Þjóðhátta að þessu sinni er Auður Viðarsdóttir, doktorsnemi í þjóðfræði …

    Notas del episodio
    Hvernig getum við lifað sjálfbærara og betra lífi fyrir okkur sjálf og heiminn þegar kemur að því hvað við látum ofan í okkur? Gestur Þjóðhátta að þessu sinni er Auður Viðarsdóttir, doktorsnemi í þjóðfræði. Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
  19. Eitt og annað: Hægfara aldursforseti

    7 min

    Kemst þótt hægt fari er málsháttur sem flestir kannast við. Hann á sannarlega við grænlandshákarlinn sem verður ekki kynþroska fyrr en við 156 ára aldur og getur orðið 400 ára, eldri en nokkurt annað hryggdýr …

    Notas del episodio
    Kemst þótt hægt fari er málsháttur sem flestir kannast við. Hann á sannarlega við grænlandshákarlinn sem verður ekki kynþroska fyrr en við 156 ára aldur og getur orðið 400 ára, eldri en nokkurt annað hryggdýr. Hann setur þó engin hraðamet, nær mest 2,7 kílómetra hraða á klukkustund, syndir kafsund.
  20. Þjóðhættir #71: Ljósmæður, meðganga og hjátrú

    23 min

    Að þessu sinni verður umfjöllunarefni þáttarins spennandi nýsköpunarverkefni sem tveir nemendur í þjóðfræði, Birta Diljá Ögmundardóttir og Kári Thayer, unnu síðastliðið sumar í samstarfi við Þjóðháttadeild …

    Notas del episodio
    Að þessu sinni verður umfjöllunarefni þáttarins spennandi nýsköpunarverkefni sem tveir nemendur í þjóðfræði, Birta Diljá Ögmundardóttir og Kári Thayer, unnu síðastliðið sumar í samstarfi við Þjóðháttadeild Þjóðminjasafn Íslands, Ljósmæðrafélag Íslands og Evu Þórdísi Ebenezerdóttur, doktorsnema í þjóðfræði. Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
  21. Eitt og annað: Hafa sofið á verðinum

    7 min

    Ef netsambandið klikkar fer allt til fjandans, nema viðbúnaður sé til staðar, og það er hann ekki hér í Danmörku,“ sagði ráðherra almannavarna í dönsku ríkisstjórninni eftir að netið lá niðri klukkustundum …

    Notas del episodio
    Ef netsambandið klikkar fer allt til fjandans, nema viðbúnaður sé til staðar, og það er hann ekki hér í Danmörku,“ sagði ráðherra almannavarna í dönsku ríkisstjórninni eftir að netið lá niðri klukkustundum saman í lok október, vegna bilunar. „Danir og margar aðrar þjóðir hafa sofið á verðinum,“ sagði ráðherrann.
  22. Þjóðhættir #70: Á slóðum þjóðlagatónlistar, þjóðdansa og þjóðernis

    40 min

    Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.

  23. Eitt og annað: Eitt þekktasta skip í sögu Danmerkur

    12 min

    Margir þekkja hið vinsæla lag Kim Larsen, Jutlandia, en það hefst á orðunum „Det var i 1949 eller cirka der omkring da der var krig I Korea“. Færri þekkja sögu þessa merka skips sem hófst árið 1934 og lauk …

    Notas del episodio
    Margir þekkja hið vinsæla lag Kim Larsen, Jutlandia, en það hefst á orðunum „Det var i 1949 eller cirka der omkring da der var krig I Korea“. Færri þekkja sögu þessa merka skips sem hófst árið 1934 og lauk fyrir 60 árum í Bilbao á Spáni.
  24. Þjóðhættir #69: Reðursafnið, gestabækur og torfbæir

    49 min

    Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.

  25. Þjóðhættir #68: Fjárréttir á Íslandi fyrr og nú

    19 min

    Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.

  26. Eitt og annað: Stolið fyrir milljónir á hverjum degi

    6 min

    Þjófnuðum úr dönskum matvöruverslunum hefur fjölgað mikið á síðustu árum. Í fyrra var daglega stolið vörum fyrir 5,5 milljónir danskra króna. Þar við bætast þjófnaðir úr annars konar verslunum. Kaupmenn vita …

    Notas del episodio
    Þjófnuðum úr dönskum matvöruverslunum hefur fjölgað mikið á síðustu árum. Í fyrra var daglega stolið vörum fyrir 5,5 milljónir danskra króna. Þar við bætast þjófnaðir úr annars konar verslunum. Kaupmenn vita vart sitt rjúkandi ráð í baráttunni við þjófana.
  27. Þjóðhættir #67: Skynjun einstaklinga á návist framliðinna

    28 min

    Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.

  28. Þjóðhættir #66: Alþýðutónlist og Vaka - þjóðlistahátið

    48 min

    Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón að þessu sinni hafa Auður Viðarsdóttir doktorsnemi og Kristinn Schram dósent í þjóðfræði. Hljóðjöfnun: Egill Viðarsson.

  29. Eitt og annað: Óvissan um flaggskipið

    10 min

    Árum saman hefur ríkt mikil óvissa um framtíð Palads, eins elsta kvikmyndahúss Kaupmannahafnar. Allar hugmyndir varðandi framtíð hússins hafa hingað til verið slegnar út af borðinu en nýjasta hugmyndin fær …

    Notas del episodio
    Árum saman hefur ríkt mikil óvissa um framtíð Palads, eins elsta kvikmyndahúss Kaupmannahafnar. Allar hugmyndir varðandi framtíð hússins hafa hingað til verið slegnar út af borðinu en nýjasta hugmyndin fær jákvæð viðbrögð.
  30. Eitt og annað: Titringur í kálgörðunum

    9 min

    Í Danmörku eru tugir þúsunda smáhýsa, svonefnd kolonihavehus, sem mörg hver hafa verið byggð í leyfisleysi og í trássi við lög og reglur. Borgaryfirvöld í Kaupmannahöfn vilja nú bregðast við og koma böndum á …

    Notas del episodio
    Í Danmörku eru tugir þúsunda smáhýsa, svonefnd kolonihavehus, sem mörg hver hafa verið byggð í leyfisleysi og í trássi við lög og reglur. Borgaryfirvöld í Kaupmannahöfn vilja nú bregðast við og koma böndum á óreiðuna eins og það er orðað. Eigendur smáhýsanna eru uggandi.

Aquí están los 40 episodios más recientes de 803. Los anteriores están en el feed del podcast.

¿Es tu podcast?

Confírmalo con una entrada en tu feed: aquí recibes un código, lo añades como podcast:txt en el canal de tu feed y nosotros lo comprobamos. Después tu podcast aparecerá como «verificado» en SoundNode.

Ajustes

Visualización

Idioma

Determina qué emisoras ves primero en la página de inicio.

Historial

Las emisoras y episodios escuchados recientemente y tus últimas búsquedas solo se guardan en este navegador.

Avisos

Un breve aviso cuando un pódcast que sigues tiene un episodio nuevo. Puedes desactivar pódcast concretos con la campana de su página.

Cuenta

Guarda tus favoritos: en la app y en la web.

Atajos de teclado

/
Abrir búsqueda
Espacio
Reproducir o pausar
← →
En el reproductor: 15 s atrás, 30 s adelante (episodios) · en una fila: siguiente tarjeta
↑ ↓
En una fila: destino dentro de la tarjeta
Inicio / Fin
En una fila: primera o última tarjeta
Esc
Cerrar ventana o menú
?
Este resumen
Reproduciendo ahora

Ir a la emisora

A continuación

    Añade episodios con «A continuación»: sonarán después del episodio actual.