Saltar al contenido
hún hlaðvarp

hún hlaðvarp

Nuevohún hlaðvarp #23 Hanna Birna Kristjánsdóttir10 de noviembre de 2026 · 2 h 5 min
Episodios
24
Se publica
cada semana
Último episodio
10 Nov 2026

Sobre el podcast

Hún er hlaðvarpssería um konur sem hafa farið sínar eigin leiðir í íslensku atvinnulífi. Þær koma úr ólíkum áttum en eiga það sameiginlegt að hafa byggt upp sterkan feril og tekist á við krefjandi ákvarðanir á leiðinni. Í þáttunum segja þær frá ferðalaginu, áskorunum og ákvörðunum sem hafa mótað þær. Markmiðið er að veita innsýn og innblástur og skapa rými fyrir umræðu um konur sem vilja ná langt, taka pláss og skapa sér sterkan sess í atvinnulífinu, læra hver af annarri og miðla reynslu og þekkingu.

Episodios 24

  1. hún hlaðvarp #23 Hanna Birna Kristjánsdóttir

    2 h 5 minTemporada 2 · Episodio 11

    Gestur þáttarins er Hanna Birna Kristjánsdóttir, meðstofnandi og stjórnarformaður Heimsþings kvenleiðtoga, ráðgjafi UN Women um forystu kvenna, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur og innanríkisráðherra.Í dag …

    Notas del episodio

    Gestur þáttarins er Hanna Birna Kristjánsdóttir, meðstofnandi og stjórnarformaður Heimsþings kvenleiðtoga, ráðgjafi UN Women um forystu kvenna, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur og innanríkisráðherra.

    Í dag ætlum við að tala um eina setningu, afhverju það er alltaf bara ein kona í einu. Um ellefu ár á bak við tjöldin í stjórnmálaflokki, um borg sem féll sex vikum eftir að hún tók við henni, um tónleikahús sem tveir andstæðir flokkar björguðu í janúar 2009, um rannsókn sem segir að þegar karl lendir í vandræðum missi hann traust en þegar kona lendir í vandræðum missi allar konur traust, um fimmtíu og tveggja ára konu sem flutti ein til New York, og um það hvernig maður býr til pláss fyrir fleiri en eina.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko, Nespresso og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  2. hún hlaðvarp #22 Erla Ósk Ásgeirsdóttir

    1 h 34 minTemporada 2 · Episodio 10

    Gestur þáttarins er Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður Jafnvægisvogarráðs FKA, stjórnarformaður Festu – miðstöðvar um sjálfbærni og stjórnarkona í Bláa lóninu.Í dag ætlum við að tala um tengslanetið, bæði sem …

    Notas del episodio

    Gestur þáttarins er Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður Jafnvægisvogarráðs FKA, stjórnarformaður Festu – miðstöðvar um sjálfbærni og stjórnarkona í Bláa lóninu.

    Í dag ætlum við að tala um tengslanetið, bæði sem hnútinn og lausnina. Um formannsstóla sem konur hurfu úr og ráðningar sem fara fram í gegnum símtöl, um fyrsta stjórnarsætið og muninn á því að mæta á viðburð og að byggja raunverulegt samband, og um það hvernig konur lyfta hver annarri upp í stað þess að keppa um eitt sæti.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko, Nespresso og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  3. hún hlaðvarp #21 Þórunn Inga Ingjaldsdóttir

    1 h 42 minTemporada 2 · Episodio 9

    Gestur þáttarins er Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum, formaður stjórnar Votlendissjóðs og kennari í Executive MBA-námi Háskóla Íslands.Í dag ætlum við að tala um að skipta …

    Notas del episodio

    Gestur þáttarins er Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum, formaður stjórnar Votlendissjóðs og kennari í Executive MBA-námi Háskóla Íslands.

    Í dag ætlum við að tala um að skipta alveg um geira, ekki einu sinni heldur þrisvar. Um Nike, skipaflutninga og banka, um að leiða sérfræðinga þegar maður er sjálf nýja manneskjan, um móðurhlutverkið samhliða vaxandi ferli, um menntun sem breytir lífi kvenna, og um það hvernig tryggingar geta eflt konur.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko, Nespresso og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  4. hún hlaðvarp #20 Ásdís Kristjánsdóttir

    1 h 48 minTemporada 2 · Episodio 8

    Gestur þáttarins er Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, iðnaðarverkfræðingur og hagfræðingur.Í dag ætlum við að tala um konuna á bak við embættið. Um stelpuna úr Breiðholti sem ætlaði að verða læknir …

    Notas del episodio

    Gestur þáttarins er Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, iðnaðarverkfræðingur og hagfræðingur.

    Í dag ætlum við að tala um konuna á bak við embættið. Um stelpuna úr Breiðholti sem ætlaði að verða læknir, um móðurhlutverkið samhliða stjórnendastöðu, um samning um eldhúsið, og um það hvernig maður stígur enn lengra inn í sviðsljósið þegar maður þarf þess ekki.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko, Nespresso og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  5. hún hlaðvarp #19 Viktoría Hermannsdóttir

    1 h 48 min

    Gestur þáttarins er Viktoría Hermannsdóttir, dagskrárgerðarkona hjá RÚV, mannfræðingur og meistari í hagnýtri menningarmiðlun.Í þættinum tölum við um það hvernig atvinnuspyrjandi er sjálf spurð. Um barn sem …

    Notas del episodio

    Gestur þáttarins er Viktoría Hermannsdóttir, dagskrárgerðarkona hjá RÚV, mannfræðingur og meistari í hagnýtri menningarmiðlun.

    Í þættinum tölum við um það hvernig atvinnuspyrjandi er sjálf spurð. Um barn sem fékk frí í skólanum til að fara í jarðarfarir með ömmu sinni og afa, um þrettán ára sölukonu sem var strax komin með sinn eigin kúnnahóp, um skólablað í Breiðholti sem seldi auglýsingar út um allt hverfið, um símtalið sem hún hringdi sjálf komin fimm mánuði á leið, um eitt útvarpsviðtal sem varð að verðlaunum, meistaragráðu og bíómynd, um draumaverkefni sem byrjar þegar hún er 39 ára og um það hvernig kona hættir að bíða eftir að vera uppgötvuð.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  6. hún hlaðvarp #18 Jenna Huld Eysteinsdóttir

    2 h 13 minTemporada 2 · Episodio 6

    Gestur þáttarins er Jenna Huld Eysteinsdóttir, húðsjúkdómalæknir, doktor í læknavísindum, meðeigandi Húðlæknastöðvarinnar og stofnandi Húðvaktarinnar.Í dag ætlum við að tala um hvernig vísindakona verður …

    Notas del episodio

    Gestur þáttarins er Jenna Huld Eysteinsdóttir, húðsjúkdómalæknir, doktor í læknavísindum, meðeigandi Húðlæknastöðvarinnar og stofnandi Húðvaktarinnar.

    Í dag ætlum við að tala um hvernig vísindakona verður frumkvöðull, í geira þar sem flestir láta sér nægja að vinna vinnuna sína. Um stærsta líffærið okkar, sem við tökum bara eftir þegar það er fallegt. Um biðlista sem varð að fyrirtæki, um doktorsritgerð sem var skrifuð með þrjú börn og lista af barnapíum, um sólarvörn í október og ljósabekki sem enginn hefur bannað, og um það hvernig kona lærir að segja hlutina upphátt.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  7. hún hlaðvarp #17 Safa Jemai

    1 h 47 minTemporada 2 · Episodio 5

    Gestur þáttarins er Safa Jemai, hugbúnaðarverkfræðingur, forstjóri og meðstofnandi Treyst.ai, stofnandi hugbúnaðarfyrirtækisins Víkonnekt og kryddfyrirtækisins Mabrúka.Safa er fædd í Túnis árið 1994. Hún kom …

    Notas del episodio

    Gestur þáttarins er Safa Jemai, hugbúnaðarverkfræðingur, forstjóri og meðstofnandi Treyst.ai, stofnandi hugbúnaðarfyrirtækisins Víkonnekt og kryddfyrirtækisins Mabrúka.

    Safa er fædd í Túnis árið 1994. Hún kom fyrst til Íslands sumarið 2017 sem sjálfboðaliði í gróðurhúsi í Hveragerði og fór heim með þá tilfinningu að hún ætti eitthvað óklárað hér. Ári síðar flutti hún, ein, lærði íslensku á fimm mánuðum, kláraði hugbúnaðarverkfræði í HÍ og stofnaði á meðan hún var enn í námi tvö fyrirtæki og vann Gulleggið með því þriðja. Hún var valin Rising Star of the Year á Nordic Women in Tech Awards 2023, situr í útflutnings- og markaðsráði Íslandsstofu og kynnti í vor gervigreindarlausn sem íslensk ráðuneyti, EFTA og ESA komu að og sem nágrannalöndin eru farin að spyrja um.

    Í dag ætlum við að tala um hvernig maður byggir sér líf og fyrirtæki í landi þar sem allir þekkja alla, nema þig. Um móður sem vann frá sex á morgnana til níu á kvöldin, um krydd sem varð að fyrirtæki, um forritara í Túnis og lögfræðinga í ráðuneytum, og um það hvernig traust er unnið.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  8. hún hlaðvarp #16 Lilja Birgisdóttir

    1 h 26 minTemporada 2 · Episodio 4

    Gestur þáttarins er Lilja Birgisdóttir, listakona, ljósmyndari og ein af stofnendum og eigendum Fischersunds. Lilja er fyrsti gesturinn í Hún sem ég ætla að kjósa aðkalla listakonu, fyrst og fremst. Kona sem …

    Notas del episodio

    Gestur þáttarins er Lilja Birgisdóttir, listakona, ljósmyndari og ein af stofnendum og eigendum Fischersunds.

    Lilja er fyrsti gesturinn í Hún sem ég ætla að kjósa aðkalla listakonu, fyrst og fremst. Kona sem hefur breytt listinni sinni í rekstur. Fischersund byrjaði með einum ilmi í tómu, svörtu húsi í Grjótaþorpinu fyrir tæpum níu árum. Í dag eru ilmirnir seldir hjá yfir hundrað söluaðilum víða um heim, fjölskyldan hefur haldið ilmtónleika í París, Seattle og Kaupmannahöfn, og í fyrra var Fischersund valið verk ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands. Og samhliða öllu þessu heldur Lilja áfram að sýnasem myndlistarkona.

    Það sem mér finnst merkilegast við hana er ekki hvað húnhefur byggt, heldur hvernig. Engar auglýsingar, enginn fjárfestir, engin hefðbundin leið. Bara listafólk sem ákvað að vinna saman og treysta því að fólk fyndi þau.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  9. hún hlaðvarp #15 Snædís Ögn Flosadóttir

    2 h 4 minTemporada 2 · Episodio 3

    Gestur þáttarins er Snædís Ögn Flosadóttir. Peningum fylgja völd og konur fá ekki raunveruleg völd fyrr en þær fara fyrir fjármagni í meira mæli, en gestur þáttarins er ein af mjög fáum íslenskum konum sem gert …

    Notas del episodio

    Gestur þáttarins er Snædís Ögn Flosadóttir. Peningum fylgja völd og konur fá ekki raunveruleg völd fyrr en þær fara fyrir fjármagni í meira mæli, en gestur þáttarins er ein af mjög fáum íslenskum konum sem gert einmitt það. Hún er forstöðumaður markaða hjá Arion banka og var áður framkvæmdastjóri þriggja lífeyrissjóða í einu og þá önnur af aðeins tveimur konum á landinu sem stýrðu lífeyrissjóði. Hún er iðnaðarverkfræðingur og ætlaði sér alls ekki að vinna í banka.

    Það sem mér finnst áhugaverðast við hana er ekki hverju hún stýrir, heldur hvernig. Hún segist hafa óskaplega gaman af því að tala, en að mikilvægasta venjan hennar sem stjórnandi sé að hlusta.

    Í dag tölum við um leiðina hennar, sem var hvorki bein né í réttri röð, um peninga og hvernig maður byggir upp heilbrigt samband við þá, og um hvernig kona leiðir með því að hlusta frekar en að taka mest pláss.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  10. hún hlaðvarp #14 Lóa Dagjört Kristjánsdóttir

    1 h 45 minTemporada 2 · Episodio 2

    Gestur þáttarins í dag er Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir. Konu sem hefur fært okkur margar af þekktustu fataverslunum Norðurlandanna. Í lítilli íbúð í Halmstad í Svíþjóð, einhvern tímanní kringum 2010, sat kona …

    Notas del episodio

    Gestur þáttarins í dag er Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir. Konu sem hefur fært okkur margar af þekktustu fataverslunum Norðurlandanna.

    Í lítilli íbúð í Halmstad í Svíþjóð, einhvern tímanní kringum 2010, sat kona við eldhúsborð. Borðið var þakið innkaupapokum og pökkum. Hún var með fartölvu í kjöltunni og barn á brjósti og var að slá inn pantanir. Þegar maðurinn hennar kom heim úr vinnunni ýtti hún tölvunni frá sér og sagði: „Nei. Nú vil ég ekki taka við fleiri pöntunum. Þetta er of mikið."

    Hún var í fæðingarorlofi. Hún hafði flutt út til að hægja á sér, baka pönnukökur og njóta þess að vera með strákunum sínum. Í staðinn stofnaði hún fyrirtæki.

    Í dag eru verslanirnar á þriðja tuginn og starfsfólkið hátt í tvö hundruð. Hún hefur tekið hvert vörumerkið á fætur öðru,merki sem fæstir hér þekktu og gert þau að einhverju sem heil þjóð kann skil á. Hún er með ekkert skipurit, því fólkið hennar hefur ábyrgðarhlutverk frekar en stað í skipuriti. Krakkarnir hennar eru með í rekstrinum og mamma hennar líka.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  11. hún hlaðvarp #13 Eva Ruza Miljevic

    1 h 52 minTemporada 2 · Episodio 1

    Gestur þáttarins í dag er Eva Ruza Miljević. Þið þekkið hanaaf sviði, úr útvarpi, af skjánum, konuna sem er alltaf með míkrófóninn, alltaf með húmorinn, alltaf með orkuna sem fyllir salinn og oftar en ekki …

    Notas del episodio

    Gestur þáttarins í dag er Eva Ruza Miljević. Þið þekkið hanaaf sviði, úr útvarpi, af skjánum, konuna sem er alltaf með míkrófóninn, alltaf með húmorinn, alltaf með orkuna sem fyllir salinn og oftar en ekki öskursyngjandi. En það sem mig langar að tala um í dag er ekki bara sviðið heldur líka árin á undan. Trúin sem hún hafði á sjálfri sér áður en nokkur vissi hver hún var og hvað það kostaði hana að stökkva.

    Það er til gamalt myndband, tekið heima í stofu í Kópavogi,þar sem lítil stelpa er spurð hvað hún ætli að verða þegar hún verði stór. Hún svarar án þess að hika: „Ég ætla að verða fræg."

    Um fjörutíu árum síðar má svo sannarlega segja að henni hafi tekist það.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  12. hún hlaðvarp #12 Dr. Þóranna Jónsdóttir

    1 h 50 minTemporada 1 · Episodio 12

    Gestur þáttarins er Dr. Þóranna Jónsdóttir við tölum um konur í forystu, erfiðar ákvarðanir, áhrifin sem sjást ekki alltaf utan frá og hvað það þýðir að byggja sér leið, ekki með því að bíða eftir leyfi heldur …

    Notas del episodio

    Gestur þáttarins er Dr. Þóranna Jónsdóttir við tölum um konur í forystu, erfiðar ákvarðanir, áhrifin sem sjást ekki alltaf utan frá og hvað það þýðir að byggja sér leið, ekki með því að bíða eftir leyfi heldur með því að stíga inn.

    Sumar konur ganga ekki bara inn um dyrnar sem þeim er boðið inn um. Þær læra að opna nýjar dyr. Þær læra að sitja við borðin þar sem ákvarðanirnar eru teknar. Og stundum þegar þær eru komnar þangað breyta þær reglunum svo fleiri komist inn á eftir þeim. En hvernig verður maður sú manneskja sem er hringt í þegar mikið liggur við? Þegar fyrirtæki þarf nýja stefnu. Þegar stjórn þarf skýrari sýn. Þegar eitthvað er í vanda og einhver þarf að ganga inn í flækjuna, sjá kjarnann og segja: byrjum hér.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  13. hún hlaðvarp #11 Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

    1 h 36 minTemporada 1 · Episodio 11

    Gestur þáttarins er Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, kona sem eflaust þarf ekki að kynna fyrir mörgum enda ein þekktasta sjónvarsp- og fjölmiðla kona landsins. Í dag situr hún í framkvæmdastjórn &starfar sem …

    Notas del episodio

    Gestur þáttarins er Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, kona sem eflaust þarf ekki að kynna fyrir mörgum enda ein þekktasta sjónvarsp- og fjölmiðla kona landsins.

    Í dag situr hún í framkvæmdastjórn &starfar sem markaðs- & upplifunarstjóri Hagkaupa en þar hefur hún skapað sér nýtt hlutverk, ekki með því að loka á það sem hún var, heldur með því að byggja ofan á það.

    Í þættinum tölum við um hugrekki, sjálfsmynd, breytingar, metnað, móðurhlutverkið, pressuna sem fylgir því að vera kona í sviðsljósinu og hvað það þýðir að leyfa sér að byrja aftur og breyta til.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  14. hún hlaðvarp #10 Bókaklúbbur og trúnó

    1 h 9 minTemporada 1 · Episodio 10

    Í þessum þætti förum við aðeins yfir hvað mér fannst standa uppúr í síðustu viðtölum. Ég kynni til leiks bækurnar fyrir nýja bóka klúbbinn okkar, Aspire, Lean in og Leiðin heim, en hugmyndin er að taka svo …

    Notas del episodio

    Í þessum þætti förum við aðeins yfir hvað mér fannst standa uppúr í síðustu viðtölum. Ég kynni til leiks bækurnar fyrir nýja bóka klúbbinn okkar, Aspire, Lean in og Leiðin heim, en hugmyndin er að taka svo fyrir hverja bók fyrir sig og ræða hana og áhrifin sem hún hefur. Ég hvet ykkur til að lesa þær í sumar, ég er búin með bókina Leiðin Heim og fékk höfundinn hana Karitas Sigurðardóttur til mín í smá spjall.

    Loks svara ég svo alls konar spurningum frá ykkur og frá mér sjálfri í takt við þær sem viðmælendurnir hafa svarað, kominn tími til að gefa ykkur ennþá meiri innsýn inn í minn hugarheim.


    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, ILVA , Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  15. hún hlaðvarp #9 Sesselía Birgisdóttir

    1 h 42 minTemporada 1 · Episodio 10

    Sesselía Birgisdóttir, forstöðumaður viðskiptavildar, upplifunar og miðlunar hjá Högum, hefur byggt feril sinn á breytingum, uppbyggingu og umbreytingu. Hún hefur farið inn í ólíkar atvinnugreinar, tekið að sér …

    Notas del episodio

    Sesselía Birgisdóttir, forstöðumaður viðskiptavildar, upplifunar og miðlunar hjá Högum, hefur byggt feril sinn á breytingum, uppbyggingu og umbreytingu.

    Hún hefur farið inn í ólíkar atvinnugreinar, tekið að sér hlutverk sem voru oft ný eða í mótun, og aftur og aftur unnið með það sem er annaðhvort að verða til, eða þarf að breytast.

    Í þættinum fáum við að kynnast konunni á bak við verkefnin. Heyrum hvernig maður fer inn í nýja heima, byggir frá grunni, leiðir fólk í gegnum breytingar, og lærir að treysta því og hlusta þegar næsti kafli kallar.

    hún hlaðvarp er í boði: Bloom, Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  16. hún hlaðvarp #8 Arna Harðardóttir

    1 h 35 minTemporada 1 · Episodio 6

    Arna Harðardóttir, framkvæmdastjóri Helix Health, fyrirtækis sem vinnur að því að tengja saman tækni, hugvit og innsæi til að bæta þjónustu fyrir bæði sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk. Arna hefur þurft að …

    Notas del episodio

    Arna Harðardóttir, framkvæmdastjóri Helix Health, fyrirtækis sem vinnur að því að tengja saman tækni, hugvit og innsæi til að bæta þjónustu fyrir bæði sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk.

    Arna hefur þurft að taka stórar ákvarðanir á stuttum tíma, byggja upp traust hratt og leiða fólk í gegnum breytingar. Hún gerir það á sinn hátt, af yfirvegun, sannfæringu og með skýra sýn á það að sjúklingurinn sjálfur sé ein mikilvægasta, en jafnframt vannýttasta, auðlind heilbrigðiskerfisins.

    Í þessu samtali förum við yfir leiðtogahlutverkið, ábyrgðina, gildin og lærdóminn sem fylgir því að stíga inn í stór verkefni án þess að missa tengingu við sjálfa sig.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Ylva Þórsdóttir Planman

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  17. hún hlaðvarp #7 Edda Konráðsdóttir

    1 h 26 minTemporada 1 · Episodio 10

    Edda Konráðsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Edda hefur helgað ferilinn sinn nýsköpun og sprotum, hún er annar stofnenda Iceland Innovation Week og rekur viðburða og hugmyndastúdíóið Milk & Kleina …

    Notas del episodio

    Edda Konráðsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Edda hefur helgað ferilinn sinn nýsköpun og sprotum, hún er annar stofnenda Iceland Innovation Week og rekur viðburða og hugmyndastúdíóið Milk & Kleina. Mér fannst tilvalið að fá hana Eddu til mín í spjall nú þegar IIW er einmitt að hefjast. Edda stýrði Gullegginu sem er elsta frumkvöðlakeppni Íslands þar sem mörg fyrirtæki hafa tekið sín fyrstu skref. Það var virkilega áhugavert að heyra hennar sýn á hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að fyrstu skrefum í heimi nýsköpunar, hvernig hún nálgast erfiðar aðstæður og það stendur uppúr að heyra hvernig hún talar um aðra og mikilvægi fyrirmynda bæði fyrir sig og aðra.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Ylva Þórsdóttir Planman

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó


  18. hún hlaðvarp #6 Salóme Guðmundsdóttir

    1 h 23 minTemporada 1 · Episodio 6

    Salóme Guðmundsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Í dag starfar hún sem framkvæmdastjóri Ísorku, situr í þónokkrum stjórnum og er stofnandi og formaður konur í stjórnum.hún hlaðvarp er í boði: Arna …

    Notas del episodio

    Salóme Guðmundsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Í dag starfar hún sem framkvæmdastjóri Ísorku, situr í þónokkrum stjórnum og er stofnandi og formaður konur í stjórnum.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  19. hún hlaðvarp #5 Guðrún Aðalsteinsdóttir

    1 h 24 minTemporada 1 · Episodio 7

    Guðrún Aðalsteinsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Í dag starfar hún sem framkvæmdastjóri Krónunnar með eftirtektarverðum hætti. Guðrún er svo sannarlega leiðtogi með skýra sýn og fyrir mér hefur …

    Notas del episodio

    Guðrún Aðalsteinsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Í dag starfar hún sem framkvæmdastjóri Krónunnar með eftirtektarverðum hætti. Guðrún er svo sannarlega leiðtogi með skýra sýn og fyrir mér hefur alltaf verið greinilegt að hún hefur sterka sannfæringu og trú á að það sem hún er að gera skiptir máli - sem er svo sannarlega rétt.

    Guðrún er sýnilegur leiðtogi bæði fyrir starfsfólkið sitt en einnig fyrir fólkið í landinu. Hún hefur haldið gildum sínum á lofti í gegnum sín störf þar sem allir eiga að upplifa að þeir og þeirra störf skipti máli, það eigi að koma eins fram við alla og allir ættu að hafa val og aðgengi að vörum sem stuðla að heilsusamlegri lífstíl. Mikið var gaman að heyra alla söguna og skilja enn betur hvað það var sem mótaði hana að þeirri konu og leiðtoga sem hún er í dag.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  20. hún hlaðvarp #4 upprifjun & spurningar frá ykkur

    57 min

    Í þessum þætti langaði mig að segja ykkur hvað stóð uppúr hjá mér úr fyrstu þremur viðtölunum. Einnig er ég meira á persónulegu nótunum og svara spurningum hlustenda eins og hvernig leið mér þegar ég sagði upp? …

    Notas del episodio

    Í þessum þætti langaði mig að segja ykkur hvað stóð uppúr hjá mér úr fyrstu þremur viðtölunum. Einnig er ég meira á persónulegu nótunum og svara spurningum hlustenda eins og hvernig leið mér þegar ég sagði upp? hvað getum við gert til að lyfta upp konum? afhverju forðast konur við að breyta?

    Svo að lokum deili ég 5 bestu ráðunum sem ég hef fengið á ferlinum mínum.


    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Mango og Vichy.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó


  21. hún hlaðvarp #3 Dr. Ásta Dís Óladóttir

    1 h 12 minTemporada 1 · Episodio 3

    Leiðtogi sem vill breyta hlutunum og vinnur hörðum höndum að því að efla tengsl milli háskóla og atvinnulífs. Dr. Ásta Dís Óladóttir, nýkjörin forseti Viðskiptafræði Háskóla Íslands, háskólakona ársins 2025 og …

    Notas del episodio

    Leiðtogi sem vill breyta hlutunum og vinnur hörðum höndum að því að efla tengsl milli háskóla og atvinnulífs. Dr. Ásta Dís Óladóttir, nýkjörin forseti Viðskiptafræði Háskóla Íslands, háskólakona ársins 2025 og stofnandi rannsóknarseturs um jafnrétti í efnahags- & atvinnulífi. Ásta Dís er leiðtogi sem hefur haft mikil áhrif á umræðuna um stöðu kvenna í íslensku atvinnulífi og hefur helgað ferlinum sínum rannsóknum á þessu máli. Við ræddum um ferilinn hennar, fórum yfir nýjust rannsóknir og hvernig við þurfum að beita okkur fyrir áhrifum í umræðunni. Samkvæmt nýjustu tölum munum við ekki ná 40% markmiðinu okkar um hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja með 50 eða fleiri starfsmenn fyrr en árið 2070. Tölurnar og samtalið okkar sýnir hve mikilvægt það er að við stöndum saman og höldum þessari umræðu á lofti.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Mango og Vichy.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  22. hún hlaðvarp #2 Edda Hermannsdóttir

    1 h 10 minTemporada 1 · Episodio 2

    Hvernig verður maður leiðtogi sem nær að halda ró í sviðsljósinu og lyfta öðrum með sér. Edda Hermannsdóttir, forstjóri Lyf og Heilsu, er gestur þáttarins. Hún hefur sýnt að það að sameina skýra stefnu og …

    Notas del episodio

    Hvernig verður maður leiðtogi sem nær að halda ró í sviðsljósinu og lyfta öðrum með sér. Edda Hermannsdóttir, forstjóri Lyf og Heilsu, er gestur þáttarins. Hún hefur sýnt að það að sameina skýra stefnu og annlega forystu skilar árangri. Við Edda ræddum nýja stefnu Apótekarans og áherslur sem hún setti sér strax á fyrsta degi í nýju starfi. Edda hefur átt áhugaverðan feril sem gæti virkað fyrir mörgum óvenjulegur en þarna er alltaf einhver dýpri hugsun á bakvið. Auk þess má nefna að samtöl okkar Eddu eru ein af ástæðunum fyrir þessu hlaðvarpi og ég er viss um að hún muni veita fleirum en bara mér innblástur.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko og Vichy.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  23. hún hlaðvarp #1 Rakel Guðmundsdóttir

    1 h 20 minTemporada 1 · Episodio 4

    Kraftmikill frumkvöðull sem er ekki hrædd við að taka stökkið þegar hún sér tækifæri. Rakel Guðmundsdóttir , eignarhaldsstjóri hjá Alfa Framtak og annar stofnenda Venja, er gestur þáttarins. Við Rakel fórum …

    Notas del episodio

    Kraftmikill frumkvöðull sem er ekki hrædd við að taka stökkið þegar hún sér tækifæri. Rakel Guðmundsdóttir , eignarhaldsstjóri hjá Alfa Framtak og annar stofnenda Venja, er gestur þáttarins. Við Rakel fórum yfir víðan völl í samtalinu okkar. Við ræddum um hvernig hlutverk stjórnar styður við bakið á stjórnendum fyrirtækja, frumkvöðlalífið og hvernig góð yfirsýn fjármagns skiptir öllu, stefnumótun og 100 daga áætlun. Að sjálfsögðu ræddum við líka móðurhlutverkið og hvernig forgangsröðun skiptir lykilmáli þegar kemur að því að halda jafnvægi. Í lokin ræddum við svo hvernig fyrirtæki og stjórnendur geta stutt við foreldra í fæðingarorlofi og sérstaklega eftir það, málefni sem stendur okkur báðum nær.


    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko og Vichy.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó


  24. hún hlaðvarp með Ernu Hrund - KYNNING

    9 minTemporada 1 · Episodio 1Extra

    Hvað er svo næst? spurning sem ég hef fengið ótrúlega oft undanfarnar vikur. Eftir að hafa hrisst all verulega upp í lífinu í leit að þroska og nýrri þekkingu með það í huga að langa að gera heiminn að betri …

    Notas del episodio

    Hvað er svo næst? spurning sem ég hef fengið ótrúlega oft undanfarnar vikur. Eftir að hafa hrisst all verulega upp í lífinu í leit að þroska og nýrri þekkingu með það í huga að langa að gera heiminn að betri stað varð til hún hlaðvarp. Í þessum kynningarþætti langar mig að gefa ykkur innsýn í það hvert ég ætla með þetta ferðalag og afhverju, ég reyni að gera þetta fyrst og fremst af einlægni og hreinskilni og með það í huga að við séum alltaf sterkari saman og sérstaklega þegar við leitum ráða hver hjá annarri.

    Í hverjum þætti fær ein kona sviðsljósið, við heyrum um þeirra ferðalag og lærdóm og verðum vonandi fróðari eftir hlustun. Inn á milli koma svo styttri þættir þar sem ég ætla að deila með ykkur mínum lærdómi.

    Markmiðið er að gefa konum innblástur og innsýn í ferðalag annarra kvenna, fá tækifæri til að spegla sig og þannig fá aukið sjálfstraust í að sækjast eftir tækifærum. Fá að heyra sögur af erfiðum ákvörðunum eða áskorunum sem þær hafa mætt og þroskað þær á sínu ferðalagi.

    Mig langar að opna umræðu um konuna sem vill ná langt, sem vill skapa sér sterkan stað í íslensku atvinnulífi og hafa áhrif. Eflaust hafa margar konur upplifað að þær þurfi að velja á milli fjölskyldu og starfsferilsins en er hægt að gera bæði eða má gera bæði?

    Í þáttunum kynnumst við ólíkum stjórnendastílum, hugsungargangi og hvernig viðmælendur hafa þróað sinn stíl yfir ferilinn.





¿Es tu podcast?

Confírmalo con una entrada en tu feed: aquí recibes un código, lo añades como podcast:txt en el canal de tu feed y nosotros lo comprobamos. Después tu podcast aparecerá como «verificado» en SoundNode.

Ajustes

Visualización

Idioma

Determina qué emisoras ves primero en la página de inicio.

Historial

Las emisoras y episodios escuchados recientemente y tus últimas búsquedas solo se guardan en este navegador.

Avisos

Un breve aviso cuando un pódcast que sigues tiene un episodio nuevo. Puedes desactivar pódcast concretos con la campana de su página.

Cuenta

Guarda tus favoritos: en la app y en la web.

Atajos de teclado

/
Abrir búsqueda
Espacio
Reproducir o pausar
← →
En el reproductor: 15 s atrás, 30 s adelante (episodios) · en una fila: siguiente tarjeta
↑ ↓
En una fila: destino dentro de la tarjeta
Inicio / Fin
En una fila: primera o última tarjeta
Esc
Cerrar ventana o menú
?
Este resumen
Reproduciendo ahora

Ir a la emisora

A continuación

    Añade episodios con «A continuación»: sonarán después del episodio actual.