
hún hlaðvarp #22 Erla Ósk Ásgeirsdóttir
Notas del episodio
Gestur þáttarins er Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður Jafnvægisvogarráðs FKA, stjórnarformaður Festu – miðstöðvar um sjálfbærni og stjórnarkona í Bláa lóninu.
Í dag ætlum við að tala um tengslanetið, bæði sem hnútinn og lausnina. Um formannsstóla sem konur hurfu úr og ráðningar sem fara fram í gegnum símtöl, um fyrsta stjórnarsætið og muninn á því að mæta á viðburð og að byggja raunverulegt samband, og um það hvernig konur lyfta hver annarri upp í stað þess að keppa um eitt sæti.
hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko, Nespresso og Mango.
Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir
Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir
hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó