
#21 Að lesa sér til gagns - Sigríður Ólafsdóttir
Notas del episodio
Við fengum Dr. Sigríði Ólafsdóttur til þess að koma og ræða um það hvað það þýðir að lesa sér til gagns. Hvað þurfi til þess að skilja lesinn texta og af hverju virðist lesskilningur eflast svo lítið á grunnskólaárunum. Hverju er um að kenna. Er munur á lesskilningi eftir því hvort textinn er á pappír, í síma eða á vef?
Af hverju skiptir djúpur lesskilningur svona miklu máli fyrir nám og líf almennt og hvaða hlutverki gegna orðaforði og bakgrunnsþekking í lesskilningi.
Hver sé algengasti misskilningurinn í umræðu um lestrarfærni og lesskilning og ef hún mætti velja þrjár breytingar sem myndu bæta lesskilning barna og ungmenna mest, hverjar væru þær.
Ítarefni
https://www.visindavefur.is/svar.php?id=88400
https://www.visindavefur.is/svar.php?id=88413
https://www.visindavefur.is/svar.php?id=88398