
Námsvarpið – Mál, læsi og líðan
- Episodios
- 27
- Se publica
- cada mes
- Último episodio
- 10 Nov 2026
Sobre el podcast
Námsvarpið - Mál, læsi og líðan er hlaðvarp sem verkefnastjóri læsis og lestrarkennslu hjá Menntavísinda og Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands stýrir í samstarfi við Rannsókna- og fræðslustofu um þroska, læsi og líðan barna og ungmenna. Í hlaðvarpinu fær verkefnastjórinn, Berglind Axelsdóttir til sín alls kyns fræðafólk og sérfræðinga og ræðir við það um efni sem tengist máli, læsi og líðan barna og ungmenna. Upptökustjóri er Sveinn Bjarki Tómasson verkefnisstjóri nýsköpunar- og tæknimenntunar.
Episodios 27
#27 Starri í Hólabrekkuskóla - Lovísa Guðrún Ólafsdóttir og Sólveig Edda Ingvarsdóttir
Við fengum til okkar Lovísu Guðrúnu Ólafsdóttur skólastjóra Hólabrekkuskóla og Sólveigu Eddu Ingvarsdóttur deildarstjóra við sama skóla og doktorsnema til þess að ræða orðaforðaverkefnið Starra …
Notas del episodio
Við fengum til okkar Lovísu Guðrúnu Ólafsdóttur skólastjóra Hólabrekkuskóla og Sólveigu Eddu Ingvarsdóttur deildarstjóra við sama skóla og doktorsnema til þess að ræða orðaforðaverkefnið Starra.
Lestrarkennsluaðferðin Starri var þróuð í gegnum samstsarf LEAD Academy Trust og Notttingham Trent Háskólans árið 2021. Höfundar aðferðarinnar, Aaron Jordan og Emma Vardy, sáu að í orðaforðakennslu í grunnskólum Bretlands vantaði nálgun til að flýta þróun orðaforðaþekkingu nemenda, og að slík nálgun myndi hafa jákvæð áhrif á lesskilning. Námsaðferðin gefur kennurum gagnreyndar kennsluaðferðir við orðaforðavinnu. Tilgangur hennar er að hjálpa öllum börnum að breikka og dýpka orðaforða sinn til þess að lesskilningur aukist. Haustið 2025 hófst samstarf höfunda við sérfræðinga frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands og Hólabrekkuskóla um innleiðingu og aðlögun efnisins fyrir íslenska nemendahópa.
#26 Læsi í Rimaskóla - Þóranna Rósa Ólafsdóttir
Námsvarpið fékk til sín Þórönnu Rósu Ólafsdóttur skólastjóra í Rimaskóla til þess að ræða læsi í skólanum. Heyrst hefur af verulega góðum árangri i lestrarkennslu á yngsta stigi í kjölfar breytinga hjá þeim …
Notas del episodio
Námsvarpið fékk til sín Þórönnu Rósu Ólafsdóttur skólastjóra í Rimaskóla til þess að ræða læsi í skólanum. Heyrst hefur af verulega góðum árangri i lestrarkennslu á yngsta stigi í kjölfar breytinga hjá þeim. Margir hafa kannski tekið eftir innslagi í fréttum á RÚV þar sem sýnt var frá kennslu í Rimaskóla og talað við kennara og foreldra. Okkur langaði því að fá að heyra frá sjónarhorni stjórnanda þegar slíkar breytingar eru framkvæmdar.
#25 PISA og QUINT tengt saman - Anna Kristín Sigurðardóttir
Námsvarpið fékk til sín Dr. Önnu Kristínu Sigurðardóttur til þess að ræða nýjustu niðurstöður PISA og tengja þær saman við niðurstöður QUINT rannsóknarinnar. Ítarefni: PISA 2025, Helstu niðurstöður á Íslandi …
Notas del episodio
Námsvarpið fékk til sín Dr. Önnu Kristínu Sigurðardóttur til þess að ræða nýjustu niðurstöður PISA og tengja þær saman við niðurstöður QUINT rannsóknarinnar.
Ítarefni:
PISA 2025, Helstu niðurstöður á Íslandi: https://menntavisindastofnun.hi.is/sites/menntavisindastofnun.hi.is/files/2026-09/PISA_2025.pdf
Anna Kristín Sigurðardóttir, Hermína Gunnþórsdóttir og Rúnar Sigþórsson (ritstj.). (2025). Gæði kennslu. Námstækifæri fyrir alla nemendur. Háskólaútgáfan. https://haskolautgafan.is/products/gaedi-kennslu-namstaekifaeri-fyrir-alla-nemendur?taxon_id=4
Klette, K., Magnusson, C.G. og Sigurjónsson, J.Ö. (ritstj.). (2026). Investigating teaching quality through video capture: Equity and quality in Nordic classrooms. Springer. https://link.springer.com/book/10.1007/978-3-032-06893-4
#24 Námsorðaforði og notkun gervigreindar - Sigurður Fjalar Jónsson og Hjörvar Ingi Haraldsson
Námsvarpið fékk til sín félagana (Sigurð) Fjalar Jónsson og Hjörvar Inga Haraldsson kennara í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Við ræddum um kennslu þeirra í orðaforða þar sem þeir nýta gervigreindina til þess …
Notas del episodio
Námsvarpið fékk til sín félagana (Sigurð) Fjalar Jónsson og Hjörvar Inga Haraldsson kennara í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Við ræddum um kennslu þeirra í orðaforða þar sem þeir nýta gervigreindina til þess að aðstoða sig við að vinna á markvissari hátt. Þá ræddum við um skort á námsorðaforða í kennslustofunni og hvernig hann hefur áhrif á lesskilning og námsárangur og hvernig gervigreind getur hjálpað kennurum við að kennurum að vinna með námsorðaforða án þess að auka vinnuálagið. Að lokum ræddum við einnig um NotebookLM og sambærileg verkfæri sem þeir nýta í sinni kennslu.
#23 Kennsluleiðbeiningar og nemendahefti með íslenskum námsorðaforða - Auður Pálsdóttir og Ragnar F. Ólafsson
Við fengum til okkar Dr. Auði Pálsdóttur og Ragnar Friðrik Ólafsson doktorsnema sem hafa ásamt Dr. Sigríði Ólafsdóttur unnið að rannsóknarverkefni sem ber yfirheitið Íslenskur námsorðaforði. Fyrir nokkru síðan …
Notas del episodio
Við fengum til okkar Dr. Auði Pálsdóttur og Ragnar Friðrik Ólafsson doktorsnema sem hafa ásamt Dr. Sigríði Ólafsdóttur unnið að rannsóknarverkefni sem ber yfirheitið Íslenskur námsorðaforði. Fyrir nokkru síðan hélt íslensk málnefnd málþing um námsorðaforða og læsi þar sem frummælendur voru Dr. Ármann Jakobsson sem fjallaði um hrakandi læsi nemenda á íslensku, Dr. Elín Þöll Þórðardóttir sem fjallaði um stöðu barna með íslensku sem annað mál, og Dr. Auður Pálsdóttir (annar viðmælenda minna) sem fjallaði um gagnlegan stuðning við kennara í vinnu með orðaforða og Dr. Sigríður Ólafsdóttir um hvers konar verkfæri virka og horfði svo til framtíðar.
#22 Tækifæri til náms og líðan - Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir
Námsvarpið fékk til sín Jóhönnu Birnu Bjartmarsdóttur til þess að ræða tækifæri til náms og líðan. Jóhanna Birna segir frá skólagöngu sinni og þeim áskorunum sem hún stóð frammi fyrir. Þrátt fyrir það hefur …
Notas del episodio
Námsvarpið fékk til sín Jóhönnu Birnu Bjartmarsdóttur til þess að ræða tækifæri til náms og líðan. Jóhanna Birna segir frá skólagöngu sinni og þeim áskorunum sem hún stóð frammi fyrir. Þrátt fyrir það hefur henni tekist að ná ótrúlegum árangri í námi og starfi.
Ítarefni
https://www.harts.is/https://www.johannabirnabjartmars.com/
https://noredreviews.org/index.php/NJSRE/article/view/6736/11285
#21 Að lesa sér til gagns - Sigríður Ólafsdóttir
Við fengum Dr. Sigríði Ólafsdóttur til þess að koma og ræða um það hvað það þýðir að lesa sér til gagns. Hvað þurfi til þess að skilja lesinn texta og af hverju virðist lesskilningur eflast svo lítið á …
Notas del episodio
Við fengum Dr. Sigríði Ólafsdóttur til þess að koma og ræða um það hvað það þýðir að lesa sér til gagns. Hvað þurfi til þess að skilja lesinn texta og af hverju virðist lesskilningur eflast svo lítið á grunnskólaárunum. Hverju er um að kenna. Er munur á lesskilningi eftir því hvort textinn er á pappír, í síma eða á vef?
Af hverju skiptir djúpur lesskilningur svona miklu máli fyrir nám og líf almennt og hvaða hlutverki gegna orðaforði og bakgrunnsþekking í lesskilningi.
Hver sé algengasti misskilningurinn í umræðu um lestrarfærni og lesskilning og ef hún mætti velja þrjár breytingar sem myndu bæta lesskilning barna og ungmenna mest, hverjar væru þær.
Ítarefni
https://www.visindavefur.is/svar.php?id=88400
https://www.visindavefur.is/svar.php?id=88413
https://www.visindavefur.is/svar.php?id=88398
#20 Hvað eru gagnreyndar aðferðir og af hverju/hvernig skipta þær máli - Auður Soffíu Björgvinsdóttir og Margrét Sigmarsdóttir
Undanfarið hefur mikið verið rætt í fjölmiðlum og víðar um líðan og hegðun barna og einnig um lestrarfærni eða skort á henni öllu heldur. Hvað eru við sem samfélag að gera í þessum efnum? Það liggur ekki síður …
Notas del episodio
Undanfarið hefur mikið verið rætt í fjölmiðlum og víðar um líðan og hegðun barna og einnig um lestrarfærni eða skort á henni öllu heldur. Hvað eru við sem samfélag að gera í þessum efnum? Það liggur ekki síður fyrir að spyrja: Hvað erum við sem samfélag að gera rangt? Stundum er sagt að ef við viljum skilja stöðuna, þá er besta leiðin að reyna að breyta henni. Þá er bara spurning hvernig og við gerum til þess.
Í umræðunni kemur fyrir hugtakið gagnreynt eða raunprófað, gagnreyndar aðferðir. En, það virðist vera mismunandi skilningur á hvað gagnreyndar aðferðir eru. Meðal annars hafa verið nýlega umræður á alþingi um barnavernd, sem benda til þess að það gæti verið gagnlegt að skýra hvað þetta hugtak, gagnreynt, merkir. Það virðist vera óljóst þegar fjallað er um aðferðir, hvort eitthvað sé gagnreynt eða ekki.
Til að ræða þetta fékk Námsvarpið til sín Margréti Sigmarsdóttur og Auði Soffíu Björgvinsdóttur sem fjallað hafa um gagnreyndar aðferðir, en ekki frá sama sjónarhóli.
Margrét Sigmarsdóttir er prófessor í sálfræði og rannsóknarleiðtogi menntavísindasviðs HÍ, hún er klínískur sálfræðingur og hefur mikla reynslu og þekkingu á rannsóknum og innleiðingu gagnreyndra aðferða.
Auður Soffíu Björgvinsdóttir er grunnskólakennari, læsisfræðingur og doktor í fræðunum. Í doktorsnáminu kynntist hún og rannsakaði gagnreynda kennsluaðferð í lestri.
Ítarefni:
Education Endowment Foundation. Bresk síða með yfirliti yfir aðferðir sem er mælt með og hvaða rannsóknum það byggir á https://educationendowmentfoundation.org.uk/
What Works Clearinghouse. Bandarísk síða með yfirliti yfir aðferðir sem er mælt með og hvaða rannsóknum það byggir á https://ies.ed.gov/ncee/wwc
Hér er bein slóð á PALS hlutann https://ies.ed.gov/ncee/wwc/Docs/InterventionReports/wwc_pals_060512.pdf
National Center on Improving Literacy. Bandarísk síða um rannsóknir tengdar læsi og lestrarkennslu https://improvingliteracy.org/
Eyberg, S. M., Nelson, M. M., & Boggs, S. R. (2008). Evidence-Based Psychosocial Treatments for Children and Adolescents With Disruptive Behavior. Journal of Clinical Child & Adolescent Psychology, 37(1), 215–237. https://doi.org/10.1080/15374410701820117
#19 Máltaka, málþroski og málfærni - Iris Edda Nowenstein
Námsvarpið fékk til sín Dr. Irisi Eddu Nowenstein lektor á Hugvísindasviði og talmeinafræðing á Landspítalnum. Umræðuefnið var máltaka, málþroski og málfærni í samhengi við aukna ensku í málumhverfi …
Notas del episodio
Námsvarpið fékk til sín Dr. Irisi Eddu Nowenstein lektor á Hugvísindasviði og talmeinafræðing á Landspítalnum. Umræðuefnið var máltaka, málþroski og málfærni í samhengi við aukna ensku í málumhverfi íslenskumælandi barna og fjölgun barna með íslensku sem annað mál.
Ítarefni:
- https://pubs.asha.org/doi/10.1044/2023_JSLHR-23-00117
- https://www.tandfonline.com/doi/full/10.1080/00313831.2024.2322958?casa_token=G2jHhEn463kAAAAA%3AOJlOnXofEEyA9-5vEjJAo5qyui5Hb8iW7eGmpg7ILSnslVYdQPvys__zxP4qoraRoSsme6qQ0u54fA
- https://www.tandfonline.com/doi/full/10.1080/00313831.2024.2322958?casa_token=G2jHhEn463kAAAAA%3AOJlOnXofEEyA9-5vEjJAo5qyui5Hb8iW7eGmpg7ILSnslVYdQPvys__zxP4qoraRoSsme6qQ0u54fA
- https://ritid.hi.is/index.php/ritid/article/view/150
- https://www.degruyterbrill.com/document/doi/10.1515/soci-2024-0029/html
#18 Skriftarkennsla og nýtt skriftarefni - Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir
Námsvarpið fékk til sín Sigurlaugu Rún Brynleifsdóttur kennsluráðgjafa hjá Kópavogsbæ til þess að ræða skriftarkennslu og nýtt skriftarefni sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur gefið út. Ítarefni …
Notas del episodio
Námsvarpið fékk til sín Sigurlaugu Rún Brynleifsdóttur kennsluráðgjafa hjá Kópavogsbæ til þess að ræða skriftarkennslu og nýtt skriftarefni sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur gefið út.
Ítarefni: https://skriftarvefur.mms.is/
#17 Heimalestur - Auður Soffíu Björgvinsdóttir
Námsvarpið fékk til sín Dr. Auði Soffíu Björgvinsdóttur til þess að ræða heimalestur en hún hélt fyrirlestur á Menntakviku fyrr í haust um niðurstöður rannsóknar um heimalestur.
#16 Þróun kennsluhátta til eflingar ritunarfærni nemenda - Ásdís Jóhannesdóttir
Ásdís Jóhannesdóttir kennari í Öldutúnsskóla kom til okkar og ræddi þróun kennsluhátta til eflingar ritunarfærni nemenda. Hún hélt erindi um efnið á Menntakviku í október. Ítarefni …
Notas del episodio
Ásdís Jóhannesdóttir kennari í Öldutúnsskóla kom til okkar og ræddi þróun kennsluhátta til eflingar ritunarfærni nemenda. Hún hélt erindi um efnið á Menntakviku í október. Ítarefni: http://hdl.handle.net/1946/45566 https://hdl.handle.net/1946/49959#15 Miðja máls og læsis - Dröfn Rafnsdóttir
Námsvarpið fékk til sín Dröfn Rafnsdóttur deildarstjóra Miðju máls og læsis til þess að ræða upphaf deildarinnar, verkefni hennar og framtíð. Miðja máls og læsis var sett á laggirnar hjá Reykjavíkurborg en er …
Notas del episodio
Námsvarpið fékk til sín Dröfn Rafnsdóttur deildarstjóra Miðju máls og læsis til þess að ræða upphaf deildarinnar, verkefni hennar og framtíð. Miðja máls og læsis var sett á laggirnar hjá Reykjavíkurborg en er núna staðsett hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Meira um deildina má sjá hér inni á þessari krækju: https://mml.reykjavik.is/
#14 Læsi í Hólabrekkuskóla - Sólveig Edda Ingvarsdóttir
Námsvarpið fékk til sín Sólveigu Eddu Ingvarsdóttur sérkennara/verkefnisstjóra í Hólabrekkuskóla og doktorsnema á Menntavísindasviði Háskóla Íslands til þess að ræða um læsi í Hólabrekkuskóla og hvað þau hafa …
Notas del episodio
Námsvarpið fékk til sín Sólveigu Eddu Ingvarsdóttur sérkennara/verkefnisstjóra í Hólabrekkuskóla og doktorsnema á Menntavísindasviði Háskóla Íslands til þess að ræða um læsi í Hólabrekkuskóla og hvað þau hafa verið að gera þar.
#13 Viltu vera MEMM - Fríða Bjarney Jónsdóttir
Í þessum þætti ræðum við við Fríðu Bjarneyju Jónsdóttur sem er samhæfingarstjóri MEMM verkefnisins hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu um MEMM verkefnið – eða „Menntun, móttaka og menning“. Þetta er …
Notas del episodio
Í þessum þætti ræðum við við Fríðu Bjarneyju Jónsdóttur sem er samhæfingarstjóri MEMM verkefnisins hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu um MEMM verkefnið – eða „Menntun, móttaka og menning“. Þetta er metnaðarfullt þróunarverkefni sem hefur það að markmiði að stuðla að inngildingu og virkri þátttöku barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn í íslensku samfélagi, koma á samræmdu verklagi um móttöku, menntun og þjónustu ásamt því að þróa ráðgjöf, námsgögn og verkfæri. Sjá hér. …#12 Innleiðing vel rannsakaðra aðferða til að efla hegðun og vellíðan barna í samstarfi skóla og foreldra - Margrét Sigmarsdóttir
Námsvarpið - Mál, læsi og líðan fékk til sín Dr. Margréti Sigmarsdóttur prófessor á Menntavísindasviði Háskóla Íslands til þess að ræða rannsökuð prógrömm fyrir foreldra og skólakerfið sem stuðla að vellíðan …
Notas del episodio
Námsvarpið - Mál, læsi og líðan fékk til sín Dr. Margréti Sigmarsdóttur prófessor á Menntavísindasviði Háskóla Íslands til þess að ræða rannsökuð prógrömm fyrir foreldra og skólakerfið sem stuðla að vellíðan allra barna. Einkum þeirra sem glíma við hegðunar- og tilfinningalegan vanda. Það er ekki nóg að hafa réttu leiðirnar,heldur þarf líka að standa rétt að innleiðingu. Svo þarf að skoða vel ef aðferðirnar eru notaðar fyrir aðra hópa en þá sem þær voru upphaflega prófaðar fyrir. …#11 Geðrækt í skólastarfi - Bergljót Gyða Guðmundsdóttir
Námsvarpið fékk til sín Dr. Bergljótu Gyðu Guðmundsdóttur til þess að ræða geðrækt í skólastarfi. Hér er hlekkur á skýrslu sem embætti landlæknis gaf út og nefnd er í þættinum ítarefni …
Notas del episodio
Námsvarpið fékk til sín Dr. Bergljótu Gyðu Guðmundsdóttur til þess að ræða geðrækt í skólastarfi. Hér er hlekkur á skýrslu sem embætti landlæknis gaf út og nefnd er í þættinum ítarefni: https://island.is/frett/Ny-skyrsla-um-namsefni-og-heildraena-nalgun-til-ad-efla-felags-og-tilfinningafaerni-i-skolum Síðan er hér hlekkur á eina góða yfirlitsheimild um geðrækt í skólum/félags- og tilfinningafærni:https://psycnet.apa.org/doi/10.1037/bul0000383#10 Ritunarramminn - Katrín Ósk Þráinsdóttir
Ég fékk til mín Katrínu Ósk Þráinsdóttur læsisfræðing hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu til þess að ræða ritunarrammann sem er í vinnslu hjá stofnunni.
#9 Bein kennsla - Guðrún Björg Ragnarsdóttir
Ég fékk til mín Dr. Guðrúnu Björgu Ragnarsdóttur lektor á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og ræddum við um Beina kennslu (e. Explicit Instruction). Einnig ræddum við um stýrða kennslu og fimiþjálfun …
Notas del episodio
Ég fékk til mín Dr. Guðrúnu Björgu Ragnarsdóttur lektor á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og ræddum við um Beina kennslu (e. Explicit Instruction). Einnig ræddum við um stýrða kennslu og fimiþjálfun. Ítarefni: Morningside Academy, einkaskóli í Seattle sem ég minntist á: https://morningsideacademy.org/ Heimasíða stofnunar fyrir Stýrða kennslu: https://www.nifdi.org/ Heimasíða um Beina kennslu, hér má sjá fjölmörg myndbönd af kennslu: https://explicitinstruction.org/#8 Lanis skimunarlistinn - Jóhanna Thelma Einarsdóttir og Þóra Másdóttir
Ég fékk til mín dr. Jóhönnu Thelmu Einarsdóttur prófessor á Menntavísindasviði og Heilbrigðisvísindasviði HÍ og dr. Þóru Másdóttur dósent á Heilbrigðisvísindasviði HÍ til þess að ræða Lanis skimunarlistann …
Notas del episodio
Ég fékk til mín dr. Jóhönnu Thelmu Einarsdóttur prófessor á Menntavísindasviði og Heilbrigðisvísindasviði HÍ og dr. Þóru Másdóttur dósent á Heilbrigðisvísindasviði HÍ til þess að ræða Lanis skimunarlistann. Tjáskipti teljast til grundvallarmannréttinda. Erfiðleikar í tjáskiptum leikskólabarna geta haft neikvæð áhrif á síðari lestrartileinkun þeirra, námsframvindu, félagsfærni, líðan og tilfinningaþroska. …#7 Lesfimi - Auður Soffíu Björgvinsdóttir
Í þessum sjöunda þætti hlaðvarpsins fékk ég til mín Auði Soffíu Björgvinsdóttur aðjúnkt og doktorsnema á Menntavísindasviði Háskóla Íslands til þess að ræða lesfimi. Hérna er ítarefni: Lestrarstiginn …
Notas del episodio
Í þessum sjöunda þætti hlaðvarpsins fékk ég til mín Auði Soffíu Björgvinsdóttur aðjúnkt og doktorsnema á Menntavísindasviði Háskóla Íslands til þess að ræða lesfimi. Hérna er ítarefni: Lestrarstiginn https://nancyyoung.ca/the-ladder-of-reading-writing/ Íslenska útgáfan á engan samastað enn, en hann er í viðtalinu við Jan https://skolathraedir.is/2024/06/16/vidtal-vid-dr-jan-hasbrouck/ Foreldrafræðsluefnið inni á Læsisvef Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu…#6 Fjöltyngd börn í kjölfar úttektar OECD á innflytjendum á Íslandi - Sigríður Ólafsdóttir
Í þessum sjötta þætti hlaðvarpsins fékk ég til mín dr. Sigríði Ólafsdóttur dósent á Menntavísindasviði Háskóla Íslands með sérhæfingu í læsi og fjöltyngi ásamt orðaforða til þess að ræða um fjöltyngd börn í …
Notas del episodio
Í þessum sjötta þætti hlaðvarpsins fékk ég til mín dr. Sigríði Ólafsdóttur dósent á Menntavísindasviði Háskóla Íslands með sérhæfingu í læsi og fjöltyngi ásamt orðaforða til þess að ræða um fjöltyngd börn í kjölfar úttektar OECD á innflytjendum á Íslandi Hérna er hægt að nálgast skýrsluna: Stjórnarráðið | Ný úttekt OECD um innflytjendur á Íslandi: Mikilvægt að setja inngildingu innflytjenda á dagskrá (stjornarradid.is) Sérfræðingar Rannsóknastofu um þroska, læsi og líðan skrifuðu bls. …#5 Endalok meðaltalsins, lestraráhugahvöt og lesskilningur - Kristján Ketill Stefánsson
Í þessum fimmta þætti Námsvarpsins fékk ég til mín Dr. Kristján Ketil Stefánsson lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og ræddum við um endalok meðaltalsins, lestraráhugahvöt og lesskilning. Hérna er …
Notas del episodio
Í þessum fimmta þætti Námsvarpsins fékk ég til mín Dr. Kristján Ketil Stefánsson lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og ræddum við um endalok meðaltalsins, lestraráhugahvöt og lesskilning. Hérna er hægt að horfa á upptöku um endalok meðaltalsins: The Myth of Average: Todd Rose at TEDxSonomaCounty (youtube.com)Hér er svo krækja inn á Reading Rockets: Concept-Oriented Reading Instruction (CORI) | Reading Rockets#4 Nemendur með lestrarvanda í íslensku skólakerfi: Sóknarfæri - Guðbjörg Rut Þórisdóttir
Ég fékk til mín Guðbjörgu Rut Þórisdóttur læsisráðgjafa hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og formann Félags læsisfræðinga og við ræddum um lestrarvanda í íslensku skólakerfi og sóknarfærin. Hérna er …
Notas del episodio
Ég fékk til mín Guðbjörgu Rut Þórisdóttur læsisráðgjafa hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og formann Félags læsisfræðinga og við ræddum um lestrarvanda í íslensku skólakerfi og sóknarfærin. Hérna er skýrslan sem við ræddum um í þættinum: 1759.docx (live.com)
#3 Þróun málhljóða og framburðar hjá börnum - Þóra Másdóttir
Í þættinum ræði ég við Dr. Þóru Másdóttur dósent í talmeinafræði við HÍ og talmeinafræðingur á stofu um þróun málhljóða og framburðar hjá börnum.
#2 Málörvun leikskólabarna - Jóhanna Thelma Einarsdóttir
Námsvarpið fékk til sín Dr. Jóhönnu Thelmu Einarsdóttur og ræddi við hana um málörvun leikskólabarna.
#1 Niðurstöður PISA - læsi - Sigríður Ólafsdóttir
Niðurstöður PISA - læsiHérna er hægt að lesa íslensku skýrsluna um PISA 2022: https://mms.is/sites/mms.is/files/pisa_2022_helsta_island.pdf
Podcasts similares
Más podcasts de Educación¿Es tu podcast?
Confírmalo con una entrada en tu feed: aquí recibes un código, lo añades como podcast:txt en el canal de tu feed y nosotros lo comprobamos. Después tu podcast aparecerá como «verificado» en SoundNode.







