Aller au contenu
Að lifa vel

Að lifa vel

NouveauÞáttur 5: Þurfum við að hafa skoðun á öllu?10 novembre 2026 · 33 min
Épisodes
5
Parution
hebdomadaire
Dernier épisode
10 Nov 2026

À propos du podcast

Að lifa vel er hlaðvarp um lífið, sálfræði og stóuspeki. Sálfræðingurinn Óttar Birgisson skoðar sígildar spurningar um hamingju, tilgang, hugrekki og mannlega hegðun í ljósi fornrar heimspeki og nútímasálfræði. Stuttar hugleiðingar og dýpri samtöl við áhugavert fólk um það sem raunverulega skiptir máli.

Épisodes 5

  1. Þáttur 5: Þurfum við að hafa skoðun á öllu?

    33 minSaison 1 · Épisode 5

    Þurfum við að hafa skoðun á öllu? Og hvers vegna vekja sumar hörmungar heimsins miklu sterkari viðbrögð hjá okkur en aðrar?Í þessum þætti skoðum við hvernig stóuspekin og nútímasálfræði geta hjálpað okkur að …

    Notes de l’épisode

    Þurfum við að hafa skoðun á öllu? Og hvers vegna vekja sumar hörmungar heimsins miklu sterkari viðbrögð hjá okkur en aðrar?

    Í þessum þætti skoðum við hvernig stóuspekin og nútímasálfræði geta hjálpað okkur að hugsa skýrar um heimsmálin. Við ræðum meðal annars átökin milli Ísraela og Palestínumanna, stríðið í Súdan, reiði á samfélagsmiðlum og hvernig eigin skoðanir og hugmyndafræði geta mótað sýn okkar á heiminn.

    Er það alltaf merki um hugrekki að hafa sterka skoðun? Eða getur stundum verið meiri viska að viðurkenna að við vitum ekki nóg?

    Bónus: Í lok þáttarins flyt ég íslenska þýðingu mína á texta eftir Carl Sagan sem á einstaklega vel við umfjöllunarefni þáttarins.

    Upphafsstef hlaðvarpsins er samið og flutt af Óttari Guðbirni Birgissyni.

  2. Þáttur 4: Að flytja ræður og fyrirlestra með hjálp stóuspekinnar

    25 minSaison 1 · Épisode 4

    Að standa upp og tala fyrir framan hóp af fólki getur reynst ótrúlega erfitt. Hjartað slær hraðar, hendurnar skjálfa og hugurinn fer á fullt við að ímynda sér allt sem gæti farið úrskeiðis.En hvað ef við erum …

    Notes de l’épisode

    Að standa upp og tala fyrir framan hóp af fólki getur reynst ótrúlega erfitt. Hjartað slær hraðar, hendurnar skjálfa og hugurinn fer á fullt við að ímynda sér allt sem gæti farið úrskeiðis.

    En hvað ef við erum að nálgast verkefnið á rangan hátt?

    Í þessum þætti skoðum við hvað stóuspekin og nútímasálfræði geta kennt okkur um ræðukvíða og frammistöðukvíða. Hvernig getum við breytt því hvernig við túlkum kvíðann og lært að takast á við hann?

    Upphafsstef hlaðvarpsins er samið og flutt af Óttari Guðbirni Birgissyni.

  3. Þáttur 3: Af hverju verðum við svona reið?

    26 minSaison 1 · Épisode 3

    Af hverju verðum við stundum svona reið? Hvað er hægt að gera til að stjórna reiði? Hvað með reiði á samfélagsmiðlum?Í þessum þætti skoðum við hugmyndir stóuspekingsins Seneca um reiði og tengjum þær við …

    Notes de l’épisode

    Af hverju verðum við stundum svona reið? Hvað er hægt að gera til að stjórna reiði? Hvað með reiði á samfélagsmiðlum?

    Í þessum þætti skoðum við hugmyndir stóuspekingsins Seneca um reiði og tengjum þær við sálfræði og nútímann. Er reiði alltaf slæm? Getur hún verið réttlætanleg? Og hvernig getum við lært að bregðast við af yfirvegun án þess að bæla niður tilfinningar eða láta allt yfir okkur ganga?

    Upphafsstef hlaðvarpsins er samið og flutt af Óttari Guðbirni Birgissyni.

  4. Þáttur 2: Hvað er á þínu valdi?

    19 minSaison 1 · Épisode 2

    Hvað er raunverulega á okkar valdi? Og hversu mikilli orku eyðum við í að hafa áhyggjur af því sem við getum ekki stjórnað?Í þessum þætti skoðum við eina þekktustu hugmynd Epiktetusar og tengjum hana við kvíða …

    Notes de l’épisode

    Hvað er raunverulega á okkar valdi? Og hversu mikilli orku eyðum við í að hafa áhyggjur af því sem við getum ekki stjórnað?

    Í þessum þætti skoðum við eina þekktustu hugmynd Epiktetusar og tengjum hana við kvíða, streitu og nútímasálfræði. Getum við öðlast meiri hugarró með því að sleppa takinu, án þess að gefast upp?

    Upphafsstef hlaðvarpsins er samið og flutt af Óttari Birgissyni.

  5. Þáttur 1: Hvað er gott líf?

    20 minSaison 1 · Épisode 1

    Hvað ef við erum að gera allt rétt en eltast samt við ranga hluti?Í fyrsta þætti af Að lifa vel veltum við fyrir okkur muninum á því að ganga vel í lífinu og að lifa góðu lífi. Hvað geta stóuspekin og …

    Notes de l’épisode

    Hvað ef við erum að gera allt rétt en eltast samt við ranga hluti?

    Í fyrsta þætti af Að lifa vel veltum við fyrir okkur muninum á því að ganga vel í lífinu og að lifa góðu lífi. Hvað geta stóuspekin og nútímasálfræði kennt okkur um hamingju, velgengni og það sem raunverulega skiptir máli?

C’est votre podcast ?

Confirmez-le avec une entrée dans votre flux : vous recevez ici un code, vous l’ajoutez comme podcast:txt dans le canal de votre flux, et nous le vérifions. Votre podcast apparaît ensuite comme « vérifié » sur SoundNode.

Paramètres

Affichage

Langue

Détermine les stations affichées en premier sur la page d’accueil.

Historique

Les stations et épisodes écoutés récemment et tes dernières recherches sont seulement enregistrés dans ce navigateur.

Notifications

Un court message quand un podcast que tu suis publie un nouvel épisode. Désactive un podcast précis avec la cloche sur sa page.

Compte

Enregistrez vos favoris – dans l’app et sur le site.

Raccourcis clavier

/
Ouvrir la recherche
Espace
Lecture ou pause
← →
Dans le lecteur : 15 s en arrière, 30 s en avant (épisodes) · dans une rangée : tuile suivante
↑ ↓
Dans une rangée : cible dans la tuile
Début / Fin
Dans une rangée : première ou dernière tuile
Esc
Fermer la fenêtre ou le menu
?
Cet aperçu
En cours de lecture

Voir la station

À suivre

    Ajoutez des épisodes avec « À suivre » – ils seront lus après l'épisode en cours.