
Sterk saman
- Épisodes
- 190
- Parution
- hebdomadaire
- Dernier épisode
- 8 Nov 2026
À propos du podcast
Sterk saman er spjallþáttur þar sem fólk með reynslu kemur og segir söguna sína auk þess sem við fáum sérfræðinga og fagfólk í settið til okkar.
Épisodes 190
#195 Karen Líf Svanlaugardóttir
Karen er 18 ára stelpa sem stundar nám við Kvikmyndaskólann. Hún missti móður sína aðeins átta ára, horfði upp á föður sinn taka of stóran skammt, lenti í ofbeldi, fósturkerfinu og neyslu.
#194 Ívar Örn
Ívar ólst upp í Vestmannaeyjum í miklum sársauka og sorg en þegar hann fæddist höfðu foreldrar hans þegar misst tvo syni. Hann varð afar meðvirkur og þróaði síðan með sér fíkn.
#193 Hilma - Hávarður Máni
Hávarður Máni lést 2. september 2025 eftir að hafa verið fastur í geðrofi í rúmt ár. Hilma Dögg, móðir hans segir okkur söguna hans og ferlið eftir að hann lést.
#192 Klara - Geðdeild og fangelsið reyna að koma Anítu í gröfina
Klara, móðir Anítu, sem nú er vistuð í einangrunarklefa á Hólmsheiði vegna plássleysis segir okkur frá stöðunni og meðferðinni sem dóttir hennar þarf að þola.
#191 Óskar Brynjólfsson
Óskar er þriggja barna faðir að vestan sem ólst upp við mikinn alkóhólisma, rótleysi og vanrækslu. Hann byrjaði ungur í neyslu til að deifa eigin vanlíðan og flýja raunveruleikann. Hann hefur verið í bata í rúm fimm ár.
#190 Gugga Inga
Guðbjörg Inga sem var þekkt áður sem önnur af tvíeykinu Jói og Gugga er búin að vera edrú og í bata í 15 ár. Hún byrjaði ung í neyslu og segir okkur sína sögu.
#189 Ísak Hafþórsson
Ísak er 25 ára strákur úr Hafnarfirði sem passaði aldrei inn í skólakerfið og lenti í einelti. Hann leitaði mjög ungur í neyslu og fann þar fyrst frið og upplifði að tilheyra.
#188 Tómas Torres
Tómas er 38 ára tveggja barna faðir sem fæddist í Bandaríkjunum þar sem mikil neysla og ofbeldi, af öllum toga, einkenndi heimilislífið og hans uppvöxt. Hann á stóra, mikla og átakanlega sögu.
#187 Fanney Barkardóttir
Fanney er 38 ára gift, tveggja barna móðir sem hefur þurft að eiga við kerfið vegna eldri dóttur sinnar en fær hvergi aðstoð.
#186 Tinna Berg Damayanthi
Tinna er 41 árs gift, fjögurra barna móðir sem var ættleidd frá Sri Lanka. Hún var lögð í einelti í grunnskóla og um átta ára aldur ættleiddu foreldrar hennar 12 ára dreng sem misnotaði hana kynferðislega.
#185 Hafdís Bára Óskarsdóttir
Hafdís Bára er tveggja barna móðir og mikil sveitastelpa sem hefur gengið í gegnum hreint helvíti vegna seinni barnsföður síns. Löngu og ömurlegu ofbeldissambandi lauk með morðtilraun af hans hálfu.
#184 Edda Ósk
Edda Ósk lenti í klóm ofbeldismanns sem sýndi fyrst sína réttu hlið eftir að hún var orðin ólétt af dóttur þeirra. Síðan hafa liðið 12 ár af ofbeldi en hún lokaði á allt eftir að dóttir hennar var tekin með í …
Notes de l’épisode
Edda Ósk lenti í klóm ofbeldismanns sem sýndi fyrst sína réttu hlið eftir að hún var orðin ólétt af dóttur þeirra. Síðan hafa liðið 12 ár af ofbeldi en hún lokaði á allt eftir að dóttir hennar var tekin með í fíkniefnaviðskipti í desember.
#183 Kara Guðmunds - þakklát fyrir sársaukann
Kara hefur lent í röðum áfalla sem hún hefur verið að vinna í síðustu ár. Áföllin eru stór og ná yfir mörg ár. Í dag er hún þakklát fyrir sársaukann og lærdóminn en hún hefur verið edrú í 11 ár.
#182 Fjögurra barna móðir flýr ofbeldi
Hún er 44 ára fjögurra barna móðir og hjúkrunarfræðingur sem segir okkur frá ofbeldissambandi sem braut hana niður, sneri börnum og barnaverndarkerfinu gegn henni og börnum hennar.
#181 Sindri Daði
Sindri Daði er 48 ára gamall faðir númer eitt, tvö og þrjú. Hann á stóra fortíð og sögu en frábært líf í dag.
#180 Ragna Guðrún
Ragna Guðrún er 23 ára stelpa með BS í sálfræði. Hún er barn alkóhólista og faðir hennar tók eigið líf árið 2018 eftir harða baráttu við sinn sjúkdóm.
#179 Ólafur Egilsson
Ólafur Egill Egilsson er þjóðþekktur fyrir sín verk innan kvikmyndageirans og leikhúsanna. Hann er aðstandandi og hefur skoðanir á málefninu. Hann segir okkur sína sögu.
# 178 Bjartur Hrafn Jóhannsson
Bjartur Hrafn er 26 ára strákur sem ólst upp við erfiðar aðstæður og í fósturkerfinu frá átta ára aldri.
#177 Björg Magnúsdóttir
Björg Magnúsdóttir er 41 árs oddviti Viðreisnar í Reykjavík. Hún er á slæmri íslensku no bullshit kona sem vill láta verkin tala, koma inn og stytta alla ferla og setja fólk í fyrsta sæti. Við áttum gott spjall.
#176 Dómurinn, ferlið, biðin og líðanin
Tinna segir frá þessu ferli sem dómsmálið hefur verið eftir líkamsárás árið 2022. Hvernig kerfið vinnur með gerendum og gegn þolendum. Margt nýtt sem ekki hefur verið sagt frá áður.
#175 Brynja Ýr Baugs
Brynja Ýr Baugsdóttir er móðir drengs sem aðeins 17 ára lenti í alvarlegu ofbeldissambandi með 18 ára stelpu. Hún vill opna umræðuna um að strákar og menn lendi líka í ofbeldi.
#174 Blanca
Blanca, eins og hún kallar sig, flutti frá Vestmannaeyjum sjö ára eftir áföll. Hún byrjaði að deyfa sig með áfengi og hassi aðeins tíu ára.
#173 Elín Auður Eyfjörð
Elín er 24 ára stelpa úr Garðabænum sem ólst upp við vanrækslu og andlegt ofbeldi. Hún þróaði snemma með sér fíknihegðun sem byrjaði með mat en endaði í áfengi og lyfjum eftir magaermisaðgerð.
#172 Ingibjörg Einars
Ingibjörg er móðir sem hefur gengið í gegnum margt. Hún fer ekki fögrum orðum um kerfið sem hefur brugðist henni og fimmtán ára syni hennar illa.
#171 Barbie
Barbie er 37 ára stelpa sem á stóra og átakanlega sögu frá því hún var skírð yfir kistu afa síns og til dagsins í dag.
#170 Nonni Lobo og týndu börnin
Nonni Lobo hefur verið óstöðvandi í að berjast fyrir týndu börnunum eftir andlát sonar síns á Stuðlum. Hann þekkir stöðuna betur en flestir.
#169 Þórdís Rögn
Þórdís Rögn Jónsdóttir hannaði og bjó til Bata - appið eftir að litli frændi hennar lést eftir ofskömmtun. Hún og samstarfsmenn hennar vinna í samstarfi við meðferðaraðila.
#167 Köllum hana Katarinu
Katarina kom þriggja ára til Íslands frá Rússlandi. Hún passaði ekki inn hjá jafnöldrum í skóla og upplifði höfnun. Kynntist manni frá Albaníu á Íslandi 18 ára og var í 8 ára ofbeldissambandi.
#166 Klara - móðir Anítu
Klara er móðir Anítu sem hefur setið inni á Hólmsheiði síðan í september en þá var hún í tíu vikur í einangrun. Klara segir sögu þeirra og einelti af hálfu lögreglu sem spannar sjö ár.
Voici les 40 derniers épisodes sur 190. Les épisodes plus anciens se trouvent dans le flux du podcast.
Podcasts similaires
Plus de podcasts : ÉducationC’est votre podcast ?
Confirmez-le avec une entrée dans votre flux : vous recevez ici un code, vous l’ajoutez comme podcast:txt dans le canal de votre flux, et nous le vérifions. Votre podcast apparaît ensuite comme « vérifié » sur SoundNode.







