
Eftirmál
- Épisodes
- 44
- Parution
- hebdomadaire
- Dernier épisode
- 12 Nov 2026
À propos du podcast
Fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkels og Nadine Yaghi rifja upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum.
Épisodes 44
Keikó - háhyrningurinn sem hreyfði við heimsbyggðinni
Háhyrningurinn Keikó sigraði hjörtu heimsbyggðarinnar í kvikmyndinni Free Willy. Talað var um að hann væri frægasti Íslendingurinn á tímabili og var hvalurinn fastagestur í fréttum um árabil. En þegar hann var …
Notes de l’épisode
Háhyrningurinn Keikó sigraði hjörtu heimsbyggðarinnar í kvikmyndinni Free Willy. Talað var um að hann væri frægasti Íslendingurinn á tímabili og var hvalurinn fastagestur í fréttum um árabil. En þegar hann var fluttur til Vestmannaeyja frá Bandaríkjunum, þar sem átti að hleypa honum aftur í sitt náttúrulega umhverfi, spruttu upp ýmsar spurningar um dýravelferð, pólitíska hagsmuni og himinháar peningaupphæðir. Gísli Marteinn Baldursson var ungur fréttamaður þegar heimspressan fjallaði um heimkomu og frelsun Keikós. Hann fer yfir söguna með okkur í Eftirmálum.
Komdu í áskrift á eftirmal.is
Samsetning: Adelina Antal
Samstarfsaðilar Eftirmála: ✨Húðfegrun 🛒Krónan 🩺 Intuens 🌀Sjóvá 💻Giggó 🤸🏼♂️ World Class 🚗Go Bílaleiga 📲 Kosmos 🍬Góa ✈️ Icelandair
Vertu með okkur á Instagram
Önnur mál #4 - Beint úr dómsal í Eltihrellismálinu og dætur Lúðvíks Pétursonar ætla ekki að gefast upp
Þetta er sýnishorn af þættinum ➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️Við fórum í Héraðsdóm Reykjaness til að fylgjast með aðalmeðferð í máli meinta eltihrellisins Írisar …
Notes de l’épisode
Þetta er sýnishorn af þættinum ➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️
Við fórum í Héraðsdóm Reykjaness til að fylgjast með aðalmeðferð í máli meinta eltihrellisins Írisar Helgu Jónatansdóttur. Spennan í réttarsalnum var áþreifanleg. Við förum ítarlega yfir stöðuna í réttarhöldunum.
Í þættinum ræðum við einnig við dætur Lúðvíks Péturssonar sem féll ofan í sprungu í Grindavík árið 2024. Þær segja að leit sem fór fram að honum í síðustu viku hafi verið leikrit og ætla ekki að gefast upp í baráttu sinni fyrir að hann verði sóttur.
Samsetning: Adelina Antal
Morðið á Hrafnhildi Lilju Georgsdóttur
Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir var vinamörg og ævintýagjörn ung kona frá Ólafsfirði sem fór í ferðalag til Dóminíska lýðveldisins í Karíbahafi árið 2008. Hún skilaði sér aldrei heim því eftir stutta dvöl í …
Notes de l’épisode
Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir var vinamörg og ævintýagjörn ung kona frá Ólafsfirði sem fór í ferðalag til Dóminíska lýðveldisins í Karíbahafi árið 2008. Hún skilaði sér aldrei heim því eftir stutta dvöl í landinu var hún myrt á hrottafenginn hátt. Eftir stendur fjölskylda Hrafnhildar Lilju í sárum öllum þessum árum síðar og ótal stórum spurningum er enn ósvarað. Þrátt fyrir að fjórir hefðu verið handteknir vegna málsins var það talið óupplýst í 18 ár - en í þættinum koma fram nýjar upplýsingar.
Sigurlaug Hrafnsdóttir, móðursystir Hrafnhildar Lilju, fer yfir atburðarásina í Eftirmálum.
Komdu í áskrift á eftirmal.is
Samsetning: Adelina Antal
Samstarfsaðilar Eftirmála: 🌀Sjóvá 🩺 Intuens 💻Alfreð 🤸🏼♂️ World Class 🚗Go Bílaleiga 🛒Krónan ✨Húðfegrun 📲 Kosmos 🍬Góa
Vertu með okkur á Instagram
Önnur mál #3 - Réttarhöld yfir íslenskum eltihrelli nálgast
➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️Íslensk kona á fertugsaldri var í vor ákærð fyrir kerfisbundið umsáturseinelti gegn nokkrum karlmönnum og fjölskyldum þeirra. Einnig …
Notes de l’épisode
➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️
Íslensk kona á fertugsaldri var í vor ákærð fyrir kerfisbundið umsáturseinelti gegn nokkrum karlmönnum og fjölskyldum þeirra. Einnig var hún ákærð fyrir skjalafals, rangar sakargiftir, hótanir, ærumeiðingar og barnaverndarbrot. Málið hefur vakið mikla athygli, lýsingar fórnarlamba konunnar eru lyginni líkastar og minna á þættina Baby Reindeer.
Málið fer fyrir dómstóla á næstunni en í Öðrum málum fer Valur Grettisson blaðamaður yfir málsatvik með okkur. Hann hefur skrifað um málið frá A-Ö auk þess að lenda sjálfur í áreiti af hálfu konunnar.
Samsetning: Adelina Antal
Nágrannaerjur og níðstöng við Esjurætur
Í maí 2022 vaknaði Kristjana Þórarinsdóttir upp við að búið var að reisa níðstöng með afhöfðuðum hesti við heimili hennar. Nokkrum árum áður hafði fjölskyldan látið drauminn um að flytja í sveit rætast og sest …
Notes de l’épisode
Í maí 2022 vaknaði Kristjana Þórarinsdóttir upp við að búið var að reisa níðstöng með afhöfðuðum hesti við heimili hennar. Nokkrum árum áður hafði fjölskyldan látið drauminn um að flytja í sveit rætast og sest að á Skrauthólum við Esjurætur. En draumurinn breyttist fljótlega í martröð þar sem andleg málefni, frjálsar ástir, nakið fólk og nágrannaerjur enduðu með ósköpum. Kristjana fer yfir þetta undarlega mál í Eftirmálum.
Komdu í áskrift á eftirmal.is
Samsetning: Adelina Antal
Samstarfsaðilar Eftirmála: 🛒Krónan 🌀Sjóvá 🍬Góa📲Alfreð 🤸🏼♂️ World Class 🚗Go Bílaleiga 🩺 Intuens ✨Húðfegrun
Vertu með okkur á Instagram
Önnur mál #2 Börn Johns Snorra tjá sig í fyrsta sinn
➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️Í þessum þætti fara elstu börn Johns Snorra Sigurjónssonar yfir hinstu för föður síns á K2 í Pakistan. Málið hefur undanfarið verið í …
Notes de l’épisode
➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️
Í þessum þætti fara elstu börn Johns Snorra Sigurjónssonar yfir hinstu för föður síns á K2 í Pakistan. Málið hefur undanfarið verið í umræðunni eftir að heimildarmynd um málið fór í sýningu. Ættingjar Johns Snorra hafa hingað til ekki tjáð sig um ferðina en börn hans opna sig hér í fyrsta sinn um atburðarásina, biðina óbærilegu á meðan leit stóð yfir og hvernig þau hafa unnið úr áfallinu.
Samsetning: Adelina Antal
Edition-málið
Fá mál hafa vakið jafn mikla athygli og óhug og Edition málið svokallaða. Frönsk fjölskylda, hjón og 29 ára dóttir þeirra, komu hingað til lands júní 2025 í þeim tilgangi að fremja sjálfsvíg saman á Edition …
Notes de l’épisode
Fá mál hafa vakið jafn mikla athygli og óhug og Edition málið svokallaða. Frönsk fjölskylda, hjón og 29 ára dóttir þeirra, komu hingað til lands júní 2025 í þeim tilgangi að fremja sjálfsvíg saman á Edition lúxushótelinu. Þegar lögregla kom á vettvang á voru eiginmaður og dóttir Ming Ting Mancel látin af völdum stungusára, en Ming Ting sjálf lifði af. Hún afplánar nú 12 ára fangelsisdóm í fangelsinu á Hólmsheiði. Við förum yfir þetta mál og dóminn yfir Ming Ting, sem á engan sinn líka í nútíma réttarsögu, með Ómari Erni Bjarnþórssyni verjanda hennar.
Samsetning: Adelina Antal
Samstarfsaðilar Eftirmála: 🚗Go Bílaleiga 🩺 Intuens ✨Húðfegrun 🛒Krónan 🌀Sjóvá 🍬Góa 📲Alfreð 🤸🏼♂️ World Class
Vertu með okkur á Instagram
Önnur mál #1- Birna Brjánsdóttir, harmleikur á Nýbýlavegi og hver var Catherine Mancel?
➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️Nadine og Þórhildur fara um víðan völl í Öðrum málum. Í þessum þætti ræða þær við Leif Halldórsson rannsóknarlögreglumann sem rifar …
Notes de l’épisode
➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️
Nadine og Þórhildur fara um víðan völl í Öðrum málum. Í þessum þætti ræða þær við Leif Halldórsson rannsóknarlögreglumann sem rifar upp hvarf Birnu Brjánsdóttur, yfirheyrslur yfir Thomasi Möller Olsen og fleiri eftirminnileg mál frá hans ferli. Þá förum við yfir lausa enda í Edition-málinu.
Samsetning: Adelina Antal** SÉRSTÖK TILKYNNING **
Þórhildur og Nadine kynna spennandi breytingar og glænýtt systurhlaðvarp Eftirmála - Önnur mál. ➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is
Hryðjuverkamálið
Sérsveit ríkislögreglustjóra fór í umfangsmiklar aðgerðir í september 2021 og gerði upptæk þrívíddarprentuð vopn sem talið var að væru ætluð til að fremja hryðjuverk hér á landi. Tveir menn voru handteknir og …
Notes de l’épisode
Sérsveit ríkislögreglustjóra fór í umfangsmiklar aðgerðir í september 2021 og gerði upptæk þrívíddarprentuð vopn sem talið var að væru ætluð til að fremja hryðjuverk hér á landi. Tveir menn voru handteknir og ákærðir fyrir tilraun til hryðjuverka sem er einsdæmi í íslenskri réttarsögu. Í kjölfarið velktist málið um í réttarkerfinu í fjögur ár og í ljós kom að ekki var allt sem sýndist. Við ræðum við einn sakborninganna og lögmann hans í þættinum. Málið er eitt umfangsmesta, umtalaðsta og umdeildasta sakamál sem komið hefur upp hér á landi.
Samsetning: Adelina Antal
Styrktaraðilar Eftirmála eru:
- Birgisson
- Góa
- Húðfegrun
- Scandi Home
Leiðangur Johns Snorra á K2
Leiðangur Johns Snorra Sigurjónssonar á K2, hættulegasta fjall jarðar, í febrúar 2021 átti eftir að reynast örlagaríkur. Hann freistaði þess að verða fyrstur manna til að klífa fjallið að vetrarlagi og þjóðin …
Notes de l’épisode
Leiðangur Johns Snorra Sigurjónssonar á K2, hættulegasta fjall jarðar, í febrúar 2021 átti eftir að reynast örlagaríkur. Hann freistaði þess að verða fyrstur manna til að klífa fjallið að vetrarlagi og þjóðin bæði fylgdist með undirbúningnum að ferðinni og hélt niðri í sér andanum þegar hætti að heyrast frá honum. Farið var í umfangsmiklar leitaraðgerðir á þessu miskunarlausa fjalli í Pakistan, þar sem aðstæður geta breyst á augabragði og mistök geta haft afdrifaríkar afleiðingar. Einar Bárðarson, vinur Johns Snorra, fer yfir málið með okkur og útskýrir af hverju hann vill halda minningu vinar síns á lofti og hvers vegna menn leggja í slíka hættuför.
Samsetning: Adelina Antal
Styrktaraðilar Eftirmála eru:
- Birgisson
- Góa
- Húðfegrun
Ashley Madison og Vodafone-lekinn
Stórtækasta innrás í einkalíf Íslendinga sem nokkru sinni hefur átt sér stað var þegar tölvuþrjótar láku tugþúsundum sms skilaboðum Íslendinga á netið í Vodafone-lekanum árið 2013. Hver sem er gat þannig flett …
Notes de l’épisode
Stórtækasta innrás í einkalíf Íslendinga sem nokkru sinni hefur átt sér stað var þegar tölvuþrjótar láku tugþúsundum sms skilaboðum Íslendinga á netið í Vodafone-lekanum árið 2013. Hver sem er gat þannig flett upp persónulegum málum fólks um allt á milli himins og jarðar. Tveimur árum síðar voru svo viðkvæmar persónuupplýsingar yfir 100 Íslendinga sem skráðir voru á framhjáhaldssíðuna Ashley Madison gerðar opinberar og Ice Hot 1 kom fram á sjónarsviðið. Atli Fannar Bjakason blaðamaður þekkir málin vel og fer með okkur yfir þau í þættinum.
Samsetning: Adelina Antal
Styrktaraðilar Eftirmála eru:
- Sebastian hárvörur
- Birgisson
- Scandi Home
- Góa
- Húðfegrun
Krýsuvíkurmálið
Haustið 2024 fór hrollur um þjóðina þegar karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn grunaður um að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana skammt frá Krýsuvíkurvegi. Ýmsar sögusagnir fóru á flug og enn eru …
Notes de l’épisode
Haustið 2024 fór hrollur um þjóðina þegar karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn grunaður um að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana skammt frá Krýsuvíkurvegi. Ýmsar sögusagnir fóru á flug og enn eru spurningar sem lögreglan fékk aldrei svör við. Atburðarásin vakti líka um stórar spurningar um stöðu geðheilbrigðismála hér á landi. Leifur Halldórsson rannsóknarlögreglumaður fór með rannsókn þessa sorglega máls og fer fer yfir það í þættinum.
Samsetning: Adelina Antal
Styrktaraðilar Eftirmála eru:
- Birgisson
- Scandi Home
- Góa
- Sebastian hárvörur
- Bliss
- Húðfegrun
Morðið á Hannesi Þór Helgasyni
Fá sakamálmál hafa haft jafn mikil áhrif á íslensku þjóðina og morðið á Hannesi Þór Helgasyni árið 2010. Morðið var einstaklega hrottafengið og þaulskipulagt auk þess sem nokkuð langan tíma tók að upplýsa það …
Notes de l’épisode
Fá sakamálmál hafa haft jafn mikil áhrif á íslensku þjóðina og morðið á Hannesi Þór Helgasyni árið 2010. Morðið var einstaklega hrottafengið og þaulskipulagt auk þess sem nokkuð langan tíma tók að upplýsa það. Gunnar Rúnar Sigurþórsson játaði verknaðinn en hann var hugfanginn af kærustu Hannesar og hafði fyrir morðið sett ástarjátningu til hennar á YouTube. Patrik Atlason, systursonur Hannesar, var 16 ára þegar frændi hans var myrtur en hann fer yfir málið með okkur og lýsir þeim gríðarlega mótandi áhrifum sem það hafði á líf hans.
Rock star Supernova ævintýrið
Átta þúsund manns tóku á móti Magna Ásgeirssyni í Smáralind þegar hann snéri heim eftir þátttöku í raunveruleikaþættinum Rock Star Supernova. Þjóðin stóð á öndinni í þrjá mánuði, vaknaði á nóttunni til að kjósa …
Notes de l’épisode
Átta þúsund manns tóku á móti Magna Ásgeirssyni í Smáralind þegar hann snéri heim eftir þátttöku í raunveruleikaþættinum Rock Star Supernova. Þjóðin stóð á öndinni í þrjá mánuði, vaknaði á nóttunni til að kjósa og samkeppnisaðilar á markaði fóru í samstillt átak til að koma sem flestum atkvæðum í gegnum símakosningu. Magni lenti í fjórða sæti í keppninni en við heimkomu færði ráðherra honum gjöf frá ríkisstjórninni og þakkir fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Við förum yfir Rock Star brjálæðið í Eftirmálum og ræðum bæði við Magna sjálfan og Magnús Ragnarsson, manninn á bak við þetta ævintýri.
Styrktaraðilar Eftirmála eru:
-Nettó
-Eldum Rétt
-World Class
-Collab
- Alfreð
- IntuensWok On málið / Quang Le
Quang Le, veitingamaðurinn umsvifamikli sem breytti nafni sínu í Davíð Viðarsson, er grunaður um peningaþvætti, mansal, skipulagða glæpastarfsemi og fleira. Hann var handtekinn árið 2024 en bíður enn dóms í …
Notes de l’épisode
Quang Le, veitingamaðurinn umsvifamikli sem breytti nafni sínu í Davíð Viðarsson, er grunaður um peningaþvætti, mansal, skipulagða glæpastarfsemi og fleira. Hann var handtekinn árið 2024 en bíður enn dóms í málinu sem kennt er við veitingastaðinn Wok On þar sem hann var einn eigenda. Málið er talið vera umfangsmesta mansalsmál Íslandssögunnar, teygir anga sína í ótal áttir og tekur óvænta stefnu oftar en einu sinni. Sveinn Andri Sveinsson lögfræðingur Quang Le fer yfir málið með okkur.
Styrktaraðilar Eftirmála eru:
Nettó
Eldum Rétt
Collab
AlfreðIntuens
World Class
PIP brjóstapúðamálið
Yfir 400 íslenskar konur fengu grædda í sig ólöglega silikonpúða á árunum 2000-2010 frá fyrirtækinu PIP. Í brjóstapúðunum var iðnaðarsilikon í stað læknisfræðilegs silikons og voru þeir í mörgum tilvikum …
Notes de l’épisode
Yfir 400 íslenskar konur fengu grædda í sig ólöglega silikonpúða á árunum 2000-2010 frá fyrirtækinu PIP. Í brjóstapúðunum var iðnaðarsilikon í stað læknisfræðilegs silikons og voru þeir í mörgum tilvikum byrjaðir að leka. Í Eftirmálum förum við yfir þetta risastóra svikamál og ræðum við eina þeirra sem fékk púðana grædda í sig með skelfilegum afleiðingum. Málið er enn í gangi fyrir dómstólum meira en áratug eftir að það kom upp.
Styrktaraðilar Eftirmála eru:
Nettó
Eldum Rétt
Collab
AlfreðIntuens
World Class
Skáksambandsmálið
Sérsveitin réðist inn í húsnæði Skáksambands Íslands með látum í janúar 2018 eftir að dularfullur pakki barst þangað. Um svipað leyti féll íslensk kona fram af svölum á heimili sínu á Spáni og lamaðist. Þessi …
Notes de l’épisode
Sérsveitin réðist inn í húsnæði Skáksambands Íslands með látum í janúar 2018 eftir að dularfullur pakki barst þangað. Um svipað leyti féll íslensk kona fram af svölum á heimili sínu á Spáni og lamaðist. Þessi atvik og fleiri urðu hluti af Skáksambandsmálinu svokallaða, marglaga sakamáli sem líkist einna helst kvikmyndahandriti. Í þættinum förum við yfir atburðarásina með fréttamanninum Sunnu Sæmundsdóttur en stórum spurningum í málinu er enn ósvarað.
Styrktaraðilar Eftirmála eru:
-Nettó
-NOLA snyrtivöruverslun / kóðinn EFTIRMÁL veitir 15% afslátt
-Eldum Rétt-Collab
-Alfreð
-Intuens-World Class
Raðmorðinginn og íslenska eiginkonan
Rex Heuermann, sem grunaður er um að vera einn mesti raðmorðingi í sögu Bandaríkjanna, er giftur íslenskri konu að nafni Ása Ellerup og hefur nokkrum sinnum komið hingað til lands. Hann er talinn hafa myrt …
Notes de l’épisode
Rex Heuermann, sem grunaður er um að vera einn mesti raðmorðingi í sögu Bandaríkjanna, er giftur íslenskri konu að nafni Ása Ellerup og hefur nokkrum sinnum komið hingað til lands. Hann er talinn hafa myrt fjölda kvenna á Gilgo ströndinni í New Jersey og bíður nú réttahalda vestanhafs. Talið er að hann hafi framið einhver ódæðisverkanna á meðan Ása var í fríi með börn þeirra á Íslandi. Við förum yfir þetta umfangsmikla mál í þættinum og ræðum við skyldmenni Ásu.
Styrktaraðilar Eftirmála eru:-Nettó
-NOLA snyrtivöruverslun Ármúla 38
-Eldum Rétt
-World Class
-Collab
Samsetning þáttar: Adelina AntalKlippur í þættinum:
Is Rex Heuermann the serial killer behind the Gilgo Beach murders in Long Island? YouTube
Gilgo Beach suspect Rex Heuermann’s estranged wife screams at reporters YouTube
YouTube The Gilgo Beach Killer: House of Secrets Official Trailer Peacock Original YouTube
Hvarf Lúðvíks Péturssonar í Grindavík
Í dimmum og köldum janúarmánuði árið 2024 átti sér stað hræðilegt slys í Grindavík þegar jörðin opnaðist og Lúðvík Pétursson, verktaki sem var við gröfuvinnu á svæðinu, hvarf ofan í sprunguna. Þjóðin stóð á …
Notes de l’épisode
Í dimmum og köldum janúarmánuði árið 2024 átti sér stað hræðilegt slys í Grindavík þegar jörðin opnaðist og Lúðvík Pétursson, verktaki sem var við gröfuvinnu á svæðinu, hvarf ofan í sprunguna. Þjóðin stóð á öndinni á meðan fordæmalaus leit fór fram í stórhættulegum aðstæðum. Í þættinum er rætt við dætur Lúðvíks sem vilja endurheimta líkamsleifar föður síns.
Styrktaraðilar Eftirmála eru:
-NOLA snyrtivöruverslun Ármúla 38
-Nettó
-Eldum Rétt
-World Class
-CollabBraggamálið
Það hefði líklega fáa grunað að uppbygging á gömlum bragga í Nauthólsvík yrði eitt stærsta fréttamál ársins 2018, en það varð raunin. Braggamálið setti samfélagið á hliðina þegar í ljós kom að kostnaður við …
Notes de l’épisode
Það hefði líklega fáa grunað að uppbygging á gömlum bragga í Nauthólsvík yrði eitt stærsta fréttamál ársins 2018, en það varð raunin. Braggamálið setti samfélagið á hliðina þegar í ljós kom að kostnaður við framkvæmdina hafði farið langt fram úr öllu hófi, meðal annars vegna höfundaréttavarinna stráa sem plantað hafði verið fyrir framan braggann.
Þátturinn er í boði:
Nettó
Duck & Rose
Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMALGýgjarhólsmálið
Í mars 2018 kom upp morðmál á sveitabænum Gýgjarhóli II í uppsveitum Árnessýslu þegar maður varð bróður sínum að bana með hrottafengnum hætti. Málið lamaði samfélagið í sveitinni og fjölskylda bræðranna sat …
Notes de l’épisode
Í mars 2018 kom upp morðmál á sveitabænum Gýgjarhóli II í uppsveitum Árnessýslu þegar maður varð bróður sínum að bana með hrottafengnum hætti. Málið lamaði samfélagið í sveitinni og fjölskylda bræðranna sat eftir í sárum. Í þættinum fara börn fórnarlambsins yfir áfallið, baráttuna fyrir dómstólum og hvernig líf þeirra breyttist þennan örlagaríka dag.
Þátturinn er í boði:
Nettó
Duck & Rose
Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMALFlugslysið í Skerjafirði
Í ágúst árið 2000 hrapaði lítil flugvél í sjóinn í Skerjafirði í Reykjavík með sex manns innanborðs. Fólkið var á leið heim eftir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þegar vélin hætti við lendingu á síðustu stundu …
Notes de l’épisode
Í ágúst árið 2000 hrapaði lítil flugvél í sjóinn í Skerjafirði í Reykjavík með sex manns innanborðs. Fólkið var á leið heim eftir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þegar vélin hætti við lendingu á síðustu stundu. Flugslysið vakti strax upp stórar spurningar og varð að risastóru fréttamáli þar sem aðstandendur fórnarlambanna tóku rannsóknina í eigin hendur til að komast að sannleikanum. Friðrik Þór Guðmundsson, faðir sautján ára drengs sem lést í slysinu, fer yfir málið og lygileg eftirmál þess í þættinum.
Þátturinn er í boði:
Nettó
Duck & Rose
Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMALÖskjuhlíðarmálið
Eitt þekktasta sakamál okkar tíma er Öskjuhlíðarmálið eða GAP málið svokallaða. Fá morðmál hafa vakið meiri óhug meðal þjóðarinnar sem hélt niðri í sér andanum á meðan leit stóð yfir af Einari Erni Birgis …
Notes de l’épisode
Eitt þekktasta sakamál okkar tíma er Öskjuhlíðarmálið eða GAP málið svokallaða. Fá morðmál hafa vakið meiri óhug meðal þjóðarinnar sem hélt niðri í sér andanum á meðan leit stóð yfir af Einari Erni Birgis, farsælum og vinamörgum viðskipta- og íþróttamanni í blóma lífsins. Eftir nokkurra daga leit játaði viðskiptafélagi hans og vinur að hafa myrt hann og komið líkinu fyrir í gjótu á Reykjanesi, en hann hafði sjálfur tekið þátt í leitinni að Einari. Systkini Einars segja okkur frá þessari lífsreynslu og eftirmálum morðsins í þættinum.
Þátturinn er í boði:
Nettó
Duck & Rose
Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMALJón stóri
Jón stóri var á árunum 2009 til 2013 umtalaðasti og umdeildasti maður landsins. Hann lifði og hrærðist í undirheimunum og talaði opnskátt um fíkniefnaneyslu og glæpi á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlaviðtölum þar …
Notes de l’épisode
Jón stóri var á árunum 2009 til 2013 umtalaðasti og umdeildasti maður landsins. Hann lifði og hrærðist í undirheimunum og talaði opnskátt um fíkniefnaneyslu og glæpi á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlaviðtölum þar sem allt var látið flakka. Líf hans einkenndist af glamúr og partýstandi en hann átti líka mjög myrkar hliðar. Í Eftirmálum förum við yfir lífshlaup Jóns stóra og ræðum við fyrrum kærustu hans.
Þátturinn er í boði:
Nettó
Duck & Rose
Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMALAukaþáttur - Vendingar í máli Söndru Sigrúnar
Fjölskylda Söndru Sigrúnar Fenton vinnur nú að því með íslenskum lögmanni að reyna að fá hana framselda til Íslands. Lögmaðurinn hefur rætt við íslensk stjórnvöld og er í sambandi við dómsmálaráðuneytið vegna …
Notes de l’épisode
Fjölskylda Söndru Sigrúnar Fenton vinnur nú að því með íslenskum lögmanni að reyna að fá hana framselda til Íslands. Lögmaðurinn hefur rætt við íslensk stjórnvöld og er í sambandi við dómsmálaráðuneytið vegna málsins. Lögmaðurinn og Margrét Fenton, mamma Söndru Sigrúnar, ræða stöðuna í þættinum.
Búsáhaldabyltingin
Mótmælin í kjölfar efnahagshrunsins 2008 eiga engan sinn líka í sögunni. Allt byrjaði þetta friðsamlega en mótmælin stigmögnuðust samhliða reiði og ólgu í samfélaginu. Á endanum sauð upp úr og upplausnarástand …
Notes de l’épisode
Mótmælin í kjölfar efnahagshrunsins 2008 eiga engan sinn líka í sögunni. Allt byrjaði þetta friðsamlega en mótmælin stigmögnuðust samhliða reiði og ólgu í samfélaginu. Á endanum sauð upp úr og upplausnarástand ríkti á Austurvelli, þar sem eldur logaði víðs vegar, mótmælendur köstuðu skyri, eggjum og grjóti í lögreglumenn og reyndu að brjóta sér leið inn í Alþingishúsið. Stefán Eiríksson, sem var lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins á þessum tíma, rifjar í Eftirmálum upp hvernig var að vera staddur í hringiðunni á þessum fordæmalausu atburðum.
Þátturinn er í boði:Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMÁL
Rauðagerðismálið
Nýr veruleiki blasti við í íslensku samfélagi einn sunnudagsmorgun í febrúar 2021 þegar fréttir bárust af kaldrifjuðu morði í Rauðagerði, götu í rólegu fjölskylduhverfi í Reykjavík. Sá myrti var skotinn níu …
Notes de l’épisode
Nýr veruleiki blasti við í íslensku samfélagi einn sunnudagsmorgun í febrúar 2021 þegar fréttir bárust af kaldrifjuðu morði í Rauðagerði, götu í rólegu fjölskylduhverfi í Reykjavík. Sá myrti var skotinn níu sinnum fyrir utan heimili sitt. Atburðurinn var fordæmalaus, minnti einna helst á aftöku og þótti marka aukna hörku í undirheimum Íslands. Í Eftirmálum förum við yfir atburðarásina í þessu umfangsmikla morðmáli með Birgi Olgeirssyni, fyrrum fréttamanni, sem rannsakaði málið og sat réttarhöldin.
Þátturinn er í boði:Sjöstrand 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMÁL
Mál Róberts Downey og uppreist æra
Líklega óraði engan fyrir því að barátta þolenda kynferðisbrotamannsins Roberts Downey fyrir upplýsingum um uppreista æru myndi verða til þess að sprengja ríkisstjórn Íslands haustið 2017, en svo fór. Uppreist …
Notes de l’épisode
Líklega óraði engan fyrir því að barátta þolenda kynferðisbrotamannsins Roberts Downey fyrir upplýsingum um uppreista æru myndi verða til þess að sprengja ríkisstjórn Íslands haustið 2017, en svo fór. Uppreist æru málið hristi hressilega upp í þjóðinni og óvænta stefnu þegar þegar meðmælabréf með dæmdum barnaníðingum voru gerð opinber. Málið skók þjóðina, stjórnmálin og umræðuna en Sigríður Andersen, sem þá var dómsmálaráðherra, ræðir sína hlið af þessum atburðum í Eftirmálum.
Þátturinn er í boði:
Voici les 40 derniers épisodes sur 44. Les épisodes plus anciens se trouvent dans le flux du podcast.
Podcasts similaires
Plus de podcasts : Culture et sociétéC’est votre podcast ?
Confirmez-le avec une entrée dans votre flux : vous recevez ici un code, vous l’ajoutez comme podcast:txt dans le canal de votre flux, et nous le vérifions. Votre podcast apparaît ensuite comme « vérifié » sur SoundNode.







