Aller au contenu
Leðurblakan
PodcastÉducationIS

Leðurblakan

Épisode 11. þáttur - Talnastöðvar23 septembre 2019 · 28 min
Épisodes
22
Format
Série – à écouter depuis le début
Dernier épisode
17 Fév 2020

À propos du podcast

Leðurblökur eru skuggaleg og skringileg dýr sem hafast við í dimmum hellum og skúmaskotum. Þær eru sjaldséðar hér á landi en slæðast þó hingað af og til. Í Leðurblökunni er fjallað um ýmsar ráðgátur og sakamál, og önnur dularfull og sérkennileg mál úr sögunni. Þættirnir voru áður á dagskrá Rásar 1 árið 2014. Umsjónarmaður: Vera Illugadóttir

Épisodes 22

  1. 22. Blýgrímurnar

    2 h 42 minÉpisode 22

    Í ágúst árið 1966 fundust lík tveggja rafmagnsverkfræðinga í rjóðri efst á hæð nokkurri í grennd við Ríó de Janeiro í Brasilíu. Mennirnir voru báðir klæddir í snyrtileg jakkaföt og regnkápur utan yfir, með …

    Notes de l’épisode
    Í ágúst árið 1966 fundust lík tveggja rafmagnsverkfræðinga í rjóðri efst á hæð nokkurri í grennd við Ríó de Janeiro í Brasilíu. Mennirnir voru báðir klæddir í snyrtileg jakkaföt og regnkápur utan yfir, með undarlegur grímur úr blýi fyrir andlitunun. Engin leið var að segja til um hvers vegna mennirnir hefðu látið lífið - á þeim voru engir áverkar og engin merki um eitrun af neinu tagi, en í jakkavasa annars þeirra fannst miði með dularfullum fyrirmælum.
  2. 21. Axarmorðin í Villisca

    2 h 16 minÉpisode 21

    Leðurblakan fjallar um dularfullt morðmál í smábæ í Iowa í Bandaríkjunum árið 1912. Sumarnótt eina braust einhver inn á heimili Moore-fjölskyldunnar í bænum Villisca, og myrti allt heimilisfólkið með exi á …

    Notes de l’épisode
    Leðurblakan fjallar um dularfullt morðmál í smábæ í Iowa í Bandaríkjunum árið 1912. Sumarnótt eina braust einhver inn á heimili Moore-fjölskyldunnar í bænum Villisca, og myrti allt heimilisfólkið með exi á hrottalegan hátt. Í gegnum tíðina hafa margir verið grunaðir um glæpinn, allt frá keppinautum fjölskylduföðursins í viðskiptum til grunsamlegra farandpredikara. En nýjustu rannsóknir benda til þess að sannleikurinn í málinu gæti verið langtum verri.
  3. 20. Réttlátu dómararnir

    1 h 22 minÉpisode 20

    Leðurblakan fjallar um einn alræmdasta óleysta glæp í sögu Belgíu, og jafnframt í listasögunni. Árið 1934 var einni plötu úr altaristöflu Jan Van Eycks í dómkirkjunni í Gent í Belgíu stolið - en altaristaflan …

    Notes de l’épisode
    Leðurblakan fjallar um einn alræmdasta óleysta glæp í sögu Belgíu, og jafnframt í listasögunni. Árið 1934 var einni plötu úr altaristöflu Jan Van Eycks í dómkirkjunni í Gent í Belgíu stolið - en altaristaflan er álitin eitt af helstu meistaraverkum evrópskrar málaralistar. Þrátt fyrir að belgíska lögreglan hafi rannsakað þjófnaðinn óslitið í átta áratugi hefur stolna platan aldrei fundist og alls ekki öll kurl komin til grafar.
  4. 19. Börnin sem fuðruðu upp

    54 minÉpisode 19

    Á aðfaranótt jóladags 1945 brann hús fjölskyldu nokkurrar í smábæ í Vestur-Virginíu til grunna. Sodder-hjónin og þrjú börn sluppu út við illan leik, en hin börnin þeirra fimm hurfu inn í eldhafið. Eftirlifandi …

    Notes de l’épisode
    Á aðfaranótt jóladags 1945 brann hús fjölskyldu nokkurrar í smábæ í Vestur-Virginíu til grunna. Sodder-hjónin og þrjú börn sluppu út við illan leik, en hin börnin þeirra fimm hurfu inn í eldhafið. Eftirlifandi fjölskyldumeðlimir urðu þó fljótt handviss um að börnin hefðu ekki farist í brunanum - enda fundust líkamsleifar þeirra aldrei í brunarústunum. Þá bentu ýmsir dularfullir atburðir sem fjölskyldan varð vitni að, fyrir og eftir brunann, til þess að kveikt hefði verið í, og börnunum rænt.
  5. 18. Vitaverðirnir á Flannan eyjum

    26 minÉpisode 18

    Flannan-eyjur eru örlítill eyjaklasi sem tilheyrir Ytri-Suðureyjum í Skotlandi - varla meira en sker og hólmar sem rísa upp úr Norður-Atlantshafi. Þar eru engir mannabústaðir og engin mannvirki að finna fyrir …

    Notes de l’épisode
    Flannan-eyjur eru örlítill eyjaklasi sem tilheyrir Ytri-Suðureyjum í Skotlandi - varla meira en sker og hólmar sem rísa upp úr Norður-Atlantshafi. Þar eru engir mannabústaðir og engin mannvirki að finna fyrir utan það að á einni eyjunni, þeirri stærstu, stendur viti. Í þessum vita gerðist dularfullur atburður í desembermánuði árið 1900. Í miklu illviðri slökknaði á vitanum og þrír vitaverðir hurfu sportlaust. Hrifsaði sjórinn mennina til sín - eða gerðist eitthvað ennþá verra á þessum afskekkta stað?
  6. 17. Týnda borgin í Amazon

    28 minÉpisode 17

    Árið 1925 lagði breski landkönnuðurinn Percy Fawcett af stað inn í Amazon-regnskóginn í Brasilíu í leit að rústum höfuðborgar horfinnar siðmenningar, sem hann kallaði týndu borgina Zetu. Þessarar borgar er …

    Notes de l’épisode
    Árið 1925 lagði breski landkönnuðurinn Percy Fawcett af stað inn í Amazon-regnskóginn í Brasilíu í leit að rústum höfuðborgar horfinnar siðmenningar, sem hann kallaði týndu borgina Zetu. Þessarar borgar er einungis getið í einu gulnuðu handriti frá átjándu öld, en Fawcett var handviss um að hana væri að finna einhverstaðar djúpt inni í regnskógarþykkninu - og varð heltekinn af þeirri tilhugsun um að sjá borgina með eigin augum.
  7. 16. Líkið í álminum

    28 minÉpisode 16

    Vorkvöld eitt árið 1943 voru nokkrir táningspiltar á flækingi um skóg í nágrenni borgarinnar Birmingham í Bretlandi, í leit að fugslhreiðrum. En í stað hreiðra fundu þeir beinagrind ungrar konu, sem var falin …

    Notes de l’épisode
    Vorkvöld eitt árið 1943 voru nokkrir táningspiltar á flækingi um skóg í nágrenni borgarinnar Birmingham í Bretlandi, í leit að fugslhreiðrum. En í stað hreiðra fundu þeir beinagrind ungrar konu, sem var falin inni í holum álmi í útjaðri skógarins. Nokkru síðar birtust svo torkennilegt veggjakrot í bæjum í nágrenni skógarins og ljóst einhver vissi meira um líkið í álminum en hann lét uppi. Rannsókn lögreglu stóð í áratugi, og komu þar við sögu nornir, njósnarar og kabarettsöngvarar.
  8. 15. Dauðsfallið á Suðurskautslandinu

    27 minÉpisode 15

    Það er varla nokkur staður á jörðinni afskekktari og einangraðri en Amundsen-Scott-rannsóknarstöðin á Suðurskautslandinu. Yfir heimskautaveturinn er þar stöðugt myrkur, stöðugt hvassviðri og svo mikið frost að …

    Notes de l’épisode
    Það er varla nokkur staður á jörðinni afskekktari og einangraðri en Amundsen-Scott-rannsóknarstöðin á Suðurskautslandinu. Yfir heimskautaveturinn er þar stöðugt myrkur, stöðugt hvassviðri og svo mikið frost að enginn flugvél getur lent þar. Þeir vísindamenn sem þar dvelja yfir vetrartímann búa í því algerri einangrun og kolniðamyrkri mánuðum saman, og eiga sér engrar undankomu auðið. Það var eina slíka eilífa vetrarnótt sem dularfullt dauðsfall átti sér stað í Amundsen-Scott-rannsóknarstöðinni.
  9. 14. Aleppó handritið

    29 minÉpisode 14

    Eitt dýrmætasta fornhandrit Gyðingdómsins, sem talið er vera eitt fullkomnasta eintak af hebresku biblíunni sem til er, Aleppó-handritið, er geymt við stranga öryggisgæslu í neðanjarðarhvelfingu á …

    Notes de l’épisode
    Eitt dýrmætasta fornhandrit Gyðingdómsins, sem talið er vera eitt fullkomnasta eintak af hebresku biblíunni sem til er, Aleppó-handritið, er geymt við stranga öryggisgæslu í neðanjarðarhvelfingu á þjóðminjasafni Ísraelsríkis í Jerúsalem. Handritið er kallað Aleppó-handritið því í meira en sex hundruð ár geymdu Gyðingar í sýrlensku borginni Aleppó handritið eins og sjáaldur augna sinna.
  10. 13. Eitraða konan

    28 minÉpisode 13

    Kvöld eitt árið 1994 veiktust tugir starfsmanna á bráðamóttöku sjúkrahúss í Kaliforníu, fengu heiftarleg flog og misstu meðvitund í hrönnum. Veikindi þeirra virtust tengjast komu ungrar krabbameinssjúkrar konu …

    Notes de l’épisode
    Kvöld eitt árið 1994 veiktust tugir starfsmanna á bráðamóttöku sjúkrahúss í Kaliforníu, fengu heiftarleg flog og misstu meðvitund í hrönnum. Veikindi þeirra virtust tengjast komu ungrar krabbameinssjúkrar konu á bráðamóttökuna fyrr um kvöldið. Grunur lék á að einhverskonar dularfullar eiturgufur hafi lagt frá konunni, en enginn botn fékkst í málið fyrr en kjarnefnafræðingar voru fengnir til rannsóknar.
  11. 12. Morðið við refaturninn

    27 minÉpisode 12

    Á köldum vetrarmorgni í janúar 1937 fannst illa útleikið lík ungrar, evrópskrar stúlku í útjaðri gömlu Peking. Rannsókn lögreglu á dauða hennar bar lítinn árangur, enda voru flestir Pekingbúar frekar með hugann …

    Notes de l’épisode
    Á köldum vetrarmorgni í janúar 1937 fannst illa útleikið lík ungrar, evrópskrar stúlku í útjaðri gömlu Peking. Rannsókn lögreglu á dauða hennar bar lítinn árangur, enda voru flestir Pekingbúar frekar með hugann við yfirvofandi innrás Japana en dularfullan dauðdaga ungrar stúlku. En faðir hennar, fyrrverandi konsúll á áttræðisaldri, gafst ekki svo auðveldlega upp.
  12. 11. Konan í Ísdalnum

    27 minÉpisode 11

    Á fallegum vetrardegi 1970 rakst maður á göngu um Ísdalinn í nágrenni Bergen á illa brunnið lík konu í fjallshlíðinni. Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að mánuðina fyrir andlát sitt hafði konan ferðast …

    Notes de l’épisode
    Á fallegum vetrardegi 1970 rakst maður á göngu um Ísdalinn í nágrenni Bergen á illa brunnið lík konu í fjallshlíðinni. Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að mánuðina fyrir andlát sitt hafði konan ferðast vítt og breitt um Noreg og Evrópu, en notast á ferðum sínum við ótal mismunandi fölsk nöfn og fölsuð skilríki.
  13. 10. Skrímslið með 21 andlit

    54 minÉpisode 10

    Leðurblakan fjallar um eitt furðulegasta sakamál í sögu Japans. Í sautján mánuði, árin 1984 og 1985, hélt dularfullur óvættur sem kallaði sig Skrímslin með 21 andlit japönsku samfélagi í heljargreipum …

    Notes de l’épisode
    Leðurblakan fjallar um eitt furðulegasta sakamál í sögu Japans. Í sautján mánuði, árin 1984 og 1985, hélt dularfullur óvættur sem kallaði sig Skrímslin með 21 andlit japönsku samfélagi í heljargreipum. Skrímslið svokallaða herjaði á japanskar sælgætisgerðir og matvælafyrirtæki, rændi forstjórum þeirra og kveikti í verksmiðjum, og laumaði sælgætismolum með blásýru í búðir.
  14. 9. Morðin í Hinterkaifeck

    27 minÉpisode 9

    Í byrjun þriðja áratugarins, á miklum ólgutímum í Þýskalandi, fundust lík sex manna fjölskyldu á litlum bóndabæ þeirra í Bæjaralandi. Öll höfðu þau verið myrt, og það sem vakti hvað mestan óhug var að …

    Notes de l’épisode
    Í byrjun þriðja áratugarins, á miklum ólgutímum í Þýskalandi, fundust lík sex manna fjölskyldu á litlum bóndabæ þeirra í Bæjaralandi. Öll höfðu þau verið myrt, og það sem vakti hvað mestan óhug var að morðinginn virtist hafa setið um fjölskylduna, legið í leyni á bænum og jafnvel dvalist þar eftir að morðin voru framin.
  15. 8. Hvarf Michaels Rockefellers

    27 minÉpisode 8

    Árið 1961 hvarf ungur Bandaríkjamaður sportlaust langt inni í regnskógi Nýju Gíneu, á yfirráðasvæði herskárrar frumbyggjaþjóðar sem fáir Vesturlandabúar höfðu heimsótt áður. Ungi maðurinn hét Michael …

    Notes de l’épisode
    Árið 1961 hvarf ungur Bandaríkjamaður sportlaust langt inni í regnskógi Nýju Gíneu, á yfirráðasvæði herskárrar frumbyggjaþjóðar sem fáir Vesturlandabúar höfðu heimsótt áður. Ungi maðurinn hét Michael Rockefeller og var sonur ríkisstjóra New York og verðandi varaforseta Bandaríkjanna, og langafabarn eins ríkasta manns sögunnar.
  16. 7. Morðin við Bodom-vatn

    29 minÉpisode 7

    Leðurblakan fjallar um eitt óhugnanlegasta morðmál í sögu Finnlands, sem aldrei hefur verið leyst þrátt fyrir áralanga rannsókn. Ókunnur maður réðst þá á fjóra unglinga sem sváfu í tjaldi við Bodom-vatn …

    Notes de l’épisode
    Leðurblakan fjallar um eitt óhugnanlegasta morðmál í sögu Finnlands, sem aldrei hefur verið leyst þrátt fyrir áralanga rannsókn. Ókunnur maður réðst þá á fjóra unglinga sem sváfu í tjaldi við Bodom-vatn, friðsælt stöðuvatn í nágrenni Helsinkis, snemma á sjöunda áratuginum. Þrír unglingar voru myrtir en sá fjórði komst með naumindum lífs af.
  17. 6. þáttur - Bókaþjófurinn í Stokkhólmi

    28 minÉpisode 6

    Árið 2003 komst upp um ótrúlegan bókaþjófnað frá Konunglega-bókasafninu í Stokkhólmi. En atburðarásinni var ekki lokið þar, því fyrst átti eftir að verða dauðsfall.

  18. 5. þáttur - Draugaskipið Mary Celeste

    25 minÉpisode 5

    Í þessum þætti Leðurblökunnar siglum við með mannlausa draugaskipinu Mary Celeste frá New York að Ítalíu

  19. 4. þáttur - Líkið á ströndinni

    27 minÉpisode 4

    Leðurblakan flýgur að ströndu Ástralíu en þar fannst lík. Við sögu kemur persnesk ljóðabók og ferðataska í hólfi á lestarstöð.

  20. 3. þáttur - Leyndarmál Glamis-kastala

    27 minÉpisode 3

    Leðurblakan í dag flýgur um dimma ganga Glamis-kastala í Skotlandi en margir trúa að kastalinn búi yfir hræðilegum leyndardómum

  21. 2. þáttur - Morðið á Mary Rogers

    27 minÉpisode 2

    Í þessum þætti Leðurblökunnar fjallar Vera Illugadóttir um morðið á Mary Rogers í New York en það hefur verið óupplýst í ríflega 170 ár.

  22. 1. þáttur - Talnastöðvar

    28 minÉpisode 1

    Í afkimum stuttbylgju útvarpsins má stundum heyra upplestur einkennilegra talnaruna á hinum ýmsu tungumálum. Stöðvarnar sem útvarpa rununum eru kallaðar talnastöðvar og enginn veit í raun og veru hver útvarpar …

    Notes de l’épisode
    Í afkimum stuttbylgju útvarpsins má stundum heyra upplestur einkennilegra talnaruna á hinum ýmsu tungumálum. Stöðvarnar sem útvarpa rununum eru kallaðar talnastöðvar og enginn veit í raun og veru hver útvarpar þeim eða hvaðan. Mjög sennilegar kenningar eru þó á lofti um tilgang þeirra.
C’est votre podcast ?

Confirmez-le avec une entrée dans votre flux : vous recevez ici un code, vous l’ajoutez comme podcast:txt dans le canal de votre flux, et nous le vérifions. Votre podcast apparaît ensuite comme « vérifié » sur SoundNode.

Paramètres

Affichage

Langue

Détermine les stations affichées en premier sur la page d’accueil.

Historique

Les stations et épisodes écoutés récemment et tes dernières recherches sont seulement enregistrés dans ce navigateur.

Notifications

Un court message quand un podcast que tu suis publie un nouvel épisode. Désactive un podcast précis avec la cloche sur sa page.

Compte

Enregistrez vos favoris – dans l’app et sur le site.

Raccourcis clavier

/
Ouvrir la recherche
Espace
Lecture ou pause
← →
Dans le lecteur : 15 s en arrière, 30 s en avant (épisodes) · dans une rangée : tuile suivante
↑ ↓
Dans une rangée : cible dans la tuile
Début / Fin
Dans une rangée : première ou dernière tuile
Esc
Fermer la fenêtre ou le menu
?
Cet aperçu
En cours de lecture

Voir la station

À suivre

    Ajoutez des épisodes avec « À suivre » – ils seront lus après l'épisode en cours.