Zum Inhalt springen
Hver sprengdi hafmeyjuna?

Hver sprengdi hafmeyjuna?

Folge 1Sölvadalur - 1. þáttur15.11.2025 · 42 Min.
Folgen
24
Format
Serie – von Anfang an hören
Letzte Folge
17. Okt. 2026

Über den Podcast

Hvernig rataði Hafmeyja Nínu Sæmundsson í Tjörnina í Reykjavík? Og hvað varð til þess að hún var sprengd í loft upp? Var glæpurinn fagurfræðilegur eða pólitískur? Var þetta hatursglæpur eða hrein skemmdarfýsn? Og hvernig tengjast módernistar, þjóðernissinnar, Hollywood og heitar ástir ráðgátunni? Í sex þátta seríu kafar Halla Harðardóttir í best geymda leyndarmál íslenskrar listasögu, skoðar söguna í nýju ljósi og miðlar spennandi tilgátum.

Umsjón og dagskrárgerð: Halla Harðardóttir fyrir Rás 1

Aðrar þáttaraðir í þessu safnvarpi:

Börnin á vistinni

Bruninn í Skildi

Sprengjan sem sprakk

Elsta land í heimi

Sölvadalur

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Folgen 24

  1. 6. þáttur: Hafmeyjurnar frá Hollywood

    37 Min.Staffel 6 · Folge 6

    Við skoðum ferðalag Hafmeyjunnar eftir sprengjuna og heyrum af tveimur hafmeyjum til viðbótar. Ferðalagið leiðir okkur í Kópavog, á Hvolfsvöll og út á Akranes, en einnig vestur á firði og svo aftur heim, til …

    Shownotes
    Við skoðum ferðalag Hafmeyjunnar eftir sprengjuna og heyrum af tveimur hafmeyjum til viðbótar. Ferðalagið leiðir okkur í Kópavog, á Hvolfsvöll og út á Akranes, en einnig vestur á firði og svo aftur heim, til Texas. Og að lokum heimsækjum við fólk sem deilir upplýsingum sem aldrei hafa komið fram.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  2. 5. þáttur: Hinsegin Nína og Reykjavík sem var

    38 Min.Staffel 6 · Folge 5

    Í þessum þætti veltum við fyrir okkur menningargengi Nínu hér á landi. Nína var listamaður en hún var líka kona og hún var líka hinsegin. Skiptir það máli? Við skoðum Reykjavík sem var og heimsækjum ættingja …

    Shownotes
    Í þessum þætti veltum við fyrir okkur menningargengi Nínu hér á landi. Nína var listamaður en hún var líka kona og hún var líka hinsegin. Skiptir það máli? Við skoðum Reykjavík sem var og heimsækjum ættingja Nínu sem hefur sterka skoðun á því sem gerðist. Viðmælendur: Gróa Björk Hjörleifsdóttir, Ásta Kristín Benediktsdóttir, Margrét Elísabet Ólafsdóttir

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  3. 4. þáttur: Eyðilegging og furðusögur

    40 Min.Staffel 6 · Folge 4

    Hvað segir sagan okkur um eyðileggingu listaverka og hvað liggur oftast að baki? Gætu valdamiklir menn úr þjóðfélaginu tengst sprengingunni? Við sögu koma Ólöf Pálsdóttir og Tove Ólafsson, biskupar, stórlaxar …

    Shownotes
    Hvað segir sagan okkur um eyðileggingu listaverka og hvað liggur oftast að baki? Gætu valdamiklir menn úr þjóðfélaginu tengst sprengingunni? Við sögu koma Ólöf Pálsdóttir og Tove Ólafsson, biskupar, stórlaxar og stúdentar.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  4. 3. þáttur: Vanskaplingurinn í Tjörninni

    39 Min.Staffel 6 · Folge 3

    Hvað gerðist eftir sprenginguna og hverjir tjáðu sig í ræðu og riti? Voru þetta strákapör eða þaulskipulagður verknaður? Hvað segja málfræðingur og listfræðingar um yfirlýsingu meints geranda og af hverju …

    Shownotes
    Hvað gerðist eftir sprenginguna og hverjir tjáðu sig í ræðu og riti? Voru þetta strákapör eða þaulskipulagður verknaður? Hvað segja málfræðingur og listfræðingar um yfirlýsingu meints geranda og af hverju fjaraði rannsóknin út? Við sögu koma Jón Pétursson sem var fyrstur á vettvang glæpsins, Ásmundur Sveinsson og Ragnar í Smára.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  5. 2. þáttur: Sprengjan

    37 Min.Staffel 6 · Folge 2

    Hvaðan kom Hafmeyjan og hvernig bar hana að ströndum Íslands? Og hvernig var rætt um verkið í aðdraganda sprengjunnar? Við sögu koma sendiherra og olíukóngur, sjálfstæðismenn í borginni, Kalda stríðið og …

    Shownotes

    Hvaðan kom Hafmeyjan og hvernig bar hana að ströndum Íslands? Og hvernig var rætt um verkið í aðdraganda sprengjunnar? Við sögu koma sendiherra og olíukóngur, sjálfstæðismenn í borginni, Kalda stríðið og óánægðir módernistar.


    Dagskrárgerð: Halla Harðardóttir


    ______________________________


    Hvernig rataði Hafmeyja Nínu Sæmundsson í Tjörnina í Reykjavík? Og hvað varð til þess að hún var sprengd í loft upp? Var glæpurinn fagurfræðilegur eða pólitískur? Var þetta hatursglæpur eða hrein skemmdarfýsn? Og hvernig tengjast módernistar, þjóðernissinnar, Hollywood og heitar ástir ráðgátunni? Í þessari sex þátta seríu kafar Halla Harðardóttir í best geymda leyndarmál íslenskrar listasögu, skoðar söguna í nýju ljósi og miðlar spennandi tilgátum.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  6. 1. þáttur Úr torfbæ til Hollywood

    38 Min.Staffel 6 · Folge 1

    Saga Nínu sem ólst upp í torfbæ, braust til mennta í Kaupmannahöfn og hélt svo til Parísar, Rómar, New York og Hollywood. Hvar staðsetjum við Nínu í listasögunni og afhverju þótti hún gamaldags þegar hún sneri …

    Shownotes

    Saga Nínu sem ólst upp í torfbæ, braust til mennta í Kaupmannahöfn og hélt svo til Parísar, Rómar, New York og Hollywood. Hvar staðsetjum við Nínu í listasögunni og afhverju þótti hún gamaldags þegar hún sneri aftur heim?


    ______________

    Hvernig rataði Hafmeyja Nínu Sæmundsson í Tjörnina í Reykjavík? Og hvað varð til þess að hún var sprengd í loft upp? Var glæpurinn fagurfræðilegur eða pólitískur? Var þetta hatursglæpur eða hrein skemmdarfýsn? Og hvernig tengjast módernistar, þjóðernissinnar, Hollywood og heitar ástir ráðgátunni? Í þessari sex þátta seríu kafar Halla Harðardóttir í best geymda leyndarmál íslenskrar listasögu, skoðar söguna í nýju ljósi og miðlar spennandi tilgátum.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  7. Börnin á vistinni 3. þáttur - „svona var þetta bara“

    41 Min.Staffel 5 · Folge 3

    Heimavistarskólarnir voru barn síns tíma. Nauðsynlegt úrræði til þess að mennta börn til sveita en ekki ákjósanlegasta fyrirkomulagið til þess að sinna tilfinningalegum þörfum þeirra. Í þessum lokaþætti köfum …

    Shownotes

    Heimavistarskólarnir voru barn síns tíma. Nauðsynlegt úrræði til þess að mennta börn til sveita en ekki ákjósanlegasta fyrirkomulagið til þess að sinna tilfinningalegum þörfum þeirra. Í þessum lokaþætti köfum við aðeins ofan í tilfinningarnar en bregðum okkur líka aftur í tímann og heimsækjum Reykjanesskóla í Ísafjarðardjúpi árið 1980 og Hallormsstaðaskóla aldamótaárið 2000.


    Viðmælendur: Guðbrandur Árni Ísberg, Halldór Halldórsson, Rúnar Sigþórsson, Berglind Rós Magnúsdóttir, Eva Björk Eyþórsdóttir og ýmsir viðmælendur úr stundinni okkar 1980 og 2000.


    Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  8. Börnin á vistinni 2. þáttur - gamli skólinn minn

    39 Min.Staffel 5 · Folge 2

    Umsjónarmaður heimsækir sinn gamla skóla, Þelamerkurskóla í Hörgárdal, og spjallar við fólk sem dvaldi þar í heimavist á sjöunda og áttunda áratugnum. Sum þeirra ylja sér við ljúfar minningar en önnur líkja …

    Shownotes

    Umsjónarmaður heimsækir sinn gamla skóla, Þelamerkurskóla í Hörgárdal, og spjallar við fólk sem dvaldi þar í heimavist á sjöunda og áttunda áratugnum. Sum þeirra ylja sér við ljúfar minningar en önnur líkja vistinni við helvíti á jörð.


    Viðmælendur. Anna Rósa Friðriksdóttir, Anna Ragna Árnadóttir, Eydís Björk Davíðsdóttir og ónefnd systkini.


    Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  9. Börnin á vistinni 1. Þáttur - skólahald til sveita

    41 Min.Staffel 5 · Folge 1

    Það er flókið að tryggja öllum börnum í strjálbýlu landi sömu tækifæri til menntunar. Heimavistarskólar voru langþráð lausn og stolt hverrar sveitar þegar þeir loksins risu. Í þessum fyrsta þætti skoðum við …

    Shownotes

    Það er flókið að tryggja öllum börnum í strjálbýlu landi sömu tækifæri til menntunar. Heimavistarskólar voru langþráð lausn og stolt hverrar sveitar þegar þeir loksins risu. Í þessum fyrsta þætti skoðum við hvernig skólahald til sveita þróaðist á 20. öldinni og heyrum bæði af heimþrá og hamingju á heimavist.


    Viðmælendur: Rúnar Sigþórsson, Jónína Einarsdóttir, Þura Jónasdóttir, Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir og Líney Snjólaug Diðriksdóttir.


    Lesari: Ólöf Elsa Ásgrímsdóttir.


    Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  10. Bruninn í Skildi 3/3: Þögnin

    43 Min.Staffel 4 · Folge 3

    Það er gamlársdagur og grimmur raunveruleiki blasir við íbúum í Keflavíkurkauptúni. Eldurinn er slökknaður en leitað er í rústunum að fórnarlömbum brunans í Skildi. Þau finnast fljótt en ekki er hægt að bera …

    Shownotes

    Það er gamlársdagur og grimmur raunveruleiki blasir við íbúum í Keflavíkurkauptúni. Eldurinn er slökknaður en leitað er í rústunum að fórnarlömbum brunans í Skildi. Þau finnast fljótt en ekki er hægt að bera kennsl á alla. Á sjúkrahúsi liggja 13 þungt haldin.

    Harmi lostnir kveðja íbúar Keflavíkurhrepps hið liðna ár og heilsa hinu komandi með sorg og kvíða.


    Umsjón: Dagný Maggýjar

    Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  11. Bruninn í Skildi 2/3: Eldur laus

    42 Min.Staffel 4 · Folge 2

    Jólatréð stóð aðeins fyrir innan miðjan salinn í Skildi. Börnin gengu í kringum tréð og sungu á milli þess sem þau fóru til skiptis upp á svið til að þiggja þar veitingar. Salurinn var í hátíðarbúningi og …

    Shownotes

    Jólatréð stóð aðeins fyrir innan miðjan salinn í Skildi. Börnin gengu í kringum tréð og sungu á milli þess sem þau fóru til skiptis upp á svið til að þiggja þar veitingar. Salurinn var í hátíðarbúningi og litfilmur voru settar við ljós til að skapa stemningu. Klukkan var um hálf tíu, og gestir sungu Göngum við í kringum einiberjarunn, þegar skyndilega kviknaði í trénu.


    Umsjón: Dagný Maggýjar

    Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  12. Bruninn í Skildi 1/3: Fyrirboðar

    38 Min.Staffel 4 · Folge 1

    Það er 30. desember. Árið er 1935. Veðrið er kyrrt, snjóföl liggur yfir og hiti er rétt undir frostmarki. Að samkomuhúsinu Skildi í Keflavík streymir prúðbúinn hópur ungmenna á seinni jólaskemmtun dagsins.Lítil …

    Shownotes

    Það er 30. desember. Árið er 1935. 


    Veðrið er kyrrt, snjóföl liggur yfir og hiti er rétt undir frostmarki. Að samkomuhúsinu Skildi í Keflavík streymir prúðbúinn hópur ungmenna á seinni jólaskemmtun dagsins.

    Lítil hnáta skokkar við hlið bróður í nýrri kápu, systur með krullað hár leiðast og piltar í sparibuxum ærslast. Amma leiðir lítinn dreng sem er örlítið haltur. 

    Engan grunar hættuna framundan.



    Umsjón: Dagný Maggýjardóttir

    Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  13. Sprengjan sem sprakk - 4. þáttur

    42 Min.Staffel 3 · Folge 4

    Áföll geta mótað fólk fyrir lífstíð og því miður er það ekki fyrr en á síðustu árum sem það þykir eðlilegt að tala um hlutina. Fólkið á Ási og í Veturhúsum talaði aldrei um þá lífsreynslu sem það gekk í gegnum …

    Shownotes
    Áföll geta mótað fólk fyrir lífstíð og því miður er það ekki fyrr en á síðustu árum sem það þykir eðlilegt að tala um hlutina. Fólkið á Ási og í Veturhúsum talaði aldrei um þá lífsreynslu sem það gekk í gegnum á fimmta áratug síðustu aldar. Viðmælendur í þættinum eru: Baldur Davíðsson, Edda Emilsdóttir, Friðþór Eydal, Sigrún Sigurðardóttir og Sturla Pálsson.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  14. Sprengjan sem sprakk - 3. þáttur

    43 Min.Staffel 3 · Folge 3

    Í þessum þætti liggur förin upp á Eskifjarðarheiði og til fjölskyldunnar í Veturhúsum. Fjölskyldu sem vann hetjudáð á dimmri janúarnóttu 1942. Viðmælendur í þættinum eru: Edda Emilsdóttir, Friðþór Eydal, Sigrún …

    Shownotes

    Í þessum þætti liggur förin upp á Eskifjarðarheiði og til fjölskyldunnar í Veturhúsum. Fjölskyldu sem vann hetjudáð á dimmri janúarnóttu 1942.

    Viðmælendur í þættinum eru: Edda Emilsdóttir, Friðþór Eydal, Sigrún Sigurðardóttir og Sturla Pálsson.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  15. Sprengjan sem sprakk - 2. þáttur

    41 Min.Staffel 3 · Folge 2

    Íslenska ríkið skuldbatt sig til þess að greiða ekkjum sjómanna, sem létust á hafi úti af völdum stríðsátakanna, bætur. En hvað með bónda og börnin sem létust af völdum handvammar af hálfu breska hersins og …

    Shownotes
    Íslenska ríkið skuldbatt sig til þess að greiða ekkjum sjómanna, sem létust á hafi úti af völdum stríðsátakanna, bætur. En hvað með bónda og börnin sem létust af völdum handvammar af hálfu breska hersins og hvernig metum við mannslíf?

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  16. Sprengjan sem sprakk - 1. þáttur

    40 Min.Staffel 3 · Folge 1

    Sprengja sem sprakk á Ási í Fellum árið 1946 kostaði fjögur mannslíf. Talið er að sprengjan hafi verið skilin eftir af breska hernámsliðinu. Mikið var fjallað um atburðinn í fjölmiðlum í nokkrar vikur en svo …

    Shownotes
    Sprengja sem sprakk á Ási í Fellum árið 1946 kostaði fjögur mannslíf. Talið er að sprengjan hafi verið skilin eftir af breska hernámsliðinu. Mikið var fjallað um atburðinn í fjölmiðlum í nokkrar vikur en svo fjaraði umræðan út og um leið krafan um sprengjuleit þrátt fyrir að þess væru mörg dæmi að ósprungin skothylki fyndust í Norður-Múlasýslu síðan breski herinn var þar við skotæfingar.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  17. Elsta land í heimi - 3. þáttur

    56 Min.Staffel 2 · Folge 3

    Er ásókn Trump í Grænland það afdrifaríkasta sem komið hefur fyrir sjálfstæðisbaráttu Grænlendinga? Við reynum að skilja samhengi sjálfstæðisbaráttunnar, afnýlenduvæðingu og samband Hans Egede og Hafmóðurinnar …

    Shownotes

    Er ásókn Trump í Grænland það afdrifaríkasta sem komið hefur fyrir sjálfstæðisbaráttu Grænlendinga?


    Við reynum að skilja samhengi sjálfstæðisbaráttunnar, afnýlenduvæðingu og samband Hans Egede og Hafmóðurinnar.


    Viðmælendur í þættinum eru

    Guðmundur (Gujo) Þorsteinsson

    Inga Dóra Guðmundsdóttir Markussen

    Aka Hansen



    Lög sem spiluð voru í þættinum

    Sooq - Tarrak og Peand-eL

    Uummatip tusaataa - Uillut

    QILAAT - Varna

    ANAANA - Varna

    Imigassaq - Sumé

    Qullissat=Qullissat - Sumé


    Brot úr þættinum Um Grænland frá 1976


    Lestur úr bókinni A Kayak Full of Ghosts: Eskimo Tales eftir Lawrence Millman frá 1987

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  18. Elsta land í heimi - 2. þáttur

    56 Min.Staffel 2 · Folge 2

    Elsta berg á yfirborði jarðar er að finna á Grænlandi og bergið hefur mótandi áhrif á samfélagið sem á því er byggt. Jarðfræði Grænlands hefur áhrif á innviði, efnahag og lífsskilyrði í landinu og við ætlum að …

    Shownotes

    Elsta berg á yfirborði jarðar er að finna á Grænlandi og bergið hefur mótandi áhrif á samfélagið sem á því er byggt. 


    Jarðfræði Grænlands hefur áhrif á innviði, efnahag og lífsskilyrði í landinu og við ætlum að reyna að skilja þessi fyrirbæri betur. Við veltum fyrir okkur blokkunum, heilbrigðiskerfinu, tónlistinni, leikhúsinu og þögninni.


    Viðmælendur voru:

    Jón Viðar Sigurðsson

    Embla Kristjánsdóttir

    Mette Marie Jensen

    Glenn Møller

    Vivi Sørensen


    Lög sem notuð voru í þættinum:

    Uummatip tusaataa - Uillut

    Akimut Ikaarneq - Uillut

    Inuuneq Nunaaq - Uillut

    Kalaallit Nunaat, Kalaallit Pigaat - Kalaallit

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  19. Elsta land í heimi - 1. þáttur

    54 Min.Staffel 2 · Folge 1

    Í janúar hvíldu augu heimsbyggðarinnar á Grænlandi. Bandaríkjaforseti var með yfirlýsingar um að hann ætlaði sér að innlima Grænland inn í Bandaríkin. Um viku eftir að Trump lofaði að beita ekki hervaldi til …

    Shownotes

    Í janúar hvíldu augu heimsbyggðarinnar á Grænlandi. Bandaríkjaforseti var með yfirlýsingar um að hann ætlaði sér að innlima Grænland inn í Bandaríkin.


    Um viku eftir að Trump lofaði að beita ekki hervaldi til þess að taka Grænland fórum við til Nuuk til að ræða við fólkið sem situr eftir með spurningar eins og hvað gerðist? Hvers vegna? Og hvað tekur nú við fyrir Grænlensku þjóðina?


    Umsjónarmenn eru Pétur Magnússon og Lóa Björk Björnsdóttir


    Viðmælendur voru

    Inga Dóra Guðmundsdóttir

    Lis Lindenhann Jokumsen

    Bent Jokumsen

    Aka Hansen

    Martin Zink


    Lög sem voru notuð í þættinum

    Uummatip tusaataa - Uillut

    Aqqusernit - Nive Nielsen and the Deer Children

    Timmissat taartut - Nanook

    Tupilak - Tarrak

    Uummatima feat. Suspekt - Tarrak

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  20. Sölvadalur - 5. þáttur

    40 Min.Staffel 1 · Folge 5

    Bæir í Sölvadal í Eyjafirði voru aldrei tengdir rafmagni frá samveitunni. Í staðinn voru notaðar viðhaldsfrekar og ótryggar heimavirkjanir. En hvernig lítur framtíð dalsins út? Viðmælendur: Gyða Sjöfn …

    Shownotes

    Bæir í Sölvadal í Eyjafirði voru aldrei tengdir rafmagni frá samveitunni. Í staðinn voru notaðar viðhaldsfrekar og ótryggar heimavirkjanir. En hvernig lítur framtíð dalsins út?


    Viðmælendur: Gyða Sjöfn Njálsdóttir, Halldór Hauksson, Hrólfur Eiríksson, Jón Björn Hákonarson, Njáll Kristjánsson og Finnur Yngvi Kristinsson.


    Einnig eru flutt brot úr eldri viðtölum við Tryggva Emilsson og Lilju Karlsdóttur.


    Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  21. Sölvadalur - 4. þáttur

    38 Min.Staffel 1 · Folge 4

    Aftakaveður gekk yfir landið í byrjun desember 2019. Það hafði miklar afleiðingar og sérstaklega inni í Sölvadal. Miðvikudagskvöldið 11. desember barst útkall vegna slyss við Eyvindarstaðavirkjun …

    Shownotes

    Aftakaveður gekk yfir landið í byrjun desember 2019. Það hafði miklar afleiðingar og sérstaklega inni í Sölvadal. Miðvikudagskvöldið 11. desember barst útkall vegna slyss við Eyvindarstaðavirkjun. Björgunarsveitir víðsvegar að af landinu tóku þátt í leitinni, meðal annars félagar í hjálparsveitinni Dalbjörg í Eyjafirði.


    Viðmælendur: Gyða Sjöfn Njálsdóttir og Óskar Pétur Friðriksson.


    Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir.

    Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  22. Sölvadalur - 3. þáttur

    40 Min.Staffel 1 · Folge 3

    Við horfum enn til baka og fáum loks að vita hvaða menn á Akureyri keyptu á sínum tíma vatnsréttindin í Núpánni. En fyrst heyrum við í einu af síðustu börnunum sem ólust upp í Sölvadal.Viðmælendur: Gyða Sjöfn …

    Shownotes

    Við horfum enn til baka og fáum loks að vita hvaða menn á Akureyri keyptu á sínum tíma vatnsréttindin í Núpánni. En fyrst heyrum við í einu af síðustu börnunum sem ólust upp í Sölvadal.


    Viðmælendur: Gyða Sjöfn Njálsdóttir, Valgerður H. Bjarnadóttir og Njáll Kristjánsson. 


    Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir. 

    Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  23. Sölvadalur - 2. þáttur

    40 Min.Staffel 1 · Folge 2

    Tvær heimavirkjanir sáu bæjunum í Sölvadal fyrir rafmagni. Í lok júní 1995 urðu náttúruhamfarir sem höfðu mikil áhrif á líf fólksins í dalnum. Þjónustuleysi og lélegar samgöngur héldu áfram að einkenna …

    Shownotes

    Tvær heimavirkjanir sáu bæjunum í Sölvadal fyrir rafmagni. Í lok júní 1995 urðu náttúruhamfarir sem höfðu mikil áhrif á líf fólksins í dalnum. Þjónustuleysi og lélegar samgöngur héldu áfram að einkenna búsetuna.


    Viðmælendur: Egill Þórólfsson, Petrea Lára Hallmannsdóttir, Ingibjörg Eiríksdóttir, Hrólfur Eiríksson og Njáll Kristjánsson.


    Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir.

    Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  24. Sölvadalur - 1. þáttur

    42 Min.Staffel 1 · Folge 1

    Í Sölvadal í Eyjafirði hefur lengst verið búið á Eyvindarstöðum, Draflastöðum og Þormóðsstöðum. Við kynnumst nánar sögu dalsins og fólksins sem þar bjó. Hvernig kom það til að heimavirkjanir voru reistar í stað …

    Shownotes

    Í Sölvadal í Eyjafirði hefur lengst verið búið á Eyvindarstöðum, Draflastöðum og Þormóðsstöðum. Við kynnumst nánar sögu dalsins og fólksins sem þar bjó. Hvernig kom það til að heimavirkjanir voru reistar í stað þess að rafmagn frá samveitunni væri lagt í dalinn?


    Viðmælendur: Ingibjörg Eiríksdóttir, Hrólfur Eiríksson og Njáll Kristjánsson.


    Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir - Rás 1

    Tæknimaður: Úlfhildur Eysteinsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Ist das dein Podcast?

Bestätige es mit einem Eintrag in deinem Feed: Du bekommst hier einen Code, trägst ihn als podcast:txt in den Kanal deines Feeds ein, und wir prüfen ihn. Danach steht dein Podcast als „verifiziert“ bei SoundNode.

Einstellungen

Darstellung

Sprache

Bestimmt, welche Sender dir auf der Startseite zuerst gezeigt werden.

Verlauf

Zuletzt gehörte Sender und Folgen und deine letzten Suchen liegen nur in diesem Browser.

Hinweise

Ein kurzer Hinweis, wenn ein Podcast, dem du folgst, eine neue Folge hat. Einzelne Podcasts stellst du über die Glocke auf ihrer Seite ab.

Konto

Favoriten speichern – in der App und auf der Website.

Tastenkürzel

/
Suche öffnen
Leertaste
Abspielen oder anhalten
← →
Im Player: 15 s zurück, 30 s vor (Folgen) · im Regal: nächste Kachel
↑ ↓
Im Regal: Ziel innerhalb der Kachel
Pos1 / Ende
Im Regal: erste bzw. letzte Kachel
Esc
Fenster oder Menü schließen
?
Diese Übersicht
Läuft gerade

Zur Senderseite

Als Nächstes

    Folgen mit „Als Nächstes“ vormerken – sie laufen nach der aktuellen Folge.