
Söguskoðun
- Folgen
- 132
- Erscheint
- monatlich
- Letzte Folge
- 31. Okt. 2026
Über den Podcast
Andri Jónsson og Ólafur Hersir Arnaldsson ræða sögu og sagnfræðileg málefni á léttu nótunum.
Folgen 132
131 - Deild 731: Sýklavopnaþróun og læknisfræðitilraunir Japana í seinni heimsstyrjöld
Í tilefni Hrekkjavökunnar ræða Ólafur og Andri um Deild 731 sem var sýklavopnarannsóknarstöð Japanska hersins í Mansjúríu í seinni heimsstyrjöld. Þar voru framkvæmdar ógeðfeldar læknisfræðilegar tilraunir á …
Shownotes
Í tilefni Hrekkjavökunnar ræða Ólafur og Andri um Deild 731 sem var sýklavopnarannsóknarstöð Japanska hersins í Mansjúríu í seinni heimsstyrjöld. Þar voru framkvæmdar ógeðfeldar læknisfræðilegar tilraunir á föngum og þróuð sýkla- og efnavopn til notkunar í hernaði.
Sumar lýsingar í þættinum eru ekki fyrir viðkvæma.
Fórnarlömb tilrauna læknana í Deild 731 eru talin um þrjú þúsund manns, og þaðan komst enginn af lifandi.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
130 - Hollywood og upphaf kvikmyndaiðnaðarins
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um upphaf kvikmyndaiðnaðarins í Hollywood á fyrri helmingi 20. aldar.Kvikmyndaiðnaðurinn í Bandaríkjunum sem átti eftir að hafa gríðarleg áhrif á menningarsenu Vesturlanda …
Shownotes
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um upphaf kvikmyndaiðnaðarins í Hollywood á fyrri helmingi 20. aldar.
Kvikmyndaiðnaðurinn í Bandaríkjunum sem átti eftir að hafa gríðarleg áhrif á menningarsenu Vesturlanda á 20. öld hófst á Austurströndinni. Upp úr 1920 tók California við sem miðstöð iðnaðarins og Hollywood breyttist úr litlu sveitaþorpi í blómstrandi kvikmyndamiðstöð.
Fyrstu kvikmyndamógúlarnir voru utangarðsmenn sem sáu tækifæri í iðnaði sem ekki þótti í fyrstu nógu fínn fyrir yfirstéttina á Austurströndinni. Stúdíóin sem þeir byggðu upp á fyrri hluta 20. aldar í Hollywood eru flest ennþá til undir nöfnum sem flestir þekkja.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
129 - Sjálfstæðisbarátta Íslendinga og sjálfstæði Íslands
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um sjálfstæðisbaráttu Íslendinga sem var áratuglangt ferli þjóðríkismyndunar á Íslandi sem endaði með lýðveldisstofnuninni 1944.Sjálfstæðisbaráttan er eitt af stóru málunum …
Shownotes
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um sjálfstæðisbaráttu Íslendinga sem var áratuglangt ferli þjóðríkismyndunar á Íslandi sem endaði með lýðveldisstofnuninni 1944.
Sjálfstæðisbaráttan er eitt af stóru málunum í íslenskri sagnfræði og mikilvægur hluti af nútímasögu Íslands. Öldum saman voru Íslendingar tryggir þegnar danska konungsins en á fyrri helmingi 19. aldar breiddist íslensk þjóðernishyggja eins og eldur í sinu og pólitískt líf varð til í landinu.
Þjóðríkismyndun á Íslandi var langur ferill sem tók heila öld frá því fyrsta skrefið var tekið með stofnun Alþingis 1845 þar til sambandinu við Dani var endanlega rofið 1944, enda hélst hún hönd í hönd við vaxandi efnahagslegt og félagslegt sjálfstæði þjóðarinnar sem tók tíma að byggja upp.
Hin einstaklega friðsamlega og löglega sjálfstæðisbarátta Íslendinga var þáttur í uppbroti danska alríkisins, sem var á sama tíma að þróast úr fjölþjóðlegu samsettu konungsríki í hin ýmsu þjóðríki.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
128 - Suðurríkin, þrælahaldið og aðdragandi ameríska borgarastríðsins
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um andstæður norður- og suðurríkja Bandaríkjanna sem gerðu vart um sig þegar leið á 19. öldina þar til uppúr sauð og borgarastyrjöld braust út.Bandaríkin voru á 19. öld að …
Shownotes
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um andstæður norður- og suðurríkja Bandaríkjanna sem gerðu vart um sig þegar leið á 19. öldina þar til uppúr sauð og borgarastyrjöld braust út.
Bandaríkin voru á 19. öld að þróast úr sambandi ungra ríkja í stórveldi og á sama tíma jókst munurinn á samfélagi og efnahagslífi norðursins og suðursins. Í Suðurríkjunum varð mannaflsfrek bómullarframleiðsla undirstaða efnahagslífsins, á meðan iðnvæðing, innflutningur og fólksfjölgun einkenndu norðurríkin.
Þrælahaldið varð sífellt stærra deilumál innan Bandaríkjanna og ágreiningur stóð um hvort leyfa ætti það í nýjum fylkjum eftir því sem Bandaríkin þöndust út í villta vestrið. Mismunandi sýn norðursins og suðursins á frelsi og hlutverk alríkisins, ólík efnahagsmódel og menningarmunur leiddu loks til þess að suðurríkin klufu sig út úr sambandinu.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
127 - Rússneska borgarastyrjöldin: Hverjir voru hvítliðar?
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um rússnesku borgarastyrjöldina sem skók Rússland árin 1917–1922 eftir byltingu bolsévika, og skoða sérstaklega þann hóp sem lét í minni pokann í styrjöldinni, þ.e …
Shownotes
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um rússnesku borgarastyrjöldina sem skók Rússland árin 1917–1922 eftir byltingu bolsévika, og skoða sérstaklega þann hóp sem lét í minni pokann í styrjöldinni, þ.e. hvítliða.
Hvítliðar voru ósamstæður hópur keisarasinna, lýðveldissinna, sósíalista og þjóðernishópa sem áttu fátt sameiginlegt annað en að vilja koma bolsévikum frá völdum eftir byltinguna í október 1917. Herir hvítliða voru dreifðir á jaðrinum í kringum kjarnasvæði Rússlands og lutu lauslega yfirstjórn Kolchacks aðmíráls sem stjórnaði her hvítliða í Síberíu. Þjóðernishópar risu upp hvarvetna í hinu uppflosnaða keisaradæmi og börðust fyrir sjálfstæði sínu, og Vesturveldin og Japanir sendu hermenn og hergögn til að styðja við hvítliða og verja egin hagsmuni.
Á meðal hvítliða komu einnig við sögu minni stríðsherrar og bandítar. Sérkennilegastur þeirra var baróninn Roman von Ungern-Sternberg sem færði borgarastyrjöldina út fyrir landamæri Rússlands með einkaleiðangri sínum til að frelsa Mongóla undan Kínverjum og koma á laggirnar Mið-Asísku stórveldi sem sem myndi kollvarpa bæði bolsévisma og frjálslyndi.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
126 - Hannibal, Karþagó og Púnverjastríðin
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um púnversku stríðin milli Rómar og Karþagó, með sérstaka áherslu á annað púnverska stríðið (218–201 f.Kr.) og leiðtoga Karþagómanna, Hannibal Barca.Hannibal er einn …
Shownotes
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um púnversku stríðin milli Rómar og Karþagó, með sérstaka áherslu á annað púnverska stríðið (218–201 f.Kr.) og leiðtoga Karþagómanna, Hannibal Barca.
Hannibal er einn þekktasti herforingi fornaldarinnar og varð ódauðlegur í minni Rómverja fyrir herför sína frá Spáni til Ítalíu. Hann fór yfir Alpana með stríðsfíla og fjölmennan innrásarher og vann hvern stórsigurinn á fætur öðrum gegn Rómverjum á Ítalíu. Þrátt fyrir hernaðarsnilli sína og glæsilega sigra tókst honum þó aldrei að hertaka Róm. Að lokum færðu Rómverjar stríðið til Afríku og sigruðu Karþagómenn.
Púnversku stríðin þrjú voru átök tveggja stórvelda sitt hvorum megin við Miðjarðarhafið um yfirráð á svæðinu. Eftir endanlegan sigur Rómverja árið 146 f.Kr., þegar Karþagó var lögð í eyði, stóð ekkert annað veldi jafnfætis Róm. Hefði Hannibal tekist að hertaka borgina má færa sterk rök fyrir því að saga Miðjarðarhafsheimsins hefði orðið allt önnur.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
125 - Hugmyndin um réttlátt stríð
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um hugmyndina um réttlátt stríð, sem er í dag einn af hornsteinum alþjóðakerfisins en á sér heimspekilegar rætur allt aftur til fornaldar.Frá Aristótelesi til Ágústínusar …
Shownotes
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um hugmyndina um réttlátt stríð, sem er í dag einn af hornsteinum alþjóðakerfisins en á sér heimspekilegar rætur allt aftur til fornaldar.
Frá Aristótelesi til Ágústínusar veltu spekingar fyrir sér hvenær réttlætanlegt væri að hefja stríð og hvernig ætti að haga sér í stríði. Þær hugmyndir sem mótuðust í fornöld og á miðöldum innan vestrænnar heimspeki þróuðust síðar í nútímalegar hugmyndir um mannréttindi og stríðslög, og um það hvenær stríð teljast lögleg eða ólögleg.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
124 - Ríki, vald og realismi: Hvernig haga ríki sér?
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um raunsæisstefnuna í alþjóðastjórnmálafræði sem greiningartæki til að skilja sögulega hegðun ríkja.Ólafur las bókina How States Think: The Rationality of Foreign Policy …
Shownotes
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um raunsæisstefnuna í alþjóðastjórnmálafræði sem greiningartæki til að skilja sögulega hegðun ríkja.
Ólafur las bókina How States Think: The Rationality of Foreign Policy eftir John Mearsheimer og Sebastian Rosato og segir frá nálgun þeirra við að skilja ákvarðanatöku ríkja með gleraugum raunsæisstefnunnar.
Mearsheimer hefur verið mikið í umræðunni vegna þeirra miklu sögulegu breytinga í heimsmálunum sem nú hafa verið að ganga í garð, en raunsæið er ásamt frjálslyndisstefnunni annar helsti skóli alþjóðastjórnmálafræði á 20. öld og heimspekilegur grunnur hennar nær aftur til fornaldar.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
123 - Skálholt: Hinn forni höfuðstaður Íslands
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um biskupssetrið Skálholt sem var um sjö aldir einn helsti höfuðstaður landsins.Biskupsstóllinn í Skálholti var stofnaður árið 1056, skömmu eftir kristnitökuna á Íslandi …
Shownotes
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um biskupssetrið Skálholt sem var um sjö aldir einn helsti höfuðstaður landsins.
Biskupsstóllinn í Skálholti var stofnaður árið 1056, skömmu eftir kristnitökuna á Íslandi. Skálholt varð miðstöð kirkjulegs valds og þróaðist jafnframt í auðugt stórbýli sem safnaði miklum eignum og varð eitt helsta mennta- og lærdómssetur landsins. Á blómaskeiði Skálholts á 13. öld bjuggu þar tugir manna og má segja að þar hafi verið vísir að þéttbýli.
Undir lok 18. aldar færðist stjórnsýsla og áhrifavald í vaxandi mæli til Reykjavíkur, og árið 1801 voru biskupsstólarnir í Skálholti og á Hólum lagðir niður. Þá mátti hinn forni höfuðstaður muna fífil sinn fegurri.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
122 - Danmörk-Noregur: Staða Noregs í Aldinborgararíkinu
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um stöðu Noregs í danska konungsríkinu fyrir 1814.Danska konungsríkið, sem Ísland var hluti af, var fjölþjóðlegt og samsett konungsríki. Ríkið var stóð saman af Danmörku …
Shownotes
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um stöðu Noregs í danska konungsríkinu fyrir 1814.
Danska konungsríkið, sem Ísland var hluti af, var fjölþjóðlegt og samsett konungsríki. Ríkið var stóð saman af Danmörku - með nýlendum sínum, Noregi - ásamt hjálendunum Íslandi, Grænlandi og Færeyjum, og hertogadæmunum Slésvík og Holtsetalandi.
Noregur og Danmörk gengu í eina sæng á miðöldum og frá 1537 var Noregi stjórnað beint frá Kaupmannahöfn. Með Kílarsamningnum 1814 var Noregur svo færður frá Danmörku til Svíþjóðar frekar skyndilega eftir ósigur Dana í Napóleonsstyrjöldunum.
Þrátt fyrir oft hvassa orðræðu norskra þjóðernissinna um "nóttina löngu" 1537-1814 var samband Dana og Norðmanna mjög náið. Ólíkt hjálendunum og nýlendunum var Noregur miðlægur hluti danska Aldinborgarríkisins, enda var samruni fornu konungsríkjanna tveggja langt kominn þegar skilnaðurinn átti sér stað 1814.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
121 - Um uppruna bandarísku þjóðarinnar
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um uppruna bandarísku þjóðarinnar sem fyrst og fremst varð til upp úr landnámi breskra landema á 17. og 18. öld. Ólafur las bókina Albion's Seed: Four British Folkways …
Shownotes
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um uppruna bandarísku þjóðarinnar sem fyrst og fremst varð til upp úr landnámi breskra landema á 17. og 18. öld.
Ólafur las bókina Albion's Seed: Four British Folkways in America eftir David Hackett Fischer og segir frá fjórum grunnstraumum landnema frá Bretlandseyjum til Nýja Englands, Pensylvaníu, Virginíu og Suðurríkjanna þriggja (Karólínunum og Georgíu). Þessir ólíku samfélagshópar mótuðu kjarnann í bandarísku samfélagi og má sjá spor þeirra í menningarsögu Bandaríkjanna allt fam á okkar daga.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
120 - Jólaþáttur 2025 - Þorlákur helgi á Þorláksmessu
Í dag er Þorláksmessa að vetri, 23. desember - síðasti dagur jólaföstu og aðventu. Í tilefni þess ræða Söguskoðunarbræður um Þorlák helga Þórhallsson (1033-1093), Skálholtsbiskup og verndardýrðling Íslands í …
Shownotes
Í dag er Þorláksmessa að vetri, 23. desember - síðasti dagur jólaföstu og aðventu. Í tilefni þess ræða Söguskoðunarbræður um Þorlák helga Þórhallsson (1033-1093), Skálholtsbiskup og verndardýrðling Íslands í kaþólsku kirkjunni - sem dagurinn er kenndur við.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
119 - Konungsríkið Jerúsalem og krossfararíkin í austri
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um krossafararíkin sem komið var á fót í Austurlöndum Nær í kjölfar fyrstu krossfararinnar 1095-1099. Konungsríkið Jerúsalem var stærst og mikilvægast krossfararíkjanna …
Shownotes
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um krossafararíkin sem komið var á fót í Austurlöndum Nær í kjölfar fyrstu krossfararinnar 1095-1099.
Konungsríkið Jerúsalem var stærst og mikilvægast krossfararíkjanna, enda var höfuðborg þess borgin helga. Í konungsríkinu lifðu múslimar og ýmsir kristnir trúarhópar, gyðingar, armenar, arabar og ítalskir kaupmenn, undir innfluttu lénskerfi frönsku- og latínumælandi Franka. Viðskipti milli Evrópu og Asíu blómstruðu og ríkið varð fastur hluti af heimsmynd Mið-Austurlanda.
En sem hluti af heilögu stríði var tilvist krossfararíkjanna háð sundrungu múslima. Eftir að múslimar sameinuðustu á 12. öld, síðast undir stjórn Saladíns, féll Jerúsalem með dramatískum hætti árið 1187 og konungsríkið þurrkaðist út. Síðustu leifar krossfararíkjanna féllu eftir þegar Mamelúkar tóku Acre 1291.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
118 - Þýska riddarareglan og krossferðirnar í norðri
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um Þýsku riddararegluna, einnig þekkt sem Tevtónska reglan eða Maríuriddarar, sem kom á fót þýsku landnema- og krossfararíki við Eystrasaltið á 13. öld. Þýska riddarareglan …
Shownotes
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um Þýsku riddararegluna, einnig þekkt sem Tevtónska reglan eða Maríuriddarar, sem kom á fót þýsku landnema- og krossfararíki við Eystrasaltið á 13. öld.
Þýska riddarareglan var stríðsmunkahreyfing, stofnuð í Palestínu eftir þriðju krossferðina um 1190. Hlutverk reglunnar var að hjúkra sjúkum krossförum og pílagrímum og berjast með krossförum í heilögu löndunum.
Með dvínandi árangri í Palestínu færðu þýsku riddararnir sig heim til Þýskalands og leiddu krossferðirnar í norðri, þ.e. stríð gegn heiðnum þjóðum við Eystrasaltið, kristniboð og landnám. Riddararnir stofnuðu regluríki sitt í Prússlandi og Líflandi, og á hápunkti veldis reglunnar réði hún yfir öllu því svæði sem í dag er Norður-Pólland og Eystrasaltsríkin.
Ríki reglunnar leið undir lok á 16. öld, en lönd þess urðu kjarninn í því sem síðar varð Prússland.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
117 - Hellenisminn og arftakar Alexanders
Í þættinum í dag halda Söguskoðunarmenn aftur til fornaldar til að ræða um hellenimsann sem var tímabilið í sögu Grikklands og Mið-Austurlanda eftir dauða Alexanders mikla og fram að öld Rómaveldis.Þegar …
Shownotes
Í þættinum í dag halda Söguskoðunarmenn aftur til fornaldar til að ræða um hellenimsann sem var tímabilið í sögu Grikklands og Mið-Austurlanda eftir dauða Alexanders mikla og fram að öld Rómaveldis.
Þegar Alexander lést árið 323 f.kr. eftirlét hann engan erfingja sem gat tekið við hinu gríðarstóra víðfeðma ríki sem hann hafði lagt undir sig frá Balkanskaga til Indlands. Ríkið skiptist upp í smærri einingar þar sem arftakar Alexanders stofnuðu grísk konungsríki, m.a. á svæðinu sem í dag er Afganistan.
Undir hellenismanum varð grísk tunga ráðandi í Ptólemíska ríkinu í Egyptalandi og Selevkídaríkinu í Austurlöndum nær, og austræn menning rann saman við gríska menningu í listum, arkítektúr, trúarbrögðum, vísindum og fræðum. Hellenimsinn er formlega talinn enda árið 30. f.kr. með Kleópötru í Egyptalandi, þegar síðasta gríska arftakaríkið rann inn í Rómaveldi.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
116 - Um sósíalísku Júgóslavíu 1943-1992
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um Júgóslavíu eftir seinni heimsstyrjöld og fram að falli kommúnismans.Þátturinn er sjálfstætt framhald af þætti 89 - Um Júgóslavíu 1918-1941.Skæruliðar kommúnista undir …
Shownotes
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um Júgóslavíu eftir seinni heimsstyrjöld og fram að falli kommúnismans.
Þátturinn er sjálfstætt framhald af þætti 89 - Um Júgóslavíu 1918-1941.
Skæruliðar kommúnista undir stjórn landsföðurins Josip Broz Tito sameinuðu þjóðarbrot Júgóslavíu eftir miklar blóðsúthellingar seinni heimsstyrjaldar og endurreistu fjölþjóðlega ríkið á nýjum grunni.
Sósíalíska Júgóslavía var öðruvísi en hin kommúnistaríkin í Austur-Evrópu. Eftir klofninginn við Stalín 1948 fór Tító egin leiðir og mótaði sérstakan júgóslavneskan sósíalisma. Júgóslavía stóð einnig utan hernaðarbandalaga og tróð milliveginn á milli Vesturveldanna og Sovétríkjanna í kalda stríðinu.
En undir niðri kraumuðu þjóðernisdeilur og andstæður, og eftir efnahagshamfarir 9. áratugarins og fall kommúnismans í Austur-Evrópu lá leið Júgóslavíu til borgarastyrjaldar.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
115 - Kalda stríðið og þriðja heimsstyrjöldin II. hluti
Í þættinum í dag komu Ólafur og Andri saman til að ræða um þriðju heimsstyrjöldina sem sögulegt fyrirbæri, þ.e. stríðið sem aldrei varð á milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna á síðari hluta síðustu aldar. Kalda …
Shownotes
Í þættinum í dag komu Ólafur og Andri saman til að ræða um þriðju heimsstyrjöldina sem sögulegt fyrirbæri, þ.e. stríðið sem aldrei varð á milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna á síðari hluta síðustu aldar.
Kalda stríðið var hugmyndafræðileg barátta tveggja ofurvelda sem skiptu heiminum á milli sín eftir endalok seinni heimsstyrjaldar. Í hálfa öld stóðu vígvélar NATO og Varsjárbandalagsins andspænis hverri annarri sitt hvoru megin við járntjaldið og lögðu á ráðin.
Í þessum tvöfalda þætti ræða Söguskoðunarmenn um kalda stríðið og undirbúninginn fyrir þriðju heimsstyrjöldina sem kom sem betur fer ekki.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
114 - Kalda stríðið og þriðja heimsstyrjöldin I. hluti
Í þættinum í dag komu Ólafur og Andri saman til að ræða um þriðju heimsstyrjöldina sem sögulegt fyrirbæri, þ.e. stríðið sem aldrei varð á milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna á síðari hluta síðustu aldar. Kalda …
Shownotes
Í þættinum í dag komu Ólafur og Andri saman til að ræða um þriðju heimsstyrjöldina sem sögulegt fyrirbæri, þ.e. stríðið sem aldrei varð á milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna á síðari hluta síðustu aldar.
Kalda stríðið var hugmyndafræðileg barátta tveggja ofurvelda sem skiptu heiminum á milli sín eftir endalok seinni heimsstyrjaldar. Í hálfa öld stóðu vígvélar NATO og Varsjárbandalagsins andspænis hverri annarri sitt hvoru megin við járntjaldið og lögðu á ráðin.
Í þessum tvöfalda þætti ræða Söguskoðunarmenn um kalda stríðið og undirbúninginn fyrir þriðju heimsstyrjöldina sem kom sem betur fer ekki.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
113 - Íslam og arftakar Múhameðs: Hinar ýmsu greinar íslams
Í þættinum í dag fjalla Ólafur og Andri um íslam og hinar ýmsu hreyfingar og trúfélög innan íslamstrúar. Íslam er næstfjölmennustu trúarbrögð heims með yfir tvo milljarða fylgjendur. Eftir landvinninga og …
Shownotes
Í þættinum í dag fjalla Ólafur og Andri um íslam og hinar ýmsu hreyfingar og trúfélög innan íslamstrúar.
Íslam er næstfjölmennustu trúarbrögð heims með yfir tvo milljarða fylgjendur. Eftir landvinninga og trúboð Múhameðs spámanns á 7. öld og útþennslu kalífadæmisins klofnaði hreyfingin fljótt í tvær höfuðgreinar, súnní og sjía íslam. Síðan þá hafa margar hreyfingar og hópar komið fram, eins og drúsar, alavítar, súfistar, alevistar, wahabistar, og svo mætti áfram telja.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
112 - Hundadagabyltingin 1809
Í þætinum í dag ræða Andri og Ólafur um einn óvenjulegasta atburð Íslandssögunnar, þegar Jörgen Jörgensen (Jörundur Hundadagakonungur) rændi völdum á Íslandi sumarið 1809 og lýsti yfir ótímabæru sjálfstæði …
Shownotes
Í þætinum í dag ræða Andri og Ólafur um einn óvenjulegasta atburð Íslandssögunnar, þegar Jörgen Jörgensen (Jörundur Hundadagakonungur) rændi völdum á Íslandi sumarið 1809 og lýsti yfir ótímabæru sjálfstæði Íslands.
Sagan hefur verið innblástur skálda og höfunda, og hefur einnig verið mikið um hana fjallað á hinu fræðilega sviði. Jörundur kom með enskum kaupmönnum í miðri Napóleonsstyrjöld sem vildu koma á verslun við Íslendinga. Vegna tregðu danska stiftamtansins til að veita verslunarleyfi fór svo að Jörgensen tók sér vald "Alls Íslands Verndara, og Hæstráðanda til Sjós og Lands" þar til Íslendingar myndu stofna sjálfstætt lýðveldi "laust og liðugt frá Danmerkur ríkisráðum".
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
111 - Íran-Írak stríðið
Í framhaldi af síðasta þætti um írönsku byltinguna ræða Andri og Ólafur í dag eitt af mannskæðustu stríðum 20. aldarinnar – stríðið milli Írans og Íraks 1980–1988.Saddam Hussein hóf forsetatíð sína í Írak með …
Shownotes
Í framhaldi af síðasta þætti um írönsku byltinguna ræða Andri og Ólafur í dag eitt af mannskæðustu stríðum 20. aldarinnar – stríðið milli Írans og Íraks 1980–1988.
Saddam Hussein hóf forsetatíð sína í Írak með því að ráðast inn í Íran haustið 1980 í kjölfar írönsku byltingarinnar og þeirrar upplausnar sem þá ríkti í landinu. Stríðið stóð í átta ár og kostaði hundruð þúsunda mannslífa. Það var háð sem hefðbundið innrásarstríð með stórútgerðum í lofti, á láði og legi, þar sem vopn frá báðum hliðum járntjaldsins flæddu inn á vígvöllinn. Með tímanum harðnaði hernaðurinn, og meðal annars var beitt efnavopnum, barnahermenn sendir í fremstu víglínu og möguleg kjarnavopn komu við sögu.
Þótt Saddam næði engum varanlegum landvinningum og landamæri ríkjanna héldust óbreytt hafði stríðið djúp áhrif. Það styrkti íranska byltingarríkið og festi stjórn Khomeini í sessi og Saddam kom fram sem stríðsherra sem veigraði sér ekki við að beita gjöreyðingarvopnum, og það hafði afleiðingar sem við þekkjum vel í nýlegri fortíð.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
110 - Íranska byltingin 1979
Í hlaðvarpinu í dag ræða Ólafur og Andri um írönsku byltinguna árið 1979, þegar síðasti keisari Írans (sha) var steypt af stóli og stofnað var róttækt íslamskt lýðveldi undir klerkastjórn.Íranska byltingin var …
Shownotes
Í hlaðvarpinu í dag ræða Ólafur og Andri um írönsku byltinguna árið 1979, þegar síðasti keisari Írans (sha) var steypt af stóli og stofnað var róttækt íslamskt lýðveldi undir klerkastjórn.
Íranska byltingin var afdrifaríkur atburður í nútímasögu Mið-Austurlanda. Ekki aðeins varð byltingin til þess að 2500 ára gömul stofnun íranska keisarans leið undir lok, heldur breyttist Íran á skömmum tíma úr einum helsta bandamanni Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum, í miðju Kalda stríðinu, yfir í mesta andstæðing Bandaríkjanna og vestrænnar heimsvaldastefnu á svæðinu. Byltingin sýndi einnig að pólitískt íslam og íslamismi breyddist um svæðið og hefur heldur betur sett svip sinn á Mið-Austurlönd síðustu áratugi.
Keisarastjórn Mohammad Reza Pahlavi, frá því einræði hans var komið á eftir valdarán stutt af Vesturveldunum árið 1953, varð þekkt fyrir pólitíska kúgun og persónudýrkun, en einnig mikla tækni- menningarbyltingu í krafti gríðarlegs olíuauðs. Byltingin var sannkölluð fjöldahreyfing, ein sú vinsælasta í sögunni, en byltingarríkið undir stjórn Ayatollah Khomeini var einnig harðvíðtug harðstjórn.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
109 - Danmörk og Svíþjóð og baráttan um Norðurlönd
Í þættinum í dag fjalla Andri og Ólafur um langvarandi og blóðuga togstreitu Danmerkur og Svíþjóðar um yfirráð í Skandinavíu og við Eystrasalt, frá endalokum Kalmarsambandsins til Napóleonsstyrjaldanna.Stundum …
Shownotes
Í þættinum í dag fjalla Andri og Ólafur um langvarandi og blóðuga togstreitu Danmerkur og Svíþjóðar um yfirráð í Skandinavíu og við Eystrasalt, frá endalokum Kalmarsambandsins til Napóleonsstyrjaldanna.
Stundum er sagt að fá ríki hafi háð jafn margar styrjaldir sín á milli og Danmörk og Svíþjóð. Á tímabilinu 1500–1800 háðu þau að minnsta kosti tíu stríð, með misjöfnum árangri, auk þess sem þau tóku þátt í þrjátíu ára stríðinu og stóðu andspænis öðrum rísandi stórveldum Evrópu. Danmörk var lengi valdamesta ríki Norðurlanda, en á 17. öld reis Svíþjóð til metorða og varð stórveldi við Eystrasaltið.
Á 19. öld höfðu bæði Danmörk og Svíþjóð misst fyrri stöðu og þróuðust í smærri þjóðríki, undir áhrifum og þrýstingi stærri ríkja á borð við Rússland, Þýskaland, Bretland og Frakkland.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
108 - Páfinn: Um biskupinn í Róm frá Pétri postula til nútímans
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarbræður sögu páfadæmisins, þessa fornu stofnunar sem hefur gegnt lykilhlutverki í kristinni trú og evrópskri sögu öldum saman. Mögulega er páfadómurinn eitt elsta embætti sem …
Shownotes
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarbræður sögu páfadæmisins, þessa fornu stofnunar sem hefur gegnt lykilhlutverki í kristinni trú og evrópskri sögu öldum saman.
Mögulega er páfadómurinn eitt elsta embætti sem enn er mannað í okkar heimshluta, og varla fór framhja neinum þegar nýr páfi var kjörinn nú fyrir skömmu. Í þessum þætti ræða Ólafur og Andri um þróun og sögu páfans, löggildingu hans sem arftaki Péturs postula, deilur hans við konunga og keisara á miðöldum, klofninginn við austurkirkjuna, siðaskiptin og fleira og fleira.
Er hinn heilagi faðir í Róm arftaki Krists á jörðu, eða er hann afurð veraldlegra og pólitískra hreyfinga eftir fall Rómarveldis?
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
107 - "Ástandið": Sambönd íslenskra kvenna við hermenn í seinni heimsstyrjöld og viðbrögð yfirvalda
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um hið svonefnda "ástand" á Íslandi í seinni heimsstyrjöld: Ástarsambönd íslenskra kvenna og breskra og bandarískra hermanna, og afskipti íslenskra yfirvalda af …
Shownotes
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um hið svonefnda "ástand" á Íslandi í seinni heimsstyrjöld: Ástarsambönd íslenskra kvenna og breskra og bandarískra hermanna, og afskipti íslenskra yfirvalda af því.
Hernámið hafði gríðarlegar samfélagslegar breytingar í för með sér fyrir Ísland. Með komu hernámsliðsins 1940-1941 streymdu tugir þúsunda hermanna til landsins og þegar mest lét var fjöldi setuliðsmanna á Íslandi nær helmingur íbúafjöldans. Sambönd íslenskra kvenna og setuliðsmanna ollu siðferðilegri skjálftaöldu hjá elítunni, og ríkisvaldið brást við af hörku. Fylgst var með ungum konum, haldið var skrá yfir sambönd þeirra og gripið til harðra aðgerða samkvæmt sérstökum lögum sem sett voru.
Mikið hefur verið fjallað um "ástandið" á síðastliðnum áratugum í íslenskri sagnfræði, ekki síst í tengslum við sögulegt réttlæti, og þá sérlega hin síðustu ár eftir að skjöl urðu aðgengileg sem varpa ljósi á mögulega einar umfangsmestu njósnir íslenskra yfirvalda um einkalíf borgaranna fyrr og síðar.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
106 - Um samúræja og sjóguna í Japan
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn um samúræjana – stríðsmenn gamla Japans og táknmyndir japanskrar menningar. Samúræjarnir voru kjarninn í japönsku lénsskipulagi og áttu gullöld sína á Tokugawa tímabilinu …
Shownotes
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn um samúræjana – stríðsmenn gamla Japans og táknmyndir japanskrar menningar.
Samúræjarnir voru kjarninn í japönsku lénsskipulagi og áttu gullöld sína á Tokugawa tímabilinu (1600–1868), þegar Japan var sameinað undir sterku miðstjórnarvaldi sjógúnanna. Þetta tímabil einkenndist af friði, einangrunarstefnu og blómaskeiði í menningu, listum og heimspeki.
Samúræjarnir voru hermenn, aðalsmenn og embættismenn og gegndu lykilhlutverki í samfélagi þar sem heiður, hollusta og agi réðu ríkjum. Riddaralegur lífstíll og siðir samúræjanna byggði á bushidō, „leið stríðsmannsins“, og hafa þessir japönsku riddarar verið táknmynd hins forna Japans sem leið undir lok á 19. öld.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.105 - Ítalía í seinni heimsstyrjöld og stórveldisbrölt Mussolinis II. hluti
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn um stórveldisdrauma ítalska einræðisherrans Benito Mussolini og misheppnaðar tilraunir Ítalíu til að verða stórveldi á árunum 1923-1943.Eftir fyrri heimsstyrjöld fannst …
Shownotes
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn um stórveldisdrauma ítalska einræðisherrans Benito Mussolini og misheppnaðar tilraunir Ítalíu til að verða stórveldi á árunum 1923-1943.
Eftir fyrri heimsstyrjöld fannst Ítölum þeir hafa verið sviknir um verðskuldað herfang – Vittoria Mutilata eða „limlestur sigur“ var Versalafriðurinn kallaður. Þetta átti eftir að móta utanríkisstefnu Mussolinis, sem sóttist eftir því að gera Ítalíu að heimsveldi á ný, eða endurreisa Rómarveldi, eins og sagt er. Hann stefndi á eigin landvinninga í Afríku og á Balkanskaga og gekk til liðs við Hitler og Öxulveldin í aðdraganda ófriðarins mikla.
Í seinni heimsstyrjöld stóð ítalski herinn frammi fyrir miklum erfiðleikum. Skortur á skipulagi, úrelt vopnabúnaður og óraunhæfar hernaðaráætlanir ollu því að ítölsk hernaðarframmistaða var hörmuleg. Frá innrásinni í Grikkland til ósigranna í Norður-Afríku og fall Ítalíu árið 1943, var herinn stöðugt háður stuðningi Þjóðverja.
Í þessum seinni hluta ræða Ólafur og Andri Ítalíu í seinni heimsstyrjöld, gang stríðsins, bandalagið við Þjóðverja og fall Mussolinis 1943/1945.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
104 - Ítalía í seinni heimsstyrjöld og stórveldisbrölt Mussolinis I. hluti
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn um stórveldisdrauma ítalska einræðisherrans Benito Mussolini og misheppnaðar tilraunir Ítalíu til að verða stórveldi á árunum 1923-1943.Eftir fyrri heimsstyrjöld fannst …
Shownotes
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn um stórveldisdrauma ítalska einræðisherrans Benito Mussolini og misheppnaðar tilraunir Ítalíu til að verða stórveldi á árunum 1923-1943.
Eftir fyrri heimsstyrjöld fannst Ítölum þeir hafa verið sviknir um verðskuldað herfang – Vittoria Mutilata eða „limlestur sigur“ var Versalafriðurinn kallaður. Þetta átti eftir að móta utanríkisstefnu Mussolinis, sem sóttist eftir því að gera Ítalíu að heimsveldi á ný, eða endurreisa Rómarveldi, eins og sagt er. Hann stefndi á eigin landvinninga í Afríku og á Balkanskaga og gekk til liðs við Hitler og Öxulveldin í aðdraganda ófriðarins mikla.
Í seinni heimsstyrjöld stóð ítalski herinn frammi fyrir miklum erfiðleikum. Skortur á skipulagi, úrelt vopnabúnaður og óraunhæfar hernaðaráætlanir ollu því að ítölsk hernaðarframmistaða var hörmuleg. Frá innrásinni í Grikkland til ósigranna í Norður-Afríku og fall Ítalíu árið 1943, var herinn stöðugt háður stuðningi Þjóðverja.
Í þessum fyrri hluta ræða Ólafur og Andri Ítalíu á millistríðsárunum í aðdraganda seinni heimsstyrjaldar.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
103 - Markús Árelíus: Heimspekikóngurinn og síðasti gullaldarkeisari Rómar
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn um Markús Árelíus, keisara og heimspeking, sem stundum er kallaður síðasti gullaldarkeisari Rómaveldis. Stjórn hans markaði lok tímabils friðar og stöðugleika í ríkinu, en …
Shownotes
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn um Markús Árelíus, keisara og heimspeking, sem stundum er kallaður síðasti gullaldarkeisari Rómaveldis. Stjórn hans markaði lok tímabils friðar og stöðugleika í ríkinu, en einnig upphaf hnignunar.
Markús Árelíus var ekki aðeins valdamikill keisari heldur einnig hugsuður í anda stóuspekinnar. Í riti sínu, Hugleiðingar, sem ekki var ætlað til birtingar, speglar hann eigin siðferðisviðhorf, ábyrgð sína sem stjórnanda og viðleitni til að lifa í samræmi við náttúrulega reglu heimsins. Þrátt fyrir heimspekilega rósemi þurfti hann að leiða Rómarveldi í gegnum stríð við Parþa og Germani, og mikla drepsótt sem loks varð hans bani.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
102 - Íslenska skattlandið: Gamli sáttmáli, Noregsveldið og upphaf konungsvalds á Íslandi
Í þættinum í dag skoða Söguskoðunarmenn innreið konungsvalds og upphaf íslenzka skattlandsins þegar íslenskir höfðingjar gengu Noregskonungi á hönd á 13. öld.Konungsvald á Íslandi hefur alltaf verið …
Shownotes
Í þættinum í dag skoða Söguskoðunarmenn innreið konungsvalds og upphaf íslenzka skattlandsins þegar íslenskir höfðingjar gengu Noregskonungi á hönd á 13. öld.
Konungsvald á Íslandi hefur alltaf verið fyrirferðarmikið atriði í íslenskri sögu, enda er sá tími mjög svo tengdur sjálfsmynd þjóðarinnar, afnámi þjóðveldisins og svo stofnun þjóðríkisins. Þegar Ísland varð hluti af norska konungsríkinu áttu erlendir konungar eftir að ríkja á Íslandi fram til ársins 1944.
Í kjölfar ófriðarins á Íslandi samþykktu íslenskir höfðingjar að gerast þegnar konungs með Gamla sáttmála 1262-1264. En norska miðaldakonungsveldið var í mikilli sókn á 13. öldinni og náði einnig til annarra skattlanda. Grænland, Færeyjar, Orkneyjar, Hjaltland og fleiri jaðarsvæði í hinum Vest-Norræna menningarheimi gengu einnig undir - eða kannki væri réttara að segja, tóku upp - norskt konungsvald.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | [email protected]
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.Kapitel
Kapitel werden geladen …
Hier stehen die neuesten 40 von 132 Folgen. Ältere Folgen findest du im Feed des Podcasts.
Ähnliche Podcasts
Mehr Freizeit-PodcastsIst das dein Podcast?
Bestätige es mit einem Eintrag in deinem Feed: Du bekommst hier einen Code, trägst ihn als podcast:txt in den Kanal deines Feeds ein, und wir prüfen ihn. Danach steht dein Podcast als „verifiziert“ bei SoundNode.






