Zum Inhalt springen
Ræðum það…
PodcastWirtschaftIS

Ræðum það…

Neu#607 Jensen og Ingvar horfnir á braut21.11.2026 · 37 Min.
Folgen
18
Erscheint
monatlich
Letzte Folge
21. Nov. 2026

Über den Podcast

Atvinnulífsspjallþáttur þar sem við fjöllum um efnahagsmál, viðskipti, stjórnun og samskipti frá ýmsum hliðum

Folgen 18

  1. #607 Jensen og Ingvar horfnir á braut

    37 Min.Staffel 6 · Folge 7

    Jensen og Ingvar horfnir á brautÍ þætti vikunnar fórum við yfir dýrasta orðsporsmál sögunnar hjá NVIDIA og ræddum skipti Ingvars Þóroddssonar úr Viðreisn yfir í Sjálfstæðisflokkinn.Gestir þáttarins eru Björn …

    Shownotes

    Jensen og Ingvar horfnir á braut

    Í þætti vikunnar fórum við yfir dýrasta orðsporsmál sögunnar hjá NVIDIA og ræddum skipti Ingvars Þóroddssonar úr Viðreisn yfir í Sjálfstæðisflokkinn.

    Gestir þáttarins eru Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi og Atli Stefán Yngvason ráðgjafi hjá Koala ráðgjöf.


    Ræðum það... er í boði Mynstur.

    ----

    Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta um viðskipti og atvinnulíf og hefur verið gefið út frá árinu 2020.

    Stjórnandi er Andrés Jónsson


  2. #606 "Hæfni ekki náð. Fjólublár - verk í vinnslu"

    40 Min.Staffel 6 · Folge 6

    "Hæfni ekki náð. Fjólublár - verk í vinnslu"Gestir sjötta þáttar í sjöttu seríu af Ræðum það... eru Árni Helgason þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Sverrir Páll Einarsson formaður Uppreisnar, ungliðahreyfingar …

    Shownotes

    "Hæfni ekki náð. Fjólublár - verk í vinnslu"

    Gestir sjötta þáttar í sjöttu seríu af Ræðum það... eru Árni Helgason þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Sverrir Páll Einarsson formaður Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar.


    Umræða þáttarins er um hvort ríkisstjórnin sé vinsamleg gagnvart framtakssemi eða pro-business


    Einnig er rætt um leigubremsu, hvort mál séu ekki að koma fram í þinginu og hvort skattar á ferðaþjónustuna séu hækkaðir án fyrirvara eða séu stefna sem legið hafi fyrir lengi.


    ---


    Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta um viðskipti og atvinnulíf og hefur verið gefið út frá árinu 2020.

    Stjórnandi er Andrés Jónsson




  3. #605 Áhrif mállíkana meiri á ferðaþjónustu á Íslandi

    59 Min.Staffel 6 · Folge 5

    Áhrif mállíkana meiri á ferðaþjónustu á ÍslandiGestir eru Daði Guðjónsson hjá Íslandsstofu og Arna Gunnur Ingólfsdóttir hjá Advania.Þá kom Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur HMS, og ræddi um meint áhrif …

    Shownotes

    Áhrif mállíkana meiri á ferðaþjónustu á Íslandi

    Gestir eru Daði Guðjónsson hjá Íslandsstofu og Arna Gunnur Ingólfsdóttir hjá Advania.

    Þá kom Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur HMS, og ræddi um meint áhrif leigubremsu á framboð á húsnæðismarkaði.

    Í lok þáttar kom Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóri skráninga hjá Kauphöll Íslands og ræddi um íslenska hlutabréfamarkaðinn, sameiningar lífeyrissjóða og fleira.

    Ræðum það... er í boði Mynstur.

    ----

    Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta um viðskipti og atvinnulíf og hefur verið gefið út frá árinu 2020.

    Stjórnandi er Andrés Jónsson


  4. #604 Landsvirkjun og brotthvarf Harðar

    38 Min.Staffel 6 · Folge 4

    Í hlaðvarpi vikunnar í Ræðum það… er rætt um arfleifð Harðar Arnarsonar hjá Landsvirkjun, pólitíska og efnahagslega þýðingu fyrirtækisins og þróun stjórnarhátta þar með Höllu Hrund Logadóttur þingmanni …

    Shownotes

    Í hlaðvarpi vikunnar í Ræðum það… er rætt um arfleifð Harðar Arnarsonar hjá Landsvirkjun, pólitíska og efnahagslega þýðingu fyrirtækisins og þróun stjórnarhátta þar með Höllu Hrund Logadóttur þingmanni Framsóknarflokksins og fyrrum orkumálastjóra og Helga Hjörvar fyrrverandi borgarfulltrúa og þingmanni Samfylkingarinnar sem sat í stjórn Landsvirkjunar til ársins 2006.


    Einnig fjöllum við um viðbrögðin við spillingarmáli Manchester City í ensku úrvalsdeildini og hvernig eigendur og stjórnendur liðsins hafa nálgast PR-málin með Jóni Kaldal blaðamanni og almannatengslaráðgjafa.

  5. #603 - Hallalaus fjárlög eða hvað?

    1 Std. 21 Min.Staffel 6 · Folge 1

    Hallalaus fjárlög eða hvað? Hringborð atvinnulífsins:Við hringborðið í dag eru Ragna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar og Árni Helgason þingmaður …

    Shownotes

    Hallalaus fjárlög eða hvað?


    Hringborð atvinnulífsins:

    Við hringborðið í dag eru Ragna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar og Árni Helgason þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Við fengum þau til að ræða hvers konar signal ríkisstjórnin sendir með hallalausu fjárlagafrumvarpi og hversu miklar líkur séu í raun á hallalausum ríkisrekstri á næsta ári.


    Viðtalið:

    Margréti Ormslev Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Ligo, er í viðtalinu og ræðir nýtingu gervigreindar fyrir innviði eins og fasteignir og frárennslislagnir.


    Hitamælirinn:

    Í hitamæli viðskiptalífsins fórum við yfir umræðu um samsetningu eignarhalds fyrirtækja í kauphöll Íslands með Herði Ægissyni, ritstjóra Innherja. Við ræðum hvernig sambúðin milli stórra stofnanafjárfesta og einkafjárfesta þurfi að þróast til að stuðla að meiri veltu og aukinni þátttöku nýrra fjárfesta í kauphöllinni. Eitthvað sem er reyndar líka stórt hagsmunamál almennings.


    ----


    Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta og hefur verið gefið út frá árinu 2020.


    Ræðum það... fjallar vikulega um viðskipti, efnahagsmál og opinbera stefnumörkun. Þetta er snarpt videó-hlaðvarp með puttann á púlsi umræðunnar og nýlegum fréttafyrirsögnum í viðskiptalífinu. Gestir eru forystufólk í atvinnulífinu en líka glöggt fólk með góða innsýn í umræðuefnin sem er ekki tíðir gestir í hlaðvörpum.


    Stjórnandi er Andrés Jónsson

  6. #602 - Hvarf sjónvarpsfrétta, sala til Replit og kólnandi byggingamarkaður

    56 Min.Staffel 6 · Folge 27

    Hringborð atvinnulífsins:Við hringborðið í dag eru Kolbeinn Tumi Daðason ritstjóri fréttastofu Sýnar og Kolbeinn Marteinsson ráðgjafi hjá Athygli.Viðtalið: Viktor Margeirsson og Gunnar Kolbeinsson, stofnendur …

    Shownotes


    Hringborð atvinnulífsins:

    Við hringborðið í dag eru Kolbeinn Tumi Daðason ritstjóri fréttastofu Sýnar og Kolbeinn Marteinsson ráðgjafi hjá Athygli.


    Viðtalið:

    Viktor Margeirsson og Gunnar Kolbeinsson, stofnendur Test 13 voru í viðtali.


    Hitamælirinn:

    Í hitamæli viðskiptalífsins ræddum við að þessu sinni byggingamarkaðinn, vexti og hallalaus fjárlög við Jónas Atla Gunnarsson, yfirhagfræðing HMS.


    Ræðum það... er í boði Mynstur.


    ----

    Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta og hefur verið gefið út frá árinu 2020.

    Ræðum það... er vikulegt videó-hlaðvarp um viðskipti, efnahagsmál og opinbera stefnumörkun. Vandað og uppbyggilegt en líka snarpt og með puttann á púlsi umræðunnar.


    Stjórnandi er Andrés Jónsson


  7. #601 - Gagnaver, gervigreind og fjárfestingar

    59 Min.Staffel 6 · Folge 1

    NÝ SERÍA - Ræðum það... rúllar af stað af ný.Hringborð atvinnulífsins:Við hringborðið í dag eru Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun, Magnús Bjarnason ráðgjafi og eigandi MAR …

    Shownotes

    NÝ SERÍA - Ræðum það... rúllar af stað af ný.


    Hringborð atvinnulífsins:

    Við hringborðið í dag eru Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun, Magnús Bjarnason ráðgjafi og eigandi MAR advisors. Við fengum þau til að ræða sögu íslenska gagnaversiðnaðarins og hvaða frekari tækifæri eru fyrir Íslands á því sviði.


    Viðtalið:

    Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, er í viðtalinu og ræðir nýja strategíu og fjárfestingar Nova.


    Hitamælirinn:

    Í hitamæli viðskiptalífsins skyggndumst við inn í umræðuna á bakvið fréttafyrirsagnir vikunnar með Þorsteini Friðriki Halldórssyni, ritstjóra Hluthafans.


    Ræðum það... verður eftirleiðis vikulegt videó-hlaðvarp um viðskipti, efnahagsmál og opinbera stefnumörkun. Vandað og uppbyggilegt en líka snarpt og með puttann á púlsi umræðunnar.

    Við munum grípa umræðu sem tengist nýlegum fréttafyrirsögnum í viðskiptalífinu. Gestir verða aðallega forystufólk í atvinnulífinu en líka glöggt fólk með góða innsýn í umræðuefnin sem er ekki tíðir gestir í hlaðvörpum.


    ----

    Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta og hefur verið gefið út frá árinu 2020.


    Stjórnandi er Andrés Jónsson









  8. #511 Mun gervigreindin dæma okkur?

    32 Min.Staffel 5 · Folge 11

    Mun gervigreindin dæma okkur?Í þessum ellefta þætti 5 seríu spjalla ég um gervigreind við þau Stefán Baxter hjá Snjallgögnum, Thelmu Christel Kristjánsdóttur hjá Jónsbók og Tinna Kára Jóhannesson hjá Wise Tinni …

    Shownotes

    Mun gervigreindin dæma okkur?

    Í þessum ellefta þætti 5 seríu spjalla ég um gervigreind við þau Stefán Baxter hjá Snjallgögnum, Thelmu Christel Kristjánsdóttur hjá Jónsbók og Tinna Kára Jóhannesson hjá Wise

    Tinni er jafnframt fyrrum samstarfsfélagi minn hjá Góðum samskiptum og meðstofnandi Ræðum það...

    ---

    Við erum líka á ⁠https://raedumthad.substack.com⁠ - fáið tilkynningar um nýja þætti og meira til.

    —

    Ræðum það… er spjallþáttur um atvinnulífið.

    Þátturinn hefur komið út reglulega frá árinu 2020. Stjórnandi er Andrés Jónsson*

    (*)Efnistök eru alfarið óháð verkefnum Góðra samskipta á hverjum tíma. Við val á gestum forðumst við alla hagsmunaárekstra.

  9. #510 Er Ísland opið fjárfestum?

    31 Min.Staffel 5 · Folge 10

    Er Ísland opið fjárfestum?Í þætti vikunnar ræða Margrét Ormlev Ásgeirsdóttir, rekstrarráðgjafi hjá Ormslev Advisory og Friðjón Þórðarson, framkvæmdastjóri Qair Ísland, um atvinnustefnuna sem oddvitar …

    Shownotes

    Er Ísland opið fjárfestum?


    Í þætti vikunnar ræða Margrét Ormlev Ásgeirsdóttir, rekstrarráðgjafi hjá Ormslev Advisory og Friðjón Þórðarson, framkvæmdastjóri Qair Ísland, um atvinnustefnuna sem oddvitar ríkisstjórnarflokkanna kynntu á blaðamannafundi á föstudaginn. Bæði hafa þau um árabil haft milligöngu um aðkomu erlendra fjárfesta að orkuuppbyggingu og grænum orkuverkefnum hér á landi og þekkja hversu langt og flókið ferli það getur verið.

    Tilkynningarskyldan: Þau þekktust ekki fyrir þennan þátt.

    Við erum líka á https://raedumthad.substack.com - fáið tilkynningar um nýja þætti og meira til.

    —

    Ræðum það… er spjallþáttur um atvinnulífið.

    Þátturinn hefur komið út reglulega frá árinu 2020. Stjórnandi er Andrés Jónsson*

    (*)Efnistök eru alfarið óháð verkefnum Góðra samskipta á hverjum tíma. Við val á gestum forðumst við alla hagsmunaárekstra.

  10. #509 Kunna íslensk fyrirtæki ekki að selja?

    39 Min.Staffel 5 · Folge 9

    Kunna íslensk fyrirtæki ekki að selja? Hringborð atvinnulífsins: Georg Lúðvíksson framkvæmdastjóri Spesíu og Rakel Guðmundsdóttir, eignarhaldsstjóri Alfa Framtaks ræddu afhverju íslensk fyrirtæki eru aftarlega …

    Shownotes

    Kunna íslensk fyrirtæki ekki að selja?


    Hringborð atvinnulífsins: Georg Lúðvíksson framkvæmdastjóri Spesíu og Rakel Guðmundsdóttir, eignarhaldsstjóri Alfa Framtaks ræddu afhverju íslensk fyrirtæki eru aftarlega á merinni þegar kemur að skipulögðu sölustarfi.


    Hreyfingalistinn - fréttir vikunnar: Þorsteinn Friðrik Halldórsson ritstjóri Hluthafans og Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, ráðgjafi ræddu um lokun Brunns á þriðja framtakssjóði sínum, verðhrun skráðra hugbúnaðarfyrirtækja vestan hafs, tilslakanir Seðlabankans varðandi skýrslugerð fjármálafyrirtækja og nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar um að hækka viðmið varðandi kaupauka starfsmanna verðbréfafyrirtækja.


    ————


    Við erum líka á https://raedumthad.substack.com


    Ræðum það… er spjallþáttur þar sem rætt er um efnahagsmál, viðskipti, stjórnun og samskipti.


    Þátturinn er í boði Góðra samskipta* og hefur komið út reglulega frá árinu 2020. Stjórnandi er Andrés Jónsson


    (*)Efnistök hlaðvarpsins eru óháð verkefnum Góðra samskipta á hverjum tíma. Við val á umræðuefnum og gestum þáttarins forðumst við alla hagsmunaárekstra.


  11. #508 Gervigreind á fjármálamarkaði

    38 Min.Staffel 5 · Folge 8

    #508 Gervigreind á fjármálamarkaði Gervigreindin vanmetur verðmæti Alphabet. Það er álit Arnbjarnar Ingimundarsonar, framkvæmdastjóra Gnitaness fjárfestinga, sem ákvað að prófa sig áfram með að láta Gemini og …

    Shownotes
    #508 Gervigreind á fjármálamarkaði Gervigreindin vanmetur verðmæti Alphabet. Það er álit Arnbjarnar Ingimundarsonar, framkvæmdastjóra Gnitaness fjárfestinga, sem ákvað að prófa sig áfram með að láta Gemini og Grok framkvæma verðmat á bandaríska tæknifyrirtækinu fyrir sig. Niðurstaðan var að bæði mállíkönin álitu rétt verð hlutabréf fyrirtækisins vera nokkuð langt fyrir neðan núverandi verð (sem hefur reyndar hækkað um rúm 65% á árinu). …
  12. #507 Ekki ákjósanleg staða að sömu aðilar eigi alla íslensku einkabankanna

    29 Min.Staffel 5 · Folge 7

    Ekki ákjósanleg staða að sömu aðilar eigi alla íslensku einkabankanna Í sjöunda þætti af fimmtu seríu Ræðum það… er rætt um eignarhald íslensku einkabankanna. Gylfi Magnússon, hagfræðingur og prófessor við …

    Shownotes
    Ekki ákjósanleg staða að sömu aðilar eigi alla íslensku einkabankanna Í sjöunda þætti af fimmtu seríu Ræðum það… er rætt um eignarhald íslensku einkabankanna. Gylfi Magnússon, hagfræðingur og prófessor við viðskiptadeild HÍ, fer yfir þá staðreynd að þrír stærstu lífeyrissjóðirnir eigi alla einkabankanna þrjá, Arion banka, Íslandsbanka og Kviku banka. Það sé ekki ákjósanlegt þar sem það geti hamlað hvata þeirra til að keppa innbyrðis. …
  13. #506 Sterkur en ekki harður, ríkur en vill ekki að lífið sé of létt

    48 Min.Staffel 6 · Folge 6

    Sterkur en ekki harður, ríkur en vill ekki að lífið sé of létt Reynir Grétarsson, stofnandi Creditinfo og höfundur sjálfsævisögunnar Fjórar árstíðir, er gestur sjötta þáttar í fimmtu seríu Ræðum það... Rætt er …

    Shownotes
    Sterkur en ekki harður, ríkur en vill ekki að lífið sé of létt Reynir Grétarsson, stofnandi Creditinfo og höfundur sjálfsævisögunnar Fjórar árstíðir, er gestur sjötta þáttar í fimmtu seríu Ræðum það... Rætt er um karlmennsku, syndir feðranna, viðhorf kynslóðanna, gildi peninga og hvaða áhrif það hafi að segja fólki hvernig manni raunverulega gengur, bæði á orðsporið, eigin líðan og mögulega líðan annarra sem tengja. …
  14. #505 Fundur, fiskeldi og fargufur

    42 Min.Staffel 5 · Folge 5

    Fundur, fiskeldi og fargufur Gauti Geirsson, framkvæmdastjóri fiskeldisfyrirtækisins Háafells og Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, eru gestir fimmta þáttar fimmtu seríu af Ræðum það… spjallþáttar um …

    Shownotes
    Fundur, fiskeldi og fargufur Gauti Geirsson, framkvæmdastjóri fiskeldisfyrirtækisins Háafells og Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, eru gestir fimmta þáttar fimmtu seríu af Ræðum það… spjallþáttar um atvinnulífið þar sem við fjöllum um efnahagsmál, viðskipti, stjórnun og samskipti frá ýmsum hliðum. …
  15. #504 Staðan í gervigreind

    59 Min.Staffel 5 · Folge 4

    Staðan í gervigreind Stefán Baxter, stofnandi Snjallgagna, Gunnar Hólmsteinn, stofnandi Quest Portal og Berglind Einarsdóttir lögfræðingur og stofnandi Bentt gervigreindarráðgjafar eru gestir fjórða þáttar …

    Shownotes
    Staðan í gervigreind Stefán Baxter, stofnandi Snjallgagna, Gunnar Hólmsteinn, stofnandi Quest Portal og Berglind Einarsdóttir lögfræðingur og stofnandi Bentt gervigreindarráðgjafar eru gestir fjórða þáttar fimmtu seríu af Ræðum það… hlaðvarps um viðskipti, efnahagsmál, stjórnun og samskipti. Farið er yfir víðan völl um stöðu gervigreindar, samfélagsleg áhrif hennar, áhrif á rekstur fyrirtækja og á daglegt líf okkar allra. …
  16. #503 - Afhverju fara ekki fleiri íslensk fyrirtæki í útrás til Skandinavíu?

    50 Min.Staffel 5 · Folge 3

    Afhverju fara ekki fleiri íslensk fyrirtæki í útrás til Skandinavíu? Andri Árnason, framkvæmdastjóri Takk og einn eigenda Tefélagsins og Einar Örn Einarsson, eigandi Zocalo og Wok to Walk og stjórnarmaður Haga …

    Shownotes
    Afhverju fara ekki fleiri íslensk fyrirtæki í útrás til Skandinavíu? Andri Árnason, framkvæmdastjóri Takk og einn eigenda Tefélagsins og Einar Örn Einarsson, eigandi Zocalo og Wok to Walk og stjórnarmaður Haga, eru gestir þriðja þáttar fimmtu seríu af Ræðum það… hlaðvarps um viðskipti, efnahagsmál, stjórnun og samskipti. Báðir gestirnir hafa fært út kvíarnar til hinna Norðurlandanna og velta því upp með okkur hvers vegna íslensk fyrirtæki eru óvön því að fara þessa leið. …
  17. #502 - Viðskiptafréttir sumarsins

    43 Min.Staffel 5 · Folge 2

    Viðskiptafréttir sumarsins Þorsteinn Friðrik Halldórsson, viðskiptablaðamaður og ritstjóri Hluthafans, er gestur annars þáttar fimmtu seríu af Ræðum það… hlaðvarps um viðskipti, efnahagsmál, stjórnun og …

    Shownotes
    Viðskiptafréttir sumarsins Þorsteinn Friðrik Halldórsson, viðskiptablaðamaður og ritstjóri Hluthafans, er gestur annars þáttar fimmtu seríu af Ræðum það… hlaðvarps um viðskipti, efnahagsmál, stjórnun og samskipti. Rætt er um Aldin Dynamics, Quest Portal, Dranga, Skel, Sýn, Nova, Farice, gagnaverin, orkumál, Jökulsárlón ferðaþjónustufyrirtækið, Adalvo, Alvotech, Róbert Wessman og Björgólf Thor Björgólfsson. …
  18. #501 Ferðaþjónustan í skotlínu?

    37 Min.Staffel 5 · Folge 1

    Í nýrri seríu af Ræðum það... fáum við fjölbreytta gesti úr atvinnulífinu. Fyrstu gestirnir eru Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds sem rekur Bílaleigu Akureyrar/Europcar en sem á einnig hluti í ýmsum öðrum …

    Shownotes
    Í nýrri seríu af Ræðum það... fáum við fjölbreytta gesti úr atvinnulífinu. Fyrstu gestirnir eru Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds sem rekur Bílaleigu Akureyrar/Europcar en sem á einnig hluti í ýmsum öðrum fyrirtækjum og Gylfi Ólafsson sem er að horfa til vaxtar í komu skemmtiferðaskipa til Vestfjarða, bæði sem pólitíkus en líka sem fyrirtækisstofnandi sem reynir nú í annað sinn að safna fé frá fjárfestum. …
Ist das dein Podcast?

Bestätige es mit einem Eintrag in deinem Feed: Du bekommst hier einen Code, trägst ihn als podcast:txt in den Kanal deines Feeds ein, und wir prüfen ihn. Danach steht dein Podcast als „verifiziert“ bei SoundNode.

Einstellungen

Darstellung

Sprache

Bestimmt, welche Sender dir auf der Startseite zuerst gezeigt werden.

Verlauf

Zuletzt gehörte Sender und Folgen und deine letzten Suchen liegen nur in diesem Browser.

Hinweise

Ein kurzer Hinweis, wenn ein Podcast, dem du folgst, eine neue Folge hat. Einzelne Podcasts stellst du über die Glocke auf ihrer Seite ab.

Konto

Favoriten speichern – in der App und auf der Website.

Tastenkürzel

/
Suche öffnen
Leertaste
Abspielen oder anhalten
← →
Im Player: 15 s zurück, 30 s vor (Folgen) · im Regal: nächste Kachel
↑ ↓
Im Regal: Ziel innerhalb der Kachel
Pos1 / Ende
Im Regal: erste bzw. letzte Kachel
Esc
Fenster oder Menü schließen
?
Diese Übersicht
Läuft gerade

Zur Senderseite

Als Nächstes

    Folgen mit „Als Nächstes“ vormerken – sie laufen nach der aktuellen Folge.