Zum Inhalt springen
Svörtu tungurnar
PodcastComedySpieleIS

Svörtu tungurnar

Neu#0121 - Hryllingur á Selfossi og meðmál í Svörtuloftum.08.11.2026 · 1 Std. 3 Min.
Folgen
142
Erscheint
alle zwei Wochen
Letzte Folge
8. Nov. 2026

Über den Podcast

Spilahópurinn Svörtu tungurnar talar um spunaspil. Þátturinn er tekinn upp í hvert skipti áður en við setjumst við spil í Svörtuloftum.

Folgen 142

  1. #0121 - Hryllingur á Selfossi og meðmál í Svörtuloftum.

    1 Std. 3 Min.Folge 143

    Þátturinn er í boði Malbygg Lúlli viðrar nýjann söguboga sem gerist á Selfossi með þá hugmynd að hafa loka spilastundina á Malbygg fyrir framan áhorfendur. Meðmál í Svörtuloftum er nýjung hjá piltunum en þá …

    Shownotes

    Þátturinn er í boði Malbygg

    Lúlli viðrar nýjann söguboga sem gerist á Selfossi með þá hugmynd að hafa loka spilastundina á Malbygg fyrir framan áhorfendur. Meðmál í Svörtuloftum er nýjung hjá piltunum en þá mælir hver og einn með tvennu sem þeir eru annaðhvort að spila, horfa eða lesa. Held að þessi nýjung sé komin til að vera!

    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

    www.facebook.com/groups/svortutungurnar

    Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

    Insta: www.instagram.com/svortutungurnar

    Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

    – Mættir eru: Hannes, Hlynur, Lúlli og Tryggvi.

    – Tónlist: Simulacrum

    – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

  2. #0120 - Kósýgalli!

    49 Min.Folge 142

    Þátturinn er í boði Malbygg Sennilega átti þátturinn upphaflega að hafa skýrari stefnu en raunin varð. Útkoman er engu að síður lífrænt spjall sem fæddist í beinni. Outgunned, Gurps, Cyberpunk, Dune, allskonar …

    Shownotes

    Þátturinn er í boði Malbygg

    Sennilega átti þátturinn upphaflega að hafa skýrari stefnu en raunin varð. Útkoman er engu að síður lífrænt spjall sem fæddist í beinni. Outgunned, Gurps, Cyberpunk, Dune, allskonar fleira og hellingur af tilfinningum og hlátri frá fjórum Svörtum tungum með svartar sálir.

    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

    www.facebook.com/groups/svortutungurnar

    Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

    Insta: www.instagram.com/svortutungurnar

    Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

    – Mættir eru: Hannes, Hlynur, Óli og Snæbjörn

    – Tónlist: Simulacrum

    – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

  3. #0119 - Byrjendaráð og samkoma galdra.

    1 Std. 1 Min.Folge 141

    Þátturinn er í boði Malbygg Hvernig myndu svörtu tungurnar mæla með að feta sín fyrstu spor í hlutverkaspilum? Er 5e mest straumlínulagaða byrjendakerfið eða eitthvað annað? hvað finnst ykkur? Það getur reynst …

    Shownotes

    Þátturinn er í boði Malbygg

    Hvernig myndu svörtu tungurnar mæla með að feta sín fyrstu spor í hlutverkaspilum? Er 5e mest straumlínulagaða byrjendakerfið eða eitthvað annað? hvað finnst ykkur? Það getur reynst erfitt að spila fyrsta spilið nema kannski undir leiðsögn þeirra sem hafa fetað sama veg. Veg ljóssins. Amen.

    Samkoma galdranna, er það eitthvað á brauð? Sumir vilja meina það.

    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

    www.facebook.com/groups/svortutungurnar

    Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

    Insta: www.instagram.com/svortutungurnar

    Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

    – Mættir eru: Hannes, Hilmir, Hlynur og Lúlli

    – Tónlist: Simulacrum

    – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

  4. #0118 - Allir vegir liggja til Ibiza

    48 Min.Folge 140

    Þátturinn er í boði Malbygg Hvenær verða menn miðaldra? Er það ekki hugurinn og andinn sem tekur okkur hálfa leið og hvert þá? Nú til Ibiza. Er djúp sjöu Ibiza rétta meðalið og er Gurps kerfið gott munnskol til …

    Shownotes

    Þátturinn er í boði Malbygg

    Hvenær verða menn miðaldra? Er það ekki hugurinn og andinn sem tekur okkur hálfa leið og hvert þá? Nú til Ibiza. Er djúp sjöu Ibiza rétta meðalið og er Gurps kerfið gott munnskol til að hreinsa kverkarnar og hlægja mikið?

    Við förum yfir persónu sköpun og sögusviðið fyrir komandi marghleypu og þetta er eitthvað sem við mælum með að gera. tala saman og búa til heiminn og tengingar.

    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

    www.facebook.com/groups/svortutungurnar

    Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

    Insta: www.instagram.com/svortutungurnar

    Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

    – Mættir eru: Hannes, Hilmir, Hlynur og Lúlli

    – Tónlist: Simulacrum

    – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

  5. #0117 Mandela effect og djúp sjöa á Ibiza

    58 Min.Folge 139

    Þátturinn er í boði Malbygg Lúlli reynir eins og hann getur að segja frá Mandela effect og því fylgir saga um gamla konu frá Grindarvík. Strahd er dauður! Hvað tekur við? við þráum ekkert meira en að komast til …

    Shownotes

    Þátturinn er í boði Malbygg

    Lúlli reynir eins og hann getur að segja frá Mandela effect og því fylgir saga um gamla konu frá Grindarvík.

    Strahd er dauður! Hvað tekur við? við þráum ekkert meira en að komast til sólarlanda þar sem er engin þoka og engin vampíra sem er að kljást við eigin tilfinningar. Silfurskotturnar tala saman um hvað þeir væru helst til að spila eftir 5 ára þrautagöngu í myrkrinu. Við getum lofað því að það verður bjart, sexý og sól innifalið.

    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

    www.facebook.com/groups/svortutungurnar

    Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

    Insta: www.instagram.com/svortutungurnar

    Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

    – Mættir eru: Bjarni, Hlynur,Lúlli og Tryggvi

    – Tónlist: Simulacrum

    – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

  6. #0116 - Kapitalismi og Crack Cocaine (Týndi þátturinn)

    43 Min.Folge 138

    Þátturinn er í boði Malbygg Eitt sinn í dimmu hlapvarpsherbergi tóku 4 tungur upp þátt. Stuttu seinna þegar búið var að ganga frá þættinum hvarf hann og enginn vissi hvað hefði orðið af honum. En svo kom í ljós …

    Shownotes

    Þátturinn er í boði Malbygg

    Eitt sinn í dimmu hlapvarpsherbergi tóku 4 tungur upp þátt. Stuttu seinna þegar búið var að ganga frá þættinum hvarf hann og enginn vissi hvað hefði orðið af honum. En svo kom í ljós að slæm nafnagift þáttarins gerði það að verkum að hann sogaðist inn í Aðra vídd. Nýji klippi drýsillinn sem er vanur Víddaflakkari fann hann svo, einmana með enga von í brjósti. Og hér er hann mættur.

    Er Kapitalisminn að gera útaf við okkur? Ratar siðrofið inn í spilaheim spilaranna? hvernig kveðjum við stóra söguboga? Er bókinni lokað eða fá leikmenn lokakafla sem einhversskonar kveðjustund?

    PS. Höskuldarviðvörun. Auglýst pláss í Svörtuloftum er því miður ekki í boði lengur.

    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

    www.facebook.com/groups/svortutungurnar

    Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

    Insta: www.instagram.com/svortutungurnar

    Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

    – Mættir eru: Bjarni, Hannes, Lúlli og Tryggvi

    – Tónlist: Simulacrum

    – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

  7. #0115 Nútíminn og Núvitund

    49 Min.Folge 137

    Þátturinn er í boði Malbygg Við erum komnir til baka úr sumarfríi! Eigum við að vera með samviskubit yfir að vilja frekar spila en að vera með fjölskyldum okkar? Er nútíminn verri en fortíðinn? hvað í …

    Shownotes

    Þátturinn er í boði Malbygg

    Við erum komnir til baka úr sumarfríi!

    Eigum við að vera með samviskubit yfir að vilja frekar spila en að vera með fjölskyldum okkar? Er nútíminn verri en fortíðinn? hvað í andskotanum eru Vitkarnir (öll kyn leyfð) að spá með að draga World of warcraft og Star Wars uppá borð? Verður Dark Sun okkar dnd Opus?

    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

    www.facebook.com/groups/svortutungurnar

    Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

    Insta: www.instagram.com/svortutungurnar

    Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

    – Mættir eru: Bjarni, Hannes, Hlynur og Lúlli

    – Tónlist: Simulacrum

    – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

  8. #0114 Sumarspil eða gervigreind

    51 Min.Folge 136

    Þátturinn er í boði Malbygg Hvað gera spunaspilarar á sumrin? Er sami fílingur að kíkja í grámygluna í Baroviu á sumrin og á veturnar? Getur gervigreindin bætt spunaspila upplifun eða auðveldlega drepið …

    Shownotes

    Þátturinn er í boði Malbygg

    Hvað gera spunaspilarar á sumrin? Er sami fílingur að kíkja í grámygluna í Baroviu á sumrin og á veturnar? Getur gervigreindin bætt spunaspila upplifun eða auðveldlega drepið eitthvað í okkur sem við notum til að skapa sögur og spennu? Svörtu tungurnar fara yfir víðan völl í síðasta þætti fyrir sumarfrí!

    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

    www.facebook.com/groups/svortutungurnar

    Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

    Insta: www.instagram.com/svortutungurnar

    Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

    – Mættir eru: Hilmir, Tryggvi og Lúlli

    – Tónlist: Simulacrum

    – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

  9. #0113 - Einhleypa í Borgó

    55 Min.Folge 135

    #0113 Þátturinn er í boði Malbygg. Hvernig er hið fullkomna DnD ævintýri fyrir byrjendur? Bjössi og Tryggvi hafa nokkra daga til að búa það til með dyggri aðstoð Svörtu tungnanna og prufa það svo á nokkrum …

    Shownotes

    #0113

    Þátturinn er í boði Malbygg.

    Hvernig er hið fullkomna DnD ævintýri fyrir byrjendur? Bjössi og Tryggvi hafa nokkra daga til að búa það til með dyggri aðstoð Svörtu tungnanna og prufa það svo á nokkrum byrjendum í starfsmannahópi Borgarleikhússins. Hvað gæti farið úrskeiðis?

    Mættir voru

    Tryggvi

    Hlynur

    Hannes

    Bjössi

    Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar

  10. #0112 Tveir úr Tungunum: Töfraveröld ímyndunaraflsins

    59 Min.Folge 134

    Þátturinn er í boði Malbygg Ókei ókei ókei. Eftir harðorð bréf og andstyggilegar athugasemdir höfum við ákveðið að breyta titli þessa innslags yfir í "Tveir úr Tungunum". Þar setjast tvær tungur niður og ræða …

    Shownotes

    Þátturinn er í boði Malbygg

    Ókei ókei ókei. Eftir harðorð bréf og andstyggilegar athugasemdir höfum við ákveðið að breyta titli þessa innslags yfir í "Tveir úr Tungunum". Þar setjast tvær tungur niður og ræða málin í þaula, almennilegt nörda trúnó.

    Að þessu sinni eru það Snæbjörn og Hjörtur sem eru mættir. Til stendur að spila hið æsispennandi spunaspil Draw Steel frá MCDM Productions. Bibbi fer yfir helstu þætti spilsins og þeir pæla í hvernig gera megi langdregna bardaga skemmtilegri, sem er nauðsynlegt þegar þú ert með spilahóp fullan af snarofvirkum athyglissjúkum spunadrottningum með athyglisbrest.

    Þeir fara yfir óheft ímyndunarafl barnsheilans og hvað við gerum til að reyna að endurheimta þá tilfinningu. Hvenær hætti maður að vera heillaður yfir smáatriðum á einhverju korti? Hvers vegna flækjum við hlutina með sögufléttum og flókinni heimssköpun þegar hægt er að spinna hvað sem er á staðnum og það er alveg jafn gaman? Hvernig nær maður að plata sig í að halda að eitthvað sem gerist á spilakvöldi sé gríðarlega mikilvægt þegar allir vita að þetta er auðvitað alltsaman tilbúningur frá rótum?

    Og hvað er í þessu andskotans bréfi sem Bjössi lét okkur fá í spili um daginn? Megum við opna það? Eigum við að opna það? Eða mun það bara þýða að spilið er búið og allir verða sendir heim...

    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

    www.facebook.com/groups/svortutungurnar

    Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

    Insta: www.instagram.com/svortutungurnar

    Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

    – Mættir eru: Hjörtur og Snæbjörn

    – Tónlist: Flight

    – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

  11. #0111 Brú milli guðdómsins og veruleikans

    59 Min.Folge 133

    Þátturinn er í boði Malbygg Athugið að þátturinn inniheldur spilliefni um kvikmyndina Project Hail Mary. Hvað er list? Er listamanneskjan bara tilgerðarlegur aumingji sem á að fá sér alvöru vinnu? Eða það bara …

    Shownotes

    Þátturinn er í boði Malbygg

    Athugið að þátturinn inniheldur spilliefni um kvikmyndina Project Hail Mary.

    Hvað er list? Er listamanneskjan bara tilgerðarlegur aumingji sem á að fá sér alvöru vinnu? Eða það bara enn ein afleiðing brothættrar karlmennsku að geta ekki bara notið listar og sköpunar án þess að þurfa að smætta það? Og hvað í andskotanum hefur þetta með spunaspil að gera?

    Snæbjörn kafar á dýpið í sínu andlega ferðalagi um sína eigin innri rödd og raddbeitingu í spunaspilum, Hannes bjargar móður sinni, Óli veltir upp áleitnum spurningum um skoplist og eftirhermur, og Hjörtur rýnir í kvikmyndina Project Hail Mary á sinn hárbeitta og nákvæma hátt.

    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

    www.facebook.com/groups/svortutungurnar

    Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

    Insta: www.instagram.com/svortutungurnar

    Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

    – Mættir eru: Hannes, Hjörtur, Snæbjörn og Óli

    – Tónlist: Dimension Door

    – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

  12. #0110 Beggi Brugg

    53 Min.Folge 132

    #0110 Þátturinn er í boði Malbygg. Í þættinum í kvöld fáum við Begga vin okkar í heimsókn. Við ræðum um heima og geima, gervigreindar dómstóll, óvenjugóðir galdrar og galdramunir ofl ofl. Hlustið og þér munið …

    Shownotes

    #0110

    Þátturinn er í boði Malbygg.

    Í þættinum í kvöld fáum við Begga vin okkar í heimsókn. Við ræðum um heima og geima, gervigreindar dómstóll, óvenjugóðir galdrar og galdramunir ofl ofl.

    Hlustið og þér munið heyra!

    Mættir voru

    Lúlli
    Beggi

    Bjarni

    Hilmir

    Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar

  13. #0109 Fúría, framtíð vitkanna og Daði halldórsson

    57 Min.Folge 131

    #0109 Þátturinn er í boði Malbygg. Í þessum þætti ræðum við leikarasögu lúlla, módelið sem wizards of the coast eru að fara bjóða uppá? Er þetta að fara verða live service tölvuleikur? Er ekki nóg að eiga bara …

    Shownotes

    #0109

    Þátturinn er í boði Malbygg.

    Í þessum þætti ræðum við leikarasögu lúlla, módelið sem wizards of the coast eru að fara bjóða uppá? Er þetta að fara verða live service tölvuleikur? Er ekki nóg að eiga bara bækurnar.

    Spjallið færist svo yfir í frænda Tryggva. Hlustið og þér munið heyra!

    Mættir voru

    Lúlli
    Hannes

    Tryggvi

    Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar

  14. #0108 Hópfjármögnun og ægivald valkostanna

    41 Min.Folge 130

    Þátturinn er í boði Malbygg Er þetta of mikið? Of stórir tölvuleikir? Of mikið af efni á streymisveitum? Of margir valkostir? Verðum við að geta spilað leik og horft og þátt og verið í símanum á sama tíma? Er …

    Shownotes

    Þátturinn er í boði Malbygg

    Er þetta of mikið? Of stórir tölvuleikir? Of mikið af efni á streymisveitum? Of margir valkostir? Verðum við að geta spilað leik og horft og þátt og verið í símanum á sama tíma? Er þetta ný tegund miðlunar í dag? Hannes Óli segir okkur frá "second-screen theory", við syrgjum þá tölvuleiki sem við höfum ekki náð að klára og köfum ofaní allt dótið sem við höfum keypt gegnum hópfjármögnun á borð við Kickstarter.

    Tossaspilararnir eru mættir á ný fyrir framan hljóðneman og ræða málin af dýpt og næmni, eins og vanalega. Og hver veit nema það komi jafnvel óvæntir gestir eða tveir...

    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

    www.facebook.com/groups/svortutungurnar

    Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

    Insta: www.instagram.com/svortutungurnar

    Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

    – Mættir eru: Hannes, Hjörtur og Snæbjörn

    – Tónlist: Confusion

    – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

  15. #0107 Hart og mjúkt

    55 Min.Folge 129

    #0107 Þátturinn er í boði Malbygg. Við byrjum þáttinn á útsláttarkeppni en tökum svo upp sama þema og í síðustu viku. Hver og einn kemur með umræðuefni og svo bara spjall og gaman. Mættir voru Lúlli Hilmir …

    Shownotes

    #0107

    Þátturinn er í boði Malbygg.

    Við byrjum þáttinn á útsláttarkeppni en tökum svo upp sama þema og í síðustu viku. Hver og einn kemur með umræðuefni og svo bara spjall og gaman.

    Mættir voru

    Lúlli
    Hilmir

    Bjarni

    Hlynur

    Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar

  16. #0106 Þroskað malbygg, ríða og deyja fyrir þema

    53 Min.Folge 128

    #0106 Þátturinn er í boði Malbygg. í þættinum í dag ætlum við að prófa nýtt þema, hver og einn kemur með eitt umræðuefni og við spjöllum um það og við erum ekki frá því að þetta hafi bara heppnast svona líka …

    Shownotes

    #0106

    Þátturinn er í boði Malbygg.

    í þættinum í dag ætlum við að prófa nýtt þema, hver og einn kemur með eitt umræðuefni og við spjöllum um það og við erum ekki frá því að þetta hafi bara heppnast svona líka vel!

    Mættir voru

    Hilmir

    Bjarni

    Lúlli

    Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar

  17. #0105 Tjékkinn

    52 Min.Folge 127

    #0105 Þátturinn er í boði Malbygg. Jæja kæru vinir, afsakið þessa óvæntu pásu, en við erum komnir tvíefldir til baka! Í þessum fyrsta þætti eftir hlé ræðum við um þá yndislegu hefð sem hefur myndast hjá okkur í …

    Shownotes

    #0105

    Þátturinn er í boði Malbygg.

    Jæja kæru vinir, afsakið þessa óvæntu pásu, en við erum komnir tvíefldir til baka! Í þessum fyrsta þætti eftir hlé ræðum við um þá yndislegu hefð sem hefur myndast hjá okkur í Silfurskottunum að tjékka okkur inn fyrir spil. Við mælum með, hefur góð áhrif á geðheilsu og vinskap.
    Njótið vel.

    Mættir voru

    Hilmir

    Tryggvi

    Bjarni

    Hlynur

    Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar

  18. #2.4 Fallistarnir - Bjór og rækjur

    50 Min.Staffel 2 · Folge 126

    Malbygg, Malbygg! Konungsríki mitt fyrir Malbygg. Við höldum ævintýrinu áfram, ásamt því að finna Shakespeare tengd slagorð fyrir Malbygg. Nú eru tossarnir okkar hinsvegar týndir. En samt ekki svo illilega að …

    Shownotes

    Malbygg, Malbygg! Konungsríki mitt fyrir Malbygg.

    Við höldum ævintýrinu áfram, ásamt því að finna Shakespeare tengd slagorð fyrir Malbygg.
    Nú eru tossarnir okkar hinsvegar týndir. En samt ekki svo illilega að þeir hafi ekki tíma fyrir bjór og rækjur. Og hver veit nema þeir hendi í eina sósíalíska spunatónleika á Kristals svölunum.

    Mættir eru: Tryggvi, Hilmir Bjarni, Hannes og Lúlli.

    Tónlist: Crown of Madness

    Flytjandi: Scorching Ray Taylor

    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

    www.facebook.com/groups/svortutungurnar

    Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

    Insta: www.instagram.com/svortutungurnar

    Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

  19. #0104 Tvær Tungur: Og skammastu þín svo!

    1 Std. 21 Min.Folge 125

    Þátturinn er í boði Malbygg Og við höldum áfram með seríuna okkar sem við höfum ákveðið að nefna „Tvær Tungur“ héðanaf, þar sem Bjössi og Hjörtur ræða lífsins lystisemdir og mannskepnunnar misbresti, á …

    Shownotes

    Þátturinn er í boði Malbygg

    Og við höldum áfram með seríuna okkar sem við höfum ákveðið að nefna „Tvær Tungur“ héðanaf, þar sem Bjössi og Hjörtur ræða lífsins lystisemdir og mannskepnunnar misbresti, á misgáfulegan hátt. Stundum tengt spunaspilum…

    Þeim tókst að taka upp þátt um daginn og stroka hann svo gjörsamlega út og því var tilvalið að ræða um skömmina í þessum þætti. Hver er munurinn á heilbrigðri og óheilbrigðri skömm? Hvað gerir maður til að rífa sig aftur upp eftir að hafa gert einhver skammarstrik? Og er ekki bara nauðsynlegt að kunna að skammast sín?

    Þeim tekst þó líka að ræða áframhaldandi framþróun tölvuleiksins „Skoplegur blær“ sem þeir vinna hörðum höndum að og kom fram í síðasta innslagi þeirra, þeir ræða skipulagða erótík ráðsetta fullorðna fólksins, meðvirkni, og gríðarlega flókið víddar- og tímaflakk síðasta ævintýris sem Svörtu Tungunum tókst loksins að klára um daginn, fjórum árum eftir að spilið hófst.

    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

    www.facebook.com/groups/svortutungurnar

    Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

    Insta: www.instagram.com/svortutungurnar

    Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

    – Mættir eru: Bjössi og Hjörtur

    – Tónlist: Borrowed Knowledge

    – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

  20. #2.3 Fallistarnir - Dullarfullir atburðir

    1 Std.Staffel 2 · Folge 124

    Þeir hafa kannski hæfileikana, en þá vantar allt annað. Þá er komið að þriðja þætti af Fallistunum, heimabrugguðu ævintýri úr smiðju Svörtu tungnanna. Nú koma allir spilarar saman og sameina krafta sína og …

    Shownotes

    Þeir hafa kannski hæfileikana, en þá vantar allt annað.

    Þá er komið að þriðja þætti af Fallistunum, heimabrugguðu ævintýri úr smiðju Svörtu tungnanna.

    Nú koma allir spilarar saman og sameina krafta sína og reyna að komast að því hvað er eiginlega að gerast innan veggja Taskíu.

    Þátturinn er í boði Malbygg.

    Mættir eru: Tryggvi, Hilmir, Lúlli, Bjarni og Hannes

    Tónlist: Gust of Wind

    Flytjandi: Scorching Ray Taylor

    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

    www.facebook.com/groups/svortutungurnar

    Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

    Insta: www.instagram.com/svortutungurnar

    Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

  21. #0103 Tvær Tungur: Skoplegur blær

    1 Std. 15 Min.Folge 123

    Þátturinn er í boði Malbygg Bjössi og Hjörtur eru aftur komnir saman tveir til að leysa ráðgátur lífsins og greiða úr flækjum manneskjunnar. En fyrst og fremst ræða þeir um tölvuleiki. Ok. Kannski ekki fyrst og …

    Shownotes

    Þátturinn er í boði Malbygg

    Bjössi og Hjörtur eru aftur komnir saman tveir til að leysa ráðgátur lífsins og greiða úr flækjum manneskjunnar. En fyrst og fremst ræða þeir um tölvuleiki. Ok. Kannski ekki fyrst og fremst. En það var allavega hugmyndin og þeir svo sannarlega gera það þegar þeir loksins koma sér að efninu. Hvers konar tölvuleik myndu ÞEIR vilja búa til? Er þetta enn einn "open world" leikurinn á borð við Fallout 3 eða Read Dead Redemption? Eða kannski skotleikur? Eða jafnvel ævintýraleikur í ætt við Monkey Island og Day of the Tentacle? Hvað er málið með gagnrýni á poppkúltúr á internetinu? Hvernig nær maður sér á strik eftir langt jólafrí? Hvað í fjandanum gerðist eiginlega í covid? Og hvað ætlar ógæfusami rannsóknarlögreglumaðurinn Brjánn Brjánsson til bragðs að taka þegar hann kemur fram á hrottalegan glæp sem framinn var á bryggjusvæðinu í Reykjavík árið 1960?

    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

    www.facebook.com/groups/svortutungurnar

    Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

    Insta: www.instagram.com/svortutungurnar

    Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

    – Mættir eru: Bjössi og Hjörtur

    – Tónlist: Dissonant Whispers

    – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

  22. #2.2 Fallistarnir - Hinir tossarnir

    1 Std.Staffel 2 · Folge 122

    Þeir hafa kannski hæfileikana, en þá vantar allt annað. Það er komið að öðrum þætti af Fallistunum, heimabugguðu ævintýri úr smiðju Svörtu tungnanna. Nú fylgjumvið Tossunum Þórði Nikulási og Vilhjálmi Elíasi …

    Shownotes

    Þeir hafa kannski hæfileikana, en þá vantar allt annað.

    Það er komið að öðrum þætti af Fallistunum, heimabugguðu ævintýri úr smiðju Svörtu tungnanna.

    Nú fylgjumvið Tossunum Þórði Nikulási og Vilhjálmi Elíasi eftir á vaktinni í Akademíunni.

    Þetta er seinni hluti af fyrsta þætti.

    Þátturinn er í boði Malbygg.

    Mættir eru: Tryggvi, Hilmir og Lúlli.

    Tónlist: Silvery Barbs

    Flytjandi: Scorching Ray Taylor

    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

    www.facebook.com/groups/svortutungurnar

    Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

    Insta: www.instagram.com/svortutungurnar

    Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

  23. #2.1 Fallistarnir - Tossarnir í Taskíu

    53 Min.Staffel 2 · Folge 121

    Þeir hafa kannski hæfileikana, en þá vantar allt annað. Það er komið að fyrsta þætti af Fallistunum, heimabugguðu ævintýri úr smiðju Svörtu tungnanna. Það er eitthvað stórt í uppsiglingu í undirheimum Taskíu. Á …

    Shownotes

    Þeir hafa kannski hæfileikana, en þá vantar allt annað.

    Það er komið að fyrsta þætti af Fallistunum, heimabugguðu ævintýri úr smiðju Svörtu tungnanna.

    Það er eitthvað stórt í uppsiglingu í undirheimum Taskíu. Á meðan varðsveitir Batterísins reyna að komast að því hvað það er, er verkefni Fallistanna einfalt: Ekki vera fyrir og ekki klúðra þessu (eins og þeir gera alltaf).

    Þetta er fyrri hluti af fyrsta þætti.

    Þátturinn er í boði Malbygg.

    Mættir eru: Tryggvi, Hannes og Bjarni.

    Tónlist: Wish

    Flytjandi: Scorching Ray

    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

    www.facebook.com/groups/svortutungurnar

    Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

    Insta: www.instagram.com/svortutungurnar

    Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

  24. #0102 Prepp og pepp - partur tvö

    51 Min.Folge 120

    Seinni þáttur í undirbúningi fyrir upptöku á spili. Nú búum við til tvo fyrstu karakterana, sósíalíska þjóðlagaskáldið Virginíu Fönix og fyrrum undrabarnið Orfeus Killdaar. Svo köstum við uppá tölur og …

    Shownotes

    Seinni þáttur í undirbúningi fyrir upptöku á spili. Nú búum við til tvo fyrstu karakterana, sósíalíska þjóðlagaskáldið Virginíu Fönix og fyrrum undrabarnið Orfeus Killdaar.

    Svo köstum við uppá tölur og reiknum...

    ...sem er frábært podcast efni!

    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

    www.facebook.com/groups/svortutungurnar

    Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

    Insta: www.instagram.com/svortutungurnar

    Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

    – Mættir eru: Tryggvi, Bjarni og Hannes

    – Tónlist: Zephyr strike

    – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

  25. #0101 Tvær Tungur: Sagan af Kristjáni Kristjánssyni handboltaþjálfa

    1 Std. 10 Min.Folge 119

    Þátturinn er í boði Malbygg Aftur eru tveir spilatossar sestir niður til að mana sig upp í spil. En nú er það á næsta leiti! Það stefnir í ægilega sjóræningjasögu fljótlega. Og þá spyr maður sig. Hvaða …

    Shownotes

    Þátturinn er í boði Malbygg

    Aftur eru tveir spilatossar sestir niður til að mana sig upp í spil. En nú er það á næsta leiti! Það stefnir í ægilega sjóræningjasögu fljótlega. Og þá spyr maður sig. Hvaða þráhyggja er þetta að vera að segja endalausar sögur af hlutunum? Spila spunaspil, leika leikrit, gera hlaðvörp, skrifa ævintýri, handrit, bækur? Er þetta ein af grunnþörfum manneskjunnar? Eða erum við bara ólæknandi kjaftatuskur? Og hver var þessi dularfulli maður sem veittist að Birni Stefánssyni í Hagkaup í Garðabæ? Hver er hans saga?

    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

    www.facebook.com/groups/svortutungurnar

    Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

    Insta: www.instagram.com/svortutungurnar

    Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

    – Mættir eru: Bjössi og Hjörtur

    – Tónlist: Weird

    – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

  26. #0100 Tvær Tungur: Verðlagning tímans eða Hreint eldhús - betra líf

    59 Min.Folge 118

    Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg Hundraðasti þáttur! Og við vissum ekki einusinni af því þegar við tókum hann upp. Þetta hefur nú verið meira ævintýrið elsku hlustendur og hjartans ástarþakkir til …

    Shownotes

    Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg

    Hundraðasti þáttur! Og við vissum ekki einusinni af því þegar við tókum hann upp. Þetta hefur nú verið meira ævintýrið elsku hlustendur og hjartans ástarþakkir til ykkar sem hafið lagt á hlustir! Í þetta skiptið setjast tveir týndir synir niður og ræða málin. Bjössi og Hjörtur hafa verið fjarverandi bæði þáttum og spilum alltof alltof lengi. Afhverju í ósköpunum? Hvers vegna dettur maður úr takti við eitthvað sem maður elskar? Hvað er það sem fær mann til að vanrækja hluti sem maður veit að eru mikilvægir? Þegar forgangsröðun hversdagsins tekur alltsaman yfir, hvernig kemur maður sér aftur á vagninn? Og hvenær í fjandanum náum við aftur að spila!?

    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

    www.facebook.com/groups/svortutungurnar

    Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

    Insta: www.instagram.com/svortutungurnar

    Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

    – Mættir eru: Bjössi og Hjörtur

    – Tónlist: Ravenous Void

    – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

  27. #0099 Prepp og pepp

    1 Std. 43 Min.Folge 117

    #0099 Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Hér kemur langur og góður þáttur, þetta er fyrsti undirbúnings þátturinn komandi ævintýrinu okkar. Í þessum fyrsta þætti ræðum við um ævintýrið og búum í …

    Shownotes

    #0099

    Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg.

    Hér kemur langur og góður þáttur, þetta er fyrsti undirbúnings þátturinn komandi ævintýrinu okkar. Í þessum fyrsta þætti ræðum við um ævintýrið og búum í sameiningu til borgina og samfélagið sem verður sögusvið ævintýrisins.


    Hér má sjá kortið borginni.

    https://ibb.co/fz3VN64R

    Mættir voru

    Hilmir

    Tryggvi

    Bjarni

    Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar

  28. #0098 Ævintýri í vændum

    42 Min.Folge 116

    #0098 Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Í þessari viku settust strákarnir niður og ræddu hvað væri framundan í hlaðvarpinu okkar. Mættir voru Hilmir Hannes Tryggvi Bjarni Takið þátt í umræðum og …

    Shownotes

    #0098

    Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg.

    Í þessari viku settust strákarnir niður og ræddu hvað væri framundan í hlaðvarpinu okkar.

    Mættir voru

    Hilmir

    Hannes

    Tryggvi

    Bjarni

    Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar

  29. #0097 Gestur | Mike Pohjola

    1 Std. 15 Min.Folge 115

    #0097 Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Það var okkur heiður að fá hinn Finnska meistara Mike Pohjola í heimsókn til okkar. Mike er rithöfundur, handritshöfundur, leikjahönnuður, frumkvöðull …

    Shownotes

    #0097

    Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg.

    Það var okkur heiður að fá hinn Finnska meistara Mike Pohjola í heimsókn til okkar. Mike er rithöfundur, handritshöfundur, leikjahönnuður, frumkvöðull, aktívisti og menningarfræðingur, svo eitthvað sé nefnt. En hann er líka mikill spunaspilari, LARP-ari og maðurinn á bakvið The Turku School.

    https://mikepohjola.fi/

    Mættir voru

    Hlynur

    Tryggvi

    Lúlli

    Mike

    Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar

  30. #0096 Allt og ekkert

    40 Min.Folge 114

    #0096 Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Í þessari viku mættu strákarnir algjörlega óundirbúnir í upptöku og töluðu um allt og ekkert. Mættir voru Hilmir Hlynur Tryggvi Bjarni Takið þátt í umræðum og …

    Shownotes

    #0096

    Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg.

    Í þessari viku mættu strákarnir algjörlega óundirbúnir í upptöku og töluðu um allt og ekkert.

    Mættir voru

    Hilmir

    Hlynur

    Tryggvi

    Bjarni

    Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar

Hier stehen die neuesten 40 von 142 Folgen. Ältere Folgen findest du im Feed des Podcasts.

Ähnliche Podcasts

Mehr Comedy-Podcasts
Ist das dein Podcast?

Bestätige es mit einem Eintrag in deinem Feed: Du bekommst hier einen Code, trägst ihn als podcast:txt in den Kanal deines Feeds ein, und wir prüfen ihn. Danach steht dein Podcast als „verifiziert“ bei SoundNode.

Einstellungen

Darstellung

Sprache

Bestimmt, welche Sender dir auf der Startseite zuerst gezeigt werden.

Verlauf

Zuletzt gehörte Sender und Folgen und deine letzten Suchen liegen nur in diesem Browser.

Hinweise

Ein kurzer Hinweis, wenn ein Podcast, dem du folgst, eine neue Folge hat. Einzelne Podcasts stellst du über die Glocke auf ihrer Seite ab.

Konto

Favoriten speichern – in der App und auf der Website.

Tastenkürzel

/
Suche öffnen
Leertaste
Abspielen oder anhalten
← →
Im Player: 15 s zurück, 30 s vor (Folgen) · im Regal: nächste Kachel
↑ ↓
Im Regal: Ziel innerhalb der Kachel
Pos1 / Ende
Im Regal: erste bzw. letzte Kachel
Esc
Fenster oder Menü schließen
?
Diese Übersicht
Läuft gerade

Zur Senderseite

Als Nächstes

    Folgen mit „Als Nächstes“ vormerken – sie laufen nach der aktuellen Folge.