
Spursmál
- Folgen
- 164
- Erscheint
- wöchentlich
- Letzte Folge
- 13. Nov. 2026
Über den Podcast
Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefánssonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14. Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum á mbl.is.
Folgen 164
#150. - Getur stjórn Landsvirkjunar ráðið nýjan forstjóra?
Hver er staða Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra í lok vikunnar nú þegar Landsvirkjunarmálið hefur enn undið upp á sig? Getur stjórnin sem nú er yfir fyrirtækinu ráðið nýjan forstjóra þrátt …
Shownotes
Hver er staða Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra í lok vikunnar nú þegar Landsvirkjunarmálið hefur enn undið upp á sig? Getur stjórnin sem nú er yfir fyrirtækinu ráðið nýjan forstjóra þrátt fyrir skakkaföllin að undanförnu?
Þessu svara stjórnmálarýnendurnir Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu og Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins í Spursmálaþætti dagsins.
Þá mæta þau á vettvang, glæpasagnahöfundarnir Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir. Þú hafa bæði gefið út bók fyrir þessi jól en þau standa einnig fyrir mikilli glæpasagnahátíð sem nú stendur yfir en hún hóf göngu sína árið 2013 og hefur vaxið mjög að burðum á þeim þrettán árum sem síðan eru liðin. Þau fara yfir fréttir vikunnar með Stefáni Einari.
Í lok þáttar ræða þau Georg Lúðvíksson hjá Spesíu og Snædís Ögn Flosdóttir, forstöðumaður markaða hjá Arion banka um þóknanir í fjármálakerfinu þegar kemur að fjárfestingum einstaklinga í verðbréfasjóðum. Hafa bankarnir verið að ofrukka fólk og er Spesía að slá nýjan tón á markaðnum? Allt kemur það í ljós á vettvangi Spursmála.
#149. - Eru dagar Viðreisnar taldir?
Hvert er pólitískt erindi Viðreisnar nú þegar þjóðin hefur hafnað Evrópuleiðangri flokksins? Þessari spurningu er hreyft í nýrri bók Björns Bjarnasonar þar sem hann gerir upp þjóðaratkvæðagreiðsluna sem efnt …
Shownotes
Hvert er pólitískt erindi Viðreisnar nú þegar þjóðin hefur hafnað Evrópuleiðangri flokksins? Þessari spurningu er hreyft í nýrri bók Björns Bjarnasonar þar sem hann gerir upp þjóðaratkvæðagreiðsluna sem efnt var til 29. ágúst síðastliðinn.
Hann er gestur Spursmála að þessu sinni og ræðir stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu og öðrum samstarfsþjóðum nú þegar ljóst er að Ísland er ekki á leið þangað inn.Pólitískur lífróður Landsvirkjunar
Á sama tíma og Viðreisn sleikir sárin eftir að hafa tapað þjóðaratkvæðagreiðslunni rær Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra pólitískan lífróður vegna málefna Landsvirkjunar. Hann er sakaður um að hafa afvegaleitt sjálft Alþingi með svörum sínum um málefni fyrirtækisins og eins eru uppi spurningar um pólitísk afskipti af þessu verðmætasta fyrirtæki landsins.
Til þess að ræða þetta mál mæta þau á vettvang Álfheiður Ingadóttir fyrrverandi alþingismaður og ráðherra en hún sat í stjórn Landsvirkjunar með hléum í hálfan annan áratug, og Sigurður Ingi Jóhannsson, alþingismaður og fyrrverandi fjármálaráðherra. Hann þekkir málefni Landsvirkjunar vel af þeim vettvangi.
#148. - Íslamskir öfgamenn, óþarfir biðlistar og kosningar
Hvað segir heimsókn Muhammad Taqi Usmani til Íslands um uppgang íslamskra öfgahópa hér á landi? Hver er afstaða múslima á Íslandi til þeirra viðhorfa sem hann heldur á lofti?Þetta er meðal þess sem rætt er í …
Shownotes
Hvað segir heimsókn Muhammad Taqi Usmani til Íslands um uppgang íslamskra öfgahópa hér á landi? Hver er afstaða múslima á Íslandi til þeirra viðhorfa sem hann heldur á lofti?
Þetta er meðal þess sem rætt er í Spursmálum í dag. Þar mætast þau Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss og Jasmina Vajzovic, stjórnmálafræðingur. Þau hafa átt orðastað á samfélagsmiðlum síðustu vikuna í kjölfar þess að Elliði lagði orð í belg um innflytjendamál á Íslandi.
Síðar í þættinum er rætt við Dagnýju Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Orkuhússins. Hún bendir á brotalamir í heilbrigðisþjónustunni hér á landi þar sem stjórnvöld draga úr fjölda aðgerða sem einkaaðilar hafa kost á að gera á sjúklingum sem eiga í alvarlegum stoðkerfisvanda á baki auk hnjá- og mjaðmaliða.
Í lok þáttarins er rætt við Gunnar Birgisson sem hefur starfað sem lögmaður í Bandaríkjunum í áratugi. Hann ræðir um stöðuna í stjórnmálunum þar í landi og leggur mat á stöðuna í kosningabaráttunni sem nær hápunkti í komandi viku. Þar verður kosið um þriðjung sæta í öldungadeild Bandaríkjaþings og öll sætin 435 sem skipuð eru í fulltrúadeild þingsins.
#147. - Veifa byssum á götum Reykjavíkur
Um tuttugu glæpahópar, sem flestir hafa rík tengsl við útlönd eru starfræktir hér. Vopnaútköllum lögreglu hefur fjölgað og tilteknir hópar innflytjenda hika ekki við að veifa skotvopnum á götum úti.Þetta er …
Shownotes
Um tuttugu glæpahópar, sem flestir hafa rík tengsl við útlönd eru starfræktir hér. Vopnaútköllum lögreglu hefur fjölgað og tilteknir hópar innflytjenda hika ekki við að veifa skotvopnum á götum úti.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðtali við Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjón og sviðsstjóra öryggis- og greiningarsviðs Ríkislögreglustjóra í Spursmálum í dag. Í þættinum eru birtar ljósmyndir af hópi innflytjenda sem veifa fjölda skammbyssa á götum úti á höfuðborgarsvæðinu og þær eru bornar undir Karl Steinar.Í fréttum vikunnar er rætt við Illuga Gunnarsson, fyrrverandi formann Ungra vinstri-grænna og Júlíus Viggó Ólafsson, formann Sambands ungra sjálfstæðismanna. Ræða þeir meðal annars innantökurnar í þingflokki Viðreisnar, mótmæla- og vargöldina sem geisar í París og sitthvað fleira.
#146. - Jón Gnarr leysir frá skjóðunni
Hvað gerðist að tjaldabaki í þingflokki Viðreisnar í aðdraganda þess að Jón Gnarr sagði skilið við hópinn? Gengið verður á þingmanninn í Spursmálum.Þá er einnig rætt við tvo varaformenn, Snorra Másson frá …
Shownotes
Hvað gerðist að tjaldabaki í þingflokki Viðreisnar í aðdraganda þess að Jón Gnarr sagði skilið við hópinn? Gengið verður á þingmanninn í Spursmálum.Þá er einnig rætt við tvo varaformenn, Snorra Másson frá Miðflokki og Guðmund Ara Sigurjónsson frá Samfylkingunni. Farið verður yfir stjórnmálaástandið, Bókun 35 og hallalaus fjárlög sem margir telja að verði allt annað en það.Í þættinum er sömuleiðis rætt við Björt Ólafsdóttur, fyrrverandi alþingismann og ráðherra og Hermann Nökkva Gunnarsson, aðstoðarmann Vilhjálms Árnasonar, bæjarstjóra Reykjanesbæjar. Þau rekja fréttir vikunnar þar sem húsleit hjá Ölgerðinni, leigubremsa og fleira kemur við sögu.Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur hjá Viðskiptaráði og Páll Ásgrímsson, aðallögfræðingur fjölmiðlafyrirtækisins Sýnar mæta einnig til leiks. Þeir ræða stöðuna á fjölmiðlamarkaði og fyrirhugaðar breytingar á lagaumgjörðinni um Ríkisútvarpið.
#145. - Skattaóð ríkisstjórn, ömurlegt leikrit og stýrivextir
Farið verður yfir fréttir vikunnar með fjölmiðlakonunni Elísabetu Ingu Sigurðardóttur og Hallmundi Albertssyni lögmanni. Elísabet hefur setið undir árásum Helga Magnússonar og Ólafs Arnarson í nafnlausum …
Shownotes
Farið verður yfir fréttir vikunnar með fjölmiðlakonunni Elísabetu Ingu Sigurðardóttur og Hallmundi Albertssyni lögmanni. Elísabet hefur setið undir árásum Helga Magnússonar og Ólafs Arnarson í nafnlausum skrifum þeirra á DV en pistill sem þeir birtu í liðinni viku hefur nú verið fjarlægður af vef fjölmiðilsins. Hallmundur hefur tekið að sér hagsmunavörslu fyrir forsvarsmenn hlaðvarpsins Chess after Dark en Fjölmiðlanefnd hefur sótt að þeim félögum eins og nokkrum öðrum hlaðvarpsstjórnendum sem ekki hafa viljað skrá starfsemi sína undir merkjum fjölmiðlunar.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar hefur staðið í eldlínunni síðustu daga vegna endurskoðunar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði en fyrr í vikunni gekk hin svokallaða Breiðfylking frá framlengingu samninga við SA til næsta árs. Hún hefur verið mjög gagnrýnin á framgöngu forystu VR sem beið með það fram á síðustu mínútu að staðfesta framlengingu samninganna. Hefur Sólveig frá því í gærkvöldi haft uppi stór orð um aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar sem hún segir að hafi verið kominn fram þegar Breiðfylkingin undirritaði framlengingu samninganna, jafnvel þótt látið hafi verið að því liggja að pakkinn hafi komið fram í kjölfar bægslagangs VR og fagfélaganna sem voru í samfloti með félaginu.
Jón Bjarnason er bóndi og oddviti Hrunamannahrepps. Hann hefur gagnrýnt harkalega fyrirætlanir stjórnvalda um stóraukna gjaldtöku á ferðaþjónustuna hér á landi og sér í lagi á Suðurlandi. Vísar hann þar bæði til hækkunar virðisaukaskatts á starfsemi baðlóna og náttúru- og innviðagjald sem sérstaklega er beint gegn Þingvöllum, Gullfossi og Geysi sem eru allt áningarstaðir á hinum svokallaða Gullna hring.
Hann ræðir þessi mál ásamt Bryndísi Björnsdóttur sem er framkvæmdastjóri Laugaráss Lagoon, sem er eitt af nýjustu baðlónum landsins og staðsett við bakka Hvítár í Biskupstungum. Fyrirtæki hennar endurmetur nú hvort ráðist verði í hóteluppbyggingu á svæðinu í kjölfar þess að stjórnvöld tilkynntu um stóraukna skattheimtu á starfsemi fyrirtækisins.
Í þættinum verður sömuleiðis rætt við Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóra peningastefnu en fyrr í vikunni tilkynnti Seðlabanki Íslands að hann hyggðist halda stýrivöxtum sínum óbreyttum í 8%. Hvað þarf til þess að bankinn taki að lækka vexti á ný og hvernir sér Þórarinn horfurnar þróast í íslensku hagkerfi á komandi misserum?
#144. - Vilja bera klæði á vopnin í ASÍ
Tveir bjóða sig fram til embættis forseta Alþýðusambands Íslands nú í mánuðinum en það fagnar 110 ára afmæli um þessar mundir. Þeir telja sig geta borið klæði á vopnin í erjum innan hreyfingarinnar.Þetta eru …
Shownotes
Tveir bjóða sig fram til embættis forseta Alþýðusambands Íslands nú í mánuðinum en það fagnar 110 ára afmæli um þessar mundir. Þeir telja sig geta borið klæði á vopnin í erjum innan hreyfingarinnar.
Þetta eru þeir Arnaldur Grétarsson, sem starfar á skrifstofu ASÍ og Georg Páll Skúlason, formaður stéttarfélagsins Grafíu.
Í þættinum er einnig rætt við þau Brynjar Níelsson, borgarfulltrúa og fyrrverandi aðstoðarmann dómsmálaráðherra og Lísu Kristjánsdóttur, fyrrverandi aðstoðarmann forsætisráðherra.
Þar verður meðal annars farið yfir atburðarás síðustu vikna þar sem Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi barna- og menntamálaráðherra hefur upplýst hvernig honum var bolað úr ráðherraembætti á sama tíma og hann jafnaði sig eftir stóra hjartaaðgerð á Landsspítalanum.
#143. - 1.685 milljarða pakki sem kíkja þarf í
Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 gerir ráð fyrir tæplega 1.700 milljarða útgjöldum ríkissjóðs á komandi ári. Allt stefnir í hörð átök í þinginu um þessi viðamiklu og stefnumarkandi lög.Af því tilefni mæta þeir …
Shownotes
Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 gerir ráð fyrir tæplega 1.700 milljarða útgjöldum ríkissjóðs á komandi ári. Allt stefnir í hörð átök í þinginu um þessi viðamiklu og stefnumarkandi lög.
Af því tilefni mæta þeir í Spursmál þingmennirnir Grímur Grímsson frá Viðreisn og Stefán Vagn Stefánsson frá Framsóknarflokki. Þeir líta þessi mál gjörólíkum augum og munu meðal annars takast á um skattahækkanir sem stefnir í á banka, ferðaþjónustu og ökumenn.
Í þáttinn mætir líka sveitarstjórnarfólk af Suðurnesjum. Þar eru á ferðinni Alexandra Jóhannesdóttir, bæjarstjóri í Suðurnesjabæ og Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Þau munu ræða fréttir vikunnar, niðurstöður Pisa-könnunar og margt fleira.
#142. - Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu
Grípa þarf til enn frekari aðhaldsaðgerða hjá Reykjavíkurborg að sögn Hildar Björnsdóttur borgarstjóra sem er gestur Spursmála að þessu sinni. Hallareksturinn nam 4,6 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi.Í liðinni …
Shownotes
Grípa þarf til enn frekari aðhaldsaðgerða hjá Reykjavíkurborg að sögn Hildar Björnsdóttur borgarstjóra sem er gestur Spursmála að þessu sinni. Hallareksturinn nam 4,6 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi.
Í liðinni viku var greint frá umtalsverðum skipulagsbreytingum hjá borginni sem spara eiga um 900 milljónir króna á ársgrundvelli. Fer Hildur yfir þessar aðgerðir í þættinum og hvernig hún hyggist á sama tíma standa vörð um grunnrekstur borgarinnar.
Í fréttum vikunnar er rætt við þá Magnús Jóhann Ragnarsson píanóleikara og Örn Arnarson, fjölmiðlarýni og hagfræðing sem starfar á Viðskiptablaðinu. Þeir ræða meðal annars miklar væringar á fjölmiðlamarkaði sem birtast í því að kvöldfréttir Sýnar heyra nú sögunni til.
Í síðasta hluta þáttarins er rætt við dr. Hannes Hólmstein Gissurarson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands. Hann rýnir í niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar um liðna helgi og hvað úrslitin þýða fyrir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur.
#141. - Uppgjörið
Meirihluti kjósenda hafnaði því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Að baki er löng og ströng barátta þar sem andstæðar fylkingar bárust á banaspjótum. En hver er staðan að átökum loknum?Þessu …
Shownotes
Meirihluti kjósenda hafnaði því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Að baki er löng og ströng barátta þar sem andstæðar fylkingar bárust á banaspjótum. En hver er staðan að átökum loknum?
Þessu hyggjast blaðamennirnir Andrea Sigurðardóttir og Andrés Magnússon svara í aukaþætti Spursmála sem fer í loftið klukkan 14:00. Þau hafa leitt fréttaumfjöllun Morgunblaðsins og mbl.is síðustu mánuði þar sem ljósi hefur verið varpað á kosti og galla mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu.
Í síðari hluta þáttarins mætir Óli Björn Kárason fyrrverandi ritstjóri og alþingismaður í þáttinn og ræðir nýjustu tíðindi af fjölmiðlamarkaði en í gær var tilkynnt um það að kvöldfréttatími Stöðvar 2 og síðast Sýnar hefði lagt upp laupana eftir 40 ára úthald.
Hvað þýðir þetta fyrir frjálsa fjölmiðlun í landinu og af hverju eiga fjölmiðlar jafn erfitt uppdráttar og raun ber vitni?
#140. - Titringur á lokametrum baráttunnar
Nú er innan við sólarhringur í að kjörstaðir opni um allt land og það styttist óðum í að úrslit fáist í einu stærsta pólitíska þrætumáli síðari ára á Íslandi. En hver verður niðurstaðan?Þeirri spurningu munu …
Shownotes
Nú er innan við sólarhringur í að kjörstaðir opni um allt land og það styttist óðum í að úrslit fáist í einu stærsta pólitíska þrætumáli síðari ára á Íslandi. En hver verður niðurstaðan?
Þeirri spurningu munu þau Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar reyna að svara í Spursmálum dagsins.
Í fréttum vikunnar verður rætt við þá Loga Bergmann Eiðsson og Jón Júlíus Karlsson en þeir halda úti hinu geysivinsæla hlaðvarpi Seinni níu. Þar verður óhjákvæmilega rætt um fráfall Haraldar Noregskonungs en einnig önnur tíðindi af innlendum og erlendum vettvangi.
Áður en rætt verður við þessi tvö tvíeyki mun Ingibjörg Davíðsdóttir, fyrrverandi sendiherra Íslands í Noregi mæta í Spursmál og ræða fráfall konungs og ríkisarfann sem nú hefur sest í hásætið í Ósló, Hákon VIII.
Í lok þáttar verður rætt við Sigríði Maríu Egilsdóttur, lögmann í New York og fyrrverandi varaþingmann Viðreisnar. Hún hefur skipt um skoðun í Evrópusambandsmálum. Hún hyggst segja nei á morgun og fyrir því eru mjög forvitnilegar ástæður sem hún verður spurð út í.
#139. - Gangi Ísland inn, þá verður ekki aftur snúið
Hilmar Veigar Pétursson stýrir Fenris Creations, áður CCP. Hann var sannfærður um að Ísland ætti að ganga í ESB. Nú hefur hann skipt um skoðun. Hann lýsir ástæðum þess í aukaþætti af Spursmálum. Hann flutti …
Shownotes
Hilmar Veigar Pétursson stýrir Fenris Creations, áður CCP. Hann var sannfærður um að Ísland ætti að ganga í ESB. Nú hefur hann skipt um skoðun. Hann lýsir ástæðum þess í aukaþætti af Spursmálum.
Hann flutti ræðu í liðinni viku á vettvangi samtakanna Áfram Ísland þar sem sjónum var beint að nýsköpunarfyrirtækjum á Íslandi og möguleikum slíkra fyrirtækja innan eða utan ESB.
Ræðan hlaut mikla athygli enda hafði Hilmar Veigar talað skarpt fyrir því á árinu 2014 að halda ætti áfram aðildarviðræðum við ESB og taka upp evru í stað krónunnar.
Um svipað leyti flutti Hilmar Veigar til Bretlands þar sem hið svokallaða BREXIT var nýlega um garð gengið. Hann segir að reynslan þaðan kenni að ef Ísland gangi einu sinni til liðs við ESB verði aldrei þaðan snúið að nýju.
Hann mun einnig fara yfir það í viðtalinu hvernig hann telji að það að „kíkja í pakkann“ muni taka athygli frá brýnum úrlausnarefnum í íslensku samfélagi og koma í veg fyrir að þjóðin grípi ótrúleg tækifæri, ekki síst á sviði hugverkaiðnaðarins.
#138. - 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands er gestur Stefáns Einars Stefánssonar í beinni útsendingu í Spursmálum.Þar mun hann gera upp baráttuna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst …
Shownotes
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands er gestur Stefáns Einars Stefánssonar í beinni útsendingu í Spursmálum.
Þar mun hann gera upp baráttuna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst, næstkomandi. Ólafur Ragnar hefur ekki farið leynt með afstöðu sína gegn Evrópusambandinu og hefur verið gagnrýninn á mögulega aðild Íslands að ESB. Segir hann slíkan könnunarleiðangur ótímabæran, enda sé Íslandi, líkt og Noregi og Sviss, betur borgið utan sambandsins og án upptöku á evru.
Í þáttinn mæta einnig hagfræðingarnir Konráð Guðjónsson og Þorsteinn Þorgeirsson til að ræða kosti og galla mögulegrar ESB-aðildar fyrir íslenskt efnahagslíf, áhrif upptöku á evru og stöðu vinnumarkaðarins í því samhengi.
#137. - Böðull látinn laus og kjarasamningar í uppnámi
Á sama tíma og þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB stendur fyrir dyrum styttist í að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði verði endurskoðaðir. Hvað ætlar verkalýðshreyfingin að gera? En atvinnurekendur?Þeim …
Shownotes
Á sama tíma og þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB stendur fyrir dyrum styttist í að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði verði endurskoðaðir. Hvað ætlar verkalýðshreyfingin að gera? En atvinnurekendur?
Þeim spurningum verður reynt eftir fremsta megni að svara í Spursmálum dagsins þar sem Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins mætast og fara yfir stöðuna. Ljóst er að verðbólgan mælist langt yfir því marki sem samið var um árið 2024.
Í þættinum verður einnig rætt við Óskar Magnússon, lögmann, rithöfund og bónda á Sámstaðabakka í Fljótshlíð og Sigríði Á. Andersen, þingmann Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra.
Þau verða meðal annars spurð út í nýjustu vendingar í máli áhafnarinnar á Bandero sem gerði óskunda inni í íslenskri lögsögu fyrir skemmstu og einnig verður vöngum velt yfir því hvernig það gat komið til að böðullinn Angjelin Sterkaj sem varð manni að bana með hrottafengnum hætti í Rauðagerði árið 2021 er laus úr íslensku fangelsi og farinn til heimalands síns, Albaníu.
#136. - Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur?
Engin þjóð hefur stofnað til umsóknar að Evrópusambandinu með þeim hætti sem íslensk stjórnvöld vilja gera nú. Hvað ætlast forystumenn ríkisstjórnarinnar fyrir í málinu?Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og …
Shownotes
Engin þjóð hefur stofnað til umsóknar að Evrópusambandinu með þeim hætti sem íslensk stjórnvöld vilja gera nú. Hvað ætlast forystumenn ríkisstjórnarinnar fyrir í málinu?Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og alþingismaður hefur fjallað ítarlega um yfirvofandi umsóknarferli Íslands og ræðir það í Spursmálum dagsins. Hann var meðal annars formaður utanríkismálanefndar Alþingis þegar Íslendingar samþykktu EES-samninginn fyrir sína parta.Auk Björns mæta stjórnendur hlaðvarpsins, Komið gott, á vettvang og ræða fréttir vikunnar. Það eru þær Kristín Gunnarsdóttir og Ólöf Skaftadóttir. Þar verður Evrópuumræðan sannarlega fyrirferðarmikil en sennilega munu hvalveiðar og átök við Íslandsstrendur einnig bera á góma.
#135. - Hverju búast menn við í aðildarsamningi?
Hvers væntir Já til að sjá-hreyfingin í aðildarsamningi við Evrópusambandið þegar hann liggur fyrir? Þeirri spurningu verður beint að Jónasi Hagan, fjárfesti og einum stofnenda hreyfingarinnar í Spursmálum …
Shownotes
Hvers væntir Já til að sjá-hreyfingin í aðildarsamningi við Evrópusambandið þegar hann liggur fyrir? Þeirri spurningu verður beint að Jónasi Hagan, fjárfesti og einum stofnenda hreyfingarinnar í Spursmálum dagsins.Þar mætir hann Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi en hún hefur ákveðnar hugmyndir um það hvað Evrópusambandið muni leggja upp með þegar kemur að stærstu auðlind þjóðarinnar í kringum landið.Þá mun Andrés Magnússon, blaðamaður og fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu mæta til leiks og ræða fréttir vikunnar. Þar verður sjónum meðal annars beint að hlutverki fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu sem þeirrar sem fram fer þann 29. ágúst. Eiga fjölmiðlar að vera hlutlausir í umfjöllun sinni?
#134. - Hart tekist á um vexti og atvinnuleysi
Dagur B. Eggertsson, alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri segir gríðarlegan velferðarábata felast í því að taka upp evru á Íslandi. Vitnar hann meðal annars til 12 ára gamallar skýrslu í því efni. Ásdís …
Shownotes
Dagur B. Eggertsson, alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri segir gríðarlegan velferðarábata felast í því að taka upp evru á Íslandi. Vitnar hann meðal annars til 12 ára gamallar skýrslu í því efni. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs og hagfræðingur segir skýrsluna úrelta.
Þau takast á um efnið og hvaða tækifæri felist mögulega í því að Ísland gangi í Evrópusambandið í aukaþætti Spursmála sem sendur er út á mbl.is klukkan 10:00 í dag. Unnin að beiðni ASÍ og fleiri 2014.
Skýrslan sem um ræðir og varð umtalsefni eftir að Dagur birti grein á visir.is þar sem hann vitnaði til hluta niðurstaðna hennar, var unnin af Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands árið 2014 að beiðni Alþýðusambands Íslands og nokkurra atvinnurekendasamtaka.
Þar eru kostir upptöku evru tíundaðir, meðal annars í ljósi þess gríðarlega verkefnis sem stóð fyrir dyrum um að koma Íslandi út úr fjármagnshöftum. Stjórnvöld Íslands á árunum 2009-2013 höfðu heykst á því verkefni og það var ekki fyrr en með ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem lausn fékk á þeim málum með tröllauknum samningum við kröfuhafa föllnu bankanna.
Ásdís Kristjánsdóttir brást við skrifum Dags og sagði stöðu efnahags- og peningamála allt aðra á Íslandi í dag en árið 2014. Grundvallarbreytingar hefðu verið gerðar á kerfinu sem hafi komið Íslandi á beinu brautina. Hún varar við inngöngu í ESB og upptöku evru og segir að með því missi Ísland mikilvægt hagstjórnartæki úr höndum.
#133. - Hefði Kerecis orðið til innan Evrópusambandsins?
Guðmundur Fertram Sigurjónsson er meðal gesta Spursmála þennan föstudaginn og ræðir þar af hverju hann leggst gegn aðildarviðræðum við ESB en hann flutti ræðu á fundi samtakanna Áfram Ísland sem haldinn var á …
Shownotes
Guðmundur Fertram Sigurjónsson er meðal gesta Spursmála þennan föstudaginn og ræðir þar af hverju hann leggst gegn aðildarviðræðum við ESB en hann flutti ræðu á fundi samtakanna Áfram Ísland sem haldinn var á Selfossi á miðvikudaginn síðastliðinn.Hann býr yfir alþjóðlegri reynslu og hefur starfað við uppbyggingu fyrirtækja í Bandaríkjunum, ýmsum ríkjum Evrópu og á Nýja-Sjálandi.Hver staðan á Kerecis?Í þættinum verður hann einnig spurður út í stöðuna á Kerecis sem rekur framleiðslustarfsemi sína á Ísafirði en fyrirtækið var selt til danska lækningavöruframleiðandans Coloplast fyrir þremur árum á nærri 180 milljarða króna.Íslenskt atvinnulíf, sjávarútvegur og ESBÍ þættinum verður einnig rætt við þá Hjálmar Vilhjálmsson sem situr í stjórn Já til að sjá og Hermann Guðmundsson sem er meðal stofnfélaga Áfram Ísland. Hjálmar er framkvæmdastjóri hjá útgerðarfélaginu Brimi og verður hann meðal annars spurður út í álitamál tengd íslenskum sjávarútvegi ef Ísland gengur í ESB. Hermann er forstjóri Kemi. Hvorugur þeirra kemur þó til samtals um þessi mál sem fulltrúi fyrirtækisins sem þeir starfa hjá heldur sem einstaklingar sem vilja beita sér fyrir málefnalegri umræðu um mögulega aðild Íslands að ESB.
#132. - Á ríkið eitt að selja fólki áfengi
Er ríkisvaldið eini aðilinn sem getur með viðunandi staðið að áfengissölu hér á landi? Er það ógn við lýðheilsu og heilbrigðiskerfið ef einkaaðilum er falið það verk? Hér mætast þeir Kári Stefánsson, læknir og …
Shownotes
Er ríkisvaldið eini aðilinn sem getur með viðunandi staðið að áfengissölu hér á landi? Er það ógn við lýðheilsu og heilbrigðiskerfið ef einkaaðilum er falið það verk?
Hér mætast þeir Kári Stefánsson, læknir og stofnandi Íslenskrar erfðagreiningar og Arnar Sigurðsson stofnandi og eigandi áfengisverslunarinnar Santé.
#131. - Kjaftæði um matvæla- og húsnæðisverð
Er dýrt að kaupa í matinn á Íslandi og er húsnæðismarkaðurinn ókleifari múr fyrir ungt fólk hér á landi en annars staðar. Hagfræðingurinn Konráð S. Guðjónsson verður knúinn svara um það í Spursmálum.Hann hefur …
Shownotes
Er dýrt að kaupa í matinn á Íslandi og er húsnæðismarkaðurinn ókleifari múr fyrir ungt fólk hér á landi en annars staðar. Hagfræðingurinn Konráð S. Guðjónsson verður knúinn svara um það í Spursmálum.
Hann hefur að undanförnu fjallað mikið um matvælaverð á Íslandi og hvernig markaðurinn hér á landi er í samanburði við nágrannaríkin. Í Spursmálum í dag hyggst hann einnig birta áhugaverðan samanburð á fasteignamarkaðnum á Íslandi og í Danmörku.
Í fréttum vikunnar er rætt við íþróttafréttamanninn Eddu Sif Pálsdóttur sem staðið hefur í ströngu meðan á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu hefur staðið og Jón Kristin Einarsson sagnfræðing sem þessa dagana fræðir íslensku þjóðina um sögu lands og þjóðar. Það gerir hann á nýstárlegan hátt í samtölum við helstu fræðimenn landsins á þessu sviði.
Þau munu þó ekki aðeins ræða HM og sagnfræði heldur einnig rýna í aðrar stórar fréttir vikunnar.
#130. - Innflutningur á glæpaklíkum og spurningin um ESB
Margt hefur dregið til tíðinda í íslensku samfélagi í vikunni sem nú er að líða. Á vettvangi Spursmála verður drepið niður í umræðu um nokkur helstu málin, meðal annars stórt fíkniefnasmygl sem nú tengist beint …
Shownotes
Margt hefur dregið til tíðinda í íslensku samfélagi í vikunni sem nú er að líða. Á vettvangi Spursmála verður drepið niður í umræðu um nokkur helstu málin, meðal annars stórt fíkniefnasmygl sem nú tengist beint veitingu ríkisborgararétts til albansks manns árið 2015. Hann er nú Íslendingur en fyrrgreint ár fóru ákveðnir fjölmiðlar og alþingismenn hamförum vegna ákvörðunar útlendingastofnunar um að vísa albanskri fjölskyldu úr landi.
Þingið kiknaði í hnjánum og gestrisni þess hefur nú verið endurgoldin með fyrrnefndum hætti þar sem hópur glæpamanna vinnur að því hörðum höndum að dæla ólöglegum fíkniefnum inn í landið.
Fréttir vikunnar og ESB-málin í forgrunni
Þetta mál og fleiri ræða þeir Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs Fjarðarbyggðar og Ásmundur Friðriksson, fyrrverandi alþingismaður og bæjarstjóri og rithöfundur með meiru þar sem farið er yfir fréttir vikunnar.
Ásmundur sat á Alþingi þegar fyrrnefnd ákvörðun var tekin.
Í síðari hluta þáttarins er rætt við dr. Björn Zoëga, forstjóra King Faisal sjúkrahússins í Sádi-Arabíu en hann kom fram á upphafsfundi Áfram Ísland á mánudaginn þar sem hann færði rök fyrir því af hverju Íslendingar eigi að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst næstkomandi.
#129. - Ungt fólk, stórar spurningar og harðnandi barátta
Baráttan um framtíð Íslands gagnvart Evrópusambandinu færist nú á nýtt stig og í Spursmálum vikunnar er tekist á við stóru spurningarnar sem blasa við þjóðinni fyrir atkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Í þættinum er …
Shownotes
Baráttan um framtíð Íslands gagnvart Evrópusambandinu færist nú á nýtt stig og í Spursmálum vikunnar er tekist á við stóru spurningarnar sem blasa við þjóðinni fyrir atkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Í þættinum er rætt um upplýsingagjöf stjórnvalda, stöðu krónunnar, áhrif mögulegrar aðildar á atvinnulíf og heimili landsmanna og ekki síst það hvernig ungt fólk hyggst láta til sín taka í einni stærstu pólitísku umræðu síðari ára.
Farið er yfir fréttir vikunnar, þar á meðal hvalveiðar, stöðu Landhelgisgæslunnar, menntamál og þá umræðu sem nú stendur um einkunnagjöf og samræmt mat í skólakerfinu. Gestir þáttarins koma úr ólíkum áttum og draga fram mismunandi sjónarmið, en sameiginlegt er að umræðan er beinskeytt, lifandi og á köflum snörp. Í seinni hluta þáttarins mætast fulltrúar ungs fólks sitthvoru megin í ESB-deilunni og ræða hvað raunverulega er undir þegar þjóðin gengur að kjörborðinu.
Gestir þáttarins eru Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri Kötlu DMI og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akranesi, og Einar Jóhannes Guðnason, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Kópavogi, sem fara yfir fréttir vikunnar með Stefáni Einari Stefánssyni. Í síðari hluta þáttarins mæta Júlíus Viggó Ólafsson, formaður Ung gegn ESB-aðild, og Óðinn Freyr Baldursson, formaður Ungra Evrópusinna.
#128. - Þjóðaratkvæði, þjóðargrafreitur og milljarðarnir í boltanum
Í Spursmálum vikunnar fara þingmennirnir Jón Gnarr og Snorri Másson yfir lok þingvetrarins og takast á um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þar greinir þá á um hvort …
Shownotes
Í Spursmálum vikunnar fara þingmennirnir Jón Gnarr og Snorri Másson yfir lok þingvetrarins og takast á um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þar greinir þá á um hvort verið sé að „kíkja í pakkann“ eða veita stjórnvöldum opið umboð til að sækja um aðild.
Þá er rætt um Þingvelli, vel heppnaða tónleika Kaleo og þjóðargrafreitinn þar sem hugsanleg rannsókn á beinum Jónasar Hallgrímssonar vekur spurningar um sögu, virðingu og helgi.
Í lok þáttarins ræðir Sævar Þór Sveinsson, sérfræðingur í fjármálum íþrótta og maðurinn á bak við Utanvallar.is, um gríðarlegt umfang heimsmeistaramótsins í knattspyrnu, tekjur FIFA, hækkandi miðaverð og hvað HM-sæti hefði þýtt fjárhagslega fyrir íslenska knattspyrnu.
#127. - Myndi matvælaverð lækka eða hækka við ESB-aðild?
Ýmsum fullyrðingum hefur verið haldið á lofti um að matvælaverð muni lækka ef Ísland gengur í Evrópusambandið. Því hefur jafnvel verið haldið fram að það muni lækka um allt að fjórðung.Hvað er satt og logið í …
Shownotes
Ýmsum fullyrðingum hefur verið haldið á lofti um að matvælaverð muni lækka ef Ísland gengur í Evrópusambandið. Því hefur jafnvel verið haldið fram að það muni lækka um allt að fjórðung.
Hvað er satt og logið í því? Þeirri spurningu munu þær Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og stjórnarmaður í Heimssýn og Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og stjórnarmaður í Evrópuhreyfingunni reyna að svara á vettvangi Spursmála í dag.Þá munu hagfræðingarnir Birta Karen Tryggvadóttir og Þórður Gunnarsson rýna í nýja fjármálaáætlun ríkisins. Birta Karen birti fyrr í vikunni grein þar sem hún gagnrýnir vinnubrögð fjármálaráðherra og Alþingis þar sem fjármálaáætlun til ársins 2031 var samþykkt án þess að tillit væri tekið til nýrrar hagspár Seðlabanka Íslands sem gerir ráð fyrir talsvert verri horfum á komandi árum og misserum en áður var gert.
#126. - Er upptaka evru ógn við efnahag Íslands?
Jón Helgi Egilsson er doktor í peningamálahagfræði. Hann segir að upptaka evru gæti leitt hundruða milljarða króna tjón yfir íslenskt efnahagslíf ef atvinnuleysi myndi aukast vegna gjaldmiðilsins.Þetta er meðal …
Shownotes
Jón Helgi Egilsson er doktor í peningamálahagfræði. Hann segir að upptaka evru gæti leitt hundruða milljarða króna tjón yfir íslenskt efnahagslíf ef atvinnuleysi myndi aukast vegna gjaldmiðilsins.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítarlegu viðtali við Jón Helga í Spursmálum þennan föstudaginn. Bendir hann á að sú fastgengisstefna sem óhjákvæmilega myndi fylgja upptöku evru gæti leitt til aukins atvinnuleysis í kjölfar efnahagsáfalla.Jón Helgi hefur ritað tvær greinar í Morgunblaðið að undanförnu þar sem hann ræðir gjaldmiðlamál. Þar hefur hann meðal annars gagnrýnt stjórnvöld fyrir að rangtúlka niðurstöður skýrslu sem fjármála- og efnahagsráðherra lét gera á kostum þess að taka upp evru. Bendir hann á að í skýrslunni hafi auk þess ekkert mat verið lagt á það hvaða áhrif upptöku gætu haft á atvinnustig í landinu.
Þá mætir einnig í Spursmál Jón Bjarnason sem var ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála á árunum 2009-2011 meðan Ísland stóð í aðlögunarviðræðum við Evrópusambandið. Hann segir að Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Brussel og þáverandi aðalsamningamaður Íslands í umsóknarferlinu við ESB á sínum tíma fari með rangt mál þegar hann lýsi ferlinu. Vissulega hafi verið hafin aðlögun að reglum ESB í ferlinu.
Skyggnst er að tjaldabaki í samtalinu við Jón og lýsir hann meðal annars ótrúlegum samskiptum sínum við Steingrím J. Sigfússon, þáverandi formann Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og Jóhönnu Sigurðardóttur, formann Samfylkingarinnar.
Í þættinum er einnig rætt við þá Birgi Olgeirsson, fréttamann á Sýn og Bjarna Helgason, fréttastjóra íþrótta á Morgunblaðinu og mbl.is. Þeir fara yfir Heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem hófst með látum í gærkvöldi, afrekið sem Gunnlaugur Árni Sveinsson vann þegar hann vann sér inn þátttökurétt á US Open í golfi. En þeir láta ekki þar við sitja. Þeir munu skyggnast yfir fleiri fréttir sem hátt bar í vikunni sem leið.
#125. - Áslaug kveður, ESB-sumarið hefst
Í Spursmálum vikunnar er farið yfir pólitíska jarðskjálfta síðustu daga, brotthvarf Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur úr stjórnmálum og það sem kann að bíða hennar handan þingsalarins. Þá hefst heit umræða um …
Shownotes
Í Spursmálum vikunnar er farið yfir pólitíska jarðskjálfta síðustu daga, brotthvarf Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur úr stjórnmálum og það sem kann að bíða hennar handan þingsalarins. Þá hefst heit umræða um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, enda virðist íslenska sumarið ekki eiga að fara í sól, sund og pylsur heldur gjaldmiðlamál, fullveldi og skýrslur.
Hermann Nökkvi Gunnarsson og Hlédís Maren Guðmundsdóttir fara yfir fréttir vikunnar, þar á meðal stöðu Miðflokksins eftir kosningar, fánamál í Reykjavík, útlendingamál í Reykjanesbæ, Icelandair, Oculis og umræðuna um íslenska fánann. Þá ræðir Áslaug Arna ákvörðun sína og framtíðina, áður en Lilja Alfreðsdóttir og Dagbjört Hákonardóttir takast hressilega á um ESB, krónuna, EES-samninginn og stöðu Íslands í breyttum heimi.
Bókaspjall: Þorskastríðin með Guðna Th. Jóhannessyni
Í þættinum ræðir Stefán Einar Stefánsson við Guðna Th. Jóhannesson, sagnfræðiprófessor og fyrrverandi forseta Íslands, um bók hans Stund milli stríða: Saga landhelgismálsins 1961 til 1971. Rætt er um …
Shownotes
Í þættinum ræðir Stefán Einar Stefánsson við Guðna Th. Jóhannesson, sagnfræðiprófessor og fyrrverandi forseta Íslands, um bók hans Stund milli stríða: Saga landhelgismálsins 1961 til 1971.
Rætt er um Þorskastríðin, átökin við Breta, togvíraklippur, NATO-vopnið, hleranir, alþjóðalög og þá flóknu sögu sem mótaði sjálfsmynd Íslendinga sem strandþjóðar.
Guðni segir frá lykilatvikum, persónum og pólitískum átökum tímabilsins og veltir fyrir sér hvernig sagan lifir áfram í samtímanum, meðal annars í umræðu um fullveldi, auðlindir og samband Íslands við Evrópu.
#124. - Guðrún vs. Sigmundur og blikur á lofti
Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur náðu ekki saman um meirihluta í höfuðborginni, þrátt fyrir vonir margra þar um. Formenn flokkanna, þau Guðrún Hafsteinsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gera upp …
Shownotes
Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur náðu ekki saman um meirihluta í höfuðborginni, þrátt fyrir vonir margra þar um. Formenn flokkanna, þau Guðrún Hafsteinsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gera upp sveitarstjórnarkosningarnar og fara yfir yfirvofandi þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst.
Þá mætir til leiks Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku banka en hann ritaði grein í Morgunblaðið í morgun sem nefnist Maður mjólkar ekki dauða kú. Hann hefur verulegar áhyggjur af stöðu Icelandair sem hann segir mikilvægasta fyrirtæki landsins. Hann kom að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins í Covid-faraldrinum og þekkir því vel til á vettvangi. Hvað er til ráða? Er hætt við því að Íslendingar missi úr höndunum þessa lífæð milli landsins og meginlandanna í austri og vestri?
Í lok þáttarins ræðir Stefán Einar við þau Önnu Laufeyju Stefánsdóttur hjá Stafrænni velferð og Svein Tryggvason, framkvæmdastjóra Tæknivara. Þau hafa áhyggjur af stöðu samfélagsmiðla og hvernig þeir virka á unga fólkið í landinu. Hvar liggur vandinn? Eru þessir sömu miðlar nú þegar búnir að gleypa foreldra barnanna?
#123. - Er kreppuverðbólga að skella á landinu?
Sveitarstjórnarkosningarnar, efnahagshorfur og áhrif stýrivaxta á heimili og fyrirtæki eru meðal þess sem tekið er fyrir í Spursmálum í dag.Þar fara þau Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, og …
Shownotes
Sveitarstjórnarkosningarnar, efnahagshorfur og áhrif stýrivaxta á heimili og fyrirtæki eru meðal þess sem tekið er fyrir í Spursmálum í dag.Þar fara þau Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, og Katrín Júlíusdóttir, ráðgjafi og fyrrverandi ráðherra, yfir helstu fréttir vikunnar og rýna í niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna.Í síðari hluta þáttarins ræða þau Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, og Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og ráðgjafi, um stöðu efnahagsmála hér á landi, stýrivaxaákvörðun Seðlabanka Íslands og horfur á næstu misserum.
Bókaspjall: Frelsið eftir Mill með Hannesi Hólmsteini
Frelsi, nytjastefna, málfrelsi og staða hugmynda í samtímanum voru til umræðu þegar Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus, ræddi við Stefán Einar Stefánsson í Bókaklúbbi Spursmála um bókina Frelsið …
Shownotes
Frelsi, nytjastefna, málfrelsi og staða hugmynda í samtímanum voru til umræðu þegar Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus, ræddi við Stefán Einar Stefánsson í Bókaklúbbi Spursmála um bókina Frelsið eftir John Stuart Mill.
Hier stehen die neuesten 40 von 164 Folgen. Ältere Folgen findest du im Feed des Podcasts.
Ähnliche Podcasts
Mehr Nachrichten-PodcastsIst das dein Podcast?
Bestätige es mit einem Eintrag in deinem Feed: Du bekommst hier einen Code, trägst ihn als podcast:txt in den Kanal deines Feeds ein, und wir prüfen ihn. Danach steht dein Podcast als „verifiziert“ bei SoundNode.





