
#0108 Hópfjármögnun og ægivald valkostanna
Shownotes
Þátturinn er í boði Malbygg
Er þetta of mikið? Of stórir tölvuleikir? Of mikið af efni á streymisveitum? Of margir valkostir? Verðum við að geta spilað leik og horft og þátt og verið í símanum á sama tíma? Er þetta ný tegund miðlunar í dag? Hannes Óli segir okkur frá "second-screen theory", við syrgjum þá tölvuleiki sem við höfum ekki náð að klára og köfum ofaní allt dótið sem við höfum keypt gegnum hópfjármögnun á borð við Kickstarter.
Tossaspilararnir eru mættir á ný fyrir framan hljóðneman og ræða málin af dýpt og næmni, eins og vanalega. Og hver veit nema það komi jafnvel óvæntir gestir eða tveir...
Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:
www.facebook.com/groups/svortutungurnar
Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:
Insta: www.instagram.com/svortutungurnar
Vefsíða: www.svortutungurnar.is/
– Mættir eru: Hannes, Hjörtur og Snæbjörn
– Tónlist: Confusion
– Flytjandi: Scorching Ray Taylor