
Meiosis-ferli Hins Yfirnáttúrlega og Geimsýrunar er hafið
Shownotes
Þessi þáttur er fyrsti samruna þáttur Hins Yfirnáttúrulega og Geimsýrunar. Dagný og Selma hafa í dágóðan tíma haldið út hið sívinsæla Hlaðvarp Hið Yfirnáttúrulega. Þar fjalla þær um um allskonar yfirnáttúrulegt, andlegt og dulúðlegt. Ákvörðun var tekin á Heimsljós hátíðinni að efna til samruna einu sinni í mánuði og slá saman strengi undir sameiginlegum hatt Geimsýrunar og Hins Yfirnáttúrlega. Í þessum þætti rúlluðum við yfir áform hvað varðar Íslandsheimsókn Bashar, fórum yfir stórkostlega reynslu Dagnýjar sem mögulega gæti skilgreints sem etherískt brottnámstilfelli, eða einna heldur kannski einskonar starfskynning um borð í geimskip. Flott flæði á okkur sálusystkynunum og án efa aðeins byrjunin á einhverju svo stórkostlegu að það nær í raun engri átt.