
Þvottahúsið og Geimsýran
- Folgen
- 182
- Erscheint
- täglich
- Letzte Folge
- 12. Nov. 2026
Über den Podcast
Geimsýran flæðir stjórnlaust og er í boði Þvottahússins. Geimsýran fjallar um allt sem snertir á UFO/NHI og uppljóstrun málaflokksins í heild sinni. Einnig er snert á málum sem gætu skilgreinst sem andleg og heimspekileg. Áskriftarþættir og aukaefni eru á http://patreon.com/geimsyran
Folgen 182
Sjálfhverfa, krónískt eða læknanlegt?
Send us Fan MailÍ þessu mannlega horni Geimsýrunar tek ég deepDive á sjálfhverfu. Hvað veldur henni, hvernig lítur hún út og hvað er mögulega hægt að gera til að losna undan henni? Sjúklega áhugavert að að …
Shownotes
Í þessu mannlega horni Geimsýrunar tek ég deepDive á sjálfhverfu. Hvað veldur henni, hvernig lítur hún út og hvað er mögulega hægt að gera til að losna undan henni? Sjúklega áhugavert að að grúska í þessu vitundarástandi sem og oft á tíðum persónueinkenni.
Ég fæ ekki nóg af þessum DIRD skjölum
Send us Fan MailÍ sjötta UFO-droppinu frá WAR.GOV eru gömul rannsóknargögn frá AAWSAP/DIA sem opna ansi áhugaverða glugga inn í það sem bandaríska varnarkerfið var tilbúið að rannsaka.Þarna er að finna …
Shownotes
Í sjötta UFO-droppinu frá WAR.GOV eru gömul rannsóknargögn frá AAWSAP/DIA sem opna ansi áhugaverða glugga inn í það sem bandaríska varnarkerfið var tilbúið að rannsaka.
Þarna er að finna rannsóknir á andþyngdarafli, háþróaðri framdrifstækni, rúm-tíma verkfræði, ormagöngum, metamaterials, superconductors – og jafnvel tengingum milli heila og véla.
Svo koma inn Hal Puthoff, remote viewing, psionics og furðuleg tenging við rannsóknarumhverfið í Huntsville.
Eru þetta bara aðskildar rannsóknir á mögulegri framtíðartækni? Eða eru einhverjar stærri spurningar að baki?
Í þessum þætti skoðum við skjölin, hvað þau segja í raun og veru – og hvað þau segja okkur um það sem menn voru tilbúnir að rannsaka þegar engin svör voru til.
Skoðum allt, trúum engu.
Hver er grunnorsök alkóhólisma?
Send us Fan MailÍ mannlega horni Geimsýrunar fer ég yfir grunnorsök alkóhólisma samkvæmt minni sannfæringu. Tek það fram að stundum kemst ég að því að ég hef rangt fyrir mér, það er eini fyrirvarinn við …
Shownotes
Í mannlega horni Geimsýrunar fer ég yfir grunnorsök alkóhólisma samkvæmt minni sannfæringu. Tek það fram að stundum kemst ég að því að ég hef rangt fyrir mér, það er eini fyrirvarinn við innihald þessa þáttar. Lífið er Guð, lífið er Guð innra með mér.
Meiosis-ferli Hins Yfirnáttúrlega og Geimsýrunar er hafið
Send us Fan MailÞessi þáttur er fyrsti samruna þáttur Hins Yfirnáttúrulega og Geimsýrunar. Dagný og Selma hafa í dágóðan tíma haldið út hið sívinsæla Hlaðvarp Hið Yfirnáttúrulega. Þar fjalla þær um um allskonar …
Shownotes
Þessi þáttur er fyrsti samruna þáttur Hins Yfirnáttúrulega og Geimsýrunar. Dagný og Selma hafa í dágóðan tíma haldið út hið sívinsæla Hlaðvarp Hið Yfirnáttúrulega. Þar fjalla þær um um allskonar yfirnáttúrulegt, andlegt og dulúðlegt. Ákvörðun var tekin á Heimsljós hátíðinni að efna til samruna einu sinni í mánuði og slá saman strengi undir sameiginlegum hatt Geimsýrunar og Hins Yfirnáttúrlega. Í þessum þætti rúlluðum við yfir áform hvað varðar Íslandsheimsókn Bashar, fórum yfir stórkostlega reynslu Dagnýjar sem mögulega gæti skilgreints sem etherískt brottnámstilfelli, eða einna heldur kannski einskonar starfskynning um borð í geimskip. Flott flæði á okkur sálusystkynunum og án efa aðeins byrjunin á einhverju svo stórkostlegu að það nær í raun engri átt.
Pabbadagurinn er í dag
Send us Fan MailÞað er pabbadagur í dag. Ég var að komast að því. Gleymdist í hasarnum en það er allt í lagi. Í þessum þætti fer ég yfir pabbana, hlutverkið, fórnina og verðlaunin. Það er ekki hægt að lýsa því …
Shownotes
Það er pabbadagur í dag. Ég var að komast að því. Gleymdist í hasarnum en það er allt í lagi. Í þessum þætti fer ég yfir pabbana, hlutverkið, fórnina og verðlaunin. Það er ekki hægt að lýsa því hvað faðirhlutverkið hefur verið mikill skóli fyrir mig. Þá má segja að dóttir mín hafi í raun alið mig upp og gert mig að þeim manni sem ég tel mig vera í dag. Til hamingju með daginn pabbar. Þið rokkið, þið eruð æðislegir, þið setjið allt í samhengi.
Galdrarnir eru fólgnir í ást, ástin er galdrar
Send us Fan MailJæja krakkar. Það er ekki hægt að lýsa ástinni sem umlykur okkur. Orðin ljúga einfaldlega og því þögnin því kannski bara best þegar allt kemur til alls. Engu að síður, reyndi ég að koma þessu i …
Shownotes
Jæja krakkar. Það er ekki hægt að lýsa ástinni sem umlykur okkur. Orðin ljúga einfaldlega og því þögnin því kannski bara best þegar allt kemur til alls. Engu að síður, reyndi ég að koma þessu i orð þó svo að sumt er svo skrítið og heilagt að ekki má einu sinni tala um það.
Upprisan á fimmtudegi
Send us Fan MailElskurnar. Ég var beðin um fjölbreyttari umræðu í Geimýrunni, ekki bara UFO og Ayahuasca. Þeirri beiðni var hafnað og samþykkt á sama tíma. Allt snýst þetta um þessa leið vitundarlegu pólskifta …
Shownotes
Elskurnar. Ég var beðin um fjölbreyttari umræðu í Geimýrunni, ekki bara UFO og Ayahuasca. Þeirri beiðni var hafnað og samþykkt á sama tíma. Allt snýst þetta um þessa leið vitundarlegu pólskifta sem einstaklingurinn og hóparnir feta þessa dagana. Uppljómunin er hafin og allt tengist þetta, UFO, Sækadelika, þjónusta, fjölskylda, tilfinningar, úrvinnsla, hugsun, vísindi, athöfn, eirð og eirðarleysi. Ég er nú farin í síðustu Ayahuasca athöfnina á þessu ári og mun greina fyrir niðurstöðunni í fyrramálið þegar ég kem aftur tilbaka í bækistöðvarnar. Ég elska hreinlega allt og okkur og bara hreint namaste til ykkar. Om og friður og Om.
Hvað ef við erum bara að búa þetta til?
Send us Fan MailHvað ef við erum að skapa veruleikann?Hvað ef við erum ekki bara áhorfendur að veruleikanum – heldur þátttakendur í því hvernig hann verður til?Í þessum þætti tengi ég saman UFO, meðvitund, DNA …
Shownotes
Hvað ef við erum að skapa veruleikann?
Hvað ef við erum ekki bara áhorfendur að veruleikanum – heldur þátttakendur í því hvernig hann verður til?
Í þessum þætti tengi ég saman UFO, meðvitund, DNA, skammtafræði, fornar hugmyndir um eðli mannsins, AI og disclosure. Hvað ef UFO-fyrirbærið snýst ekki bara um „þau“ heldur líka um okkur? Og hvað ef ofurgreind framtíðarinnar á eftir að sýna okkur eitthvað sem við höfum ekki enn áttað okkur á?
Kannski er stærsta spurningin ekki lengur: Eru þau til?
Heldur: Hvað erum við – og hvað erum við að gera hér?
Shitt hvað ég get orðið þreyttur á þessu!!
Send us Fan MailStundum er maður bara brjálaður á þessu öllu. Þessir djöfulls UFO kallar sem benda allir á hvorn annan og segja hitt og þetta og gefa út sína memoir bækur og væla svo yfir hvað þeir eru fátækir …
Shownotes
Stundum er maður bara brjálaður á þessu öllu. Þessir djöfulls UFO kallar sem benda allir á hvorn annan og segja hitt og þetta og gefa út sína memoir bækur og væla svo yfir hvað þeir eru fátækir. Það er verið að spila með okkur. Raunveruleikinn er svo miklu skrítnari en við höldum hvað þetta varðar. Hið upplýsta alvaled mun stíga hér niður einn daginn og skilja okkur eftir agndofa á undrun. Þá mun allur efi verða hreinsaður úr hjörtum okkar og við munum vita tilgang okkar hér í þessum líkama, í þessu lífi.
Af hverju heyrist ekkert í þessum einkaverktökum?
Send us Fan MailUFO-UPPLJÓSTRUNIN – HVAR ERU EINKAVERKTAKARNIR?Sjö gagnadropp frá bandarískum stjórnvöldum, hundruð skjala og sífellt fleiri frásagnir af óþekktum fyrirbærum. En hvar eru stóru …
Shownotes
UFO-UPPLJÓSTRUNIN – HVAR ERU EINKAVERKTAKARNIR?
Sjö gagnadropp frá bandarískum stjórnvöldum, hundruð skjala og sífellt fleiri frásagnir af óþekktum fyrirbærum. En hvar eru stóru varnartæknifyrirtækin?
Lockheed Martin, Northrop Grumman, Raytheon og Boeing hafa öll verið nefnd í umræðunni um meint leynileg endurheimtarverkefni. Samt hefur lítið heyrst frá þeim.
Nú þegar þingkosningar nálgast í Bandaríkjunum vaknar spurningin: Er Donald Trump að undirbúa stærstu uppljóstrun mannkynssögunnar eða erum við að horfa á stýrt upplýsingaflæði?
Og ef raunverulegar sannanir eru til, gætu þær þá verið í höndum einkafyrirtækja frekar en stjórnvalda?
Geimsýran – Skoðum allt, trúum engu.
Get ég sagt mig úr lýðræðinu án þess að segja mig úr samfélaginu?
Send us Fan MailÉg hef sent dómsmálaráðuneytinu formlega fyrirspurn um hvort íslenskur ríkisborgari geti sjálfviljugur og varanlega afsalað sér kosningarétti án þess að missa ríkisborgararétt sinn.Ég hef ekki …
Shownotes
Ég hef sent dómsmálaráðuneytinu formlega fyrirspurn um hvort íslenskur ríkisborgari geti sjálfviljugur og varanlega afsalað sér kosningarétti án þess að missa ríkisborgararétt sinn.
Ég hef ekki lengur trú á lýðræðinu í þeirri mynd sem það birtist okkur í dag og hef tekið þá ákvörðun að standa utan pólitískrar þátttöku. En hvers vegna ætti ég ekki að geta gert þá ákvörðun formlega og lagalega bindandi?
Ég vil áfram greiða mína skatta, hlíta lögum og vera virkur samfélagsþegn. Ég vil einfaldlega ekki taka þátt í því pólitíska umboði sem kerfið byggir á.
Í þessum þætti Geimsýrunnar velti ég fyrir mér mörkum einstaklingsfrelsis, sjálfsákvörðunarréttar og lýðræðis.
Er rétturinn til að kjósa líka rétturinn til að hafna kosningaréttinum?
Skoðum allt, trúum engu.
Rifan í sviðsmyndinni
Send us Fan MailÍ þessum þætti Geimsýrunar fer ég yfir þessa togstreitu sem hlýst að því að vera strengdir milli tveggja heima. Þegar rifan í sviðsmyndinni fer að vera sýnileg og maður stendur frammi fyrir því …
Shownotes
Í þessum þætti Geimsýrunar fer ég yfir þessa togstreitu sem hlýst að því að vera strengdir milli tveggja heima. Þegar rifan í sviðsmyndinni fer að vera sýnileg og maður stendur frammi fyrir því að þurfa að umbera blekkinguna þrátt fyrir að ljósið s´kýni svo skýrt í gegn.
Minni á þætti Geimsýruar á http://patreon.com/GeimsýranSambíóin bætast í hópinn
Send us Fan MailÍ þessum þætti kynni ég fyrir Sambíóin sem nýjan samstarfsfélaga Geimsýrunar. Sambíóin er mekka íslenskrar kvikmyndamenningar og með stolti kynnir Geimsýran þau til leiks. Það mun fela í sér …
Shownotes
Í þessum þætti kynni ég fyrir Sambíóin sem nýjan samstarfsfélaga Geimsýrunar. Sambíóin er mekka íslenskrar kvikmyndamenningar og með stolti kynnir Geimsýran þau til leiks. Það mun fela í sér sameiningu á kvikmyndum, UFO, NHI, vísindum, tilfinningum og hughrifum. Geimsýran mun verða með gagnrýnisþætti á þær kvikmyndir sem passa inn í þessa ofangreindu þætti og þykir þetta ekki bara gríðarlega mikill heiður heldur alveg stórkostlega skemmtileg viðbót í jöfnuna. Geimsýran flæðir stjórnlaust og ekkert fær stöðvað hana. Mér þykir vænt um ykkur, namaste.
Svo kemur bara mánudagur á eftir Ayahuasca
Send us Fan MailSmá follow up á Ayahuasca ferðalaginu. Nú er mánudagurinn að verða búin að svefninn komin í lag og maður búin að melta þetta aðeins. Hverju skilar þetta allt og hvað á maður að gera við þessar …
Shownotes
Smá follow up á Ayahuasca ferðalaginu. Nú er mánudagurinn að verða búin að svefninn komin í lag og maður búin að melta þetta aðeins. Hverju skilar þetta allt og hvað á maður að gera við þessar upplýsingar, þessar breytingar sem manni eru færðar? Lífið er svo æðislegt og plantan, Ayahuasca svo ótrúlega öflugur kennari. Ég er svo þakklátur fyrir að vera settur á þessa vegferð, það er nó turning back!!
Þegar skömminni er ælt í Ayahuasca
Send us Fan MailÍ þessu mannlega horni fór ég yfir þessi rosalegustu Ayahuasca ferð. Var tekin í skömm og myrkur sem einungis var hægt að losa úr kerfinu í gegnum uppkast eða "purge"Þar eftir tók við ferli sem …
Shownotes
Í þessu mannlega horni fór ég yfir þessi rosalegustu Ayahuasca ferð. Var tekin í skömm og myrkur sem einungis var hægt að losa úr kerfinu í gegnum uppkast eða "purge"
Þar eftir tók við ferli sem er ekki hægt að lýsa öðruvísi en að ég hvarf og varð andardráttur, eina mantran sem situr eftir er allt annað er strípað. Dásamlegur leikur lífið, fullt af allskonar, sumt ber að halda í á meðan annað okkur ber að losa okkur við, enda ekki okkar.
Þykir vænt um ykkur á sunnudagsmorgni.
http://patreon.com/Geimsýran"Þetta er ekki hægt"
Send us Fan Mail„Þetta er ekki hægt!“Þessi orð lét ég falla í miðri ayahuasca-reynslu sem hefur fengið mig til að endurskoða hugmyndir mínar um vitundina og raunveruleikann.Ég upplifði stað sem mér fannst ég …
Shownotes
„Þetta er ekki hægt!“
Þessi orð lét ég falla í miðri ayahuasca-reynslu sem hefur fengið mig til að endurskoða hugmyndir mínar um vitundina og raunveruleikann.
Ég upplifði stað sem mér fannst ég hafa komið á áður, samskipti án orða og veruleika sem virtist vera til óháð minni eigin ímyndun.
Í þessum persónulega þætti Geimsýrunnar velti ég fyrir mér eðli vitundarinnar, sjálfsmyndinni, öðrum tilverusviðum og mögulegum tengslum við UFO-fyrirbærið.
Hvað ef veruleikinn er allt annar en við höldum?
Geimsýran – Skoðum allt, trúum engu.
Möguleg aðkoma íslenskra vísindamanna í UFO heiminn
Send us Fan MailHvað gerist þegar vísindamenn fara að horfa alvarlega á UFO-málið?Í þessum þætti skoðum við nokkra af þeim vísindamönnum sem hafa komið að rannsóknum á UFO/UAP og Disclosure — allt frá J. Allen …
Shownotes
Hvað gerist þegar vísindamenn fara að horfa alvarlega á UFO-málið?
Í þessum þætti skoðum við nokkra af þeim vísindamönnum sem hafa komið að rannsóknum á UFO/UAP og Disclosure — allt frá J. Allen Hynek og Jacques Vallée til Avi Loeb, Garry Nolan, Eric Davis, Kevin Knuth og Beatriz Villarroel.
En svo kemur spurningin sem mér finnst sérstaklega áhugaverð: Hvað með Ísland?
Eigum við íslenska vísindamenn sem gætu komið að alvöru rannsóknum á UAP? Stjarneðlisfræðinga, eðlisfræðinga og sérfræðinga í gagnagreiningu og mælitækni?
Kannski er spurningin ekki hvort við eigum að trúa á UFO.
Kannski ættum við einfaldlega að byrja að rannsaka það sem við skiljum ekki.
Skoðum allt. Trúum engu.
UFO málaflokkurinn tekin fyrir
Send us Fan MailÆvingarennsli fyrir fyrirlestur var tekið í þessari Geimsýru fyrir nokkru. Heildaryfirferð á sögunni og málaflokknum.
Hvernig forðast ég streitu í öllu amstrinu?
Send us Fan MailÍ mannlega horninu í kvöld fer ég yfir hvernig ég forðast streitu í streitufullu umhverfi. Hver eru verkfærin og hvert er hugarfarið? Einnig les ég vel valin orð úr kaflanum Vitundarleg …
Shownotes
Í mannlega horninu í kvöld fer ég yfir hvernig ég forðast streitu í streitufullu umhverfi. Hver eru verkfærin og hvert er hugarfarið? Einnig les ég vel valin orð úr kaflanum Vitundarleg pólskifti úr bókinni UFO202. Krakkar, lífið er of stutt í línulega samhengi að eyða því í volæði og vitleysu. Lausnin er fólgin í réttum boðefnum sem leiða okkur í samkennd og engin er að fara að gera þetta fyrir okkur. Namaste elskurnar.
Yogashala.is
fargufa.is
betridagar.is
heilsuhornid.is
Dularfullu græn-geisla UFO myndböndin
Send us Fan MailÞað eru til UFO-myndbönd sem maður horfir á einu sinni og hugsar: „Já, þetta er líklega eitthvað.“ Svo eru til myndbönd sem maður horfir á aftur og aftur og svo fer maður að leita í öðrum …
Shownotes
Það eru til UFO-myndbönd sem maður horfir á einu sinni og hugsar: „Já, þetta er líklega eitthvað.“ Svo eru til myndbönd sem maður horfir á aftur og aftur og svo fer maður að leita í öðrum myndböndum og maður sér sömu hlutina gera það sama. Og þá verður málið allt í einu miklu áhugaverðara. Í þessum þætti ætla ég að sýna ykkur fjögur myndbönd sem birtust á internetinu haustið 2013. Þau koma frá mismunandi stöðum í Bandaríkjunum. Michigan, Ohio og Georgia. Og öll virðast þau sýna eitthvað mjög svipað bjart ljós, hamarslaga UFO ,dularfullt fyrirbæri á næturhimni. Og sérstaklega eitt smáatriði sem gerir þessa sögu mjög áhugaverða. Fyrirbærin virðast öll geisla af sér grænum skönnunargeisla.
Þegar fólkið safnast saman gerast ótrúlegir hlutir
Send us Fan MailHér er farið yfir frábært kvöld í Eden þar sem fjöldinn allur af frábæru fólki mætti og deildi rýminu. Hugleiðsla og langur fyrirlestur um leyndardóma UFO.
Létt yfirferð á stöðu mála á þessum fallega föstudagsmorgni
Send us Fan MailÍ þessari léttu yfirferð fer ég yfir stöðuna á mér og innihald UFO kvöldið sem haldið verður annaðkvöld, 17 okt kl 20 í Eden Yoga. Það verður Kakó og hugleiðsla á undan klst UFO fyrirlestur og …
Shownotes
Í þessari léttu yfirferð fer ég yfir stöðuna á mér og innihald UFO kvöldið sem haldið verður annaðkvöld, 17 okt kl 20 í Eden Yoga. Það verður Kakó og hugleiðsla á undan klst UFO fyrirlestur og spjall. Verð með bækur til sölu ef einhver vill einnig. Áskriftarþættir eru á http://patreon.com/Geimsýran
og skráning á UFO kvöldið í Eden fer fram á https://www.edenyoga.is/booking-form?referral=booking_calendar_widget&continueShoppingUrl=%2Fbooking-calendar%2Fbókaspjall-með-gunnari-dan-ufo-202%3Ftimezone%3DAtlantic%2FReykjavikHið pólitíska afstöðuleysi
Send us Fan MailMannlega hornið í dag er pólitískt. Hvernig stendur á því að ég einn daginn tek við niðurhali sem segir mér að draga mig úr allri pólitík, stjórnmálalegri, lýðræðislegri og samfélagslegri? Hvað …
Shownotes
Mannlega hornið í dag er pólitískt. Hvernig stendur á því að ég einn daginn tek við niðurhali sem segir mér að draga mig úr allri pólitík, stjórnmálalegri, lýðræðislegri og samfélagslegri? Hvað þýðir það að taka ekki afstöðu lengur innan lýðræðis? Er það hægt? Ég fer í þessum þætti yfir sýn mína hvað varðar pólitískt afstöðuleysi. Hvernig samfélag ég er búin að skapa innra með sjálfum mér og hvernig ég vill meina að ég sé að haga mér á ábyrgan hátt sem ábyrgur samfélagsþegn, samt sem áður einn sem ekki mætir á kjörstað né tekur afstöðu í neinni samfélagslegri ádeilu. Þetta er erfitt og gerist ekki á einni nóttu. Ennþá finn ég að ég er dregin í þessar áttir og alltaf er það það sama sem dregur mig til baka og það er sársaukinn sem er samofin sundrung og tvíhyggju.
Hvenar leyfum við okkur að vera vanmáttug og takmörkuð?
Send us Fan MailÍ mannlega horninu í kvöld er ég að ræða mikilvægi þess að viðhalda auðmýkt gagnvart eigin vanmætti, skilningsleysi og vanþekkingu. Lífið er svo stutt og asnalegt í bland við að vera langt og …
Shownotes
Í mannlega horninu í kvöld er ég að ræða mikilvægi þess að viðhalda auðmýkt gagnvart eigin vanmætti, skilningsleysi og vanþekkingu. Lífið er svo stutt og asnalegt í bland við að vera langt og sjúklega mikil snilld. Og hvað situr eftir annað en bara að leitast eftir að gera sitt besta og taka hlutum ekki of alvarlega, bara leika sér. Mikið þakklæti í hjarta mínu fyrir alla þá sem gerst hafa borgandi áskrifendur á Patreon. Mér þykir svo vænt um það að ég get eiginlega ekki lýst því með orðum. Bara ást á ykkur öll og hjarta emoji.
http://patreon.com/GeimsýranUFO update á föstudagskvöldi.
Send us Fan MailÞað er smá update hér á föstudagskvöldi. Geimsýran hefur hafið samrunaferli með hlaðvarpinu Hinu Yfirnáttúrulega. Ég, Dagný og Selma munum nú sameina krafta okkar einu sinni í mánuði og gera …
Shownotes
Það er smá update hér á föstudagskvöldi. Geimsýran hefur hafið samrunaferli með hlaðvarpinu Hinu Yfirnáttúrulega. Ég, Dagný og Selma munum nú sameina krafta okkar einu sinni í mánuði og gera sameiginlegan þátt, einfaldlega því öll erum við svo frábær og skemmtileg. Fyrsti þáttur dropar á morgun á Patreon. Einnig eru spennandi þætti framundan á sunnudag og miðvikudag. Laugardaginn 17 okt kl 20 mun ég í samvinnu með Edenyoga.is halda hugleiðslu, kakó og UFO fyrirlestur. Það kostar 1.500,- hægt er að skrá sig á heimasíðu Eden. Annars, Geimsýran á http://patreon.com/Geimsýran SKoðum allt, trúum engu.
Project Blue Beam, false Alien Invasion
Send us Fan MailÍ þessum þætti af Geimsýrunni förum við inn í eina af furðulegustu og umdeildustu hugmyndum UFO-sögunnar — Project Blue Beam.Við byrjum hjá Serge Monast árið 1994 og förum í gegnum kenninguna um …
Shownotes
Í þessum þætti af Geimsýrunni förum við inn í eina af furðulegustu og umdeildustu hugmyndum UFO-sögunnar — Project Blue Beam.
Við byrjum hjá Serge Monast árið 1994 og förum í gegnum kenninguna um falskar fornleifauppgötvanir, hologram á himninum, skilaboð inn í huga fólks og að lokum sviðsetta „geimveruárás“ sem gæti sameinað mannkynið gegn sameiginlegum óvini.
En svo förum við lengra.
Við skoðum frásagnir Carol Rosin um Wernher von Braun og hið svokallaða „alien card“, kenningar Steven Greer um false flag-aðgerðir og svo tengjum við þetta við það sem Jeremy Corbell og Chris Bledsoe hafa sagt um árið 2027, „incoming craft“ og hið dularfulla orð Armada.
Og þá kemur stóra spurningin:
Erum við að horfa á gamla samsæriskenningu sem hefur einfaldlega lifað af í nýrri mynd — eða erum við að verða vitni að raunverulegri breytingu á því hvernig stjórnvöld og mannkynið tala um ógnir frá geimnum?
Við skoðum líka kalda stríðið, þróun geimhernaðar, UAP-uppljóstranir, 3I/ATLAS og nýja áherslu Bandaríkjanna á hernaðarlegt geimkerfi.
Að lokum förum við aftur til ársins 1987.
Þá stóð Ronald Reagan fyrir framan Sameinuðu þjóðirnar og spurði:
Hvað myndi gerast ef við stæðum frammi fyrir sameiginlegri ógn utan úr geimnum?
Það sem hann sagði þá hljómar ótrúlega áhugavert í dag.
Velkomin í Geimsýruna á patreon.com/geimsyran
Svo fallegar Tall Whites og ógeðslegar reptilian Gorillaz!!
Send us Fan MailOk kids. Ég get ekki Hætt að hugsa um þessar fullyrðingar David Grusch. Fór í viðtal í dag hjá Frosta Loga sem er prýðisdrengur. Ræddum þessi mál þar í þaula en niðurstaðan er að ef ég væri …
Shownotes
Ok kids. Ég get ekki Hætt að hugsa um þessar fullyrðingar David Grusch. Fór í viðtal í dag hjá Frosta Loga sem er prýðisdrengur. Ræddum þessi mál þar í þaula en niðurstaðan er að ef ég væri djúpríkispési og ætlaði að framkalla sviðsetta innrás geimvera, þá myndi é gera það nákvæmlega svona, dropa þessu í war . gov og svo henda Grusch í Rogan viðtal og leyfa honum að tala um fallegar Tall Whites og ógeðslega hættulega reptilian gorillaz!! You cant make this shit up!!!
Geimsýran flæðir stjórnlaust á Patreon
Send us Fan MailSmá update á að Geimsýran er komin í áskrift á http://patreon.com/geimsyran Þar eru birtir 2-3 frétta og topic-þættir á hverri viku. Allar nýjustu fréttirnar og vangaveltur tengt andlegum …
Shownotes
Smá update á að Geimsýran er komin í áskrift á http://patreon.com/geimsyran
Þar eru birtir 2-3 frétta og topic-þættir á hverri viku. Allar nýjustu fréttirnar og vangaveltur tengt andlegum, trúarlegum og heimspekilegum vinklum. Fyrir 10 dollara á mánuði færðu aðgang að mér og efni tengt UFO og frá öllum vinklum.
AsthangaYoga, Vipassana, Sauna, Sveppir og kósíheit
Send us Fan MailÍ þessu mannlega horni Geimsýrunar fór ég yfir söguna tengt YOGA, Vipassana og svo framvegis og þá í tengslum við nýjan samstarfsaðila Geimsýrunar, Yogashala. Yogashala hefur síðustu 25 árin eða …
Shownotes
Í þessu mannlega horni Geimsýrunar fór ég yfir söguna tengt YOGA, Vipassana og svo framvegis og þá í tengslum við nýjan samstarfsaðila Geimsýrunar, Yogashala. Yogashala hefur síðustu 25 árin eða svo verið leiðandi í Yoga iðkun og kennslu á Íslandi. Ingibjörg Stefánsdóttir, stofnandi Yogashala er án efa ein einn af stærstu áhrifavöldum á Íslandi þegar kemur að YOGA. Geimsýran er þakklát fyrir þetta samstarf, eins og með samstarfið við Heilsuhornið og Betri Daga, sem og Fargufuna sem einnig á stóran hluta í andlegri velferð stjórnanda Geimsýrunar. Beint frá hjartanu segi ég takk til þessara fyrirtækja og allra annara sem veita vörur og þjónustu sem stuðla að heilbrigðum lífstíl, náttúrulegum lífstíl, sjálfbærni, vitundarlegri sjálfbærni, skilvirkni innan mennskunar og vitundarlegri umpólun, með öðrum orðum, upprisu mannsins.
Mannlega hornið tekið einn laugardagsmorgun
Send us Fan MailÍ þessum þætti var gerð tilraun. Ég óð í míkróphóninn áður en ég talaði við sálu og enn í hálfgerðu draumaástandi. Ég fór á svið sem ég hef aldrei farið áður. Persónuleg mál sem ég finn tilbúin …
Shownotes
Í þessum þætti var gerð tilraun. Ég óð í míkróphóninn áður en ég talaði við sálu og enn í hálfgerðu draumaástandi. Ég fór á svið sem ég hef aldrei farið áður. Persónuleg mál sem ég finn tilbúin til að ræða um loksins. Hvað ætlum við lengi að burðast með allt þetta drasl í bakpokanum sem engin bað okkur um að burðast með?´
Hier stehen die neuesten 40 von 182 Folgen. Ältere Folgen findest du im Feed des Podcasts.
Ähnliche Podcasts
Mehr Gesellschaft und Kultur-PodcastsIst das dein Podcast?
Bestätige es mit einem Eintrag in deinem Feed: Du bekommst hier einen Code, trägst ihn als podcast:txt in den Kanal deines Feeds ein, und wir prüfen ihn. Danach steht dein Podcast als „verifiziert“ bei SoundNode.







