
Ég fæ ekki nóg af þessum DIRD skjölum
Shownotes
Í sjötta UFO-droppinu frá WAR.GOV eru gömul rannsóknargögn frá AAWSAP/DIA sem opna ansi áhugaverða glugga inn í það sem bandaríska varnarkerfið var tilbúið að rannsaka.
Þarna er að finna rannsóknir á andþyngdarafli, háþróaðri framdrifstækni, rúm-tíma verkfræði, ormagöngum, metamaterials, superconductors – og jafnvel tengingum milli heila og véla.
Svo koma inn Hal Puthoff, remote viewing, psionics og furðuleg tenging við rannsóknarumhverfið í Huntsville.
Eru þetta bara aðskildar rannsóknir á mögulegri framtíðartækni? Eða eru einhverjar stærri spurningar að baki?
Í þessum þætti skoðum við skjölin, hvað þau segja í raun og veru – og hvað þau segja okkur um það sem menn voru tilbúnir að rannsaka þegar engin svör voru til.
Skoðum allt, trúum engu.