Zum Inhalt springen
Tvær á báti

Tvær á báti

NeuÍslandsmeistararnir!12.10.2026 · 46 Min.
Folgen
28
Erscheint
alle zwei Wochen
Letzte Folge
12. Okt. 2026

Über den Podcast

Álfrún Tryggvadóttir og Linda Heiðarsdóttir eru tvær miðaldra hlaupakonur sem hafa náð góðum árangri í hlaupum í aldursflokknum 40 – 49 ára. Þær þreytast ekki á að tala um hlaup og setja sér ný markmið. Í hlaðvarpsþættinum Tvær á báti ræða þær um hlaup út frá ýmsum hliðum, fá til sín góða gesti og segja hlaupasögur. Fyrst og fremst eru þær þó venjulegar konur að gera hlaðvarp fyrir venjulega hlaupara.

Folgen 28

  1. Íslandsmeistararnir!

    46 Min.Staffel 2 · Folge 16

    Álfrún og Linda fara yfir þrjú keppnishlaup síðustu viku ásamt æfingaálaginu í saunu. Nýkrýndur Íslandsmeistari fer yfir hlaupið í smáatriðum og hvernig svengdin hellist yfir fólk eftir maraþon.

  2. Gucci gellan í Köben

    41 Min.Staffel 2 · Folge 15

    Í þættinum fara Álfrún og Linda yfir hálfmaraþonið í Kaupmannahöfn, verðlaun fyrir ekki pb og Valencia æfingablokk sem er að hefjast. Létt körfuboltahorn í lokin.

  3. Samkeppni í flokkinn!

    47 Min.Staffel 2 · Folge 14

    Linda og Álfrún heyra í Fríðu Hrund sem er einmitt líka fædd 1982 og hefur náð eftirtektarverðum árangri í flokknum 40-44 ára á liðnu hlaupasumri. Þær fara líka yfir æfingar liðinnar viku, frábært …

    Shownotes

    Linda og Álfrún heyra í Fríðu Hrund sem er einmitt líka fædd 1982 og hefur náð eftirtektarverðum árangri í flokknum 40-44 ára á liðnu hlaupasumri. Þær fara líka yfir æfingar liðinnar viku, frábært Hjartadagshlaup og stutta innsýn inn í hálft maraþon í Porto.

  4. Gríðarleg eftirspurn!

    41 Min.Staffel 2 · Folge 13

    Vegna gríðarlegrar eftirspurnar opna Linda og Álfrún hlaupahaustið með einum léttum upphitunarþætti fyrir það sem koma skal hlaupahaustið 2026. Báðar ætla þær að gera aðra atlögu að Valencia heilu maraþoni í …

    Shownotes

    Vegna gríðarlegrar eftirspurnar opna Linda og Álfrún hlaupahaustið með einum léttum upphitunarþætti fyrir það sem koma skal hlaupahaustið 2026. Báðar ætla þær að gera aðra atlögu að Valencia heilu maraþoni í desember og munu leyfa hlustendum að fylgjast með æfingum og undirbúningi.

  5. Stein Olav í Samfó!

    59 Min.Staffel 2 · Folge 12

    Á lokasprettinum í fyrir borgarstjórnarkosningar fengu Linda og Álfrún til sín Stein Olav sem er í 5. sæti hjá Samfylkingunni í Reykjavík. Hann er venjulegur hlaupari, langar að hlaupa maraþon, klára …

    Shownotes

    Á lokasprettinum í fyrir borgarstjórnarkosningar fengu Linda og Álfrún til sín Stein Olav sem er í 5. sæti hjá Samfylkingunni í Reykjavík. Hann er venjulegur hlaupari, langar að hlaupa maraþon, klára samgöngusáttmálann og fá fleira fagfólk inn í skólana. Hann er norskur og flutti til Íslands árið 2018.

  6. Fritz í framboði!

    1 Std. 14 Min.Staffel 2 · Folge 11

    Linda og Álfrún halda áfram að fá til sín frambjóðendur á hlaupum. Að þessu sinni er það Bjarni Fritzson sem er í 8. sæti hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík. Hann er allt í senn rithöfundur, þjálfari …

    Shownotes

    Linda og Álfrún halda áfram að fá til sín frambjóðendur á hlaupum. Að þessu sinni er það Bjarni Fritzson sem er í 8. sæti hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík. Hann er allt í senn rithöfundur, þjálfari, hlaupari, hlaupahaldari Græna Gímalds hlaupsins og frambjóðandi. Í spjallinu var farið um víðan völl í bókstaflegum skilningi!

  7. Bakgarður og borgarstjórn

    1 Std. 8 Min.Staffel 2 · Folge 10

    Linda og Álfrún eru ekki bara að detta í hlaupagírinn fyrir sumarið heldur eru sveitarstjórnarkosningar á næsta leyti og þær ætla að fá til sín góða gesti, frambjóðendur úr nokkrum framboðum sem eru líka …

    Shownotes

    Linda og Álfrún eru ekki bara að detta í hlaupagírinn fyrir sumarið heldur eru sveitarstjórnarkosningar á næsta leyti og þær ætla að fá til sín góða gesti, frambjóðendur úr nokkrum framboðum sem eru líka venjulegir hlauparar. Í þættinum ræða þær við Söndru Hlín Guðmundsdóttur sem er í 6. sæti lista Viðreisnar í Reykjavík.

  8. Afrek afrekanna

    57 Min.Staffel 2 · Folge 9

    Í þættinum fá Linda og Álfrún til sín frábæran viðmælanda sem þær hafa beðið eftir að spjalla við. Steinunn Lilja Pétursdóttir segir frá hlaupaferli sínum, hvernig hún æfir undir leiðsögn Fjallahlaupaþjálfunar …

    Shownotes

    Í þættinum fá Linda og Álfrún til sín frábæran viðmælanda sem þær hafa beðið eftir að spjalla við. Steinunn Lilja Pétursdóttir segir frá hlaupaferli sínum, hvernig hún æfir undir leiðsögn Fjallahlaupaþjálfunar, mikilvægi næringar og kolvetnainntöku og síðast en ekki síst ótrúlegu afreki hennar þegar hún hljóp Laugaveginn undir fimm tímum sumarið 2025.

  9. 100 km

    44 Min.Staffel 2 · Folge 8

    Í þættinum fylgjast Linda og Álfrún með Arnari Péturssyni stórbæta eigið Íslandsmet í 100 km. Á meðan ræða þær um hlaup vikunnar, eymsli sem Linda glímir við út frá kálfastífleika og hvernig Álfrún mætti næstum …

    Shownotes

    Í þættinum fylgjast Linda og Álfrún með Arnari Péturssyni stórbæta eigið Íslandsmet í 100 km. Á meðan ræða þær um hlaup vikunnar, eymsli sem Linda glímir við út frá kálfastífleika og hvernig Álfrún mætti næstum því á æfingu hjá hlaupahópi Þróttar.

  10. Parísardömurnar

    1 Std. 1 Min.Staffel 2 · Folge 7

    Katrin.is kíkti í settið með hlaupasöguna frá París og fór yfir farsælan feril. Heyrðum líka í Fjólu í Fætur toga sem sagði okkur frá undirbúningi fyrir fyrsta Laugaveginn sem hún ætlar að hlaupa í sumar og gaf …

    Shownotes

    Katrin.is kíkti í settið með hlaupasöguna frá París og fór yfir farsælan feril. Heyrðum líka í Fjólu í Fætur toga sem sagði okkur frá undirbúningi fyrir fyrsta Laugaveginn sem hún ætlar að hlaupa í sumar og gaf okkur góð ráð varðandi val á hlaupaskóm.

  11. Næstum komnar á beinu brautina og ræðum brautina!

    49 Min.Staffel 2 · Folge 6

    Linda og Álfrún eru næstum komnar aftur á beinu brautina eftir að hafa lagt allt í sölurnar í maraþoni fyrir tæpum þremur mánuðum. Þær ræða einnig brautina, MÍ öldunga, MÍ 2026, hálft í París eftir viku og …

    Shownotes

    Linda og Álfrún eru næstum komnar aftur á beinu brautina eftir að hafa lagt allt í sölurnar í maraþoni fyrir tæpum þremur mánuðum. Þær ræða einnig brautina, MÍ öldunga, MÍ 2026, hálft í París eftir viku og langan aðskilnað í febrúar.

  12. Þjálfari ársins

    1 Std. 26 Min.Staffel 2 · Folge 5

    Þjálfari ársins hjá Þrótti, Jens Elvar Sævarsson mætti sem gestur og gestastjórnandi í fjarveru Álfrúnar. Hann er án gríns alltaf í góðu skapi og segist tileinka sér jákvæða hluti í fari annarra. Haustið 2025 …

    Shownotes

    Þjálfari ársins hjá Þrótti, Jens Elvar Sævarsson mætti sem gestur og gestastjórnandi í fjarveru Álfrúnar. Hann er án gríns alltaf í góðu skapi og segist tileinka sér jákvæða hluti í fari annarra. Haustið 2025 byrjaði hann með hlaupahóp Þróttar og stefnir á að ná fjöldanum upp í 100 meðlimi. Það skemmir svo ekki fyrir að honum finnst hrikalega gaman að rausa um hlaup og heilbrigðan lífsstíl og smellpassaði því í settið.

  13. Reiknum okkur góðar

    1 Std. 29 Min.Staffel 2 · Folge 4

    Í þættinum ræða Linda og Álfrún við Fríðu Rún hlaupakempu með meiru. Hlaupari á heimsmælikvarða í sínum aldursflokki. Hún sagði frá mjög áhugaverðum ferli, gaf góð ráð og kom á óvart með skemmtilegum sögum af …

    Shownotes

    Í þættinum ræða Linda og Álfrún við Fríðu Rún hlaupakempu með meiru. Hlaupari á heimsmælikvarða í sínum aldursflokki. Hún sagði frá mjög áhugaverðum ferli, gaf góð ráð og kom á óvart með skemmtilegum sögum af sjálfri sér. Frábær hlustun fyrir langa hlaupið um helgina.

  14. Raus um janúarlægðina

    53 Min.Staffel 2 · Folge 3

    Tvær á báti eru að komast upp úr janúarlægðinni og fóru um víðan völl í rausi dagsins. Félagaskipti, sól í perlu, hvernig þær komast reglulega í tísku og síðast en ekki síst mini körfuboltahorn.

  15. Hulda Guðný-fimmtug á árinu og í fantaformi!

    1 Std. 21 Min.Staffel 2 · Folge 2

    Í þættinum fá Álfrún og Linda hlauparann Huldu Guðnýju Kjartansdóttur í viðtal en hún hljóp sitt besta maraþon í Valencia á dögunum. Þær þrjár fóru yfir hlaupaferil Huldu og markmiðin hennar fyrir 2026. Þegar …

    Shownotes

    Í þættinum fá Álfrún og Linda hlauparann Huldu Guðnýju Kjartansdóttur í viðtal en hún hljóp sitt besta maraþon í Valencia á dögunum. Þær þrjár fóru yfir hlaupaferil Huldu og markmiðin hennar fyrir 2026. Þegar þessar þrjár hittast er heldur betur malað og nauðsynlegt að hafa framhaldsþátt.

  16. Uppgjör nýliðans (65'E)

    1 Std. 4 Min.Staffel 2 · Folge 1

    Í þessum fyrsta þætti 2. seríu hlaðvarpsins Tvær á báti kemur nafnlausi nýliðinn Kristín Þóra Haraldsdóttir leikkona og gerir upp hennar Valencia eða Gamlárshlaup ÍR. Virkilega skemmtileg og hvetjandi yfirferð …

    Shownotes

    Í þessum fyrsta þætti 2. seríu hlaðvarpsins Tvær á báti kemur nafnlausi nýliðinn Kristín Þóra Haraldsdóttir leikkona og gerir upp hennar Valencia eða Gamlárshlaup ÍR. Virkilega skemmtileg og hvetjandi yfirferð fyrir hlaupara sem eru að koma sér af stað á nýju ári.

  17. 40'E

    40 Min.Staffel 1 · Folge 12

    Í þessum lokaþætti ársins hjá Tveimur á báti fá Linda og Álfrún nafnlausa nýliðann með sér í settið. Uppleggið í Gamlárshlaupinu er rætt og farið yfir síðustu æfingarnar fyrir stóra daginn. Nýliðinn kom færandi …

    Shownotes

    Í þessum lokaþætti ársins hjá Tveimur á báti fá Linda og Álfrún nafnlausa nýliðann með sér í settið. Uppleggið í Gamlárshlaupinu er rætt og farið yfir síðustu æfingarnar fyrir stóra daginn. Nýliðinn kom færandi hendi með tvennar Costco buxur og er brattur fyrir hlaupinu þann 31.12.

  18. 60'E

    1 Std. 1 Min.Staffel 1 · Folge 11

    Í 11. þætti hlaðvarpsins Tvær á báti fara Álfrún og Linda yfir alla vegferðina í Valencia. Ekki bara uppgjör á hlaupinu sjálfu heldur öll helstu smáatriðin í ferðinni, allar áhyggjurnar sem geta fylgt …

    Shownotes

    Í 11. þætti hlaðvarpsins Tvær á báti fara Álfrún og Linda yfir alla vegferðina í Valencia. Ekki bara uppgjör á hlaupinu sjálfu heldur öll helstu smáatriðin í ferðinni, allar áhyggjurnar sem geta fylgt maraþonhlaupi kvíðann fyrir veðrinu og klósettferðir.

  19. 85'E

    1 Std. 24 Min.Staffel 1 · Folge 10

    Í 10. þætti hlaðvarpsins Tvær á báti fá Álfrún og Linda sjálfan Arnar Pétursson einn besta hlaupara landsins og þjálfara þeirra beggja í settið. Í þættinum fara þau yfir lokametrana í vegferðinni til Valencia …

    Shownotes

    Í 10. þætti hlaðvarpsins Tvær á báti fá Álfrún og Linda sjálfan Arnar Pétursson einn besta hlaupara landsins og þjálfara þeirra beggja í settið. Í þættinum fara þau yfir lokametrana í vegferðinni til Valencia og ræða undirbúning fyrir maraþon.

  20. 50'E

    54 Min.Staffel 1 · Folge 9

    í 9. þætti hlaðvarpsins Tvær á báti hringja Álfrún og Linda til Danmerkur og heyra í nýju uppáhalds hlaupafyrirmyndinni sinni, Jónu Dóru Óskarsdóttur. Hún hefur náð þvílíkum bætingum í öllum hlaupavegalengdum …

    Shownotes

    í 9. þætti hlaðvarpsins Tvær á báti hringja Álfrún og Linda til Danmerkur og heyra í nýju uppáhalds hlaupafyrirmyndinni sinni, Jónu Dóru Óskarsdóttur. Hún hefur náð þvílíkum bætingum í öllum hlaupavegalengdum og er 53 ára gömul. Alveg svakalega þreyta einkennir Valencia vegferðina og Nafnlausi nýliðinn er örlítilli brekku.

  21. 55'E

    52 Min.Staffel 1 · Folge 8

    Í 8. þætti hlaðvarpsins Tvær á báti hringja Álfrún og Linda til New York frá París og heyra í öðrum hlaupanýliða, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur sem er að farin elska hlaupin. Nafnlausi nýliðinn átti frábæra …

    Shownotes

    Í 8. þætti hlaðvarpsins Tvær á báti hringja Álfrún og Linda til New York frá París og heyra í öðrum hlaupanýliða, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur sem er að farin elska hlaupin. Nafnlausi nýliðinn átti frábæra viku meðan það var smá brekka í vegferðinni til Valencia.

  22. 95'E

    1 Std. 33 Min.Staffel 1 · Folge 7

    Í 7. þætti hlaðvarpsins Tvær á báti taka Álfrún og Linda drottningarviðtal við Hlaupabjössa aka Bjössa Borko meðlim hljómsveitarinnar FM Belfast. Í viðtalinu segir hann frá því hvernig hlaupin björguðu lífi …

    Shownotes

    Í 7. þætti hlaðvarpsins Tvær á báti taka Álfrún og Linda drottningarviðtal við Hlaupabjössa aka Bjössa Borko meðlim hljómsveitarinnar FM Belfast. Í viðtalinu segir hann frá því hvernig hlaupin björguðu lífi hans tvisvar. Vegferðin til Valencia er á sínum stað að ógleymdu símtali við Nafnlausa nýliðann.

  23. 65'E

    1 Std. 5 Min.Staffel 1 · Folge 6

    Í 6. þætti hlaðvarpsins Tvær á báti fara Álfrún og Linda yfir fasta liði eins og vegferðina til Valencia og Nafnlausa nýliðann. Þær setja sig líka í spor hlauparanna Arnars Péturs og Þorsteins Roy í …

    Shownotes

    Í 6. þætti hlaðvarpsins Tvær á báti fara Álfrún og Linda yfir fasta liði eins og vegferðina til Valencia og Nafnlausa nýliðann. Þær setja sig líka í spor hlauparanna Arnars Péturs og Þorsteins Roy í Víðavangshlaupinu og enda síðan á einni góðri skemmtisögu úr hlaupaferð.

  24. 100’E

    1 Std. 38 Min.Staffel 1 · Folge 5

    Í fimmta þætti hlaðvarpsins Tvær á báti fá Linda og Álfrún Dr. Vöku Rögnvaldsdóttur í frábært spjall um svefn, hjartslátt, æfingaálag og fleira. Fastir liðir þáttarins eru að sjálfsögðu á sínum stað líka.

  25. 60'E

    1 Std. 1 Min.Staffel 1 · Folge 4

    Í fjórða þætti hlaðvarpsins Tvær á báti rausa Álfrún og Linda enn meira um hlaup. Þær fara yfir 90 km vikuna í Valencia vegferðinni og kynna nýjan styrktaraðila, Fætur toga, fyrir Nafnlausa nýliðann …

  26. 80'E

    1 Std. 19 Min.Staffel 1 · Folge 3

    Í þriðja þætti hlaðvarpsins Tvær á báti kynna Linda og Álfrún inn nýjan lið, Nafnlausa nýliðann. Einnig fáum við glóðvolgar sögur um hitann í Berlínarmaraþoninu sem var á dögunum. Valencia vegferðin verður á …

  27. 70'E

    1 Std. 7 Min.Staffel 1 · Folge 2

    Magnið eykst og þættirnir lengjast. Í öðrum þætti hlaðvarpsins Tvær á báti fjalla Álfrún og Linda um hálfmaraþonið í Kaupmannahöfn, tilraun Bolla Más Bjarnasonar til sub50 í 10 km, Valencia vegferðina og síðast …

  28. 40'E

    45 Min.Staffel 1 · Folge 1

    Í fyrsta þætti Tveggja á báti segja Álfrún og Linda stuttlega frá hlaupaferlinum og því sem framundan er. Þær velta því fyrir sér hvort nú sé rétti tíminn fyrir þær til að byrja með hlaupahlaðvarp þar sem …

Ist das dein Podcast?

Bestätige es mit einem Eintrag in deinem Feed: Du bekommst hier einen Code, trägst ihn als podcast:txt in den Kanal deines Feeds ein, und wir prüfen ihn. Danach steht dein Podcast als „verifiziert“ bei SoundNode.

Einstellungen

Darstellung

Sprache

Bestimmt, welche Sender dir auf der Startseite zuerst gezeigt werden.

Verlauf

Zuletzt gehörte Sender und Folgen und deine letzten Suchen liegen nur in diesem Browser.

Hinweise

Ein kurzer Hinweis, wenn ein Podcast, dem du folgst, eine neue Folge hat. Einzelne Podcasts stellst du über die Glocke auf ihrer Seite ab.

Konto

Favoriten speichern – in der App und auf der Website.

Tastenkürzel

/
Suche öffnen
Leertaste
Abspielen oder anhalten
← →
Im Player: 15 s zurück, 30 s vor (Folgen) · im Regal: nächste Kachel
↑ ↓
Im Regal: Ziel innerhalb der Kachel
Pos1 / Ende
Im Regal: erste bzw. letzte Kachel
Esc
Fenster oder Menü schließen
?
Diese Übersicht
Läuft gerade

Zur Senderseite

Als Nächstes

    Folgen mit „Als Nächstes“ vormerken – sie laufen nach der aktuellen Folge.