
Félagsráðgjafahlaðvarpið
- Episódios
- 19
- Publicação
- semanal
- Último episódio
- 18 nov 2026
Sobre o podcast
Hlaðvarp Félagsráðgjafafélags Íslands er vettvangur fyrir samtal, þekkingu og innsýn í heim félagsráðgjafar. Þar er fjallað um málefni sem snerta daglegt starf félagsráðgjafa, þróun fagsins, nýjar rannsóknir, samfélagsbreytingar og áskoranir í velferðarþjónustu. Í þáttunum heyrum við raddir fagfólks, skjólstæðinga og sérfræðinga sem varpa ljósi á fjölbreytt hlutverk félagsráðgjafa og mikilvægi þeirra í samfélaginu. Hlaðvarpið tengir saman fagið, miðlar reynslu og styrkir umræðu um velferð, réttindi og mannlega reisn.
Episódios 19
Þáttur #19 - Vilborg Oddsdóttir
Gestur minn í dag er Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi, formaður siðanefndar Félagsráðgjafafélags Íslands og einn af öflugustu talsmönnum félagslegs réttlætis og réttinda barna á Íslandi.Hún starfar hjá …
Notas do episódio
Gestur minn í dag er Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi, formaður siðanefndar Félagsráðgjafafélags Íslands og einn af öflugustu talsmönnum félagslegs réttlætis og réttinda barna á Íslandi.
Hún starfar hjá Hjálparstarfi kirkjunnar og hefur um áratuga skeið unnið með einstaklingum og fjölskyldum í viðkvæmri stöðu. Árið 2023 hlaut hún viðurkenningu Barnaheilla fyrir framlag sitt í þágu barna og fjölskyldna.
Þáttur #18 - Ragnheiður Björg Guðmundsdóttir
Í þessum þætti ræðum við við Ragnheiði Björgu Guðmundsdóttur, félagsáðgjafa, fjölskyldufræðing og eiganda Tengslamats í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði. Hún hefur sérhæft sig í tengslamati og tengslamiðaðri …
Notas do episódio
Í þessum þætti ræðum við við Ragnheiði Björgu Guðmundsdóttur, félagsáðgjafa, fjölskyldufræðing og eiganda Tengslamats í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði. Hún hefur sérhæft sig í tengslamati og tengslamiðaðri nálgun og kynnti á Félagsráðgjafaþinginu nýja tilviksrannsókn sem sýnir hvernig heildstæð vinna með fjölskyldu getur breytt líf barns og foreldra.
Þáttur #17 - Freydís J. Freysteinsdóttir
Í dag ætlum við að beina sjónum okkar að menntun félagsráðgjafa, hvernig hún hefur þróast, hvernig námið lítur út í dag og ekki síst hvernig við menntum félagsráðgjafa fyrir samfélag sem breytist hratt.Gestur …
Notas do episódio
Í dag ætlum við að beina sjónum okkar að menntun félagsráðgjafa, hvernig hún hefur þróast, hvernig námið lítur út í dag og ekki síst hvernig við menntum félagsráðgjafa fyrir samfélag sem breytist hratt.
Gestur minn er Freydís J. Freysteinsdóttir, prófessor í félagsráðgjöf, sem tók við sem deildarforseti Félagsráðgjafardeildar Háskóla Íslands í sumar.
Þáttur #16 - Kristbjörg Karen Björnsdóttir
Gestur okkar í dag er Kristbjörg Björnsdóttir sem var að ljúka mastersnámi í félagsráðgjöf.Hún kynnti meistararannsóknina sína á félagsráðgjafaþinginu í febrúar og hún er til umfjöllunar í tímariti …
Notas do episódio
Gestur okkar í dag er Kristbjörg Björnsdóttir sem var að ljúka mastersnámi í félagsráðgjöf.
Hún kynnti meistararannsóknina sína á félagsráðgjafaþinginu í febrúar og hún er til umfjöllunar í tímariti félagsráðgjafafélagsins.
Rannsóknin fjallar um umsáturseinelti í kjölfar ofbeldis í nánu sambandi. Fyrirbæri sem er of oft hulið í þögn en hefur djúpstæð og víðtæk áhrif á líf þolanda.
Þáttur #15 - Þuríður Sigurðardóttir
Í dag ætlum við að fjalla um TINNU, virkniúrræði Reykjavíkurborgar sem hefur í tíu ár stutt einstæða foreldra sem hafa verið utan vinnumarkaðar og glímt við langvarandi félagslegan vanda.Verkefnið byggir á …
Notas do episódio
Í dag ætlum við að fjalla um TINNU, virkniúrræði Reykjavíkurborgar sem hefur í tíu ár stutt einstæða foreldra sem hafa verið utan vinnumarkaðar og glímt við langvarandi félagslegan vanda.
Verkefnið byggir á þeirri einföldu en öflugu hugmynd að þegar foreldrar fá stuðning, traust og tækifæri til að efla eigin styrkleika skilar það sér ekki aðeins til þeirra sjálfra heldur einnig til barna þeirra og samfélagsins alls.
Gestur okkar er Þuríður Sigurðardóttir, félagsráðgjafi og verkefnastjóri TINNU frá upphafi.
Þáttur #14 - Eva Dögg Sigurðardóttir
Í þessum þætti ræðum við við Evu Dögg Sigurðardóttur félagsráðgjafa og rannsakanda um áhugaverða rannsókn á tilkynningum til barnaverndar á fyrstu mánuðum COVID-19 faraldursins.Þegar samfélagið lokaðist, skólar …
Notas do episódio
Í þessum þætti ræðum við við Evu Dögg Sigurðardóttur félagsráðgjafa og rannsakanda um áhugaverða rannsókn á tilkynningum til barnaverndar á fyrstu mánuðum COVID-19 faraldursins.
Þegar samfélagið lokaðist, skólar skertu starfsemi sína og fólk var hvatt til að halda sig heima vöknuðu víða um heim áhyggjur af stöðu barna. Í rannsókn sinni skoðar Eva Dögg hvort ákall stjórnvalda um að ''Við séum öll barnavernd'' hafi haft áhrif á hegðun almennings og hvort hið óformlega barnaverndarkerfi - nágrannar, ættingjar og aðrir borgarar - hafi brugðist við þegar hefðbundin verndarkerfi veikust.
Niðurstöðurnar eru athyglisverðar og varpa ljósi á samspil samfélagslegrar ábyrgðar og tilkynningarskyldu og verndar barna á tímum mikillar óvissu.
Þáttur #13 - Kolfinna Bjarney Ólafsdóttir
Í dag ætlum við að ræða efni sem snertir bæði starfsfólk í barnavernd og í raun okkur öll sem samfélag.Því þegar við tölum um líðan þeirra sem starfa við að hjálpa öðrum erum við líka að tala um gæði þeirrar …
Notas do episódio
Í dag ætlum við að ræða efni sem snertir bæði starfsfólk í barnavernd og í raun okkur öll sem samfélag.
Því þegar við tölum um líðan þeirra sem starfa við að hjálpa öðrum erum við líka að tala um gæði þeirrar þjónustu sem við viljum að börn og fjölskyldur fái.
Gestur minn er Kolfinna Bjarney Ólafsdóttir, félagsráðgjafi, sem rannsakaði samkenndar þreytu meðal barnaverndarstarfsmanna á Íslandi í meistararitgerð sinni við Háskóla Íslands.
Þáttur #12 - Erla Björg Sigurðardóttir og Helena Gísladóttir
Gestir okkar í dag eru þau Erla Björg Sigurðardóttir, lektor í félagsráðgjöf og Helena Gísladóttir, meistaranemi í félagsráðgjöf.Í dag ætlum við að ræða mikilvægt en of lítt sýnilegt úrræði í íslensku …
Notas do episódio
Gestir okkar í dag eru þau Erla Björg Sigurðardóttir, lektor í félagsráðgjöf og Helena Gísladóttir, meistaranemi í félagsráðgjöf.
Í dag ætlum við að ræða mikilvægt en of lítt sýnilegt úrræði í íslensku velferðarkerfi.
Það eru áfangaheimili fyrir fólk sem hefur lokið meðferð vegna vímuefnavanda og eru að byggja upp nýtt líf.
Hvernig virka þessi heimili í raun? Hver er staða fólksins sem kemur þangað og hvaða stuðningur skiptir mestu máli?
Og hvað vantar ennþá?
Þáttur #11 - Sigrún Júlíusdóttir
Fjölskyldu höfnun er sífellt sýnilegri í samtímanum og í þættinum í dag ræðir Sigrún Júlíusdóttir um orsakir, afleiðingar og leiðir til að skilja og vinna úr rofnum tengslum.
Þáttur #10 - Sveindís Anna Jóhannsdóttir & Ásta Kristín Benediktsdóttir
Í júní síðastliðnum fóru Íslensku félagsráðgjafarnir Sveindís Anna Jóhannsdóttir og Ásta Kristín Benediktsdóttir til Nairobi í Kenía þar sem þær sóttu heimsþing félagsráðgjafa, félagsráðgjafamenntunar og …
Notas do episódio
Í júní síðastliðnum fóru Íslensku félagsráðgjafarnir Sveindís Anna Jóhannsdóttir og Ásta Kristín Benediktsdóttir til Nairobi í Kenía þar sem þær sóttu heimsþing félagsráðgjafa, félagsráðgjafamenntunar og félagsþróunar.
Þingið, SWSD 2026, fór fram dagana 26.-29. júní undir yfirskriftinni Harambee for Sustainable Shared Futures, hugtak sem vísar til samstöðu, sameiginlegrar ábyrgðar og þess að vinna saman að betri framtíð.
En á milli fyrirlestra og alþjóðlegrar umræðu um félagsráðgjöf fengu þær að kynnast allt öðrum veruleika.
Þáttur #9 - Díana Ósk Óskarsdóttir
Í dag ætlum við að ræða málefnið sem snertir kjarnan í faginu, vellíðan, gæði á þjónustu og faglega handleiðslu.Margir félagsráðgjafar starfa við mikið álag, þunga ábyrgð og flókin mannleg mál og þá vaknar …
Notas do episódio
Í dag ætlum við að ræða málefnið sem snertir kjarnan í faginu, vellíðan, gæði á þjónustu og faglega handleiðslu.
Margir félagsráðgjafar starfa við mikið álag, þunga ábyrgð og flókin mannleg mál og þá vaknar spurningin, hvernig styðjum við við fagfólkið sem styður aðra?
Gestur okkar í dag er Díana Ósk Óskarsdóttir sem skrifaði áhrifaríka grein í tímaritið okkar þar sem hún lýsir handleiðslu sem gæðastimpil fagaðila.
Þáttur #8 - Ásta Kristín Guðmundsdóttir og Friðrik Arnbjörnsson
Í dag ætlum við sjónum okkar að einu af mikilvægustu verkefnum samfélagsins og það er að vernda börn og skapa þeim öryggi.Til okkar eru komin þau Ásta Kristín Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi, og Friðrik …
Notas do episódio
Í dag ætlum við sjónum okkar að einu af mikilvægustu verkefnum samfélagsins og það er að vernda börn og skapa þeim öryggi.
Til okkar eru komin þau Ásta Kristín Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi, og Friðrik Arnbjörnsson frá samtökunum B.A.C.A (Bikers Against Child Abuse).
Þáttur #7 - Regína Ásvaldsdóttir
Í þessum þætti ætlum við að ræða hvernig menntun í félagsráðgjöf getur orðið sterkur grunnur að leiðtogahlutverki og stjórnun.Gestur minn í dag er Regína Ásvaldsdóttir félagsráðgjafi sem hefur gegnt fjölmörgum …
Notas do episódio
Í þessum þætti ætlum við að ræða hvernig menntun í félagsráðgjöf getur orðið sterkur grunnur að leiðtogahlutverki og stjórnun.
Gestur minn í dag er Regína Ásvaldsdóttir félagsráðgjafi sem hefur gegnt fjölmörgum stjórnunarstörfum.
Í nýlegu viðtali í Tímariti félagsráðgjafa segir hún að félagsráðgjöf hafi mótað sig sem leiðtoga.
Þáttur #6 - Valgerður Halldórsdóttir
Í þessum þætti ætlum við að beina sjónum að veruleika sem að margir þekkja en of fáir tala nægilega skýrt um. Líf barna sem alast upp á tveimur heimilum, oft með stjúpforeldrum á báðum stöðum og flækjustigi sem …
Notas do episódio
Í þessum þætti ætlum við að beina sjónum að veruleika sem að margir þekkja en of fáir tala nægilega skýrt um. Líf barna sem alast upp á tveimur heimilum, oft með stjúpforeldrum á báðum stöðum og flækjustigi sem getur fylgt því, bætanlegu lífi og innan kerfa sem eiga að styðja þau. Þótt þessi fjölskyldumynstur séu orðin algeng bendir ný umræða til þess að við séum enn ekki að ná utan um upplifun barnanna sjálfa. …Þáttur #5 - Sólveig Sigurðardóttir
Í þessum þætti fáum við til okkar Sólveigu Sigurðardóttur, félagsráðgjafa með meistaragráðu, deildarstjóra farsældarþjónustu barna hjá Akraneskaupstað, lektor við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands og …
Notas do episódio
Í þessum þætti fáum við til okkar Sólveigu Sigurðardóttur, félagsráðgjafa með meistaragráðu, deildarstjóra farsældarþjónustu barna hjá Akraneskaupstað, lektor við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands og faglegan handleiðara.
Sólveig hefur áratuga reynslu af barnavernd, þróun samþættrar þjónustu og þverfaglegu samstarfi.
Hún hefur sérstaklega lagt áherslu á tengslamiðaðar vinnuaðferðir og hvernig félagsráðgjafar geta byggt brú á milli einstaklinga, fjölskyldna og kerfa.
Þáttur #4 - Guðrún Marínósdóttir
Í þessum þætti fáum við til okkar einstaklega áhugaverðan gest, hana Guðrúnu Marínósdóttur, sem sameinar á einstakan hátt heim félagsráðgjafar, leiklistar, og myndlistar.Guðrún er félagsráðgjafi, leikkona og …
Notas do episódio
Í þessum þætti fáum við til okkar einstaklega áhugaverðan gest, hana Guðrúnu Marínósdóttur, sem sameinar á einstakan hátt heim félagsráðgjafar, leiklistar, og myndlistar.
Guðrún er félagsráðgjafi, leikkona og myndlistarkona og í ár málar hún forsíðumyndina á tímariti félagsráðgjafa 2026.
Við ætlum að ræða um lífið, listina, félagsráðgjöfina og tengslin þar á milli og hvað það er sem myndlist getur stundum sagt okkur án orða.
Þáttur #3 - Hervör Alma Árnadóttir
Í þessum þætti ætlum við að ræða félagsráðgjafanám við Háskóla Íslands, þróun þess og framtíð.Hvernig eru félagsráðgjafar menntaðir fyrir sífellt flóknari verkefni í samfélaginu? Hvers vegna eru starfsréttindi …
Notas do episódio
Í þessum þætti ætlum við að ræða félagsráðgjafanám við Háskóla Íslands, þróun þess og framtíð.
Hvernig eru félagsráðgjafar menntaðir fyrir sífellt flóknari verkefni í samfélaginu? Hvers vegna eru starfsréttindi nú bundin við meistaragráðu?
Hvaða hæfni þarf félagsráðgjafi framtíðarinnar að búa yfir og hvernig tryggjum við að námið haldist í takt við þarfir samfélagsins?
Gestur minn er Hervör Alma Árnadóttir, deildarforseti Félagsráðgjafardeildar Háskóla Íslands.
Þáttur #2 - Páll Ólafsson
Í dag ætlum við að fara beint í eina stærstu umbreytingu sem er að eiga sér stað í þjónustu við börn og fjölskyldur á Íslandi. Við ætlum að tala um farsældarlögin og hvað gerist þegar þau eru ekki bara orð á …
Notas do episódio
Í dag ætlum við að fara beint í eina stærstu umbreytingu sem er að eiga sér stað í þjónustu við börn og fjölskyldur á Íslandi. Við ætlum að tala um farsældarlögin og hvað gerist þegar þau eru ekki bara orð á blaði heldur lifandi verkfæri í daglegu starfi. Við ætlum einnig að kafa dýpra í "signs of safety", nálgun sem snýr að því hvernig við hugsum um ábyrgð samtala og lausna. Spurningin er einföld en svarið er það ekki. Getum við í raunverulega breytt kerfinu eða erum við enn föst í sama fari? …Þáttur #1 - Steinunn Bergmann
Velkomin í Félagsráðgjafahlaðvarpið. Það eru ákveðin tímamót í miðlun og sýnileika hjá okkur, því með því að hefja hlaðvarp í hljóði og mynd þá erum við farin á nýjan vettvang. Við viljum opna lifandi samtöl um …
Notas do episódio
Velkomin í Félagsráðgjafahlaðvarpið. Það eru ákveðin tímamót í miðlun og sýnileika hjá okkur, því með því að hefja hlaðvarp í hljóði og mynd þá erum við farin á nýjan vettvang. Við viljum opna lifandi samtöl um fagið, fólkið, áskoranirnar og framtíðina. Við erum líka að opna alveg nýja leið í fjölmiðlun félagsins með því að dýpka viðtölin í tímaritinu okkar og gefa lesendum kost á að skanna inn QR kóða sem fylgja með greinunum og senda viðkomandi beint í þáttinn. …
Podcasts parecidos
Mais podcasts de Sociedade e culturaEste podcast é seu?
Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.







