Pular para o conteúdo
Flekaskil

Flekaskil

NovoBogi Ágústsson - Fimmtíu ár við heimsgluggan10 de novembro de 2026 · 1 h 8 min
Episódios
31
Publicação
semanal
Local
Iceland, Iceland
Último episódio
10 nov 2026

Sobre o podcast

Varnarsamningurinn milli Íslands og Bandaríkjanna er 75 ára um þessar mundir. Ekki gera allir sér grein fyrir að hann er nátengdur NATO og veru okkar þar. Sum ákvæði viðauka hans voru leyniskjöl frá því að hann var gerður 1951 og þar til bandaríski herinn hætti að vera með varanlegt herlið 2006. Þar á meðal ákvæði um að Bandaríkin geti stöðvað flug og tekið yfir loftl-helgi Íslands. Þau eru að umtalsverðu leyti enn í gildi.

Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri eru af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ræða flekaskilin sem eru að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur en síðast ekki síst hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands, — í öryggis- og varnarmálum, í samskiptum við helstu bandalagsríki okkar, í tengslum við Bandaríkin, NATO, Trömp og Evrópu.

Licença: EP 2026

Episódios 31

  1. Bogi Ágústsson - Fimmtíu ár við heimsgluggan

    1 h 8 min

    Við förum yfir stöðu alþjóðamálanna með Boga Ágústssyni fréttamanni sem hefur fylgst með þeim frá því hann lærði að les og sem einn helsti fréttamaður landsins í fimmtíu ár. Við ræðum eftirleik þingkosninganna …

    Notas do episódio

    Við förum yfir stöðu alþjóðamálanna með Boga Ágústssyni fréttamanni sem hefur fylgst með þeim frá því hann lærði að les og sem einn helsti fréttamaður landsins í fimmtíu ár. Við ræðum eftirleik þingkosninganna í Bandaríkjunum, stöðuna í Íran, Úkraínu, Norðulöndin og sögu Norðurlandasamstarfsins.

  2. Flekaskil - 30. þáttur - Baldur Þórhallsson - Sigur Demókrata og ósigur Trump - hvað svo?

    1 h 14 min

    Úrslit bandarísku þingkosninganna voru stærri sigur Demókrata en flestir höfðu spáð. Talað er um fellibyl frekar en fylgissveiflu. Flekaskil fjalla um úrslitin, ástæðurnar fyrir þeim, hvaða áhrif þessi breytta …

    Notas do episódio

    Úrslit bandarísku þingkosninganna voru stærri sigur Demókrata en flestir höfðu spáð. Talað er um fellibyl frekar en fylgissveiflu. Flekaskil fjalla um úrslitin, ástæðurnar fyrir þeim, hvaða áhrif þessi breytta staða hefur á pólitík í Bandaríkjunum, næstu tvö ár í forsetatíð Trump, utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Til að ræða þessi mál var Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðiprófessor og fyrrverandi forsetaframbjóðandi gestur þáttarins.

    Upptaka og eftirvinnsla: Þórarinn Hjartarson

  3. Flekaskil - 29. þáttur - Sigríður Rut Júlíusdóttir - Örlagaríkustu bandarísku þingkosningar lengi

    1 h 40 min

    Flekaskil leggja í þeysireið yfir stöðuna, lykileinvígi og afleiðingarnar sem bandarísku þingkosningarnar sem fram fara 3. nóvember geta haft. Við tölum um stórt og smátt, átökin um sætin þar sem spennan er …

    Notas do episódio

    Flekaskil leggja í þeysireið yfir stöðuna, lykileinvígi og afleiðingarnar sem bandarísku þingkosningarnar sem fram fara 3. nóvember geta haft. Við tölum um stórt og smátt, átökin um sætin þar sem spennan er mest, bestu og verstu frambjóðendurna, peningana í bandarískri pólitík, áhrif Trumps og frambjóðandann sem fékk barn í hendur - og missti það. Gestur þáttarins er Sigríður Rut Júlíusdóttir dómari sem hefur fylgst grann með bandarískum stjórnmálum árum saman.

  4. Flekaskil - 28. þáttur - Þórdís Kolbrún snýr aftur á Flekaskil - Frá Öryggisráðstefnunni í Varsjá

    44 min

    Í samtali okkar fáum við beina innsýn í stöðuna á Úkraínu en Þórdís Kolbrún kom nánast beint þaðan til Varsjár. Við förum yfir hina spennuþrungnu stöðu í samskiptum Úkraínu og Bandaríkjanna - sem birtust meðal …

    Notas do episódio

    Í samtali okkar fáum við beina innsýn í stöðuna á Úkraínu en Þórdís Kolbrún kom nánast beint þaðan til Varsjár. Við förum yfir hina spennuþrungnu stöðu í samskiptum Úkraínu og Bandaríkjanna - sem birtust meðal annars í ræðu Zelenskís í Varsjá. Skilaboðum yfirhershöfðingja NATO um hvering hvers kyns árásum Rússa yrði hrundið af hálfur varnarbandalagsins. En einnig mögnuðum viðvörunarorðum Katarzyna Pisarska stjórnarformanni Öryggisráðstefnunnar í Varsjá um hvert stefnir í stríðinu, stöðunni þar og hvað þurfi að breytast til að vel fari.

    Ræða Katarzyna Pisarska: https://www.youtube.com/live/WVaBU-L02-0 - og hefst á mínutu 2.44.

  5. Flekaskil - 27. þáttur - Erlingur Erlingsson - Þarf Ísland leyniþjónustu?

    1 h 14 min

    Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur hefur mikla þekkingu á stöðu og þróun alþjóða- og öryggismála. Við komum víða við í tæpitungulausu spjalli: Grænlandssamningurinn, íslensk varnarmál, staðan í Úkraínu …

    Notas do episódio

    Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur hefur mikla þekkingu á stöðu og þróun alþjóða- og öryggismála. Við komum víða við í tæpitungulausu spjalli: Grænlandssamningurinn, íslensk varnarmál, staðan í Úkraínu, hernaður Rússa í Evrópu sem við köllum orðinu sem enginn skilur: fjölþáttaógnir, Íran og ný bandalög í kjölfar þess og ögrandi spurningar á borð við þá hvort Ísland þurfi leyniþjónustu.

  6. Flekaskil - 26. þáttur - Magnús Þorkell Bernharðsson - Gaza og Vesturbakkinn

    1 h 8 min

    Hver er staðan á Gaza og Vesturbakkanum? Hver er bakgrunnur hörmunganna sem almenningur á svæðinu býr við? Hvaða áhrif höfðu hryðjuverkin 7. október 2023? Skiptir umræðan um þjóðarmorð, alþjóðalög og …

    Notas do episódio

    Hver er staðan á Gaza og Vesturbakkanum? Hver er bakgrunnur hörmunganna sem almenningur á svæðinu býr við? Hvaða áhrif höfðu hryðjuverkin 7. október 2023? Skiptir umræðan um þjóðarmorð, alþjóðalög og stríðsglæpi máli? Eru líkur á að tveggja ríkja lausn verði að veruleika og getum við bundið vonir við að varnalegur friður komist á.

  7. Flekaskil - 25. þáttur - Magnús Þorkell Bernharðsson - Íran

    1 h 9 min

    Íran-stríðið. Bakgrunnur átakanna og árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Áhrif stríðsins á stöðu Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum. Magnús Þorkell Bernharðsson sérfræðingur um sögu og stjórnmál …

    Notas do episódio

    Íran-stríðið. Bakgrunnur átakanna og árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Áhrif stríðsins á stöðu Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum. Magnús Þorkell Bernharðsson sérfræðingur um sögu og stjórnmál Mið-Austurlanda er gestur Dags B. Eggertssonar í Flekaskilum.

  8. Flekaskil - 24. þáttur - Vilborg Ása Guðjónsdóttir - Grænland, ástarsamband ESB og Kanada og framtíð EES

    1 h 8 min

    Flekaskil fjalla um mála málanna á Norðurslóðum, boðaðan samning Bandaríkjannna, Danmerkur og Grænlands sem boðað hefur verið að skrfað verði undir á morgun, þriðjudag 22. september. Vilborg Ása Guðjónsdóttir …

    Notas do episódio

    Flekaskil fjalla um mála málanna á Norðurslóðum, boðaðan samning Bandaríkjannna, Danmerkur og Grænlands sem boðað hefur verið að skrfað verði undir á morgun, þriðjudag 22. september.

    Vilborg Ása Guðjónsdóttir stjórnmálafræðingu og sérfræðingur í málefnum Grænlands ræðir stöðuna.

    Við fjöllum um tímamótaræður Ursulu von der Leyen og Mark Carney um nánara samband ESB og Kanada, stöðu EES-samningsins og stefnumarkandi yfirlýsingu Norðmanna um þróun samningsins, stöðu Íslands í því samhengi og væntanlegan fund Trump Bandaríkjaforseta og Xi Jinping leiðtoga Kína í vikunni.

  9. Flekaskil 23. þáttur - Bjarni Már Magnússon - Örlagatímar í alþjóðamálum

    1 h 20 min

    Símtal Bjarna Ben og Trump. Viðaukinn við varnarsamninginn sem aldrei var kynntur Alþingi. Það var komið víða við í samtali Dags B. og Bjarna Más Magnússonar lögmanni og fyrrverandi prófessors. Erum við að …

    Notas do episódio

    Símtal Bjarna Ben og Trump. Viðaukinn við varnarsamninginn sem aldrei var kynntur Alþingi. Það var komið víða við í samtali Dags B. og Bjarna Más Magnússonar lögmanni og fyrrverandi prófessors. Erum við að afsala okkur fullveldi án þess að ræða það? Og erum við að horfa á uppnám í aldagömlum reglum um hafrétt og siglingarfrelsi. Hvaða áhrif hefur það á heimili og fyrirtæki á Íslandi.

  10. Flekaskil 22. þáttur - Ingólfur Bjarni Sigfússon

    1 h 13 min

    Íslendingar halda að ástand heimsins komi þeim ekki við Ingólfur Bjarni fréttamaður er gestur Flekaskila þar sem komið er víða við. Um þjóðaratkvæðagreiðsluna og Evrópu, viðræður um frið í Úkraínu …

    Notas do episódio

    Íslendingar halda að ástand heimsins komi þeim ekki við

    Ingólfur Bjarni fréttamaður er gestur Flekaskila þar sem komið er víða við. Um þjóðaratkvæðagreiðsluna og Evrópu, viðræður um frið í Úkraínu, fjölþáttaógnir, varnarsamninginn við Bandaríkin, leyndarhyggju og hvort hægt sé að treysta gömlum samningum í nýjum heimi, Trump og Pútin.

  11. Flekaskil - 21. þáttur - Pipaluk Lynge

    1 h 7 min

    Flekaskil – halda áfram. Heimurinn á korteri og Grænland Flekaskil halda áfram þótt Þórdís Kolbrún stigi til hliðar sem stjórnandi. Pipaluk formaður utanríkis- og öryggisnefnd Grænlenska þingsins opnar hjarta …

    Notas do episódio

    Flekaskil – halda áfram. Heimurinn á korteri og Grænland Flekaskil halda áfram þótt Þórdís Kolbrún stigi til hliðar sem stjórnandi. Pipaluk formaður utanríkis- og öryggisnefnd Grænlenska þingsins opnar hjarta sitt í einstöku viðtali um stöðuna í Grænlandi og það sem hefur gengið á. Þjóðaratkvæðagreiðslan, deilur Bandaríkjanna og Kanada, tilhugalíf Kanada og Evrópu, CIA forstjóri í Moskvu, skeytasendingar í Íran, eignarhald og olíugjafir til Trump í Venesúela og fjölmargt fleira er umfjöllunarefni í „Heimurinn á korteri“ – yfirliti yfir það fjölmarga sem gengið hefur á undanfarna daga á meðan Ísland var undirlagt af Evrópu-umræðunni.

  12. Flekaskil - 20. þáttur - Þáttaskil, viðskiptastríð og Evrópa

    1 h 20 min

    Við ræðum viðskiptastríð sem braust út milli Bandaríkjanna og Kanada, kröfur Trump sem ganga á fullveldi og spurningalista Bandaríkjanna til NATO-ríkja. Við berum orðræðuna saman við Grænlandsmálið og ræðum …

    Notas do episódio

    Við ræðum viðskiptastríð sem braust út milli Bandaríkjanna og Kanada, kröfur Trump sem ganga á fullveldi og spurningalista Bandaríkjanna til NATO-ríkja. Við berum orðræðuna saman við Grænlandsmálið og ræðum Evrópumálin í þessu ljósi. Þá tilkynnir Þórdís Kolbrún um þáttaskil í þáttöku sinni í Flekaskilum.

  13. Flekaskil - 19. þáttur - Titringur milli Trump og bandamanna og Evrópu-umræðan

    1 h 28 min

    Þegar 60 daga tímamörk vopnahlés í Íran liði í morgun, virðist langt í samninga. Titringur er milli Trump og bandamanna í Evrópu, í Mið-Austurlöndum, Asíu og Kyrrahafi. Við ræðum málefnalegar greinar fyrir já …

    Notas do episódio

    Þegar 60 daga tímamörk vopnahlés í Íran liði í morgun, virðist langt í samninga. Titringur er milli Trump og bandamanna í Evrópu, í Mið-Austurlöndum, Asíu og Kyrrahafi. Við ræðum málefnalegar greinar fyrir já og nei og óvissu um framtíð EES-samningsins.

  14. Flekaskil - 18. þáttur - Bandarísk olíuleit í óleyfi við Grænland - afleiðingar Íran-stríðsins og atburðirnir við Ceuta

    57 min

    Bandarískt olíufyrirtæki gerir sig líktlegt til að hefja olíuleit í lögsögu Grænlands, án leyfa og gegn mótmælum landstjórnarinnar. Við fjöllum um kenningar og skýringar á því að tugþúsundir lögðust til sunds …

    Notas do episódio

    Bandarískt olíufyrirtæki gerir sig líktlegt til að hefja olíuleit í lögsögu Grænlands, án leyfa og gegn mótmælum landstjórnarinnar. Við fjöllum um kenningar og skýringar á því að tugþúsundir lögðust til sunds að ströndum spænska hluta Marókkó, Ceuta, sem olli pólitískum skjálfta í Evrópu og var kallað innrás í Evrópu.

    Afleiðingar og staða Íran-stríðsins, Gaza, yfirgripsmiklar árásir sem við köllum sjaldan það heldur fjölþáttaógnir eru að verða hluti af daglegum fréttum og veruleika. Einnig ræðum við grein Economist um þjóðaratkvæðgreiðsluna um hvort Ísland eigi að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið.

  15. Flekaskil - 17. þáttur - Kettir, hattar, loftslagsmál, Gaza, bresk stjórnmál og verðugir bandamenn

    1 h 25 min

    Þórdís Kolbrún verður sendiherra - hvað verður um köttinn? Við fjöllum um hatta og hattakaup og hvað sendiherrastaða útheimtir. Yfirlýsingar Mandami borgarstjóra New York og Andy Burnham fyrrum borgarstjóra …

    Notas do episódio

    Þórdís Kolbrún verður sendiherra - hvað verður um köttinn? Við fjöllum um hatta og hattakaup og hvað sendiherrastaða útheimtir. Yfirlýsingar Mandami borgarstjóra New York og Andy Burnham fyrrum borgarstjóra Manchester og nýs forsætisráðherra Bretlands um Gaza. Nýtt álit um stöðu lofstslagsskuldbindinga skv. alþjóðalögum og fjölda greina um hvað það þýðir að vera verðugur bandamaður, sem birtist í timariti Vörðu - og muninum á stjórnmálum og pólitík.

  16. Flekaskil - 16. þáttur - Kristrún í Rest is Politics og Þórdís Kolbrún í Skálholti

    1 h 1 min

    Í sextánda þætti Flekaskila - og þeim síðasta áður en Þórdís Kolbrún verður formlega sendiherra í London tölum við um glænýtt viðtal við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í uppáhalds hlaðvarpinu okkar …

    Notas do episódio

    Í sextánda þætti Flekaskila - og þeim síðasta áður en Þórdís Kolbrún verður formlega sendiherra í London tölum við um glænýtt viðtal við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í uppáhalds hlaðvarpinu okkar Rest is Politics.

    Dagur nýtir sé aðstöðuna til að ræða við Þórdísi um hátíðarræðu hennar á Skálholtshátíð þar sem alþjóðamálin, Evrópuumræðan og staða Íslands var í brennidepli.

    Hin ótrúlega og alvarlega staða í Íran er áfram á dagskrá og eins og gjarnan er komið víða við - á þessu sinni á sólbökuðu Óðinstorg.

    Rest is politics þáttur með Kristrúnu: https://www.youtube.com/watch?v=dbRCjtCw4LM

    Skálholtsræða Þórdísar: https://thordiskolbrun.is/hatidarraeda-a-skalholtshatid/

  17. Flekaskil - 15. þáttur

    51 min

    Við rifjum upp lítt þekkta greningu Ásgeirs Jónssonar Seðlabankastjóra frá 2014 um hver áhrifin af upptök evru í stað krónu yrðu. Sú umfjöllun var í jafnvægi en niðurstaðan engu að síður skýr. Við tölum um sögu …

    Notas do episódio

    Við rifjum upp lítt þekkta greningu Ásgeirs Jónssonar Seðlabankastjóra frá 2014 um hver áhrifin af upptök evru í stað krónu yrðu. Sú umfjöllun var í jafnvægi en niðurstaðan engu að síður skýr. Við tölum um sögu íslensku krónunnar, gjaldmiðlasamstarf Íslands í gengum tíðina - og veltum vöngum yfir Evrópuumræðunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald viðræðna við Evrópusambandið.

  18. Flekaskil - 14. þáttur

    1 h 5 min

    Heimurinn er breyttur og mikilvægt er að samfélagið horfist í augu við það og stjórnmálin taki mið af því. Í nýjum þætti Flekaskila ræðum við um eftirköst NATO-fundarins, fjöllum um nýjar afhjúpanir WSJ um …

    Notas do episódio

    Heimurinn er breyttur og mikilvægt er að samfélagið horfist í augu við það og stjórnmálin taki mið af því. Í nýjum þætti Flekaskila ræðum við um eftirköst NATO-fundarins, fjöllum um nýjar afhjúpanir WSJ um rofið milli Bandaríkjanna, Evrópu og Kanda.

    Ræðum skrif Baldurs Þórhallssonar prófessors í stjórnmálafræði og fyrrum forsetaframbjóðanda þar sem hann varar íslensk stjórnvöld við værukærð í garð breyttrar stöðu og mikilvægi þess að uppfæra mat á ógnum gagnvart fullveldi Íslands í víðu samhengi. Hann bendir á þann súrrealíska veruleika "að danski forsætisráðherrann þurfi að lýsa því yfir að Danir séu tilbúnir að verja konungsríkið reyni Bandaríkin - sem hafa hingað til verið helsti bandamaður þeirra - að hernema Grænland."

    Þetta og fjölmargt fleira er á dagskrá í þessum fjórtánda þætti.

  19. Flekaskil - 13. þáttur

    55 min

    Við förum yfir helstu fréttir af leiðtogafundi NATO í Ankara sem lauk í dag, alvarlegar yfirlýsingar Trump um Grænland sem hann ætlar sér enn að eignast.Þungi Evrópu og Kanada innan bandalagsins eykst og Spánn …

    Notas do episódio

    Við förum yfir helstu fréttir af leiðtogafundi NATO í Ankara sem lauk í dag, alvarlegar yfirlýsingar Trump um Grænland sem hann ætlar sér enn að eignast.

    Þungi Evrópu og Kanada innan bandalagsins eykst og Spánn virðist mega búast við efnahagslegum þrýstingi frá Bandaríkjunum ef marka má orð forsetans. Vægi alþjóðalaga er áfram umræðuefni en nú eru heilagar reglur fótboltans brotnar líka.

    Brothætt staða Íran og Bandaríkjanna versnar á nýjan leik og samantekt á fjölþáttaógnum og árásum Rússa varpar óhugnanlegu ljósi á stöðuna.

    Frétt í New Yorker: https://www.newyorker.com/magazine/2026/06/22/inside-the-ludicrous-deadly-serious-plan-to-take-over-greenland?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTEAc3J0YwZhcHBfaWQPNDM3NjI2MzE2OTczNzg4AAEeSlK-xp04wPxTRBCT2CXtbEbCVOei3GuaMJGPf3FmU-6djSDi5w2f5NFDsqA_aem_QeGzuROKcxamuDGwz4DvHQ

    Frétt um Rússland: https://www.iiss.org/research-paper/2026/06/russias-uav-campaign-over-europe/?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTEAc3J0YwZhcHBfaWQPNDM3NjI2MzE2OTczNzg4AAEe92XIQiWZdNoVNVTyLp6bWBX-olvzJ5I4P9oAJ9DhdVuuVzMfac-5ASwMmM8_aem_zLwOT7YhJ69uCjOFN8WCaA

  20. Flekaskil - 12. þáttur

    1 h 11 min

    NATO á Flekaskilum! Við tökum stöðuna innan NATO fyrir í Flekaskilum - þegar vika er til sögulegs leiðtogafundar samtakanna í Ankara. Við ræðum þróun mála síðasta eitt og hálfa árið - frá því Trump varð forseti …

    Notas do episódio

    NATO á Flekaskilum!

    Við tökum stöðuna innan NATO fyrir í Flekaskilum - þegar vika er til sögulegs leiðtogafundar samtakanna í Ankara.

    Við ræðum þróun mála síðasta eitt og hálfa árið - frá því Trump varð forseti Bandaríkjanna. Rifjum upp yfirlýsingar um NATO og einstök aðildarland. Greinum stöðuna í Íran, samkomulagið um vopnahlé og áhrif átakanna á heiminn, hagkerfið, Íran og ekki síður Bandaríkin.

  21. Flekaskil - 11. þáttur

    59 min

    Í ellefta þætti flekaskila veitir Þórdís Kolbrún innsýn í borðæfingu sem hún tók þátt í, ECFR Double Crisis Wargame, í París ásamt 45 reynslumiklum og háttsettum evróskum leiðtogum úr pólitík, stjórnsýslu og …

    Notas do episódio

    Í ellefta þætti flekaskila veitir Þórdís Kolbrún innsýn í borðæfingu sem hún tók þátt í, ECFR Double Crisis Wargame, í París ásamt 45 reynslumiklum og háttsettum evróskum leiðtogum úr pólitík, stjórnsýslu og hernaðartengdum málum þar sem spjótin stóðu á Dönum og Grænlandi, - og Íslandi. Það að setja á svið atburðarrás vekur fjölda spurning um hvað dugir í alþjóðasamskiptum og bandalögum þegar til kastanna kemur. Flekaskil eru aðgengileg á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

  22. Flekaskil - 10. þáttur

    53 min

    Afleiðingarnar af opnu bréfi Zelenzkys. Trump vildi Iran-samning og slagsmál í afmælisgjöf. Norrænir fjölmiðlar afhjúpa gríðarlega uppbyggingu Rússa við landamæri Noregs, Finnlands og Eystrasaltsríkjanna. Og …

    Notas do episódio

    Afleiðingarnar af opnu bréfi Zelenzkys. Trump vildi Iran-samning og slagsmál í afmælisgjöf. Norrænir fjölmiðlar afhjúpa gríðarlega uppbyggingu Rússa við landamæri Noregs, Finnlands og Eystrasaltsríkjanna. Og glænýr íslensk skýrsla um hættuna af drónum. Höfum við verið sofandi?

    Hljóð, mynd og eftirvinnsla: Þórarinn Hjartarson

    Tónlist: Halldór Eldjárn

  23. Flekaskil - 9. þáttur

    1 h 5 min

    Opið bréf Zelenskís til Pútin.Þórdís Kolbrún ræðir framgöngu Trump Bandaríkjaforseta. Við tölum um stórmerkilegt páfabréf um gervigreind, ofurvald gervigreindarfyrirtækja og fasisma, svo fátt eitt sé …

    Notas do episódio

    Opið bréf Zelenskís til Pútin.

    Þórdís Kolbrún ræðir framgöngu Trump Bandaríkjaforseta. Við tölum um stórmerkilegt páfabréf um gervigreind, ofurvald gervigreindarfyrirtækja og fasisma, svo fátt eitt sé nefnt.

    Flekaskil eru aðgengileg á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

  24. Flekaskil - 8. þáttur

    57 min

    Tuttugu heilræði gegn harðstjórn, Evrópa, smávaxinn kona sem stendur gegn ásælni stórveldis, að vera niðri fyrir um stöðu heimsmála og fleira og fleira í áttunda þætti Flekaskila.Hljóð, mynd og eftirvinnsla …

    Notas do episódio

    Tuttugu heilræði gegn harðstjórn, Evrópa, smávaxinn kona sem stendur gegn ásælni stórveldis, að vera niðri fyrir um stöðu heimsmála og fleira og fleira í áttunda þætti Flekaskila.

    Hljóð, mynd og eftirvinnsla: Þórarinn Hjartarson

    Tónlist: Halldór Eldjárn

  25. Flekaskil - 7. þáttur

    44 min

    Það hitnaði í kolunum í Flekaskilum! Fjallað er um heimsókn Trump til Kína, ójöfnuð og ofurvald tækirisa. Ummæli Ólafs Ragnars um Evrópu og Bandaríkin. Þá spurningu hvort meiri hagsæld sé í Bandaríkjunum en …

    Notas do episódio

    Það hitnaði í kolunum í Flekaskilum! Fjallað er um heimsókn Trump til Kína, ójöfnuð og ofurvald tækirisa. Ummæli Ólafs Ragnars um Evrópu og Bandaríkin. Þá spurningu hvort meiri hagsæld sé í Bandaríkjunum en Evrópu og fleira og fleira.

  26. Flekaskil - 6. þáttur

    54 min

    Dagur B. Eggertsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ræða um stöðu Úkraínu.

  27. Flekaskil - 5. þáttur

    50 min

    Varnarsamningur Ísland og Bandaríkjanna átti 75 ára afmæli í vikunni. Höfum við tekið vörnum okkar, friði og skipulagi alþjóðakerfisins sem gefnu? Hvers vegna olli varnarsamningurinn svo miklum deilum og …

    Notas do episódio

    Varnarsamningur Ísland og Bandaríkjanna átti 75 ára afmæli í vikunni. Höfum við tekið vörnum okkar, friði og skipulagi alþjóðakerfisins sem gefnu? Hvers vegna olli varnarsamningurinn svo miklum deilum og klofningi í samfélaginu og hvernig stendur hann í dag, nú þegar allir flokkar á Alþingi styðja hann og aðildina að NATO?

    Með samningnum hófst nýr kafli í sögu Íslands þar sem alþjóðamál, stórveldapólitík og íslensk fullveldisumræða fléttuðust saman á áður óþekktan hátt. Áhrif varnarsamningsins hafa verið pólitísk, efnahagsleg og samfélagsleg. Hann hefur kallað fram sterkar skoðanir um sjálfstæði Íslands, hervæðingu og stöðu landsins í alþjóðakerfinu. Hvaða áhrif hafa breytt Bandaríki á stöðu hans og okkar?

  28. Flekaskil - 4. þáttur

    48 min

    Leiðir Íran-stríðið til heimskreppu?Innrás Bandaríkjanna og Ísrael á Íran hefur alls ekki farið eins og Bandaríkjaforseti hafði væntingar til. Trump hefur brugðist hart við gagnrýni evrópskra bandamanna á …

    Notas do episódio

    Leiðir Íran-stríðið til heimskreppu?

    Innrás Bandaríkjanna og Ísrael á Íran hefur alls ekki farið eins og Bandaríkjaforseti hafði væntingar til. Trump hefur brugðist hart við gagnrýni evrópskra bandamanna á stríðið og hefur lýst því yfir að 5.000 hermenn verði fluttir frá Þýskalandi. Gengið hefur á vopnabúr og hátækni loftvarnir bæði Bandaríkjamanna og samstarfsríkja þeirra við botn Miðjarðarhafs. Fjallað er um stöðuna í stríðinu og afleiðingar þess frá mörgum hliðum í þessum fjórða þætti Flekaskila.

    Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri eru af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ræða flekaskilin sem eru að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur en síðast ekki síst hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands, — í öryggis- og varnarmálum, í samskiptum við helstu bandalagsríki okkar, í tengslum við Bandaríkin, NATO, Trump og Evrópu.

  29. Flekaskil - 3. þáttur

    42 min

    Flekaskil innan NATO. Spenna milli Bandaríkjanna og Evrópu og staða Íslands.Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi …

    Notas do episódio

    Flekaskil innan NATO. Spenna milli Bandaríkjanna og Evrópu og staða Íslands.

    Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri eru af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ræða flekaskilin sem eru að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur en síðast ekki síst hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands, — í öryggis- og varnarmálum, í samskiptum við helstu bandalagsríki okkar, í tengslum við Bandaríkin, NATO, Trömp og Evrópu.

  30. Flekaskil - 2. þáttur

    56 min

    Úkraínu-stríðið og nýafstaðnar kosningar í Ungverjalandi.Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur …

    Notas do episódio

    Úkraínu-stríðið og nýafstaðnar kosningar í Ungverjalandi.

    Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri eru af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ræða flekaskilin sem eru að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur en síðast ekki síst hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands, — í öryggis- og varnarmálum, í samskiptum við helstu bandalagsríki okkar, í tengslum við Bandaríkin, NATO, Trömp og Evrópu.

    Mynd, hljóð og eftirvinnsla: Þórarinn Hjartarson

    Tónlist: Halldór Eldjárn

Este podcast é seu?

Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.

Configurações

Exibição

Idioma

Define quais estações você vê primeiro na página inicial.

Histórico

As rádios e episódios ouvidos recentemente e suas últimas buscas ficam só neste navegador.

Avisos

Um aviso rápido quando um podcast que você segue tem um episódio novo. Desative podcasts individuais pelo sino na página deles.

Conta

Salve favoritos – no app e no site.

Atalhos de teclado

/
Abrir busca
Espaço
Reproduzir ou pausar
← →
No player: voltar 15 s, avançar 30 s (episódios) · na fileira: próximo bloco
↑ ↓
Na fileira: alvo dentro do bloco
Home / End
Na fileira: primeiro ou último bloco
Esc
Fechar janela ou menu
?
Esta visão geral
Tocando agora

Ir para a estação

A seguir

    Adicione episódios com “A seguir” – eles tocam depois do episódio atual.