Pular para o conteúdo
Rauða borðið

Rauða borðið

NovoRauða borðið - Helgi-spjall: Ómar Stefáns14 de novembro de 2026 · 2 h 29 min
Episódios
600
Publicação
diária
Último episódio
14 nov 2026

Sobre o podcast

Róttæk samfélagsumræða. Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Episódios 600

  1. Rauða borðið - Helgi-spjall: Ómar Stefáns

    2 h 29 minEpisódio 1492

    Laugardagur 14. nóvember Helgi-spjall: Ómar Stefáns Ómar Stefánsson myndlistarmaður, satanisti, galdramaður og guðspekingur segir frá lífi sínu og list, dauða sínum og öðru dundi.

  2. Föstudagur 13. nóvember - Vikuskammtur: Vika 46

    1 h 40 minEpisódio 1493

    Föstudagur 13. nóvember Vikuskammtur: Vika 46 Þau koma að Rauða borðinu, Rósa Líf Darradóttir læknir og dýravinur, Grace Achieng stofnandi og framkvæmdastjóri House of Grace, Kjartan Orri Þórsson …

    Notas do episódio
    Föstudagur 13. nóvember Vikuskammtur: Vika 46 Þau koma að Rauða borðinu, Rósa Líf Darradóttir læknir og dýravinur, Grace Achieng stofnandi og framkvæmdastjóri House of Grace, Kjartan Orri Þórsson Miðausturlandafræðingur og Riitta Anne Maarit Kaipainen, viðskiptafræðingur og stjórnarkona hjá VG og VGR og ræða við Gunnar Smára um fréttir vikunnar sem einkenndust af framhjáhaldi, njósnum, illri meðferð og snjókomu.
  3. Rauða borðið 12. nóv - Uppljóstrari, Grindavík, reynsluboltar, fyrirgefningin og kommúnulíf

    4 h 7 minEpisódio 1491

    Fimmtudagur 12. nóvember Uppljóstrari, Grindavík, reynsluboltar, fyrirgefningin og kommúnulíf Einar Logi Pétursson dýra-aðgerðasinni segir Gunnari Smára frá því hvers vegna hann braust inn í svínabúið …

    Notas do episódio
    Fimmtudagur 12. nóvember Uppljóstrari, Grindavík, reynsluboltar, fyrirgefningin og kommúnulíf Einar Logi Pétursson dýra-aðgerðasinni segir Gunnari Smára frá því hvers vegna hann braust inn í svínabúið Stjörnugrís, hvað hann sá og hverju hann vill áorka með uppljóstrun sinni. Hvað segja Grindvíkingar þremur árum eftir hamfarirnar þegar uppkaupatilboð á húsnæði hafa verið kynnt? Björn Þorláks ræðir við Pál Val Björnsson. Sigurjón Magnússon fær til sín í fréttaspjall Steingerði Steinarsdóttur, Guðmund Þ. Ragnarsson og Sigga Storm í þættinum Reynsluboltar. Séra Vigfús Bjarni ræðir fyrirgefninguna, Ásdís Olsen ræðir við hann. Ásdís Olsen kynnir sér kommúnulífsstíl á Suðurlandi.
  4. Rauða borðið 11. nóv - Hjólhýsasamfélag, útlendingar, gervigreind, geðvernd, heimsmálin og Samstöðin

    5 h 36 minEpisódio 1490

    Miðvikudagur 11. nóvember Hjólhýsasamfélag, útlendingar, gervigreind, geðvernd, heimsmálin og Samstöðin Hvers vegna er litið niður á fólk sem kýs að lifa öðruvísi? Bergþóra Pálsdóttir, talskona Samtaka …

    Notas do episódio
    Miðvikudagur 11. nóvember Hjólhýsasamfélag, útlendingar, gervigreind, geðvernd, heimsmálin og Samstöðin Hvers vegna er litið niður á fólk sem kýs að lifa öðruvísi? Bergþóra Pálsdóttir, talskona Samtaka hjólabúa, segir mikla fordóma og ranghugmyndir ríkja um hjólabúa og gagnrýnir harðlega framkomu Reykjavíkurborgar, ekki síst Einars Þorsteinssonar. Ásdís Olsen ræðir við hana. Margt er líkt með viðhorfum Íslendinga til útlendinga í dag og fyrir ríflega 30 árum. Stefán Jón Hafstein rýnir í eigin þáttagerð á Stöð 2 í beinni útsendingu árið 1995, 31 árs gamla heimild þegar margir Íslendingar höfðu áhyggjur af örfáum útlendingum. Hanna Kristín Skaftadóttir, dósent og fagstjóri forystu og gervigreindar á Háskólanum á Bifröst, og Þorsteinn Siglaugsson heimspekingur og hagfræðingur ræða við Gunnar Smára um hvaða áhrif gervigreindin hefur þegar haft og mun hafa. Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir snýr aftur í umræðu með Birni Þorláks eftir nokkurt hlé. Hann ræðir nýjar rannsóknir um hvernig heilinn starfar og hvernig ný vísindaleg sannindi breyta viðhorfum og meðferð. Vaxandi veikindi opinberra starfsmanna verða einnig til umfjöllunar. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor á Akureyri ræðir við Gunnar Smára um heimsmálin, Úkraínu- og Íranstríðin og afleiðingar þeirra á valdahlutföll í heiminum. Gunnar Smári ræðir við nokkra þáttastjórnendur á Samstöðinni utan Rauða borðsins. Þau María Hjálmtýsdóttir í Bókaborðinu, Kári Jónsson í Sjávarútvegsspjallinu, Kristín Helga Gunnarsdóttir við Græna borðið og Sigurður Jóhannesson í Manngildi ræða við hann og Valur Gunnarsson segir frá þætti sem hefur göngu sína innan tíðar, Hvernig í ósköpunum enduðum við hér?
  5. Rauða borðið 10. nóv - Trumptíminn, neytendur, hagspá, fæðingarorlof, ljóð og elsti bílstjórinn

    4 h 8 minEpisódio 1489

    Þriðjudagur 10. nóvember Trumptíminn, neytendur, hagspá, fæðingarorlof, ljóð og elsti bílstjórinn Kristján Guy Burgess alþjóðastjórnmálafræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Margrét Valdimarsdóttir …

    Notas do episódio
    Þriðjudagur 10. nóvember Trumptíminn, neytendur, hagspá, fæðingarorlof, ljóð og elsti bílstjórinn Kristján Guy Burgess alþjóðastjórnmálafræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræða við Gunnar Smára um sögulegar kosningar í Bandaríkjunum og stöðu Trump eftir þær. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakana ræðir við Björn Þorláks um hvers vegna vöruverð í búðum ætti að hafa lækkað í mörgum tilvikum þegar jafnvel hækkanir hafa orðið ofan á. Róbert Farestveit sviðstjóri hagsviðs Alþýðusambandsins og Ágúst Arnórsson hagfræðingur ræða við Gunnar Smára um horfur í efnahagslífinu en ASÍ sendi nýverið frá sér hagspá. Er íslenska fæðingarorlofskerfið hugsað út frá vinnumarkaði eða þörfum barna? spyr Ásdís Olsen í viðtali við Rögnu Sigurðardóttur, þingmann Samfylkingarinnar og Ásdísi Arnalds, doktor í félagsráðgjöf. Jovana Pavlović og Miriam Petra Ómarsdóttir Awad voru að senda frá sér ljóðabækur og ræða við Gunnar Smára um ljóðið, íslenskuna, pólitík og ástina. Hilmar Mýrkjartansson, 98 gamall, fyrrum atvinnubílstjóri, hóf akstur strætó árið 1948 og ekur enn. Hann segir Birni Þorláks sögur við Rauða borðið.
  6. Rauða borðið 9. nóv - Kynlífsglæpir, undanþágur, mistök, hraðakstur og afneitun

    2 h 30 minEpisódio 1488

    Mánudagur 9. nóvember Kynlífsglæpir, undanþágur, mistök, hraðakstur og afneitun Drífa Snædal, talskona Stígamóta, segir okkur frá ótrúlegum staðreyndum um glæpi sem koma á borð Stígamóta. Því miður er ekkert …

    Notas do episódio
    Mánudagur 9. nóvember Kynlífsglæpir, undanþágur, mistök, hraðakstur og afneitun Drífa Snædal, talskona Stígamóta, segir okkur frá ótrúlegum staðreyndum um glæpi sem koma á borð Stígamóta. Því miður er ekkert lát á. Konur sem leiðast út í vændi gera það oft til þess að eiga fyrir mat, fyrir sig og börnin. Sigurjón Magnús ræðir við Drífu. Ill meðferð dýra á svínabúi hefur valdið undrun og fordæmingu. Andrés Ingi Jónsson, stjórnarformaður í samtökum um dýravelferð, segir að undanþágur stýri eftirliti. Grísir hjá Stjörnugrís fara að hans sögn óttaslegnir inn í dauðann. Björn Þorláks ræðir við Andrés. Stytting framhaldsskólans í þrjú ár var mistök að mati þriggja nemenda í tómstunda- og félagsmálafræði við HÍ, sem láta sig dreyma um að stjórnvöld vindi ofan af skaðanum. Björn Þorláks ræðir við Margréti Norðfjörð, Óliver Elvarsson og Silja Kolbrún Skúladóttir. ,,Þau halda að þau séu ódauðleg og séu í tölvuleikjum,” segir Páll Halldór Halldórsson sem er þekktur sem Rally Palli en hefur rannsakað hræðilega banaslysið sem varð á Krísuvíkurvegi nýlega þar sem 3 ungmenni létust. Ásdís Olsen ræðir við Pál. Jean-Remí Chareyre, sjálfstætt starfandi blaðamaður, gefur lítið fyrir nýlega umfjöllun í Kastljósi um loftslagsmál. Hann ræðir umhverfismál og fjölmiðlun í samtali við Björn Þorláks.
  7. Rauða borðið - Helgi-spjall: Sigga Kling

    2 h 18 minEpisódio 1487

    Laugardagur 7. nóvember Helgi-spjall: Sigga Kling Hver er konan á bak við litríku spákonuímyndina? Sigga Kling er engri lík – skrautleg, skemmtileg, skapandi og óhrædd við að fara sínar eigin leiðir. Hún segir …

    Notas do episódio
    Laugardagur 7. nóvember Helgi-spjall: Sigga Kling Hver er konan á bak við litríku spákonuímyndina? Sigga Kling er engri lík – skrautleg, skemmtileg, skapandi og óhrædd við að fara sínar eigin leiðir. Hún segir frá ástarsorg sem olli straumhvörfum í lífi hennar, móður sinni sem vildi ekki lifa og æskuárunum á Snæfellsnesi hjá ömmu sinni sem þjónaði Thorsurunum og málaði allt húsið blátt til heiðurs Sjálfstæðisflokknum. Sigga deilir líka ljóðmælum, óvæntri innsýn og lífssýn sinni af einstakri hreinskilni. Í einlægu og fjörugu spjalli kynnumst við nýrri hlið á Siggu Kling í viðtali við Ásdísi Olsen.
  8. Synir Egils 8. nóv - Endalok Trumptímans, svín, uppsagnir, lífskjarakrísa og fjölmiðlar

    2 h 13 minEpisódio 1486

    Sunnudagurinn 8. nóvember Synir Egils: Endalok Trumptímans, svín, uppsagnir, lífskjarakrísa og fjölmiðlar Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Alma Ýr Ingólfsdóttir …

    Notas do episódio
    Sunnudagurinn 8. nóvember Synir Egils: Endalok Trumptímans, svín, uppsagnir, lífskjarakrísa og fjölmiðlar Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ, Arna Lára Jónsdóttir, þingkona Samfylkingar og Illugi Jökulsson blaðamaður og ræða helstu fréttir og stöðu mála hér heima og erlendis. Þá koma þau Eyrún Magnúsdóttir stofnandi Gímaldsins, Jón Trausti Reynisson framkvæmdastjóri Heimildarinnar og Magnús Magnússon ritstjóri og framkvæmdastjóri Skessuhorns og ræða stöðu fjölmiðla og umræðunnar í samfélaginu. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
  9. Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 45

    1 h 16 minEpisódio 1485

    Föstudagur 6. nóvember Vikuskammtur: Vika 45 Í Vikuskammti ræða í beinni útsendingu Lóa Hjálmtýsdóttir listakona, Heiðar Ingi Svansson útgefandi, Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri Rúv, Þorgerður María …

    Notas do episódio
    Föstudagur 6. nóvember Vikuskammtur: Vika 45 Í Vikuskammti ræða í beinni útsendingu Lóa Hjálmtýsdóttir listakona, Heiðar Ingi Svansson útgefandi, Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri Rúv, Þorgerður María Þorbjarnardóttir hjá Landvernd og Bragi Páll skáld fréttir vikunnar í umsjá Björns Þorláks. Kjarnorkutíst upplýsingafulltrúa, raðáhrif í kjölfarið, Reykjavík Bangkok norðursins – eða ekki, upphafið að endalokum Trump, sögur brottrekinna starfsmanna, umhverfismál, hamfarapakki heimilanna, bækur og gott fólk verða til umræðu.
  10. Rauða borðið 5. nóv - Reynsluboltar, meðvirkni, áhugaleikhús og Frakkland

    3 h 52 minEpisódio 1484

    Fimmtudagur 5. nóvember Reynsluboltar, meðvirkni, áhugaleikhús og Frakkland Reynsluboltar þessa vikuna eru Benedikt Jóhannesson stofnandi Viðreisnar, Óðinn Jónsson fyrrum fréttastjóri RÚV og Þórunn …

    Notas do episódio
    Fimmtudagur 5. nóvember Reynsluboltar, meðvirkni, áhugaleikhús og Frakkland Reynsluboltar þessa vikuna eru Benedikt Jóhannesson stofnandi Viðreisnar, Óðinn Jónsson fyrrum fréttastjóri RÚV og Þórunn Sigurðardóttir menningarfrömuður. Vandinn vegna Landsvirkjunar, orð Ólafs Ragnars og svar Þorgerðar Katrínar voru á dagskrá, íslenska óperan og fleira. „Áttu erfitt með að biðja um hjálp?“ Þá ertu líklega að glíma við meðvirkni, segja Gyða Dröfn Tryggvadóttir og Anton Ísak Óskarsson, en þau þekkja meðvirkni af eigin raun. Þau segja opinskátt frá eigin reynslu, leiðinni út úr meðvirkni og léttinum við að losna úr fjötrum meðvirkninnar í viðtali við Ásdísi Olsen. Vigdís Grímsdóttir rithöfundur, Rúnar Guðbrandsson leikstjóri og leikkonurnar Guðfinna Gunnarsdóttir og Íris Árný Magnúsdóttir ræða við Gunnar Smára um uppfærslu Leikfélags Selfoss á leikgerð upp úr þessari vinsælu bók. Gérard Lemarquis kennari sem lengi var fréttaritari Le Monde og AFP á Íslandi ræðir um ástandið í Frakklandi við Gunnar Smára.
  11. Rauða borðið 4. nóv - Trumptíminn, fæðingarorlof, pendúlhreyfingar, tónlist og lagaleg álitaefni

    4 h 36 minEpisódio 1483

    Miðvikudagur 4. nóvember Trumptíminn, fæðingarorlof, pendúlhreyfingar, tónlist og lagaleg álitaefni Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Magnús Helgason sagnfræðingur og Ólafur Þ. Harðarson prófessor fara …

    Notas do episódio
    Miðvikudagur 4. nóvember Trumptíminn, fæðingarorlof, pendúlhreyfingar, tónlist og lagaleg álitaefni Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Magnús Helgason sagnfræðingur og Ólafur Þ. Harðarson prófessor fara yfir kosningaúrslitin í Bandaríkjunum í spjalli við Gunnar Smára í auka-Trumptíma. Marka kosningarnar endalok Trumptímans? Ásdís Olsen ræðir við Karítas Ólafsdóttur móður og sálfræðing en hún neitar að láta stjórnvöld ráða hennar eigin barneignum. Forgangsröðun fjármuna tekur ekki mið af þörfum barna. Þetta segir Grímur Atlason hjá Geðhjálp. Hann og Margrét Valdimarsdóttir doktor í afbrotafræði ræða við Björn Þorláks um muninn á vistun barns og brú yfir fljót. Á föstudag verður frumflutt stórvirkið ANOK eftir Högna Egilsson í Hallgrímskirkju. Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona er í aðalhlutverki í flutningnum og ræðir ásamt tónskáldinu Högna verkið í samtali við Björn Þorláks. Grímur Atlason hjá Geðhjálp og Margrét Valdimarsdóttir, dósent við HÍ, ræða kosningarnar í Bandaríkjunum í gær, áhrif þeirra á heiminn og þar á meðal hér á Íslandi. Björn Þorláks ræðir við þau. Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir lagaleg álitaefni tengd fréttum líðandi stundar. Uppsagnir og uppsagnarákvæði, minnkandi samkeppni á matvörumarkaði og Landsvirkjunarmálið eru þar á meðal. Björn Þorláks ræðir við Gísla.
  12. Rauða borðið 3. nóv - Uppsagnir, norðurslóðir, ópera og lækningar

    4 h 23 minEpisódio 1482

    Þriðjudagur 3. nóvember Uppsagnir, norðurslóðir, ópera og lækningar Þorvaldur Ingi Jónsson ráðgjafi rýnir í hópuppsagnirnar hjá borginni og gefur aðferðafræðinni laka einkunn. Björn Þorláks heldur áfram …

    Notas do episódio
    Þriðjudagur 3. nóvember Uppsagnir, norðurslóðir, ópera og lækningar Þorvaldur Ingi Jónsson ráðgjafi rýnir í hópuppsagnirnar hjá borginni og gefur aðferðafræðinni laka einkunn. Björn Þorláks heldur áfram umfjöllun Samstöðvarinnar um starfsmannamál og mannúð. Gunnar Smári ræðir við Rasmus Gjedssø Bertelsen prófessor í Tromsø um Grænlandssamning Bandaríkjanna, símtal forsætisráðherra Noregs og forseta Finnlands til Putín og önnur mál tengt norðurslóðum. Bjarni Snæbjörnsson leikstjóri, Íris Björk Gunnarsdóttir sópran og Bjarni Thor Kristinsson bassi segja Gunnari Smára frá óperunni 27 sem fjallar um lesbísku hjónin Gertrude Stein og Alice B. Toklas. Ásgeir Böðvarsson læknir og íslenskufræðingarnir Solveig Brynja Grétarsdóttir og Jón Torfason segja Gunnari Smára frá Jóni Jónssyni prest og lækni í Árskógi og á Grenjaðarstað, en hann lærði ekki til prests en fékk leyfi til að lækna gegn því að halda dagbækur, sem voru að koma út.
  13. Rauða borðið 2. nóv - Hópuppsagnir, Trump, uppreisnir, heimshvörf og samfélagsmiðlar

    5 h 14 minEpisódio 1481

    Mánudagur 2. nóvember Hópuppsagnir, Trump, uppreisnir, heimshvörf og samfélagsmiðlar Ómannúðlegar aðferðir við uppsagnir starfsfólks og áhrif þess, persónubundin og samfélagsleg, verða til umræðu hjá Viðari …

    Notas do episódio
    Mánudagur 2. nóvember Hópuppsagnir, Trump, uppreisnir, heimshvörf og samfélagsmiðlar Ómannúðlegar aðferðir við uppsagnir starfsfólks og áhrif þess, persónubundin og samfélagsleg, verða til umræðu hjá Viðari Eggertssyni leikara og Sigríði Kristjánsdóttur kvikmyndasérfræðingi. Þau urðu vitni að því sem Viðar kallar “slátrun” í hópuppsögn hjá Ríkisútvarpinu þar sem Sigríður missti vinnuna og lýsir nú í fyrsta skipti þeirri bitru reynslu. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Degi fyrir kosningar í Bandaríkjunum spá sagnfræðingarnir Sveinn Máni Jóhannesson, Magnús Helgason og Guðmundur Hálfdanarson í spilin með Gunnari Smára. Munu Repúblikanar tapa kosningunum svo illa að marki endalok Trumptímans? Hvað er að gerast í Evrópu og meðal ungs fólks víða um heim? Róttæklingarnir Ólafur Páll Sigurðsson, Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir og Lúkas Lilliendahl ræða við Gunnar Smára um uppreisn ungs fólks, hverju þau mótmæla og hvers vegna. Er gamli heimurinn að líða undir lok? Gísli Bachmann stjórnspekingur hefur fengið sýnir sem hann tengir við Völuspá, Ragnarök og upphaf nýrrar aldar. Hann telur að erfiðir tímar séu fram undan, átök og upplausn, en að úr þeim hreinsunareldi geti sprottið nýr heimur og andleg vakning mannkyns. Ásdís Olsen ræðir við hann. Halldóra Mogensen fyrrum þingmaður, sérfræðingur í gervigreind, ræðir samfélagsmiðla og hvernig stjórnvöld sváfu á verðinum gagnvart börnunum okkar. Björn Þorláks ræðir við Halldóru.
  14. Synir Egils 1. nóv - Uppsagnir, atvinnuleysi, stöðnun, umrót og pólitísk straumhvörf

    2 h 37 minEpisódio 1480

    Sunnudagurinn 1. nóvember Synir Egils: Uppsagnir, atvinnuleysi, stöðnun, umrót og pólitísk straumhvörf Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir …

    Notas do episódio
    Sunnudagurinn 1. nóvember Synir Egils: Uppsagnir, atvinnuleysi, stöðnun, umrót og pólitísk straumhvörf Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingkona Miðflokksins, María Rut Kristinsdóttir þingkona Viðreisnar og Guðmundur Ari Sigurjónsson þingmaður Samfylkingar og ræða helstu fréttir og stöðu mála, stöðu flokka, ríkisstjórnar og sveitarstjórna. Þá koma þau Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður Vg, Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknar og Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður og fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins og ræða pólitíska strauma vestan hafs og austan og áhrif þeirra á íslensk stjórnmál. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
  15. Rauða borðið - Helgi-spjall: Haraldur Erlendsson

    1 h 35 minEpisódio 1478

    Laugardagur 31. október Helgi-spjall: Haraldur Erlendsson Hvar liggja mörkin milli geðrænna einkenna og andlegrar reynslu? Haraldur Erlendsson geðlæknir hefur frá barnæsku upplifað andlegan veruleika, orðið …

    Notas do episódio
    Laugardagur 31. október Helgi-spjall: Haraldur Erlendsson Hvar liggja mörkin milli geðrænna einkenna og andlegrar reynslu? Haraldur Erlendsson geðlæknir hefur frá barnæsku upplifað andlegan veruleika, orðið fyrir margs konar dulrænni reynslu, upplifað eigin fæðingu, fengið innsýn og vitranir en umfram allt upplifað mikinn unað og kærleika. Haraldur fagnar sjötugsafmæli sínu um þessar mundir og segist loksins frjáls til að tjá sig um ýmislegt sem sumum gæti þótt skrýtið og ekki endilega fræðilegt. Í þessu opinskáa Helgispjalli við Ásdísi Olsen ræðir hann geðsjúkdóma, andlegar og trúarlegar hefðir, hugvíkkandi efni, mikilvægi þjáningar og þrautsegju fyrir andlegan þroska, nær-dauðareynslu, daoisma og tilgang lífsins. Haraldur er starfandi geðlæknir og formaður Lífspekifélags Íslands og hefur meðal annars kennt trúarlífssálfræði við guðfræðideild Háskóla Íslands og var lengi yfirlæknir og forstjóri Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands,
  16. Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 44

    1 h 24 minEpisódio 1479

    Föstudagur 30. október Vikuskammtur: Vika 44 Vikuskammtur, umræða um fréttir líðandi stundar, er í umsjá Björns Þorláks. Gestir hans, Oddný Harðardóttir fyrrum þingmaður, Jón Trausti Reynisson blaðamaður …

    Notas do episódio
    Föstudagur 30. október Vikuskammtur: Vika 44 Vikuskammtur, umræða um fréttir líðandi stundar, er í umsjá Björns Þorláks. Gestir hans, Oddný Harðardóttir fyrrum þingmaður, Jón Trausti Reynisson blaðamaður, Jasmina Vazjovic ráðgjafi og Ólafur Arnarson blaðamaður rýna í uppsagnir í borginni, niðurstöður kosninga utan landsteinanna, pólitík og efnahagsmál innanlands, fordóma, nýjar og áhugaverðar bækur og fleira.
  17. Rauða borðið 29. okt - Reynsluboltar, heimsmál, heimsveldi, vók, Mímir og takkarnir

    5 h 36 minEpisódio 1477

    Fimmtudagur 29. október Reynsluboltar, heimsmál, heimsveldi, vók, Mímir og takkarnir Kári Jónsson, Sirrý Arnardóttir og Álfheiður Ingadóttir eru reynsluboltarnir sem ræða við Sigurjón Magnús þessa vikuna, um …

    Notas do episódio
    Fimmtudagur 29. október Reynsluboltar, heimsmál, heimsveldi, vók, Mímir og takkarnir Kári Jónsson, Sirrý Arnardóttir og Álfheiður Ingadóttir eru reynsluboltarnir sem ræða við Sigurjón Magnús þessa vikuna, um fréttir og stöðu samfélagsins. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um símtal Støre og Stubb til Pútín, Úkraínu, smáríki og norðurslóðir. Valur Gunnarsson, sagnfræðingur og rithöfundur, ræðir við Björn Þorláks um nýja bók sem fjallar um hryðjuverk, efnahagshrun og endalok heimsveldis. Valur blandar heimssögu sína persónulegum frásögnum. Lýðskrum í íslenskum miðlum - innreið woke frá 1917 er heiti á erindi sem Lars Lundsten fræðimaður flytur á Þjóðarspegli á morgun. Björn Þorláks ræðir við hann um þá sem veifuðu vók-trénu oftast. Mímir Kristjánsson er hálfur Íslendingur á norska þinginu, rithöfundur, blaðamaður og sósíalisti. Hann talar við Gunnar Smára um vinstrið á Norðurlöndum, ysta hægrið og mótmæli í Evrópu. Sigríður Björk Þormar sálfræðingur, hjúkrunarfræðingur og doktor í heilbrigðisvísindum ræðir við Ásdísi Olsen um hvernig annað fólk getur stjórnað líðan okkar, magnað upp reiði, sorg og höfnun langt umfram sýnilegt tilefni, ýtt á takka sem kveikja á okkur.
  18. Rauða borðið 28. okt - Naza, heimahagkerfið, sprútt, enfants terrible, Pár Guðs

    4 h 28 minEpisódio 1476

    Miðvikudagur 28. október Naza, heimahagkerfið, sprútt, enfants terrible, Pár Guðs Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi, Hjálmtýr Heiðdal formaður Félagsins Ísland-Palestína, Qussay Odeh, Íslendingur af …

    Notas do episódio
    Miðvikudagur 28. október Naza, heimahagkerfið, sprútt, enfants terrible, Pár Guðs Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi, Hjálmtýr Heiðdal formaður Félagsins Ísland-Palestína, Qussay Odeh, Íslendingur af palestínskum ættum og Laufey Líndal Ólafsdóttir ræða við Gunnar Smára um heimildarmyndina Naza sem fjallar um hvernig ísraelski herinn notar gervigreind og háþróaða tækni til að fremja þjóðarmorð á Gaza. Gauti B Eggertsson hagfræðiprófessor við Brown háskólann ræðir við Gunnar Smára um horfur í heimshagkerfinu, verðbólgu og vaxandi ríkisskuldir og þær áskoranir sem íslenskt efnahagslífs stendur frammi fyrir. Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi bregst við ummælum forstjóra ÁTVR um að stofnunin sé að skoða heimsendingu á áfengi. Björn Þorláks ræðir við hann fleiri álitamál er varða lýðheilsu, forvarnir, frelsi og fíkn. Ásmundur Ásmundsson og Hannes Lárusson er enfants terrible íslenskrar myndlistar, sýningar þeirra vekja yfirleitt skjálfta og mikil viðbrögð. Þeir ræða við Gunnar Smára um listina, manneðlið og sýningu sem þeir opnuðu í gær. Guðmundur S. Brynjólfsson rithöfundur og djákni segir Gunnari Smára frá bók sinni Pár Guðs sem fjallar um ris og fall Finn Magnússonar, eins frægasta Íslendings sinnar tíðar.
  19. Rauða borðið 27. okt - Fjöldauppsagnir, fangelsi, landbrot, heilbrigðiskerfið, ástin og samhygðin

    4 h 52 minEpisódio 1475

    Þriðjudagur 27. október Fjöldauppsagnir, fangelsi, landbrot, heilbrigðiskerfið, ástin og samhygðin Nýr meirihluti í Reykjavík hefur sagt upp fjölda fólks sem starfar hjá borginni Kári Sigurðsson formaður …

    Notas do episódio
    Þriðjudagur 27. október Fjöldauppsagnir, fangelsi, landbrot, heilbrigðiskerfið, ástin og samhygðin Nýr meirihluti í Reykjavík hefur sagt upp fjölda fólks sem starfar hjá borginni Kári Sigurðsson formaður Sameykis og oddvitar úr minnihlutanum; Pétur Marteinsson Samfylkingu og Sanna Magdalena Mörtudóttir, Vinstrinu ræða við Gunnar Smára um stöðuna. Vilhjálmur Egilsson fyrrum þingmaður og rektor telur rétt að breyta skólum í fangelsi í stað þess að byggja alltaf ný. Í samtali við Björn Þorláks ræðir hann einnig sinn gamla flokk. Sjálfstæðisstefnan sigraði en Sjálfstæðisflokkurinn er í bullandi vandræðum, segir Vilhjálmur. Landbrot og uppbygging tengd mannfjölgun og ferðaþjónustu á Suðurlandi gæti leitt til árekstra í sambandi manns og náttúru. Björn Þorláks ræðir við Þóri Kjartansson ljósmyndara. Jósep Ó Blöndal læknir heldur áfram að segja Gunnari Smára frá ferð sinni um heilbrigðiskerfið og hvernig það hefur breyst um hans starfsævi. Og fræðir hann um heilbrigði og sjúkleika. Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur hefur skrifað bók um ástina. Nándin er okkur eins mikilvæg og matur, segir hann. Björn Þorláks ræðir við höfundinn. Mygluvandi í húsi í Mývatnssveit hefur valdið miklu tjóni og lasleika og hefur heimafólk ákveðið að leggja íbúum lið með stórtónleikum í kirkju á morgun. Björn Þorláks ræðir við Stebba Jak um framtakið.
  20. Rauða borðið 26 okt - Trump, rasismi, Landsréttur, Serbía, Brasilía, stjörnuspeki og Steinunn

    5 h 14 minEpisódio 1474

    Mánudagur 26. október Trump, rasismi, Landsréttur, Serbía, Brasilía, stjörnuspeki og Steinunn Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur …

    Notas do episódio
    Mánudagur 26. október Trump, rasismi, Landsréttur, Serbía, Brasilía, stjörnuspeki og Steinunn Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur ræða við Gunnar Smára um stöðu Trump í aðdaganda þingkosninga í Bandaríkjunum. Sigursteinn Másson fréttamaður og Magnea Marínósdóttir stjórnmálafræðingur ræða aukinn rasisma og leiðir til úrbóta. Björn Þorláks ræðir við þau. Magnea segir bæjarstjórann í Öfusi hafa framið brot á lögum með orðræði sinni um múslima. Drífa Snædal talskona Stígamóta og Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir ráðgjafi og stofnandi Áfram stelpur ræða við Gunnar Smára um sýknudóm Landsréttar og afleiðingar hans. Jovana Pavlović forseti bæjarstjórnar í Borgarbyggð segir Gunnari Smára frá serbnesku kosningunum þar sem listi stúdenta vann stórsigur og Luciano Dutra þýðandi segir Gunnari Smára frá brasilísku kosningunum þar sem Lula vann sigur í seinni umferð eftir að hafa tapað þeirri fyrri. Gísli Bachmann, stjörnuspekingur mætir aftur í viðtal til Ásdísar Olsen og útskýrir hvernig stjörnuspekin virkar og Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur ræðir nýjustu bók sína og ferilinn við Björn Þorláks.
  21. Synir Egils 25. okt - Mótmæli, átök, fylgi og fall

    2 h 25 minEpisódio 1473

    Sunnudagurinn 25. október Synir Egils: Mótmæli, átök, fylgi og fall Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Andrea Sigurðardóttir blaðakona, Rakel Þorbergsdóttir …

    Notas do episódio
    Sunnudagurinn 25. október Synir Egils: Mótmæli, átök, fylgi og fall Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Andrea Sigurðardóttir blaðakona, Rakel Þorbergsdóttir samskiptaráðgjafi og fyrrum fréttastjóri Ríkisútvarpsins og Róbert Marshall fjallamaður, fyrrum þing- og blaðamaður og ræða átök í Evrópu og innan flokka á Íslandi, niðurskurð hjá Borginni, umdeildan sýknudóm í kynferðisbrotamáli, fylgi flokka og margt fleira. Að því loknu ræðum við mótmælin í Evrópu við þau Eirík Bergmann prófessor í stjórnmálafræði, Gígju Söru Björnsson, sem er sviðshöfundur og íslensk-frönsk, Morgane Priet-Mahéo straumfræðingur og Ara Orrason formann UngVG. Hverjir mótmæla hverju? Er ungt fólk í Evrópu að hafna stefnu yfirvalda? Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
  22. Rauða borðið - Helgi-spjall: Einar Bárðar

    1 h 49 minEpisódio 1471

    Laugardagur 24. október Helgi-spjall: Einar Bárðar „Það eru sirka tveir á Íslandi sem ég hef ekki hringt í,“ segir Einar Bárðarson, athafnamaður og alþýðuskáld sem hefur komið víða við, allt frá …

    Notas do episódio
    Laugardagur 24. október Helgi-spjall: Einar Bárðar „Það eru sirka tveir á Íslandi sem ég hef ekki hringt í,“ segir Einar Bárðarson, athafnamaður og alþýðuskáld sem hefur komið víða við, allt frá tónlistarbransanum og viðburðahaldi til hjólreiðakeppna, plokks og umhverfismála. Hann segir samskiptahæfni sína helsta styrkleika, á auðvelt með að setja sig í spor annarra og hugsar frekar „Hvað get ég gert?“ en „Hvað getur kerfið gert fyrir mig?“ Í Helgispjalli hjá Ásdísi Olsen segir Einar frá skiptinemaárinu í Bandaríkjunum sem breytti lífssýn hans, kynnum við föður sinn á fullorðinsárum, baráttunni við Orkuveituna og leyndarmálinu á bak við hamingjuna. Og auðvitað nýja hárinu!
  23. Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 43

    1 h 27 minEpisódio 1472

    Föstudagur 23. október Vikuskammtur: Vika 43 Í Vikuskammti verður rætt um árstíðarskipti, umhverfismál, hegðun Íslendinga á samfélagsmiðlum, rasisma, bókasöfn, stjórnmál og fleira spennandi. Gestir þáttarins …

    Notas do episódio
    Föstudagur 23. október Vikuskammtur: Vika 43 Í Vikuskammti verður rætt um árstíðarskipti, umhverfismál, hegðun Íslendinga á samfélagsmiðlum, rasisma, bókasöfn, stjórnmál og fleira spennandi. Gestir þáttarins eru Margrét Tryggvadóttir og Guðmundur Andri Thorsson, bæði rithöfundar, Lára Sigurðardóttir læknir og Guðmundur Gunnarsson framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar.
  24. Rauða borðið 22. okt - Rasismi, mótmæli, reynsluboltar, lög og regla og sátt

    3 h 38 minEpisódio 1470

    Fimmtudagur 22. október Rasismi, mótmæli, reynsluboltar, lög og regla og sátt Jasmina Vajzovic ráðgjafi bregst við málflutningi um að varast þurfi innflytjendur frá ákveðnum heimssvæðum. Jasmina segir fordóma …

    Notas do episódio
    Fimmtudagur 22. október Rasismi, mótmæli, reynsluboltar, lög og regla og sátt Jasmina Vajzovic ráðgjafi bregst við málflutningi um að varast þurfi innflytjendur frá ákveðnum heimssvæðum. Jasmina segir fordóma hafa aukist gegn útlendingum og enn sé alvarleg stigmögnun í rasisma hér á landi. Einar Már Jónsson sagnfræðiprófessor emeritus í París greinir mótmælaölduna í Frakklandi í samtali við Gunnar Smára. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Helga Hjörvar fyrrum þingmann, Vilhjálm Bjarnason fyrrum þingmann og Ernu Bjarnadóttur hagfræðing um fréttir líðandi stundar. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir lagaleg álitaefni, umdeildan sýknudóm Landsréttar í nauðgunarmáli, vanhæfi eða ekki vanhæfi sveitarstjóra og samkeppnismál í samtali við Björn Þorláks. Draumey Aradóttir lýsir í samtali við Ásdísi Olsen ævintýri sem hún upplifði í ljóðabókinni Syngur í skógi.
  25. Rauða borðið 21. okt - Kynlífsofbeldi, fyrirgefning, sálgreining og læknar

    3 h 57 minEpisódio 1469

    Miðvikudagur 21. október Kynlífsofbeldi, fyrirgefning, sálgreining og læknar Edda Björk Þórðardóttir dósent í faraldsfræði og annar aðalhöfunda rannsóknarinnar Áfallasaga kvenna og Jenný Kristín Valberg …

    Notas do episódio
    Miðvikudagur 21. október Kynlífsofbeldi, fyrirgefning, sálgreining og læknar Edda Björk Þórðardóttir dósent í faraldsfræði og annar aðalhöfunda rannsóknarinnar Áfallasaga kvenna og Jenný Kristín Valberg teymisstýra Bjarkarhlíðar ræða við Gunnar Smára um sýknudóm Landsréttar og aukið ofbeldi í kynlífi ungra kvenna. Magnús Geir Þórðarson leikstjóri og leikararnir Jakob Van Oosterhaut, Unnur Ösp Stefánsdóttir og Edda Björg Eyjólfsdóttir ræða við Gunnar Smára um Högg, sýningu Þjóðleikhússin á sögu manns sem verður valdur að dauða annars og hvernig hann og foreldrar fórnarlambsins lifa af með sorg og sekt. Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir segir Ásdísi frá því hvernig sálgreining getur hjálpað okkur að skilja okkur sjálf betur og þeirri miklu sjálfsvinnu sem hún vann sjálf til að geta hjálpað öðrum. byggði upp bakdeild í Stykkishólmi sem færði mörgum bata og vakti víða athygli.
  26. Rauða borðið 20. okt - Réttlæti, nauðungarsölur, hjúkrunarheimili, þriðja æviskeiðið, Gunnella og barnabók

    4 h 29 minEpisódio 1468

    Þriðjudagur 20. október Réttlæti, nauðungarsölur, hjúkrunarheimili, þriðja æviskeiðið, Gunnella og barnabók Björgvin Kristbergsson ræðir við Gunnar Smára um stöðu fólks með þroskahömlun fyrr og nú og …

    Notas do episódio
    Þriðjudagur 20. október Réttlæti, nauðungarsölur, hjúkrunarheimili, þriðja æviskeiðið, Gunnella og barnabók Björgvin Kristbergsson ræðir við Gunnar Smára um stöðu fólks með þroskahömlun fyrr og nú og sanngirnisbætur sem hann telur sig eiga rétt á vegna illrar meðferðar. Ásta Lóa Þórhallsdóttir þingkona ræðir við Sigurjón Magnús um svínarí við nauðungarsölur og frumvarp sitt til úrbóta. Hjúkrunarheimili ættu sem endastöð að taka mjög vel á móti fólki en því miður skortir töluvert upp á það. Þetta segir Árni Kjartansson aðstandandi sem ræðir við Björn Þorláks. Ásdís Olsen ræðir við dr. Guðfinnu S. Bjarnadóttur, fyrrverandi rektor Háskólans í Reykjavík um þriðja æviskeiðið. Katla Þórudóttir Njálsdóttir höfundur og leikari, Aron Már Ólafsson leikari og Killian G.E. Briansson leikstjóri ræða við Gunnar Smára um Gunnellu sem þráir að ættleiða barn. Sigmundur Ernir Rúnarsson sendir frá sér nýja bók sem kallast Barnabók. Hann segir Birni Þorláks frá lífinu á Akureyri fyrr á tímum.
  27. Rauða borðið 19. okt - Trump, Ilmur, gervigreind, ásakanir og söfn

    5 h 2 minEpisódio 1467

    Mánudagur 19. október Trump, Ilmur, gervigreind, ásakanir, söfn Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur og Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur ræða við Gunnar …

    Notas do episódio
    Mánudagur 19. október Trump, Ilmur, gervigreind, ásakanir, söfn Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur og Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur ræða við Gunnar Smára um Trump og komandi kosningar í Bandaríkjunum. Ilmur Kristjánsdóttir leikari deilir áhyggjum sínum og þekkingu af umhverfismálum í samtali með Birni Þorlákssyni. Sérstakan óhug þennan daginn vekur þungmálmamengað drykkjuvatn á Svalbarða. Þóroddur Bjarnason prófessor og Þorsteinn Siglaugsson heimspekingur og hagfræðingur og stjórnarmaður í Samtökum um mannvæna tækni ræða við Gunnar Smára um gervigreind og hvaða áhrif hún hefur á okkur og samfélag okkar.Ásdís Olsen ræðir við Gísla Bachmann stjörnuspeking um áhrif fréttaumfjöllunar Kompás ásakanir um ofbeldi af hans hálfu. Hugvekja um söfn og samfélag er heitið á nýrri bók eftir Sigurjón Baldur Hafsteinsson prófessor. Hann ræðir við Björn Þorláks um persónulega sýn fræðimannsins.
  28. Synir Egils 18. okt - Upplausn í flokkum og ASÍ, fákeppni og misnotkun, stríð og staða flokka

    2 h 8 minEpisódio 1466

    Sunnudagurinn 18. október Synir Egils: Upplausn í flokkum og ASÍ, fákeppni og misnotkun, stríð og staða flokka Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Sonja Þorbergsdóttir …

    Notas do episódio
    Sunnudagurinn 18. október Synir Egils: Upplausn í flokkum og ASÍ, fákeppni og misnotkun, stríð og staða flokka Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB, Helga Vala Helgadóttir lögmaður og Þórður Snær Júlíusson framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og ræða ágreining innan Viðreisnar og Alþýðusambandsins, okur og fákeppni, stöðu stjórnar og flokka og margt annað. Þá kemur nýr forseti Alþýðusambandsins að borðinu, Georg Páll Skúlason, og ræðir um stöðu ASÍ við bræðurna og Sigurð Pétursson sagnfræðinginn sem er manna fróðastur um sögu verkalýðsbaráttunnar. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
  29. Rauða borðið - Helgi-spjall: Edda Björgvins

    2 h 33 minEpisódio 1464

    Laugardagur 17. október Helgi-spjall: Edda Björgvins Edda Björgvinsdóttir segir frá æsku sinni og uppruna, lífinu og leikhúsinu, hlátri og grát.

  30. Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 42

    1 h 37 minEpisódio 1465

    Föstudagur 16. október Vikuskammtur: Vika 42 Þau koma að Rauða borðinu, Magnea Gná Jóhannsdóttir varaborgarfulltrúi, Jóhanna Malen Skúladóttir jarðeðlisfræðingur og varaforseti Ungra umhverfissinna, Gagga …

    Notas do episódio
    Föstudagur 16. október Vikuskammtur: Vika 42 Þau koma að Rauða borðinu, Magnea Gná Jóhannsdóttir varaborgarfulltrúi, Jóhanna Malen Skúladóttir jarðeðlisfræðingur og varaforseti Ungra umhverfissinna, Gagga Jónsdóttir kvikmyndagerðarkona og Viktor Pétur Finnsson varaþingmaður og ræða við Gunnar Smára um fréttir vikunnar sem einkenndust af átökum og deilum, svindli og afsögnum, óveðri og óknyttaskap.

Aqui estão os 40 episódios mais recentes de 600. Os mais antigos estão no feed do podcast.

Flekaskil

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Dagur B. Eggertsson · 31 episódios

Este podcast é seu?

Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.

Configurações

Exibição

Idioma

Define quais estações você vê primeiro na página inicial.

Histórico

As rádios e episódios ouvidos recentemente e suas últimas buscas ficam só neste navegador.

Avisos

Um aviso rápido quando um podcast que você segue tem um episódio novo. Desative podcasts individuais pelo sino na página deles.

Conta

Salve favoritos – no app e no site.

Atalhos de teclado

/
Abrir busca
Espaço
Reproduzir ou pausar
← →
No player: voltar 15 s, avançar 30 s (episódios) · na fileira: próximo bloco
↑ ↓
Na fileira: alvo dentro do bloco
Home / End
Na fileira: primeiro ou último bloco
Esc
Fechar janela ou menu
?
Esta visão geral
Tocando agora

Ir para a estação

A seguir

    Adicione episódios com “A seguir” – eles tocam depois do episódio atual.