
Flimtan og fáryrði
- Episódios
- 76
- Publicação
- mensal
- Último episódio
- 9 nov 2026
Sobre o podcast
Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda og Gunnlaugur Bjarnason, óperusöngvari, vita sitt hvað um óperur og íslenskar bókmenntir fyrri alda og í þessum þáttum tala þeir um bæði þessi efni. Þora meðan aðrir þegja...
Episódios 76
75 – Er heimurinn eins og ég held að hann sé?
Gunnlaugur og Ármann eru „vinir litla mannsins“ og ræða aukapersónur í íslenskum fornsögum og yfirleitt. Talið berst að þætti áheyrandans í sköpun merkingar og hvernig tilfinningarlíf griðkvenna og smalamanna …
Notas do episódio
Gunnlaugur og Ármann eru „vinir litla mannsins“ og ræða aukapersónur í íslenskum fornsögum og yfirleitt. Talið berst að þætti áheyrandans í sköpun merkingar og hvernig tilfinningarlíf griðkvenna og smalamanna eru ekki minnsta framlag höfundarins til sögunnar. Einnig ræða þeir samsömunarmöguleika forfeðra okkar, Derrick og Harry Klein, völvu Vikunnar, þægindarammann, smásögur í klámblöðum, kvíða ónefnda empatíska fólksins, langan upplestur og launhelgar fræðibókaheimsins. En er mikilvægt að lesa bækur oft? Hefði Susan Sontag átt að skrifa esseiu sem hét „Gegn jákvæðni“? Hversu mikið ellimerki er að horfa á Barnaby? Og hvað hafa Isaac Asimov og Schubert með málið að gera?
74 - Þórðargleðin er besta gleðin
Gunnlaugur og Ármann ræða bókmenntaflokka sem nefnast Sígildar sögur, hvort sem í myndum eða ekki, og hvernig persónuleg bókmenntasaga einstaklinga er bæði með innlendum og þýddum bókum. Einnig ræða þeir kaup á …
Notas do episódio
Gunnlaugur og Ármann ræða bókmenntaflokka sem nefnast Sígildar sögur, hvort sem í myndum eða ekki, og hvernig persónuleg bókmenntasaga einstaklinga er bæði með innlendum og þýddum bókum. Einnig ræða þeir kaup á uppstoppuðum dýrum sem yfirbót, sýslumenn með stálminni, danska yfirburðamenn, Nóbelsverðlaun, Walter Scott og Eyrbyggju, hundahræðslu Ármanns, árin þegar Háskólabókasafnið var í sláturhúsi, götunöfn í Reykjavík og hve margir þingmenn hafi borið Gunnlaugsnafnið. En er Kenneth plebbalegt nafn? Halda ekki allir með Sam Neill? Var Ingi Sigurðsson undrabarn? Voru bækurnar um Sherlock Holmes góðar ráðgátur? Hefur Ármann komið til Saskatoon, hvað afrekaði Tabitha og hvaða máli skiptir ríkisborgararéttur Nóbelsverðlaunahafa?
73 - Gubbað á salerni
Gunnlaugur og Ármann ræða meistaraverk Svövu Jakobsdóttur, Gunnlaðarsögu, skáldskaparmjöðinn og Sonatorrek Egils Skalla-Grímssonar. Talið berst m.a. að landi sektarinnar, skjallbandalögum, hinum dæmigerða …
Notas do episódio
Gunnlaugur og Ármann ræða meistaraverk Svövu Jakobsdóttur, Gunnlaðarsögu, skáldskaparmjöðinn og Sonatorrek Egils Skalla-Grímssonar. Talið berst m.a. að landi sektarinnar, skjallbandalögum, hinum dæmigerða Íslendingi, Snorra Sturlusyni, Clarice Lispector, hinu háleita, Stórbókum, Nietzsche og fólki sem lifir á því að þekkja frægt fólk. En hversu einstakur var skáldskapur Svövu? Hvernig eru systkinasambönd ólík öðrum? Fíla rithöfundar aðra höfunda? Og treystir Gunnlaugur sér til að tala með Guðbergsröddinni?
72 — Jónas og hinir
Gunnlaugur og Ármann bregða af vananum með því að ræða þátt íslenskar bókmennta sem hvorugur hefur rannsakað, strákagengi og önnur burðarvirki menningarinnar á borð við „salon“ 19. aldar. Talið berst að …
Notas do episódio
Gunnlaugur og Ármann bregða af vananum með því að ræða þátt íslenskar bókmennta sem hvorugur hefur rannsakað, strákagengi og önnur burðarvirki menningarinnar á borð við „salon“ 19. aldar. Talið berst að Fjölnismönnum (íslensku bítlunum), Unuhúsi, skáldunum í Hveragerði 0g fleiri listamannahópum. Eins ræða þeir kvikmyndina The Odyssey, Kompuna í Þjóðviljanum, merkar heildarútgáfur og hina ævisögulega rannsóknaraðferð. Fram kemur að Jónas Hallgrímsson gat verið kvikindi, Gunnlaugur hlustar ekki á hlaðvörp, Ármann telur sig óhultan fyrir gervigreindinni, Fleetwood og Mac sömdu engin helstu lög Fleetwood Mac og allir sem hafa lifað áður voru Kleópatra í fyrra lífi. En hve lengi getur Ísland hrapað niður Pisa-listann? Hvernig leit Brynjólfur Pétursson út? Hvers vegna er klógulur fegursta orð íslenskrar tungu? Og hvaða fótboltamaður hefur gert eitthvað merkilegt eftir 33 ára aldur?
71 — Selshöfuð og samsæriskenningar
Flimtan og fáryrði tekur nú nýja stefnu og fjallar nú um íslenska bókmenntasögu í víðum skilningi. Gunnlaugur og Ármann ræða nú íslenskar hrollvekjur, einkum óvættina Selkollu og hið dularfulla Katanesdýr …
Notas do episódio
Flimtan og fáryrði tekur nú nýja stefnu og fjallar nú um íslenska bókmenntasögu í víðum skilningi. Gunnlaugur og Ármann ræða nú íslenskar hrollvekjur, einkum óvættina Selkollu og hið dularfulla Katanesdýr. Meðal annars er fjallað um merkingu stórra stafa og upphrópunarmerkja, martraðarlógík, miðdegisdjöfla, myndatökur lækna, munúðarþyrst vinnufólk og menningarlegt mikilvægi táninga í hryllingi. En eru álfar til? Hvað er líkt með hundi og nautgrip? Hví hafa hægrimenn tekið samsæriskenningar í fóstur? Hvað eiga Selkolla og Linda Blair sameiginlegt? Og hvers vegna hverfur sælgæti af heimilum fræðimanna?
Sumarþáttur — Vellíðan er aukaatriði
Gunnlaugur og Ármann fagna 70. þætti og ræða söngleikinn Koppafeiti (Grease), meðal annars Grís-æði vorsins 1979 og Grease Horror sýningu Fjölbrautarskóla Suðurlands sem þó er ekki djarfasta sýning söngleiksins …
Notas do episódio
Gunnlaugur og Ármann fagna 70. þætti og ræða söngleikinn Koppafeiti (Grease), meðal annars Grís-æði vorsins 1979 og Grease Horror sýningu Fjölbrautarskóla Suðurlands sem þó er ekki djarfasta sýning söngleiksins á Íslandi. Talið berst að samskiptum í foreldrahópum, hugmyndum Schopenhauers um þjáningu og leiðindi, bók Ármanns um smápersónur, of fullkomnu fólki, hugarfari listaskólanema, method-leik Dustin Hoffman, himnaflugi og stjörnuhrapi Travolta, eldri konum í stjórnunarstöðum, áhrifum Maríu Gripe, fallistum í fegrunarskólum og ein niðurstaða spjallsins er að þessi söngleikur snúist um grímur og gervi. En er nokkuð betra í heiminum en góð bókmenntafræði? Var Sandy pólsk eða áströlsk? Ætti Frenchy að vera í bæjarstjórn? Er bomm gott orð? Þurfum við fleiri brjálæðinga? Er betra að hafa lunkinn boðskap en skýran? Hvaða hlutverki gegnir Gústi Lill í sögu söngleiksins? Og hvert verður framhald menningarlegasta hlaðvarps Íslands?
69 – Brosnan baular
Gunnlaugur og Ármann fá góðan gest, Kristínu Lilju Thorlacius til að ræða frægasta glymskrattasöngleik sögunnar, Mamma Mia sem Judy Craymer, Catherine Johnson og Phyllida Lloyd spunnu upp úr lögum Björns og …
Notas do episódio
Gunnlaugur og Ármann fá góðan gest, Kristínu Lilju Thorlacius til að ræða frægasta glymskrattasöngleik sögunnar, Mamma Mia sem Judy Craymer, Catherine Johnson og Phyllida Lloyd spunnu upp úr lögum Björns og Benny úr ABBA og er hugsanlega lægsti mögulegi tónlistarsamnefnarinn. Tvö af þremur eru afar hrifin af lögum ABBA en Gunnlaugur furðu ósnortinn. Talið berst að miklu viðskiptaviti Svíanna, hvernig ABBA fundu upp tónlistarmyndböndin, tregðu þeirra til endurfunda, flughræðslu Agnethu, aðdáun Ástrala á fjórmenningunum og lögum sem söngvarar ráða ekki fullkomlega við að syngja til samanburðar við lög sem eru beinlínis samin fyrir leikara með lítið raddsvið. En er 55 ára fólk kannski allt í lagi? Er Super Trouper djúpur texti? Er gott að Meryl Streep sé ekki fullkomin? Er Stellan heitastur allra? Voru ABBA gamansöm? Er Björn skeggjaðra nafn en Benny?
68 – 18. aldar fuckboi
Gunnlaugur og Ármann (oft kallaðir Statler og Waldorf óperuheimsins) ræða stórvirki Mozarts, Don Giovanni, og eru aldrei þessu vant frekar hrifnir þó að Mozart fari illa með tenórinn. Sönn iðrun, flókin …
Notas do episódio
Gunnlaugur og Ármann (oft kallaðir Statler og Waldorf óperuheimsins) ræða stórvirki Mozarts, Don Giovanni, og eru aldrei þessu vant frekar hrifnir þó að Mozart fari illa með tenórinn. Sönn iðrun, flókin sögusamúð, hefndarþyrstar aukapersónur og hinn nýlátni José van Dam koma við sögu en talið berst líka að auðginntum sveitapiltum, líkindum Leporello og Fígaró, allsnöktum púkum og RÚV-börnum sem þrá efni frá Stöð 2. En hvor er betri, Anthony Hopkins eða Brian Cox? Er Don Giovanni heitari en Heated Rivalry? Er fólk sem er kúl iðulega vitlaust? Og hvað á að gera ef talandi stytta kemur í heimsókn og biður mann að breyta um hegðun?
67 – Byltingin er eilíf
Gunnlaugur og Ármann ræða nú óperu John Adams, Nixon in China (1987) og um leið kínverk stjórnmál 1960–1980 og hvernig kaldrifjað útspil á kosningaári tryggði framhaldslíf mannkynsins. Talið berst einnig að …
Notas do episódio
Gunnlaugur og Ármann ræða nú óperu John Adams, Nixon in China (1987) og um leið kínverk stjórnmál 1960–1980 og hvernig kaldrifjað útspil á kosningaári tryggði framhaldslíf mannkynsins. Talið berst einnig að hinum erótíska sjónvarpsþætti Heated Rivalry, hipp og kúl rithöfundum, mönnum sem svitna mikið, stórleikaranum Paul Giamatti, kvikmyndinni Tillsammans, Maófötum 8. áratugarins, svarthvítum kvikmyndum um atómvísindamenn, ódýrum vinsældum listrænna markaðsafurða, fólki sem tekur hvatningu mjög illa, framhaldslífi Mao Tse-tung og hinnar dularfullu eiginkonu hans. En er John Adams skyldur 2. og 6. forseta Bandaríkjanna? Hversu marga syni átti hinn upphaflegi Adam? Hvað sagði Gore Vidal um Nixon? Eru góðir eiginmenn góðir forsetar? Var kona Maós nærsýn eða fjarsýn? Var Maó andfúll? Hver eru tengsl Deng Xiaoping við bridsíþróttina? Er einhver munur á Martin Sheen og David Spade? Og hvernig gengur Gunnlaugi og Ármanni að minnast ekki á manninn sem drottnar yfir heiminum núna?
66 – Geta Þjóðverjar dansað?
Gunnlaugur og Ármann eru komnir til New York og búnir að kynna sér Sögu úr Vesturbænum (West Side Story) sem upphaflega hét East Side Story og hefur tvisvar verið kvikmynduð og auk heldur verið flutt á Íslandi …
Notas do episódio
Gunnlaugur og Ármann eru komnir til New York og búnir að kynna sér Sögu úr Vesturbænum (West Side Story) sem upphaflega hét East Side Story og hefur tvisvar verið kvikmynduð og auk heldur verið flutt á Íslandi. Þeir ræða líka tegundaflokkun sviðsverka með miklum söng, stöðu Puerto Rico í Bandaríkjunum, hið mikla nef Bernsteins, muninn á grínmyndum og Green-myndum, þjóðerni Morgan Kane, dularfullan dauða Natalie Wood, Two Set Violin grínistana og nýja fjórtán binda skáldsögu Ármanns. En hvað með glæpagengin á Íslandi? Hvað eru fráfærur? Hvað er EGOT? Hverjir eru búnir að gúgla „Ansel Elgort covid picture“? Hvernig tekst Ármanni að koma frasanum „korter í Miðflokk“ að? Og hvers vegna drap Gunnlaugur konu sína?
65 – Maðurinn sem æpti bravó!
Gunnlaugur og Ármann geta ekki haldið sig frá Verdi og nú er það óperan sem mörgum finnst sú besta í heiminum, Rigoletto, sem var fyrsta íslenska óperusýningin hjá Þjóðleikhúsinu árið 1951. Talið berst meðal …
Notas do episódio
Gunnlaugur og Ármann geta ekki haldið sig frá Verdi og nú er það óperan sem mörgum finnst sú besta í heiminum, Rigoletto, sem var fyrsta íslenska óperusýningin hjá Þjóðleikhúsinu árið 1951. Talið berst meðal annars að sjálfum Stefanó Íslandi, líkindum Rigoletto við Ölkofraþátt, tyrkneskum teppasölumönnum, hörðum kennurum, dauðarómantík 19. aldar og Íslandsmeti Guðmundar Jónssonar í löngum tón. En er Rigoletto aðeins Figaro fátæka mannsins? Er Pavarotti sannfærandi í dulargervi? Hvað er líkt með háskólamönnum og konunum á Istedgade? Voru konungarnir á Sikiley óvenju harðir? Er Ármann Kate Bush Íslands?
64 – Batman á heima á Selfossi
Ármann og Gunnlaugur ræða frægustu leðurblöku menningarsögunnar, þ.e. Die Fledermaus eftir sjálfan valsakónginn Johann Strauss yngri sem hugsanlega fann upp söngleikinn. Eins hvernig snobb og lágkúra fara saman …
Notas do episódio
Ármann og Gunnlaugur ræða frægustu leðurblöku menningarsögunnar, þ.e. Die Fledermaus eftir sjálfan valsakónginn Johann Strauss yngri sem hugsanlega fann upp söngleikinn. Eins hvernig snobb og lágkúra fara saman eða hvernig góð gagnrýni eigi að vera. Þá berst talið að íslensku uppfærslunni 1999 sem látin var gerast í Grafarvoginum, rússablæti tveggja metra Íslandsvinarins Rolf Rippert, hundinum Snoopy og brennuvarginum Eduard Strauss. En hvað gerist þegar dívurnar Lucia Popp og Gruberova eru saman á sviðinu? Er Downton Abbey miðjumoð? Er í alvörunni til söngvari sem heitir Wolfgang Windgassen? Líkist Ármann áttræðum mönnum? Hver drap höfund Litla prinsins? Er Ísland leðurblökuland? Og kann hvorugur stjórnandinn að telja?
63 – Pavarotti rekur tána í
Gunnlaugur og Ármann halda alla leið til Egyptalands að ræða frumsýningu Aidu sem Ismail khediv pantaði af Giuseppe Verdi þegar Súezskurðurinn var opnaður. Talið berst einnig að brottför Roberto Alana úr …
Notas do episódio
Gunnlaugur og Ármann halda alla leið til Egyptalands að ræða frumsýningu Aidu sem Ismail khediv pantaði af Giuseppe Verdi þegar Súezskurðurinn var opnaður. Talið berst einnig að brottför Roberto Alana úr sýningu Zeffirellis, Sam Wanamaker og dóttur hans, Oddi lögmanni og Gyldenløve stiftamtmanni, hinum austur-evrópska framburði á þ og eina núlifandi konung heimsins sem ekki man eftir ríkisári sínu. Að sjálfsögðu er líka rætt um Íslandsvininn Pavarotti, besta vin Kryddpíanna, og þeir reyna eftir megni að forðast „bodyshaming“. En hvað finnst Gunnlaugi og Ármanni um Leó páfa? Eru ostrur og lambakjöt hættulegur matur? Er hægt að syngja Aidu í gallabuxum? Hvað er líkt með Verdi og Limahl? Hefði Callas sungið Ragnheiði biskupsdóttur vel? Getur páfi heitið Kenny?
Páskaþáttur – Guð er með öll spilin á hendi
Gunnlaugur og Ármann eru uppfullir af heilögum anda þegar þeir ræða rokkóperuna Jesus Christ Superstar sem fyrst var konseptplata og hefur verið sýnd um heim allan og er líka afar „meta“. En þeir ræða líka eina …
Notas do episódio
Gunnlaugur og Ármann eru uppfullir af heilögum anda þegar þeir ræða rokkóperuna Jesus Christ Superstar sem fyrst var konseptplata og hefur verið sýnd um heim allan og er líka afar „meta“. En þeir ræða líka eina nótt í Bangkok með öllu nema Yul Brynner, dansverkið Hringi Orfeusar, Amal og næturgestina, Getsemane-falsettuna, þrjá of fjórum meðlimum ABBA, sjakalagaul Sebastians Bach og byltingar sem fara út af sporinu, En hvernig voru helgileikir í Langholtsskóla haustið 1976? Hvor syngur betur, Jesús eða Júdas? Hlýtur maður sem heitir Jewison að vera gyðingur? Eru Farísear heitari en aðrir menn? Hvaða sérstöku hæfileika hefur Pétur úr bíómyndinni? Voru blaðamenn eins fyrir 2000 árum? Hefur Páll 6. páfi góðan tónlistarsmekk? Og munu þeir ræða „umbrella man“ áður en yfir lýkur?
61 – Puccini og kynlífsbyssurnar
Nú eru Gunnlaugur og Ármann komnir að hinum tilfinningasama stórreykingamanni Puccini og óperu hans Madame Butterfly sem Malcolm McLaren gerði fræga á ný árið 1984 og varð síðar að söngleiknum Miss Saigon …
Notas do episódio
Nú eru Gunnlaugur og Ármann komnir að hinum tilfinningasama stórreykingamanni Puccini og óperu hans Madame Butterfly sem Malcolm McLaren gerði fræga á ný árið 1984 og varð síðar að söngleiknum Miss Saigon. Talið berst einnig að leikriti David Hwang, tónleikaflutningi á aríum, menningarnámi Gwen Stefani, Susan Boyle og háa tóninum, Chuck og Bob í Löðri, „the willing suspension of disbelief“ og að fílnum í herberginu (sem er ekki endilega bleikur). En er sjónvarpsgerðin af Flimtani og fáryrðum væntanleg? Er klappið skemmtilegra en sjálf óperan? Er ævisagnabíómyndin letilegasta form listarinnar? Gerir framrás tímans hlutina betri? Er nokkur munur á 15 og 45? Er ópólitísku fólki hætt við að verða fasistar? Hver eru venslin milli Ladda og Butterfly? Og fjarlægja kúkableiurnar væmnina úr fólki?
60 – Krípí stelpur og kexát
Gunnlaugur og Ármann hafa afar misjafnar skoðanir á Töfraflautunni, hinstu óperu Mozarts, en eru sammála um ágæti kólóratúrsöngkonunnar Cristinu Deutekom. Talið berst að sjálfsögðu að frímúrurum, stolnum …
Notas do episódio
Gunnlaugur og Ármann hafa afar misjafnar skoðanir á Töfraflautunni, hinstu óperu Mozarts, en eru sammála um ágæti kólóratúrsöngkonunnar Cristinu Deutekom. Talið berst að sjálfsögðu að frímúrurum, stolnum jólalögum, Hanswursthefðinni, þrítölunni, Rokklingunum, rassabókum, Herra Bean og „krípi stelpunni“. Um leið upplýsa þeir ungviðið um hvað ipod var, lýsa yfir aðdáun á ódýrum páskaeggjum, ræða eftirhermuleik og glæpastarfsemi á Jersey, og Ármann fær tækifæri til að viðra aðdáun sína á Valdimar Briem og Ingmar Bergman. En eru skartgripir fyrir bæði kyn? Stenst Papageno MeToo-kröfur? Er Guð Birkenstockklæddur félagráðgjafi? Skilja börn nokkuð sem þau sjá? Hefur skátaeiðnum verið breytt? Fer Tumi á fætur?
59 – Í þessum mjúka þræði ...
Fáir tengja Gilbert og Sullivan við hrollvekjur en Gunnlaugi og Ármanni tekst samt að gera það í þessum þætti þar sem rætt er um The Mikado, Savoy-óperuna, „patter song“, grínbarítóna, rímsnilld Gilberts og …
Notas do episódio
Fáir tengja Gilbert og Sullivan við hrollvekjur en Gunnlaugi og Ármanni tekst samt að gera það í þessum þætti þar sem rætt er um The Mikado, Savoy-óperuna, „patter song“, grínbarítóna, rímsnilld Gilberts og fleiri einkenni þessara ágætu bresku samstarfsmanna. Talið berst einnig að framlínustarfsfólki, samfélagsmiðlahegðun James Blunt, gaslýsingum Mary Poppins, sjálfsmorðshugleiðingum lítilla fugla og hættunni á að mannkynið þróist aftur í apa. En fann Egill Skalla-Grímsson upp endarímið? Eru menn sem eru fyndnir á sviði ófyndnir í einkalífinu? Eru gangaverðir gulls ígildi? Er erfitt starf að vera lögga? Les ljótt fólk bækur? Ætti að leggja niður sveitarfélög? Er fyndni skapbætandi?
58 – Brúðkaupið!
Gunnlaugur og Ármann eru á leið í brúðkaup og fyrir því stendur sjálft undrabarnið Wolfgang (ásamt Lorenzo Da Ponte). Brúðkaup Fígarós er iðulega talin besta ópera allra tíma þó að aðalandstæðingarnir reynist …
Notas do episódio
Gunnlaugur og Ármann eru á leið í brúðkaup og fyrir því stendur sjálft undrabarnið Wolfgang (ásamt Lorenzo Da Ponte). Brúðkaup Fígarós er iðulega talin besta ópera allra tíma þó að aðalandstæðingarnir reynist óvænt vera foreldrar söguhetjunnar. Talið berst einnig að tegundaflokkun gamanópera, endurnýtingu óperustefja, fornu bakkelsi og eldri talsetningarhefðum, mistryggum aðlögunum og gagnrýni, prima noctis reglunni alræmdu, löngu týndum föðurbræðrum, gröðum unglingum, tólf ára hjákonum, fegurð ítölskunnar og hlaðvarpshlustendum frá Eyjaálfunni. En hvaða heimsfrægi bókmenntatexti hefst á orðinu fimm? Hvaða frægi hlaðvarpsprófessor var alinn upp rétt hjá Glæsibæ? Er Gunnlaugur sigma? Hvernig er hægt að koma strámönnum inn í þessa umræðu? Er Trump persóna úr opera buffa? Hvað eru sjónvarpssokkar? Og hefur einhver hlustað á allar 22 óperur Mozarts?
57 – Húmor flyst ekki alltaf vel
Gunnlaugur og Ármann gæða sér á tournedos og ræða þriðja frægasta Jóakim nútímans, tónskáldið Rossini og hina vinsælu óperu hans, Rakarann í Sevilla. Rossini sló snemma í gegn en þróaðist frá opera buffa yfir í …
Notas do episódio
Gunnlaugur og Ármann gæða sér á tournedos og ræða þriðja frægasta Jóakim nútímans, tónskáldið Rossini og hina vinsælu óperu hans, Rakarann í Sevilla. Rossini sló snemma í gegn en þróaðist frá opera buffa yfir í ellisyndir á langri ævi og var jafnan spaugsamur lífsnautnamaður. Talið berst einnig að 18. aldar ævintýramanninum Beaumarchais, mikilvægi dulargerva fyrir gamansögur, samskiptum Rossini og Beethoven, þekktum ólífuolíum, fornu barnabókunum um Kim, Greifanum af Montecristo, tönnum og hárkollum, Tinnabókunum, svissneskum menningarhetjum og hinum afbrýðisama Giovanni Paisiello. En var 19. öldin öld unga fólksins? Var Figaro Jeeves síns tíma? Hvað er með seku móðurina? Er Ármann óvissuferðartýpan? Hvenær er fólk gamalt? Eru enn haldnar grettukeppnir? Og þarf alltaf að vera gant?
Jólaþáttur V: Kjöthleifsát og kynusli
Ármann og Gunnlaugur snúa aftur í fimmta jólaþátt þessa langlífa, sívinsæla og sumir myndu segja sígilda hlaðvarps en sérstakur gestur þessa sögulega þáttar er Kristín Lilja Thorlacius Björnsdóttir …
Notas do episódio
Ármann og Gunnlaugur snúa aftur í fimmta jólaþátt þessa langlífa, sívinsæla og sumir myndu segja sígilda hlaðvarps en sérstakur gestur þessa sögulega þáttar er Kristín Lilja Thorlacius Björnsdóttir kvikmyndafræðingur og eiginkona Gunnlaugs. Í tilefni jólanna er ekki rætt um óperur heldur söngleikinn The Rocky Horror (Picture) Show og næstum samnefnda kvikmynd. Auk þess er rætt aðeins um konfekt og kjötsvita, bandaríska neytendavernd, framburð Englandsdrottningar, þátttökusýningar og hvernig alvörufólkið horfir alltaf á löngu gerðina. En er enn til fólk sem man þegar Meatloaf var stór? Þýðist „Dammit, Janet“ vel á önnur mál? Hvað hefur Sean Bean dáið í mörgum bíómyndum? Hverjar eru bestu jólamyndirnar og hvað eiga andfætlingar skylt með geimverum? Hvernig tekst Gunnlaugi að koma Star Trek að? Er George Lazenby látinn? (Þátturinn er ekki góð heimild um það) Og hvað er líkt með sérlega ljótum aukaleikurum og ráðstefnugestum í Eddu?
55 – Brothætta konan og eitraða karlmennskan
Gunnlaugur og Ármann ræða Carmen eftir franska tónskáldið Bizet og í leiðinni óhjákvæmilega 19. aldar rithöfundinn Prosper Mérimée og söngkonuna Mariu Callas. Gunnlaugur segir hræðilegan brandara um Bach og …
Notas do episódio
Gunnlaugur og Ármann ræða Carmen eftir franska tónskáldið Bizet og í leiðinni óhjákvæmilega 19. aldar rithöfundinn Prosper Mérimée og söngkonuna Mariu Callas. Gunnlaugur segir hræðilegan brandara um Bach og Offenbach og eftir það getur þátturinn ekki annað en batnað. Sögunni víkur að tækniblæti Frakka, hollenska sjálfræðinu, barnabókum með smyglurum og sígaunum, covidtímanum sællar minningar og muninum á matador og picador. En getur verið að þeir séu sammála um ágæti Carmen? Eru 17 àra vopnaðir hermenn traustvekjandi? Er Don José incel, „rannsaka“ listamenn eitthvað og muna hlustendur eftir Bláskjá?
54 – Óhefðbundin fegurð óperusöngvara
Gunnlaugur og Ármann ræða óperettu sem Ármann hefur raunar séð á sviði, Kátu ekkjuna eftir Franz Lehar sem var meistari léttleikans og gleðinnar fyrir utan að hefja þrítugu konuna til vegs og virðingar í …
Notas do episódio
Gunnlaugur og Ármann ræða óperettu sem Ármann hefur raunar séð á sviði, Kátu ekkjuna eftir Franz Lehar sem var meistari léttleikans og gleðinnar fyrir utan að hefja þrítugu konuna til vegs og virðingar í óperettuheiminum og semja mörg „Tauberlied“. Árið 1905, staðurinn er keisaraveldið Austurríki-Ungverjaland og meðal þess sem ber á góma eru latir tenórar, Parísarbragurinn, fullorðinsaldur hobbita, íhaldssemi 16 ára unglinga, samúðarleysi Ármanns með barnastjörnum, smáríkjakomplexinn, Framsóknarkassinn, Romy Schneider, áramótaskaupið 1986, söngrödd Trumps og tónlistarsmekkur Hitlers. En var Lehar of frjálslyndur þegar kom að framhjáhaldi og vændi? Eru pabbabrandarar bestir? Var Geddan geitin? Eru þýskar gamanmyndir og gamanmyndir Ingmars Bergman þær bestu? Var Björn M. Ólsen virkilega spaugari og sprellari? Er Gunnlaugur ekki snobb? Drakk Jussi Björling jafn mikið og Richard Burton eða bílstjóri Díönu prinsessu? Hvað á Káta ekkjan sameiginlegt með Litlu hryllingsbúðinni? Hvernig kemur ABBA inn í málin? Mun Flimtan og fáryrði taka upp símatíma? Og lærir Gunnlaugur loksins að kveðja hlustendur í lok þáttarins?
53 – Nazgúlaskrækir brjóstmylkinga
Nú beina Gunnlaugur og Ármann sjónum að sjálfum Richard Wagner og tveimur af þekktustu óperum hans, Rínargullinu og Valkyrjunni. Gunnlaugur rekur raunir sínar úr alþjóðlegum Wagner-hópum og síðan berst talið að …
Notas do episódio
Nú beina Gunnlaugur og Ármann sjónum að sjálfum Richard Wagner og tveimur af þekktustu óperum hans, Rínargullinu og Valkyrjunni. Gunnlaugur rekur raunir sínar úr alþjóðlegum Wagner-hópum og síðan berst talið að jafnvel enn verri aðdáendum hans sem höfðu listamannsmetnað sjálfir. Eins ræða þeir Gesamtkunstwerk og „willing suspension of disbelief“, framburðarslekju, „verkamannaklassík“ og hið mikla dúettatímabil, ofstuðlun Wagners, áhrif hans á John Williams og JRR Tolkien, ægishjálma og grimmdarónæmi, lepp Óðins og Moshe Dayan, hundingja og brjóstumkennanlega dverga, háa f-ið og drengi í mútum, breytta endurtekningu og frjálslegar goðsagnatúlkanir. En er helsta einkenni sérfræðinga að ekkert skilst sem þeir segja? Var Mahler „Gloomy Gus“ og Freddy Mercury „grænseoverskridende“? Er klæmið að draga augað í pung? Ættu allir fundir Miðflokksins að hefjast á aríu Sigmundar? Þýðir hojotoho eitthvað? Líkar fasistabullum illa við nútímalist? Var pappadrekinn Katla ógnvekjandi á sínum tíma? Er skynsamlegt að taka af sér ósýnileikahring fyrir framan mannætukóngulær? Hversu lengi getur maður verið að draga sverð úr tré? Og hvernig tókst Lady Mondegreen að troða sér inn í þennan þátt?
52 – Leiksoppar og rannsóknaræfingar
Ármann og Gunnlaugur eru ekki sérfróðir um óperur eins og þeir hamra á en hafa báðir horft á Ævintýri Hoffmanns (1881) eftir Frakkann Jacques Offenbach, samtíðarmann Verdi og Wagners. Þar með hafa þeir hætt sér …
Notas do episódio
Ármann og Gunnlaugur eru ekki sérfróðir um óperur eins og þeir hamra á en hafa báðir horft á Ævintýri Hoffmanns (1881) eftir Frakkann Jacques Offenbach, samtíðarmann Verdi og Wagners. Þar með hafa þeir hætt sér inn í fúafenjasvæði gamanóperunnar og umræðuna um hvort grín þýðist yfirleitt. Fram kemur að Ármann þekkir tónlistina mjög vel en hafði ekki hugmynd um efni óperunnar eða að hún sé um E.T.A. Hoffmann (1776-1822). Eins ræða þeir vélmenni, hugtakið „impresario“, karaktertenóra, buxnahlutverk, nálægð dauðans, orðið „bölmóð“, þjóðsagnasannleik, tvífaraminnið, fótboltalagið frá HM 1982 og smásögu Þórarins Eldjárns „Síðasta rannsóknaræfingin“ þar sem áhrif Hoffmanns á Galdraveiði Jónasar. En hvort er Offenbach líkari bandarískum melludólg frá 8. áratugum eða íslenskum stjörnulögfræðingi? Hver er fremstur af tenórunum þremur? Er það ævistarf að vera stúdent? Er gott að vera höfuðstór? Er Ögmundur Eyþjófsbani með í þessari óperu? En hvað kemur Charli XCX málinu við? Eða orðið „dagskrárvald“? Og getur Ármann troðið Freud inn í umfjöllun um þessa frönsku gamanóperu?
51 – Varasamir vasaklútar
Nú fer hlaðvarpið rækilega út fyrir þægindarammann, yfirgefur Íslendingasögur í bili og beinir sjónum að óperum í staðinn. Í fyrsta þætti er rætt um Ótello (1887) eftir græningjann Giuseppe Verdi og vin hans …
Notas do episódio
Nú fer hlaðvarpið rækilega út fyrir þægindarammann, yfirgefur Íslendingasögur í bili og beinir sjónum að óperum í staðinn. Í fyrsta þætti er rætt um Ótello (1887) eftir græningjann Giuseppe Verdi og vin hans Boito. Enginn man eftir Busseto en Gunnlaugur og Ármann ræða sameiningu Ítalíu, nýlendustefnuna, Odd lögmann, hugtakið FOMO, Ivan heitinn Rebroff, eldri skilgreiningar á offitu, Nietzsche og sjálfsvorkunn, Karate Kid endi, hinn stórkostlega Paul Robeson og fyrstu óskarstilnefningu Maggie Smith. En hvert er hið félagslega samhengi sögunnar um márann frá Feneyjum? Skiptir sakleysi Desdemónu máli? Var Iago níhilisti? Eru ástríðuglæpir réttlætanlegir? Verða óperusöngvarar fyrir miklum fitufordómum? Og hvað með hljómburðinn?
Jólaþáttur IV: Jólatré í janúar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands kemur í heimsókn í jólaþáttinn sem er jafnframt 50. þáttur hlaðvarpsins og hefur Gunnlaugur mandarínur á borðum af því tilefni. Þar sem þau Ármann eru systkini er …
Notas do episódio
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands kemur í heimsókn í jólaþáttinn sem er jafnframt 50. þáttur hlaðvarpsins og hefur Gunnlaugur mandarínur á borðum af því tilefni. Þar sem þau Ármann eru systkini er rætt um dálæti formæðra þeirra á Bolla og Ítalíuferð Katrínar með Njálu í farangrinum. Meðal annars sem ber á góma er hvort tekist sé á um Íslendingasögurnar á ríkisstjórnarfundum, dálæti Katrínar á bókaflokknum Landið þitt Ísland, rútuferðir íslenskunema á öldinni sem leið, Hallgerðargata í Reykjavík, Italo Calvino, tvíburar í fornsögum, hið horfna flugfélag Arnarflug og glæpasögur Ólafs við Faxafen. En hver er uppáhaldspersóna Katrínar í Íslendingasögunum? Er Laxdæla saga einföld? Eru þeir yngri lítilfjörlegri? Voru allir vitnandi í Þórólf Kveld-Úlfsson á alþingi árið 1939? Er Gísla saga Súrssonar glæpasaga? Hver heldur með West Bromwich Albion? Hvern drap Eyjólfur í bankanum og hvernig var kvikmyndin The Room fjármögnuð?
49 – Drottningar breyta sér í svölur og skáld flytja kvæði
Gunnlaugur og Ármann ræða hina gömlu lummu um sannleiksgildi Íslendingasagna og fornrita yfirleitt sem almenningur (einkum eldra fólk) hefur mikinn áhuga á. Talið berst einnig að Landnámu og landamerkjadeilum …
Notas do episódio
Gunnlaugur og Ármann ræða hina gömlu lummu um sannleiksgildi Íslendingasagna og fornrita yfirleitt sem almenningur (einkum eldra fólk) hefur mikinn áhuga á. Talið berst einnig að Landnámu og landamerkjadeilum, Kristínu Geirsdóttur og trú aldamótakynslóðarinnar á að Íslendingasögur séu sannar, yfirheyrslum lögreglu sem skemmtiefni, óvinsældum Sveinbjarnar Rafnssonar, fegurð sannleikans, hvort Kristur frelsaði mannkynið með fórnardauða sínum, morðinu á Kitty Genovese, hinni hundrað ára gömlu Erlendsínu, sögulegu mikilvægi fölsku tannanna og uppþvottar og í þessum þætti fá áheyrendur að njóta eftirhermu Gunnlaugs eftir Jóni Helgasyni. En er hægt að taka galdur úr galdrasögu og úr verður sönn saga? Eru Svíar krítískari en annað fólk? Hversu mikilvægar eru þjóðargoðsögur? Hvað með tilkall Ísraelsmanna til landa? Og um hvað eru íslensk fornrit heimild annað en hverju fólk trúði á 13. og 14. öld?
48 – Jekyll og Hyde á íslenskum miðöldum
Gunnlaugur og Ármann ræða Fóstbræðrasögu og þá glannalegu hugmynd Ármanns að Þorgeir Hávarsson og Þormóður Kolbrúnarskáld séu dæmi um tvífaraminnið sem síðar komst í tísku og tákngervingar tvöfeldninnar í …
Notas do episódio
Gunnlaugur og Ármann ræða Fóstbræðrasögu og þá glannalegu hugmynd Ármanns að Þorgeir Hávarsson og Þormóður Kolbrúnarskáld séu dæmi um tvífaraminnið sem síðar komst í tísku og tákngervingar tvöfeldninnar í mannssálinni. Þetta tengist umræðunni um raunsæi, tilfinningalega dýpt, sögusamúð, táknsæi og hugmyndaheimi vísindabyltingarinnar. Þeir ræða líka Gerplu og hugmyndir Helgu Kress um að Fóstbræðra saga sé paródía. Talið berst einnig að stöðu skáldsins í menningunni, ungum vandræðagemsum, framandgervingu, fyndnum upplestrum, bókmenntalegum bíltúrum, gagnrýni á stórmenni, bókmenntaverðlaunum Nóbels, Doris Lessing og siðlausum frönskum eiginmönnum skálda. En er sýkópatahugtakið ofnotað? Er karlmannlegt að hokra ekki að konum? Voru skytturnar þrjár tvíburar? Er Hildibrandur gott nafn? Og er Flimtan og fáryrði frábært kennsluefni? Svarið við seinustu spurningunni er augljóslega: Já!
47 – "Ei ber því að leyna"
Gunnlaugur og Ármann ræða bókmenntagrein sem varðveittist í öðrum textum, dróttkvæði í Íslendingasögum og konungasögum. En eru þau eftir skáldin sem þau eru kennd? Hvort eru flokkar eða drápur betri? Var Gísli …
Notas do episódio
Gunnlaugur og Ármann ræða bókmenntagrein sem varðveittist í öðrum textum, dróttkvæði í Íslendingasögum og konungasögum. En eru þau eftir skáldin sem þau eru kennd? Hvort eru flokkar eða drápur betri? Var Gísli súrrealisti? Hvers vegna er engin vísa eftir Sviðu-Njál í sögu hans? Hverjir fara helst í hungurverkfall og hver var sælkeri mikill og matvandur mjög? Talið berst líka að þriggja manna hjónaböndum, Lata-Geir á Lækjarbakka, Tolkien og Gvendi bónda á Svínafelli, Elton John og Þormóði kolbrúnarskáldi, dálæti Einars Ólafs Sveinssonar á orðinu „anakrónt“, gyðjublæti Gísla Súrssonar, hinum íslenska Mozart og þerapíukveðskap. En hvers vegna eru Gunnlaugur og Ármann að fjalla um efnið sem mátti sleppa þegar Íslendingasögur voru lesnar í skólum?
46 – Elskið friðinn, strjúkið orðskviðinn
Gunnlaugur og Ármann fá Vigdísi Hafliðadóttur sem eitt sinn var fyndnasti háskólaneminn í heimsókn og þau ræða orðskviði og almennan fróðleik í Grettis sögu og Hávamálum. Vigdís reynir að stela titlinum „rödd …
Notas do episódio
Gunnlaugur og Ármann fá Vigdísi Hafliðadóttur sem eitt sinn var fyndnasti háskólaneminn í heimsókn og þau ræða orðskviði og almennan fróðleik í Grettis sögu og Hávamálum. Vigdís reynir að stela titlinum „rödd almennings“ frá Gunnlaugi þó að hún sé með BA-próf í heimspeki og síðan ræða þau þriggjadísabækling, Mjallhvíti og Lenín, kviksetningu, bitlinga Hallgerðar, kómíska talgalla, sundvenjur og hvaða Davíð keypti ölið. En er hægt að treysta einlægni? Er fólki um þrítugt óhætt að sækja endurmenntunarnámskeið? Er gott að jórtra á hefndinni? Getur grín höfðað til allra? Er hægt að vera vinur þrælsins síns? Hvað varð um hinn heilbrigða milliveg í bólusetningarefa? Hvenær lýkur heimboði? Má gefa annarra manna börnum að borða? Væri Grettir skólaskotmaður ef hann væri ungur Bandaríkjamaður? Er Gunnlaugur persóna í Ævisögu séra Árna Þórarinssonar? Er Matthías fyndið nafn? Og hvað með allt vesalings fólkið sem drepur fólk en enginn þekkir?
Aqui estão os 40 episódios mais recentes de 76. Os mais antigos estão no feed do podcast.
Podcasts parecidos
Mais podcasts de ArtesEste podcast é seu?
Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.




