
Tbr Listinn
- Episódios
- 91
- Publicação
- semanal
- Último episódio
- 9 nov 2026
Sobre o podcast
Íslenskt bókahlaðvarp
Episódios 91
Eldur í öskunni leynist - Viðtal við Margréti S. Höskuldsdóttur
LOKSINS LOKSINS Við fengum loksins til okkar í þátt enga aðra en Margréti S. Höskuldsdóttur sem við getum með sanni sagt að sé búin að festa sig í sessi sem ein af bestu krimmahöfundum á landinu! Við spjöllum …
Notas do episódio
LOKSINS LOKSINS
Við fengum loksins til okkar í þátt enga aðra en Margréti S. Höskuldsdóttur sem við getum með sanni sagt að sé búin að festa sig í sessi sem ein af bestu krimmahöfundum á landinu!
Við spjöllum við hana um nýju bókina sem hún var að gefa út, eldur í öskunni leynist, en auðvitað mælum við heilshugar með að allir lesi hana og læði henni í jólapakkann hjá sem flestum!
Það var alveg einstaklega skemmtilegt að ræða bókina hennar, bókmenntir og ást okkar á Skotlandi!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum:
Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp
Insta: tbrlistinn
Þið finnið Margréti á þessum samfélagsmiðlum:
Tiktok: margret_hoskulds
Insta: margret_h
The Elementals - Suðurríkja gotneskur horror
Þegar hugsað er um hrylling koma oft upp í hugann dimmar, stormasamar nætur og kaldar hallir fullar af skuggum. En hvað ef það allra óhugnanlegasta sem hægt er að ímynda sér væri blindandi hvítt sólarljós …
Notas do episódio
Þegar hugsað er um hrylling koma oft upp í hugann dimmar, stormasamar nætur og kaldar hallir fullar af skuggum. En hvað ef það allra óhugnanlegasta sem hægt er að ímynda sér væri blindandi hvítt sólarljós, brennandi heit strönd og fjall úr fíngerðum, hreyfanlegum sandi?
Þetta er í raun persónulega helvítið hennar Ölmu, en við köfum hér ofan í költ klassíkina The Elementals eftir Micheal McDowell og hvernig hann fer mjög óhefðbundar leiðir til að skrifa hryllingssögur!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum:
Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp
Insta: tbrlistinn
House of Monstrous Women - Daphne Fama
Loksins er kominn út nýr þáttur! Vegna afmælisdjamm á stelpunum, og svo ACOSH útgáfu tafðist þáttur vikunnar. En engar áhyggjur! Hér eru þær með skoðanir á allskonar hlutum, líka á bókinni sem þær eru ekki …
Notas do episódio
Loksins er kominn út nýr þáttur!
Vegna afmælisdjamm á stelpunum, og svo ACOSH útgáfu tafðist þáttur vikunnar. En engar áhyggjur! Hér eru þær með skoðanir á allskonar hlutum, líka á bókinni sem þær eru ekki byrjaðar á og eiga ekki að vera að fjalla um í þessum þætti.
Aðal umræðuefnið í þessum þætti er þó bókin House of Monstrous Women eftir Daphne Fama. Þær ræða hvernig bókin var í heild, hvernig var að lesa um svona miklu öðruvísi menningarheim en þær eru vanar, sem á rætur að rekja í raunveruleikanum og hvernig lesturinn var.
Auðvitað koma svo smá rökræður um A Court of Splintered Harmony, því þær eru ekki sammála, en báðar jafn spenntar!
Hard Luck Jenny - David Södergren
Hrekkjavökumánuður er heldur betur genginn í garð og verður því restin af október og byrjun nóvember tileinkað hryllingssögum! Í þessum þætti tökum við fyrir bókina Hard Luck Jenny eftir okkar ástkæra David …
Notas do episódio
Hrekkjavökumánuður er heldur betur genginn í garð og verður því restin af október og byrjun nóvember tileinkað hryllingssögum! Í þessum þætti tökum við fyrir bókina Hard Luck Jenny eftir okkar ástkæra David Södergren, en við höfum áður talað um bækurnar The Haar og Maggies Grave eftir sama höfund. David er virkilega fær um að skapa hryllings heima sem erfitt er að slíta sig frá þó svo þeir séu óhugnalegir og stundum ógeðslegir. Ef þú ert hryllingssögu aðdáandi mælum við eindregið með að lesa David!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum:
Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp
Insta: tbrlistinn
Wicker - með Þorbjörgu
Jæja, stelpurnar skelltu sér í bíó þar sem enginn annar en Alexander Skarsgård var líka í salnum. Að sjálfsögðu fóru þær á Wicker en það var algjörlega henni Þorbjörgu að þakka að þær náðu miða á þennan …
Notas do episódio
Jæja, stelpurnar skelltu sér í bíó þar sem enginn annar en Alexander Skarsgård var líka í salnum. Að sjálfsögðu fóru þær á Wicker en það var algjörlega henni Þorbjörgu að þakka að þær náðu miða á þennan viðburð, þar sem Þorbjörg var töluvert meira með puttann á púlsinum þann daginn!
Við ræðum bókina og myndina, förum yfir hvað okkur fannst eins, hvað okkur fannst gott og hversu mikið við hlógum allann tímann.
Við getum allar þrjár mælt heilshugar með myndinni, og svo er mjög gaman að lesa þessa stuttu bók líka.
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum:
Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp
Insta: tbrlistinn
Þið finnið Þorbjörgu á:
https://www.instagram.com/thorbjorgmatt/
Að banna bækur - Viðtal við Guðrúnu Steinþórsdóttur
Nýliðin vika er tileinkuð bókum sem eru bannaðar og í þessum þætti fáum við til okkar frábæran gest til að ræða við um ritskoðun bóka og að banna bækur. Guðrún Steinþórsdóttir, bókmenntafræðingur og kennari …
Notas do episódio
Nýliðin vika er tileinkuð bókum sem eru bannaðar og í þessum þætti fáum við til okkar frábæran gest til að ræða við um ritskoðun bóka og að banna bækur. Guðrún Steinþórsdóttir, bókmenntafræðingur og kennari, spjallar við okkur um þann sið að banna bækur eða ritskoða þær á þeim skala að þær verða óaðgengilegar, þá sérstaklega barna- og ungmennabækur. Þetta er vandmeðfarið málefni sem er marglaga og flókið og tökum við dæmi bókina Villi Vampíra sem er nánast ekki hægt að nálgast í dag. Við förum yfir hvað okkur finnst persónulega um bókina en einnig ræðum við viðbrögð við bókmenntum sem fjalla um jaðarsetta hópa og erfið málefni eins og ofbeldi. Guðrún segir okkur frá ýmsum rannsóknum sem snúa að þessu viðfangsefni og tekur fram dæmi um mikil og ýkt viðbrögð við íslenskum verkum.
Við förum um víðan völl og var þetta virkilega fróðlegt og skemmtilegt spjall. Við þökkum Guðrúnu kærlega fyrir komuna og hlökkum til að deila með ykkur bókalistanum hennar.
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum:
Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp
Insta: tbrlistinn
Haustlestur
Alma og Fjóla fara yfir þær 120 bækur sem þær segjast ætla að lesa þetta haust. Listinn er alls ekki tæmandi og rosalega skemmtilegur og ættu allir að finna sér eitthvað við hæfi þarna inn á milli allra …
Notas do episódio
Alma og Fjóla fara yfir þær 120 bækur sem þær segjast ætla að lesa þetta haust.
Listinn er alls ekki tæmandi og rosalega skemmtilegur og ættu allir að finna sér eitthvað við hæfi þarna inn á milli allra bókanna. Einnig segja þær frá þeim bókum sem verða teknar fyrir í næstu þáttum þannig ef þið viljið taka slaginn með þeim getið þið nálgast bækurnar og lesið áður en þættirnir koma út!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum:
Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp
Insta: tbrlistinn
Getting In The Knickers Of The Nose Man - Örþáttur
!!!ATH!!! Alls ekki fyrir lítil eyru. Sko...þessi þáttur er í raun bara nebba kynlíf og hláturskast. Góða skemmtun! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum: Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp Insta: tbrlistinn
The Knave And The Moon - Bókaumfjöllun
-HÖSKULDARVIÐVÖRUN- Það má með sanni segja að The Knight And The Moth eftir Rachel Gillig hafi farið sem stormsveipur um bókatok á síðasta ári og því mikil spenna fyrir seinni hluta tvíleiksins. Við spjöllum …
Notas do episódio
-HÖSKULDARVIÐVÖRUN-
Það má með sanni segja að The Knight And The Moth eftir Rachel Gillig hafi farið sem stormsveipur um bókatok á síðasta ári og því mikil spenna fyrir seinni hluta tvíleiksins. Við spjöllum hér um The Knave And The Moon og ræðum ritstílinn hennar Rachel að auki. Ef þið hafið ekki lesið bókina og viljið ekki að við eyðileggjum fyrir ykkur mælum við með að geyma þennan þátt þar til þið hafið lesið!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum:
Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp
Insta: tbrlistinn
Banging My Birthday Bear - örþáttur
Jæja þá er komið að því aftur... Alma segir okkur frá stuttsögunni Banging My Birthday Bear. Hún veit ekki alveg hvað hún er að segja og er pínu plotlaus, svona eins og "bókin" sem hún segir frá var. Hlustið á …
Notas do episódio
Jæja þá er komið að því aftur...
Alma segir okkur frá stuttsögunni Banging My Birthday Bear. Hún veit ekki alveg hvað hún er að segja og er pínu plotlaus, svona eins og "bókin" sem hún segir frá var.
Hlustið á okkur hlæja og fíflast um þessa dásamlega fyndnu bók, þó hún eigi ekki beint að vera fyndin.
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum:
Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp
Insta: tbrlistinn
Aumingi, mella, syndari og heilagur andi
Við fáum góðan gest til okkar í dag en engin önnur en Lilja Ósk snýr aftur til okkar! Lilja var að gefa út sína aðra bók og fyrstu skáldsöguna sína! Auðvitað þurftum við að lesa hana í hvelli og fá Lilju í …
Notas do episódio
Við fáum góðan gest til okkar í dag en engin önnur en Lilja Ósk snýr aftur til okkar!
Lilja var að gefa út sína aðra bók og fyrstu skáldsöguna sína! Auðvitað þurftum við að lesa hana í hvelli og fá Lilju í heimsókn til að spyrja hana spjörunum úr!
Við förum um víðan völl, hvernig karakterarnir urðu til, hvort var erfiðara skáldsaga eða sjálfsævisaga, persónuleika karaktera og svo margt annað.
Við getum með sanni sagt að við mælum sterklega með þessari bók og takk Lilja fyrir að koma til okkar í smá spjall
Sumarið og hraðaspurningar
Við erum komnar aftur! Í þessum þætti fara Alma og Fjóla yfir sumarið og taka svo laufléttar hraðaspurningar varðandi lestur og bækur. Við byrjum þriðju seríu með stæl með nýju logo eftir hana Daníelu, tattoo …
Notas do episódio
Við erum komnar aftur! Í þessum þætti fara Alma og Fjóla yfir sumarið og taka svo laufléttar hraðaspurningar varðandi lestur og bækur.
Við byrjum þriðju seríu með stæl með nýju logo eftir hana Daníelu, tattoo artista og bóka gellu, ásamt nýju stefi sem lýsir okkur stöllum í hnotskurn. Smá kaos, smá glimmer!
Ein önnur breyting er sú að Anna Karen hefur tekið ákvörðun um að fókusa á önnur verkefni, enda af nógu að taka í sveitinni og hún algjör dugnaðarforkur, en við þökkum henni svo sannarlega og innilega fyrir tímann okkar saman!
Við erum ótrúlega spenntar fyrir komandi mánuðum með ykkur og erum með fullt spennandi planað!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
Insta hjá Daníelu; dansadansss
Sumarlestur!
Síðasti þátturinn í seríu 2 hefur litið dagsins ljós! :( Alma og Fjóla setjast niður og ræða um stemninguna sem þær vilja hafa í lestrinum í sumar. Bæði í bókunum og í umhverfinu sem þær ætla að lesa í. Heyrst …
Notas do episódio
Síðasti þátturinn í seríu 2 hefur litið dagsins ljós! :(
Alma og Fjóla setjast niður og ræða um stemninguna sem þær vilja hafa í lestrinum í sumar. Bæði í bókunum og í umhverfinu sem þær ætla að lesa í.
Heyrst hefur að þær séu báðar að plana mikið ferða og sólarfrí, spurningin er bara hvort að veðurguðirnir hlusti á bænir þeirra og gefi þeim smá sól með lestrinum.
Og auðvitað fóru þær í smá útirdúr um Dungeon Crawler Carl, því hvenær talar maður ekki um cultið sitt?
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
RDG Bókakarakterar og bóklegir hlutir
Anna Karen og Fjóla standa vaktina að þessu sinni á meðan Alma spókar sig í sólinni á Spáni. Efni þáttarins að þessu sinni er létt bókaspjall og svo RDG eða R**a, drepa, giftast þar sem þemað eru bæði …
Notas do episódio
Anna Karen og Fjóla standa vaktina að þessu sinni á meðan Alma spókar sig í sólinni á Spáni.
Efni þáttarins að þessu sinni er létt bókaspjall og svo RDG eða R**a, drepa, giftast þar sem þemað eru bæði bókakarakterar og bókalegir hlutir eða aðstæður.
Léttur og skemmtilegur þáttur að þessu sinni!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
Yesteryear - HÖSKULDARVIÐVÖRUN
Alma og Fjóla eru báðar nýbúnar með bók sem er sjóðheitt umræðuefni þessa dagana, en það er engin önnur en bókin Yesteryear eftir Caro Claire Burke! Stelpurnar gætu talað endalaust um bókina en hafa þó sett …
Notas do episódio
Alma og Fjóla eru báðar nýbúnar með bók sem er sjóðheitt umræðuefni þessa dagana, en það er engin önnur en bókin Yesteryear eftir Caro Claire Burke!
Stelpurnar gætu talað endalaust um bókina en hafa þó sett niður nokkur atriði sem þær ætla að tala um, einfaldlega því þær fengu ekki lengri upptökutíma. Annars sætu þær líklega ennþá í Kompunni á Borgarbókasafninu í Grófinni að tala um þessa bók...
Þær eru sammála, ósammála og taka svo auðvitað nokkra útidúra, því hvað væru þættirnir án þeirra?
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
PÍB - Remarkably Bright Creatures
Við erum strax komnar með annan þátt af poppkorn í blaðsíðunum! Í þetta sinn setjast Alma og Fjóla niður og ræða saman um bók og mynd; Remarkably Bright Creatures. Þær eru sammála um flest allt sem viðkemur …
Notas do episódio
Við erum strax komnar með annan þátt af poppkorn í blaðsíðunum!
Í þetta sinn setjast Alma og Fjóla niður og ræða saman um bók og mynd; Remarkably Bright Creatures.
Þær eru sammála um flest allt sem viðkemur bæði bók og mynd en við viljum endilega heyra hvað ykkur finnst!
Kolkrabbar, menn að taka út þroska og bara allt væbið.
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
Bækur sem létu okkur gráta
Þátturinn í dag er heldur rólegur og smá sár. Við förum yfir þær bækur sem hafa látið okkur gráta í gegnum tíðina. Við fórum samt ekki yfir allar, Alma og Fjóla væru enn í upptökum ef svo væri... Við viljum …
Notas do episódio
Þátturinn í dag er heldur rólegur og smá sár.
Við förum yfir þær bækur sem hafa látið okkur gráta í gegnum tíðina. Við fórum samt ekki yfir allar, Alma og Fjóla væru enn í upptökum ef svo væri...
Við viljum alltaf á okkur tárum bæta svo ef þið hafið grátibækur í farteskinu endilega deilið þeim með okkur!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
Bókakrydd kemur í heimsókn!
Í þessum þætti fáum við frábæran gest, en það er engin önnur en hún Íris sem rekur Bókakrydd. Við stelpurnar erum búnar að vera ansi forvitnar um Bókakrydd þar sem við erum rétt að fá smjörþefinn af þeim …
Notas do episódio
Í þessum þætti fáum við frábæran gest, en það er engin önnur en hún Íris sem rekur Bókakrydd.
Við stelpurnar erum búnar að vera ansi forvitnar um Bókakrydd þar sem við erum rétt að fá smjörþefinn af þeim frábæru hlutum sem sem Íris ætlar sér.
Við ræðum við hana um hvað Bókakrydd er, hvað er henni mikilvægt og hvert hún ætlar sér. Að sjálfsögðu förum við svo langt út fyrir umfjöllunarefnið eins og okkur einum er lagið!
Við skulum öll bjóða Írisi og Bókakrydd velkomin í litla bókasamfélagið okkar!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
Bókakrydd getið þið svo nálgast á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; bokakrydd
Insta; bokakrydd
og svo að sjálfsögðu ef þið viljið fara í röð fyrir sumarpakkann hjá þeim;
https://bokakrydd.is
Poppkorn í blaðsíðunum
Í dag, eftir tveggja vikna pásu, kemur út nýr liður hjá okkur sem við erum að kalla Poppkorn í blaðsíðunum! Í þessum þáttum lesum við bók, horfum svo á myndina og ræðum bæði bók og mynd. Erum við sáttar við …
Notas do episódio
Í dag, eftir tveggja vikna pásu, kemur út nýr liður hjá okkur sem við erum að kalla Poppkorn í blaðsíðunum! Í þessum þáttum lesum við bók, horfum svo á myndina og ræðum bæði bók og mynd.
Erum við sáttar við hvernig bókin kom út? Hvort fannst okkur betri platform fyrir söguna? Ná karakterarnir að skína í gegn? Var myndin jafnvel betri en bókin????
Umfjöllunarefni þáttarins er SPOILER Project Hail Mary en Alma og Fjóla lásu bókina, skelltu sér á myndina og ræða nú saman um hvað þeim fannst!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
Fyrsta bls - Síðasta bls
Alma og Fjóla tækla verkefnið "fyrsta blaðsíða - síðasta blaðsíða" sem stelpurnar settu sér fyrir fyrir nokkrum þáttum síðan. Alma var með bókina "The Nowhere Girls" og Fjóla var með bókina "The Inevitable …
Notas do episódio
Alma og Fjóla tækla verkefnið "fyrsta blaðsíða - síðasta blaðsíða" sem stelpurnar settu sér fyrir fyrir nokkrum þáttum síðan.
Alma var með bókina "The Nowhere Girls" og Fjóla var með bókina "The Inevitable Victorian Thing". Þetta voru eins ólíkar bækur og hugsast getur og sagan segir að Fjóla er ennþá mjög ringluð og Alma er enn meiri rauðsokka eftir þennan þátt.
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
Kúrekarómans
Í þessum þætti fengu þær Fjóla og Anna Karen það verkefni frá Ölmu að lesa eina kúrekarómans. Alma var stödd á bókamessu og var því fjarri góðu gamni (eða bara í öðru gamni). En hún skildi eftir þau fyrirmæli …
Notas do episódio
Í þessum þætti fengu þær Fjóla og Anna Karen það verkefni frá Ölmu að lesa eina kúrekarómans. Alma var stödd á bókamessu og var því fjarri góðu gamni (eða bara í öðru gamni). En hún skildi eftir þau fyrirmæli að við læsum Chasing the wild eftir Elliott Rose og ræddum svo í þætti.
Við setjum höskuldar viðvörun á þennan þátt þar sem við förum frekar vel yfir söguna en einnig er um frekar gróft orðbragð á köflum þannig að við mælum með að hlusta ekki á þennan þátt í nálægð við ungmenni.
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
Lestrarlægðar þerapíur
Fjóla og Alma fara í gegnum nokkur tips and tricks til að koma mani í gegnum erfiðu lestralægðirnar sem vilja stundum leggjast á man. Alma kemur einnig með nokkrar hugmyndir af bókum, sem er auðvelt að lesa, ef …
Notas do episódio
Fjóla og Alma fara í gegnum nokkur tips and tricks til að koma mani í gegnum erfiðu lestralægðirnar sem vilja stundum leggjast á man. Alma kemur einnig með nokkrar hugmyndir af bókum, sem er auðvelt að lesa, ef þið eruð alveg týnd í bókaflórunni!
Gleymdum við einhverju eða viltu segja frá þínum aðferðum til að losna úr lægð? Segðu okkur frá því á samfélagsmiðlunum okkar!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
Bókahrollar
Alma og Anna Karen ræða saman um nokkra bókahrolla (e. bookish pet peeves) og fara yfir hvað fer verst í þær. Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn
Ég hef aldrei - Bókaútgáfa
Stelpurnar eru komnar með lista af spurningum, svona Ég hef aldrei stemning, og svara þær allar! Einnig erum við að byrja nýja áskorun þar sem við lesum fyrstu og síðustu blaðsíðuna af bók og reynum að giska …
Notas do episódio
Stelpurnar eru komnar með lista af spurningum, svona Ég hef aldrei stemning, og svara þær allar!
Einnig erum við að byrja nýja áskorun þar sem við lesum fyrstu og síðustu blaðsíðuna af bók og reynum að giska hvað gerist í henni. Síðan komum við saman og látum ykkur vita hvað gerðist í raun og veru í bókunum okkar.
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
Pucking Mad About You
Alma og Anna Karen taka fyrir bókina Pucking Mad About You eftir elsku bestu Karen C. McDermott okkar. Þetta er bókin sem kom okkur í íshokkí gírinn áður en Heated Rivalry tók yfir líf okkar, já allra nema Önnu …
Notas do episódio
Alma og Anna Karen taka fyrir bókina Pucking Mad About You eftir elsku bestu Karen C. McDermott okkar.
Þetta er bókin sem kom okkur í íshokkí gírinn áður en Heated Rivalry tók yfir líf okkar, já allra nema Önnu Karenar þó að hún hafi lofað að horfa á þættina fyrir næstu upptökur!
Bókina hennar Karenar má finna á Amazon en einnig er hægt að sérpanta hana í gegnum bóksölu stúdenta ef þið viljið eiga physical eintak af henni.
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
Heated Rivalry
Alma og Fjóla setjast niður í þætti dagsins og tala um nýjasta æðið sitt. Íshokkí rómans þættina Heated Rivalry! Myndatakan, þættirnir, bækurnar, höfundurinn, leikararnir, þetta bara getur ekki orðið betra! Þið …
Notas do episódio
Alma og Fjóla setjast niður í þætti dagsins og tala um nýjasta æðið sitt. Íshokkí rómans þættina Heated Rivalry!
Myndatakan, þættirnir, bækurnar, höfundurinn, leikararnir, þetta bara getur ekki orðið betra!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
1 stjörnu umsagnir - íslensku þýddar
Stelpurnar koma saman og segja okkur frá nokkrum einnar stjörnu umsögnum um bækurnar sem þær hafa lesið og nokkrar sem þær ætla sér að lesa, twistið er að þær íslensku þýddu þær allar! Mikið hlegið, smá …
Notas do episódio
Stelpurnar koma saman og segja okkur frá nokkrum einnar stjörnu umsögnum um bækurnar sem þær hafa lesið og nokkrar sem þær ætla sér að lesa, twistið er að þær íslensku þýddu þær allar!
Mikið hlegið, smá pirringur og svakalega skemmtilegar umsagnir svo þið ættuð ekki að láta þennan þátt framhjá ykkur fara!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
Nýársþáttur!
Alma og Fjóla taka upp fyrsta þátt ársins. Stiklum við á ansi mörgu þennan þátt en við förum snögglega yfir þær bækur sem við lásum í jólafríinu, tölum um tölvuleikinn Split Fiction sem Alma kláraði yfir jólin …
Notas do episódio
Alma og Fjóla taka upp fyrsta þátt ársins. Stiklum við á ansi mörgu þennan þátt en við förum snögglega yfir þær bækur sem við lásum í jólafríinu, tölum um tölvuleikinn Split Fiction sem Alma kláraði yfir jólin og leikritið Hamlet sem þær fóru á ásamt Lilju og Þorbjörgu skvísum.
Við hlökkum til frábærs lesárs með ykkur!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
Áramótaþáttur!
Í þættinum í dag förum við í smá hraðaspurningar og teljum upp flestar bækurnar sem við höfum lesið frá því í byrjun ágúst. Alma sá algjörlega um að búa til spurningar svo Fjóla og Anna KAren vita ekkert hvað …
Notas do episódio
Í þættinum í dag förum við í smá hraðaspurningar og teljum upp flestar bækurnar sem við höfum lesið frá því í byrjun ágúst. Alma sá algjörlega um að búa til spurningar svo Fjóla og Anna KAren vita ekkert hvað þær eru að fara út í. Við viljum óska ykkur gleðilegrar hátíðar og frábært nýtt ár, við þökkum innilega fyrir að þið hafið verið okkur samferða á þessu frábæra bóka ári! Megum við eiga frábært bókaár framundan og getum við ekki beðið eftir að halda þessu ævintýri áfram!
Bækurnar sem við nefndum í dag voru!
Þú sem ert á jörðu Alchemised - SenLinYu Silfurberg - Sesselía Ólafs Lokar augum Blám - Margrét S. Höskuldsdóttir Blue Sisters - Coco Mellors A Hue of Blu - Marie France Leger Serían; Rebel Blue Ranch - Lyla Sage Tál - Arnaldur Indriðason Arcana Academy - Elisa Kova Prettir í Paradís - Christina Lauren Mín er hefndin - Nanna Rögnvaldardóttir Carmilla - J. Sheridan Le Fanu Book Lovers - Emily Henry A Short stay in Hell - Steven L. Peck Sjáandi - Ester Hilmarsdóttir Brimstone - Callie Hart Pucking Mad About You - Karen C. McDermott Slewfoot - Gerald Brom Lost and Lassoed - Lyla Sage Sólgos - Arndís Þórarinsdóttir Immortal Consequences - I. V. Marie Chasing the Wild - Elliott Rose Hamnet - Maggie O'Farrel Vaxtaræktarkonan Einmana - Yukiko Motoya The Knight and the Moth - Rachel Gillig Tunglóður - Karl Ólafur Hallbjörnsson Graveyard Shift - M.L. Rio Deep End - Ali Hazelwood Strá fyrir straumi - Erla Hulda Halldórsdóttir Piparmeyjar - Sigríður K. Þorgrímsdóttir Fröken Dúlla - Kristín Svava Tómasdóttir Ballad of Fallen Dragons - Sarah A. Parker Game On - Navessa Allen Cleopatra - Saara El-Arifi The Lion and the Deathless Dark - Carissa Broadbent Red God - Pierce Brown The Knave and the Moon - Rachel Gillig Holy Monsters- Imani Erriu Ruinous Ends - I. V. Marie Realese Me - Tahereh Mafi Japanese Gothic - Kylie Lee Baker
Aqui estão os 40 episódios mais recentes de 91. Os mais antigos estão no feed do podcast.
Podcasts parecidos
Mais podcasts de ComédiaEste podcast é seu?
Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.




