
Hver er að biðja um allar þessar verslanir og lengda afgreiðslutíma?
Notas do episódio
Matarverð heldur áfram að hækka þrátt fyrir boðaðar lækkanir matvörurisanna. Dagvöruvísitalan hækkaði um 0,33% frá ágúst til október, mest í Bónus eða um 0,49%, og skýrist hækkunin einkum af kjöti og mjólkurvörum. Hagar og Nettó boðuðu tveggja prósenta lækkanir og Krónan frysti verð á 647 vörum til áramóta, en dramatískar lækkanir hafa ekki orðið. Matvörur hér eru þær dýrustu af 27 Evrópulöndum samkvæmt Eurostat. Með 8% stýrivexti og 5,9% verðbólgu má búast við áframhaldani hækkunum eftir áramót. Helga Arnardóttir fjallar um matarverð og ræðir við Bjarka Stein Benjamínsson verkefnastjóra verðlagseftirlits ASÍ.
- Prís er ennþá með lægsta vöruverðið samkvæmt nýjustu úttekt verðlagseftirlits ASÍ.
- Af fjórum lágvöruverðsverslunum á markaði, kemur Bónus á eftir Prís, Krónan fylgir þar næst á eftir og Nettó er með hæsta verðið. Tekið skal fram að Prís og Nettó eru í eigu sama félags, Samkaupa.
- Hvað er raunverulega að halda matarverði svona háu og af hverju geta matvörurisarnir ekki gengið lengra í verðlækkunum?
- Mögulega eru fjöldi verslana og lengdur afgreiðslutími að hafa áhrif á hærra vöruverð.
Gímaldið er áskriftarmiðill. Þú getur gerst áskrifandi á gimaldid.is/askrift eða lagt til frjálst framlag.