Pular para o conteúdo
Gímaldið
PodcastNotíciasIS

Gímaldið

NovoFormaður Afstöðu: Hræðsluáróður og stefnuleysi í fangelsismálum13 de novembro de 2026 · 37 min
Episódios
107
Publicação
várias vezes por semana
Último episódio
13 nov 2026

Sobre o podcast

Hlaðvarp Gímaldsins 🧡 Gímaldið er fréttatengdur fjölmiðill í áskrift. Við birtum greiningar og fréttaskýringar og gefum út þætti um samfélag, stjórnmál og menningu. Vertu með okkur í að lýsa upp samfélagið. Þú getur gerst áskrifandi hér: https://gimaldid.is/askrift/

Episódios 107

  1. Formaður Afstöðu: Hræðsluáróður og stefnuleysi í fangelsismálum

    37 minEpisódio 92

    Nýtt fangelsi á Stóra-Hrauni á að kosta 28,9 milljarða króna, meira en fjórfalt það sem áætlað var árið 2023. Fyrsta skóflustungan var tekin á dögunum og fullbyggt á fangelsið að rúma 128 fanga. Formaður …

    Notas do episódio

    Nýtt fangelsi á Stóra-Hrauni á að kosta 28,9 milljarða króna, meira en fjórfalt það sem áætlað var árið 2023. Fyrsta skóflustungan var tekin á dögunum og fullbyggt á fangelsið að rúma 128 fanga. Formaður Afstöðu segir fangelsið byggt á röngu mati á þörfinni og sakar greiningardeild ríkislögreglustjóra um hræðsluáróður. En hvað þarf til að fangelsisvist skili raunverulegri betrun? Erla Hlynsdóttir ræðir við Guðmund Inga Þóroddsson, formann Afstöðu.

    Meðal þess sem rætt er um:

    • Stóra-Hraun: Fangelsið er hannað með 120–128 öryggisrýmum, þótt ekkert slíkt rými sé til í dag. Guðmundur Ingi telur að kostnaðurinn eigi eftir að hækka enn frekar. Hann óttast að þá verði skorið niður í verkefninu, að það sem á að nýtast föngum til endurhæfingar verði tekið út og að bara skelin verði eftir.
    • Hræðsluáróður: Guðmundur Ingi kallar greiningardeild ríkislögreglustjóra áróðurs- og markaðsdeild. Hann segir hana koma fram með hræðsluáróður á hverju hausti þegar fjárlög eru í vinnslu, og að nú séu það sögur af leigumorðingjum og miðstýrðum gengjum. Hann segir engin slík gengi til á Íslandi.
    • Fangelsin sem geymslur: Guðmundur Ingi segir enga stefnu ríkja í fangelsismálum og vill að forsætisráðuneytið stýri málaflokknum.
    • Hvað Íslendingar geta lært af Norðmönnum og Kerava-fangelsinu í Finnlandi
    • Heimsóknir barna til foreldra í fangelsi og aðstandendur fanga, sem eru nú um helmingur þeirra sem leita til Afstöðu
    • Brúin – Citizenship Iceland: Afstaða undirbýr, í samstarfi við Yale School of Medicine, íslenska útgáfu af úrræði sem skólinn hefur þróað og hefur verið notað í nokkrum löndum. Til stendur að kynna það fyrir stjórnvöldum, væntanlega í byrjun næsta árs. Sex mánaða eftirfylgni gæti þannig orðið þriðji kostur dómara, á milli sektargreiðslu og fangelsisvistar.
    • Ferð Guðmundar Inga til Úkraínu.

    Viðmælandi: Guðmundur Ingi Þóroddsson
    Umsjón: Erla Hlynsdóttir

    Gímaldið er áskriftarmiðill. Þú getur gerst áskrifandi á gimaldid.is/askrift eða lagt til frjálst framlag.

  2. Hver er að biðja um allar þessar verslanir og lengda afgreiðslutíma?

    18 minEpisódio 91

    Com Bjarki Steinn Benjamínsson

    Matarverð heldur áfram að hækka þrátt fyrir boðaðar lækkanir matvörurisanna. Dagvöruvísitalan hækkaði um 0,33% frá ágúst til október, mest í Bónus eða um 0,49%, og skýrist hækkunin einkum af kjöti og …

    Notas do episódio

    Matarverð heldur áfram að hækka þrátt fyrir boðaðar lækkanir matvörurisanna. Dagvöruvísitalan hækkaði um 0,33% frá ágúst til október, mest í Bónus eða um 0,49%, og skýrist hækkunin einkum af kjöti og mjólkurvörum. Hagar og Nettó boðuðu tveggja prósenta lækkanir og Krónan frysti verð á 647 vörum til áramóta, en dramatískar lækkanir hafa ekki orðið. Matvörur hér eru þær dýrustu af 27 Evrópulöndum samkvæmt Eurostat. Með 8% stýrivexti og 5,9% verðbólgu má búast við áframhaldani hækkunum eftir áramót. Helga Arnardóttir fjallar um matarverð og ræðir við Bjarka Stein Benjamínsson verkefnastjóra verðlagseftirlits ASÍ.

    • Prís er ennþá með lægsta vöruverðið samkvæmt nýjustu úttekt verðlagseftirlits ASÍ.
    • Af fjórum lágvöruverðsverslunum á markaði, kemur Bónus á eftir Prís, Krónan fylgir þar næst á eftir og Nettó er með hæsta verðið. Tekið skal fram að Prís og Nettó eru í eigu sama félags, Samkaupa.
    • Hvað er raunverulega að halda matarverði svona háu og af hverju geta matvörurisarnir ekki gengið lengra í verðlækkunum?
    • Mögulega eru fjöldi verslana og lengdur afgreiðslutími að hafa áhrif á hærra vöruverð.

    Gímaldið er áskriftarmiðill. Þú getur gerst áskrifandi á gimaldid.is/askrift eða lagt til frjálst framlag.

  3. Sigurður Ingi: „Þetta fór fram hjá mér og fram hjá þinginu“

    18 minEpisódio 90

    Í þessum þætti er sögð saga lagaákvæðis sem fór undir radarinn á þinginu og varð að lögum án þess að neinn yrði þess var, hvorki ráðherrann sem lagði það fram né þingheimur sem gerði það að lögum. Ákvæðið er …

    Notas do episódio

    Í þessum þætti er sögð saga lagaákvæðis sem fór undir radarinn á þinginu og varð að lögum án þess að neinn yrði þess var, hvorki ráðherrann sem lagði það fram né þingheimur sem gerði það að lögum. Ákvæðið er rót þess storms sem nú ríkir um stjórn Landsvirkjunar en með því var gerð breyting á því hvernig skipað er í stjórnir stærstu ríkisfyrirtækja landsins. Í þættinum er einnig rætt við ráðherrann fyrrverandi, Sigurð Inga Jóhannsson. Þátturinn byggir á ítarlegri fréttaskýringu um málið sem birt er á vef Gímaldsins fyrir áskrifendur.

    Viðmælandi: Sigurður Ingi Jóhannsson
    Brot úr þingræðum: Guðmundur Ari Sigurjónsson, Kristrún Frostadóttir
    Umsjón þáttar: Aðalheiður Ámundadóttir

    Gímaldið er áskriftarmiðill. Þú getur gerst áskrifandi á gimaldid.is/askrift eða lagt til frjálst framlag.

  4. Hallgrímur Helgason: Ónæmur fyrir hakkavélinni

    1 h 9 minEpisódio 89

    Com Hallgrímur Helgason

    Hallgrímur Helgason rithöfundur hefur átt gott ár erlendis og er orðin stórstjarna í Noregi með sextíu kílóa þríleikinn sinn. Hann hefur verið lengst allra höfunda á topp tíu metsölulistum þar í landi allt frá …

    Notas do episódio

    Hallgrímur Helgason rithöfundur hefur átt gott ár erlendis og er orðin stórstjarna í Noregi með sextíu kílóa þríleikinn sinn. Hann hefur verið lengst allra höfunda á topp tíu metsölulistum þar í landi allt frá því í byrjun þessa árs. Hann segist aldrei hafa búist við þessum viðtökum en hann hafi alltaf dreymt um að loka hringnum með útgáfu þríleiksins í Noregi einkum í ljósi þess hversu mikið er fjallað um samskipti Norðmanna og Íslendinga í bókunum. Þrátt fyrir miklar annir og veru erlendis vegna kynningarstarfs náði hann engu að síður að skrifa sína nýjustu bók fyrir jólin sem ber þann óvenjulega titil ENGINN DEYR Í IKEA. Þetta er samtímasaga um Alvar, eldri föður sem lokast inni í IKEA með þriggja ára dóttur sinni yfir nótt og eftir það breytist heimurinn í einhvers konar and -veruleika eins og sögupersónan lýsir sjálf. Bókin er reyfarakennd táknsaga um samtímann, helskrun, ofbeldi, valdasýki stórfyrirtækjanna og doðann sem við finnum öll fyrir í vímukenndu stjórnlausu skruni og stingum höfðinu í sandinn þegar við horfum á stríðsátök, sveltandi fólk og börn í sárri neyð í gegnum litla símtækið okkar. Helga Arnardóttir ræddi við Hallgrím meðal annars um nýju bókina, þríleikinn og ævintýrið í Noregi, hakkavélina í athugasemdakerfinu, einsleitt fjölmiðlaumhverfi hér á landi og föðurhlutverkið en Hallgrímur sem er 67 ára á fjögur börn af ólíkum kynslóðum það elsta er 42 ára og yngsta er 8 ára.


    • Skáldsögurnar Sextíu kíló af sólskini og kjaftshöggum komu báðar út í Noregi á þessu ári og hafa verið á topp tíu metsölulistanum frá því í byrjun janúar.
    • 30 ára eru frá því skáldsaga Hallgríms 101 Reykjavík kom út og í tilefni af vinsældum hans í Noregi verða hún og aðrar eldri bækur hans endurútgefnar þar í landi.
    • Vinsældir Hallgríms hafa haft áhrif á sölu bókanna út um allan heim og hefur rétturinn af þeim verið seldur til tíu svæða þar á meðal Bandaríkjanna.
    • Ný bók Hallgríms Enginn deyr í IKEA sem kemur út fyrir þessi jól er táknræn samtímasaga sem fjallar um Alvar, eldri föður sem lokast inni í IKEA með þriggja ára dóttur sinni yfir nótt og eftir það breytist söguheimurinn í einhvers konar and-veruleika.
  5. Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps

    43 minEpisódio 88

    Com Karen Kjartansdóttir

    Demókratar stýra senn báðum deildum Bandaríkjaþings eftir sigur í þingkosningunum 3. nóvember. Sigurinn var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár …

    Notas do episódio

    Demókratar stýra senn báðum deildum Bandaríkjaþings eftir sigur í þingkosningunum 3. nóvember. Sigurinn var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Karen Kjartansdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.


    Meðal þess sem rætt er um:

    • Bláa bylgjan: Af hverju vanmátu kannanir sigur demókrata og hvers vegna skiluðu kjósendur repúblikana sér illa á kjörstað?
    • Abdul El-Sayed, nýr öldungadeildarþingmaður Michigan og fyrsti múslíminn í öldungadeildinni, og baráttumál hans: „Money out of politics, money into your pocket, Medicare for all“
    • James Talarico, sem sigraði Ken Paxton í Texas þrátt fyrir milljónir Elons Musk
    • Peningar í pólitík og hvers vegna þeir dugðu ekki í þetta sinn
    • Rannsóknarvald þingsins, embættismissismál og neitunarvald forsetans: Hvað geta demókratar raunverulega gert?
    • Innbyrðis átök milli vinstri arms Demókrataflokksins og flokksforystunnar
    • Stríðið í Íran og hvort það skýri ósigur repúblikana
    • Framtíð MAGA-hreyfingarinnar og hverjum repúblikanar kenna um
    • Möguleg forsetaefni fyrir 2028: Jon Ossoff, J.D. Vance, Marco Rubio, og hvers vegna Zohran Mamdani getur ekki orðið forseti
    • Hvaða áhrif niðurstöðurnar gætu haft á Evrópu og Ísland

    Viðmælandi: Karen Kjartansdóttir
    Innslag: Aðalheiður Ámundadóttir
    Umsjón: Eyrún Magnúsdóttir


    Gímaldið er áskriftarmiðill. Þú getur gerst áskrifandi á gimaldid.is/askrift eða lagt til frjálst framlag.

  6. Demókratarnir sem geta breytt öllu

    37 minEpisódio 87

    Þingkosningar standa fyrir dyrum í Bandaríkjunum. Úrslit þeirra munu ráða miklu um valdsvið Donalds Trump á síðari hluta kjörtímabils hans. Stríðsrekstur forsetans og tollastefna hefur komið verst niður í …

    Notas do episódio

    Þingkosningar standa fyrir dyrum í Bandaríkjunum. Úrslit þeirra munu ráða miklu um valdsvið Donalds Trump á síðari hluta kjörtímabils hans. Stríðsrekstur forsetans og tollastefna hefur komið verst niður í fylkjum sem venjulega styðja Repúblikana og í mörgum þeirra ríkir nú mikil spenna. Líklegt er talið að Demókratar gætu náð yfirhöndinni í báðum deildum Bandaríkjaþings. Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Aðalheiði Ámundadóttur um þýðingu kosninganna, hvað brennur helst á kjósendum og í hvaða fylkjum baráttan um öldungadeildina gæti ráðist.

    • Óvinsælir ráðherrar gætu átt embættismissi yfir höfði sér vinni demókratar meirihluta í þinginu.
    • Tapi Repúblikanar þinginu gæti áhersla forsetans á utanríkismál stóraukist.
    • Hækkað verð á olíu og áburði bítur í helstu vígjum Repúblikana og gagnaver eru orðin kosningamál.
    • Demókrati sem tapaði forkosningum í Michigan lýsir stuðningi við Repúblikana.
    • Hófsemdarframbjóðandinn Jon Ossoff slær í gegn og er orðaður við forsetaframboð eftir óvænt flug í Georgíu.
    • Forsetinn gagnrýnir útlit og klæðaburð eigin frambjóðanda í Texas en dáist að líkamsvexti flokksbróður síns í Ohio.
    • Læknir sem stóð í málaferlum við 700 sjúklinga mætir presti í Kansas.
    • Tveir Dan Sullivan eru á kjörseðlinum í Alaska.
    • Systir Lindsey Graham berst fyrir sæti bróður síns í Suður-Karólínu.
    • Norður-Karólína er líklegust til að falla til Demókrata.

    Fjallað er um kosningabaráttuna og hvað er í húfi í tveimur greinum á vef Gímaldsins.

    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  7. Fjölmiðill verður ekki til úr engu

    54 minEpisódio 86

    Gímaldið er eins árs. Á þessum tíma hafa komið út 100 hlaðvarpsþættir, mörg hundruð greinar og bókarkaflar, og nú kemur fréttabréf alla virka morgna. Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir, Erla …

    Notas do episódio

    Gímaldið er eins árs. Á þessum tíma hafa komið út 100 hlaðvarpsþættir, mörg hundruð greinar og bókarkaflar, og nú kemur fréttabréf alla virka morgna. Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir, Erla Hlynsdóttir og Helga Arnardóttir líta yfir fyrsta árið og ræða hvaða skref Gímaldið tekur næst.

    Í þættinum:

    • Erla rifjar upp mál starfsmanns Útlendingastofnunar sem birti trúnaðarupplýsingar um umsækjendur um vernd á Instagram, og fjallar um au pair-kerfið og frumvarp dómsmálaráðherra.
    • Helga segir frá umfjöllun sinni um matarverð og verðtryggð lán og hvað er fram undan í neytendamálum, meðal annars samkeppni í eldsneytissölu.
    • Aðalheiður ræðir krísu hefðbundinna stjórnmálaflokka á Íslandi og í Evrópu og hvað kom henni mest á óvart á árinu.
    • Eyrún ræðir um hægfréttir, mikilvægi áskrifta fyrir fjölmiðla og eitrað samband fjölmiðla og samfélagsmiðla.

    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  8. Andri Snær: Hjartsláttartruflanir af völdum náttúruverndar

    1 h 2 minEpisódio 85

    Com Andri Snær Magnason

    Andri Snær Magnason hefur ekkert alltaf ætlað sér að bera kyndilinn í náttúruvernd en með bókum sínum Draumalandið og Um tímann og vatnið og samnefndum heimildarmyndum í kjölfarið hefur hann orðið einn af …

    Notas do episódio

    Andri Snær Magnason hefur ekkert alltaf ætlað sér að bera kyndilinn í náttúruvernd en með bókum sínum Draumalandið og Um tímann og vatnið og samnefndum heimildarmyndum í kjölfarið hefur hann orðið einn af áhrifamestu kyndilberum í þessum málaflokki og vakið fólk um allan heim til vitundar um náttúruvernd, loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra fyrir náttúru og samfélög.

    Ekki síst hefur hann verið öflugur sagnamaður, sett hlutina í samhengi með persónulegri nálgun og miðlað óskiljanlegum niðurstöðum rannsókna vísindasamfélagsins á aðgengilegan hátt sem snúa að loftslagsbreytingum, súrnun sjávar og afleiðingum þess. Þrátt fyrir þessa velgengi hefur ekkert verið auðvelt að standa undir þessu. Andri hefur sætt hörðum árásum úr mörgum áttum, það hefur markvisst verið gert lítið úr hans vinnu og hann hefur átt í vök að verjast á köflum. Hann segist sjálfur eiga í ást- og haturssambandi við að vera þessi talsmaður náttúrunnar og fengið hjartsláttartruflanir af álagi sem því hefur fylgt. Auk þess upplifir hann sterkt að sumt fólk skilur hreinlega ekki og gæti ekki staðið meira á sama um loftslagsbreytingar, súrnun sjávar og bráðnun jökla og áttar sig ekki á hvaða raunverulegu afleiðingar það hefur. Hann upplifði líka hálfgerða kulnun, sem enginn vissi hvað var fyrir tuttugu árum, eftir útgáfu Draumalandsins og hefur saknað Andra Snæs sem skrifaði ljóðrænar skáldsögur og barnabækur.

    Helga Arnardóttir ræddi við Andra Snæ Magnason í hlaðvarpi Gímaldsins. Í viðtalinu ræðir hann um myndina Tímann og vatnið, um baráttuna fyrir náttúrunni og segir frá nýrri bók sem hann er með í smíðum og kemur út á næsta ári.

    • Bókin Um tímann og vatnið sem kom út árið 2019 hefur farið sigurför um heiminn og verið þýdd á 32 tungumál.
    • Andri hlaut ítölsku verðlaunin Premio Tiziano Terzani árið 2021 fyrir bókina Um tímann og vatnið þar sem dómnefnd sagði verkið vera áhrifaríkt neyðarkall til heimsbyggðarinnar.
    • Heimildarmyndin TIME and WATER í leikstjórn Íslandsvinarins Sara Dosa í samvinnu við National Geographic var frumsýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni í janúar 2026.
    • Myndin er unnin upp úr bók Andra og umfangsmiklu fjölskyldumyndasafni sem hann hefur viðað að sér í gegnum árin frá afa sínum og ömmu sem voru jöklafarar og miklir náttúruunnendur.
    • Í maí 2026 hlaut Andri Snær WWF-Póllandsverðlaunin - Rödd fyrir lifandi plánetu sem veitt voru fyrir þátttöku hans og hlutverk í heimildarmyndinni Um tímann og vatnið (National Geographic), en verðlaunin eru veitt aðalpersónu kvikmyndar sem hvetur aðra til aðgerða í þágu náttúrunnar.
    • Í september 2026 fékk Andri Snær náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti á degi íslenskrar náttúru en verðlaunin eru veitt einstaklingi sem hefur unnið markvert starf á sviði náttúruverndar.

    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  9. Jón Gnarr, Dagur B. og frelsið í áhrifaleysinu

    42 minEpisódio 84

    Af hverju gat Jón Gnarr ekki verið áfram í þingflokki Viðreisnar og látið til sín taka sem óbreyttur þingmaður? Og hvað ætlar ríkisstjórnin sér með verðtryggðu lánin? Eyrún Magnúsdóttir, Helga Arnardóttir og …

    Notas do episódio

    Af hverju gat Jón Gnarr ekki verið áfram í þingflokki Viðreisnar og látið til sín taka sem óbreyttur þingmaður? Og hvað ætlar ríkisstjórnin sér með verðtryggðu lánin? Eyrún Magnúsdóttir, Helga Arnardóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða um Viðreisn og verðtrygginguna.

    Meðal efnis í þættinum:

    • Jón Gnarr yfirgefur þingflokk Viðreisnar en ekki flokkinn. Er staða hans sambærileg við stöðu Dags B. Eggertssonar innan Samfylkingarinnar? Rýnt í hvernig þeir hafa spilað ólíkt úr sinni stöðu.
    • Áform um að stytta hámarkslánstíma verðtryggðra fasteignalána í 25 ár eru komin í samráðsgátt.
    • Bankastjórar þriggja stærstu bankanna vilja afnema verðtrygginguna. Af hverju gengur ríkisstjórnin ekki lengra?
    • Hvaða áhrif hefur styttri lánstími á tekjulága fyrstu kaupendur?
    • Lífeyrissjóður varar við: verðtryggð lán geti verið skynsamleg í hávaxtaumhverfi.
    • Af hverju megum við ekki bera okkur saman við Færeyinga? Þar bjóðast 30 ára lán á 4,8% föstum vöxtum.
    • Matarverð: Hagar hækka afkomuspá um 800 milljónir á sama tíma og verslanir frysta verð.
    • Hvernig hefur þingmönnum farnast sem yfirgefa þingflokka sína á miðju kjörtímabili?
    • Forystuleysi, veikindaleyfi og þingflokkur án formanns: hvað er að gerast innan Viðreisnar?

    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  10. Feður í fangelsi - Kvíðinn fyrir að koma aftur heim

    31 minEpisódio 83

    Com Árni Sveinsson

    Hvernig er að taka á móti börnunum sínum í heimsókn í fangelsi, og hvernig er að snúa aftur í foreldrahlutverkið að afplánun lokinni? Á Íslandi eru ekki til upplýsingar um hversu mörg börn eiga foreldri í …

    Notas do episódio

    Hvernig er að taka á móti börnunum sínum í heimsókn í fangelsi, og hvernig er að snúa aftur í foreldrahlutverkið að afplánun lokinni? Á Íslandi eru ekki til upplýsingar um hversu mörg börn eiga foreldri í fangelsi, þótt slíkar tölur séu til í nágrannalöndunum. Þá hafa rannsóknir á foreldrum í fangelsum að miklu leyti snúist um mæður, en feður hafa síður fengið rödd.

    Árni Sveinsson starfaði í átján ár sem ráðgjafi fyrir foreldra hjá velferðarsviði Kópavogsbæjar og hitti þar reglulega feður sem voru að koma úr afplánun. Meistararannsókn hans í afbrotafræði við Háskóla Íslands ber yfirskriftina „Ég var góður pabbi og er góður pabbi“ og tók hann viðtöl við fimm feður sem voru við það að ljúka afplánun eða höfðu nýlokið henni.
    Erla Hlynsdóttir blaðamaður ræðir við Árna um rannsóknina.

    Meðal þess sem fram kemur:

    • Feðurnir lýsa aðstæðum til heimsókna í fangelsin sem kuldalegum og óbarnvænum.
    • Viðmót starfsfólks á vakt getur breytt tilhlökkun og gleði í kvíða og óöryggi, bæði hjá börnunum og feðrunum
    • Einn faðirinn sem fékk dóttur sína í heimsókn var miður sín eftir að kynlífshljóð heyrðust þaðan sem aðrir fangar tóku á móti maka sínum.
    • Annar faðir sem afplánaði á Kvíabryggju fór út með börnin til að létta andrúmsloftið en þegar þau komu aftur inn lágu dæmdir barnaníðingar á dótinu þeirra.
    • Það er á herðum nánustu ættingja að koma með börnin í heimsókn til föður síns í fangelsið. Að vera fluttur í fangelsi sem er lengra í burtu frá þeim getur gert heimsóknir stopulli.
    • Mæður fanganna, ömmurnar, lögðu mikið á sig til að viðhalda tengslum þeirra og barnanna.
    • Félagsleg stimplun fylgir þeim út úr fangelsinu og þeir upplifa kvíða við að gera hversdagslega hluti á borð við að fara út í búð eða mæta í skóla barnanna sinna.
    • Einn af feðrunum sem Árni ræddi við var að taka einn við uppeldi dóttur sinnar þegar hann kæmi úr fangelsi og óttaðist að gera mistök
    • Skortur á stuðningi við þá sem foreldra innan fangelsiskerfisins og þegar þeir eru búnir að ljúka afplánun
    • Árni segir það samfélagslega mikilvægt að styðja þessa feður, ekki aðeins þeirra vegna heldur líka vegna barnanna þeirra.

    Viðmælandi í þættinum er Árni Sveinsson.

    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  11. Sirkabát #18 - PISA er ekkert venjulegt próf

    38 minEpisódio 81

    Er PISA-könnunin stærsta skákmót í heimi? Niðurstöður PISA 2025 sýna að færni íslenskra grunnskólanema hefur aldrei mælst minni. En hvernig virkar PISA-könnunin í raun og veru og hvað má lesa úr niðurstöðunum? …

  12. Af hverju teljast hlaðvörp fjölmiðlar?

    50 minEpisódio 82

    Com Elfa Ýr Gylfadóttir e Sigríður Dögg Auðunsdóttir

    Deilt hefur verið um skilgreiningu á því hvað telst fjölmiðill. Af hverju teljast hlaðvörp fjölmiðlar samkvæmt skilgreiningu fjölmiðlanefndar og af hverju eru fjölmiðlamenn eða hlaðvarparar ekki endilega …

    Notas do episódio

    Deilt hefur verið um skilgreiningu á því hvað telst fjölmiðill. Af hverju teljast hlaðvörp fjölmiðlar samkvæmt skilgreiningu fjölmiðlanefndar og af hverju eru fjölmiðlamenn eða hlaðvarparar ekki endilega blaðamenn? Þetta eru hugtök sem margir rugla saman enda ekki furða því hlaðvarpssenan hefur aldrei verið sterkari í íslensku fjölmiðlaumhverfi. Í þessum þætti verður gerð tilraun til að skýra af hverju hlaðvörp, hvort sem þau eru skemmtiefni eða eitthvað annað, teljast fjölmiðlar í skilningi laganna eins og þau eru núna en umsjónarmenn þeirra teljast ekki endilega blaðamenn. Helga Arnardóttir blaðamaður Gímaldsins ræðir við Elfu Ýr Gylfadóttur fráfarandi framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar og Sigríði Dögg Auðunsdóttur formann Blaðamannafélagsins sem ætla að reyna greiða úr þessari hugtakaflækju.

    Menningar, nýsköpunar og háskólaráðuneytið hefur engu að síður boðað breytingar á fjölmiðlalögum þar sem til stendur að endurskoða lögin í heild sinni og hluti af því snýr að skráningarskyldu hlaðvarpa. Til stendur að leggja fram breytingar á lögunum í mars á næsta ári samkvæmt þingmálaskrá.

    • Áskriftum af hlaðvörpum fjölgar á meðan áskriftum af fréttafjölmiðlum fækkar samkvæmt úttekt Fjölmiðlanefndar.
    • Nokkrir umsjónarmenn vinsælla hlaðvarpa sem teljast fjölmiðlar samkvæmt lagalegri skilgreiningu hafa neitað, af prinsipp ástæðum segja þeir, að skrá hlaðvörpin sín sem fjölmiðla og horfa nú fram á íþyngjandi sektir frá hinu opinbera þrátt fyrir að tvö dómsmál hafi í raun staðfest að hlaðvörp séu sannarlega fjölmiðlar.
    • Eru fjölmiðlalögin úrelt eftir að hlaðvörpin fóru að ryðja sér til rúms í ríkari mæli? Nei, segir Elfa Ýr Gylfadóttir fráfarandi framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar sem telur lögin mjög skýr í þessu efni og raunar séu þau nútímalegri en í mörgum öðrum löndum þar sem þau séu tæknióháð.
    • Af hverju vilja sumir umsjónarmenn hlaðvarpa ekki skrá þau sem fjölmiðla þótt það sé að öllu leyti frítt og hvaða afleiðingar hefur það að gera það ekki?
    • Hver er kosturinn við það að skrá sig og hvaða vernd hefur það í för með sér fyrir bæði almenning og fjölmiðilinn sjálfan?
    • Menningar, nýsköpunar og háskólaráðuneytið hefur boðað breytingar á fjölmiðlalögum þar sem til stendur að endurskoða lögin í heild sinni og hluti af því snýr að skráningarskyldu hlaðvarpa. Til stendur að leggja fram breytingar á lögunum í mars á næsta ári samkvæmt þingmálaskrá.

    Viðmælendur í þessum þætti eru Elfa Ýr Gylfadóttir framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar og Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélagsins


    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  13. Kristrún: „Ég er ekki kosin til að verja ríkiskerfið“

    41 minEpisódio 80

    Com Kristrún Frostadóttir

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er gestur Hálftímans, nýs þáttar Gímaldsins um stjórnmál, og ræðir við Aðalheiði Ámundadóttur um pólitískar skoðanir sínar og hvort hún skilgreini sig til vinstri eða …

    Notas do episódio

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er gestur Hálftímans, nýs þáttar Gímaldsins um stjórnmál, og ræðir við Aðalheiði Ámundadóttur um pólitískar skoðanir sínar og hvort hún skilgreini sig til vinstri eða hægri; um endurreisn Samfylkingarinnar, hvort flokkurinn hafi færst til hægri og hvort vinstrið sé horfið af Alþingi. Kristrún hefur lengi verið með stöðu jafnaðarmannaflokka á heilanum og telur almenna velferð hafa gleymst í umræðu um réttindi stakra hópa. Samstarfið við Ingu Sæland fyllir hana auðmýkt á hverjum degi. Kristrún ræðir líka EES samninginn og breytingar í alþjóðastjórnmálum.

    Meðal umræðuefna:

    • Hvernig Samfylkingin fékk sjálfstraustið á ný.
    • Af hverju það er feimnismál að vera vinstrimaður á Íslandi.
    • Af hverju fólk upplifir sig velkomnara í hægri flokkum en vinstri flokkum.
    • Að farið hafi verið of geyst í alþjóðavæðingu.
    • Hvaðan fylgi popúlista kemur og hvernig jafnaðarmenn eigi að svara því.
    • Viðhorf forsætisráðherra til Flokks fólksins sem hún segir misskilinn.
    • Verja þurfi auknum mannauði og fjármagni til að standa vörð um EES-samninginn.
    • Gremja í alþjóðasamstarfi fari ekki lengur fram bak við luktar dyr.
    • Varnir Íslands séu í öruggum höndum, þrátt fyrir stjórnmál Hvíta hússins.

    Viðtalið við Kristrúnu á Gímaldinu: https://gimaldid.is/kristrun-samfylkingin-hafdi-fjarlaegst-hinn-venjulega-islending/

    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  14. Skuggastríð, svartir listar og ógnin frá Rússlandi

    35 minEpisódio 79

    Í byrjun ágúst hæfði dróni með sprengiefni flutningavél á flugvellinum í Leipzig og þýsk stjórnvöld sögðu Rússa bera ábyrgð. Síðan þá höfum við ítrekað heyrt af svipuðum atvikum, nú síðast þegar rússnesk …

    Notas do episódio

    Í byrjun ágúst hæfði dróni með sprengiefni flutningavél á flugvellinum í Leipzig og þýsk stjórnvöld sögðu Rússa bera ábyrgð. Síðan þá höfum við ítrekað heyrt af svipuðum atvikum, nú síðast þegar rússnesk flugvél rauf lofthelgi Finnlands. Evrópskar leyniþjónustur telja að ógnin frá Rússlandi sé komin á nýtt stig. Þótt Rússar hafi ekki lýst yfir stríði gegn neinu ríki Evrópusambandsins þá er Evrópa komin í einhvers konar skuggastríð. Vopnin eru ekki hefðbundin stríðstól heldur svartir listar, frysting eigna og efnahagsþvinganir.


    Aðalheiður Ámundadóttir stjórnmálaskýrandi Gímaldsins rýnir í svörtu listana, en á þeim eru ekki lengur bara ólígarkar og auðmenn heldur áhrifavaldar og álitsgjafar. Eyrún Magnúsdóttir stýrir þættinum.


    Meðal efnis:

    • Evrópusambandið samþykkti á dögunum að framlengja gildistíma á lista yfir 3.000 Rússa sem taldir eru ógna Evrópu.
    • Drónaárásin í Leipzig, lofthelgisbrot í Finnlandi og vaxandi fjölþáttaógnir í Evrópu
    • „Móðurlistinn“ frá 2014 með um 3.000 nöfnum og „áróðurslistinn“ frá 2024 með rúmlega hundrað nöfnum
    • Hverjir eru á listunum og hverjir hafa losnað þaðan?
    • Neitunarvaldið og dramatíkin í Brussel í september, þegar listinn var framlengdur til þriggja ára gegn því að tveir menn færu af honum
    • Viðbrögð Úkraínu og krafan um að Vladimir Lisin og Vladimir Potanin fari á listann
    • Evrópa hlífir þeim sem hún þarf sjálf á að halda, stáli, nikkeli og palladíum
    • Fjölmiðlakonan Xenia Fedorova af RT France sett á áróðurslistann í september

    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  15. Verðtryggðu lánin sem aldrei lækka: Fréttaskýring á mannamáli

    52 minEpisódio 78

    Com Helga Björg Helgadóttir, Ragnhildur Þórðardóttir, Breki Karlsson, Ásta Jenný Sigurðardóttir, Kristján Rúnar Kristjánsson e Benedikt Gíslason

    Ert þú lántakandi á verðtryggðu láni með stökkbreyttan höfuðstól eftir þráláta verðbólgu síðustu ár og viltu skilja af hverju það hækkar bara og hækkar? Veltirðu fyrir þér hvenær og hvernig verðtryggða lánið …

    Notas do episódio

    Ert þú lántakandi á verðtryggðu láni með stökkbreyttan höfuðstól eftir þráláta verðbólgu síðustu ár og viltu skilja af hverju það hækkar bara og hækkar? Veltirðu fyrir þér hvenær og hvernig verðtryggða lánið þitt lækkar einhvern tímann? Í þessari umfjöllun er útskýrt á mannamáli hvernig síhækkandi vísitala hefur langvarandi áhrif á höfuðstól verðtryggðra lána, hvernig þau eru reiknuð og hvað þarf til að þau lækki. Þá eru borin saman lánakjör hér á landi og í Danmörku með tilliti til lánaforma og vaxtakjara.

    • Rætt er við Helgu Björgu Helgadóttur á 68. aldursári sem hugar brátt að starfslokum. Hún keypti íbúð árið 2005 í Norðlingaholti ásamt eiginmanni sínum. Þau endurfjármögnuðu fasteignalánin í Covid 2020 þegar vextir voru sögulega lágir.
    • Eftir þrálátt verðbólguskeið og hátt vaxtastig síðustu ár hafa verðtryggðu lánin á íbúð Helgu hækkað um 11 milljónir og greiðslubyrðin tvöfaldast.
    • Rætt er við Ragnhildi Þórðardóttur sálfræðing og heilsuáhrifavald betur þekkt sem Ragga nagli, sem hefur búið í Kaupmannahöfn síðan 2009 og keypti íbúð þar með hefðbundnu óverðtryggðu láni.
    • Kjör Helgu og Ragnhildar eru borin saman því munurinn er mikill. Á meðan 11 milljónir hafa hlaðist á höfuðstól verðtryggðu láni Helgu hefur Ragnhildur greitt niður 16 milljónir af sínu hefðbundna óverðtryggða láni í Danmörku.
    • Skýrt verður út fyrir fólki hvernig hin svokallaða vísitala neysluverðs þróast með hækkandi og lækkandi verðlagi á vörum og þjónustu sem við landsmenn kaupum og hvernig það hækkar eða lækkar lánin okkar.
    • Stærðfræðingur Ásta Jenný Sigurðardóttir útskýrir hvernig síhækkandi vísitala hækkar verðtryggð lán landsmanna og forstöðumaður hjá áhættustýringu Íslandsbanka útskýrir hvernig verðtryggðu lánin eru reiknuð með vísitöluhækkun.

    Viðmælendur í þættinum:

    Helga Björg Helgadóttir
    Ragnhildur Þórðardóttir
    Breki Karlsson
    Ásta Jenný Sigurðardóttir
    Kristján Rúnar Kristjánsson
    Bendikt Gíslason

    Handrit og dagskrárgerð: Helga Arnardóttir
    Hljóðvinnsla og tónlist: Bragi Þór Hinriksson
    Mynd: Pixabay

    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  16. Ólafur Þ: „Við erum Vestur-Evrópumeistarar í misvægi atkvæða“

    31 minEpisódio 77

    Com Ólafur Þ. Harðarson

    Ísland stendur verr að vígi en flest ríki Vestur-Evrópu þegar kemur að jöfnu atkvæðavægi, að mati Ólafs Þ. Harðarsonar, prófessors emeritus í stjórnmálafræði, sem leiddi starfshóp um breytingar á …

    Notas do episódio

    Ísland stendur verr að vígi en flest ríki Vestur-Evrópu þegar kemur að jöfnu atkvæðavægi, að mati Ólafs Þ. Harðarsonar, prófessors emeritus í stjórnmálafræði, sem leiddi starfshóp um breytingar á kosningakerfinu. Aðalheiður Ámundadóttir ræðir við hann um áhrif ójafns atkvæðavægis á stjórnmálin, um tillögur hópsins og möguleg áhrif þeirra.

    Hópurinn leggur til að 36 þingmenn verði kjördæmakjörnir, sex þingmenn úr hverju kjördæmanna sex. Hin 27 þingsætin verði jöfnunarsæti og þeim útdeilt til kjördæma í hlutfalli við tölu kjósenda á kjörskrá. Þá leggur hópurinn til að úthlutun jöfnunarsæta til einstakra kjördæmislista verði breytt svo hún verði stöðugri.

    Meðal efnis í þættinum:

    • Framsóknarflokkurinn hagnaðist mest á misvægi milli flokka á 20. öld. Árið 1931 fékk flokkurinn 36 prósent atkvæða en 58 prósent þingmanna.
    • Landsbyggðin nýtur forréttinda í atkvæðavægi á Íslandi og í Noregi en hefur enga aukamenn í Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Færeyjum og á Grænlandi.
    • Engin gögn sýni að hagur landsbyggðarinnar sé betri þar sem hún nýtur forréttinda í kosningakerfinu.
    • Ólafur segir áhyggjur af hagsmunum landsbyggðarinnar minna á þá fyrirgreiðslupólitík sem var allsráðandi á síðustu öld.
    • Hvert kjördæmi fengi sex kjördæmissæti og 27 jöfnunarsæti myndu skiptast á milli þeirra eftir íbúafjölda.
    • Norðausturkjördæmi fengi aðeins sex þingmenn en Kraginn fengi átján þingmenn.
    • Hringekja jöfnunarsæta á kosninganótt yrði minna vandamál með tillögum hópsins og uppákoma á borð við Borgarnesendurtalninguna 2021 endurtæki sig ekki.
    • Samfylkingin fékk þrjá þingmenn í kosningunum 2016, alla af landsbyggðinni, þótt flokkurinn hefði mest fylgi í Reykjavík. Tillögur hópsins hefðu breytt því.
    • Réttur til að greiða atkvæði til vara gæti komið í veg fyrir að atkvæði til smáflokka falli dauð. Hópurinn leggur það ekki til en bendir á þann möguleika.
    • Þingmenn hafa verið 63 frá 1987 og Ólafur telur mörg rök mæla með fjölgun þeirra, þótt hún sé óvinsæl.

    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

    Ljósmynd: Ragnar Visage/RÚV

  17. Þjóðin sem kann ekki að geyma leyndarmál

    41 minEpisódio 76

    Ísland þarf að ráða við það að vernda mikilvægar upplýsingar. Frumvarp um ný öryggislög verður lagt fram í vetur í því skyni að aðrar þjóðir viti hver hefur hvaða öryggisvottun á okkar her- og …

    Notas do episódio

    Ísland þarf að ráða við það að vernda mikilvægar upplýsingar. Frumvarp um ný öryggislög verður lagt fram í vetur í því skyni að aðrar þjóðir viti hver hefur hvaða öryggisvottun á okkar her- og leyniþjónustulausa landi. Þingstörf eru hafin eftir viðburðaríkt sumar og forystumenn stjórnarandstöðunnar setja sig í stellingar fyrir veturinn. Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir fara yfir fyrstu daga haustþingsins, þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar, stefnuræðu Ursulu von der Leyen og hugmynd nokkurra þingmanna um sjö ríkja bandalag við Norður-Atlantshaf sem inniheldur bæði Kanada og Bandaríkin.

    Meðal þess sem rætt er í þættinum:

    • Haustþingið fer rólegar af stað en boðað var. Harkan sem búist var við af stjórnarandstöðunni eftir þjóðaratkvæðagreiðslu lætur bíða eftir sér.
    • Stemningin við stefnuræðuna, harðari tónn Þorgerðar Katrínar, ummælin um AfD og strengurinn milli valkyrjanna þriggja.
    • Þingmálaskráin inniheldur 153 mál, þar af 127 lagafrumvörp. Stiklað á stóru í þættinum og farið yfir valin þingmál.
    • Öryggisvottun á dagskrá þingsins. Ísland er herlaus þjóð sem kann ekki að geyma leyndarmál.
    • Tóbak, rafrettur og nikótínvörur sameinuð í einn lagabálk og sterk hagsmunaöfl munu beita sér gegn því.
    • Ráðherra virðist stefna að banni við hvalveiðum en segir það ekki beinum orðum.
    • Auknar heimildir lögreglu gegn skipulagðri brotastarfsemi, lengra gæsluvarðhald, húsleit án dómsúrskurðar og hvers vegna víðtækar heimildir verða að daglegu verklagi.
    • Einstaklingssniðin heilbrigðisþjónusta og erfðaupplýsingar. Hugtök á borð við gagnagrunnur og upplýst samþykki aftur á dagskrá
    • Nokkrir þingmenn hafa lagt fram tillögu um að Ísland hafi frumkvæði að því að mynda sjö ríkja fríverslunarbandalag við Norður-Atlantshaf og fái Bandaríkin, Bretland, Kanada, Grænland, Færeyjar og Noreg að borðinu.
    • Ræða Ursulu von der Leyen: Evrópa á krossgötum og enginn slaki gagnvart uppgangi öfgaafla.


    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  18. Ekkert óveðursský yfir Alþingi

    28 minEpisódio 75

    Com Þórunn Sveinbjarnardóttir

    Í fyrsta þætti Hálftímans, nýs þáttar Gímaldsins um stjórnmál, ræðir Aðalheiður Ámundadóttir við Þórunni Sveinbjarnardóttur, forseta Alþingis, um þingstörfin framundan. Þórunn kannast ekki við ófrið sem boðaður …

    Notas do episódio

    Í fyrsta þætti Hálftímans, nýs þáttar Gímaldsins um stjórnmál, ræðir Aðalheiður Ámundadóttir við Þórunni Sveinbjarnardóttur, forseta Alþingis, um þingstörfin framundan. Þórunn kannast ekki við ófrið sem boðaður hefur verið á haustþingi og finnur ekki fyrir honum innanhús á Alþingi. Hún ræðir hótanir og aðkast í garð þingmanna, starfið á Alþingi og hvernig hún býr sig undir erfiðar umræður í þinginu.

    Meðal efnis í þættinum:

    • Er óveðurský yfir Alþingi þetta haustið?
    • Hvernig forseti býr sig undir erfiðar umræður.
    • Ofstopi, hótanir og hatursorðræða gegn þingmönnum
    • Fram að jólum hefjast allir þingfundir á sama tíma, kl.13:30. Þetta er tilraun þingforseta til að gera þingið að betri vinnustað
    • Farið verður í saumana á þingsköpunum og gerð atlaga að breytingum ef vilji og skýr markmið eru fyrir hendi.
    • Fundarstjórn forseta: Stundum verða menn að fá að pústa.
    • Eru allir jafn áfram um að þingstörfin gangi vel?
    • Heimsókn þingforseta Úkraínu í ágúst og samstarf þingforseta.
    • Er Alþingi úrelt tæknilega séð?
    • Í lokin: þingstörf komandi viku og andlegt ástand flokkanna


    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  19. Margrét Einarsdóttir: „Ef við viljum vera aðilar að EES þá þurfum við að innleiða þessa bókun“

    28 minEpisódio 74

    Com Margrét Einarsdóttir

    Hvað gerist ef við klárum ekki að innleiða bókun 35? Margrét Einarsdóttir lagaprófessor og sérfræðingur Evrópurétti er í viðtali við Gímaldið og fer yfir þessa umtöluðu bókun. Umræður um Bókun 35 við EES …

    Notas do episódio

    Hvað gerist ef við klárum ekki að innleiða bókun 35? Margrét Einarsdóttir lagaprófessor og sérfræðingur Evrópurétti er í viðtali við Gímaldið og fer yfir þessa umtöluðu bókun. Umræður um Bókun 35 við EES – samninginn hafa verið fyrirferðarmiklar að undanförnu. Íslendingar hafa skuldbundið sig til að innleiða þessa bókun en ekki staðið við það.

    • Margrét segir mikilvægt að þingið innleiði Bókun 35 sem fyrst og segir málið ekki koma niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu við á nokkurn hátt. Hún telur afleiðingarnar alvarlegar verði það ekki gert. Þá stefni í að málið verði tekið fyrir í EFTA dómstólnum og hún segir nánast gefið að íslenska ríkið tapi því.
    • Ríkisstjórnin hyggst leggja fram frumvarp um innleiðingu bókunarinnar á þingi í þessum mánuði. Þetta verður í fjórða skipti sem frumvarpið er lagt fram, tvisvar sinnum hefur það dagað uppi í tíð núverandi ríkisstjórnar og einu sinni í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar, Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna.
    • Nú telja stjórnarflokkarnir brýnt að bókunin verði innleidd til að uppfylla skuldbindingar íslenska ríkisins gagnvart EES-samningnum. Hluti stjórnarandstöðunnar hefur gert tortryggilegt að þörf sé á lögfestingu Bókunar 35 og er útlit fyrir að einhver átök verði um það á þingi.
    • Í þættinum er farið yfir hvernig viðsnúningur í dómaframkvæmd Hæstaréttar Íslands síðustu ár hefur haft þau áhrif að nú er íslenska ríkið undir miklum þrýstingi að innleiða bókunina.

    Helga Arnardóttir hefur umsjón með þættinum.

  20. Aðalheiður Ámundadóttir: Skýrleiki í pólitíska glundroðanum

    33 minEpisódio 68

    Gímaldið er á fleygiferð. Sífellt fleiri hlusta og lesa, og við finnum fyrir vaxandi áhuga á því sem við höfum fram að færa. Núna í haust viljum við segja betur frá því sjálf fyrir hvað Gímaldið stendur, hvert …

    Notas do episódio

    Gímaldið er á fleygiferð. Sífellt fleiri hlusta og lesa, og við finnum fyrir vaxandi áhuga á því sem við höfum fram að færa. Núna í haust viljum við segja betur frá því sjálf fyrir hvað Gímaldið stendur, hvert við stefnum og hvers vegna. Af því tilefni verða birt hér á þessum vettvangi nokkur viðtöl sem við sem stöndum að Gímaldinu tökum hvert við annað.

    Í þessum þætti ræðir Eyrún Magnúsdóttir við samstarfskonu sína, Aðalheiði Ámundadóttur, stjórnmálaskýranda Gímaldsins. Aðalheiður er lögfræðimenntuð, starfaði um árabil sem blaðamaður og fréttastjóri á Fréttablaðinu, hefur kennt og stundað rannsóknir í lögfræði og starfað á Alþingi.
    Þær ræða hugmyndina á bak við Gímaldið, fjölmiðil sem vill hugsa fréttaflutning fyrst og fremst sem þjónustu við áskrifendur, frekar en kapphlaup um að vera fyrst með fréttirnar. Aðalheiður segir frá því hvers vegna áskriftarlíkanið skiptir svona miklu máli fyrir efnistök og fréttamat, hugmyndum sínum um Gímaldið sem samfélag með viðburðum, morgunkaffi og beinu samtali milli blaðamanna og lesenda. Loks ræðir hún áform fyrir pólitíska umfjöllun vetrarins: vikulegan þátt með viðtali og greiningu, reglulegan þingpistil og þróun fréttabréfs Gímaldsins.

    • Aðalheiður og Eyrún fundu fljótt samhljóm þegar þær fóru að ræða framtíð íslenskrar fjölmiðla
    • Þjónusta sem kjarni Gímaldsins: að hugsa umfjöllun út frá því hverju hún skilar lesandanum, ekki hv mörgum smellum hún skilar
    • Hvernig tekjumódel fjölmiðils, auglýsingar, styrktaraðilar eða áskrifendur, hefur bein áhrif á fréttamat og efnistök
    • Draumurinn um Gímaldið sem samfélag: viðburðir, morgunkaffi og milliliðalaust samtal milli blaðamanna og áskrifenda
    • Hvað varð um gömlu, líflegu Facebook-umræðuna á Íslandi og er hægt að endurskapa hana í minni og markvissari mynd?
    • Áform Aðalheiðar fyrir stjórnmálaumfjöllun vetrarins: vikulegur þáttur með viðtali og dýpri greiningu á einu máli
    • Reglulegur þingpistill sem gefur yfirsýn yfir stöðuna á Alþingi, stemningu og átök á bak við tjöldin
    • Af hverju erlend stjórnmál, sérstaklega í Evrópu, eru orðin órjúfanlegur hluti af umfjöllun um íslensk stjórnmál
    • Hvernig lesendur og áskrifendur geta haft beint samband við Aðalheiði og af hverju hún vill endilega heyra frá þeim

    Hefur þú ábendingu eða skoðun á því sem Aðalheiður fer yfir í þessum þætti? Sendu henni línu á [email protected] — eða almennar ábendingar á [email protected].


  21. Pólitísk ábyrgð og eftirmál baráttunnar

    30 minEpisódio 73

    Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir gera upp þjóðaratkvæðagreiðsluna, aðdraganda hennar og möguleg eftirmál. Þær rýna í hliðstæðurnar við Brexit, baráttuaðferðir fylkinganna, pólitíska ábyrgð í …

    Notas do episódio

    Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir gera upp þjóðaratkvæðagreiðsluna, aðdraganda hennar og möguleg eftirmál. Þær rýna í hliðstæðurnar við Brexit, baráttuaðferðir fylkinganna, pólitíska ábyrgð í kjölfar niðurstöðunnar og allt sem ekki má gleymast í uppgjöri umræðunnar.

    Umræðuefni og spurningar sem varpað er fram í þættinum:

    • Á Kristrún að henda inn handklæðinu og skilja stjórnarandstöðuna eftir í súpunni?
    • Báðar hreyfingarnar sitja uppi með niðurstöðuna. Hver þarf að axla ábyrgð og á hverju?
    • Tilheyrir upplýsingaóreiða einhverju tómarúmi sem enginn ber ábyrgð á?
    • Áfram Ísland hafði Brexit-handbókina á náttborðinu, en gleymdi SJÁ að læra af reynslunni?
    • Evrópusinnar vanmátu tilfinningarnar og klikkuðu á samtakamættinum.
    • Hvað má læra af baráttu Áfram Ísland?
    • Hvernig verða herferðirnar gerðar upp og hvað við lærum af því að elta peningana?
    • Hvað getum við sótt í smiðju Brexit um uppgjör umræðunnar og þátt fjölmiðla?
    • Hvernig mótast viðhorf unga fólksins sem sveiflaðist til og frá í könnunum?
    • Hverfa Evrópumálin nú ofan í skúffu eða eru þau komin til að vera?
    • Eru ræðuhöld aftur komin í tísku?


    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  22. Brexit stundin runnin upp

    42 minEpisódio 72

    Íslenska þjóðin tekst á við fjórðu þjóðaratkvæðagreiðsluna á þessari öld á laugardag. Umræðan hefur verið bæði góð og slæm, en núna á lokasprettinum er ljóst að Brexit-augnablikið er runnið upp. Ósönnum …

    Notas do episódio

    Íslenska þjóðin tekst á við fjórðu þjóðaratkvæðagreiðsluna á þessari öld á laugardag. Umræðan hefur verið bæði góð og slæm, en núna á lokasprettinum er ljóst að Brexit-augnablikið er runnið upp. Ósönnum fullyrðingum er haldið á lofti sem aldrei fyrr. Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir og Helga Arnardóttir fara yfir stöðuna á lokaspretti baráttunnar. Þær ræða kappræður, skoðanakannanirnar, baráttuaðferðir, upplýsingaóreiðuna og lygarnar og ábyrgðarleysið sem fylgir þjóðaratkvæðagreiðslum.

    • Engin könnun hefur sýnt marktækan eða afgerandi mun á fylkingum.
    • Niðurstaðan mun ráðast á lokametrunum og því hverjir mæta á kjörstað.
    • Kappræðurnar á RÚV skorti staðreyndavöktun en Kristrún tók hana að sér.
    • Sólveig Anna með nýja sýn á stéttamun í íslensku samfélagi.
    • Aldrei fyrr verið logið jafn mikið um orkumál.
    • Ábyrgðarleysið er kerfisgalli þjóðaratkvæðagreiðslna: hver svarar fyrir lygarnar á sunnudaginn?
    • Geta samfélagsmiðlar talist vettvangur lýðræðis af því allir hafa míkrófón?
    • Er þjóðaratkvæðagreiðslan sjálf ef til vill ólýðræðisleg í eðli sínu?
    • Bankastjóri Arion banka segir verðtrygginguna úrelta og lánasambandið óheilbrigt.
    • Sama hvernig fer á laugardag: neytendamál, matarverð og vextir eru komin á kortið

    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

    Athugið að í upphafi fór röng hljóðskrá inn en henni var skipt út eftir nokkrar mínútur. Hljóð í upphafi eldri hljóðskrár var brotið, við biðjumst velvirðingar á því.

  23. Benedikt Gíslason: Áhættan öll hjá þeim sem tekur verðtryggða lánið en lánveitandinn varinn

    35 minEpisódio 71

    Com Benedikt Gíslason

    Verðtryggingin er úrelt og barn síns tíma segir Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka sem telur hana flækja allan bankarekstur og vill draga verulega úr vægi hennar, jafnvel afnema að fullu. Hann segir …

    Notas do episódio

    Verðtryggingin er úrelt og barn síns tíma segir Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka sem telur hana flækja allan bankarekstur og vill draga verulega úr vægi hennar, jafnvel afnema að fullu. Hann segir þráláta verðbólgu afleiðingu þess að bankarnir geri upp í tveimur myntum, óverðtryggðum og verðtryggðum. Áhættan sé alfarið sett á lántakann en ekki lánveitandann og henni sé dreift ójafnt á milli kynslóða. Benedikt telur margt geta breyst við upptöku evru í íslensku lána umhverfi en segir sorglegt að við getum ekki tekið ákvörðun um afnám verðtryggingar sjálf því öll skilyrði fyrir því séu til staðar og aðstæður í íslensku efnahagskerfið séu verulega breyttar frá því verðtryggingin var sett árið 1979.


    Helga Arnardóttir ræddi við Benedikt Gíslason.


    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  24. Já-ið yrði innblástur fyrir Norðmenn

    33 minEpisódio 70

    Com Herdís Sigurgrímsdóttir

    Herdís Sigurgrímsdóttir stjórnmálafræðingur bjó um árabil í Noregi og hefur fylgst grannt með umfjöllun um íslensku þjóðaratkvæðagreiðsluna þar í landi. Sú umræða fer ekki endilega fram á kaffistofum en …

    Notas do episódio

    Herdís Sigurgrímsdóttir stjórnmálafræðingur bjó um árabil í Noregi og hefur fylgst grannt með umfjöllun um íslensku þjóðaratkvæðagreiðsluna þar í landi. Sú umræða fer ekki endilega fram á kaffistofum en stjórnkerfið, einkum norska utanríkisráðuneytið, setur sig í stellingar fyrir niðurstöðuna. Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Herdísi um stöðuna í norskri pólitík og um það hvort Norðmenn eru eitthvað að pæla í þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi og hvaða áhrif hún gæti haft.

    Meðal þess sem rætt er í þættinum:

    • Forsætisráðherra og utanríkisráðherra Noregs vilja ganga í Evrópusambandið, en frumkvæði að samtali um það yrði að koma frá grasrót Verkamannaflokksins
    • Evrópumálin hafa legið í láginni undanfarin ár en merki eru um að aukinn áhugi sé að myndast
    • Tollar á járnblendi hreyfðu við umræðu um stöðu EES-samningsins
    • Segi Íslendingar já í þjóðaratkvæðagreiðslu verður það klárlega innspýting og innblástur fyrir Norðmenn að fara inn í samtalið um framtíð EES og mögulega aðild að ESB
    • Í fyrsta skiptið síðan 1994 eru fleiri kjörnir fulltrúar opnir fyrir aðild og skoðanakannanir sýna breytingu meðal almennings
    • Verkamannaflokkurinn, flokkur forsætisráðherra, er klofinn í afstöðu til aðildar en Høyre, systurflokkur Sjálfstæðisflokksins, er yfirlýstur Evrópuflokkur
    • Noregur situr ekki við borðið þegar stærstu ákvarðanir um varnarmál eru teknar og það ergir stjórnmálamenn sem vilja meira vægi Norðmanna í þeim ákvörðunum, vægi sem ekki fæst með EES
    • Áhrifaleysi EES-samningsins hefur töluvert verið rætt í Noregi og sú staða sem upp gæti komið ef Noregur situr eftir í EES, bara með Lichtenstein – sem er á stærð við Kópavog

    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.


  25. Valdið og miðin: ESB, auðlindir og undanþágur

    53 minEpisódio 69

    Í nýrri álitsgerð þriggja prófessora í lögfræði við Háskólann í Reykjavík er fjallað um valdheimildir Evrópusambandsins og hvaðan þær koma, orkustefnu ESB, sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna, aðildarsamninga og …

    Notas do episódio

    Í nýrri álitsgerð þriggja prófessora í lögfræði við Háskólann í Reykjavík er fjallað um valdheimildir Evrópusambandsins og hvaðan þær koma, orkustefnu ESB, sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna, aðildarsamninga og aðildarviðræður. Svo eru rakin fjölmörg dæmi um undanþágur og sérlausnir sem ríki hafa samið um við ESB. Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir rýna í álitsgerðina sem snertir á mörgum af heitustu ágreiningsefnum sumarsins.

    Í þættinum er meðal annars fjallað um:

    • Hvaða reglur gilda um eignarréttindi innan ESB?
    • Getur Evrópusambandið búið til valdheimildir fyrir sjálft sig?
    • Hverju getur Evrópusambandið ráðið um auðlindir aðildarríkja?
    • Er þorskur þjóðarauðkenni?
    • Orkulöggjöfin er að mestu komin inn um EES, en heldur Ísland undanþágum sínum?
    • Getur ESB ákveðið að leggja sæstreng til Íslands?
    • Hvernig myndu þorskveiðar breytast ef Ísland gengi í ESB?
    • Hvað yrði um samninga Íslands um makrílinn, norsk-íslensku síldina og kolmunna?
    • Dönsku sumarhúsin, sænska snúsið, heimskautabændur og fiskimið Möltu - hvað kenna fordæmin um undanþágur?

    Álitsgerðina má lesa á vef Stjórnarráðsins en hana unnu þrír prófessorar við Háskólann í Reykjavík: Gunnar Þór Pétursson, Hafsteinn Dan Kristjánsson og Margrét Einarsdóttir.

    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  26. Akademíski armur Áfram Ísland og Brexit-bragur á lokasprettinum

    53 minEpisódio 67

    Hvenær er fundur fræðilegt innlegg í umræðu og hvenær er hann pólitískur áróðursfundur? Gímaldið hefur birt umfjöllun um fund nei- hreyfingarinnar Áfram Ísland með svissneskum lögfræðingi og fyrrverandi …

    Notas do episódio

    Hvenær er fundur fræðilegt innlegg í umræðu og hvenær er hann pólitískur áróðursfundur? Gímaldið hefur birt umfjöllun um fund nei- hreyfingarinnar Áfram Ísland með svissneskum lögfræðingi og fyrrverandi prófessor og dómara, Carl Baudenbacher, en sagan af einni lítilli bókun á sal innan Háskóla Íslands er með nokkrum ólíkindum svo ekki sé meira sagt, eins og rætt er um í þættinum.


    Tvær vikur eru í þjóðaratkvæðagreiðslu og ritstjórn Gímaldsins veltir fyrir sér stöðunni, næstu skrefum í baráttunni og hvaða tromp já og nei fylkingar eiga uppi í erminni á lokametrunum. Einnig: hverju tekur fólk mark á? hvaða upplýsingum er treystandi og er það virkilega þannig að fólk sé sent í heita potta gagngert til að veiða atkvæði?


    Helga Arnardóttir, Aðalheiður Ámundadóttir og Eyrún Magnúsdóttir sjá um þáttinn. Meðal efnis í þættinum:

    • Hátíðarsalur HÍ er eingöngu ætlaður viðburðum á vegum skólans sjálfs, Baudenbacher mátti tala hvar sem er annars staðar í húsnæði HÍ, honum var aldrei „úthýst".
    • Áfram Ísland hefði aldrei getað fengið Hátíðarsalinn. Þrír fyrrverandi og núverandi fræðimenn komu að þessari bókun, sem sögð var á vegum rannsóknarseturs sem hefur verið óvirkt í mörg ár og var skráð á rannsóknarverkefni sem tengist málinu ekki neitt.
    • Baudenbacher gagnrýndi rektor HÍ, utanríkisráðuneytið og RÚV fyrir fálæti í færslu á Linkedin eftir Íslandsförina, en eyddi svo þeim hluta færslunnar og skildi einungis þakkarorð eftir.
    • Skoðanakannanir sýna nokkuð jafna stöðu tveimur vikum fyrir atkvæðagreiðslu (51,5% já / 48,5% nei skv. Gallup), en óákveðnum fer fækkandi og afstaða fólks er að festast.
    • Umræðan er sögð hafa harðnað og líkjast Brexit, jafnvel hlutlausar upplýsingar eru afgreiddar sem áróður, og lítill markaður virðist fyrir dýpri, faglega umfjöllun úr þessu.
    • Stóru miðlarnir, einkum RÚV, hafa dregið úr efnislegri umfjöllun um kosti og galla aðildar. Tækifærið til að upplýsa þjóðina var í vor, ekki núna.
    • Lokasprettur beggja fylkinga mun líklega snúast um „maður á mann"-aðferð og að koma fólki á kjörstað fremur en nýjar upplýsingar
    • Fjármál hreyfinganna eru ógagnsæ og enginn veit hve miklu er eytt í kosningabaráttuna.
    • Nauðsynlegt að ná utan um hversu mikla frumvinnu fjölmiðlar vinna til að fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Full ástæða til að taka það saman að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu.

    Umfjöllun Gímaldsins má lesa hér: Fundurinn sem enginn sagðist halda og rannsóknarsetrin þrjú sem tengjast Áfram Ísland


    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  27. Formaður Vinstri grænna segir JÁ í ágúst

    50 minEpisódio 66

    Com Rósa Björk Brynjólfsdóttir

    Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, ætlar að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst, þótt flokkurinn sé formlega andvígur aðild að Evrópusambandinu. Samkvæmt könnunum ætlar yfirgnæfandi …

    Notas do episódio

    Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, ætlar að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst, þótt flokkurinn sé formlega andvígur aðild að Evrópusambandinu. Samkvæmt könnunum ætlar yfirgnæfandi meirihluti kjósenda flokksins að segja já í atkvæðagreiðslunni. Rósa Björk segir forystu flokksins verða að leggja við hlustir og bregðast við viðhorfsbreytingunni í flokknum.

    Aðalheiður Ámundadóttir ræðir við Rósu Björk um Evrópumálin, landsmálin, ríkisstjórnina, NATO, móralinn í flokknum og framtíðina.

    Meðal þess sem kemur fram í þættinum:

    • Formaðurinn vill halda dyrum opnum en ekki lokuðum.
    • Forystan þurfi að leggja við hlustir þegar rúm 93% kjósenda VG ætla að segja já samkvæmt nýrri könnun og um 65% eru hlynnt aðild.
    • Nokkrar kanónur í flokknum eru búnar að lýsa afstöðu sinni opinberlega. Svandís Svavarsdóttir fyrrverandi formaður ætlar að segja nei í ágúst, Stefán Pálsson starfar með Áfram Ísland og ungliðahreyfing flokksins starfar með ungum Sjálfstæðis- og Miðflokksmönnum í baráttu fyrir NEI.
    • Formaðurinn segir fjölbreyttar skoðanir endurspegla lýðræðislegan styrk hreyfingarinnar.
    • Lífskjör og staða alþjóðamála eigi stærstan þátt í viðhorfsbreytingu til ESB.
    • Áherslur VG þurfi að heyrast við samningaborðið verði viðræðum haldið áfram: náttúruvernd, auðlindir, hagsmunir bænda, sjávarútvegsmál, réttindi vinnandi fólks og viðbrögð við tækninýjungum.
    • Ríkisstjórnin hafi ekki haldið vel á málinu og Samfylkingin verið fjarverandi í kosningabaráttunni.
    • Ríkisstjórnin gagnrýnd fyrir virkjanablæti, aukið atvinnuleysi, lakan árangur í efnahagsmálum og fyrir að bregðast ekki nógu kröftuglega við útlendingaandúð.
    • NATO er að veikjast og ný bandalög gætu orðið til.
    • Vinstri græn hafa rætt mikið um fortíðina og átt í uppgjöri. Nú vill formaðurinn snúa sér og flokknum að framtíðinni.

    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  28. Lifir þjóðin ágúst af eða deyr hún úr leiðindum?

    1 h 1 minEpisódio 65

    Ritstjórn Gímaldsins tekur stöðuna á kosningabaráttunni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Rætt er um nýjustu skoðanakönnun, breytta taktík stjórnmálaflokkanna, fjármál og baráttuaðferðir já- og …

    Notas do episódio

    Ritstjórn Gímaldsins tekur stöðuna á kosningabaráttunni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Rætt er um nýjustu skoðanakönnun, breytta taktík stjórnmálaflokkanna, fjármál og baráttuaðferðir já- og nei-hreyfinganna, hvort þjóðin sé orðin þreytt á málinu og hvort þögn Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra í umræðunni sé skynsamleg.

    • Eitthvað er að klikka hjá Áfram Ísland því stuðningur við nei eykst ekkert.
    • Eldra fólk er að verða jákvæðara samkvæmt nýrri könnun á meðan tvær grímur renna á miðaldra fólk.
    • Rúm 93 prósent stuðningsmanna Vinstri grænna ætla að segja já í ágúst. Ungliðahreyfing og áhrifafólk í flokknum berst fyrir nei-hliðina.
    • Sjálfstæðisflokkurinn biður flokksfólk að „fylgja eftir“ vinum og vinnufélögum fram að kosningum. Aðferðin minnir á pólitíska eltihrella.
    • Hreyfingar sem þurfa ekki að gefa upp fjárframlög geta nú tekið við fé umfram það sem flokkar mega þiggja. Stjórnmálaflokkar hvetja fjársterka til að láta fé af hendi rakna.
    • Opnir fundir henta ekki öllum hreyfingum. Evrópuhreyfingin ætlar að beita maður á mann aðferðinni en Sjá stendur fyrir opnum fundum.
    • Kristrún Frostadóttir vill forðast mistök Davids Camerons og heldur sig til hlés.


    Eyrún Magnúsdóttir stýrir þættinum og með henni eru Aðalheiður Ámundadóttir, Erla Hlynsdóttir og Helga Arnardóttir.


    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að
    gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  29. Sér tækifæri fyrir landsbyggðina

    30 minEpisódio 64

    Com Reinhard Reynisson

    Reinhard Reynisson, sérfræðingur í byggðamálum, segir að ný eyjastefna Evrópusambandsins, sú fyrsta sinnar tegundar, geti reynst mikilvægt innlegg fyrir Ísland í hugsanlegum aðildarviðræðum. Hún taki …

    Notas do episódio

    Reinhard Reynisson, sérfræðingur í byggðamálum, segir að ný eyjastefna Evrópusambandsins, sú fyrsta sinnar tegundar, geti reynst mikilvægt innlegg fyrir Ísland í hugsanlegum aðildarviðræðum. Hún taki sérstaklega á aðstæðum sem eigi vel við íslenskan veruleika: einangrun, háum flutningskostnaði og litlum heimamörkuðum.

    Erla Hlynsdóttir ræðir við Reinhard um byggðamál í tengslum við fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Farið er yfir hvernig byggðastefna Evrópusambandsins virkar, hvaða sérkenni Íslands gætu skipt máli í hugsanlegum viðræðum og hvort byggðastefna ESB geti skapað tækifæri fyrir íslenska landsbyggð.

    Í þættinum kemur meðal annars fram:

    • Byggðamál eru ekki hefðbundinn málaflokkur heldur sjónarhorn sem á að tryggja jafnræði fólks óháð búsetu og hafa áhrif á stefnumótun á mörgum sviðum.
    • Reinhard bendir á að Ísland búi yfir ákveðinni sérstöðu og nefnir nýja eyjastefnu Evrópusambandsins sem dæmi um að sambandið sé að bregðast við sérstökum aðstæðum eyjasamfélaga.
    • Hann segir umræðuna um undanþágur oft villandi og telur í mörgum tilvikum fremur vera um að ræða eðlilega aðlögun reglna að ólíkum aðstæðum en eiginlegar undanþágur.
    • Að hans mati byggja íslensk byggðastefna og byggðastefna ESB á svipuðum grunnhugmyndum um að jafna stöðu byggða, þótt ESB leggi jafnframt ríka áherslu á að styðja þau svæði sem verði undir í samkeppni hins sameiginlega markaðar.
    • Reinhard telur líklegt að meiri andstaða við ESB á landsbyggðinni skýrist meðal annars af því að umræðan hafi að stórum hluta snúist um hagsmuni landbúnaðar og sjávarútvegs.
    • Hann segir ekki unnt að fullyrða fyrirfram um áhrif ESB-aðildar á íslenskan landbúnað eða aðrar atvinnugreinar. Slíkt mat verði fyrst trúverðugt þegar fyrir liggi samningur sem hægt sé að greina.
    • Reinhard nefnir Skotland sem dæmi um svæði sem hafi notið verulegs stuðnings úr byggðasjóðum ESB og segir jafnframt að Finnland, Svíþjóð og Írland séu þau ríki sem Íslendingar geti helst borið sig saman við þegar kemur að byggðamálum.
    • Hann segir umræðuna fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna þurfa meiri stillingu og jarðtengingu. Kosið verði í ágúst um hvort hefja eigi aðildarviðræður en ekki um endanlegan aðildarsamning, sem sé ekki til staðar.
    • Frá sjónarhóli byggðamála telur Reinhard að möguleg ESB-aðild geti skapað tækifæri fyrir íslenska landsbyggð, meðal annars með auknum stuðningi við atvinnuuppbyggingu, búsetu og fjölbreytt atvinnulíf í dreifbýli.

    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. (Reikningsupplýsingar: 0133-15-012265, kt. 490925-1040)

  30. „Skemmdarverk á lýðræðislegri umræðu“ – Gauti B. Eggertsson um staðreyndir og rangfærslur

    1 h 8 minEpisódio 63

    Com Gauti B. Eggertsson

    Gauti B. Eggertsson prófessor í hagfræði við Brown-háskóla í Bandaríkjunum segir það hafa verið hálfgerða tilviljun að hann fór að leggja sig fram um að leiðrétta rangfærslur í umræðu um Evrópumál og …

    Notas do episódio

    Gauti B. Eggertsson prófessor í hagfræði við Brown-háskóla í Bandaríkjunum segir það hafa verið hálfgerða tilviljun að hann fór að leggja sig fram um að leiðrétta rangfærslur í umræðu um Evrópumál og þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann hefur á undanförnum mánuðum birt greinar og útreikninga sem varpa ljósi á fullyrðingar í umræðunni sem ekki standast skoðun.

    Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Gauta um þessa staðreyndavöktun, sem fer mikið til fram á samfélagsmiðlum, og um ógnir við lýðræðislega umræðu.

    Í þættinum kemur meðal annars fram:

    • Ummæli Ólafs Ragnars um 25% atvinnuleysi ungmenna í Finnlandi byggja á misskilningi um mælingu atvinnuþátttöku. Hann gagnrýnir að slíkar upplýsingar séu bornar á borð fyrir fyrrverandi forseta og telur að Ólafur myndi aldrei fara viljandi með slíkar fleipur. Það sé illa gert að láta ungt fólk fá það á tilfinninguna að ef Ísland gengur í ESB verði erfitt að fá vinnu
    • Vaxtakjör almennings myndu klárlega batna við upptöku evru, enda eru raunvextir á Íslandi þeir hæstu í Evrópu. „Það er bara einfaldlega rangt“ að halda öðru fram, segir Gauti í viðtalinu
    • Gauti tekur dæmi um 60 milljóna króna húsnæðislán til 25 ára. Mánaðarlegar afborganir miðað við jafngreiðslulán væru 333.000 kr. á mánuði miðað við raunvexti á Íslandi en aðeins 220.000 kr. á evrusvæðinu. Alls fara 40 milljónir í vexti yfir lánstímann „í krónulandi“ en aðeins 6 milljónir „í evrulandi“ en hér má lesa grein Gauta um dæmið
    • Talan um að Ísland hafi aðeins tekið upp 13% af regluverki ESB er röng og byggir á að telja litla tilskipun um svínapest jafn þunga og heildar bankalöggjöf ESB
    • Fjölmiðlum ber ekki skylda til að gefa röngum og réttum upplýsingum jafnt vægi
    • „Ég vildi að Íslendingar myndu temja sér betra hóf í þjóðfélagsumræðu og sérstaklega bera virðingu fyrir því að stundum eru hlutirnir réttir og stundum eru rangir,“ segir Gauti
    • Gauti gagnrýnir „nýstárlegar kenningar“ um verðlag og segir engar deilur ríkja innan hagfræði um hvernig skilgreina beri verðlag. Tilraunir til að endurskilgreina verðlag sem hlutfall af tekjum snúi einfaldlega kaupmætti á hvolf og kalli það verðlag. Það sé eins og að segja að verðlag sé lægra á Seltjarnarnesi en í Reykjavík af því að fólk á Seltjarnarnesi sé með hærri laun
    • Hann segir vel hægt að rökstyðja það að vilja vera utan ESB, þótt hann sé ekki á þeirri skoðun. Rökstuðningur á báða bóga verði þó að byggja á staðreyndum
    • Hann segir afstöðu sína um að Ísland eigi að ganga í ESB grundvallast á fullveldi og varnar- og öryggismálum

    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. (Reikningsupplýsingar: 0133-15-012265, kt. 490925-1040)

Aqui estão os 40 episódios mais recentes de 107. Os mais antigos estão no feed do podcast.

Flekaskil

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Dagur B. Eggertsson · 31 episódios

Este podcast é seu?

Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.

Configurações

Exibição

Idioma

Define quais estações você vê primeiro na página inicial.

Histórico

As rádios e episódios ouvidos recentemente e suas últimas buscas ficam só neste navegador.

Avisos

Um aviso rápido quando um podcast que você segue tem um episódio novo. Desative podcasts individuais pelo sino na página deles.

Conta

Salve favoritos – no app e no site.

Atalhos de teclado

/
Abrir busca
Espaço
Reproduzir ou pausar
← →
No player: voltar 15 s, avançar 30 s (episódios) · na fileira: próximo bloco
↑ ↓
Na fileira: alvo dentro do bloco
Home / End
Na fileira: primeiro ou último bloco
Esc
Fechar janela ou menu
?
Esta visão geral
Tocando agora

Ir para a estação

A seguir

    Adicione episódios com “A seguir” – eles tocam depois do episódio atual.