
Demókratarnir sem geta breytt öllu
Notas do episódio
Þingkosningar standa fyrir dyrum í Bandaríkjunum. Úrslit þeirra munu ráða miklu um valdsvið Donalds Trump á síðari hluta kjörtímabils hans. Stríðsrekstur forsetans og tollastefna hefur komið verst niður í fylkjum sem venjulega styðja Repúblikana og í mörgum þeirra ríkir nú mikil spenna. Líklegt er talið að Demókratar gætu náð yfirhöndinni í báðum deildum Bandaríkjaþings. Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Aðalheiði Ámundadóttur um þýðingu kosninganna, hvað brennur helst á kjósendum og í hvaða fylkjum baráttan um öldungadeildina gæti ráðist.
- Óvinsælir ráðherrar gætu átt embættismissi yfir höfði sér vinni demókratar meirihluta í þinginu.
- Tapi Repúblikanar þinginu gæti áhersla forsetans á utanríkismál stóraukist.
- Hækkað verð á olíu og áburði bítur í helstu vígjum Repúblikana og gagnaver eru orðin kosningamál.
- Demókrati sem tapaði forkosningum í Michigan lýsir stuðningi við Repúblikana.
- Hófsemdarframbjóðandinn Jon Ossoff slær í gegn og er orðaður við forsetaframboð eftir óvænt flug í Georgíu.
- Forsetinn gagnrýnir útlit og klæðaburð eigin frambjóðanda í Texas en dáist að líkamsvexti flokksbróður síns í Ohio.
- Læknir sem stóð í málaferlum við 700 sjúklinga mætir presti í Kansas.
- Tveir Dan Sullivan eru á kjörseðlinum í Alaska.
- Systir Lindsey Graham berst fyrir sæti bróður síns í Suður-Karólínu.
- Norður-Karólína er líklegust til að falla til Demókrata.
Fjallað er um kosningabaráttuna og hvað er í húfi í tveimur greinum á vef Gímaldsins.
Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.