
Menningarvaktin
- Episódios
- 21
- Publicação
- quinzenal
- Último episódio
- 5 nov 2026
Sobre o podcast
Menningarvaktin er nýtt hlaðvarp á Vísi þar sem Símon Birgisson fær til sín góða gesti og fer yfir stóru málin í menningarlífi landsins. Menningarvaktin er ómissandi fyrir þá sem vilja heyra um bestu leiksýningarnar, heitustu kvikmyndirnar og tónleikarýni - beint frá einvala hópi gagnrýnenda Vísis. Fylgstu með Menningarvaktinni frá byrjun - hér á Vísi og öllum helstu hlaðvarpsveitum. Við erum á vaktinni fyrir þig.
Episódios 21
Menningarvaktin - Högg og Krummi Björgvinsson
Menningarvaktin fjallar um leikritið Högg í Þjóðleikhúsinu og Púðlusafnið í Tjarnarbíó. Jónas Sen segir frá tónleikum Queens of the Stone Age í Laugardalshöllinni og Ómar Úlfur rýnir í nýja plötu Krumma …
Notas do episódio
Menningarvaktin fjallar um leikritið Högg í Þjóðleikhúsinu og Púðlusafnið í Tjarnarbíó. Jónas Sen segir frá tónleikum Queens of the Stone Age í Laugardalshöllinni og Ómar Úlfur rýnir í nýja plötu Krumma Björgvinssonar Scavenger of Hope.Menningarvaktin - Djöflar og Teitur Magnússon
Í þriðja þætti Menningarvaktarinnar í vetur ræða þeir Símon Birgisson og Magnús Jochum Pálsson um leiksýninguna Djöfla sem nú er sýnd í Borgarleikhúsinu og hefur fengið misjafna dóma. Þær ræða einnig hina …
Notas do episódio
Í þriðja þætti Menningarvaktarinnar í vetur ræða þeir Símon Birgisson og Magnús Jochum Pálsson um leiksýninguna Djöfla sem nú er sýnd í Borgarleikhúsinu og hefur fengið misjafna dóma. Þær ræða einnig hina umdeildu kvikmynd Digger með Tom Cruise. Ómar Úlfur rýnir í nýjustu plötur þeirra Teits Magnússonar og bandaríska tónlistarmannsins Beck.Magnús Jochum og Valur Grettisson #17
Símon fékk þá Magnús Jochum og Val Grettisson til sín og þeir félagar fóru yfir það helsta í menningarlífinu þessa vikuna
Valur Grettisson og Ómar Úlfur #17
Menningarvaktin fer aftur af stað eftir sumarið. Símon og Valur fara yfir leikárið og Ómar Úlfur mætir með nokkar góðar plötur.
Magnús Jochum, Valur Grettisson og Bubbi Morthens #16
Blaðamennirnir Magnús Jochum og Valur Grettisson mættu til Símonar. Bubbi Morthens kom svo í skemmtilegt spjall um nýjustu plötuna sína.
Magnús Geir Þórðarson #15
Menningarvaktin er hlaðvarp um allt það helsta í íslenskri menningu. Í þætti #15 fær Símon Birgisson til sín Magnús Geir Þórðarson, Þjóðleikhússtjóra. Farið verður yfir hvað gerðist bak við tjöldin á …
Notas do episódio
Menningarvaktin er hlaðvarp um allt það helsta í íslenskri menningu. Í þætti #15 fær Símon Birgisson til sín Magnús Geir Þórðarson, Þjóðleikhússtjóra. Farið verður yfir hvað gerðist bak við tjöldin á leikvetrinum sem nú er að klárast en óhætt er að segja Þjóðleikhúsið hafi átt sýningar í ár sem hafa bæði vakið athygli og umtal. Óresteia sló í gegn hjá gagnrýnendum og áhorfendum og Ormstunga sannaði að söngleikir þurfa ekki endilega að koma tilbúnir frá útlöndum. Þjóðleikhúsið var einnig í umræðunni í tengslum við skipun óperustjóra en Þjóðaróperan svokallaða endaði í samruna við Þjóðleikhúsið sem verður því miðpunktur óperustarfsemi í landinu næstu árin.Egill Heiðar Anton Pálsson #14
Menningarvaktin er hlaðvarp um allt það helsta í íslenskri menningu. Í þætti #14 fær Símon Birgisson til sín Egil Heiðar Anton Pálsson, borgarleikhússtjóra. Farið verður yfir hvað gerðist bak við tjöldin á …
Notas do episódio
Menningarvaktin er hlaðvarp um allt það helsta í íslenskri menningu. Í þætti #14 fær Símon Birgisson til sín Egil Heiðar Anton Pálsson, borgarleikhússtjóra. Farið verður yfir hvað gerðist bak við tjöldin á leikvetrinum sem nú er að klárast en Egill var skipaður borgarleikhússtjóri síðasta vor og er þetta því fyrsta leikárið hans í þessu hlutverki; sýningar á borð við Moulin Rouge sem sló í gegn og svo Hamlet -ein umdeildasta leiksýning ársins.
Valur Grettisson, Magnús Jochum og Ómar Úlfur #13
Magnús Jochum Pálsson og Valur Grettisson fóru yfir sviðið og Ómar Úlfur mætti á plötuvaktina.
Magnús Jochum, Valur Grettisson og Trausti Júlíusson #12
Símon, Magnús Jochum og Valur fara um víðan völl. Í lok þáttar mætir Trausti Júlíusson og rýnir í nýútgefna jazzplötu.
Jónas Sen og Finnur Bjarnason #11
Velkomin á Menningarvaktina á Vísi. Hlaðvarp um allt það helsta í íslenskri menningu. Ég heiti Símon Birgisson og skrifa um leiklist á Vísi og hjá mér eru gestir þáttarins í dag - Jónas Sen tónlistargagnrýnandi …
Notas do episódio
Velkomin á Menningarvaktina á Vísi. Hlaðvarp um allt það helsta í íslenskri menningu. Ég heiti Símon Birgisson og skrifa um leiklist á Vísi og hjá mér eru gestir þáttarins í dag - Jónas Sen tónlistargagnrýnandi Vísis og Finnur Bjarnason óperusöngvari og nýráðinn Óperustjóri.
Tónlistin er undir nálinni hjá okkur í dag. á Finnur Bjarnason mun sitja fyrir svörum okkar á Menningarvaktina um hina nýju íslensku Óperu sem loksins er orðin að veruleika eftir miklar umræður og jafnvel deilur. Útvarpsmaðurinn Ómar Úlfur mætir til mín á Plötuvaktina með glænýja plötu hljómsveitarinnar Gorillaz þar sem Íslandsvinurinn Damon Albarn er í aðlhlutverki auk þess sem við ræðum um goðsögnina Magnús Eiríksson og nýútkomna safnplötu með hans bestu lögum.
Og Menningarvaktin kíkti á þýska kvikmyndahátíð um helgina í Bíó Paradís og við Jónas rýnum í myndina Köln75 þar sem jazzgoðsögnin Keith Jarret og sögufrægir tónleikar hans í Kölnarborg eru í aðalhlutverki
Magnús Jochum, Valur Grettisson og Trausti Júlíusson #10
Nýjar íslenskar kvikmyndir verða í aðalhlutverki í þessum þætti. Menningarvaktin skellti sér á frumsýningu stórmyndarinnar Röskun en framleiðendur myndarinnar hafa bent á að þetta sé eina íslenska kvikmyndin …
Notas do episódio
Nýjar íslenskar kvikmyndir verða í aðalhlutverki í þessum þætti. Menningarvaktin skellti sér á frumsýningu stórmyndarinnar Röskun en framleiðendur myndarinnar hafa bent á að þetta sé eina íslenska kvikmyndin fullfjármagnaða íslenska kvikmyndin á árinu. Röskun var hins vegar ekki eina íslenska kvikmyndin frumsýnd í vikunni - Menningarvaktin skellti sér í Bíó Paradís á myndina Dimmalimm - Returning to Lulu sem er einskonar hugarfóstur Mikaels Torfasonar rithöfunds og eiginkonu hans, Stefaníu Berndsen, leikkonu og tekin upp í Covid. Plötuvaktin verður svo á sínum stað en þar mun Trausti Júlíusson rýna í tvær glænýjar íslenskar plötur - Julia eftir Ásgeir Trausta og Spíru - endurkomuplötu Ólafar Arnalds.
Sigríður Jónsdóttir, Valur Grettisson og Ómar Úlfur #9
Gestir Menningarvaktarinnar eru Sigríður Jónsdóttir, leiklistargagrýnandi og sérfræðingur leikminjasafns Íslands, Valur Grettisson blaðamaður og Ómar Úlfur Eyþórsdóttir útvarpsmaður. Í þættinum er fjallað um …
Notas do episódio
Gestir Menningarvaktarinnar eru Sigríður Jónsdóttir, leiklistargagrýnandi og sérfræðingur leikminjasafns Íslands, Valur Grettisson blaðamaður og Ómar Úlfur Eyþórsdóttir útvarpsmaður. Í þættinum er fjallað um leiksýningarnar Ekki hugmynd í Borgarleikhúsinu og Bústaðinn í Tjarnarbíó. Við ræðum einnig hvaða lærdóm Þjóðleikhúsið getur dregið af velgengni Ormstungu og Óresteiu. Í seinni hluta þáttarins mætir Ómar Úlfur á vinylvaktina og við ræðum glænýja plötu Megadeth - síðustu plötu sveitarinnar og afmælisútgáfu plötunnar Geislavirkir með Utangarðsmönnum.Magnús Jochum og Jónas Sen #8
Gagnrýnendur Vísis þeir Magnús Jochum Pálsson og Jónas Sen voru gestir Símonar í Menningarvaktinni.
Katla Ársælsdóttir og Valur Grettisson #7
Í nýjasta þætti Menningarvaktarinnar fóru gestir Símonar Birgissonar - þau Katla Ársælsdóttir og Valur Grettisson yfir bestu og verstu sýningar ársins 2025.
Sólveig Arnarsdóttir - hátíðarviðtal #6
Leikkonan Sólveig Arnarsdóttir settist niður með Símoni Birgissyni og ræddi um ferilinn og lífið.
Kolbrún Bergþórsdóttir, Jakob Bjarnar og Valur Grettisson #5
Það er alvöru blaðamanna-tríó sem mætti í Menningarvaktina í þessari viku. Kolbrún Bergþórsdóttir, Jakob Bjarnar Grétarsson og Valur Grettisson ræddu menninguna í þaula.
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir og Magnús Jochum Pálsson #4
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, dagskrárgerðarkona á RÚV, og Magnús Jochum Pálsson, gagnrýnandi og blaðamaður, eru gestir Símonar Birgissonar þessa vikuna.
Jón Viðar Jónsson og Valur Grettisson #3
Jón Viðar Jónsson og Valur Grettisson settust niður með Símoni Birgissyni og ræddu meðal annars um um Hamlet í Borgarleikhúsinu og Jónsmessunæturdraum í Tjarnarbíói.
Magnús Jochum og Valur Grettisson #2
Blaðamennirnir Magnús Jochum Pálsson og Valur Grettisson settust niður með Símoni Birgissyni og fóru yfir það helsta á Menningarvaktinni.
Jónas Sen og Valur Grettisson #1
Í fyrsta þætti Menningarvaktarinnar fær Símon Birgisson þá Val Grettisson blaðamann og Jónas Sen tónlistargagnrýnanda Vísis í heimsókn. Stóru leikhúsin hafa sýnt spilin og rætt verður um fyrstu sýningar …
Notas do episódio
Í fyrsta þætti Menningarvaktarinnar fær Símon Birgisson þá Val Grettisson blaðamann og Jónas Sen tónlistargagnrýnanda Vísis í heimsókn. Stóru leikhúsin hafa sýnt spilin og rætt verður um fyrstu sýningar vetrarins - hvað hefur floppað og hvað hefur slegið í gegn? Menningarvaktin skellti sér svo á íslensku stórmyndina Eldarnir til að svara stóru spurningunni - er loksins komin alvöru íslensk stórslysamynd?
Menningarvaktin - Kynning
Menningarvaktin er nýtt hlaðvarp á Vísi þar sem Símon Birgisson fær til sín góða gesti og fer yfir stóru málin í menningarlífi landsins. Menningarvaktin er ómissandi fyrir þá sem vilja heyra um bestu …
Notas do episódio
Menningarvaktin er nýtt hlaðvarp á Vísi þar sem Símon Birgisson fær til sín góða gesti og fer yfir stóru málin í menningarlífi landsins. Menningarvaktin er ómissandi fyrir þá sem vilja heyra um bestu leiksýningarnar, heitustu kvikmyndirnar og tónleikarýni - beint frá einvala hópi gagnrýnenda Vísis. Fylgstu með Menningarvaktinni frá byrjun - hér á Vísi og öllum helstu hlaðvarpsveitum. Við erum á vaktinni fyrir þig.
Podcasts parecidos
Mais podcasts de Sociedade e culturaEste podcast é seu?
Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.







