
#30 - Ragnar Sigurðsson
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Ragnar Sigurðsson.
Ragnar flutti austur fyrir um 15 árum og hefur síðan komið víða við í atvinnulífi og samfélagsmálum á Austurlandi. Leiðin hefur legið í gegnum blaðamennsku, veitingarekstur, fyrirtækjarekstur og stjórnmál, en í gegnum allt þetta hefur áhuginn á samfélaginu og framtíð þess verið áberandi.
Við förum yfir hvernig það er að koma inn í nýtt samfélag, taka þátt í uppbyggingu þess og færa sig smám saman úr því að starfa á bak við tjöldin yfir í að taka ákvarðanir sem hafa áhrif á daglegt líf fólks.
Við ræðum meðal annars:
Flutninginn austur og hvernig Ragnar festi hér rætur.
Reynsluna af veitingarekstri og þeim áskorunum sem fylgja rekstri á landsbyggðinni.
Leiðina inn í stjórnmál og sveitarstjórn Fjarðabyggðar.
Ábyrgðina sem fylgir því að taka ákvarðanir sem ekki allir eru sammála.
Samstöðu sveitarfélaga og framtíðartækifæri Austurlands.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Þátturinn er í boði VÍS, Hjá Línu, River og Austurfréttar.