
Mjólkurhúsið
- Episódios
- 32
- Formato
- Série – ouça desde o começo
- Último episódio
- 13 nov 2026
Sobre o podcast
Mjólkurhúsið - samtöl á milli verka.
Í þessum þætti setjumst við niður og fáum að heyra sögu gestanna. Verkefnin, upphafið, áskoranir og það sem hefur gert ferðalagið þess virði.
Episódios 32
#31 - Herdís Gunnarsdóttir
Í þættinum í dag er gestur minn Herdís Magna Gunnarsdóttir. Herdís ólst upp á Egilsstaðabúinu. Eftir skóla gat hún komið við hjá afa sínum í fjósinu og svo gengið á æfingu eins og aðrir krakkar í bænum. Sextán …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Herdís Magna Gunnarsdóttir.
Herdís ólst upp á Egilsstaðabúinu. Eftir skóla gat hún komið við hjá afa sínum í fjósinu og svo gengið á æfingu eins og aðrir krakkar í bænum. Sextán ára fór hún norður í Menntaskólann á Akureyri og langaði að sjá meira af heiminum. Á þeim tíma var langt frá því sjálfgefið að hún ætti eftir að koma heim og taka við búinu.
Mig langaði að heyra hvernig það gerðist. Hvenær fer maður að hafa sitt að segja um það hvernig hlutirnir eru gerðir heima? Og hvernig er að vinna við hliðina á pabba sínum á meðan það er að breytast?
Við ræðum meðal annars:
– hvernig sveitin og bærinn runnu saman í æsku hennar
– árið í viðskiptafræði og hvað fékk hana til að leita aftur í landbúnaðinn
– hvernig ábyrgðin á búinu færðist smám saman milli kynslóða
– hvað það tekur á að missa kýr sem maður hefur annast árum samanMjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Þátturinn er í boði VÍS, Hjá Línu, M Fitness og Austurfréttar.
#30 - Ragnar Sigurðsson
Í þættinum í dag er gestur minn Ragnar Sigurðsson. Ragnar flutti austur fyrir um 15 árum og hefur síðan komið víða við í atvinnulífi og samfélagsmálum á Austurlandi. Leiðin hefur legið í gegnum blaðamennsku …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Ragnar Sigurðsson.
Ragnar flutti austur fyrir um 15 árum og hefur síðan komið víða við í atvinnulífi og samfélagsmálum á Austurlandi. Leiðin hefur legið í gegnum blaðamennsku, veitingarekstur, fyrirtækjarekstur og stjórnmál, en í gegnum allt þetta hefur áhuginn á samfélaginu og framtíð þess verið áberandi.
Við förum yfir hvernig það er að koma inn í nýtt samfélag, taka þátt í uppbyggingu þess og færa sig smám saman úr því að starfa á bak við tjöldin yfir í að taka ákvarðanir sem hafa áhrif á daglegt líf fólks.
Við ræðum meðal annars:
Flutninginn austur og hvernig Ragnar festi hér rætur.
Reynsluna af veitingarekstri og þeim áskorunum sem fylgja rekstri á landsbyggðinni.
Leiðina inn í stjórnmál og sveitarstjórn Fjarðabyggðar.
Ábyrgðina sem fylgir því að taka ákvarðanir sem ekki allir eru sammála.
Samstöðu sveitarfélaga og framtíðartækifæri Austurlands.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Þátturinn er í boði VÍS, Hjá Línu, River og Austurfréttar.
#29 - Þorbjörg Ásbjörnsdóttir
Í þættinum í dag er gestur minn Þorbjörg Ásbjörnsdóttir, betur þekkt sem Obba. Leiðin austur tók á sig óvænta mynd hjá Obbu og fjölskyldu hennar. Síðan þá hefur lífið snúist um búskap, fjölskyldu og ýmis …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Þorbjörg Ásbjörnsdóttir, betur þekkt sem Obba.
Leiðin austur tók á sig óvænta mynd hjá Obbu og fjölskyldu hennar. Síðan þá hefur lífið snúist um búskap, fjölskyldu og ýmis verkefni sem hafa smám saman þróast í eitthvað meira. Obba hefur farið sínar eigin leiðir og ekki alltaf vitað fyrirfram hvert þær myndu liggja.
Í samtalinu kynnumst við líka persónulegri hlið á lífi hennar þegar hún segir frá reynslunni af því að vera fósturforeldri, áhrifunum á fjölskyldulífið og því sem börnin hafa kennt henni. Við förum einnig yfir hvernig það er að byggja upp litla matvælaframleiðslu, læra nýtt handverk og takast á við þær áskoranir sem því fylgja.
Við ræðum meðal annars:
Flutninginn austur og hvernig fjölskyldan fann sinn stað.
Geitabúskapinn og leiðina inn í ostagerð og mjólkurvinnslu.
Reynsluna af því að vera fósturforeldri og hvað hún hefur lært af börnunum.
Áskoranir smáframleiðenda, reglugerðir og aðstöðuna sem þarf til matvælaframleiðslu.
Samfélagið, samstarf og mikilvægi þess að styðja við það sem er framleitt í heimabyggð.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Þátturinn er í boði VÍS, Hjá Línu, M Fitness og Austurfréttar.
#28 – Einar Birgir Kristjánsson
Í þættinum í dag er gestur minn Einar Birgir Kristjánsson. Einar kom austur til að prófa eitt ár á togara. Það ár varð að áratugum og leiðin lá úr sjómennsku yfir í fyrirtækjarekstur þar sem fátt hefur verið …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Einar Birgir Kristjánsson.
Einar kom austur til að prófa eitt ár á togara. Það ár varð að áratugum og leiðin lá úr sjómennsku yfir í fyrirtækjarekstur þar sem fátt hefur verið alveg fyrirsjáanlegt.
Tandraberg hefur tekið á sig ýmsar myndir í gegnum tíðina. Sum verkefni gengu upp, önnur ekki og stundum þurfti einfaldlega að finna eitthvað nýtt að gera. Í dag snýst stór hluti starfseminnar um timbur, nýtingu hráefnis og verkefni sem Einar hefði líklega ekki séð fyrir þegar hann byrjaði.
Við ræðum meðal annars:
Hvernig eitt ár á togara varð að ævi á Austurlandi.
Upphaf Tandrabergs og verkefnin sem héldu rekstrinum gangandi.
Tilraunirnar sem gengu ekki og ákvarðanirnar sem þurfti að taka.
Brettaframleiðslu og möguleika íslensks timburs.
Viðarkol og hugmyndirnar sem Einar er enn að prófa.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Þátturinn er í boði VÍS, Hjá Línu, River og Austurfréttar.
#27 - Hlynur Bragason
Í þættinum í dag er gestur minn Hlynur Bragason. Hlynur, sem margir þekkja sem Hlyn Sæta, hóf skólaakstur fyrir Fellahrepp haustið 1990. Þá var hann 24 ára með eina Mitsubishi Rosa-rútu og hafði varla hugmynd …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Hlynur Bragason.
Hlynur, sem margir þekkja sem Hlyn Sæta, hóf skólaakstur fyrir Fellahrepp haustið 1990. Þá var hann 24 ára með eina Mitsubishi Rosa-rútu og hafði varla hugmynd um hvað þetta eina verkefni ætti eftir að verða stór hluti af lífi hans.
Síðan hefur margt breyst. Rúturnar urðu fleiri, verkefnin stærri og reksturinn teygði sig meðal annars til Reykjavíkur. En það sem hefur fylgt þessu öllu er ábyrgðin á fólkinu sem treystir á að komast leiðar sinnar.
Við ræðum meðal annars:
– Hvernig ein rúta og skólaakstur urðu að ævistarfi.
– Uppbyggingu rekstrarins, hópferðirnar og árin í Reykjavík.
– Ákvörðunina um að draga úr eigin akstri og einbeita sér að rekstrinum.
– Skólaakstur í aftakaveðrum og ábyrgðina á að taka ákvörðun um hvort sé fært.
– Sveitauppeldið, tilraunagleðina og verkefnin sem Hlynur hefur tekið sér fyrir hendur í gegnum tíðina.Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Þátturinn er í boði VÍS, Hjá Línu, M Fitness og Austurfréttar.
#26 - Sigurður Aðalsteinsson
Í þættinum í dag er gestur minn Sigurður Aðalsteinsson, eða Siggi, sem margir þekkja sem Veiðimeistarann. Siggi ólst upp á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal þar sem landið og náttúran voru ekki eitthvað sem maður fór …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Sigurður Aðalsteinsson, eða Siggi, sem margir þekkja sem Veiðimeistarann.
Siggi ólst upp á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal þar sem landið og náttúran voru ekki eitthvað sem maður fór sérstaklega út að skoða — þau voru einfaldlega hluti af hversdeginum. Sú reynsla fylgdi honum síðar inn í hreindýraveiðarnar, þar sem hann var meðal þeirra sem fóru snemma af stað í leiðsögn þegar nýtt fyrirkomulag veiðanna tók að mótast.
En samtalið fer líka aðra leið. Siggi hefur um áratugaskeið fylgst með samfélaginu sem fréttaritari og blaðamaður. Þegar þessir tveir heimar mætast kemur í ljós að þeir eiga ýmislegt sameiginlegt: að lesa aðstæður, þekkja fólk og byggja upp traust.
Við ræðum meðal annars:
– uppvöxtinn á Vaðbrekku og lífið langt inni í dal
– hvernig hreindýraleiðsögnin þróaðist og hvers vegna Siggi sá snemma tækifæri í henni
– hvernig hann les veiðimanninn áður en lagt er af stað
– leiðina inn í fréttamennsku og að segja frá litlu samfélagi
– reynsluna sem safnast á áratugum og hvað hann vill miðla áframMjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Þátturinn er í boði VÍS, Hjá Línu, M Fitness og Austurfréttar.
#25 - Hildur Bergsdóttir
Í þættinum í dag er gestur minn Hildur Bergsdóttir. Hildur er félagsráðgjafi að mennt en leiðin hennar í vinnu með fólki hefur sjaldnast haldið sig innan eins ákveðins ramma. Íþróttastarf, félagsráðgjöf …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Hildur Bergsdóttir.
Hildur er félagsráðgjafi að mennt en leiðin hennar í vinnu með fólki hefur sjaldnast haldið sig innan eins ákveðins ramma. Íþróttastarf, félagsráðgjöf, ungmennastarf, alþjóðleg verkefni og útivist hafa smám saman runnið saman — og með tímanum varð náttúran sjálf hluti af því hvernig hún vinnur með fólki.
Í samtalinu komum við meðal annars inn á hvernig Náttúruskólinn varð til úr hugmyndum og eldmóði, hvað getur gerst hjá börnum og ungu fólki þegar farið er út fyrir hefðbundið rými og hvers vegna Hildur telur að við gætum nýtt náttúruna miklu markvissar í vinnu með fólki.
Við ræðum meðal annars:
– hvernig Náttúruskólinn varð til við eldhúsborð
– að skapa tækifæri fyrir börn sem komast ekki sjálfkrafa út í náttúruna
– félagsráðgjöf utan hins hefðbundna viðtalsrýmis
– þegar börn og ungmenni fá tækifæri til að blómstra á öðrum vettvangi
– og hvers vegna Hildur virðist alltaf þurfa næstu áskorunMjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Þátturinn er í boði VÍS, Hjá Línu og Austurfréttar.
#24 - Jódís Skúladóttir
Í þættinum í dag er gestur minn Jódís Skúladóttir. Jódís segist hafa gengið með guðfræðinámið í maganum frá því hún var ung kona, en leiðin þangað varð allt önnur en hún hafði kannski séð fyrir sér. Í samtalinu …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Jódís Skúladóttir.
Jódís segist hafa gengið með guðfræðinámið í maganum frá því hún var ung kona, en leiðin þangað varð allt önnur en hún hafði kannski séð fyrir sér. Í samtalinu förum við frá trú, kirkju og samfélagi yfir í sögu þar sem ábyrgðin kom mjög snemma og lífið krafðist þess að hún yrði fullorðin áður en hún var í raun tilbúin til þess.
Þetta er meðal annars samtal um að eignast barn mjög ung, standa með sjálfri sér þegar barnið veikist, reyna að fóta sig í kerfum sem voru ekki gerð fyrir aðstæður hennar og hvernig miklar kröfur á sjálfa sig geta bæði borið mann áfram og tekið sinn toll.
Við ræðum meðal annars:
– hvers vegna guðfræðin togaði í hana árum saman
– samband hennar við kirkjuna og hugmyndina um að breyta stofnunum innanfrá
– að verða móðir mjög ung og taka ábyrgð á veiku barni
– nám, vinnu og fjármál þegar lítið svigrúm var til staðar
– kröfurnar sem hún gerði til sjálfrar sín og hvað þær kostuðuMjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Þátturinn er í boði VÍS, Hjá Línu og Austurfréttar.
#23 - Ásgrímur Ingi
Í þættinum í dag er gestur minn Ásgrímur Ingi. Ingi hefur farið ýmsar leiðir í gegnum lífið, sumar skipulagðar og aðrar sem urðu einfaldlega til vegna þess að hann sagði já þegar eitthvað áhugavert kom upp. Í …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Ásgrímur Ingi.
Ingi hefur farið ýmsar leiðir í gegnum lífið, sumar skipulagðar og aðrar sem urðu einfaldlega til vegna þess að hann sagði já þegar eitthvað áhugavert kom upp. Í samtalinu birtist aftur og aftur þessi vilji til að prófa sig áfram, taka sjálfan sig ekki of hátíðlega og treysta fólkinu í kringum sig.
Það leiðir okkur frá skólaárunum og litlum samfélögum yfir í skrif, fjölmiðla, kennslu og verkefni sem hafa orðið til þegar hópur fólks hefur ákveðið að láta hugmynd verða að veruleika.
Við ræðum meðal annars:
– litla skóla og hvað felst í því að stjórna þar sem allir þurfa stundum að ganga í verkin
– Eiða, félagslífið og hvernig góð aðstaða getur opnað nýjar leiðir
– að byrja að skrifa, gefa út ljóð og segja já við hlutum sem maður hafði ekki séð fyrir sér
– fréttamennskuna á Austurlandi á miklum breytingatímum
– Fjárðarborg, tónleikahald og kraftinn sem verður til þegar samfélag mætir og tekur þátt
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Þátturinn er í boði VÍS, Hjá Línu og Austurfréttar.
#22 - Viðar Örn Hafsteinsson
Í þættinum í dag er gestur minn Viðar Hafsteinsson. Við byrjum samtalið á íþróttahúsinu á Egilsstöðum, fólkinu sem þar er og því sem fær mann til að halda áfram að gefa tíma sinn í sama verkefnið ár eftir ár …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Viðar Hafsteinsson.
Við byrjum samtalið á íþróttahúsinu á Egilsstöðum, fólkinu sem þar er og því sem fær mann til að halda áfram að gefa tíma sinn í sama verkefnið ár eftir ár.
Við ræðum meðal annars:
– hvernig íþróttaáhuginn og þrjóskan fylgdu Viðari frá unga aldri
– hvernig hann neitaði fyrst að taka við meistaraflokki Hattar
– tengslin milli yngri flokka og meistaraflokks
– fólkið á bak við tjöldin sem heldur starfinu gangandi
– sjálfboðavinnu, samfélag og hvað við getum tapað ef allt þarf að vera launaðMjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Hlaðvarpið er í boði VÍS og Austurfrétt.
#21 - Þór Þorfinnsson
Í þættinum í dag er gestur minn Þór Þorfinnsson. Þór kom austur á Hallormsstað árið 1984, upphaflega aðeins til skamms tíma. En dvölin lengdist, staðurinn varð að heimili og starfið að ævistarfi. Í samtalinu …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Þór Þorfinnsson.
Þór kom austur á Hallormsstað árið 1984, upphaflega aðeins til skamms tíma. En dvölin lengdist, staðurinn varð að heimili og starfið að ævistarfi.
Í samtalinu lítum við bæði til baka og aðeins fram á við — yfir áratugi þar sem skógurinn hefur vaxið, viðhorf til skógræktar breyst og ákvarðanir sem teknar voru fyrir löngu eru fyrst núna orðnar sýnilegar.
Við ræðum meðal annars:
– hvernig nokkurra mánaða dvöl á Hallormsstað varð að ævistarfi
– leiðina úr sveitavinnu og skógræktarnámi í Noregi aftur heim til Íslands
– hvernig Hallormsstaðaskógur og íslensk skógrækt hafa breyst á fjórum áratugum
– að vinna við eitthvað þar sem árangurinn getur verið mannsaldur að koma í ljós
– starfslokin sem færast nær, fólkið sem verður saknað og það sem Þór vill klára áður en hann hættirMjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Hlaðvarpið er framleitt af U701 Studio í samstarfi við VÍS og Austurfrétt
#20 - Berglind Harpa
Í þættinum í dag er gestur minn Berglind Harpa. Berglind hefur lengi starfað í heilbrigðiskerfinu en síðustu ár hefur hún einnig tekið virkan þátt í sveitarstjórn og samfélagsmálum á Austurlandi. Í samtalinu …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Berglind Harpa.
Berglind hefur lengi starfað í heilbrigðiskerfinu en síðustu ár hefur hún einnig tekið virkan þátt í sveitarstjórn og samfélagsmálum á Austurlandi. Í samtalinu förum við frá uppvextinum í Hveragerði og leiðinni austur yfir í ábyrgðina sem fylgir því að stíga fram, taka ákvarðanir og reyna að hafa áhrif á samfélagið sem maður býr í.Við ræðum meðal annars:
- hvernig Austurland varð heimilið
- að stíga fram þrátt fyrir efann um hvort maður sé tilbúinn
- hvernig reynslan úr hjúkrun hefur fylgt Berglindi inn í samfélagsmálin
- heilbrigðisþjónustu og bráðaviðbragð á Austurlandi
- ábyrgðina sem fylgir opinberum hlutverkum og mikilvægi samtalsins við fólk
- jafnvægi, hvíld og það að kunna að stoppa aðeins
- hvað það getur gefið manni að leggja sitt af mörkum í samfélaginuMjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Hlaðvarpið er framleitt af U701 Studio í samstarfi við Austurfrétt. VÍS er samstarfsaðili Mjólkurhússins.#19 - Dagmar Ýr Stefánsdóttir
Í þættinum í dag er gestur minn Dagmar. Hún er Jökuldalsmær sem hefur farið úr sveitinni, í heimavist, nám, fjölmiðla, Alcoa, Austurbrú og inn í sveitarstjórnarmálin — en samtalið snýst ekki um ferilskrána …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Dagmar.
Hún er Jökuldalsmær sem hefur farið úr sveitinni, í heimavist, nám, fjölmiðla, Alcoa, Austurbrú og inn í sveitarstjórnarmálin — en samtalið snýst ekki um ferilskrána, heldur það sem mótar manneskjuna á leiðinni.Við ræðum meðal annars:
– uppvöxtinn á Jökuldal og frelsið í sveitinni
– heimavist, sjálfstæði og samkennd milli barna
– leiðina í fjölmiðlafræði, Akureyri og heim aftur austur
– vinnusiðferði, rætur, samfélag og ábyrgð
– Alcoa, Austurbrú og stærri myndina á Austurlandi
– samvinnu sveitarfélaga og framtíð byggðar á fjórðungnumMjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
#18 - Björgvin "Bubbi" Elísson
Í þættinum í dag er gestur minn Björgvin Elísson, oftast kallaður Bubbi. Bubbi hefur komið víða við í rekstri á Héraði og Austurlandi. Hann hefur rekið hellusteypu, Bón og púst, sinnt ræstingum, tekið við …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Björgvin Elísson, oftast kallaður Bubbi.
Bubbi hefur komið víða við í rekstri á Héraði og Austurlandi. Hann hefur rekið hellusteypu, Bón og púst, sinnt ræstingum, tekið við hárgreiðslustofu, byggt upp skiltagerð, stofnað Toppluti og rekur í dag Bara snilld í Fellabæ.
Við ræðum meðal annars:
– fyrstu skrefin í rekstri og hellusteypuna
– Bón og púst og hvernig þjónustan í kringum bíla þróaðist
– hvernig verkefni koma stundum bara inn um dyrnar
– hárgreiðslustofuna sem var „engan veginn á hans geira“
– skiltagerðina, Toppluti og hugsunina um að nýta hlutina
– Fellabæ, staðsetningu, verslun og rekstur dagsins í dagMjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
#17 - Garðar Valur
Í þættinum í dag er gestur minn Garðar Valur. Garðar er hluti af Austurnet á Egilsstöðum og hefur komið að fjölmörgum hugbúnaðar- og frumkvöðlaverkefnum sem hafa orðið til hér fyrir austan. Í samtalinu förum …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Garðar Valur.
Garðar er hluti af Austurnet á Egilsstöðum og hefur komið að fjölmörgum hugbúnaðar- og frumkvöðlaverkefnum sem hafa orðið til hér fyrir austan. Í samtalinu förum við yfir leiðina úr bankanum, í nám, í óvissuna og áfram inn í verkefni sem urðu stærri en kannski var séð fyrir í upphafi.Við ræðum meðal annars:
– tímann í Landsbankanum fyrir hrun og ákvörðunina að fara í tölvunarfræði
– upphaf Austurnets og fólkið í kringum fyrstu frumkvöðlaverkefnin
– Orlofsvefinn, AFL, Total og hvernig kerfi verða til í raunverulegu samstarfi
– kúluverkefni, Hlunnindi.is og hugmyndir sem fá að lifa áfram
– hvernig það er að reka hugbúnaðarfyrirtæki á EgilsstöðumMjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
#16 - Skúli Björn Gunnarsson
Í þættinum í dag er gestur minn Skúli Björn Gunnarsson. Skúli var forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri í 25 ár og hefur átt stóran þátt í að móta staðinn sem menningar-, fræða- og ferðamannastað á …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Skúli Björn Gunnarsson.
Skúli var forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri í 25 ár og hefur átt stóran þátt í að móta staðinn sem menningar-, fræða- og ferðamannastað á Austurlandi. Í samtalinu förum við yfir upphafið, söguna í húsinu, fólkið í kringum verkefnið og hvað það þýðir að kveðja starf sem hefur verið svo stór hluti af lífinu.Við ræðum meðal annars:
– hvernig Skriðuklaustur var byggt upp sem menningarstaður
– arfleifð Gunnars Gunnarssonar og hlutverk Gunnarsstofnunar
– fornleifauppgröftinn og miðaldaklaustrið
– ferðaþjónustu, heimamenn og menningu á AusturlandiMjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
#15 - Björt Sigfinnsdóttir
Í þættinum í dag er Björt Sigfinnsdóttir. Björt er listakona, tónlistarkona og ein þeirra sem hafa mótað menningarlífið á Seyðisfirði með djúpum og varanlegum hætti. Hún kom að uppbyggingu LungA, bæði …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er Björt Sigfinnsdóttir.
Björt er listakona, tónlistarkona og ein þeirra sem hafa mótað menningarlífið á Seyðisfirði með djúpum og varanlegum hætti. Hún kom að uppbyggingu LungA, bæði hátíðarinnar og síðar LungA skólans, og hefur í gegnum tíðina unnið með tónlist, list, verkefnastjórnun og samfélag á mörgum sviðum.
Í samtalinu ræðum við fyrstu skrefin í tónlistinni, hvernig LungA varð til, hvernig það er að byggja upp alþjóðlegt menningarverkefni í litlum bæ og hversu miklu máli fólkið í kringum verkin skiptir.
Við förum líka inn á öryggi, ábyrgð, samvinnu, menntun, tilfinninguna að finna sitt fólk — og hvernig list getur breytt stemningunni í heilu bæjarfélagi.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
#14 - Hildur Þórisdóttir
Í þættinum í dag er gestur minn Hildur Þórisdóttir. Hildur er Seyðfirðingur að eigin vali, fráfarandi sveitarstjórnarfulltrúi í Múlaþingi og manneskja sem hefur varið stórum hluta síðustu ára í að vinna fyrir …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Hildur Þórisdóttir.
Hildur er Seyðfirðingur að eigin vali, fráfarandi sveitarstjórnarfulltrúi í Múlaþingi og manneskja sem hefur varið stórum hluta síðustu ára í að vinna fyrir samfélagið sitt.Við ræðum meðal annars:
– hvernig Seyðisfjörður tók á móti henni sem unglingi
– miðbæinn, regnbogagötuna og gróskuna í litlu samfélagi
– fæðingu í ófærð og hvað hún segir okkur um samgöngur og öryggi
– tólf ár í sveitarstjórn, ástríðu, álag og ábyrgðMjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
#13 - Unnar Erlingsson
Í þættinum í dag er gestur minn Unnar Erlingsson. Unnar er grafískur hönnuður sem flutti austur með fjölskyldunni og byggði þar upp líf, tengsl og ný verkefni. Í samtalinu rifjum við upp fyrstu árin fyrir …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Unnar Erlingsson.
Unnar er grafískur hönnuður sem flutti austur með fjölskyldunni og byggði þar upp líf, tengsl og ný verkefni. Í samtalinu rifjum við upp fyrstu árin fyrir austan, hvernig hann fann sig í nýju samfélagi og hvernig lífið breyttist þegar veikindi komu inn á heimilið.Við ræðum meðal annars:
– flutninginn austur og fyrstu árin
– lífið sem grafískur hönnuður fyrir austan
– trú, samfélag og tengsl
– veikindi á heimili og hvernig þau breyttu ölluMjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
#12 - Alda Ósk Harðardóttir
Í þættinum í dag er gestur minn Alda Ósk. Hún er eigandi Snyrtistofu Öldu á Egilsstöðum, en umfram allt manneskja sem hefur byggt upp sitt eigið starf í nánu sambandi við fólk og staðinn sem hún kallar heim. Í …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Alda Ósk.
Hún er eigandi Snyrtistofu Öldu á Egilsstöðum, en umfram allt manneskja sem hefur byggt upp sitt eigið starf í nánu sambandi við fólk og staðinn sem hún kallar heim. Í þessu samtali ræðum við leiðina inn í snyrtifræðina, hvað það þýðir að fara ung í rekstur og hvernig þjónustustarf verður oft miklu mannlegra en fólk sér utan frá.Við ræðum meðal annars:
– uppvöxt á Egilsstöðum og tengslin við Austurland
– ljósaperu-augnablikið sem leiddi hana í snyrtifræðina
– stofnun Snyrtistofu Öldu árið 2007
– rekstur í gegnum góðæri, hrun og COVID
– mannleg tengsl í þjónustustarfi
– samfélagsþátttöku og framtíðarsýn fyrir EgilsstaðiMjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
#11 - Gréta "bókakaffi" Sigurjónsdóttir
Í þættinum í dag er gestur minn Gréta Jóna Sigurjónsdóttir. Hún er tónlistarkona, kennari og frumkvöðull sem hefur markað sín spor bæði í menningarlífi Austurlands og í daglegu samfélagi. Í samtalinu rifjum við …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Gréta Jóna Sigurjónsdóttir.
Hún er tónlistarkona, kennari og frumkvöðull sem hefur markað sín spor bæði í menningarlífi Austurlands og í daglegu samfélagi. Í samtalinu rifjum við upp tónlistina, Dúkkulísur, áföll, kennslu og hvernig hugmynd verður að stað sem fólk tengir við hlýju og nærveru.Við ræðum meðal annars:
– fyrstu skrefin í tónlist
– Dúkkulísur og hljómsveitalífið
– áföll og að halda áfram
– Bókakaffi og mikilvægi samkomustaðaMjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
#10 - Guðjón Sigmundsson
Í þættinum er gestur minn Guðjón Sigmundsson úr Vaski. Hann segir frá bernsku sinni, fyrstu starfsárunum og hvernig hann byggði upp rekstur með þjónustulund, útsjónarsemi og mikilli seiglu. Við ræðum meðal …
Notas do episódio
Í þættinum er gestur minn Guðjón Sigmundsson úr Vaski.
Hann segir frá bernsku sinni, fyrstu starfsárunum og hvernig hann byggði upp rekstur með þjónustulund, útsjónarsemi og mikilli seiglu.Við ræðum meðal annars:
– uppvöxt og skólaár á Austurlandi
– fyrstu störfin og vinnusiðferði
– uppbyggingu Vasks
– þjónustulund, lausnaleit og seiglu í rekstriMjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Hlaðvarpið er framleitt af U701 Studio í samstarfi við Austurfrétt.#9 - Kristdór (Kristó)
Í þættinum í dag er gestur minn Kristó. Hann hefur lengi verið eitt þekktasta andlit Dekkjahallarinnar á Austurlandi og byggt upp starfsemi sem margir á svæðinu þekkja vel. Í samtalinu rifjar hann upp hvernig …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Kristó.
Hann hefur lengi verið eitt þekktasta andlit Dekkjahallarinnar á Austurlandi og byggt upp starfsemi sem margir á svæðinu þekkja vel. Í samtalinu rifjar hann upp hvernig hann flutti ungur austur, hvernig reksturinn þróaðist og hvað hefur haldið honum gangandi í gegnum árin.Við ræðum meðal annars:
– upphafið í Dekkjahöllinni
– flutninginn austur og fyrstu árin
– bílaáhuga, dekk og mótorsport
– uppbyggingu á Austurlandi og áhrif stórframkvæmda
– þjónustu við kúnna og daglegt rekstrarlíf
– söluna á rekstrinum og hvað tekur viðMjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Hlaðvarpið er framleitt af U701 Studio í samstarfi við Austurfrétt.#8 - Auður Vala
Í þættinum í dag er Auður Vala. Auður hefur komið víða við í gegnum tíðina – meðal annars í íþróttum, ferðamálum og verkefnum þar sem metnaður og ábyrgð skipta miklu máli. Við ræðum meðal annars: – vinnuna sem …
Notas do episódio
Í þættinum í dag er Auður Vala.
Auður hefur komið víða við í gegnum tíðina – meðal annars í íþróttum, ferðamálum og verkefnum þar sem metnaður og ábyrgð skipta miklu máli.
Við ræðum meðal annars:
– vinnuna sem fólk sér ekki
– metnað og ábyrgð í starfi
– að fara „all in“ í verkefni
– rætur og tengsl við AusturlandMjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Þátturinn er framleiddur af U701 Studio í samstarfi við Austurfrétt.
#7 - Þorgeir Arason
Í þætti #7 í Mjólkurhúsinu setjumst við niður með Þorgeiri Arasyni, sem og konan hans komu fyrst austur árið 2008 og settust að á Egilsstöðum. Hann vígðist til prestsstarfa árið 2009 og hefur síðan þá starfað í …
Notas do episódio
Í þætti #7 í Mjólkurhúsinu setjumst við niður með Þorgeiri Arasyni, sem og konan hans komu fyrst austur árið 2008 og settust að á Egilsstöðum. Hann vígðist til prestsstarfa árið 2009 og hefur síðan þá starfað í samfélaginu.
Við ræðum aðflutning, sterkt samfélag og hvernig það er að ala upp börn á Egilsstöðum. Við förum inn í þjónustustarf prestsins og spyrjum: Lýkur vinnudeginum nokkurn tímann í slíku hlutverki? Eru mörkin á milli vinnu og heimilis skýr?
Við tölum einnig um fjölskyldulíf í kringum þjónustustarf, verkefnin sem starfið kallar á og þau sérverkefni sem hann sinnir um þessar mundir. Og við veltum fyrir okkur hvort og hvenær einstaklingur getur orðið ómissandi.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Unnið í samstarfi við Austurfrétt. 🎧#6 - Elín Káradóttir
Í þætti #6 í Mjólkurhúsinu setjumst við niður með Elínu Káradóttur og ræðum leið sem byrjaði í Hróarstungu á Austurlandi, lá suður, slysast til Hveragerðis — og endaði í fasteignasölu sem hún síðar keypti og …
Notas do episódio
Í þætti #6 í Mjólkurhúsinu setjumst við niður með Elínu Káradóttur og ræðum leið sem byrjaði í Hróarstungu á Austurlandi, lá suður, slysast til Hveragerðis — og endaði í fasteignasölu sem hún síðar keypti og byggði upp.
Við tölum um samfélag og rætur, grunnskólagönguna og hvernig tilviljanir verða stundum að stefnu. Elín segir frá því hvernig hún fór að selja eignir á Austurlandi á meðan lífið var fyrir sunnan — og hvernig það endaði með því að hún flutti aftur austur þegar börnin vildu koma heim.
Nú er hún á nýjum stað í ferlinu. Á næstu misserum opnar hún Hjá Línu, fyrstu lúgusjoppuna á Egilsstöðum í langan tíma.
Þessi þáttur er lengri en vanalega, en samtalið fékk einfaldlega að taka þann tíma sem það þurfti.
Mjólkurhúsið er unnið í samstarfi við Austurfrétt.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna. 🎧#5 - Davíð Kristinsson
Þáttur #5 – Davíð Kristinsson Í þessum þætti hittum við Davíð Kristinsson á Seyðisfirði og förum með honum aftur til Danmerkur, þar sem hann starfaði í næturlífinu og rak skemmtistaði í allt öðrum takti en …
Notas do episódio
Þáttur #5 – Davíð Kristinsson
Í þessum þætti hittum við Davíð Kristinsson á Seyðisfirði og förum með honum aftur til Danmerkur, þar sem hann starfaði í næturlífinu og rak skemmtistaði í allt öðrum takti en flestir þekkja.
Við ræðum hvernig það var að lifa og vinna í umhverfi sem krafðist hraða, ákvarðana og seiglu — og hvernig það var að snúa aftur heim til Íslands eftir þann kafla. Hvað breytist þegar tempóið hægist? Hvernig ber maður saman tvö samfélög sem virka á ólíkan hátt? Og hvernig endar maður á Seyðisfirði eftir svona ferðalag?
Þetta er samtal um heimkomu, umbreytingu og það að finna sinn stað — ekki bara landfræðilega, heldur í lífinu sjálfu.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið á bak við verkin — allt sem gerist á milli.
#4 – Díana Mjöll
þessum þætti ræðir Elí Þór við Díönu Mjöll, framkvæmdarstjóra og eiganda Tanni Travel — rútufyrirtækis og ferðaskrifstofu. Samtalið snýst um það að taka við fyrirtæki sem faðir hennar stofnaði og hvernig þau …
Notas do episódio
þessum þætti ræðir Elí Þór við Díönu Mjöll, framkvæmdarstjóra og eiganda Tanni Travel — rútufyrirtækis og ferðaskrifstofu.
Samtalið snýst um það að taka við fyrirtæki sem faðir hennar stofnaði og hvernig þau byggðu það upp áfram. Díana segir frá ábyrgðinni sem fylgir kynslóðaskiptum, breytingum í rekstri og því að móta sinn eigin sess innan fyrirtækis sem á sér langa sögu.
Þetta er samtal um fjölskyldurekstur, traust og hvernig vegferðin heldur áfram þegar keflið færist á milli kynslóða.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um samtöl á milli verka.
Um fólkið, ákvarðanirnar og allt það sem gerist þar á milli.#3 - Óskar Bjarnason
þessum þætti ræðir Elí Þór við Óskar Bjarnason, oftast kenndan við Bólholt. Óskar segir frá því hvernig hann endaði á Egilsstöðum og hvernig verkefnið Bólholt varð til. Samtalið fer yfir upphafið, aðdragandann …
Notas do episódio
þessum þætti ræðir Elí Þór við Óskar Bjarnason, oftast kenndan við Bólholt.
Óskar segir frá því hvernig hann endaði á Egilsstöðum og hvernig verkefnið Bólholt varð til. Samtalið fer yfir upphafið, aðdragandann og þær ákvarðanir sem leiddu verkefnið áfram, ásamt því að Óskar segir frá því sem hann fæst við í dag.
Þetta er samtal um staðsetningu, vegferð og hvernig hugmyndir taka á sig mynd þegar maður festir rætur og leyfir hlutunum að þróast.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um samtöl á milli verka.
Um fólkið, ákvarðanirnar og allt það sem gerist þar á milli.#2 - Sigrún Steindórsdóttir
þessum þætti ræðir Elí Þór við Sigrúnu Steindórsdóttur, sem rekur fyrirtækið Rammalausnir Sigrúnar. Sigrún segir frá því hvernig reksturinn byrjaði, hvernig hann hefur þróast og hvernig vegferðin hefur gengið í …
Notas do episódio
þessum þætti ræðir Elí Þór við Sigrúnu Steindórsdóttur, sem rekur fyrirtækið Rammalausnir Sigrúnar.
Sigrún segir frá því hvernig reksturinn byrjaði, hvernig hann hefur þróast og hvernig vegferðin hefur gengið í gegnum árin. Samtalið fer yfir ferðalagið frá því hún útskrifaðist í húsgagnasmíði árið 1993, lauk sveinsprófi árið 2009 og byggði upp eigið fyrirtæki skref fyrir skref.
Þetta er samtal um ferlið, þrautseigju og hvernig reynsla og tími móta bæði handverkið og reksturinn.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um samtöl á milli verka.
Um fólkið, ákvarðanirnar og allt það sem gerist þar á milli.
Podcasts parecidos
Mais podcasts de Sociedade e culturaEste podcast é seu?
Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.







