
#22 - Viðar Örn Hafsteinsson
Notas do episódio
Í þættinum í dag er gestur minn Viðar Hafsteinsson.
Við byrjum samtalið á íþróttahúsinu á Egilsstöðum, fólkinu sem þar er og því sem fær mann til að halda áfram að gefa tíma sinn í sama verkefnið ár eftir ár.
Við ræðum meðal annars:
– hvernig íþróttaáhuginn og þrjóskan fylgdu Viðari frá unga aldri
– hvernig hann neitaði fyrst að taka við meistaraflokki Hattar
– tengslin milli yngri flokka og meistaraflokks
– fólkið á bak við tjöldin sem heldur starfinu gangandi
– sjálfboðavinnu, samfélag og hvað við getum tapað ef allt þarf að vera launað
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Hlaðvarpið er í boði VÍS og Austurfrétt.