
Myrka Ísland
- Episódios
- 107
- Publicação
- semanal
- Último episódio
- 20 nov 2026
Sobre o podcast
Fyrir alla þá sem hafa gaman af hörmungum Íslandssögunnar, hvort sem það eru stórslys, morðmál, draugasögur, galdrar eða þjóðtrú.
Episódios 107
Útilegumannasaga
Íslendingar óttuðust lengi vel að blóðþyrstir útilegumenn leyndust í hellum og gjótum óbyggða, sem myndu af minnsta tilefni myrða saklausa ferðalanga. Um þetta spunnust margar sögur sem gengu manna á milli …
Notas do episódio
Íslendingar óttuðust lengi vel að blóðþyrstir útilegumenn leyndust í hellum og gjótum óbyggða, sem myndu af minnsta tilefni myrða saklausa ferðalanga. Um þetta spunnust margar sögur sem gengu manna á milli, þótt sannleiksgildi þeirra væri takmarkað. Anna og Svigrúm halda upp á heiði ásamt sautján piltum og einum gömlum ninja Kalli á leið til sjós. Við reynum að koma á nýjum tískubylgjum og biðjumst fyrirfram afsökunar á að heiðra Gísla á Uppsölum með lauslegum tilvitnunum.
Landpóstarnir
Önnu og Sigrúnu var boðið að taka upp þátt í Sögusetri íslenska hestsins að Hólum í Hjaltadal, í hópi góðri gesta. Af því tilefni tókum við að sjálfsögðu fyrir efni tengt íslenska hestinum en samt um …
Notas do episódio
Önnu og Sigrúnu var boðið að taka upp þátt í Sögusetri íslenska hestsins að Hólum í Hjaltadal, í hópi góðri gesta. Af því tilefni tókum við að sjálfsögðu fyrir efni tengt íslenska hestinum en samt um svaðilfarir og því urðu ferðir landpósta fyrir valinu. Menn sem lögðu sig í furðulegustu hættu við að koma auglýsingabæklingum alla leið! Við lærum ný orð, nýjar mælieiningar, landafræði, hneykslumst og dáumst að mönnum og hrossum, klippum jafnvel af þeim fingur.
Hallmundur og hellarnir
Við eigum afmæli! Af því tilefni heiðrum við uppruna okkar dreifbýlistúttanna og einbeitum okkur að uppsveitum Borgarfjarðar. Í þessum hundraðasta Myrka Íslands þættinum förum við ekki-jarðfræðingarnir yfir …
Notas do episódio
Við eigum afmæli! Af því tilefni heiðrum við uppruna okkar dreifbýlistúttanna og einbeitum okkur að uppsveitum Borgarfjarðar. Í þessum hundraðasta Myrka Íslands þættinum förum við ekki-jarðfræðingarnir yfir æsispennandi hraunbreiðuna Hallmundarhraun við Langjökul. Sagnfræði, kolefnimælingar, hellagerð, ferðamannabransi og goðafræði í bland við fornbókmenntir, þjóðfræði og aðrar lygasögur þar sem Surtur, Þór og heilmargir glæpamenn koma við sögu. Áhorfendur eru með okkur í notalegu Safnahúsi Borgarfjarðar og það er líklegt að nærvera þeirra hafi dregið úr útúrdúrum í umræðum okkar.
Morðabelgur
Því miður vill það brenna við að morð eru framin á okkar litlu eyju. Mjög góðar skráningar og heimildir eru um þetta leiðinda athæfi hér. Við skoðum tvö afar ólík morðmál sem þó ekki eru svo langt frá okkur í …
Notas do episódio
Því miður vill það brenna við að morð eru framin á okkar litlu eyju. Mjög góðar skráningar og heimildir eru um þetta leiðinda athæfi hér. Við skoðum tvö afar ólík morðmál sem þó ekki eru svo langt frá okkur í tíma. Annað er frá 1891, þar sem durgurinn Jón fer á kostum. Hitt málið er frá 1929, þar sem hlífðargleraugu, ferðamaður og enn einn Jóninn leikur aðalhlutverk. Hversu marga Jóna þarf til að skapa eina smáþjóð? Og hvernig er hægt að refsa fyrir morð? Enn sýnum við snilli okkar í landafræði, líffræði, prósentureikningi og ekki síst í skilningi á lengdar og breiddargráðum. En því meiri hljóta spæjarahæfileikar okkar að vera. Allt sem þarf er jú hattur og vindill? Sigrún átti afmæli við gerð þessa þáttar.
Fannbarið fé
Eitt af svakalegustu óveðrum síðari tíma skall á landinu haustið 2012 sem hefur því miður ekki hlotið neitt sögulegt sérnafn ennþá. Norð Austurland varð sérstaklega illa úti í þessari tveggja daga stórhríð og …
Notas do episódio
Eitt af svakalegustu óveðrum síðari tíma skall á landinu haustið 2012 sem hefur því miður ekki hlotið neitt sögulegt sérnafn ennþá. Norð Austurland varð sérstaklega illa úti í þessari tveggja daga stórhríð og mundu hvorki elstu menn, né veðurfræðingar þeirra aðra eins ofankomu að hausti. Svo óheppilega vildi til að fé var enn á fjalli og við tók þrotlaus vinna við að leita að og draga upp fé úr fönn. Við förum í gegnum veðurspár, rafmagnsleysi og hetjudáðir leitarfólks og öllum og óvörum, æsir Sigrún sig yfir landbúnaðarkerfinu. Við komumst að því að Anna er fimm ára barn sem eltist við eldingar og þurfti að lækna blóðsykursfall með malti í beinni útsendingu. Biðjumst velvirðingar á dálitlum hjóðtruflunum af ókunnum uppruna. Eflaust Jesús eitthvað að pönkast í okkur
Verbúðin Ísland
Anna mætir til leiks með rafsuðuhanska og hjálm til að verjast meintum músagangi í stúdíóinu. Fyrir utan allt annað sem við tölum um, var ætlunin að ræða aðallega um fiskveiðar Íslendinga fyrr á öldum. Verið …
Notas do episódio
Anna mætir til leiks með rafsuðuhanska og hjálm til að verjast meintum músagangi í stúdíóinu. Fyrir utan allt annað sem við tölum um, var ætlunin að ræða aðallega um fiskveiðar Íslendinga fyrr á öldum. Verið viðbúin að komast að uppruna ýmissa málshátta og orðatiltækja og hlusta á útúrdúra um formæður og krabbamein. Upp kemst að alhæfingar Sigrúnar um þorpamyndun á Íslandi, eigi alls ekki við rök að styðjast, því á þeim eru endalausar undantekningar. Hún veit heldur ekki úr hvaða borg Hansakaupmennirnir komu, hvað fólk á að borða á páskalaugardaginn, hvernig hægt er að eiga Vestmannaeyjar, hvernig orðin "matan" og "bösl" eru fallbeygð og hvernig í ósköpunum var lyktin inni í tólf manna verbúð? Og enn á ný berst talið að kristinfræðinni og Jesús! Því hann elskar okkur enn? Það er reyndar hæpið á þessum tímapunkti.
Af vandamálum presta
Nú er komið að því að við veitumst að þjóðkirkjunni fyrr og síðar! Ekki í fyrsta skipti reynar, en Sigrún sló saman í samtíningsþátt af því skemmtilegasta frá svokölluðum 17. og 18. aldar prestastefnum …
Notas do episódio
Nú er komið að því að við veitumst að þjóðkirkjunni fyrr og síðar! Ekki í fyrsta skipti reynar, en Sigrún sló saman í samtíningsþátt af því skemmtilegasta frá svokölluðum 17. og 18. aldar prestastefnum. Prestastefnur voru, og eru eflaust enn, einhverskonar samkomur vígðra presta (einnig kallað LARP) þar sem lagt var á ráðin um hvernig ætti að taka á ýmsum málum, sérstaklega siðferðismálum. Kirkjusókn, messuvín, kirkjubekkir, Vottar Jehóva, vandræðaprestar, hjónaskilnaðir, lýsingar hjóna, feðranir barna og stafabil þjóðskrár er meðal þess sem tekið verður fyrir. Hinir hreintrúuðu munu eflaust biðja fyrir okkar syndugu sálum.
Krunk, krunk hrafnar
Sigrún er krumma aðdáandi mikill og getur ekki staðist mátið að tala um hann í óratíma. Þessi ódrepandi Batman norðursins virðist geta lifað af kjarnorkuvetur á loftinu einu saman. Hann hefur lifað í nábýli við …
Notas do episódio
Sigrún er krumma aðdáandi mikill og getur ekki staðist mátið að tala um hann í óratíma. Þessi ódrepandi Batman norðursins virðist geta lifað af kjarnorkuvetur á loftinu einu saman. Hann hefur lifað í nábýli við okkur frá landnámi og af honum hafa sprottið ótal sögur og þjóðsagnaminni. Sumt er ágætlega skynsamlegt en annað virðist tóm vitleysa.
Úr snjóflóði
Saga dagsins gerist á fyrri hluta 20.aldar, í hinum stórmerkilegu Öræfum í Skaftafellssýslu og sögumaðurinn af merkum stofni. Eflaust náðum við að móðga alla sem þaðan eru ættaðir, minnst 12 ættliði aftur í …
Notas do episódio
Saga dagsins gerist á fyrri hluta 20.aldar, í hinum stórmerkilegu Öræfum í Skaftafellssýslu og sögumaðurinn af merkum stofni. Eflaust náðum við að móðga alla sem þaðan eru ættaðir, minnst 12 ættliði aftur í tímann. Ungur maður fór eitt sinn í eftirleit við annan mann í leit að sauðum í Breiðamerkurfjalli. En lenti fljótlega í sannkölluðum hremmingum sem töfðu verulega fyrir verkefninu. Við fáum smá innsýn inn í hugrenningar mannsins í einveru sinni og hvernig fór fyrir honum.
Þúsundkallinn Brynjólfur
Í Marvelheiminum/Íslandssögunni höfum við í ótal þáttum rekist á aðal stjörnu þáttarins; Sjálfan þúsundkallinn, Brynjólf Sveinsson, sem var biskup 1639-1674. Sigrún talar óvenju hratt og mikið, nánast þar til …
Notas do episódio
Í Marvelheiminum/Íslandssögunni höfum við í ótal þáttum rekist á aðal stjörnu þáttarins; Sjálfan þúsundkallinn, Brynjólf Sveinsson, sem var biskup 1639-1674. Sigrún talar óvenju hratt og mikið, nánast þar til röddin gefur sig. Nær engan vegin að halda sig við kirkjulegt efnið. Umræður fara um víða velli með viðkomu í spuna, manntölum, salsadansi, þrískiptingu valds, myrkfælni, njósnastarfsemi, legorðsskuldum, námstækni, lengd meðgöngu og peningaprentun. Efnið er tragískara en þáttastýra áætlaði var við fyrstu sýn.
Bárður Snjáfellsás
Sigrún fær munnræpu og býður upp á fáránlega langa spin off Íslendingasögu, sem vill eiginlega frekar vera ævintýri. Það er skömm að því að búa svo nálægt Snæfellsnesi og þekkja ekki þessa sögu …
Notas do episódio
Sigrún fær munnræpu og býður upp á fáránlega langa spin off Íslendingasögu, sem vill eiginlega frekar vera ævintýri. Það er skömm að því að búa svo nálægt Snæfellsnesi og þekkja ekki þessa sögu. Fjölskylduböndin eru á flækjustigi á pari við Bílastæðaverði Fóstbræðra og við sögu koma barnaperrar, vígahundar, galdramenn, gráðugir draugar, kristnisjúkir konungar og fjölmörg ný og skemmtileg orð í orðabankann. Konurnar spreyta sig á brotareikningi, sem hvorug er greinilega með meirapróf í.
Morð fyrir tvo
Sakamálaþáttur frá 18. öld! Hvað gerir stjórnandi ekki til að gleðja morðóða hlustendur? Lítt þekkt og nánast ónotað morð fannst við heimildauppgröft, þar sem grjóthella virðist helsti sökudólgurinn og …
Notas do episódio
Sakamálaþáttur frá 18. öld! Hvað gerir stjórnandi ekki til að gleðja morðóða hlustendur? Lítt þekkt og nánast ónotað morð fannst við heimildauppgröft, þar sem grjóthella virðist helsti sökudólgurinn og sögupersóna, hvort sem hún endaði í tveimur bútum eða sé enn í heilu lagi. Í Biskupstungunum var allavega heilmikið slúðrað um það sem virðist hafa verið nútímalegt hjónaband, og ótal margar útgáfur af sama atburðinum.
Auka þáttur! Ung, há, feig og ljóshærð, skrif Auðar Haralds
Myrka Íslandi var boðið að marinera sig í kvenréttingamálum í eina klukkustund og tóku því fegins hendi! Þemað var konur, réttindabarátta og bókmenntir. Sigrún kaus að ræða um sitt helsta átrúnaðargoð og …
Notas do episódio
Myrka Íslandi var boðið að marinera sig í kvenréttingamálum í eina klukkustund og tóku því fegins hendi! Þemað var konur, réttindabarátta og bókmenntir. Sigrún kaus að ræða um sitt helsta átrúnaðargoð og tótemdýr; Auði Haralds. Fyndnari og kaldhæðnari penna er erfitt að finna en hún gagnrýndi líka samtíma sinn og sagði frá sinni persónulegu reynslu sem féll oftar en ekki í grýttan jarðveg samborgaranna. Bækur hennar Hvunndagshetjan frá 1979 og Læknamafían frá 1980 segja frá reynsuheimi einstæðrar móður sem glímir við vandamál sem konur standa enn frammi fyrir, 50 árum síðar. Þátturinn var tekinn upp í Safnahúsi Borgarfjarðar ásamt prúðum áhorfendum og styrktur af Bókasafnssjóði.
Vesturfarar
Það er komið að síðasta þætti 9. seríu! Þar sem við förum yfir ferðir Íslendinga yfir Atlantshafið fyrir um 150 árum, ástæður þeirra og afdrif. Í leiðinni sendum við leiðréttingar út í alheiminn, gagnrýnum …
Notas do episódio
Það er komið að síðasta þætti 9. seríu! Þar sem við förum yfir ferðir Íslendinga yfir Atlantshafið fyrir um 150 árum, ástæður þeirra og afdrif. Í leiðinni sendum við leiðréttingar út í alheiminn, gagnrýnum sértrúarsöfnuði, breytum okkur í bæði jarð og veðurfræðinga, sönnum um leið að við erum hvorugt, íhugum heimþrá og þjóðerni og Sigrún óskar eftir ættingjum sem gætu hafa flust til Ameríku á laun.
Berklar
Það er komið að einni þrautseigustu og skæðustu pest síðari tíma. Margar kynslóðir Íslendinga voru haldnar mjög djúpstæðum ótta við berklana sem gátu gert fólk að sjúklingum um árabil eða að öryrkjum ævilangt …
Notas do episódio
Það er komið að einni þrautseigustu og skæðustu pest síðari tíma. Margar kynslóðir Íslendinga voru haldnar mjög djúpstæðum ótta við berklana sem gátu gert fólk að sjúklingum um árabil eða að öryrkjum ævilangt og fellt heilu fjölskyldurnar. Veðurguðirnir höfðu skoðanir á þessum þætti og gerðu sitt besta til að koma sér í útsendingu. Um miðbik þáttar þurftum við að færa Batmobile í betra skjól fyrir haust rigningunni. Boðskapur dagsins: alltaf að klára sýklalyfjaskammtinn sem þið fáið úthlutaðan! Við viljum ekki fara aftur í hrossalækningarnar
Vistarbandið; hið íslenska þrælahald?
Í ljósi messufalls síðustu viku, töluðum við tvöfalt í þessum þætti! Um vistarbandið ógurlega, þrælahald, evrópskt kóngafólk, fordæmingu á verslun, landbúnaðarsamfélagið, eilífðar baráttuna um ódýrt vinnuafl …
Notas do episódio
Í ljósi messufalls síðustu viku, töluðum við tvöfalt í þessum þætti! Um vistarbandið ógurlega, þrælahald, evrópskt kóngafólk, fordæmingu á verslun, landbúnaðarsamfélagið, eilífðar baráttuna um ódýrt vinnuafl, hörundssára bændastétt og æsilegar deilur um sjónvarpsþætti á Rúv. Nýyrði dagsins eru afbendismenn, skaufstofan og saurfíklar. Niðurstaðan er að samtal og endurmat á viðteknum söguskoðunum er bráðnauðsynleg öllum þjóðum, ekki síst gagnýni á krabbameinið sem hið kapítalíska, þjóðernissinnaða feðraveldi er! Eitt barn gleymdist við upptöku þessa þáttar.
Anna á Stóru Borg
Við elskum konur og ekki síst ef þær heita Anna! Tíminn eftir siðaskiptin einkenndust af miklum eldmóði í siðferðismálum á Íslandi. Sem hentaði Önnu á Stóruborg, hefðarkonu á 16.öld sem átti margar hurðir, afar …
Notas do episódio
Við elskum konur og ekki síst ef þær heita Anna! Tíminn eftir siðaskiptin einkenndust af miklum eldmóði í siðferðismálum á Íslandi. Sem hentaði Önnu á Stóruborg, hefðarkonu á 16.öld sem átti margar hurðir, afar illa. Þar sem sá maður sem henni hugnaðist að giftast var ekki henni samboðinn samkvæmt Páli bróður hennar. Sem varð til þess að þau systkinin hófu margara ára störukeppni þar sem hvorugt vildi gefa eftir, þrátt fyrir að sönnunargögnin hrúguðust upp.
Aftaka Jóns Arasonar
Langt og flókið mál en það er svo áhugavert og mikilvægt að langur þáttur gæti verið fyrirgefanlegur. Menn eru með frekju og dramaköst, klaga yfirmenn, stinga á sig jörðum, deyja úr fátækt, þröngva presta til …
Notas do episódio
Langt og flókið mál en það er svo áhugavert og mikilvægt að langur þáttur gæti verið fyrirgefanlegur. Menn eru með frekju og dramaköst, klaga yfirmenn, stinga á sig jörðum, deyja úr fátækt, þröngva presta til trúskipta, tala tungum, stunda byssubardaga í kirkjum og hanna almennt ljómandi gott handrit fyrir HBO þáttaraðir. Það er nú aldeilis gott að karlmenn eru skynsamir og stjórnast aldrei af tilfinningasemi. Meira snakk, meiri kirkjur! Anna er með dólg og læti við að búa til dúska í handavinnuhorninu enda beinn afkomandi biskupsdólgsins!
Fleiri hrakningar á heiðum
Hvað er þjóðlegra og napurlegra en að eigra einn síns liðs á íslenskri heiði? Sigrún er í það minnsta heilluð af slíkum sögum. Við förum til Skagafjarðar og fylgjumst með tveimur mönnum í eftirleitum á Hofs …
Notas do episódio
Hvað er þjóðlegra og napurlegra en að eigra einn síns liðs á íslenskri heiði? Sigrún er í það minnsta heilluð af slíkum sögum. Við förum til Skagafjarðar og fylgjumst með tveimur mönnum í eftirleitum á Hofs afrétt. Eða er það Hofsa frétt? Boðskapurinn er: ekki fara að heiman síma og nestislaus!
Spíritismi tekur land á Íslandi
Spíritismi er málefni sem Sigrúnu hefur lengi langað að ræða á einhvern hátt. Hún fann nokkrar sögur af yfirnáttúrulegri reynslu en efnið er svo víðfeðmt og það var svo langt síðan þær Anna hittust að þátturinn …
Notas do episódio
Spíritismi er málefni sem Sigrúnu hefur lengi langað að ræða á einhvern hátt. Hún fann nokkrar sögur af yfirnáttúrulegri reynslu en efnið er svo víðfeðmt og það var svo langt síðan þær Anna hittust að þátturinn varð óralangur því það gleymdist eiginlega að slökkva á upptökutækinu! Þið fáið því að heyra ýmislegt á bak við tjöldin en það er allt siðsamlegt og hollt tal um álfatrú, innri íhugun, andleg veikindi, legsteina, ferðamannastaði, hvað verður um Grindavík? Og börnin, er enginn að hugsa um börnin!?
Morð í Eyjum
Við grófum upp óþekkt dauðsfall! Næstum í útlöndum, því atburðurinn gerðist í Vestmannaeyjum. Undarlegt mál sem hlýtur að vera morð. Við sögu koma mektar menn, skítlegur Dani, grunsamlegar konur, íbitin epli …
Notas do episódio
Við grófum upp óþekkt dauðsfall! Næstum í útlöndum, því atburðurinn gerðist í Vestmannaeyjum. Undarlegt mál sem hlýtur að vera morð. Við sögu koma mektar menn, skítlegur Dani, grunsamlegar konur, íbitin epli, forvitnar klöguskjóður, sögusagnir og við pirrum okkur að vanda yfir spurningum sem enginn spurði við yfirheyrslur á fólki í denn.
Björn Jórsalafari
Hver elskar ekki að heyra að til hafi verið rosalega áhugaverð frásögn af ferðalagi en að hún sé því miður alveg týnd? Ekki Sigrún! Hún fær útundanótta af því að hafa misst af 600 ára gamalli ferðasögu. En er …
Notas do episódio
Hver elskar ekki að heyra að til hafi verið rosalega áhugaverð frásögn af ferðalagi en að hún sé því miður alveg týnd? Ekki Sigrún! Hún fær útundanótta af því að hafa misst af 600 ára gamalli ferðasögu. En er beinar heimildir þrýtur er alltaf hægt að fylla upp í með ágiskunum og klassískum skáldskap. Kannski er hún bara svona forvitin um sígillda upphafna ríkisbubba sem halda að þeir séu allra manna bestir? Sennilega af því að hana dreymir sjálfa um að dragnast með lútuspilandi sagnaskáld hvert sem hún fer.
Ljósufjöll
Árið er 1986. Þetta var á þeim árum þegar slys lítilla flugvéla voru allt of algeng og kröfðust margra mannslífa. Skoðum eitt af þessum hræðilegast slysum, þegar lítil vél fórst á leið sinni frá Ísafirði til …
Notas do episódio
Árið er 1986. Þetta var á þeim árum þegar slys lítilla flugvéla voru allt of algeng og kröfðust margra mannslífa. Skoðum eitt af þessum hræðilegast slysum, þegar lítil vél fórst á leið sinni frá Ísafirði til Reykjavíkur. Vegna ofsaveðurs voru björgunarstörf afar erfið en enn á ný sönnuðu björgunarsveitirnar gildi sitt í samfélaginu. Var einhverjum um að kenna að svona fór, hvernig voru siðferðisreglur blaðamanna, hvað er flugbrautasveitin og hversu margir búa eiginlega í Bolungavík?
Jörundur hundadagakonungur
Síðasti þátturinn í áttundu seríu fjallar um fjárglæframanninn, spilafíkilinn, skipstjórann, landkönnuðinn, fangann, landnemann, löggæslumanninn, túlkinn, njósnarann, umbótamanninn, kaupmanninn og síðast en …
Notas do episódio
Síðasti þátturinn í áttundu seríu fjallar um fjárglæframanninn, spilafíkilinn, skipstjórann, landkönnuðinn, fangann, landnemann, löggæslumanninn, túlkinn, njósnarann, umbótamanninn, kaupmanninn og síðast en ekki sísts, æðsta ráðamann Íslands, Jörgen Jörgensen! Þótt aldrei hefði hann reyndar kallaði sig konung yfir einu eða neinu.
Ferðalangurinn Guðríður Þorbjarnardóttir
Förum nánast til upphafs Íslandssögunnar að þessu sinni og kynnumst hinni víðförlu konu Guðríði Þorbjarnardóttur sem samkvæmt sögum ferðaðist um allan hinn þekkta heim víkingatímans; frá Vesturheimi til Rómar …
Notas do episódio
Förum nánast til upphafs Íslandssögunnar að þessu sinni og kynnumst hinni víðförlu konu Guðríði Þorbjarnardóttur sem samkvæmt sögum ferðaðist um allan hinn þekkta heim víkingatímans; frá Vesturheimi til Rómar. Sem er áhugavert út af fyrir sig. Enn áhugaverðara er hvernig hún hefur verið notuð til landkynninga og í þjóðernislegum áróðri. Jafnvel hægt að færa rök fyrir því að hún hafi verið tekin í nútímalega dýrðlingatölu.
Rammíslensk óveður
Enn köfum við í spurningalista Þjóðminjasafnsins sem eru hafsjór af frábærum heimildum. Í þessum þætti dugði mér þó að styðjast aðeins við einn sögumann, engan annan en Magnús frá Gilsbakka í Borgarfirði. Í …
Notas do episódio
Enn köfum við í spurningalista Þjóðminjasafnsins sem eru hafsjór af frábærum heimildum. Í þessum þætti dugði mér þó að styðjast aðeins við einn sögumann, engan annan en Magnús frá Gilsbakka í Borgarfirði. Í spurningalistanum "Hamfarir" skrásetti hann fjöldann allan af óveðrum á 20.öldinni sem all flestir Íslendingar fyrr og síðar, kannast við lýsingarnar á.. Það er komið að því að Sigrún móðgi eldri borgara af Boomer kynslóðinni.
Má ég eiga við þig morð?
Í miðjum Móðuharðindunum kom upp undarlegt mál á Suðurnesjum. Niðursetningurinn, og að okkar mati, breytingaskeiðskonan Elín tapaði lífi sínu við grunsamlegar aðstæður. Til að leysa úr málinu voru misgáfulegir …
Notas do episódio
Í miðjum Móðuharðindunum kom upp undarlegt mál á Suðurnesjum. Niðursetningurinn, og að okkar mati, breytingaskeiðskonan Elín tapaði lífi sínu við grunsamlegar aðstæður. Til að leysa úr málinu voru misgáfulegir menn sem gátu alls ekki orðið sammála um eitt eða neitt, enda blandaðir inn í klassíska, íslenska embættismannaflækju. Og hverjir liðu fyrir þá flækju aðrir en almúginn?
Sögur af söndum
Í sendnum fjörum Suðurlands má finna margar dularfullar sögur af yfirnáttúrulegum fótsporum og fyrirbærum. Þar fyrir utan býður þátturinn upp á heilmikinn haturspóst. Ekki aðeins vegna landafræði, heldur vegna …
Notas do episódio
Í sendnum fjörum Suðurlands má finna margar dularfullar sögur af yfirnáttúrulegum fótsporum og fyrirbærum. Þar fyrir utan býður þátturinn upp á heilmikinn haturspóst. Ekki aðeins vegna landafræði, heldur vegna mögulegra rangfærslna um vita og brýr landsins, að ógleymdri blessaðri málfræðinni. Það er af nógu að taka!
Galdra Imba
Erfiðar konur hafa löngum þótt óþægilegar og þá getur verið gott að saka þær um nornaskap. Svo var um Ingibjörgu nokkra Jónsdóttur sem var uppi á hinni stórhættulegu 17. öld. Eftir að maður hennar hafði verið …
Notas do episódio
Erfiðar konur hafa löngum þótt óþægilegar og þá getur verið gott að saka þær um nornaskap. Svo var um Ingibjörgu nokkra Jónsdóttur sem var uppi á hinni stórhættulegu 17. öld. Eftir að maður hennar hafði verið ásakaður um galdra, fluttist galdraorðið yfir á hana og spunnust um Imbu ótrúlegust þjóðsögur á meðan hún lifði.
Uppboð á Ströndum
Uppboð voru sorgleg og undarleg "skemmtun" í íslensku samfélagi áður fyrr. Við kíkjum á eitt þekkt uppboð ef svo má segja, af Kambi á Ströndum. Sem er ekki síst áhugavert vegna þess hversu vandræðalega stutt er …
Notas do episódio
Uppboð voru sorgleg og undarleg "skemmtun" í íslensku samfélagi áður fyrr. Við kíkjum á eitt þekkt uppboð ef svo má segja, af Kambi á Ströndum. Sem er ekki síst áhugavert vegna þess hversu vandræðalega stutt er síðan það gerðist. Gott er að vara við andkapítalísku reiðiranti þáttarstýru í lok þáttar. Gæti farið fyrir brjóstið á einhverjum hreintrúarsinna. Ég lofa þó hvorki bót né betrun á því sviði.
Aqui estão os 41 episódios mais recentes de 107. Os mais antigos estão no feed do podcast.
Podcasts parecidos
Mais podcasts de ComédiaEste podcast é seu?
Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.







