Pular para o conteúdo
Reglubókaklúbburinn
PodcastLazerJogos IS

Reglubókaklúbburinn

NovoÞáttur 18: Þriggja ríkja þorsti14 de novembro de 2026 · 2 h 3 min
Episódios
25
Publicação
mensal
Último episódio
14 nov 2026

Sobre o podcast

Regla Reglubókaklúbbsins samanstendur af Helga Má, Unni Helgu og Þorsteini Mar ásamt Ólafi Birni á upptökurúninni þar sem þau dæma bækur út frá kápunni en fara einnig djúpt í kjölinn á reglubókum spunaspila.

Episódios 25

  1. Þáttur 18: Þriggja ríkja þorsti

    2 h 3 min

    Endurnærð af ferskum nunnudreyra kemur Reglan sér saman ásamt góðvin þáttarins, honum Leó Páli til að svara hvort það sé í lagi að mergsjúga blóðið úr nasistum?Stutta svarið er: já, auðvitað en fylgir því …

    Notas do episódio

    Endurnærð af ferskum nunnudreyra kemur Reglan sér saman ásamt góðvin þáttarins, honum Leó Páli til að svara hvort það sé í lagi að mergsjúga blóðið úr nasistum?

    Stutta svarið er: já, auðvitað en fylgir því einnig góð umræða um spunaspilabókina "Eat the Reich" úr smiðju Rowan, Rook and Decard.


    Í hlekkjum Reglunnar

    "Eat the Reich" í vefverslun Nexus

    Spire RPG

    Heart: The City Beneath RPG

    Alice is Missing

    Pirate Borg RPG Starter Set

    Cortex Prime

    Rat Queens teiknimyndasögurnar í Nexus

    Vampire Playtestið fyrir næstu útgáfu af Skrúðleiknum

    Beilað á Necromunda RPG - Reddit þráður

    Clive Barker's HELLRAISER RPG

    Folklorists eftir Pedro Ziviani (2027)

    Tapestry: Age of Conquest til sölu í The British Museum

    Discworld - Adventures in Ankh-Morpork

    Legends in the Mist

    City of Mist

    With Love and Magic - Romantasy frásagnarrammi fyrir Daggerheart

    Gloom 2nd edition

  2. Þáttur 17: Hin dulda og föla birtingarmynd ljóssins

    2 h 36 minTemporada 2 · Episódio 7

    „Ég stóð mig ógeðslega vel í Candela Obscura“- Stefán Ingvar, höfundur TeppavirkisReglan mætir einum af okkar öflugustu Örlagavöldum vorrar stéttar (Þorsteinn Sturla) í Miðbiki Meistaranna til að ræða Candela …

    Notas do episódio

    „Ég stóð mig ógeðslega vel í Candela Obscura“

    - Stefán Ingvar, höfundur Teppavirkis

    Reglan mætir einum af okkar öflugustu Örlagavöldum vorrar stéttar (Þorsteinn Sturla) í Miðbiki Meistaranna til að ræða Candela Obscura - fyrstu bók Darrington Press sem kom inn með hvelli en hvarf jafnskjótt.

    Í gegnum eðerinn var Geitin Stingvar framkölluð með bellibrögðum tækninnar. Skilaboð hans, dulmögnuð sem þau voru, skilja bersýnilega rák á sál hvers þeirra sem þora sér að leggja við hlustir.

    Í hlekkjum Reglunnar:

    Eintak af bókinni finnurðu í Stórhofi Nördanna í Glæsibæ og hjá Darrington Press

    Five Geek Social Fallacies

    Mothership: Warden's Operations Manual

    Mánuður af Myrkri hjá Drive Thru RPG

    She is the Ancient: A Genderbent Curse of Strahd

    Stöff á Kickstarter:

    Dragon Kings

    Eidolon:The Ghost Market -DaggerHeart Setting by Keith Baker

  3. Þáttur 16: Melans, hvar er hróðurinn?

    2 h 1 minTemporada 2 · Episódio 6

    Tvö Hús og Fremenni mætast á hrúgu af melans til að reiða sér leið í gegnum þennan Shai Hulud-stærðarinnar doðrant af bók sem er Dune: Adventures in the Imperium.Hlekkir ReglunnarÚtsala Modiphius með bókina og …

    Notas do episódio

    Tvö Hús og Fremenni mætast á hrúgu af melans til að reiða sér leið í gegnum þennan Shai Hulud-stærðarinnar doðrant af bók sem er Dune: Adventures in the Imperium.

    Hlekkir Reglunnar

    Útsala Modiphius með bókina og annað flott á £5

    Dune: Adventure in the Imperium beint frá býli

    Bókasöfn þar sem þú finnur Dúnu eftir Frank Herbert á íslensku

    Kickstarter fyrir Immortal Universe RPG - Interview with the Vampire

    Bram Stoker’s Dracula

  4. Þáttur 15: Bróðir minn Hnífshjarta

    2 h 31 minTemporada 2 · Episódio 5

    Reglubókabræður herja á svaðilfarir um lendur von og ótta þar sem þeir ráða gegnum kjarnabók Daggerheart. Þeim til trausts og taks rís við dögun öflugur bandamaður úr austri. Enginn annar en stórvitki …

    Notas do episódio

    Reglubókabræður herja á svaðilfarir um lendur von og ótta þar sem þeir ráða gegnum kjarnabók Daggerheart.

    Þeim til trausts og taks rís við dögun öflugur bandamaður úr austri. Enginn annar en stórvitki spunaspila, hann Þorsteinn Már mætir til að vísa föruneytinu fram á veginn.


    Í hlekkjum Reglunnar

    Kjarnabók Daggerheart

    Hope & Fear viðbót Daggerheart

    Heart of Daggers

    Ancestry & Culture: An Alternative to Race in 5e

    Grein Sly Flourish um Action Oriented Monsters

    Skráning á Spunaspilavini #47 og #48

  5. Þáttur 14: Veiðimann

    1 h 47 minTemporada 2 · Episódio 4

    Miðjubörnin eru mætt aftur til leiks til að klára Heim Myrkurs og núna er það persónulegt.Reglubókabræður taka fyrir „Veiðimann" eða Hunter: The Reckoning á útlensku. Þeir sáu það sem enginn átti að sjá, dulan …

    Notas do episódio

    Miðjubörnin eru mætt aftur til leiks til að klára Heim Myrkurs og núna er það persónulegt.

    Reglubókabræður taka fyrir „Veiðimann" eða Hunter: The Reckoning á útlensku.

    Þeir sáu það sem enginn átti að sjá, dulan rifin af grálegum hversdagsleikanum og tómið sem starði til baka með öllum sínum augum.

    Skaparinn sendi enga engla í verkið, hann sendi okkur.

  6. Þáttur 13: Stjörnustælar - Leiðarvísir leikmanna fyrir Starfinder 2e

    1 h 28 minTemporada 2 · Episódio 3

    Hnitin eru stillt á Sáttmálaheimana gegnum Driftið á geimflaug Reglunnar QP-13. Rosa margir takkar til að ýta á en engin af þeim sem segir hvernig geimflaug virkar. Fljúgandi heilar (sumir í þveng) …

    Notas do episódio

    Hnitin eru stillt á Sáttmálaheimana gegnum Driftið á geimflaug Reglunnar QP-13. Rosa margir takkar til að ýta á en engin af þeim sem segir hvernig geimflaug virkar. Fljúgandi heilar (sumir í þveng), ekki-væringjar og rosa margt annað skrýtið sem býr hérna á þverskurði vísinda og fantasíu.

    ---

    ⁠⁠Quest Portal⁠⁠ er kostunaraðili Reglunnar en þar á bæ er að finna hin ýmsu tól og tækni fyrir persónu-og heimasmíðar.

    ---

    Í hlekkjum Reglunnar

    Player Core fyrir Starfinder 2e í Nexus

    Archives of Nethys fyrir Starfinder 2e

    Dæmi um "Cinematic Starship Scenes"

    Redrazors um Starfinder 2e innleiðingu í Pathbuilder

    Apocalyptic Subclasses fyrir D&D 5e

  7. Þáttur 12: Kappar í kúluregni - kjarnabók Outgunned

    1 h 1 minTemporada 2 · Episódio 2

    Í heimi þar sem fautar brugga launráð í skuggunum. Uppstríluð illmenni og einkaherir þeirra hrúga að sér meiri auð en nokkur getur ímyndað sér og vitfirringar kveikja á eldspýtunni sem tendrar plánetuna eru …

    Notas do episódio

    Í heimi þar sem fautar brugga launráð í skuggunum. Uppstríluð illmenni og einkaherir þeirra hrúga að sér meiri auð en nokkur getur ímyndað sér og vitfirringar kveikja á eldspýtunni sem tendrar plánetuna eru Reglubræður mættir til að rýna í Outgunned eftir Two Little Mice.

    ---

    ⁠Quest Portal⁠ er kostunaraðili Reglunnar en þar á bæ er að finna hin ýmsu tól og tækni fyrir persónu-og heimasmíðar.

    ---

    Í hlekkjum Reglunnar

    Outgunned og fleiri bækur í sama bálki

    Letterboxd listinn fyrir myndirnar nefndar í bókinni

  8. CR, DH og D&D

    15 minTemporada 2Bônus

    Reglubræður smjatta á stórfregnum Critical Role og ætlun þeirra að nota D&D 2024 reglurnar í staðinn fyrir Daggerheart kerfið í væntanlegri fjórðu seríu hópsins.---Quest Portal⁠ er kostunaraðili Reglunnar þar …

    Notas do episódio

    Reglubræður smjatta á stórfregnum Critical Role og ætlun þeirra að nota D&D 2024 reglurnar í staðinn fyrir Daggerheart kerfið í væntanlegri fjórðu seríu hópsins.

    ---

    Quest Portal⁠ er kostunaraðili Reglunnar þar sem er hægt að finna bæði regluverk fyrir D&D 2024 og Daggerheart ásamt hinum ýmsu tólum og tækni fyrir persónu-og heimasmíðar.

    ---

    Í hlekkjum Reglunnar

    Fireside Chat LIVE With Matthew Mercer & Brennan Lee Mulligan

    I'm begging you to play another RPG

    Daggerheart RPG: Core Set

    D&D Player’s Handbook 2024

  9. Þáttur 11 - Fimmheimaflakk fyrir byrjendur - Index Card RPG: Master Edition

    1 h 56 minTemporada 2 · Episódio 1

    Nýtt ár, nýtt allt, hálf-djók sem varð að blákaldri staðreynd. Addó meðtekur sakramentið með Reglubræðrum í umfjöllun þeirra um Index Card RPG: Master Edition - mögulega einni bestu byrjendabók í spunaspilum …

    Notas do episódio

    Nýtt ár, nýtt allt, hálf-djók sem varð að blákaldri staðreynd. Addó meðtekur sakramentið með Reglubræðrum í umfjöllun þeirra um Index Card RPG: Master Edition - mögulega einni bestu byrjendabók í spunaspilum sem fyrirfinnst!

    ---

    Quest Portal er kostunaraðili Reglunnar en þar á bæ er að finna hin ýmsu tól og tækni fyrir persónu-og heimasmíðar.

    Við þökkum einnig Bibba og Tryggva í Svörtu tungunum fyrir tæknilega aðstoð við upptöku þáttarins. Við hvetjum öll til að leggja á hlustir hvað sá fríði flokkur hefur að segja um spunaspil.

    ---

    Blússandi meðmæli Reglunnar

    Index Card RPG: Master Edition fæst í Nexus og Drive Thru RPG

    Alfheim kortin á Drive Thru RPG

    Ashen Star

    Hlaðvarpið Ken and Robin Talk About Stuff

    Legend of Mist

    Batman - GOTHAM CITY CHRONICLES – The Roleplaying Game

    Draw Steel

    Daggerheart

    Eberron Confidential

    Frontiers of Eberron: Quickstone

    The Blue Rose Adventurer's Guide

  10. Millibilsástand

    1 h 7 minTemporada 2

    Reglubræður bera saman bækur í bækistöðvum kostunaraðilans. Útreikningar gerðir upp. Hreinsað til að hleypa inn einhverju nýju, jafn vel einhverju betra. --- Það fellur ekki á milli hluta að Quest Portal …

    Notas do episódio

    Reglubræður bera saman bækur í bækistöðvum kostunaraðilans. Útreikningar gerðir upp. Hreinsað til að hleypa inn einhverju nýju, jafn vel einhverju betra.

    ---

    Það fellur ekki á milli hluta að Quest Portal reynist enn dyggur kostunaraðili Reglunnar og í framvarðasveit spunaspilara nær sem fjær.

    ---

    Blússandi meðmæli Reglunnar

    NIGHT'S BLACK AGENTS sarpur á slikk

    "When We Were Wizards" hlaðvarpið

    Dungeon Master of None - "Mothership"

    Dungeon Master of None - "Gradient Descent"

    Reglubókaklúbburinn - Umræðuvettvangur

  11. Þáttur 10: Ofskömmtun heiftar og vonleysis - Kjarnabók Werewolf: The Apocalypse (5. útgáfa)

    3 h 24 minTemporada 1 · Episódio 10

    Krísan er sú að hið gamla deyr en ungviðið of bágstatt til að berast fullþroska í heiminn. Er henni viðbjargandi? Er það of seint? Skulum vér ganga, hönd í loðna hönd, í átt að hinu hnignandi sólarlagi sem …

    Notas do episódio
    Krísan er sú að hið gamla deyr en ungviðið of bágstatt til að berast fullþroska í heiminn. Er henni viðbjargandi? Er það of seint? Skulum vér ganga, hönd í loðna hönd, í átt að hinu hnignandi sólarlagi sem stolt Garou í einum, seinasta dýrðarljóma Gaia? --- Reglubókaklúbburinn hámar í sig Werewolf: The Apocalypse eins og óð varúlfafylking gegnum yfirgefna vöruskemmu við enda bæjarins þökk sé Quest Portal, kostunaraðila þáttarins og stafrænu Cairn-i spunaspila. …
  12. Þáttur 9: Brostni vegvísirinn - Broken Compass Adventure Journal

    1 h 55 minTemporada 1 · Episódio 9

    Reglan tekur á rás með Brostna vegvísinn við hönd. Þessi þáttur á heima á safni en er, eins og í fyrri svaðilförum Reglunnar, kostaður af Quest Portal. --- Blússandi meðmæli Reglunnar The Lost Jewels of Eire …

    Notas do episódio
    Reglan tekur á rás með Brostna vegvísinn við hönd. Þessi þáttur á heima á safni en er, eins og í fyrri svaðilförum Reglunnar, kostaður af Quest Portal. --- Blússandi meðmæli Reglunnar The Lost Jewels of Eire eftir 1 Shot Adventures Reglubókaklúbburinn - Umræðuvettvangur - 107 meðlimir komnir, endilega melda sig þar á bæ. Spunaspil á Skaganum - fyrrum áhafnarmeðlimur Sædísarinnar og flott eintak af manneskju, hann Ásgeir Óttar er með hóp fyrir spunaspil á Skaganum. …
  13. Bitastæður bónusþáttur: Í hlekkjum góssins (Free RPG Day '24)

    26 minTemporada 1Bônus

    Reglan rennur yfir grösug grös góssins sem var gefið út á Free RPG Day þann 24. júní. --- Það kostar ekki neitt að tjékka á Quest Portal, kostunaraðila þáttarins sem er með ókeypis einhleypur fyrir áhugasama …

    Notas do episódio
    Reglan rennur yfir grösug grös góssins sem var gefið út á Free RPG Day þann 24. júní. --- Það kostar ekki neitt að tjékka á Quest Portal, kostunaraðila þáttarins sem er með ókeypis einhleypur fyrir áhugasama örlagavalda. --- Hlekkir á ævintýrin og kerfin í þættinum Free RPG Day - Hvað er það og hver tóku þátt? …
  14. Þáttur 8: Uppdubbaðir Paþþapjakkar - Leiðarvísir leikmanna fyrir Pathfinder 2e

    2 h 29 minTemporada 1 · Episódio 8

    Kom nú kappar, kvistakvár og hjólreiðanornir. Reglan hefur komið sér saman í kringum Stjörnustein Absalom til að ræða Leiðarvísi leikmanna fyrir Pathfinder 2e. — Líkt og Aroden til hins forna er það Quest …

    Notas do episódio
    Kom nú kappar, kvistakvár og hjólreiðanornir. Reglan hefur komið sér saman í kringum Stjörnustein Absalom til að ræða Leiðarvísi leikmanna fyrir Pathfinder 2e. — Líkt og Aroden til hins forna er það Quest Portal sem upphefur Regluna sem hennar kostunaraðili. — Player Core 1 er að finna í Nexus og meira að segja í öllum þeim útgáfum sem Reglan hafði við hönd: Player Core 1 (staðlaða kápan) Player Core 1 (skissukápan) Player Core 1 (leðurlíkið) — Blússandi meðmæli Reglunnar Archives of Nethys…
  15. Þáttur 007: Í víðáttu brennandi spegla - Night's Black Agents

    2 h 40 minTemporada 1 · Episódio 7

    Klokkaðu alla útganga áður en þú rýkur inn í þennan þátt. Korktaflan sýnir það svart á hvítu og með rauðum þræði á milli að þessi þáttur fer lengra upp vampýramídann en nokkru sinni áður. — Þú þarft ekki að …

    Notas do episódio
    Klokkaðu alla útganga áður en þú rýkur inn í þennan þátt. Korktaflan sýnir það svart á hvítu og með rauðum þræði á milli að þessi þáttur fer lengra upp vampýramídann en nokkru sinni áður. — Þú þarft ekki að vera hakkari á heimsklassa til að njóta góðs af þeim stafrænu verkefnum sem Quest Portal, bakhjarl Reglubókaklúbbsins, býður upp á fyrir öll möguleg verkefni. …
  16. Þáttur 6: Samansafn fanta og fúlmenna - Star Wars: Edge of the Empire

    1 h 44 minTemporada 1 · Episódio 6

    Hvergi fyrirfinnst ömurlegra samansafn fanta og fúlmenna. En einhversstaðar verða illir að vera á þessum myrku tímum í Vetrarbrautinni. --- Kostunaraðili Reglubókaklúbbsins er Quest Portal⁠ sem er með …

    Notas do episódio
    Hvergi fyrirfinnst ömurlegra samansafn fanta og fúlmenna. En einhversstaðar verða illir að vera á þessum myrku tímum í Vetrarbrautinni. --- Kostunaraðili Reglubókaklúbbsins er Quest Portal⁠ sem er með hýperdrifin verkfæri fyrir ævintýrin sem eiga sér stað endur fyrir löngu á fjarlægri vetrarbraut. --- Vákar, vélmenni og ótótlegir nerf-hirðar geta nálgast eintak af Star Wars: Edge of the Empire ásamt öðrum ágætum köflum úr Stjörnustríðunum í Nexus. …
  17. Þáttur 5: Míkródósun örvæntingar - Kjarnabók Vampire: The Masquerade

    1 h 35 minTemporada 1 · Episódio 5

    EFNISVIÐVÖRUN (CW) - Á einum tímapunkti í þessum þætti er fjallað um sjálfsvíg. Ef þú eða einhver sem þú þekkir er að glíma við sjálfsvígshugsanir er fjöldi úrræða sem standa til boða. Upplýsingasími …

    Notas do episódio
    EFNISVIÐVÖRUN (CW) - Á einum tímapunkti í þessum þætti er fjallað um sjálfsvíg. Ef þú eða einhver sem þú þekkir er að glíma við sjálfsvígshugsanir er fjöldi úrræða sem standa til boða. Upplýsingasími heilsugæslunnar er að finna í s. 1700, Hjálparsími Rauða Krossins er 1717. Netspjall Heilsuveru býður einnig upp á aðstoð auk þess sem Píeta-samtökin er að finna í s. 552-2218. Þau sem hafa misst ástvin í sjálfsvígi geta leitað til allra þessara aðila ásamt Sorgarmiðstöðinni í s. 551-4141. …
  18. Bitastæður bónusþáttur: Eyjaplayer - Viðtal við Eyþór Viðarsson

    34 minTemporada 1Bônus

    Reglubókaklúbburinn fékk í heimsókn til sín Eyþór Viðarsson, raddleikara og einn af aðalsprautum raunspilunar (sannspilunar?) hlaðvarpanna The Sprouting The Lucky Die. Fyrir utan skrambi góða innsýn í hvað það …

    Notas do episódio
    Reglubókaklúbburinn fékk í heimsókn til sín Eyþór Viðarsson, raddleikara og einn af aðalsprautum raunspilunar (sannspilunar?) hlaðvarpanna The Sprouting The Lucky Die. Fyrir utan skrambi góða innsýn í hvað það tekur til að búa til raunspilunarhlaðvarp, var Eyþór meira að segja svo vinalegur að mæta með stuttan ríg í stúdíóið fyrir Regluna að kjammsa á. Líkt og áður er það ⁠Quest Portal⁠ sem styður Reglu Reglubókaklúbbsins. Þar er m.a. …
  19. Þáttur 4: Billy-hilla drunga og dauða - Mörk Borg

    1 h 9 minTemporada 1 · Episódio 4

    Gola blæs að vestan. Frá Sundrunarlöndum. Rot og ódaunn dreyra eru reiðmenn þeirra. Hyggja þau á ferðalag þangað? Í dal hinna slyppfengu og ódauðu. --- Hina vanhelgu skinnu Mörk Borg er að finna í dýpstu kimum …

    Notas do episódio
    Gola blæs að vestan. Frá Sundrunarlöndum. Rot og ódaunn dreyra eru reiðmenn þeirra. Hyggja þau á ferðalag þangað? Í dal hinna slyppfengu og ódauðu. --- Hina vanhelgu skinnu Mörk Borg er að finna í dýpstu kimum Glæsibæjar, hjá alkemistum harmleiksins og er Basilisk þáttarins með hin ýmsu verkfæri til að undirbúa þín eigin Ragnarök. …
  20. Þáttur 3: Bófalegt muldur um Rýtinga í rökkri

    1 h 9 minTemporada 1 · Episódio 3

    Hér eru engin brögð í tafli, þó eitthvað er að finna af fautum í þessari bófabók. Eftir afdrifaríkan eltingaleik í gegnum víddirnar hafa Reglubræður loksins Rýtingabókina umtöluðu í höndum sínum og taka hana í …

    Notas do episódio
    Hér eru engin brögð í tafli, þó eitthvað er að finna af fautum í þessari bófabók. Eftir afdrifaríkan eltingaleik í gegnum víddirnar hafa Reglubræður loksins Rýtingabókina umtöluðu í höndum sínum og taka hana í gegnum þriðju gráðuna. Modus operandi Reglunnar er miðlað til hlustenda þökk sé Quest Portal sem hefur fingraför sín á þessum þætti. --- Grunnreglur Blades in the Dark er m.a. hægt að finna hjá Quest Portal og þessari vefsíðu hérna. …
  21. Krísufundur: Hin brauðsneiðin af hálfvitasamlokunni

    51 minTemporada 1Bônus

    Í þann mund sem Reglubræður voru byrjaðir að stinga nefi ofan í Rýtingabók, var hópuppsögnum kastað fram á Galdraströndinni tveimur vikum fyrir jól og þeir fundu sig tilknúna að mætast í eðernum til að ráða úr …

    Notas do episódio
    Í þann mund sem Reglubræður voru byrjaðir að stinga nefi ofan í Rýtingabók, var hópuppsögnum kastað fram á Galdraströndinni tveimur vikum fyrir jól og þeir fundu sig tilknúna að mætast í eðernum til að ráða úr rústunum. --- Regla Reglubókaklúbbsins samanstendur af Helga Má og Þorsteini Mar ásamt Ólafi Birni á upptökurúninni. Reglubókaklúbburinn er í boði Quest Portal. …
  22. Jólagestir Reglubókaklúbbsins

    2 h 6 minTemporada 1 · Episódio 3

    Þegar ákveðinn Reglubróðir (sem við skulum ekkert einblína of lengi á) reyndi að gera fínt og skrautlegt fyrir jólin, lendir Reglan í meiriháttar víddarflakksklandri. Þar sem Reglan reynir að leysa úr þessari …

    Notas do episódio
    Þegar ákveðinn Reglubróðir (sem við skulum ekkert einblína of lengi á) reyndi að gera fínt og skrautlegt fyrir jólin, lendir Reglan í meiriháttar víddarflakksklandri. Þar sem Reglan reynir að leysa úr þessari fjölheimaflækju, finnur hún flottar gjafir á leiðinni og enn flottari félaga sem hjálpa að finna út úr þessu ástandi og árinu sem er senn að líða. …
  23. Bitastæður bónusþáttur: Örlagaþræðir Lágmúlans - Teppavirki eftir Stefán Ingvar

    23 minTemporada 1Bônus

    Bjalla glymur. Teppabúðin í Lágmúlanum hefur tekið úr lás samanber opnunartíma frá 11-18 (Lokað um helgar). Þú ert teppi. Fölbrúnt teppi. Einhver gengur inn. En hver? Það er ómögulegt að ráða úr. Af því þú ert …

    Notas do episódio
    Bjalla glymur. Teppabúðin í Lágmúlanum hefur tekið úr lás samanber opnunartíma frá 11-18 (Lokað um helgar). Þú ert teppi. Fölbrúnt teppi. Einhver gengur inn. En hver? Það er ómögulegt að ráða úr. Af því þú ert teppi. En hann stendur fyrir framan þig í dágóða stund... Klósettið? Það er reyndar bara fyrir starfsfólk. Allt brennur þó niður að lokum. Hver einasti þráður verður að sviðinni jörðu og hann sturtaði ekki einu sinni niður. …
  24. Þáttur 2: Fálmar í þokunni - Regluverk Varðarins fyrir Call of Cthulhu 7e

    1 h 16 minTemporada 1 · Episódio 2

    Það er satt, við rýndum í hina myrku skruddu, þá forboðnu og viðbjóðslegu bók sem aðeins örfáir hafa fengið að bera augum, en þó er það ætlun okkar með hlaðvarpi þessu að sýna fram á að við séum með öllu heilir …

    Notas do episódio
    Það er satt, við rýndum í hina myrku skruddu, þá forboðnu og viðbjóðslegu bók sem aðeins örfáir hafa fengið að bera augum, en þó er það ætlun okkar með hlaðvarpi þessu að sýna fram á að við séum með öllu heilir á geði. Eflaust muntu fyrst uppnefna okkar, kalla geðsjúka og æra, jafnvel sturlaðri en sá sem setti sama þessi skelfilegu bók. …
  25. Þáttur 1: Stofnfundur - Leiðarvísar leikmanna fyrir 2e og 5e

    1 h 19 minTemporada 1 · Episódio 1

    Föruneytið leitar djúpt inn í miðbik Kertavirkis og beitir dulspekinni á aðra og fimmtu útgáfu af leiðarvísi leikmanna fyrir Dýflissur og & Dreka. Þar sem skinnurnar sitja undir skini Selûne reiðir vitkinn fram …

    Notas do episódio
    Föruneytið leitar djúpt inn í miðbik Kertavirkis og beitir dulspekinni á aðra og fimmtu útgáfu af leiðarvísi leikmanna fyrir Dýflissur og & Dreka. Þar sem skinnurnar sitja undir skini Selûne reiðir vitkinn fram reykelsi ásamt vígðu vatni og með vel æfðum handabendingum og arkanískri þulu er rýnt í tvær bækur á sama tíma og gert með meðbyr þökk sé bandalagi Föruneytisins við ⁠Quest Portal⁠. …

Podcasts parecidos

Mais podcasts de Lazer
Este podcast é seu?

Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.

Configurações

Exibição

Idioma

Define quais estações você vê primeiro na página inicial.

Histórico

As rádios e episódios ouvidos recentemente e suas últimas buscas ficam só neste navegador.

Avisos

Um aviso rápido quando um podcast que você segue tem um episódio novo. Desative podcasts individuais pelo sino na página deles.

Conta

Salve favoritos – no app e no site.

Atalhos de teclado

/
Abrir busca
Espaço
Reproduzir ou pausar
← →
No player: voltar 15 s, avançar 30 s (episódios) · na fileira: próximo bloco
↑ ↓
Na fileira: alvo dentro do bloco
Home / End
Na fileira: primeiro ou último bloco
Esc
Fechar janela ou menu
?
Esta visão geral
Tocando agora

Ir para a estação

A seguir

    Adicione episódios com “A seguir” – eles tocam depois do episódio atual.