
Reglubókaklúbburinn
- Episodes
- 25
- Released
- monthly
- Latest episode
- Nov 14, 2026
About the podcast
Regla Reglubókaklúbbsins samanstendur af Helga Má, Unni Helgu og Þorsteini Mar ásamt Ólafi Birni á upptökurúninni þar sem þau dæma bækur út frá kápunni en fara einnig djúpt í kjölinn á reglubókum spunaspila.
Episodes 25
Þáttur 18: Þriggja ríkja þorsti
Endurnærð af ferskum nunnudreyra kemur Reglan sér saman ásamt góðvin þáttarins, honum Leó Páli til að svara hvort það sé í lagi að mergsjúga blóðið úr nasistum?Stutta svarið er: já, auðvitað en fylgir því …
Show notes
Endurnærð af ferskum nunnudreyra kemur Reglan sér saman ásamt góðvin þáttarins, honum Leó Páli til að svara hvort það sé í lagi að mergsjúga blóðið úr nasistum?
Stutta svarið er: já, auðvitað en fylgir því einnig góð umræða um spunaspilabókina "Eat the Reich" úr smiðju Rowan, Rook and Decard.
Í hlekkjum Reglunnar
"Eat the Reich" í vefverslun Nexus
Rat Queens teiknimyndasögurnar í Nexus
Vampire Playtestið fyrir næstu útgáfu af Skrúðleiknum
Beilað á Necromunda RPG - Reddit þráður
Folklorists eftir Pedro Ziviani (2027)
Tapestry: Age of Conquest til sölu í The British Museum
Discworld - Adventures in Ankh-Morpork
With Love and Magic - Romantasy frásagnarrammi fyrir Daggerheart
Þáttur 17: Hin dulda og föla birtingarmynd ljóssins
„Ég stóð mig ógeðslega vel í Candela Obscura“- Stefán Ingvar, höfundur TeppavirkisReglan mætir einum af okkar öflugustu Örlagavöldum vorrar stéttar (Þorsteinn Sturla) í Miðbiki Meistaranna til að ræða Candela …
Show notes
„Ég stóð mig ógeðslega vel í Candela Obscura“
- Stefán Ingvar, höfundur Teppavirkis
Reglan mætir einum af okkar öflugustu Örlagavöldum vorrar stéttar (Þorsteinn Sturla) í Miðbiki Meistaranna til að ræða Candela Obscura - fyrstu bók Darrington Press sem kom inn með hvelli en hvarf jafnskjótt.
Í gegnum eðerinn var Geitin Stingvar framkölluð með bellibrögðum tækninnar. Skilaboð hans, dulmögnuð sem þau voru, skilja bersýnilega rák á sál hvers þeirra sem þora sér að leggja við hlustir.
Í hlekkjum Reglunnar:
Eintak af bókinni finnurðu í Stórhofi Nördanna í Glæsibæ og hjá Darrington Press
Mothership: Warden's Operations Manual
Mánuður af Myrkri hjá Drive Thru RPG
She is the Ancient: A Genderbent Curse of Strahd
Stöff á Kickstarter:
Eidolon:The Ghost Market -DaggerHeart Setting by Keith Baker
Þáttur 16: Melans, hvar er hróðurinn?
Tvö Hús og Fremenni mætast á hrúgu af melans til að reiða sér leið í gegnum þennan Shai Hulud-stærðarinnar doðrant af bók sem er Dune: Adventures in the Imperium.Hlekkir ReglunnarÚtsala Modiphius með bókina og …
Show notes
Tvö Hús og Fremenni mætast á hrúgu af melans til að reiða sér leið í gegnum þennan Shai Hulud-stærðarinnar doðrant af bók sem er Dune: Adventures in the Imperium.
Hlekkir Reglunnar
Útsala Modiphius með bókina og annað flott á £5
Dune: Adventure in the Imperium beint frá býli
Bókasöfn þar sem þú finnur Dúnu eftir Frank Herbert á íslensku
Kickstarter fyrir Immortal Universe RPG - Interview with the Vampire
Þáttur 15: Bróðir minn Hnífshjarta
Reglubókabræður herja á svaðilfarir um lendur von og ótta þar sem þeir ráða gegnum kjarnabók Daggerheart. Þeim til trausts og taks rís við dögun öflugur bandamaður úr austri. Enginn annar en stórvitki …
Show notes
Reglubókabræður herja á svaðilfarir um lendur von og ótta þar sem þeir ráða gegnum kjarnabók Daggerheart.
Þeim til trausts og taks rís við dögun öflugur bandamaður úr austri. Enginn annar en stórvitki spunaspila, hann Þorsteinn Már mætir til að vísa föruneytinu fram á veginn.
Í hlekkjum Reglunnar
Hope & Fear viðbót Daggerheart
Ancestry & Culture: An Alternative to Race in 5e
Grein Sly Flourish um Action Oriented Monsters
Skráning á Spunaspilavini #47 og #48
Þáttur 14: Veiðimann
Miðjubörnin eru mætt aftur til leiks til að klára Heim Myrkurs og núna er það persónulegt.Reglubókabræður taka fyrir „Veiðimann" eða Hunter: The Reckoning á útlensku. Þeir sáu það sem enginn átti að sjá, dulan …
Show notes
Miðjubörnin eru mætt aftur til leiks til að klára Heim Myrkurs og núna er það persónulegt.
Reglubókabræður taka fyrir „Veiðimann" eða Hunter: The Reckoning á útlensku.
Þeir sáu það sem enginn átti að sjá, dulan rifin af grálegum hversdagsleikanum og tómið sem starði til baka með öllum sínum augum.
Skaparinn sendi enga engla í verkið, hann sendi okkur.
Þáttur 13: Stjörnustælar - Leiðarvísir leikmanna fyrir Starfinder 2e
Hnitin eru stillt á Sáttmálaheimana gegnum Driftið á geimflaug Reglunnar QP-13. Rosa margir takkar til að ýta á en engin af þeim sem segir hvernig geimflaug virkar. Fljúgandi heilar (sumir í þveng) …
Show notes
Hnitin eru stillt á Sáttmálaheimana gegnum Driftið á geimflaug Reglunnar QP-13. Rosa margir takkar til að ýta á en engin af þeim sem segir hvernig geimflaug virkar. Fljúgandi heilar (sumir í þveng), ekki-væringjar og rosa margt annað skrýtið sem býr hérna á þverskurði vísinda og fantasíu.
---
Quest Portal er kostunaraðili Reglunnar en þar á bæ er að finna hin ýmsu tól og tækni fyrir persónu-og heimasmíðar.
---
Í hlekkjum Reglunnar
Player Core fyrir Starfinder 2e í Nexus
Archives of Nethys fyrir Starfinder 2e
Dæmi um "Cinematic Starship Scenes"
Redrazors um Starfinder 2e innleiðingu í Pathbuilder
Þáttur 12: Kappar í kúluregni - kjarnabók Outgunned
Í heimi þar sem fautar brugga launráð í skuggunum. Uppstríluð illmenni og einkaherir þeirra hrúga að sér meiri auð en nokkur getur ímyndað sér og vitfirringar kveikja á eldspýtunni sem tendrar plánetuna eru …
Show notes
Í heimi þar sem fautar brugga launráð í skuggunum. Uppstríluð illmenni og einkaherir þeirra hrúga að sér meiri auð en nokkur getur ímyndað sér og vitfirringar kveikja á eldspýtunni sem tendrar plánetuna eru Reglubræður mættir til að rýna í Outgunned eftir Two Little Mice.
---
Quest Portal er kostunaraðili Reglunnar en þar á bæ er að finna hin ýmsu tól og tækni fyrir persónu-og heimasmíðar.
---
Í hlekkjum Reglunnar
CR, DH og D&D
Reglubræður smjatta á stórfregnum Critical Role og ætlun þeirra að nota D&D 2024 reglurnar í staðinn fyrir Daggerheart kerfið í væntanlegri fjórðu seríu hópsins.---Quest Portal er kostunaraðili Reglunnar þar …
Show notes
Reglubræður smjatta á stórfregnum Critical Role og ætlun þeirra að nota D&D 2024 reglurnar í staðinn fyrir Daggerheart kerfið í væntanlegri fjórðu seríu hópsins.
---
Quest Portal er kostunaraðili Reglunnar þar sem er hægt að finna bæði regluverk fyrir D&D 2024 og Daggerheart ásamt hinum ýmsu tólum og tækni fyrir persónu-og heimasmíðar.
---
Í hlekkjum Reglunnar
Fireside Chat LIVE With Matthew Mercer & Brennan Lee Mulligan
Þáttur 11 - Fimmheimaflakk fyrir byrjendur - Index Card RPG: Master Edition
Nýtt ár, nýtt allt, hálf-djók sem varð að blákaldri staðreynd. Addó meðtekur sakramentið með Reglubræðrum í umfjöllun þeirra um Index Card RPG: Master Edition - mögulega einni bestu byrjendabók í spunaspilum …
Show notes
Nýtt ár, nýtt allt, hálf-djók sem varð að blákaldri staðreynd. Addó meðtekur sakramentið með Reglubræðrum í umfjöllun þeirra um Index Card RPG: Master Edition - mögulega einni bestu byrjendabók í spunaspilum sem fyrirfinnst!
---
Quest Portal er kostunaraðili Reglunnar en þar á bæ er að finna hin ýmsu tól og tækni fyrir persónu-og heimasmíðar.
Við þökkum einnig Bibba og Tryggva í Svörtu tungunum fyrir tæknilega aðstoð við upptöku þáttarins. Við hvetjum öll til að leggja á hlustir hvað sá fríði flokkur hefur að segja um spunaspil.
---
Blússandi meðmæli Reglunnar
Index Card RPG: Master Edition fæst í Nexus og Drive Thru RPG
Alfheim kortin á Drive Thru RPG
Hlaðvarpið Ken and Robin Talk About Stuff
Batman - GOTHAM CITY CHRONICLES – The Roleplaying Game
Millibilsástand
Reglubræður bera saman bækur í bækistöðvum kostunaraðilans. Útreikningar gerðir upp. Hreinsað til að hleypa inn einhverju nýju, jafn vel einhverju betra. --- Það fellur ekki á milli hluta að Quest Portal …
Show notes
Reglubræður bera saman bækur í bækistöðvum kostunaraðilans. Útreikningar gerðir upp. Hreinsað til að hleypa inn einhverju nýju, jafn vel einhverju betra.
---
Það fellur ekki á milli hluta að Quest Portal reynist enn dyggur kostunaraðili Reglunnar og í framvarðasveit spunaspilara nær sem fjær.
---
Blússandi meðmæli Reglunnar
NIGHT'S BLACK AGENTS sarpur á slikk
"When We Were Wizards" hlaðvarpið
Dungeon Master of None - "Mothership"
Dungeon Master of None - "Gradient Descent"
Þáttur 10: Ofskömmtun heiftar og vonleysis - Kjarnabók Werewolf: The Apocalypse (5. útgáfa)
Krísan er sú að hið gamla deyr en ungviðið of bágstatt til að berast fullþroska í heiminn. Er henni viðbjargandi? Er það of seint? Skulum vér ganga, hönd í loðna hönd, í átt að hinu hnignandi sólarlagi sem …
Show notes
Krísan er sú að hið gamla deyr en ungviðið of bágstatt til að berast fullþroska í heiminn. Er henni viðbjargandi? Er það of seint? Skulum vér ganga, hönd í loðna hönd, í átt að hinu hnignandi sólarlagi sem stolt Garou í einum, seinasta dýrðarljóma Gaia? --- Reglubókaklúbburinn hámar í sig Werewolf: The Apocalypse eins og óð varúlfafylking gegnum yfirgefna vöruskemmu við enda bæjarins þökk sé Quest Portal, kostunaraðila þáttarins og stafrænu Cairn-i spunaspila. …Þáttur 9: Brostni vegvísirinn - Broken Compass Adventure Journal
Reglan tekur á rás með Brostna vegvísinn við hönd. Þessi þáttur á heima á safni en er, eins og í fyrri svaðilförum Reglunnar, kostaður af Quest Portal. --- Blússandi meðmæli Reglunnar The Lost Jewels of Eire …
Show notes
Reglan tekur á rás með Brostna vegvísinn við hönd. Þessi þáttur á heima á safni en er, eins og í fyrri svaðilförum Reglunnar, kostaður af Quest Portal. --- Blússandi meðmæli Reglunnar The Lost Jewels of Eire eftir 1 Shot Adventures Reglubókaklúbburinn - Umræðuvettvangur - 107 meðlimir komnir, endilega melda sig þar á bæ. Spunaspil á Skaganum - fyrrum áhafnarmeðlimur Sædísarinnar og flott eintak af manneskju, hann Ásgeir Óttar er með hóp fyrir spunaspil á Skaganum. …Bitastæður bónusþáttur: Í hlekkjum góssins (Free RPG Day '24)
Reglan rennur yfir grösug grös góssins sem var gefið út á Free RPG Day þann 24. júní. --- Það kostar ekki neitt að tjékka á Quest Portal, kostunaraðila þáttarins sem er með ókeypis einhleypur fyrir áhugasama …
Show notes
Reglan rennur yfir grösug grös góssins sem var gefið út á Free RPG Day þann 24. júní. --- Það kostar ekki neitt að tjékka á Quest Portal, kostunaraðila þáttarins sem er með ókeypis einhleypur fyrir áhugasama örlagavalda. --- Hlekkir á ævintýrin og kerfin í þættinum Free RPG Day - Hvað er það og hver tóku þátt? …Þáttur 8: Uppdubbaðir Paþþapjakkar - Leiðarvísir leikmanna fyrir Pathfinder 2e
Kom nú kappar, kvistakvár og hjólreiðanornir. Reglan hefur komið sér saman í kringum Stjörnustein Absalom til að ræða Leiðarvísi leikmanna fyrir Pathfinder 2e. — Líkt og Aroden til hins forna er það Quest …
Show notes
Kom nú kappar, kvistakvár og hjólreiðanornir. Reglan hefur komið sér saman í kringum Stjörnustein Absalom til að ræða Leiðarvísi leikmanna fyrir Pathfinder 2e. — Líkt og Aroden til hins forna er það Quest Portal sem upphefur Regluna sem hennar kostunaraðili. — Player Core 1 er að finna í Nexus og meira að segja í öllum þeim útgáfum sem Reglan hafði við hönd: Player Core 1 (staðlaða kápan) Player Core 1 (skissukápan) Player Core 1 (leðurlíkið) — Blússandi meðmæli Reglunnar Archives of Nethys…Þáttur 007: Í víðáttu brennandi spegla - Night's Black Agents
Klokkaðu alla útganga áður en þú rýkur inn í þennan þátt. Korktaflan sýnir það svart á hvítu og með rauðum þræði á milli að þessi þáttur fer lengra upp vampýramídann en nokkru sinni áður. — Þú þarft ekki að …
Show notes
Klokkaðu alla útganga áður en þú rýkur inn í þennan þátt. Korktaflan sýnir það svart á hvítu og með rauðum þræði á milli að þessi þáttur fer lengra upp vampýramídann en nokkru sinni áður. — Þú þarft ekki að vera hakkari á heimsklassa til að njóta góðs af þeim stafrænu verkefnum sem Quest Portal, bakhjarl Reglubókaklúbbsins, býður upp á fyrir öll möguleg verkefni. …Þáttur 6: Samansafn fanta og fúlmenna - Star Wars: Edge of the Empire
Hvergi fyrirfinnst ömurlegra samansafn fanta og fúlmenna. En einhversstaðar verða illir að vera á þessum myrku tímum í Vetrarbrautinni. --- Kostunaraðili Reglubókaklúbbsins er Quest Portal sem er með …
Show notes
Hvergi fyrirfinnst ömurlegra samansafn fanta og fúlmenna. En einhversstaðar verða illir að vera á þessum myrku tímum í Vetrarbrautinni. --- Kostunaraðili Reglubókaklúbbsins er Quest Portal sem er með hýperdrifin verkfæri fyrir ævintýrin sem eiga sér stað endur fyrir löngu á fjarlægri vetrarbraut. --- Vákar, vélmenni og ótótlegir nerf-hirðar geta nálgast eintak af Star Wars: Edge of the Empire ásamt öðrum ágætum köflum úr Stjörnustríðunum í Nexus. …Þáttur 5: Míkródósun örvæntingar - Kjarnabók Vampire: The Masquerade
EFNISVIÐVÖRUN (CW) - Á einum tímapunkti í þessum þætti er fjallað um sjálfsvíg. Ef þú eða einhver sem þú þekkir er að glíma við sjálfsvígshugsanir er fjöldi úrræða sem standa til boða. Upplýsingasími …
Show notes
EFNISVIÐVÖRUN (CW) - Á einum tímapunkti í þessum þætti er fjallað um sjálfsvíg. Ef þú eða einhver sem þú þekkir er að glíma við sjálfsvígshugsanir er fjöldi úrræða sem standa til boða. Upplýsingasími heilsugæslunnar er að finna í s. 1700, Hjálparsími Rauða Krossins er 1717. Netspjall Heilsuveru býður einnig upp á aðstoð auk þess sem Píeta-samtökin er að finna í s. 552-2218. Þau sem hafa misst ástvin í sjálfsvígi geta leitað til allra þessara aðila ásamt Sorgarmiðstöðinni í s. 551-4141. …Bitastæður bónusþáttur: Eyjaplayer - Viðtal við Eyþór Viðarsson
Reglubókaklúbburinn fékk í heimsókn til sín Eyþór Viðarsson, raddleikara og einn af aðalsprautum raunspilunar (sannspilunar?) hlaðvarpanna The Sprouting The Lucky Die. Fyrir utan skrambi góða innsýn í hvað það …
Show notes
Reglubókaklúbburinn fékk í heimsókn til sín Eyþór Viðarsson, raddleikara og einn af aðalsprautum raunspilunar (sannspilunar?) hlaðvarpanna The Sprouting The Lucky Die. Fyrir utan skrambi góða innsýn í hvað það tekur til að búa til raunspilunarhlaðvarp, var Eyþór meira að segja svo vinalegur að mæta með stuttan ríg í stúdíóið fyrir Regluna að kjammsa á. Líkt og áður er það Quest Portal sem styður Reglu Reglubókaklúbbsins. Þar er m.a. …Þáttur 4: Billy-hilla drunga og dauða - Mörk Borg
Gola blæs að vestan. Frá Sundrunarlöndum. Rot og ódaunn dreyra eru reiðmenn þeirra. Hyggja þau á ferðalag þangað? Í dal hinna slyppfengu og ódauðu. --- Hina vanhelgu skinnu Mörk Borg er að finna í dýpstu kimum …
Show notes
Gola blæs að vestan. Frá Sundrunarlöndum. Rot og ódaunn dreyra eru reiðmenn þeirra. Hyggja þau á ferðalag þangað? Í dal hinna slyppfengu og ódauðu. --- Hina vanhelgu skinnu Mörk Borg er að finna í dýpstu kimum Glæsibæjar, hjá alkemistum harmleiksins og er Basilisk þáttarins með hin ýmsu verkfæri til að undirbúa þín eigin Ragnarök. …Þáttur 3: Bófalegt muldur um Rýtinga í rökkri
Hér eru engin brögð í tafli, þó eitthvað er að finna af fautum í þessari bófabók. Eftir afdrifaríkan eltingaleik í gegnum víddirnar hafa Reglubræður loksins Rýtingabókina umtöluðu í höndum sínum og taka hana í …
Show notes
Hér eru engin brögð í tafli, þó eitthvað er að finna af fautum í þessari bófabók. Eftir afdrifaríkan eltingaleik í gegnum víddirnar hafa Reglubræður loksins Rýtingabókina umtöluðu í höndum sínum og taka hana í gegnum þriðju gráðuna. Modus operandi Reglunnar er miðlað til hlustenda þökk sé Quest Portal sem hefur fingraför sín á þessum þætti. --- Grunnreglur Blades in the Dark er m.a. hægt að finna hjá Quest Portal og þessari vefsíðu hérna. …Krísufundur: Hin brauðsneiðin af hálfvitasamlokunni
Í þann mund sem Reglubræður voru byrjaðir að stinga nefi ofan í Rýtingabók, var hópuppsögnum kastað fram á Galdraströndinni tveimur vikum fyrir jól og þeir fundu sig tilknúna að mætast í eðernum til að ráða úr …
Show notes
Í þann mund sem Reglubræður voru byrjaðir að stinga nefi ofan í Rýtingabók, var hópuppsögnum kastað fram á Galdraströndinni tveimur vikum fyrir jól og þeir fundu sig tilknúna að mætast í eðernum til að ráða úr rústunum. --- Regla Reglubókaklúbbsins samanstendur af Helga Má og Þorsteini Mar ásamt Ólafi Birni á upptökurúninni. Reglubókaklúbburinn er í boði Quest Portal. …Jólagestir Reglubókaklúbbsins
Þegar ákveðinn Reglubróðir (sem við skulum ekkert einblína of lengi á) reyndi að gera fínt og skrautlegt fyrir jólin, lendir Reglan í meiriháttar víddarflakksklandri. Þar sem Reglan reynir að leysa úr þessari …
Show notes
Þegar ákveðinn Reglubróðir (sem við skulum ekkert einblína of lengi á) reyndi að gera fínt og skrautlegt fyrir jólin, lendir Reglan í meiriháttar víddarflakksklandri. Þar sem Reglan reynir að leysa úr þessari fjölheimaflækju, finnur hún flottar gjafir á leiðinni og enn flottari félaga sem hjálpa að finna út úr þessu ástandi og árinu sem er senn að líða. …Bitastæður bónusþáttur: Örlagaþræðir Lágmúlans - Teppavirki eftir Stefán Ingvar
Bjalla glymur. Teppabúðin í Lágmúlanum hefur tekið úr lás samanber opnunartíma frá 11-18 (Lokað um helgar). Þú ert teppi. Fölbrúnt teppi. Einhver gengur inn. En hver? Það er ómögulegt að ráða úr. Af því þú ert …
Show notes
Bjalla glymur. Teppabúðin í Lágmúlanum hefur tekið úr lás samanber opnunartíma frá 11-18 (Lokað um helgar). Þú ert teppi. Fölbrúnt teppi. Einhver gengur inn. En hver? Það er ómögulegt að ráða úr. Af því þú ert teppi. En hann stendur fyrir framan þig í dágóða stund... Klósettið? Það er reyndar bara fyrir starfsfólk. Allt brennur þó niður að lokum. Hver einasti þráður verður að sviðinni jörðu og hann sturtaði ekki einu sinni niður. …Þáttur 2: Fálmar í þokunni - Regluverk Varðarins fyrir Call of Cthulhu 7e
Það er satt, við rýndum í hina myrku skruddu, þá forboðnu og viðbjóðslegu bók sem aðeins örfáir hafa fengið að bera augum, en þó er það ætlun okkar með hlaðvarpi þessu að sýna fram á að við séum með öllu heilir …
Show notes
Það er satt, við rýndum í hina myrku skruddu, þá forboðnu og viðbjóðslegu bók sem aðeins örfáir hafa fengið að bera augum, en þó er það ætlun okkar með hlaðvarpi þessu að sýna fram á að við séum með öllu heilir á geði. Eflaust muntu fyrst uppnefna okkar, kalla geðsjúka og æra, jafnvel sturlaðri en sá sem setti sama þessi skelfilegu bók. …Þáttur 1: Stofnfundur - Leiðarvísar leikmanna fyrir 2e og 5e
Föruneytið leitar djúpt inn í miðbik Kertavirkis og beitir dulspekinni á aðra og fimmtu útgáfu af leiðarvísi leikmanna fyrir Dýflissur og & Dreka. Þar sem skinnurnar sitja undir skini Selûne reiðir vitkinn fram …
Show notes
Föruneytið leitar djúpt inn í miðbik Kertavirkis og beitir dulspekinni á aðra og fimmtu útgáfu af leiðarvísi leikmanna fyrir Dýflissur og & Dreka. Þar sem skinnurnar sitja undir skini Selûne reiðir vitkinn fram reykelsi ásamt vígðu vatni og með vel æfðum handabendingum og arkanískri þulu er rýnt í tvær bækur á sama tíma og gert með meðbyr þökk sé bandalagi Föruneytisins við Quest Portal. …
Similar podcasts
More Leisure podcastsIs this your podcast?
Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.



