
Fréttir vikunnar | Sá sem segist vera undirbúinn er að ljúga
Notas do episódio
Eitthvað mikið er að gerast. Stóru tæknifyrirtækjunum í Bandaríkjunum virðist vera í þann mund að takast að búa til svonefnda ofurgreind mun fyrr en talið var og sumir spá því að það gerist strax á næsta ári. Svartsýnustu menn óttast að vitvélarnar nái því stigi von bráðar að vera máttugri en maðurinn í flestu sem skiptir máli, með tilheyrandi ófyrirséðum afleiðingum, á sama tíma og bjartsýnin tröllríður auðvitað öllu líka; ótrúlegar sögulegar framfarir í stóru vandamálum mannkynsins, í krabbameini, Alzheimer, fátækt og öðru sem okkur getur dottið í hug.
Í millitíðinni er allt að fara af stað. „Ég óttast að eftir því sem þessi veldisvöxtur heldur áfram verði breytingarnar meiri en við ráðum við að laga okkur að,“ eru skilaboðin frá tæknirisunum. Djúp samfélagsleg röskun fer að líkindum í hönd og þar undir eru tugir þúsunda starfa á Íslandi. Við förum yfir þrjár sviðsmyndir Almannaróms: hægfara umbreytingu, ungt fólk án atvinnu og uppbrot án ábata. Og hvað verður um mannfjöldaspár og innflytjendastefnu þegar öllu er snúið á hvolf?
Að lokum er flutt stutt hugleiðing til minningar um Mörð Árnason, málfræðing og alþingismann, en greint var frá andláti hans í þessari viku.