
Snorri Másson ritstjóri
- Episódios
- 99
- Publicação
- quinzenal
- Último episódio
- 13 nov 2026
Sobre o podcast
Blaðamennska á breyttum tímum. Fréttir, ritgerðir og málefnalegar persónuárásir.Fréttir vikunnar er vikulegur hlaðvarps- og sjónvarpsþáttur. Fáðu aðgang að greinum alla vikuna og meira efni á www.ritstjori.is.
Episódios 99
Fréttir vikunnar | Sá sem segist vera undirbúinn er að ljúga
Eitthvað mikið er að gerast. Stóru tæknifyrirtækjunum í Bandaríkjunum virðist vera í þann mund að takast að búa til svonefnda ofurgreind mun fyrr en talið var og sumir spá því að það gerist strax á næsta ári …
Notas do episódio
Eitthvað mikið er að gerast. Stóru tæknifyrirtækjunum í Bandaríkjunum virðist vera í þann mund að takast að búa til svonefnda ofurgreind mun fyrr en talið var og sumir spá því að það gerist strax á næsta ári. Svartsýnustu menn óttast að vitvélarnar nái því stigi von bráðar að vera máttugri en maðurinn í flestu sem skiptir máli, með tilheyrandi ófyrirséðum afleiðingum, á sama tíma og bjartsýnin tröllríður auðvitað öllu líka; ótrúlegar sögulegar framfarir í stóru vandamálum mannkynsins, í krabbameini, Alzheimer, fátækt og öðru sem okkur getur dottið í hug.
Í millitíðinni er allt að fara af stað. „Ég óttast að eftir því sem þessi veldisvöxtur heldur áfram verði breytingarnar meiri en við ráðum við að laga okkur að,“ eru skilaboðin frá tæknirisunum. Djúp samfélagsleg röskun fer að líkindum í hönd og þar undir eru tugir þúsunda starfa á Íslandi. Við förum yfir þrjár sviðsmyndir Almannaróms: hægfara umbreytingu, ungt fólk án atvinnu og uppbrot án ábata. Og hvað verður um mannfjöldaspár og innflytjendastefnu þegar öllu er snúið á hvolf?
Að lokum er flutt stutt hugleiðing til minningar um Mörð Árnason, málfræðing og alþingismann, en greint var frá andláti hans í þessari viku.
Fréttir vikunnar | Sigur „fjölbreytileikans“ í Bandaríkjunum, Woke 2.0 og brottfararstöð í bið
Af ýmsu er að taka á þessum fallega föstudegi. Demókratar unnu stórsigur í bandarísku þingkosningunum. Hver er með sína skýringu á því. Spilling er nefnd, lífskjarakrísan, efnahagsástandið og svo stríðið í …
Notas do episódio
Af ýmsu er að taka á þessum fallega föstudegi. Demókratar unnu stórsigur í bandarísku þingkosningunum. Hver er með sína skýringu á því. Spilling er nefnd, lífskjarakrísan, efnahagsástandið og svo stríðið í Íran. En ef maður tekur mið af túlkun Samfylkingarinnar virðist þetta allt vera hálfgert aukaatriði. Stóra málið í þeirra augum: Fólkið valdi „fjölbreytileikann“ þar vestra. Við skyggnumst bak við slíkar yfirborðsklisjur og förum yfir raunverulegar ástæður þeirra pólitísku tíðinda sem urðu í Bandaríkjunum í vikunni.
Síðan er það brottfararstöðin, sem átti að vera stóra málið í útlendingamálum á síðasta þingi. Svona brottfararstöð hljómar ágætlega á blaði. Fólk á bara að geta verið þarna nokkra daga og vera svo sent úr landi. En þegar maður fer í brottfararstöðvar annars staðar í Evrópu fattar maður að veruleikinn er allt annar. Þar ílengist fólk mánuðum saman og milljarðakostnaður hleðst upp, sem væri mögulega sparaður með því að breyta grunnkerfinu í staðinn.
Nú er búið að fresta þessu sem var svona mikið þjóðþrifamál um heilt ár án þess að nokkur blikki auga. Hvað segir það um árangur ríkisstjórnarinnar í þessum mikilvægasta málaflokki okkar tíma? Ritstjórinn fer líka yfir tillögu Miðflokksins um bann við algerri hulningu andlits.
Að lokum er það söguhornið. Jón Ólafsson ritstjóri og alþingismaður vildi koma á fót íslenskri nýlendu í Alaska þar sem Íslendingar áttu að geta lifað sem íslensk þjóð, ríkari og fjölmennari en heimaþjóðin. Ritstjórinn les upp úr bók sem Jón skrifaði um þetta árið 1875 og rekur helstu röksemdir fyrir verkefninu sem aldrei varð að veruleika. Menn hafa oft og tíðum miklar vonir og væntingar um glæsta framtíð en veruleikinn er síðan allur annar. Það er kannski ákveðið þema í þessum þætti..
Fréttir vikunnar | Stóra stöðnunin, hin óþarfa unga kynslóð, betlandi ráðherra og hagvöxtur fyrir hvern?
Ritstjórinn lifir góðu lífi og rifjar upp nýleg samskipti við Fjölmiðlanefnd sem stendur blessunarlega vaktina. Mikilvægt er að nú verði myndað jákvætt samband við þennan mikilvæga hagaðila. Dagskrá þáttarins …
Notas do episódio
Ritstjórinn lifir góðu lífi og rifjar upp nýleg samskipti við Fjölmiðlanefnd sem stendur blessunarlega vaktina. Mikilvægt er að nú verði myndað jákvætt samband við þennan mikilvæga hagaðila.
Dagskrá þáttarins: Hagkerfi sem stækkar án þess að allir njóti endilega góðs af, vaxtarplan ríkisstjórnarinnar og aðferðir hennar til að vinna gegn markmiðum þess, ungt fólk á tímum gervigreindar og skipulagðir glæpahópar á Íslandi. Síðan reiknum við út hvað fást margir sérsveitarmenn fyrir 150 milljónir sem sendar eru til útlanda í staðinn.
Hagkerfið hefur sannarlega stækkað en Ísland hefur ekki beint orðið ríkara. Við förum yfir stóru stöðnunina og nýtt vaxtarplan ríkisstjórnarinnar, sem var enn volgt úr prentaranum þegar atvinnuvegaráðherra mætti í ræðustól til að útskýra að það væri bara svona almennt um gott atvinnulíf, en ekki ætlað að taka á raunverulegum vanda hagkerfisins. Hver vill ekki almennt gott atvinnulíf?
Síðan er það unga fólkið. Maður heyrir stundum að ungir Íslendingar séu bara svo latir að hreinlegast sé að ráða útlending. En ef atvinnulífið gefst upp á unga fólkinu, þá er ekki nema von að þau öðlist ekki trú á sjálfum sér heldur. Nú bætist gervigreindin við. Líkamlegu störfin mönnuð erlendis frá, skrifstofustörfin farin til gervigreindarinnar og hvað á þá að gera við ungu kynslóðina?
Að lokum: Yfir tuttugu skipulagðir glæpahópar á okkar litla Íslandi og dómsmálaráðherra heldur blaðamannafund um fyrirhuguð verkefni sem enginn peningur er til í. Kannski væri hreinlegra að byrja á að ræða við formann eigin flokks. Það er nefnilega til nægur peningur í ýmislegt annað. Hvað eru það margir sérsveitarmenn?
Fréttir vikunnar | Viðreisn í áfalli, falleinkunn Ingu, og sjálfsmynd Sjálfstæðisflokksins
Til umræðu: Bókun 35 og málstaður Íslands í höndum utanríkisráðherra, brotthvarf Jóns Gnarr úr Viðreisn, stafarugl í skólakerfinu, öryggisátak í Mjóddinni og grunnskólum og fleiri fjölmenningarplástrar, og svo …
Notas do episódio
Til umræðu: Bókun 35 og málstaður Íslands í höndum utanríkisráðherra, brotthvarf Jóns Gnarr úr Viðreisn, stafarugl í skólakerfinu, öryggisátak í Mjóddinni og grunnskólum og fleiri fjölmenningarplástrar, og svo sjálfsmyndarleit Sjálfstæðismanna í tengslum við ýmis slík mál.
Kæru vinir, það er föstudagur og hlaðvarpið hefur göngu sína á nýjan leik. Frá því að ritstjórinn, sem þá var, tók sæti á Alþingi hefur hlaðvarpsframleiðslan ekki náð sér á strik en nú er full ástæða til að snúa aftur til reglulegrar framleiðslu. Við tökum upp þráðinn með sömu einföldu kjörorðin: ást á ættjörðu, ást á sannleika. Það er meira en nóg að ræða um lífið, tilveruna og landsins gagn og nauðsynjar.
Ríkisstjórnin virðist eiga erfitt með að jafna sig eftir Evrópusambandsáfallið og Jón Gnarr er genginn úr Viðreisn. Við gerum grein fyrir þeirri stöðu sem hann hlýtur að hafa verið kominn í gagnvart klíkunni í kringum formanninn og þar kemur erlent hatursrit við sögu! Um leið veltum fyrir okkur hvers vegna utanríkisráðherra virðist áhugasamari um kröfur Brussel en málsvörn Íslands vegna Bókunar 35.
Síðan förum við yfir einkunnakerfið sem á nú að laga með því að skipta út bókstöfum fyrir tölur. Í raun er þó framkvæmd ráðherra öll meingölluð og fær falleinkunn, en þó ekki lægri en fjóra. Við ræðum líka öryggishlið í skólum, opin landamæri og Sjálfstæðisflokk í leit að sjálfum sér.
Að lokum: Hvers vegna fær fólk ekki að nýta fæðingarorlofið sitt? Félagsmálaráðherra er með nýtt svar sem felur í sér nöturlega viðurkenningu á því sem marga hefur lengi grunað, að misréttið er sparnaðaraðgerð.
Viðtal | Brynjar Karl: Sannleikurinn um Breiðholt og vakning þjóðar
Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari og íþróttaleiðtogi ræðir hér um það hvernig beri að gera kröfur til ungs fólks, körfuboltaliðið Aþenu, stöðuna í Breiðholti, ofbeldisþróun þar, fullkominn skort á …
Notas do episódio
Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari og íþróttaleiðtogi ræðir hér um það hvernig beri að gera kröfur til ungs fólks, körfuboltaliðið Aþenu, stöðuna í Breiðholti, ofbeldisþróun þar, fullkominn skort á stefnu og vonlaus samskipti við Reykjavíkurborg.
Alls staðar breytist umræðan! Sigríður Andersen og Kjartan Magnússon.
Í þessum þætti ræðir Snorri Másson ritstjóri við Sigríði Á. Andersen, þingmann Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, og Kjartan Magnússon, ekki borgarfulltrúa, heldur formann Hjálms – ungliðahreyfingar …
Notas do episódio
Í þessum þætti ræðir Snorri Másson ritstjóri við Sigríði Á. Andersen, þingmann Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, og Kjartan Magnússon, ekki borgarfulltrúa, heldur formann Hjálms – ungliðahreyfingar Miðflokksins í Norðausturkjördæmi. Til umfjöllunar eru þau fimm ár sem liðin eru frá upphafi kórónuveirufaraldurs, evrópsk stjórnvöld sem vakna upp við vondan draum þegar málfrelsi er innleitt á samfélagsmiðlum, innflytjendamál og tálsýnin um inngildingu allra, auk ummæla dómsmálaráðherra um að ekki sé hægt að treysta dómstólum.
Ræða: Það er hægt að skipta um trúarbrögð í landinu
Ég flutti erindi á vegum Stúdentafélags Reykjavíkur þann 23. janúar, þar sem ég fjallaði um það hvernig stjórnmálin hegða sér í sífellt auknum mæli eins og trúarbrögð, bæði hér á landi og erlendis. Með öðrum …
Notas do episódio
Ég flutti erindi á vegum Stúdentafélags Reykjavíkur þann 23. janúar, þar sem ég fjallaði um það hvernig stjórnmálin hegða sér í sífellt auknum mæli eins og trúarbrögð, bæði hér á landi og erlendis.
Með öðrum orðum: Hvað annað en hröð trúarleg sinnaskipti hafa leitt til þeirra grundvallarbreytinga sem hafa orðið á ráðandi stjórnmálahugsun á Íslandi á undanförnum árum, hvort sem er í sambandi við viðhorf til þjóðmenningarinnar, tungumálsins eða kynjamála?
Jakob Frímann um svakalegan fund, Reykjavíkurborg og þriðju leiðina
Jakob Frímann Magnússon goðsögn og þingmaður Miðflokksins ræðir hér stjórnmálin, allt frá dapurri upplifun sinni af Reykjavíkurborg á sínum tíma og til nauðsynlegrar uppbyggingar sem er fram undan í íslensku …
Notas do episódio
Jakob Frímann Magnússon goðsögn og þingmaður Miðflokksins ræðir hér stjórnmálin, allt frá dapurri upplifun sinni af Reykjavíkurborg á sínum tíma og til nauðsynlegrar uppbyggingar sem er fram undan í íslensku samfélagi. Ekki er hjá því komist að drepa niður fæti á mikilvægum stöðum í sögunni, ferðalög Stuðmanna til Kína og Rússlands, Kalda stríðið og Ísland í fyrri tíð.
Últrafrjálshyggja eða hardcore kommúnismi - eða þriðja leiðin? Eina málið er að sjá til þess að Reykjavíkurstjórnin verði ekki landsstjórnin, segir Jakob Frímann.
Ég býð mig fram
Risatilkynning: „Ég tilkynni hér með að ég sækist eftir oddvitasæti á lista Miðflokksins í Reykjavík í komandi alþingiskosningum.“
Viðtal | Jón Gnarr um Íslendinga, hugarfar, skynsegin ráðherra og grín
Hér er rætt við Jón Gnarr grínista sem nú hyggur á þingframboð undir merkjum Viðreisnar. Við ræðum tímann sem borgarstjóri, muninn á stjórnmálaþátttöku hans þá og nú, woke-heilavírusinn, útlendingamálin …
Notas do episódio
Hér er rætt við Jón Gnarr grínista sem nú hyggur á þingframboð undir merkjum Viðreisnar. Við ræðum tímann sem borgarstjóri, muninn á stjórnmálaþátttöku hans þá og nú, woke-heilavírusinn, útlendingamálin, hernaðarbandalög og varnarbandalög, sögu styrjalda, eðli gríns og menntamálin þegar Jón verður fyrsti jaðarsetti skynsegin ráðherrann.
Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Nettó, Myntkaup, Reykjavík Foto og Happy Hydrate.
Viðtal | Heiðar Guðjónsson um þjóðerni, auðlindir, fjölmiðlarekstur, fjárfestingar og Peter Thiel
Í viðtali vikunnar er birt á ný samtal við Heiðar Guðjónsson fjárfesti frá því í júlí 2023. Viðtalið birtist í hlaðvarpi Skoðanabræðra, Snorra Mássonar og Bergþórs Mássonar. Umræðuefni eru m.a: bjartsýni …
Notas do episódio
Í viðtali vikunnar er birt á ný samtal við Heiðar Guðjónsson fjárfesti frá því í júlí 2023. Viðtalið birtist í hlaðvarpi Skoðanabræðra, Snorra Mássonar og Bergþórs Mássonar.
Umræðuefni eru m.a: bjartsýni, þjóðernisofsi, hagfræði, ævintýri, báknið, hægrimennska, fjárfestingar í listum, Peter Thiel, framtíðin og Guð veit hvað annað.
Viðtal vikunnar er í samstarfi við Reykjavík Foto, Myntkaup og Happy Hydrate.
Viðtal | Sigmar Guðmundsson um veikleika krónunnar, ESB-drauminn, mannúðarpælinguna og fíkniefni
Sigmar Guðmundsson var fjölmiðlamaður um áratugaskeið og sneri sér svo að stjórnmálum fyrir Viðreisn. Stundum kallaður best klæddi Píratinn. Hér er rætt um fíknivandann, áfengi, Evrópusambandið, ríkisfjármál …
Notas do episódio
Sigmar Guðmundsson var fjölmiðlamaður um áratugaskeið og sneri sér svo að stjórnmálum fyrir Viðreisn. Stundum kallaður best klæddi Píratinn. Hér er rætt um fíknivandann, áfengi, Evrópusambandið, ríkisfjármál, tungumálið, innflytjendur, flóttamenn, íslensku krónuna, Jón Gnarr, Viðreisn, stjórnmálastarfið, fjölmiðla, RÚV og almennt hina pragmatísku nálgun.
Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Myntkaup.
Fréttir vikunnar | Jakob Birgisson um vafasöm stjórnmálatákn, þvottavélar og efnahag uppistandara
Jakob Birgisson uppistandari sest við borð ritstjórans og ræðir allt frá brottvísun flóttamanna og málefni ríkisstjórnarinnar til sálarástands ungmenna, áfengis í búðir, þvottavéla, nýs merkis Alþingis, nýrrar …
Notas do episódio
Jakob Birgisson uppistandari sest við borð ritstjórans og ræðir allt frá brottvísun flóttamanna og málefni ríkisstjórnarinnar til sálarástands ungmenna, áfengis í búðir, þvottavéla, nýs merkis Alþingis, nýrrar stjórnarsetu Brynjars Níelssonar og margs annars.
Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto, Myntkaup og Happy Hydrate.
Viðtal | Diljá Mist um hægrisveiflu, fjölskylduna, íslenska fánann og stríðið á milli góðs og ills
Diljá Mist Einarsdóttir er hæstaréttarlögmaður og alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Hér er rætt um ríkisfjármál, þjóðerni, frelsi, hægrisveiflu, stöðu Sjálfstæðisflokksins, efasemdir Diljár um Samfylkingu og …
Notas do episódio
Diljá Mist Einarsdóttir er hæstaréttarlögmaður og alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Hér er rætt um ríkisfjármál, þjóðerni, frelsi, hægrisveiflu, stöðu Sjálfstæðisflokksins, efasemdir Diljár um Samfylkingu og Miðflokk, stríðsástand og góðu og vondu kallana í heiminum, fjölskyldumál, opinbera starfsmenn og tillögur Diljár að skattaafsláttum vegna barneigna. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Myntkaup.
Viðtal | Rúnar Helgi um ringlaða karla, taugaáfall í #MeToo og skoðanakúgun
Rúnar Helgi Vignisson er rithöfundur, þýðandi og prófessor í ritlist. Um það leyti sem #MeToo-byltingin skall á fékk hann taugaáfall eftir neikvæð viðbrögð við ýmsum greinarskrifum, dró sig í hlé og fór að …
Notas do episódio
Rúnar Helgi Vignisson er rithöfundur, þýðandi og prófessor í ritlist. Um það leyti sem #MeToo-byltingin skall á fékk hann taugaáfall eftir neikvæð viðbrögð við ýmsum greinarskrifum, dró sig í hlé og fór að hugsa sinn gang. Bókin Þú ringlaði karlmaður: Tilraun til kerfisuppfærslu er afurð þess ferlis, þar sem hann rekur sína sögu sem karlmanns í íslensku samfélagi. Viðtalið er opinskátt og persónulegt spjall um skoðanakúgun, háskóla, bókmenntir, stóra bíla, föðurhlutverkið og feðraveldið.
Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ Þorgrímsson, Happy Hydrate og Myntkaup.
Viðtal | Björn Jón Bragason um hnignun, agaleysi, hrun klassískra mennta og sjálfsmynd þjóðar
Björn Jón Bragason er sagnfræðingur, lögfræðingur og rithöfundur og einkar afkastamikill á öllum þessum sviðum. Hér í þessu viðtali er um auðugan garð að grisja. Hrun Sjálfstæðisflokksins og borgaralegra …
Notas do episódio
Björn Jón Bragason er sagnfræðingur, lögfræðingur og rithöfundur og einkar afkastamikill á öllum þessum sviðum. Hér í þessu viðtali er um auðugan garð að grisja. Hrun Sjálfstæðisflokksins og borgaralegra stjórnmála almennt, ólýðræðisleg ríkisvæðing stjórnmálaflokkanna, fjármálasaga Íslands, sjálfsmynd þjóðar á hnignunarskeiði í menntamálum, þjóðarstoltið, félagsleg hnignun á Vesturlöndum, mikilvægi málvöndunar, orwellísk aðför að tjáningarfrelsinu, ástandið í háskólum landsins og ósköp margt fleira. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Myntkaup, Happy Hydrate og Reykjavík Foto.
Viðtal | Aron Kristinn um TikTok, peninga, sjálfshjálp og poppstjörnulífið
Aron Kristinn Jónasson tónlistarmaður og viðskiptafræðingur er einkar áberandi á samfélagsmiðlum þessi dægrin og segir í viðtali við ritstjórann að með því sé hann bæði að markaðssetja sig en einnig hjálpa …
Notas do episódio
Aron Kristinn Jónasson tónlistarmaður og viðskiptafræðingur er einkar áberandi á samfélagsmiðlum þessi dægrin og segir í viðtali við ritstjórann að með því sé hann bæði að markaðssetja sig en einnig hjálpa fólki. Hér tölum við um allt frá TikTok og poppstjörnulífinu til sjálfshjálparbóka og trúarinnar.
Viðtal vikunnar er í samstarfi við Reykjavík Foto, Happy Hydrate, Myntkaup og Þ. Þorgrímsson.
Fréttir vikunnar | Aðlögun innflytjenda, fyrirlestrar frjálslyndra fjölmiðla og sögulegt símaat
Í fréttum vikunnar að þessu sinni er farið yfir allt frá mislýðræðislegum aðgerðum vestrænna stjórnvalda, mórölskum fyrirlestrum meginstraumsmiðla um ákveðin mál og til aðlögunar innflytjenda í gegnum …
Notas do episódio
Í fréttum vikunnar að þessu sinni er farið yfir allt frá mislýðræðislegum aðgerðum vestrænna stjórnvalda, mórölskum fyrirlestrum meginstraumsmiðla um ákveðin mál og til aðlögunar innflytjenda í gegnum viðskipti. Einnig rifjar ritstjórinn upp sögulegt símaat sem tekið var upp í hlaðvarpi hér um árið. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Myntkaup, Þ. Þorgrímsson og Happy Hydrate. Hér má nálgast viðtalið á vef Morgunblaðsins: https://www.mbl.is/mogginn/dagmal/innskraning/?redirect=/mogginn/dagmal/thjodmalin/251780/%3F_t%3D1723759196.5559003 Hér má nálgast þátt Skoðanabræðra um Nassim Nicholas Taleb: https://www.patreon.com/posts/327-allt-um-einn-110181893?utm_medium=clipboard_copy&utm_source=copyLink&utm_campaign=postshare_creator&utm_content=join_link
Fréttir vikunnar | Þú ert líklega í sértrúarsöfnuði
Hluti þessa þáttar er efni úr þætti frá 8. febrúar 2024. Þar sagði: Í fréttum vikunnar er fjallað um trúarlegt eðli stjórnmála okkar tíma, vanþakkláta þingmenn í nýju húsnæði, pólitíska gjá á milli ungra karla …
Notas do episódio
Hluti þessa þáttar er efni úr þætti frá 8. febrúar 2024. Þar sagði: Í fréttum vikunnar er fjallað um trúarlegt eðli stjórnmála okkar tíma, vanþakkláta þingmenn í nýju húsnæði, pólitíska gjá á milli ungra karla og ungra kvenna, gaslýsingar RÚV, kúgunartilburði í Evrópusambandinu og möguleikann á að loftslagsprestar taki yfir biskupsembættið.
Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Happy Hydrate og Myntkaup.
Viðtal | Dóri DNA um stríðin sem skipta máli, karlmennsku og woke vs. hægrið
Í þessu mikilvæga viðtali við Halldór Halldórsson Laxness rithöfund og grínista er rætt um allt frá peningum og karlmennsku til blaðamennskunnar, fjölmiðlanna og samfélagsmiðlanna. Farið er yfir stríðin sem …
Notas do episódio
Í þessu mikilvæga viðtali við Halldór Halldórsson Laxness rithöfund og grínista er rætt um allt frá peningum og karlmennsku til blaðamennskunnar, fjölmiðlanna og samfélagsmiðlanna. Farið er yfir stríðin sem skipta máli, tilfinningar Dóra við að lesa X, framtíð grínsins og ótalmargt fleira afar spennandi.
Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Þ. Þorgrímsson.
Viðtal | Eyþór Arnalds um regluvæðingu, jafnrétti, wokeisma, Davíð Oddsson og vitvélar
Í viðtali vikunnar fer ritstjórinn um víðan völl ásamt Eyþóri Arnalds stjórnmálamanni, frumkvöðli og listamanni. Þessa dagana er Eyþór með hugann við tónlist, gervigreind og framtíð landsins og hefur frá afar …
Notas do episódio
Í viðtali vikunnar fer ritstjórinn um víðan völl ásamt Eyþóri Arnalds stjórnmálamanni, frumkvöðli og listamanni. Þessa dagana er Eyþór með hugann við tónlist, gervigreind og framtíð landsins og hefur frá afar mörgu að segja um allt frá málefnum sveitarfélaga til framfara í líftækni. Annað sem verður okkur að umtalsefni er regluvæðing innan ESB, menntamál, Davíð Oddsson og verðbólgan.
Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Happy Hydrate og Myntkaup.
Fréttir vikunnar | Raunveruleg upptök kórónuveirunnar (viðtal v. Matt Ridley metsöluhöfund)
Í fréttum vikunnar er rætt við Matthew Ridley. Matt er blaðamaður, viðskiptamaður og stjórnmálamaður, en fyrst og fremst margverðlaunaður metsöluhöfundur sem hefur selt meira en milljón bækur á fleiri en …
Notas do episódio
Í fréttum vikunnar er rætt við Matthew Ridley. Matt er blaðamaður, viðskiptamaður og stjórnmálamaður, en fyrst og fremst margverðlaunaður metsöluhöfundur sem hefur selt meira en milljón bækur á fleiri en þrjátíu tungumálum. Ridley er menntaður dýrafræðingur, með doktorsgráðu í heimspeki og nýjasta bók hans er Viral, the Search for the Origin of Covid-19. Ridley hallast að því að veiran eigi upptök sín í tilraunastofu og í þessum þætti færir hann rök fyrir því. Við ræðum margt annað við Matt Ridley, stöðu Íslands og Bretlands í evrópsku samhengi, við ræðum Evrópusambandið, um misfellur í frjálslyndu lýðræði nútímans og margt, margt fleira.
Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Myntkaup.
Fréttir vikunnar | Réttindin sem ógna lýðræðinu, hópspjöll og stjörnuspeki
Í fréttum vikunnar er rýnt í umfjöllun fjölmiðla um þá ógn sem steðjar að frjálslyndu lýðræði vegna uppgangs íhaldssamra hægriafla. Bent er á hvernig glæný „réttindi“ hvers konar eru notuð sem yfirvarp til að …
Notas do episódio
Í fréttum vikunnar er rýnt í umfjöllun fjölmiðla um þá ógn sem steðjar að frjálslyndu lýðræði vegna uppgangs íhaldssamra hægriafla. Bent er á hvernig glæný „réttindi“ hvers konar eru notuð sem yfirvarp til að ganga á önnur eldri réttindi. Þá er vikið að netöryggi Íslendinga og hópspjöllum og loks eru menn að opna hjarta sitt hér fyrir hinni öldnu vísindagrein stjörnuspekinni.
Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto, Happy Hydrate og Myntkaup.
Fréttir vikunnar | Skaðmenntun, lýðræðið og Biden (m. Jakobi Birgissyni og Bergþóri Ólasyni)
Mikilvæg mál eru á dagskrá í fréttum vikunnar, kosningabaráttan í Bandaríkjunum, fylgi flokka hér heima, uppgangur Miðflokksins, ferðaþjónustan, þjóðarhugtakið og gildi Íslendinga, EM og margt annað. Gestir eru …
Notas do episódio
Mikilvæg mál eru á dagskrá í fréttum vikunnar, kosningabaráttan í Bandaríkjunum, fylgi flokka hér heima, uppgangur Miðflokksins, ferðaþjónustan, þjóðarhugtakið og gildi Íslendinga, EM og margt annað. Gestir eru Jakob Birgisson grínisti og Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins.
Fréttir vikunnar eru í boði Reykjavík Foto, Myntkaup, Þ. Þorgrímsson og Happy Hydrate.
Fréttir vikunnar | Bakslag í woke fjárfestingum (með Bjarna Herrera sjálfbærniráðgjafa)
Þessi þáttur birtist fyrst 28. júní en datt út um hríð Í fréttum vikunnar fáum við til okkar manninn á bak við hið kynjaða skuldabréf ríkissjóðs, Bjarna Herrera sjálfbærnifræðing og rithöfund, sem var að gefa …
Notas do episódio
Þessi þáttur birtist fyrst 28. júní en datt út um hríð
Í fréttum vikunnar fáum við til okkar manninn á bak við hið kynjaða skuldabréf ríkissjóðs, Bjarna Herrera sjálfbærnifræðing og rithöfund, sem var að gefa út nýja bók. Við förum yfir bakslag í „ESG“-fjárfestingum, þar sem fólk er hætt að vilja fjárfesta í sjálfbærnimerktum verkefnum sem skila slæmri arðsemi. Allir í sjokki? Bjarni hefur enn trú á verkefninu.
Við víkjum einnig að áframhaldandi fylgistapi Sjálfstæðisflokksins og svo að Mannréttindastofnun Íslands. Líklega eru þetta ekki ótengd mál. Loks mál Julian Assange og þýðing þess fyrir viðhorf okkar til eigin stjórnvalda.
Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson og Myntkaup.
Fréttir vikunnar | Valdarán millistjórnandans og PC-væðing fyrirtækja
Hluti þessa þáttar er endursýnt efni frá 16. febrúar á þessu ári. Þar sagði: Í fréttum vikunnar er farið yfir „taktlaust“ grínmyndband frá Ungum sjálfstæðismönnum, valdarán millistjórnenda í skráðum félögum …
Notas do episódio
Hluti þessa þáttar er endursýnt efni frá 16. febrúar á þessu ári. Þar sagði: Í fréttum vikunnar er farið yfir „taktlaust“ grínmyndband frá Ungum sjálfstæðismönnum, valdarán millistjórnenda í skráðum félögum, hinseginvottun og „fjölbreytileikavegferð“ Ölgerðarinnar, leikskólamál í Reykjavík, starfsmannabyltingar, árangur Kanye West þrátt fyrir allt og allt og sitthvað fleira.
Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Happy Hydrate og Myntkaup.
Fréttir vikunnar | Vinstrisinnuð öfgahægrisveifla og strákar á móti „stelpum og stálpum“
Fréttir vikunnar eru sendar út frá Siglufirði enda stefnir ritstjórinn á að ganga í það heilaga um helgina. Umræðuefni: Sigurganga róttækra íhaldsmanna, lýðræði í ESB, kúgun drengja í skólakerfinu, gervigreind …
Notas do episódio
Fréttir vikunnar eru sendar út frá Siglufirði enda stefnir ritstjórinn á að ganga í það heilaga um helgina. Umræðuefni: Sigurganga róttækra íhaldsmanna, lýðræði í ESB, kúgun drengja í skólakerfinu, gervigreind hjá Apple og umfjöllun um kjarna sósíalismans.
Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Myntkaup, Þ. Þorgrímsson, Happy Hydrate og Reykjavík Foto.
Fréttir vikunnar | Rök gegn virkjunum, íslenskir hagsmunir og vopnasendingar (með Sigríði Á. Andersen)
Í fréttum vikunnar er fyrst farið stuttlega yfir umræðu um kynhlutlaust mál og svo farið í viðtal við Sigríði Á. Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra um allt frá nýkjörnum forseta, umræðu um vopnasendingar …
Notas do episódio
Í fréttum vikunnar er fyrst farið stuttlega yfir umræðu um kynhlutlaust mál og svo farið í viðtal við Sigríði Á. Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra um allt frá nýkjörnum forseta, umræðu um vopnasendingar, efasemdir um orkuskipti, bókun 35, útlendingamál og stöðu íslenska hægrisins.
Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Myntkaup, Reykjavík Foto og Happy Hydrate.
Fréttir vikunnar | Vanhæft ríki, gaslýsingar Landsbankans og nauðsynlegar upplýsingar um kosningar
Í fréttum vikunnar er farið yfir áhrif misheppnaðra inngripa ríkisvalds í markaði, Landsbankann á TikTok en fyrst og fremst er farið vítt og breitt um sviðið í kosningabáráttunni. Jakob Birgisson grínisti og …
Notas do episódio
Í fréttum vikunnar er farið yfir áhrif misheppnaðra inngripa ríkisvalds í markaði, Landsbankann á TikTok en fyrst og fremst er farið vítt og breitt um sviðið í kosningabáráttunni. Jakob Birgisson grínisti og álitsgjafi kemur að borðinu með verðugar pælingar. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Myntkaup, Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og loks Rafstorm
Fréttir vikunnar | Hilmar Veigar Pétursson forstjóri CCP um Ísland, tölvuleiki og framtíðina
Í fréttum vikunnar er rætt við engan annan en Hilmar Veigar Pétursson frumkvöðul og forstjóra CCP, sem stendur þessa dagana í ströngu við að koma út glænýjum tölvuleik. Í viðtalinu er rætt um þjóðríkið sem …
Notas do episódio
Í fréttum vikunnar er rætt við engan annan en Hilmar Veigar Pétursson frumkvöðul og forstjóra CCP, sem stendur þessa dagana í ströngu við að koma út glænýjum tölvuleik. Í viðtalinu er rætt um þjóðríkið sem fyrirbæri, framtíð gjaldmiðla í stafræna heiminum, verðmæt störf á Íslandi, foreldra í snjallsímum og framtíðarplön hins öfluga íslenska tölvuleikjafyrirtækis.
Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto, Myntkaup og loks Rafstorm.
Aqui estão os 40 episódios mais recentes de 99. Os mais antigos estão no feed do podcast.
Podcasts parecidos
Mais podcasts de NotíciasEste podcast é seu?
Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.







