Pular para o conteúdo
Þú veist betur

Þú veist betur

Episódio 1Öndun5 de fevereiro de 2023 · 55 min
Episódios
142
Formato
Série – ouça desde o começo
Último episódio
4 jul 2026

Sobre o podcast

Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja. Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna. Umsjón: Atli Már Steinarsson.

Episódios 142

  1. Kapítalismi

    54 minEpisódio 142

    Hvað er kapítalismi í raun og hvers vegna er svo erfitt að tala um hann án þess að taka pólitíska afstöðu? Í þessum þætti kemur Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor til að rekja sögu kerfisins sem mótar daglegt …

    Notas do episódio
    Hvað er kapítalismi í raun og hvers vegna er svo erfitt að tala um hann án þess að taka pólitíska afstöðu? Í þessum þætti kemur Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor til að rekja sögu kerfisins sem mótar daglegt líf okkar. Frá Adam Smith og iðnbyltingunni, í gegnum kommúnismann sem reis upp sem andsvar, og baráttuna gegn auðhringjum eins og Standard Oil í upphafi 20. aldar. Gylfi fer yfir hvernig Ísland og Vesturlönd endaðu með blandað hagkerfi kapítalisma ásamt velferðarkerfi og í lokin ræðum við áhyggjuefni nútímans, vald risafyrirtækja yfir samfélagsumræðunni, takmarkaðar auðlindir jarðar, og hvort kerfið sem við búum við í dag eigi sér framtíð. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Gylfi Magnússon
  2. Sjórinn - 2. hluti: Breytingar og framtíðin

    47 minEpisódio 141

    Hafið er að hlýna og súrna en hvernig vitum við hvað er eðlilegur breytileiki og hvað er afleiðing okkar eigin losunar? Í seinni hluta samtals míns við Steingrím Jónsson, sérfræðing hjá Hafrannsóknastofnun …

    Notas do episódio
    Hafið er að hlýna og súrna en hvernig vitum við hvað er eðlilegur breytileiki og hvað er afleiðing okkar eigin losunar? Í seinni hluta samtals míns við Steingrím Jónsson, sérfræðing hjá Hafrannsóknastofnun, skoðum við þessar tvær breytingar í hafinu og hvers vegna þær eru ekki það sama, þó þær eigi sér sömu rót. Steingrímur rifjar upp síldarbrestinn 1965 og hvernig erfitt getur verið að greina slíkan náttúrulegan breytileika frá hnattrænni hlýnun af manna völdum. Við förum yfir sérstöðu Íslands í djúpsjávarmyndun heimshafanna, hvað gerðist þegar fyrsta haffræðiferðin var farin árið 1872, og hversu lítill hluti hafsins hefur í raun verið rannsakaður. Í lokin veltum við fyrir okkur hvort Íslendingar séu að forgangsraða hafrannsóknum í samræmi við það hversu mikið þjóðin á undir auðugu lífríki sjávar. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Steingrímur Jónsson
  3. Sjórinn - 1. hluti: Hvernig hafið virkar

    40 minEpisódio 140

    Sjórinn þekur 71% af yfirborði jarðar, er að meðaltali 4000 metra djúpur, og við skiljum hann verr en yfirborð Mars. Getur þetta verið? Í næstu tveim þáttum fæ ég til mín Steingrím Jónsson, sérfræðing hjá …

    Notas do episódio
    Sjórinn þekur 71% af yfirborði jarðar, er að meðaltali 4000 metra djúpur, og við skiljum hann verr en yfirborð Mars. Getur þetta verið? Í næstu tveim þáttum fæ ég til mín Steingrím Jónsson, sérfræðing hjá Hafrannsóknastofnun og prófessor við Háskólann á Akureyri, til að fara yfir grunneðlisfræði þessa risastóra og dularfulla fyrirbæris: hvaðan vatnið kom upphaflega, hvers vegna sjórinn er saltur, og hvernig þrýstingurinn á botninum er svo gríðarlegur að mælitæki þurfa að þola hann sérstaklega. Steingrímur fer með mig í gegnum hafstraumana, hvað drífur Golfstrauminn, hvernig jarðsnúningurinn sveigir hann, og hvers vegna djúpsjávarmyndun við Íslandsstrendur er einstök á heimsvísu. Við endum á því hvernig orka og næringarefni flæða um þetta risastóra kerfi, og hvers vegna stór hluti hafsbotnsins er einfaldlega flatur eyðimörk. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Steingrímur Jónsson
  4. Bensín

    53 minEpisódio 139

    Olía er svarta, þykka efnið sem kemur djúpt úr jörðinni og endar einhvern veginn í öllu sem við gerum en hvernig gerist það í raun? Í þessum þætti fæ ég til mín Brynjólf Stefánsson, sem starfaði í áratug í …

    Notas do episódio
    Olía er svarta, þykka efnið sem kemur djúpt úr jörðinni og endar einhvern veginn í öllu sem við gerum en hvernig gerist það í raun? Í þessum þætti fæ ég til mín Brynjólf Stefánsson, sem starfaði í áratug í olíuviðskiptum hjá Morgan Stanley í New York og vinnur núna hjá Íslandssjóðum, til að fara yfir alla leiðina. Frá myndun olíu djúpt í jarðlögum, í gegnum aldargamla valdabaráttu um olíulindir, og að dælunni á bensínstöðinni heima. Við ræðum hvers vegna heimsmarkaðsverð hreyfist svona hratt, hvað OPEC gerir í raun og veru, og hversu háð Ísland er þessari auðlind þrátt fyrir alla grænu orkuna okkar. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Brynjólfur Stefánsson
  5. Augun

    55 minEpisódio 138

    Hvernig fer sólarljós, milljón kílómetra leið í gegnum tómarúm, og endar sem mynd af andlitinu þínu? Í þessum þætti fáum við til okkar Einar Stefánsson augnlækni og lífeðlisfræðing, sem hefur starfað í faginu í …

    Notas do episódio
    Hvernig fer sólarljós, milljón kílómetra leið í gegnum tómarúm, og endar sem mynd af andlitinu þínu? Í þessum þætti fáum við til okkar Einar Stefánsson augnlækni og lífeðlisfræðing, sem hefur starfað í faginu í hálfa öld, til að fara í gegnum augað frá grunni: hvernig samsetta augað okkar varð til í þróunarsögunni, hvers vegna 20/20-sjón er í raun bara félagslega ákveðinn staðall, og hvernig letiauga myndast hjá börnum sem ekki er hægt að laga eftir tíu ára aldur. Einar segir sögu af því hvernig gerviaugasteinninn varð til eftir seinni heimsstyrjöldina og af sovéska augnlækninum sem skar nærsýni úr augum með hníf. Í lokin ræðum við stærstu áskoranir augnheilsu í heiminum í dag,þar á meðal sykursýki, sem er að verða stærsta orsök blindu á jörðinni og hvers vegna framfarirnar í faginu síðustu áratugi hafa verið svo miklar. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Einar Stefánsson
  6. Kindur

    55 minEpisódio 137

    Íslenska kindin er er svo samofin íslenskri sjálfsmynd að við hugsum varla um hana. En hvað er það í raun sem gerir íslenska sauðkindina sérstaka, og hvernig hefur hún í raun haldið lífinu í þessari þjóð frá …

    Notas do episódio
    Íslenska kindin er er svo samofin íslenskri sjálfsmynd að við hugsum varla um hana. En hvað er það í raun sem gerir íslenska sauðkindina sérstaka, og hvernig hefur hún í raun haldið lífinu í þessari þjóð frá landnámi? Í þessum þætti fæ ég til mín Ólaf Dýrmundsson, sérfræðing með doktorspróf í greininni og áratuga feril hjá Bændasamtökunum, til að fara yfir uppruna norður-evrópska stuttrófustofnsins sem íslenska féð er af og þá staðreynd að við Íslendingar höfum varðveitt stærsta erfðahópinn af honum í öllum heiminum. Ólafur segir frá forystufénu, dýrum með atferli sem finnst hvergi annars staðar á jörðinni, og fer með mig í gegnum heilt æviskeið kindarinnar allt frá fengitíð til sláturtíðar. Í lokin veltum við fyrir okkur framtíð sauðfjárræktarinnar, hvort ullin gæti leyst gerviefni af hólmi, hvernig fjörubeit dregur úr metanlosun, og hvers vegna erlendir aðilar eru farnir að sækjast eftir íslensku erfðaefni. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Ólafur Dýrmundsson
  7. Fráveitur

    49 minEpisódio 136

    Hvað gerist eiginlega þegar maður sturtar niður? Hvert fer allt þetta vatn eiginlega? Í þessum þætti fæ ég til mín Laufeyju Lilju Ágústsdóttur, fagstjóra vatnsmiðla hjá Veitum, til að rekja sögu fráveitunnar …

    Notas do episódio
    Hvað gerist eiginlega þegar maður sturtar niður? Hvert fer allt þetta vatn eiginlega? Í þessum þætti fæ ég til mín Laufeyju Lilju Ágústsdóttur, fagstjóra vatnsmiðla hjá Veitum, til að rekja sögu fráveitunnar allt frá rómversku gyðjunni Cloacina og risastóru holræsunum í Róm, til þess hvernig Reykjavík breyttist úr opnum skólprennum og útikömrum í það kerfi sem ber okkar úrgang ósýnilega í dag. Laufey segir frá Knud Zimsen, fyrsta verkfræðingnum sem flutti hugmyndina heim og varð síðar borgarstjóri, og þeirri hörðu andstöðu sem fyrstu fráveituframkvæmdirnar mættu hjá íbúum. Við förum yfir hvernig kerfið virkar í dag varðandi sjálfrennsli, dælustöðvar, hreinsun og endum á stærstu áskorunum framtíðarinnar: hvers vegna blandað kerfi ofanvatns og skólps er vandamál, hvað Evrópusambandið krefst af okkur í þrepahreinsun, og hvernig auknir úrkomutoppar af völdum veðurfarsbreytinga setja allt kerfið á reynslu. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Laufey Lilja Ágústsdóttir
  8. Fyrri heimstyrjöldin - 2.hluti: Persónur og leikendur

    40 minEpisódio 135

    Hverjir eru karakterarnir á bak við stærstu ákvarðanirnar í fyrri heimsstyrjöldinni? Ólíkt seinni heimsstyrjöldinni, þar sem Churchill, Roosevelt, Stalín og Hitler eru okkur svo kunnir er erfiðara að festa …

    Notas do episódio
    Hverjir eru karakterarnir á bak við stærstu ákvarðanirnar í fyrri heimsstyrjöldinni? Ólíkt seinni heimsstyrjöldinni, þar sem Churchill, Roosevelt, Stalín og Hitler eru okkur svo kunnir er erfiðara að festa hendur á því hverjir réðu örlögum heimsins í fyrri stríðinu. Í seinni hluta samtals míns við Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðing tökum við þetta fyrir, og förum þaðan í Versalasamninginn, þann biturleika sem hann sáði í Þýskalandi, og hvernig fasisminn og nasisminn náðu rótum í þeim jarðvegi. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Gunnar Þór Bjarnason
  9. Fyrri heimstyrjöldin - Fyrri hluti: Upphaf og ástæður

    50 minEpisódio 134

    Heimsstyrjöld sem þurfti ekki að skella á, en gerði það nú samt. Í þessum þætti fæ ég til mín Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðing til að fara yfir Evrópu árið 1914: stórveldin, bandalagskerfið, og hvernig morðið á …

    Notas do episódio
    Heimsstyrjöld sem þurfti ekki að skella á, en gerði það nú samt. Í þessum þætti fæ ég til mín Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðing til að fara yfir Evrópu árið 1914: stórveldin, bandalagskerfið, og hvernig morðið á ríkiserfingja Austurríkis-Ungverjalands í Sarajevo varð að heimsstyrjöld á rúmum mánuði. Við förum í skotgrafirnar á vesturvígstöðvunum, austur til Rússlands og byltingarins sem breytti gangi stríðsins, og að þeim atburðum sem á endanum drógu Bandaríkjamenn inn í átökin. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Gunnar Þór Bjarnason
  10. Borgarlínan

    44 minEpisódio 133

    Hvers vegna er Reykjavík ein af fáum borgum á Norðurlöndum sem byggði sig algerlega upp í kringum einkabílinn og hvað kostar það að breyta því núna? Í þessum þætti fæ ég til mín Ólöfu Örvarsdóttur, sviðsstjóra …

    Notas do episódio
    Hvers vegna er Reykjavík ein af fáum borgum á Norðurlöndum sem byggði sig algerlega upp í kringum einkabílinn og hvað kostar það að breyta því núna? Í þessum þætti fæ ég til mín Ólöfu Örvarsdóttur, sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, og Þorstein R. Hermannsson, framkvæmdastjóra Betri samgangna, til að rekja sögu Borgarlínunnar. Hvernig svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins fyrir rúmum áratug markaði fyrstu skrefin, hvers vegna skipulagsákvörðun sjöunda áratugarins um að "þar til allir fullorðnir eigi bíl" mótaði borgina sem við búum í í dag, og hvers vegna BRT-kerfi (hraðvagnakerfi) varð fyrir valinu fram yfir léttlest. Þau fara yfir hinn víðtæka misskilning að verkefnið sé "gegn einkabílnum", þegar helmingur fjármagnsins í samgöngusáttmálanum fer í raun til vegaframkvæmda og við endum á tímalínunni: hvenær fyrstu stöðvarnar opna, og hvenær Borgarlínan verður að fullu komin í gagnið. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælendur: Ólöf Örvarsdóttir og Þorsteinn R. Hermannsson
  11. Einar Jónsson

    1 h 21 minEpisódio 132

    Einar Jónsson var fyrsti myndhöggvari þjóðarinnar, en hann var líka málari og gerði fjölmörg tvívíð verk. List hans er táknræn og stundum torskilin – og hann lifði að mörgu leyti í eigin heimi. Í þetta skiptið …

    Notas do episódio
    Einar Jónsson var fyrsti myndhöggvari þjóðarinnar, en hann var líka málari og gerði fjölmörg tvívíð verk. List hans er táknræn og stundum torskilin – og hann lifði að mörgu leyti í eigin heimi. Í þetta skiptið skoðum við hver Einar var, hvað hann vildi segja með verkunum sínum, og hvers vegna list hans vekur enn spurningar og áhuga. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Alma Dís Kristinsdóttir
  12. Næringarfræði

    54 minEpisódio 131

    Við borðum öll. Oftar en einu sinni á dag, ef við erum heppin. En hvernig ákveðum við hvað fer ofan í okkur? Er það smekkur? Vaninn? Hráefnisverð? Eða eitthvað sem amma sagði einu sinni? Í þessum þætti ætlum …

    Notas do episódio
    Við borðum öll. Oftar en einu sinni á dag, ef við erum heppin. En hvernig ákveðum við hvað fer ofan í okkur? Er það smekkur? Vaninn? Hráefnisverð? Eða eitthvað sem amma sagði einu sinni? Í þessum þætti ætlum við að velta fyrir okkur næringarfræði, ekki bara sem lista yfir vítamín og steinefni, heldur sem fræðigrein sem hefur mótað samfélagið, matarmenningu og jafnvel pólitík. Ég fékk Bryndísi Evu Birgisdóttur til mín, næringarfræðing sem hefur skoðað þetta frá öllum hliðum. Og við ræðum allt frá skyr og slátri yfir í fæðubót og ofgnótt. Hvað vitum við í raun um það sem við borðum? Og hvernig lærum við að borða betur án þess að fara í vitleysu? Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Bryndís Eva Birgisdóttir
  13. Eyrun

    55 minEpisódio 130

    Eyrun eru ekki bara það sem haldast við sólgleraugun eða hvað sem við klæðum í skart. Þau eru hliðin að heimi hljóðsins. Við tökum þeim gjarnan sem sjálfsögðum hlut, en þau eru í stöðugri vinnu: greina tal …

    Notas do episódio
    Eyrun eru ekki bara það sem haldast við sólgleraugun eða hvað sem við klæðum í skart. Þau eru hliðin að heimi hljóðsins. Við tökum þeim gjarnan sem sjálfsögðum hlut, en þau eru í stöðugri vinnu: greina tal, veiða ískur og melódíur, halda jafnvægi og vara okkur við hættum. Í þessum þætti skoðum við hvernig eyrun virka, hvernig þau eru byggð upp og hvað þau þurfa til að halda áfram að þjóna okkur vel. Við ræðum sögu, nútíð og framtíð eyrnanna og hvernig við getum farið betur með þetta vanmetna en ótrúlega mikilvæga líffæri. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Einar Hjaltested
  14. Súrdeig

    51 minEpisódio 129

    Það er eitthvað dularfullt við súrdeig. Þetta lifandi efni sem þarf að næra, klappa og fylgjast með eins og það sé gæludýr. Það andar, bólgnar út og deyr ef maður sinnir því ekki. Sumir elska það, aðrir fá …

    Notas do episódio
    Það er eitthvað dularfullt við súrdeig. Þetta lifandi efni sem þarf að næra, klappa og fylgjast með eins og það sé gæludýr. Það andar, bólgnar út og deyr ef maður sinnir því ekki. Sumir elska það, aðrir fá nældu bara við tilhugsunina. Í þessum þætti ætlum við að skoða hvað súrdeig er eiginlega, hvaðan það kemur, hvernig það virkar og af hverju fólk er svona heltekið af því. Ég fékk Ragnheiði Maísól Sturludóttur til mín, sem hefur bæði brennt brauð og bakað fullkomin skorpubrauð, og við ræðum allt frá örverum og smjörklípu yfir í þolinmæði og nördaskap. Ef fólk hefur áhuga á að vita meira um súrdeig er hægt að hlusta á þættina hennar Ragnheiðar í spilara Rúv hér: https://www.ruv.is/utvarp/spila/surinn/36330/aqf153 Umsjón: Atli Már Steinarsson
  15. Lungun

    52 minEpisódio 128

    Við hugsum sjaldnast um lungun – nema þegar þau bregðast. En samt eru þau okkur bókstaflega lífsnauðsynleg, öndunartakturinn sem heldur okkur gangandi alla ævi. Í þessum þætti ætlum við að beina sjónum að …

    Notas do episódio
    Við hugsum sjaldnast um lungun – nema þegar þau bregðast. En samt eru þau okkur bókstaflega lífsnauðsynleg, öndunartakturinn sem heldur okkur gangandi alla ævi. Í þessum þætti ætlum við að beina sjónum að þessari líffæravél sem við öndum í gegnum, frá fyrstu andardrætti til síðasta útöndunar. Ég fékk Ólaf Baldursson til mín, lungnalækni sem hefur fylgst með þróun læknisfræðinnar á þessu sviði og veit hversu miklar breytingar hafa orðið – og hvað framtíðin gæti boðið upp á. Við ræðum byggingu lungnanna, hlutverk þeirra, hvernig við höfum farið með þau í gegnum tíðina og hvað við getum gert til að vernda þau betur. Meira um Ólaf Baldursson: Ólafur er lyflæknir og lungnalæknir, sem hefur langa reynslu af stjórnunarstörfum, kennslu- og vísindastarfi auk lyfjaþróunar. Grunnvísindaverkefni sem hann hefur tekið þátt í hafa tvisvar leitt til þróunar lyfja. Hann hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala frá árinu 2009 en hefur verið í leyfi frá henni í þrjú ár. Á þeim tíma hefur hann starfað sem forstöðumaður lungna- og ofnæmislækninga á Karolinska háskólasjúkrahúsinu í Stokkhólmi og við verkefni á vegum heilbrigðisráðuneytisins hér heima, m.a. varðandi framtíðarhorfur mannafla í læknisþjónustu. Umsjón: Atli Már Steinarsson
  16. Hundar

    50 minEpisódio 127

    Við segjum oft að hundurinn sé besti vinur mannsins, en hvernig varð það eiginlega þannig? Í þessum þætti skoðum við hvernig hundar komu inn í líf okkar, hvernig þeir breyttust úr úlfum í fjölskyldumeðlimi …

    Notas do episódio
    Við segjum oft að hundurinn sé besti vinur mannsins, en hvernig varð það eiginlega þannig? Í þessum þætti skoðum við hvernig hundar komu inn í líf okkar, hvernig þeir breyttust úr úlfum í fjölskyldumeðlimi, hvað greinir tegundir að og hvað þarf að hafa í huga þegar maður ákveður að fá sér hund. Ég fékk Helgu Finnsdóttur til mín sem veit bæði fræðilega og persónulega hvað felst í því að ala upp hunda – og við förum yfir söguna, hegðunina og ábyrgðina. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Helga Finnsdóttir
  17. Vindorka

    53 minEpisódio 126

    Ég veit ekki með ykkur, en þegar ég sé vindmyllu þá fer ég ósjálfrátt að hugsa um Don Kíkóta. Eða kannski aðallega um vindinn sjálfan, þetta ósýnilega afl sem blæs okkur í gegnum daginn, ýtir á móti manni á …

    Notas do episódio
    Ég veit ekki með ykkur, en þegar ég sé vindmyllu þá fer ég ósjálfrátt að hugsa um Don Kíkóta. Eða kannski aðallega um vindinn sjálfan, þetta ósýnilega afl sem blæs okkur í gegnum daginn, ýtir á móti manni á leið í vinnu og lætur þakrennur syngja á haustin. Vindurinn er þarna alltaf, en við höfum tekið okkur góðan tíma í að læra að nýta hann. Og nú stendur hann í miðri orkupólitískri skotgröf, einhver vilja fleiri vindmyllur, aðrir segja þær skemma útsýni og skila litlu. Í þessum þætti sest ég niður með Karen Maríu Jensdóttur sem veit sitt hvað um vindorku og við ætlum að skoða þetta allt saman: söguna, tæknina, loftið og umræðuna. Því hvort sem manni líkar betur eða verr við myllurnar, þá er víst að vindurinn er ekki á förum. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Karen María Jensdóttir
  18. Seinni heimsstyrjöldin, þáttur 5: Endalok og eftirskjálftar

    1 hEpisódio 125

    Þegar stríðinu fer að halla undir lok berst Þýskaland á þremur vígstöðvum samtímis. Sovétmenn sækja fast að austan, bandamenn þrýsta að vestri og suðri. Berlín fellur, Hitler sviptir sig lífi, og það sem eftir …

    Notas do episódio
    Þegar stríðinu fer að halla undir lok berst Þýskaland á þremur vígstöðvum samtímis. Sovétmenn sækja fast að austan, bandamenn þrýsta að vestri og suðri. Berlín fellur, Hitler sviptir sig lífi, og það sem eftir stendur er rústir. Bæði í raun og í hugum fólks. Mannfallið í seinni heimsstyrjöldinni er gríðarlegt, herforingjar höfðu sín markmið, en fórnarlömbin voru milljónir, bæði hermenn og óbreyttir borgarar. Í Dresden var Kurt Vonnegut sem stríðsfangi ekki aðeins vitni að sprengjuregni heldur hluti af hópi sem þurfti að hreinsa upp borgina á eftir. Þetta varð síðar efniviður í verk hans um fáránleika stríðs og minnisleysi mannkynsins. Við lítum líka austur yfir Kyrrahafið þar sem kjarnorkusprengjurnar á Híróshima og Nagasaki marka endalokin formlega. En það eru líka endalok tveggja manna sem höfðu haft afgerandi áhrif á gang mála, bæði Roosevelt og Churchill náðu ekki að upplifa sigurinn eins og þeir vonuðust til. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Gísli Jökull Gíslason
  19. Seinni heimsstyrjöldin, þáttur 4: Eyðimerkur, kafbátar og vígvellir heimsins

    54 minEpisódio 124

    Í þessum þætti opnast stríðið enn frekar. Eyðimerkurstríðið markar þáttaskil, ekki bara fyrir Evrópu heldur líka fyrir þátttöku Bandaríkjamanna, sem nú fara að láta til sín taka í auknum mæli. Við kíkjum á …

    Notas do episódio
    Í þessum þætti opnast stríðið enn frekar. Eyðimerkurstríðið markar þáttaskil, ekki bara fyrir Evrópu heldur líka fyrir þátttöku Bandaríkjamanna, sem nú fara að láta til sín taka í auknum mæli. Við kíkjum á herforingja eins og Marshall og Andrews, sá síðarnefndi lést reyndar í flugslysi á Íslandi, þegar flugvélin Hot Stuff fórst við Fagradalsfjall eins og kemur fram í þættinum. Áður en við förum til ársins 1944 stoppum við aðeins í Asíu og ræðum heimsmynd Japana. Hvernig þeir sáu sjálfa sig, völd sín og réttinn til útþenslu. Það er oft talað lítið um Japan og Kína í samhengi við seinni heimsstyrjöldina, en þar voru átök og grimmd sem eru engu síðri en það sem gerðist í Evrópu. Að lokum undirbúum við okkur fyrir tvær stærstu hernaðaraðgerðir stríðsins: D-dag á vesturvígstöðvunum og Bagration-aðgerð Sovétmanna í austri. Við ræðum líka hvernig kafbátar ógnuðu siglingum á Atlantshafi og gerðu verslun og birgðaflutninga að hættuspili. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Gísli Jökull Gíslason
  20. Seinni heimsstyrjöldin, þáttur 3: Vígvellir og viðsnúningar

    1 h 3 minEpisódio 123

    Í þessum þætti færist stríðið upp í loftið, bókstaflega. Orrustan um Bretland markar tímamót, þar sem litlar vélar eins og Spitfire breyta gangi sögunnar. Áður en við snúum okkur að Sovétríkjunum, stoppum við …

    Notas do episódio
    Í þessum þætti færist stríðið upp í loftið, bókstaflega. Orrustan um Bretland markar tímamót, þar sem litlar vélar eins og Spitfire breyta gangi sögunnar. Áður en við snúum okkur að Sovétríkjunum, stoppum við aðeins í Asíu, þar sem Japan og Kína eru í blóðugu og flóknu stríði sem heimurinn fylgist illa með. Þjóðverjar gera síðan skyndilega innrás í Sovétríkin. Churchill, sem hingað til hefur staðið nánast einn gegn Hitler, fær nú nýjan bandamann í Stalín, þó það samstarf verði flókið. Á sama tíma stíga Bandaríkin loksins inn í stríðið eftir árás Japana á Pearl Harbor. Roosevelt hafði þegar ákveðið að Þýskaland væri stærra vandamál en Japan, en þegar Hitler lýsir yfir stríði við Bandaríkin, þá er engin leið til baka. Við skoðum líka hvernig bandarískir flugmenn voru sendir til Búrma, áður en Bandaríkin voru formlega komin í stríð, til að hjálpa Bretum að halda áhrifum sínum. Stríðið er orðið alþjóðlegt, á landi, sjó og nú líka í lofti. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Gísli Jökull Gíslason
  21. Seinni heimsstyrjöldin, þáttur 2: Öxulveldin og fyrstu skrefin

    56 minEpisódio 122

    Eftir innrás Þýskalands í Pólland líður aðeins á áður en næstu stóru skref eru stigin. Stríðið er byrjað, en margir bíða. Í þessum þætti ræðum við hvernig öxulveldin mótast og hverjir standa hvar. Við kíkjum á …

    Notas do episódio
    Eftir innrás Þýskalands í Pólland líður aðeins á áður en næstu stóru skref eru stigin. Stríðið er byrjað, en margir bíða. Í þessum þætti ræðum við hvernig öxulveldin mótast og hverjir standa hvar. Við kíkjum á fyrstu orrustuna á hafi úti í stríðinu, þar sem Ísland tengist atburðunum beint þó við höfum enn ekki verið hernumin. Við skoðum líka af hverju Þýskaland réðst á Noreg en þar voru það málmar, hafnir og hernaðarleg staðsetning réðu úrslitum. Og við tökum stutt stopp í Finnlandi þar sem vetrarstríðið við Sovétríkin sýndi að ójafn styrkur segir ekki alltaf alla söguna. Umsjónamaður: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Gísli Jökull Gíslason
  22. Seinni heimsstyrjöldin, þáttur 1: Aðdragandi og upphaf

    51 minEpisódio 121

    Við byrjum nýja seríu af Þú veist betur á umræðuefni sem er erfitt að tækla í 1-2 þáttum, enda urðu þeir á endanum 5. Þetta er veisla fyrir öll okkar sem hafa áhuga á seinni heimstyrjöldinni, en líka bara þau …

    Notas do episódio
    Við byrjum nýja seríu af Þú veist betur á umræðuefni sem er erfitt að tækla í 1-2 þáttum, enda urðu þeir á endanum 5. Þetta er veisla fyrir öll okkar sem hafa áhuga á seinni heimstyrjöldinni, en líka bara þau sem vilja skilja betur heiminn sem við búum í, nútíminn er skiljanlegri ef við vitum hvaðan við komum. Seinni heimsstyrjöldin byrjar ekki bara með innrás í Pólland. Hún á sér aðdraganda sem nær yfir efnahagskreppur, hugmyndafræði, nýlendustefnu og mannleg mistök. Við rennum yfir hvernig Hitler náði völdum í Þýskalandi, hvernig lýðræði breyttist í einræði á örfáum árum og hvernig þjóðarleiðtogar eins og Neville Chamberlain reyndu að halda frið með samningum sem stóðust ekki raunveruleikann. Við skoðum líka hvað var að gerast annars staðar, sérstaklega í Asíu, þar sem Japan og Kína börðust og Chiang Kai-shek var maður ársins hjá Time áður en stríðið í Evrópu var jafnvel byrjað. Umsjónamaður: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Gísli Jökull Gíslason
  23. Bandaríkin - Fyrri hluti

    55 minEpisódio 120

    Ég sver að það var ekki endilega viljandi, en eftir smá pásu frá löndum heimsins með þætti um hjólaskautaat, höldum við áfram og virðumst nánast fara í stafrófsröð. Balkanskagi til Bandaríkjanna. Enda var …

    Notas do episódio
    Ég sver að það var ekki endilega viljandi, en eftir smá pásu frá löndum heimsins með þætti um hjólaskautaat, höldum við áfram og virðumst nánast fara í stafrófsröð. Balkanskagi til Bandaríkjanna. Enda var vopnahléssamningur varðandi Bosníu undirritaður í Daytona í Ohio, svo tengingin er augljós. Eða hvað? Þetta land sem er svo nátengt Íslandi, hafði mikil áhrif á efnahag þjóðarinnar í seinni heimsstyrjöldinni og auðvitað menningu landsins fram eftir 20.öld og til dagsins í dag. Sama hvaða skoðun við höfum á þessu heimsveldi er ekki hægt að neita því að Bandaríkin hafa haft gríðarleg áhrif á stöðu heimsins í dag, það eru forsetakosningar vestanhafs í ár og oft líður manni eins og það muni svo skera úr um hvernig heimurinn muni þróast til framtíðar. En hvað vitum við um Bandaríkin, af hverju eru þau eins og þau eru? Það er ærið verkefni að útskýra en í næstu tveim þáttum ætlum við Silja Bára Ómarsdóttir að gera heiðarlega tilraun til að fara yfir sögu þess, stærstu atburði, núverandi ástand og hugleiðingum um framtíðina.
  24. Bandaríkin - Seinni hluti

    1 h 16 minEpisódio 119

    Í síðasta þætti byrjuðum við á yfirferð okkar um það risastóra verkefni og fyrirbæri sem Bandaríkin eru. Til upprifjunar fórum við yfir stofnun landsins árið 1776, þrælastríðið milli norðurs og suðurs en …

    Notas do episódio
    Í síðasta þætti byrjuðum við á yfirferð okkar um það risastóra verkefni og fyrirbæri sem Bandaríkin eru. Til upprifjunar fórum við yfir stofnun landsins árið 1776, þrælastríðið milli norðurs og suðurs en enduðum svo í kringum seinni heimstyrjöldina og þann tíma þegar Franklin Delano Roosevelt er forseti. Verkefni hans var að reisa landið við eftir seinni heimstyrjöld og mín fyrsta spurning til Silju Báru Ómarsdóttur sem er aftur komin til að fara yfir málin með okkur.
  25. Hjólaskautaat

    55 minEpisódio 118

    Það getur verið að einhver ykkar þarna úti hafið heyrt talað um hjólaskautaat, en þetta tiltölulega óþjála orð er þýðing á enska orðinu “rollerderby”. En það getur líka vel verið að einhver hafi bara aldrei …

    Notas do episódio
    Það getur verið að einhver ykkar þarna úti hafið heyrt talað um hjólaskautaat, en þetta tiltölulega óþjála orð er þýðing á enska orðinu “rollerderby”. En það getur líka vel verið að einhver hafi bara aldrei heyrt á þetta fyrirbæri, sem flokkast sem íþróttagrein og er frekar ung sem slík. Ég sá hana fyrst fyrir rúmlega 15 árum á ferðalagi í Bandaríkjunum og vissi ekki mikið þá, en fyrst það er byrjað að stunda þetta hér á landi fannst mér tilvalið að kynna mér málið betur og fékk til mín Guðnýju Jónsdóttur, en hún er ein af stofnendum Rollerderby Iceland, til að segja mér allt um íþróttina, hvaðan hún kemur og hvernig hún fer fram. Fyrir meiri upplýsingar og fræðslu er hægt að kíkja á rollerderby.is
  26. Balkanskagi - Seinni hluti

    55 minEpisódio 117

    Við höldum áfram yfirferð okkar um Balkanskaga og til upprifjunar sögðum við skilið við Jón Óskar Sólnes þegar Slobodan Milosevic er kominn til valda, það hafa verið átök í Króatíu en þar sem við enduðum var …

    Notas do episódio
    Við höldum áfram yfirferð okkar um Balkanskaga og til upprifjunar sögðum við skilið við Jón Óskar Sólnes þegar Slobodan Milosevic er kominn til valda, það hafa verið átök í Króatíu en þar sem við enduðum var komið að stríðinu í Bosníu. En það er þá sem hræðilegir hlutir eiga sér stað, sem setja mark sitt ekki bara á sögu þessa svæðis heldur Evrópu allrar. Enda ekki meira en 30 ár síðan og því fólk enn á lífi sem man vel eftir þessum atburðum sem erfitt er að gleyma eða sleppa tökunum af. Hvernig vinna lönd eða þjóðir úr svona áföllum, hverjar eru ástæðurnar fyrir þeim og hvað ber framtíðin í skauti sér? Við ætlum að fara yfir þessi mál og reyna að átta okkur betur á þessu öllu saman. Fyrsta spurning mín til Jóns snýst um ástæðuna fyrir því að Bosnía verður suðurpunkturinn fyrir átökin og hvort hægt sé að útskýra aðstæðurnar á skiljanlegan hátt.
  27. Balkanskagi - Fyrri hluti

    46 minEpisódio 116

    Til þess að skilja nútíðina er mikilvægt að þekkja fortíðina. Þessi setning hefur verið mér hugleikin lengi enda finn ég hvernig ég verð meiri og meiri áhugamaður um sögu eftir því sem líður á ævina. Kannski er …

    Notas do episódio
    Til þess að skilja nútíðina er mikilvægt að þekkja fortíðina. Þessi setning hefur verið mér hugleikin lengi enda finn ég hvernig ég verð meiri og meiri áhugamaður um sögu eftir því sem líður á ævina. Kannski er það partur af því að verða eldri, ég átta mig ekki almennilega á því. En hvað sem því líður þá á þessi setning vel við varðandi næstu tvo þætti af þú veist betur. Það er nefnilega svæði í suðaustur Evrópu sem er einhverjum hlustendum kunnugt en öðrum ekki. Ég hef gerst svo frægur að ferðast örlítið um þarna, þá helst í Albaníu, sem mér fannst alveg stórkostlegt land. Ég hef samt alltaf haft það á tilfinningunni að ég viti ekki nægilega mikið um löndin á Balkanskaga, hvað hefur gengið þar á í gegnum tíðina og af hverju. Því fékk ég til mín sannkallaðann sérfræðing til að leiða okkur í allan sannleikann um málið og hafði ég sjálfur mjög gaman af að hlusta. Ég vil líta á næstu þætti nánast sem sögustund, þar sem Jón Óskar Sólnes stjórnar ferðinni.
  28. Líftækni

    55 minEpisódio 115

    Er ég einn um að finnast eins og það sé smá vor í lofti? Það er að minnsta kosti bjartara yfir og andleg líðan þjóðarinnar vonandi á uppleið í samhengi við það. En hvort sem það er sól, snjór, rok eða rigning …

    Notas do episódio
    Er ég einn um að finnast eins og það sé smá vor í lofti? Það er að minnsta kosti bjartara yfir og andleg líðan þjóðarinnar vonandi á uppleið í samhengi við það. En hvort sem það er sól, snjór, rok eða rigning höldum við áfram með þú veist betur og í þetta skipti er líftækni undir. Ég vil byrja á því að benda á að einn af fyrstu þáttum af Þú veist betur fjallaði um erfðir, í þeim þætti fór ég og hitti á Kára Stefánsson þar sem hann fór yfir þetta allt saman með mér. Hugarefni okkar er auðvitað tengt erfðum en er á sama tíma svo miklu meira. Gestur þáttarins er Eiríkur Steingrímsson sem hefur verið í bransanum lengi, veit meira en flest og ég er ekki frá því að eftir samtal okkar hafi ég verið þokkalega sannfærður um að viðfangsefni þáttarins er nátengt því hvernig við horfum til framtíðar. Við ætlum að fara yfir sögu þessarar greinar, hvernig samkvæmisdans erfðafræði og líftækni er ásamt því auðvitað að horfa til framtíðar og hvað gæti verið handan við hornið.
  29. Skátar

    55 minEpisódio 114

    Við skiljum hlaupin eftir í reyknum og færum okkur yfir í næsta viðfangsefni, en það eru skátar sem taka á móti okkur núna. Þessi hreyfing eða samtök sem mörg okkar taka lítið eftir fyrr en 17.júní ár hvert þar …

    Notas do episódio
    Við skiljum hlaupin eftir í reyknum og færum okkur yfir í næsta viðfangsefni, en það eru skátar sem taka á móti okkur núna. Þessi hreyfing eða samtök sem mörg okkar taka lítið eftir fyrr en 17.júní ár hvert þar sem við förum á fjölfarna staði og hlustum á lúðrasveitir eða förum í hoppukastala sjálf eða með þeim sem minni eru. Hjálparsveit skáta er eitthvað sem við höfum líklegast öll heyrt, við erum kannski meðvituð um að eitthvað snýst þetta nú um útiveru, hnúta hverskonar og bláa búninga. En hvað er það að vera skáti? Hvaðan koma þessi samtök og um hvað snúast þau? Er skylda að vera ávallt skáti ef þú hefur yfir höfuð verið skáti einhvertíman? Ég fékk til mín Arnór Svarfdal skáta til að segja okkur allt það helsta, við fórum yfir söguna og auðvitað þessar spurningar sem ég er nýbúinn að þylja upp.
  30. Hlaup

    1 h 22 minEpisódio 113

    Hvað er meira við hæfi svona í byrjun árs en að velta fyrir sér hreyfingu og hvaða hreyfing sem við stundum á sér lengri sögu en hlaup. Einn fót fram fyrir annan og svo framvegis. En hlaup eru ekki bara hlaup …

    Notas do episódio
    Hvað er meira við hæfi svona í byrjun árs en að velta fyrir sér hreyfingu og hvaða hreyfing sem við stundum á sér lengri sögu en hlaup. Einn fót fram fyrir annan og svo framvegis. En hlaup eru ekki bara hlaup, innan þess rúmast skokk, spretthlaup, maraþon og alls kyns mismunandi útgáfur þar á milli. Sjálfur hef ég aldrei verið mikið fyrir hlaup og kannski er það aldurinn, en eftir þennan þátt byrjaði ég að prófa mig áfram og hef gaman af enn sem komið er. Markmið þáttarins er þó ekki að koma ykkur út að skokka, heldur að pæla í þróun hlaups í gegnum árin, í hverju munurinn felst og hver framtíðin gæti verið. Það er því ekkert hlaupa prógram sem þið fáið út úr þættinum en viðmælandi okkar er samt einstaklingur sem hefur gert ófá þannig bæði fyrir sig og aðra. Arnar Pétursson, sem hefur orðið íslandsmeistari 58 sinnum hvorki meira né minna.

Aqui estão os 60 episódios mais recentes de 142. Os mais antigos estão no feed do podcast.

Este podcast é seu?

Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.

Configurações

Exibição

Idioma

Define quais estações você vê primeiro na página inicial.

Histórico

As rádios e episódios ouvidos recentemente e suas últimas buscas ficam só neste navegador.

Avisos

Um aviso rápido quando um podcast que você segue tem um episódio novo. Desative podcasts individuais pelo sino na página deles.

Conta

Salve favoritos – no app e no site.

Atalhos de teclado

/
Abrir busca
Espaço
Reproduzir ou pausar
← →
No player: voltar 15 s, avançar 30 s (episódios) · na fileira: próximo bloco
↑ ↓
Na fileira: alvo dentro do bloco
Home / End
Na fileira: primeiro ou último bloco
Esc
Fechar janela ou menu
?
Esta visão geral
Tocando agora

Ir para a estação

A seguir

    Adicione episódios com “A seguir” – eles tocam depois do episódio atual.