Skip to content

Undir þér jörðin, Húsið - hlýskeið og Transcription

October 3, 2026 · 53 min

Show notes

Kari Ósk Grétudóttir kemur í heimsókn hér rétt á eftir og segir frá nýrri ljóðabók, Undir þér jörðin. Í henni eru þrír ljóðabálkar þar sem jörðin og náttúran er viðfangsefnið út frá ýmsum sjónarhornum sem spegla sálarlíf mannsins, sem er í stöðugri leit að hlutverki hér og getur ýmist verið tortímingarafl eða bjargvættur á þessu stóra búsvæði, jörðinni undir honum. Á bjargi byggði hygginn maður hús, segir í textanum. Húsið – hlýskeið heitir nýjasta bók Hjálmars Sveinssonar þar sem allt hverfist um gamalt timburhús á Skólavörðuholti. Sögumaðurinn er í stórframkvæmdum, verið er að byggja heila hæð ofan á húsið og í þeim miðjum fer hann að grúska um fyrrum íbúa og óhugnanlega sögu þeirra. En frásögnin þysjar líka rækilega út; Hvað er hús? Hvernig myndaðist húsgrunnurinn í jarðsögulegu ljósi? Hjálmar Sveinsson kemur í hús á eftir og segir betur frá. Skáldsagan Transcription eftir bandaríska rithöfundinn og ljóðskáldið Ben Lerner hefur vakið mikla athygli vestanhafs frá því að hún kom út í sumar. Bókin hefst á óhappi sögumanns þegar hann ætlar að hitta gamlan háskólakennara sinn og læriföður til að taka við hann eitt lokaviðtal en lendir í því að snjallsíminn, hans eina tæki til að taka viðtalið upp, fer bókstaflega í vaskinn og eyðileggst. Með dauðan síma þykist hann taka upp samræðu tveggja manna. Ef viðtal er tekið í skóginum og enginn heyrir það – gerðist það þá? Út frá þessu fer frásögnin í óvæntar áttir og spyr flókinna spurninga um samband mannsins við tæknina, sagnahefð mannsins, minnið og sannleikann. Alma Mjöll Ólafsdóttir kemur og ræðir verkið. Viðmælendur: Alma Mjöll Ólafsdóttir, Hjálmar Sveinsson og Kari Ósk Grétudóttir. Lesarar: Kari Ósk Grétudóttir og Bergsteinn Sigurðsson. Tónlist: Alles - Einstürzende Neubauten, City Music - Kevin Morby, No Words - The Smile.

All episodes of Bara bækur

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.