
Bara bækur
- Episodes
- 121
- Format
- Series – listen from the start
- Latest episode
- Nov 7, 2026
About the podcast
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir. Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Episodes 121
Heiðríkja, Deig og Tengdasonur Íslands
Ljóðabókin Deig eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur hlaut nýverið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar. Í Deig eru ljóð sem finna undur og ævintýri í litlu fyrirbærum í kringum okkur en líka minningar og …
Show notes
Ljóðabókin Deig eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur hlaut nýverið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar. Í Deig eru ljóð sem finna undur og ævintýri í litlu fyrirbærum í kringum okkur en líka minningar og merkingu hluta sem menn sanka að sér og hlaðast upp. Undir niðri eru líka skírskotanir í stórar hugmyndir um samfélagið og tengls manna við eitthvað stærra, við óræða drauma og hverfulleikann. Og ljóðabókin Heiðríkja var að koma út hjá Ós Pressunni, fyrsta ljóðabók Miriam Petru Ómarsdóttur Awad sem áður hefur birt ljóð á netinu og smásögu í tímaritinu Stelk. Miriam yrkir um ástina þrána, hvort sem það er þrá eftir manneskju eða stað eða stund. Og í lok þáttar setjumst við niður með Auði Övu Ólafsdóttur sem var að gefa út nýja skáldsögu hjá Benedikt og nefnist hún Tengdasonur Íslands. Það er samtímasaga um Valgerði og nöfnu hennar og barnabarn sem er ung kona í doktorsnámi í mannerfðafræði. Þeirra samband er sérstakt því þær standa nær einar eftir, þær hafa báðar misst marga nákomna og því er margt í húfi. Saman velta þær fyrir sér stóru spurningunum um dauðann, tilgang og trú og hvort siðferði sé arfgengt? Hvað er í blóðinu okkar? Tengdasonur Íslands er líka sneiðmynd af gamla Íslandi, Íslandi stríðsáranna og ástarblossa ömmu Valgerðar með útlenskum manni. Nýja bók Auðar fjallar um það hvaðan við komum og hver má vera - það þarf mögulega að minna okkur stöðugt á að við erum komin af öllum þeim sem á undan hafa farið. Viðmælendur: Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Miriam Petra Ómarsdóttir Awad og Auður Ava Ólafsdóttir.Heiðríkja, Deig og Tengdasonur Íslands
Ljóðabókin Deig eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur hlaut nýverið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar. Í Deig eru ljóð sem finna undur og ævintýri í litlu fyrirbærum í kringum okkur en líka minningar og …
Show notes
Ljóðabókin Deig eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur hlaut nýverið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar. Í Deig eru ljóð sem finna undur og ævintýri í litlu fyrirbærum í kringum okkur en líka minningar og merkingu hluta sem menn sanka að sér og hlaðast upp. Undir niðri eru líka skírskotanir í stórar hugmyndir um samfélagið og tengls manna við eitthvað stærra, við óræða drauma og hverfulleikann. Og ljóðabókin Heiðríkja var að koma út hjá Ós Pressunni, fyrsta ljóðabók Miriam Petru Ómarsdóttur Awad sem áður hefur birt ljóð á netinu og smásögu í tímaritinu Stelk. Miriam yrkir um ástina þrána, hvort sem það er þrá eftir manneskju eða stað eða stund. Og í lok þáttar setjumst við niður með Auði Övu Ólafsdóttur sem var að gefa út nýja skáldsögu hjá Benedikt og nefnist hún Tengdasonur Íslands. Það er samtímasaga um Valgerði og nöfnu hennar og barnabarn sem er ung kona í doktorsnámi í mannerfðafræði. Þeirra samband er sérstakt því þær standa nær einar eftir, þær hafa báðar misst marga nákomna og því er margt í húfi. Saman velta þær fyrir sér stóru spurningunum um dauðann, tilgang og trú og hvort siðferði sé arfgengt? Hvað er í blóðinu okkar? Tengdasonur Íslands er líka sneiðmynd af gamla Íslandi, Íslandi stríðsáranna og ástarblossa ömmu Valgerðar með útlenskum manni. Nýja bók Auðar fjallar um það hvaðan við komum og hver má vera - það þarf mögulega að minna okkur stöðugt á að við erum komin af öllum þeim sem á undan hafa farið. Viðmælendur: Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Miriam Petra Ómarsdóttir Awad og Auður Ava Ólafsdóttir.Viðtal við Ocean Vuong, Haustsöngvar og Síðasta sumar Klingsors
Bandarísk-víetnamska ljóðskáldið og rithöfundinn Ocean Vuong var sérstakur gestur á viðburði Reykjavík Poetics í Mengi fyrr í mánuðinum. Þar lásu nokkur skáld, meðal annars nýjasti Nóbelshafinn Anne Carson …
Show notes
Bandarísk-víetnamska ljóðskáldið og rithöfundinn Ocean Vuong var sérstakur gestur á viðburði Reykjavík Poetics í Mengi fyrr í mánuðinum. Þar lásu nokkur skáld, meðal annars nýjasti Nóbelshafinn Anne Carson. Síðasta áratuginn hefur Ocean Vuong skipað sér í fremstu röð í bandarískum samtímabókmenntum, bæði sem ljóðskáld og skáldsagnahöfundur. Hann hefur myndað sterk tengsl við Ísland og dvalið hér við skrif sín og átt í góðu listrænu vinasambandi við Björk. Ocean Vuong verður gestur þáttarins. Sölvi Björn Sigurðsson segir frá ljóðaúrvalinu Haustsöngvar með þýðingum sínum á skáldskap franska skáldsins og symbólistans Pauls Verlaine. Verlaine var eitt af höfuðskáldum sinnar tíðar í Frakklandi. Örfá kvæði eftir Verlaine hafa verið þýdd áður en Sölvi fyllir vel upp í myndina af þessu merkilega skáldi í nýja safninu sem var að koma út hjá Dimmu og hann segir betur frá. Síðustu dagar Klingsors, nóvella Nóbelsskáldsins Hermanns Hesse frá 1919, var að koma út í íslenskri þýðingu Jóns Bjarna Atlasonar. Sagan er að mörgu leyti viðbragð við breyttri heimsmynd eftir fyrri heimsstyrjöld, expressjónískt verk um tilgang lífsins og listarinnar og er skýrt dæmi um prósasnilld og sköpunargleði Hesse. Viðmælendur: Ocean Vuong, Sölvi Björn Sigurðsson og Jón Bjarni Atlason.Viðtal við Ocean Vuong, Haustsöngvar og Síðasta sumar Klingsors
Bandarísk-víetnamska ljóðskáldið og rithöfundinn Ocean Vuong var sérstakur gestur á viðburði Reykjavík Poetics í Mengi fyrr í mánuðinum. Þar lásu nokkur skáld, meðal annars nýjasti Nóbelshafinn Anne Carson …
Show notes
Bandarísk-víetnamska ljóðskáldið og rithöfundinn Ocean Vuong var sérstakur gestur á viðburði Reykjavík Poetics í Mengi fyrr í mánuðinum. Þar lásu nokkur skáld, meðal annars nýjasti Nóbelshafinn Anne Carson. Síðasta áratuginn hefur Ocean Vuong skipað sér í fremstu röð í bandarískum samtímabókmenntum, bæði sem ljóðskáld og skáldsagnahöfundur. Hann hefur myndað sterk tengsl við Ísland og dvalið hér við skrif sín og átt í góðu listrænu vinasambandi við Björk. Ocean Vuong verður gestur þáttarins. Sölvi Björn Sigurðsson segir frá ljóðaúrvalinu Haustsöngvar með þýðingum sínum á skáldskap franska skáldsins og symbólistans Pauls Verlaine. Verlaine var eitt af höfuðskáldum sinnar tíðar í Frakklandi. Örfá kvæði eftir Verlaine hafa verið þýdd áður en Sölvi fyllir vel upp í myndina af þessu merkilega skáldi í nýja safninu sem var að koma út hjá Dimmu og hann segir betur frá. Síðustu dagar Klingsors, nóvella Nóbelsskáldsins Hermanns Hesse frá 1919, var að koma út í íslenskri þýðingu Jóns Bjarna Atlasonar. Sagan er að mörgu leyti viðbragð við breyttri heimsmynd eftir fyrri heimsstyrjöld, expressjónískt verk um tilgang lífsins og listarinnar og er skýrt dæmi um prósasnilld og sköpunargleði Hesse. Viðmælendur: Ocean Vuong, Sölvi Björn Sigurðsson og Jón Bjarni Atlason.Hverfa og Þrjátíu og sjö skáld í mynd
Hverfa heitir nýjasta ljóðabók Melkorku Ólafsdóttur sem hefur jöfnum höndum gefið út verk í eigin nafni og með skáldahópnum Svikaskáldum. Síðasta ljóðabók Flagsól var heldur ekki aðeins merkt Melkorku því hún …
Show notes
Hverfa heitir nýjasta ljóðabók Melkorku Ólafsdóttur sem hefur jöfnum höndum gefið út verk í eigin nafni og með skáldahópnum Svikaskáldum. Síðasta ljóðabók Flagsól var heldur ekki aðeins merkt Melkorku því hún var unnin í samstarfi við myndhöfundinn Hlíf Unu Bárudóttur. En nú stendur Melkorka ljóðskáldið ein frammi fyrir öllu. Viðfangsefni bókarinnar eru djúp og breið, allt frá minnstu einingum og lífverum yfir í plánetur sólkerfisins. Hverfa er um kerfin allt í kringum okkur, hún eru hið lífræna efni, eðlisfræðilögmál og fegurðina í hinu óræða; undrin í því sem við sjáum og heyrum alla daga en „dvelur í þögninni milli vélrænna hendinga samtímans,“ eins og segir í kápulýsingu bókarinnar. Óskar Árni Óskarsson var að senda frá sér úrval myndljóða en á ferlinum hefur myndljóðið átt stóran sess hjá skáldinu. Bókin heitir Þrjátíu og sjö skáld í mynd og kom út hjá Dimmu nýlega. Þar eru skáld, innlend og erlend í fókus. Óskar steig fram sem fullskapað myndljóðskáld árið 1997 í sérriti Bjarts og frú Emelíu: tímariti um bókmenntir og leiklist sem kallaðist Án orða. Þar mátti sjá afrakstur af frumlegri notkunar Óskars á ritvélinni þar sem kommur verða rigning, bíl verður til með þremur bókstöfum, lítið j verður hafmeyja og lítið i er sjálfur maðurinn. Viðmælendur: Melkorka Ólafsdóttir og Óskar Árni Óskarsson. Tónlist: Bragur - Tu Ha? Tu Bjö! / Frailed - FleaAnne Carson og Max Porter
Kanadíska skáldið og fræðikonan Anne Carson er handhafi bókemenntaverðlauna Nóbels í ár. Hún er skáldlegur fræðimaður og fræðilegt skáld, verk hennar eru oft á mörkum listgreina og forma - hún vinnur í …
Show notes
Kanadíska skáldið og fræðikonan Anne Carson er handhafi bókemenntaverðlauna Nóbels í ár. Hún er skáldlegur fræðimaður og fræðilegt skáld, verk hennar eru oft á mörkum listgreina og forma - hún vinnur í samstarfi við ýmsa listamenn úr ólíkum greinar og úr verður landamæralaus list. Ljóðin hennar eru að mörgu leyti krefjandi en ótrúlega hrífandi. Carson hefur sterk tengsl við Ísland og listlífið hér. Bókabúðin Garg við Hofsvallagötu væri ekki til ef ekki væri fyrir Anne Carson og Helga Dögg Ólafsdóttir eigandi búðarinnar segir frá því. En við fáum líka innsýn í fræðahlið Carsons og Þorsteinn Vilhjálmsson fornfræðingur veitir hana. Og við förum og hittum Max Porter, einn athyglisverðasta höfund breskra samtímabókmennta. Porter var staddur hér á landi og var haldinn viðburður í Tjarnarbíói um helgina þar sem Porter flutti eitt af verkum sínum, Allan þennan óraunverulega tíma og sat svo fyrir svörum eftir á. Við ræðum við Max Porter í lok þáttar um bókmenntir sem mælt mál, um list sem sameiningarafl og hlutverk þýðinga og margt fleira. Viðmælendur: Helga Dögg Ólafsdóttir, Þorsteinn Vilhjálmsson og Max Porter. Tónlist: Salt & Vinegar - Magnús Jóhann og Skúli Sverrisson.Undir þér jörðin, Húsið - hlýskeið og Transcription
Kari Ósk Grétudóttir kemur í heimsókn hér rétt á eftir og segir frá nýrri ljóðabók, Undir þér jörðin. Í henni eru þrír ljóðabálkar þar sem jörðin og náttúran er viðfangsefnið út frá ýmsum sjónarhornum sem …
Show notes
Kari Ósk Grétudóttir kemur í heimsókn hér rétt á eftir og segir frá nýrri ljóðabók, Undir þér jörðin. Í henni eru þrír ljóðabálkar þar sem jörðin og náttúran er viðfangsefnið út frá ýmsum sjónarhornum sem spegla sálarlíf mannsins, sem er í stöðugri leit að hlutverki hér og getur ýmist verið tortímingarafl eða bjargvættur á þessu stóra búsvæði, jörðinni undir honum. Á bjargi byggði hygginn maður hús, segir í textanum. Húsið – hlýskeið heitir nýjasta bók Hjálmars Sveinssonar þar sem allt hverfist um gamalt timburhús á Skólavörðuholti. Sögumaðurinn er í stórframkvæmdum, verið er að byggja heila hæð ofan á húsið og í þeim miðjum fer hann að grúska um fyrrum íbúa og óhugnanlega sögu þeirra. En frásögnin þysjar líka rækilega út; Hvað er hús? Hvernig myndaðist húsgrunnurinn í jarðsögulegu ljósi? Hjálmar Sveinsson kemur í hús á eftir og segir betur frá. Skáldsagan Transcription eftir bandaríska rithöfundinn og ljóðskáldið Ben Lerner hefur vakið mikla athygli vestanhafs frá því að hún kom út í sumar. Bókin hefst á óhappi sögumanns þegar hann ætlar að hitta gamlan háskólakennara sinn og læriföður til að taka við hann eitt lokaviðtal en lendir í því að snjallsíminn, hans eina tæki til að taka viðtalið upp, fer bókstaflega í vaskinn og eyðileggst. Með dauðan síma þykist hann taka upp samræðu tveggja manna. Ef viðtal er tekið í skóginum og enginn heyrir það – gerðist það þá? Út frá þessu fer frásögnin í óvæntar áttir og spyr flókinna spurninga um samband mannsins við tæknina, sagnahefð mannsins, minnið og sannleikann. Alma Mjöll Ólafsdóttir kemur og ræðir verkið. Viðmælendur: Alma Mjöll Ólafsdóttir, Hjálmar Sveinsson og Kari Ósk Grétudóttir. Lesarar: Kari Ósk Grétudóttir og Bergsteinn Sigurðsson. Tónlist: Alles - Einstürzende Neubauten, City Music - Kevin Morby, No Words - The Smile.Ókunnugt fólk, 1984 með augum Júlíu og fylgiskáldsögutískan
Við blöðum í nýútkominni skáldsögu, Ókunnugt fólk eftir Björn Halldórsson. Það er saga af íslenskri samtímafjölskyldu sem er enn að kljást við afleiðingar af sárum missi í fjölskyldunni og nær hún ekki að …
Show notes
Við blöðum í nýútkominni skáldsögu, Ókunnugt fólk eftir Björn Halldórsson. Það er saga af íslenskri samtímafjölskyldu sem er enn að kljást við afleiðingar af sárum missi í fjölskyldunni og nær hún ekki að tengjast á ný. Það ríkir þögn milli fimm náinna fjölskyldumeðlima sem hvert og eitt reynir að fylla upp í hana með ágiskunum og gremju. Rætt verður við Björn Halldórsson um hugmyndir og þemu verksins. Undanfarið hefur borið á tegund bókmennta sem nýta sér aðrar bækur, oft frægar, sem beinan efnivið. Þetta hefur verið kallað fylgiskáldsögur eða hliðstæðusögur, companion novels og er skylt fan-fiction bókum þar sem aðdáendur teygja sögusvið bókar með eigin skrifum. Sagan er endursögð með nýju sjónarhorni. Einhver gæti sagt að öll sagnagerð sé endurvinnsla, allt er remix. Endurunnar sögur geta minnt okkur á eitthvað mikilvægt í bókum og sett þær í nýtt samhengi. Ein slík fylgiskáldsaga kom út fyrir skemmstu á íslensku, Júlía eftir bandaríska rithöfundinn Söndru Newman, og er endursögn á 1984 Orwells. Við rýnum aðeins í hana í þættinum. Viðmælendur: Björn Halldórsson Lesarar: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir, Pétur Eggersson og Halla Harðardóttir. Tónlist: Strangers - The Kinks, Julia - Eurythmics, A little closer - Skúli Sverrisson, Nocture no. 20 - Michael Kolk.Ókunnugt fólk, 1984 með augum Júlíu og fylgiskáldsögutískan
Við blöðum í nýútkominni skáldsögu, Ókunnugt fólk eftir Björn Halldórsson. Það er saga af íslenskri samtímafjölskyldu sem er enn að kljást við afleiðingar af sárum missi í fjölskyldunni og nær hún ekki að …
Show notes
Við blöðum í nýútkominni skáldsögu, Ókunnugt fólk eftir Björn Halldórsson. Það er saga af íslenskri samtímafjölskyldu sem er enn að kljást við afleiðingar af sárum missi í fjölskyldunni og nær hún ekki að tengjast á ný. Það ríkir þögn milli fimm náinna fjölskyldumeðlima sem hvert og eitt reynir að fylla upp í hana með ágiskunum og gremju. Rætt verður við Björn Halldórsson um hugmyndir og þemu verksins. Undanfarið hefur borið á tegund bókmennta sem nýta sér aðrar bækur, oft frægar, sem beinan efnivið. Þetta hefur verið kallað fylgiskáldsögur eða hliðstæðusögur, companion novels og er skylt fan-fiction bókum þar sem aðdáendur teygja sögusvið bókar með eigin skrifum. Sagan er endursögð með nýju sjónarhorni. Einhver gæti sagt að öll sagnagerð sé endurvinnsla, allt er remix. Endurunnar sögur geta minnt okkur á eitthvað mikilvægt í bókum og sett þær í nýtt samhengi. Ein slík fylgiskáldsaga kom út fyrir skemmstu á íslensku, Júlía eftir bandaríska rithöfundinn Söndru Newman, og er endursögn á 1984 Orwells. Við rýnum aðeins í hana í þættinum. Viðmælendur: Björn Halldórsson Lesarar: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir, Pétur Eggersson og Halla Harðardóttir. Tónlist: Strangers - The Kinks, Julia - Eurythmics, A little closer - Skúli Sverrisson, Nocture no. 20 - Michael Kolk.Antithesis, Dick vs. Lem og eru bækur sexí eða dauðadæmdar?
Við lifum víst á öld ólæsis með dómsdags-PISA-kannanir eins og skríkjandi leðurblökuhjörð yfir okkur. Málsmetandi rithöfundar og blaðamenn boða öld ólæsis og myrkar miðaldir, Gutenberg-sviginn er að lokast og …
Show notes
Við lifum víst á öld ólæsis með dómsdags-PISA-kannanir eins og skríkjandi leðurblökuhjörð yfir okkur. Málsmetandi rithöfundar og blaðamenn boða öld ólæsis og myrkar miðaldir, Gutenberg-sviginn er að lokast og þar með prentöldin og jafnvel ritmálið eins og það leggur sig. En á sama tíma eru bækur sexí, að lesa er hot, bókaklúbbar eru á hverju strái – það eru allir að bookmaxxa og skrolla booktok og bookstagram. Hvað er rétt í þessu? Við ræðum við Maríu Elísabetu Bragadóttur rithöfund um hvað sé á seyði. Ljóðabókin Antithesis er fyrsta ljóðabók Jovönu Pavlović sem hefur hingað til kveðið sér hljóðs á fræðasviðinu. Hún skrifar beinskeytta bók um sjálfið og samfélagið, um heimsvaldastefnu, hvítan femínisma og okkur og hina. Hvernig er hægt að færa gagnrýna hugsun sem finna má í fræðigreinum yfir í ljóð? Þegar pólski nóbelshöfundurinn Olga Tokarczuk kom hingað til lands fyrir skemmstu til að taka á móti alþjóðlegum bókmenntaverðlaunum Halldórs Laxness í Norræna húsinu nefndi hún tvo höfunda sem eru meðal þeirra allra stærstu í heimi vísindaskáldsagna á 20. öld, Stanislaw Lem, landa Olgu frá Póllandi, og hins vegar hinn ameríska Philip K. Dick. Hvað sér hún í þeim og af hverju fóru þeir í hár saman í kalda stríðinu? Viðmælendur: Jovana Pavlović og María Elísabet Bragadóttir. Lesari: Brynhildur Björnsdóttir. Tónlist: Bubbi - Ég elska bækur, David Bowie - I can't read og Aphex Twin - T69 Collapse.Antithesis, Dick vs. Lem og eru bækur sexí eða dauðadæmdar?
Við lifum víst á öld ólæsis með dómsdags-PISA-kannanir eins og skríkjandi leðurblökuhjörð yfir okkur. Málsmetandi rithöfundar og blaðamenn boða öld ólæsis og myrkar miðaldir, Gutenberg-sviginn er að lokast og …
Show notes
Við lifum víst á öld ólæsis með dómsdags-PISA-kannanir eins og skríkjandi leðurblökuhjörð yfir okkur. Málsmetandi rithöfundar og blaðamenn boða öld ólæsis og myrkar miðaldir, Gutenberg-sviginn er að lokast og þar með prentöldin og jafnvel ritmálið eins og það leggur sig. En á sama tíma eru bækur sexí, að lesa er hot, bókaklúbbar eru á hverju strái – það eru allir að bookmaxxa og skrolla booktok og bookstagram. Hvað er rétt í þessu? Við ræðum við Maríu Elísabetu Bragadóttur rithöfund um hvað sé á seyði. Ljóðabókin Antithesis er fyrsta ljóðabók Jovönu Pavlović sem hefur hingað til kveðið sér hljóðs á fræðasviðinu. Hún skrifar beinskeytta bók um sjálfið og samfélagið, um heimsvaldastefnu, hvítan femínisma og okkur og hina. Hvernig er hægt að færa gagnrýna hugsun sem finna má í fræðigreinum yfir í ljóð? Þegar pólski nóbelshöfundurinn Olga Tokarczuk kom hingað til lands fyrir skemmstu til að taka á móti alþjóðlegum bókmenntaverðlaunum Halldórs Laxness í Norræna húsinu nefndi hún tvo höfunda sem eru meðal þeirra allra stærstu í heimi vísindaskáldsagna á 20. öld, Stanislaw Lem, landa Olgu frá Póllandi, og hins vegar hinn ameríska Philip K. Dick. Hvað sér hún í þeim og af hverju fóru þeir í hár saman í kalda stríðinu? Viðmælendur: Jovana Pavlović og María Elísabet Bragadóttir. Lesari: Brynhildur Björnsdóttir. Tónlist: Bubbi - Ég elska bækur, David Bowie - I can't read og Aphex Twin - T69 Collapse.Tove Jansson segir skilið við Múmíndal og margverðlaunuð Olga Tokarczuk
„Hér eru engir múmínálfar,“ skrifar listakonan finnsk-sænska Tove Jansson í bréfi til Tuulikki Pietilä konu sinnar þegar hún var að byrja að skrifa bók sem átti að slíta hana frá stóra sköpunarverkinu, Múmíndal …
Show notes
„Hér eru engir múmínálfar,“ skrifar listakonan finnsk-sænska Tove Jansson í bréfi til Tuulikki Pietilä konu sinnar þegar hún var að byrja að skrifa bók sem átti að slíta hana frá stóra sköpunarverkinu, Múmíndal og öllum íbúum hans. Dóttir myndhöggvarans kom fyrst út árið 1968 en var að koma út í þýðingu Gerðar Kristnýjar. Bókin samanstendur af 19 smásögum frá sjónarhorni barns og lýsa sögurnar æsku Tove á skáldlegan hátt, tilverunni á listamannaheimili sem er fullt af sköpun, gáska en líka hættum. Pólski rithöfundurinn og Nóbelshafinn Olga Tokarczuk hlaut í vikunni Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness. Ewa Marcinek, kemur og ræðir við mig um Olgu Tokarczuk, bókmenntir og Pólland. Viðmælendur: Ewa Marcinek og Gerður Kristný. Lesari: Guðrún Gunnarsdóttir Tónlist: Etiovalssi - Jimi Tenor og Blood in the Labyrinth - Boards of CanadaTove Jansson segir skilið við Múmíndal og margverðlaunuð Olga Tokarczuk
„Hér eru engir múmínálfar,“ skrifar listakonan finnsk-sænska Tove Jansson í bréfi til Tuulikki Pietilä konu sinnar þegar hún var að byrja að skrifa bók sem átti að slíta hana frá stóra sköpunarverkinu, Múmíndal …
Show notes
„Hér eru engir múmínálfar,“ skrifar listakonan finnsk-sænska Tove Jansson í bréfi til Tuulikki Pietilä konu sinnar þegar hún var að byrja að skrifa bók sem átti að slíta hana frá stóra sköpunarverkinu, Múmíndal og öllum íbúum hans. Dóttir myndhöggvarans kom fyrst út árið 1968 en var að koma út í þýðingu Gerðar Kristnýjar. Bókin samanstendur af 19 smásögum frá sjónarhorni barns og lýsa sögurnar æsku Tove á skáldlegan hátt, tilverunni á listamannaheimili sem er fullt af sköpun, gáska en líka hættum. Pólski rithöfundurinn og Nóbelshafinn Olga Tokarczuk hlaut í vikunni Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness. Ewa Marcinek, kemur og ræðir við mig um Olgu Tokarczuk, bókmenntir og Pólland. Viðmælendur: Ewa Marcinek og Gerður Kristný. Lesari: Guðrún Gunnarsdóttir Tónlist: Etiovalssi - Jimi Tenor og Blood in the Labyrinth - Boards of CanadaPrumphænsnin eru víða: The Catcher in the Rye 75 ára
Við týnumst í New York með Holden Caulfield í þætti dagsins. The Catcher in the Rye eftir J.D. Salinger er 75 ára í ár. Skáldsögunni fylgir ákveðinn sögulegur baggi, ára og sögusagnir, allt að því …
Show notes
Við týnumst í New York með Holden Caulfield í þætti dagsins. The Catcher in the Rye eftir J.D. Salinger er 75 ára í ár. Skáldsögunni fylgir ákveðinn sögulegur baggi, ára og sögusagnir, allt að því samsæriskenningar. Í heimalandinu Bandaríkjunum hefur bókin sums staðar verið blátt áfram bönnuð. Þetta uppsafnaða umtal hefur gert það að verkum að viðtökusaga bókarinnar er einn þyngsti hluti hennar sem litar afstöðu allra lesenda og verðandi lesenda. Og það er eins og það sé ekki hægt að ræða hana of mikið. Hún fyrst út í hlutum á árunum 1945-1946 en heildarútgáfan kom út hjá Little, Brown and Company sumarið 1951. Hún hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál og selst ár hvert í um það bil milljón eintökum, sem líklega skýrist af því að hún er víða kennsluefni í ensku, þar á meðal hér á Íslandi. Flosi Ólafsson þýddi verkið árið 1975 og heitir Bjargvætturinn í grasinu. Viðmælendur: Hjálmar Sveinsson, Pétur Már Sigurjónsson og nafnlaus ritlistarnemi. Leikin er tónlist með Thelonious Monk, Eyþóri Gunnarssyni og brot úr útvarpsþættinum Segið aldrei neinum frá neinu (2009) og upplestri Elíasar Mar á Vögguvísu frá 1974.Köngurváfa og Mánahjörð
Tvær ljóðabækur reka á fjörur okkar í þætti dagsins. Ein er frá því í vor, hin er haustbók sem kom út um það leyti sem almyrkvinn umtalaði á sólu reið hér yfir. Bækurnar eiga sitthvað sameiginlegt, þær draga …
Show notes
Tvær ljóðabækur reka á fjörur okkar í þætti dagsins. Ein er frá því í vor, hin er haustbók sem kom út um það leyti sem almyrkvinn umtalaði á sólu reið hér yfir. Bækurnar eiga sitthvað sameiginlegt, þær draga báðar fram myndir úr fortíðinni þar sem leitað er í æskuminningarnar og báðar hafa þær að geyma ljóð sem bregða á náttúruna nýrri birtu eða framandgera það sem alla jafna telst hversdagslegt og bæði skáld blanda saman raunsæi og fantasíu. Titlar beggja eru sóttir í fortíð, glataða menningu eða orðaforða sem tengir þær við hið goðsagnakennda. Þetta eru ljóðabækurnar Mánahjörð eftir Kára Tulinius og Köngurváfa eftir Arndísi Þórarinsdóttur. Við ætlum að hitta bæði skáldin í þætti dagsins, heyra ljóð úr bókunum og spjalla um kveðskapinn. Viðmælendur: Kári Tulinius og Arndís Þórarinsdóttir.Skrapp út, kem að vörmu kv. Ódysseifur
Það er nánast alveg sama hvar leitað er í vestrænni bókmenntasögu, alltaf er von á því að mæta Ódysseifi í einhverri mynd, gríska kappanum, konungi Íþöku, sem hraktist um miðjarðarhafið í 10 ár á leið sinni …
Show notes
Það er nánast alveg sama hvar leitað er í vestrænni bókmenntasögu, alltaf er von á því að mæta Ódysseifi í einhverri mynd, gríska kappanum, konungi Íþöku, sem hraktist um miðjarðarhafið í 10 ár á leið sinni heim eftir jafnlangt stríð við Trójumenn. Persónur, guðir og goðsagnir úr þessum elstu bókmenntatextum vesturlanda hafa vakið undrun og innblástur um aldir en líklega enginn eins og Ódysseifur, sem er ekki aðeins að finna í Ódysseifskviðu þar sem hann er söguhetjan og Illíonskviðu þar sem hann leikur líka stórt hlutverk heldur er hann goðsögn sem dúkkar upp reglulega í bókmenntasögunni, stundum í yfirfærðri merkingu og sagan um heimferð hans hefur orðið einskonar skapalón fyrir hetju- og heimferðasögur. Ódysseifur hefur orðið tákn flökkuhetjunnar sem leitar heimilis síns og hann hefur verið túlkaður á ótal vegu í takt við tíðarandann hverju sinni. Ódysseifur er menningartákn nánast eins og það sem í dag kallast jarm eða meme, hugmynd eða tákn sem berst milli manna og þvert á menningarheima. Alltaf á leiðinni heim. En virðist aldrei takast það. Hver er þessi flókni maður, bragðarefurinn, hinn ráðagóði Ódysseifur. Af hverju er hann í sífelldri aðlögun og endurnýjun? Viðmælendur: Hjalti Snær Ægisson og Gottskálk Jensson.Drengur les sér til gagns
Við bókagrúsk í Bókakaffinu í Síðumúla hitti Jóhannes Ólafsson fyrir feðga sem spjölluðu saman og skoðuðu gamlar bækur. Drengurinn, ekki eldri en 12 ára, gekk út með Glæp og refsingu eftir Fjodor Dostojevskí …
Show notes
Við bókagrúsk í Bókakaffinu í Síðumúla hitti Jóhannes Ólafsson fyrir feðga sem spjölluðu saman og skoðuðu gamlar bækur. Drengurinn, ekki eldri en 12 ára, gekk út með Glæp og refsingu eftir Fjodor Dostojevskí undir hendinni. Það kom á daginn að þessi kornungi bókaormur er djúpt sokkinn í lestur heimsbókmennta og bókasöfnun. Röð tilviljana leiddu til þess að Jóhannes og drengurinn, Gabríel Haukur, hittust aftur og ræddu bókmenntir og lestur ungra drengja fyrir þáttinn Bara bækur. Það heyrast gjarnan fréttir um að ungir drengir séu sá þjóðfélagshópur sem geti varla lesið sér til gagns. Í Bara bókum verður skyggnst inn í stöðu læsis á Íslandi og rætt við unga heimsbókmenntamanninn Gabríel sem hefur fyrir 12 ára aldur lesið verk eftir Victor Hugo, George Orwell, John Steinbeck og Mary Shelly.Drengur les sér til gagns
Við bókagrúsk í Bókakaffinu í Síðumúla hitti Jóhannes Ólafsson fyrir feðga sem spjölluðu saman og skoðuðu gamlar bækur. Drengurinn, ekki eldri en 12 ára, gekk út með Glæp og refsingu eftir Fjodor Dostojevskí …
Show notes
Við bókagrúsk í Bókakaffinu í Síðumúla hitti Jóhannes Ólafsson fyrir feðga sem spjölluðu saman og skoðuðu gamlar bækur. Drengurinn, ekki eldri en 12 ára, gekk út með Glæp og refsingu eftir Fjodor Dostojevskí undir hendinni. Það kom á daginn að þessi kornungi bókaormur er djúpt sokkinn í lestur heimsbókmennta og bókasöfnun. Röð tilviljana leiddu til þess að Jóhannes og drengurinn, Gabríel Haukur, hittust aftur og ræddu bókmenntir og lestur ungra drengja fyrir þáttinn Bara bækur. Það heyrast gjarnan fréttir um að ungir drengir séu sá þjóðfélagshópur sem geti varla lesið sér til gagns. Í Bara bókum verður skyggnst inn í stöðu læsis á Íslandi og rætt við unga heimsbókmenntamanninn Gabríel sem hefur fyrir 12 ára aldur lesið verk eftir Victor Hugo, George Orwell, John Steinbeck og Mary Shelly.Hver er útlendingurinn í Útlendingnum?
Útlendingurinn er líklega þekktasta verk fransk-alsírska nóbelshöfundarins Albert Camus og hefur í gegnum tíðina verið mikið teygð, túlkuð og kennd. Í grunninn er þetta einföld saga en um leið gríðarlega flókin …
Show notes
Útlendingurinn er líklega þekktasta verk fransk-alsírska nóbelshöfundarins Albert Camus og hefur í gegnum tíðina verið mikið teygð, túlkuð og kennd. Í grunninn er þetta einföld saga en um leið gríðarlega flókin og margir hafa gert atlögu að því að túlka hvað vakti fyrir Camus með henni. Aðalsöguhetjan sögunnar, sem skrifuð er í fyrstu persónu, er hinn ungi Meursault, sem fréttir af andláti móður sinnar í upphafi bókar. Lesendur fylgjast með líkvökunni og jarðarförinni og síðan hversdagslífi Meursault í Algeirsborg, kynnast nágrönnum hans og ástkonunni Marie. Hversdagsleikanum lýkur þó endanlega þegar Mersault er staddur á strönd um miðbik sögunnar þar sem hann gengur fram á ungan Araba sem liggur á ströndinni og endar á að drepa hann. Í síðari hluta verksins eru atburðir fyrri hlutans endursagðir og túlkaðir af vitnum og lögmönnum í yfirheyrslum og réttarhöldum og að lokum er dauðadómur kveðinn yfir Meursault. Allt þetta er enn í gegnum sjónvarhorn hans og er nokkuð ljóst að þessi undarlega, passíva persóna finnur ekki til eftirsjár. Hann finnur í raun ekki mikið og er holdgervingur hins absúrdíska ástands sem var Camus svo hugleikið. Inn í þetta fléttast líka flókin menningarátök milli nýlenduherranna Frakka og heimamanna, Arabanna í Alsír. Viðmælendur: Ásdís Rósa Magnúsdóttir og Toby Wikström.Hver er útlendingurinn í Útlendingnum?
Útlendingurinn er líklega þekktasta verk fransk-alsírska nóbelshöfundarins Albert Camus og hefur í gegnum tíðina verið mikið teygð, túlkuð og kennd. Í grunninn er þetta einföld saga en um leið gríðarlega flókin …
Show notes
Útlendingurinn er líklega þekktasta verk fransk-alsírska nóbelshöfundarins Albert Camus og hefur í gegnum tíðina verið mikið teygð, túlkuð og kennd. Í grunninn er þetta einföld saga en um leið gríðarlega flókin og margir hafa gert atlögu að því að túlka hvað vakti fyrir Camus með henni. Aðalsöguhetjan sögunnar, sem skrifuð er í fyrstu persónu, er hinn ungi Meursault, sem fréttir af andláti móður sinnar í upphafi bókar. Lesendur fylgjast með líkvökunni og jarðarförinni og síðan hversdagslífi Meursault í Algeirsborg, kynnast nágrönnum hans og ástkonunni Marie. Hversdagsleikanum lýkur þó endanlega þegar Mersault er staddur á strönd um miðbik sögunnar þar sem hann gengur fram á ungan Araba sem liggur á ströndinni og endar á að drepa hann. Í síðari hluta verksins eru atburðir fyrri hlutans endursagðir og túlkaðir af vitnum og lögmönnum í yfirheyrslum og réttarhöldum og að lokum er dauðadómur kveðinn yfir Meursault. Allt þetta er enn í gegnum sjónvarhorn hans og er nokkuð ljóst að þessi undarlega, passíva persóna finnur ekki til eftirsjár. Hann finnur í raun ekki mikið og er holdgervingur hins absúrdíska ástands sem var Camus svo hugleikið. Inn í þetta fléttast líka flókin menningarátök milli nýlenduherranna Frakka og heimamanna, Arabanna í Alsír. Viðmælendur: Ásdís Rósa Magnúsdóttir og Toby Wikström.Fyrsta íslenska konan sem gefur út bók og milljón punda seðill
Mark Twain. Höfundur sem hefur oftsinnis verið þýddur á íslensku og það alveg frá samtíma Twains. Flestir þekkja eflaust sögurnar um Stikilsberja Finn eða Huckleberry Finn. Fyrir skemmstu kom út smásaga eftir …
Show notes
Mark Twain. Höfundur sem hefur oftsinnis verið þýddur á íslensku og það alveg frá samtíma Twains. Flestir þekkja eflaust sögurnar um Stikilsberja Finn eða Huckleberry Finn. Fyrir skemmstu kom út smásaga eftir Twain, Milljón punda seðillinn í þýðingu Guðna Kolbeinssonar. Það er Sverrir Kristinsson sem gefur út en hann hefur reglulega gefið út gamlar merkilegar bækur í stílhreinum útgáfum frá 2011. Þetta er þó ekki fyrsta þýðing þessarar sögu, sem er einskonar dæmisaga og samfélagsgagnrýni sem kom fyrst út 1893. Við ræðum við Guðna Kolbeinsson þýðanda. Júlíana Jónsdóttir í Akureyjum var fyrst íslenskra kvenna til þess að fá gefna út bók eftir sig. Það var ljóðabók sem nefndist Stúlka og kom út árið 1876. Löngu síðar kom út önnur ljóðabók eftir Júlíönu, sem þá var orðin roskin og flutt til Vesturheims; sú nefndist Hagalagðar. Á afmælisári beggja bókanna koma þær nú út saman í einu bindi, önnur 150 ára gömul og hin 110 ára. Ljóðin bera aldurinn vel og vitna um leiftrandi gáfur, seiglu og skopskyn Júlíönu sem var vinnukona frá ungaaldri og hlaut enga formlega skólagöngu. Við fjöllum þessa nýju útgáfu í þættinum og ræðum við Sólveigu Ástu Sigurðardóttur sem ritar eftirmála. Viðmælendur: Guðni Kolbeinsson og Sólveig Ásta Sigurðardóttir.Fjöruverðlaunin og íslensku þýðingaverðlaunin
Við verðum með verðlaunagripi á lofti í þættinum, það er ýmislegt í íslenskum bókmenntum sem hefur verið verðlaunað á síðustu viku. Fyrir örfáum dögum voru Fjöruverðlaunin veitt, bókmenntaverðlaun kvenna og …
Show notes
Við verðum með verðlaunagripi á lofti í þættinum, það er ýmislegt í íslenskum bókmenntum sem hefur verið verðlaunað á síðustu viku. Fyrir örfáum dögum voru Fjöruverðlaunin veitt, bókmenntaverðlaun kvenna og kvára og í lok febrúar voru þýðingarverðlaunin afhent. Við förum yfir þær bækur sem voru verðlaunaðar að þessu sinni og heyrum brot úr umfjöllun Rásar 1 um bækurnar. Viðmælendur: Maó Alheimsdóttir, Brynhildur Þórarinsdóttir, Kristín Guðrún Jónsdóttir, Elísabet Gunnarsdóttir og Áslaug Agnarsdóttir.Bækur verða bíó: Röskun og Hamnet
Við tökum með okkur bækur í bíósalinn í þætti dagsins. Bækur hafa orðið efni í kvikmyndir allt frá upphafi þeirrar listgreinar. Við lítum á tvær skáldsögur í dag sem komu út á svipuðum tíma og urðu að kvikmynd …
Show notes
Við tökum með okkur bækur í bíósalinn í þætti dagsins. Bækur hafa orðið efni í kvikmyndir allt frá upphafi þeirrar listgreinar. Við lítum á tvær skáldsögur í dag sem komu út á svipuðum tíma og urðu að kvikmynd á svipuðum tíma. Það eru bækurnar Röskun eftir Írisi Ösp Ingjaldsdóttur sem kom út árið 2019 og varð að kvikmynd nú fyrir skemmstu. Og skáldsagan Hamnet eftir írska rithöfundinn Maggie O’Farrell sem kom út 2020 og varð að kvikmynd í lok síðasta árs. Viðmælendur: Íris Ösp Ingjaldsdóttir, Ingibjörg Iða Auðunardóttir, Ingibjörg Ágústsdóttir og Sunna Dís Másdóttir.Svikasjálf greifans, kristin hefnd og brúin yfir í heimsbókmenntir
Franski rithöfundurinn Alexandre Dumas er miðpunktur þáttarins í dag. Hann er langfrægastur fyrir bækurnar Greifinn af Monte Cristo, Skytturnar þrjár og Maðurinn með járngrímuna. En hann skrifaði heilan haug af …
Show notes
Franski rithöfundurinn Alexandre Dumas er miðpunktur þáttarins í dag. Hann er langfrægastur fyrir bækurnar Greifinn af Monte Cristo, Skytturnar þrjár og Maðurinn með járngrímuna. En hann skrifaði heilan haug af öðrum bókum og leikritum, enda var hann lengi vel með her skósveina sem skrifuðu fyrir hann og með honum. Saga hans er líka svo áhugaverð, hann fæddist skömmu eftir aldamótin 1800 þegar allt var á stjórnmálalegum suðupunkti í Frakklandi eftir byltinguna; Napóleon, aftur yfir í konung, svo aftur Napóleon. Faðir Dumas barðist í byltingunni og var síðar virtur hershöfðingi í franska hernum. Hann fæddist í frönsku nýlendunni Santki Dominík í Vestur-Indíum, þar sem nú er Haítí. Faðir hans var franskur aðalsmaður, hvítur þrælahaldari en móðir hans var þræll hans, svört kona af óþekktum afrískum uppruna. Alexandre Dumas ólst upp föðurlaus og í sárafátækt hjá móður sinni og varð svo einn afkastamesti og frægasti rithöfundur Frakka fyrr og siðar. Faðirinn sem hann fékk ekki að kynnast var samt goðsögn í augum Dumas og var hann innblástur að mörgum af persónunum í bókunum. Bækur Dumas, sem sumar fara að nálgast 200 ára aldur, eru enn þá gríðarlega vinsælar og mikið þýddar og Dumas er á topplista yfir mest þýddu höfunda sögunnar. Sögurnar hafa líka orðið reglulega innblástur fyrir bíó, sjónvarp og leikhús. Ein þessara bóka, Greifinn af Monte Cristo, verður einna mest í brennidepli í dag. Viðmælendur: Ragnhildur Helgadóttir, Sigurjón Bergþór Daðason og Guðrún Kristinsdóttir.Kæri fáviti og Ursula K. Le Guin
Í upphafi fjöllum við um Ursulu K. Le Guin bandaríska furðusagnahöfundinum sem lést árið 2018, en hún átti langan og merkilegan feril að baki og braut blað í því að færa vísindaskáldskap og fantasíur upp um …
Show notes
Í upphafi fjöllum við um Ursulu K. Le Guin bandaríska furðusagnahöfundinum sem lést árið 2018, en hún átti langan og merkilegan feril að baki og braut blað í því að færa vísindaskáldskap og fantasíur upp um virðingarflokk. Rætt verður við aðdáanda bóka Le Guin, Þórhall Auð Helgason óperusöngvara sem hefur lesið verkin sum hver oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Það verða einnig nokkur viðtalsbrot úr innslagi í Lestinni á sínum tíma, stuttu eftir að Le Guin lést. Í síðari hluta þáttar beinum við sjónum okkar að Frakklandi. Nýjasta bók rithöfundarins og kvikmyndagerðarkonunnar Virginie Despentes, Cher Connard frá 2022 sem nú hefur komið út hjá Benedikt útgáfu og ber titilinn Kæri fáviti. Við hringjum í Kristínu Jónsdóttur sem búsett er í París og ræðum bókina og Despentes. Bækur þessa alræmda franska höfundar hafa aldrei verið þýddar á íslensku áður en þær hafa alltaf vakið gríðarlegt umtal í Frakklandi. Í bókum sínum tekst hún á við viðkvæm efni; vændi, kynferðisofbeldi, fátækt, fíkn og jaðarsetningu. Kæri fáviti er bréfaskáldsaga, gerist að mestu í einkaskilaboðum á instagram og er uppgjör við #metoo og alkahólisma svo fátt eitt sé nefnt. Viðmælendur: Þórhallur Auður Helgason, Brynhildur Björnsdóttir, Eyja Margrét Brynjarsdóttir og Kristín Jónsdóttir. Lesarar: Lóa Björk Björnsdóttir, Kristján Guðjónsson og Anna Gyða Sigurgísladóttir.Síðustu dagar skeljaskrímslisins og hrakfarir Hemingways
Í þættinum í dag verðum við bæði í festum og á flakki. Við byrjum á suðurnesjunum í bát við bryggjuna og leitum að skeljaskrímslum með Steinunni G. Helgadóttur rithöfundi og myndlistarmanni. Steinunn var að …
Show notes
Í þættinum í dag verðum við bæði í festum og á flakki. Við byrjum á suðurnesjunum í bát við bryggjuna og leitum að skeljaskrímslum með Steinunni G. Helgadóttur rithöfundi og myndlistarmanni. Steinunn var að gefa út sína fjórðu skáldsögu, Síðustu dagar skeljaskrímslisins. Svo höldum við suður á bóginn til Parísar og Pamplóna og lendum í hrakningum með Ernest Hemingway. 100 ár eru frá því að fyrsta skáldsaga nóbelshöfundarins og hrakfallabálksins bandaríska kom út 1926; The Sun Also Rises eða Og sólin rennur upp. Lilja Sigurðardóttir rithöfundur hefur lengi haft mikinn áhuga á Hemingway og segir frá lygilegri ævi hans. Viðmælendur: Steinunn G. Helgadóttir og Lilja Sigurðardóttir.Birtíngur horfir á fréttatímann og Öskubuska með slæman endi
Pistill um skáldsöguna Flesh eftir David Szalay sem hlaut Booker-verðlaunin 2025 og samtal við Grétu Sigríði Einarsdóttur fréttamann og bókmenntarýni um bókina. Umfjöllun um Birtíng eftir Voltaire. Bókin sem …
Show notes
Pistill um skáldsöguna Flesh eftir David Szalay sem hlaut Booker-verðlaunin 2025 og samtal við Grétu Sigríði Einarsdóttur fréttamann og bókmenntarýni um bókina. Umfjöllun um Birtíng eftir Voltaire. Bókin sem kom út 1759 er ein frægasta háðsádeila sögunnar um stríð, ofbeldi, misskiptingu og óréttlæti heimsins og á hún stöðugt í samtali við samtímann. Og okkar samtími virðist oft vera fullur af tortímandi öflum, uppgangi fasisma, loftsalgskrísu og stríðsátökum. Er það fréttum að kenna? Eigum við að vera bjartsýn, svartsýn og kannski bara rækta garðinn okkar? Við skoðum hvernig Birtíngur og ferðalag hans um heiminn talar við tímana sem við lifum nú með Ásdísi Rósu Magnúsdóttur prófessor í frönskum bókmenntum við Háskóla Íslands. Viðmælendur: Gréta Sigríður Einarsdóttir og Ásdís Rósa Magnúsdóttir. Lesari: Halldór Laxness Hljóðbrot úr Fréttaannál sjónvarps 2025 og Kastljósi. Tónlist: For the damaged Coda - Blonde Redhead, It's a Mad Mad Mad Mad World - The Schirelles, Pista (Fresh Start) - Los Bitchos.Birtíngur horfir á fréttatímann og Öskubuska með slæman endi
Pistill um skáldsöguna Flesh eftir David Szalay sem hlaut Booker-verðlaunin 2025 og samtal við Grétu Sigríði Einarsdóttur fréttamann og bókmenntarýni um bókina. Umfjöllun um Birtíng eftir Voltaire. Bókin sem …
Show notes
Pistill um skáldsöguna Flesh eftir David Szalay sem hlaut Booker-verðlaunin 2025 og samtal við Grétu Sigríði Einarsdóttur fréttamann og bókmenntarýni um bókina. Umfjöllun um Birtíng eftir Voltaire. Bókin sem kom út 1759 er ein frægasta háðsádeila sögunnar um stríð, ofbeldi, misskiptingu og óréttlæti heimsins og á hún stöðugt í samtali við samtímann. Og okkar samtími virðist oft vera fullur af tortímandi öflum, uppgangi fasisma, loftsalgskrísu og stríðsátökum. Er það fréttum að kenna? Eigum við að vera bjartsýn, svartsýn og kannski bara rækta garðinn okkar? Við skoðum hvernig Birtíngur og ferðalag hans um heiminn talar við tímana sem við lifum nú með Ásdísi Rósu Magnúsdóttur prófessor í frönskum bókmenntum við Háskóla Íslands. Viðmælendur: Gréta Sigríður Einarsdóttir og Ásdís Rósa Magnúsdóttir. Lesari: Halldór Laxness Hljóðbrot úr Fréttaannál sjónvarps 2025 og Kastljósi. Tónlist: For the damaged Coda - Blonde Redhead, It's a Mad Mad Mad Mad World - The Schirelles, Pista (Fresh Start) - Los Bitchos.Samantekt: Vónbjørt Vang, bókaklúbbar fræga fólksins og flugvallabókmenntir
Við byrjum á umfjöllun um Vónbjørt Vang ljóðskáldi frá Færeyjum sem hlaut bókmenntaverðlaun norðurlandaráðs fyrir ljóðabókina Svarta orkídeian. Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir þýðandi og sú sem stýrir …
Show notes
Við byrjum á umfjöllun um Vónbjørt Vang ljóðskáldi frá Færeyjum sem hlaut bókmenntaverðlaun norðurlandaráðs fyrir ljóðabókina Svarta orkídeian. Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir þýðandi og sú sem stýrir fornbókabúðinni Kanínuholan sagði mér frá skáldskap Vónbjørt í haust en von er á íslenskri þýðingu frá Móheiði á sigurbókinni. Við hlerum líka bókaklúbba fræga fólksins, það er enginn frægur með frægum nema hann sé með bókaklúbb og nýti hann til góðs og ills. Það eru stundum ekki beint bókmenntahvatar þar á bakvið. Í lokin förum við út á flugvöll þar sem er alveg sérstök bókmenning. Hvaða bækur eru í flugvallabókabúðum og hvernig endurspegla flugvellir ástand nútímamannsins? Sjöfn Asare bókmenntafræðingur og rithöfundur fór yfir það með mér síðla sumars.Samantekt: Vónbjørt Vang, bókaklúbbar fræga fólksins og flugvallabókmenntir
Við byrjum á umfjöllun um Vónbjørt Vang ljóðskáldi frá Færeyjum sem hlaut bókmenntaverðlaun norðurlandaráðs fyrir ljóðabókina Svarta orkídeian. Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir þýðandi og sú sem stýrir …
Show notes
Við byrjum á umfjöllun um Vónbjørt Vang ljóðskáldi frá Færeyjum sem hlaut bókmenntaverðlaun norðurlandaráðs fyrir ljóðabókina Svarta orkídeian. Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir þýðandi og sú sem stýrir fornbókabúðinni Kanínuholan sagði mér frá skáldskap Vónbjørt í haust en von er á íslenskri þýðingu frá Móheiði á sigurbókinni. Við hlerum líka bókaklúbba fræga fólksins, það er enginn frægur með frægum nema hann sé með bókaklúbb og nýti hann til góðs og ills. Það eru stundum ekki beint bókmenntahvatar þar á bakvið. Í lokin förum við út á flugvöll þar sem er alveg sérstök bókmenning. Hvaða bækur eru í flugvallabókabúðum og hvernig endurspegla flugvellir ástand nútímamannsins? Sjöfn Asare bókmenntafræðingur og rithöfundur fór yfir það með mér síðla sumars.
These are the latest 60 of 121 episodes. You’ll find older episodes in the podcast’s feed.
Similar podcasts
More Arts podcastsIs this your podcast?
Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.







