Skip to content

Ókunnugt fólk, 1984 með augum Júlíu og fylgiskáldsögutískan

September 26, 2026 · 54 min

Show notes

Við blöðum í nýútkominni skáldsögu, Ókunnugt fólk eftir Björn Halldórsson. Það er saga af íslenskri samtímafjölskyldu sem er enn að kljást við afleiðingar af sárum missi í fjölskyldunni og nær hún ekki að tengjast á ný. Það ríkir þögn milli fimm náinna fjölskyldumeðlima sem hvert og eitt reynir að fylla upp í hana með ágiskunum og gremju. Rætt verður við Björn Halldórsson um hugmyndir og þemu verksins. Undanfarið hefur borið á tegund bókmennta sem nýta sér aðrar bækur, oft frægar, sem beinan efnivið. Þetta hefur verið kallað fylgiskáldsögur eða hliðstæðusögur, companion novels og er skylt fan-fiction bókum þar sem aðdáendur teygja sögusvið bókar með eigin skrifum. Sagan er endursögð með nýju sjónarhorni. Einhver gæti sagt að öll sagnagerð sé endurvinnsla, allt er remix. Endurunnar sögur geta minnt okkur á eitthvað mikilvægt í bókum og sett þær í nýtt samhengi. Ein slík fylgiskáldsaga kom út fyrir skemmstu á íslensku, Júlía eftir bandaríska rithöfundinn Söndru Newman, og er endursögn á 1984 Orwells. Við rýnum aðeins í hana í þættinum. Viðmælendur: Björn Halldórsson Lesarar: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir, Pétur Eggersson og Halla Harðardóttir. Tónlist: Strangers - The Kinks, Julia - Eurythmics, A little closer - Skúli Sverrisson, Nocture no. 20 - Michael Kolk.

All episodes of Bara bækur

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.