Skip to content

Antithesis, Dick vs. Lem og eru bækur sexí eða dauðadæmdar?

September 19, 2026 · 53 min

Show notes

Við lifum víst á öld ólæsis með dómsdags-PISA-kannanir eins og skríkjandi leðurblökuhjörð yfir okkur. Málsmetandi rithöfundar og blaðamenn boða öld ólæsis og myrkar miðaldir, Gutenberg-sviginn er að lokast og þar með prentöldin og jafnvel ritmálið eins og það leggur sig. En á sama tíma eru bækur sexí, að lesa er hot, bókaklúbbar eru á hverju strái – það eru allir að bookmaxxa og skrolla booktok og bookstagram. Hvað er rétt í þessu? Við ræðum við Maríu Elísabetu Bragadóttur rithöfund um hvað sé á seyði. Ljóðabókin Antithesis er fyrsta ljóðabók Jovönu Pavlović sem hefur hingað til kveðið sér hljóðs á fræðasviðinu. Hún skrifar beinskeytta bók um sjálfið og samfélagið, um heimsvaldastefnu, hvítan femínisma og okkur og hina. Hvernig er hægt að færa gagnrýna hugsun sem finna má í fræðigreinum yfir í ljóð? Þegar pólski nóbelshöfundurinn Olga Tokarczuk kom hingað til lands fyrir skemmstu til að taka á móti alþjóðlegum bókmenntaverðlaunum Halldórs Laxness í Norræna húsinu nefndi hún tvo höfunda sem eru meðal þeirra allra stærstu í heimi vísindaskáldsagna á 20. öld, Stanislaw Lem, landa Olgu frá Póllandi, og hins vegar hinn ameríska Philip K. Dick. Hvað sér hún í þeim og af hverju fóru þeir í hár saman í kalda stríðinu? Viðmælendur: Jovana Pavlović og María Elísabet Bragadóttir. Lesari: Brynhildur Björnsdóttir. Tónlist: Bubbi - Ég elska bækur, David Bowie - I can't read og Aphex Twin - T69 Collapse.

All episodes of Bara bækur

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.