Skip to content

Heiðríkja, Deig og Tengdasonur Íslands

November 7, 2026 · 54 min

Show notes

Ljóðabókin Deig eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur hlaut nýverið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar. Í Deig eru ljóð sem finna undur og ævintýri í litlu fyrirbærum í kringum okkur en líka minningar og merkingu hluta sem menn sanka að sér og hlaðast upp. Undir niðri eru líka skírskotanir í stórar hugmyndir um samfélagið og tengls manna við eitthvað stærra, við óræða drauma og hverfulleikann. Og ljóðabókin Heiðríkja var að koma út hjá Ós Pressunni, fyrsta ljóðabók Miriam Petru Ómarsdóttur Awad sem áður hefur birt ljóð á netinu og smásögu í tímaritinu Stelk. Miriam yrkir um ástina þrána, hvort sem það er þrá eftir manneskju eða stað eða stund. Og í lok þáttar setjumst við niður með Auði Övu Ólafsdóttur sem var að gefa út nýja skáldsögu hjá Benedikt og nefnist hún Tengdasonur Íslands. Það er samtímasaga um Valgerði og nöfnu hennar og barnabarn sem er ung kona í doktorsnámi í mannerfðafræði. Þeirra samband er sérstakt því þær standa nær einar eftir, þær hafa báðar misst marga nákomna og því er margt í húfi. Saman velta þær fyrir sér stóru spurningunum um dauðann, tilgang og trú og hvort siðferði sé arfgengt? Hvað er í blóðinu okkar? Tengdasonur Íslands er líka sneiðmynd af gamla Íslandi, Íslandi stríðsáranna og ástarblossa ömmu Valgerðar með útlenskum manni. Nýja bók Auðar fjallar um það hvaðan við komum og hver má vera - það þarf mögulega að minna okkur stöðugt á að við erum komin af öllum þeim sem á undan hafa farið. Viðmælendur: Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Miriam Petra Ómarsdóttir Awad og Auður Ava Ólafsdóttir.

All episodes of Bara bækur

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.