Skip to content
Fljúgum hærra

Fljúgum hærra

New33) Queens Of The Stone AgeOctober 20, 2026 · 1 h 2 min
Episodes
133
Released
monthly
Latest episode
Oct 20, 2026

About the podcast

Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu 3 segir hún frá hinum ýmsu tónlistarstefnum og merkum atburðum í tónlistarsögunni. 
Safnakerlan Linda dregur hins vegar fram sögur af spennandi konum í ljósmyndun. 
Þið finnið okkur líka á Facebook og getið hlustað á þættina okkar á Spotify, Apple Podcast og fjölmörgum öðrum hlaðvarpsveitum

Episodes 133

  1. 33) Queens Of The Stone Age

    1 h 2 minSeason 3 · Episode 33

    Queens Of The Stone Age eru að heimsækja okkur í annað skiptið núna næstkomandi laugardag og er því ekki úr vegi að rifja upp feril hljómsveitarinnar auk þess að segja frá mjög svo merkilegum ferli Josh Homme …

    Show notes

    Queens Of The Stone Age eru að heimsækja okkur í annað skiptið núna næstkomandi laugardag og er því ekki úr vegi að rifja upp feril hljómsveitarinnar auk þess að segja frá mjög svo merkilegum ferli Josh Homme því hann hefur heldur betur komið víða við og brallað margt merkilegt alveg frá því hann var rétt um tvítugt að spila með félögum sínu úti í Palm Desert eyðimörkinni.

  2. 32) Soundgarden

    1 h 20 minSeason 3 · Episode 32

    Late 80´s var Seattle bara útnári þar sem að ekkert var að gerast og þangað sem enginn fór sem ekki átti erindi en í bílskúrum og kjöllurum víðsvegar um borgina voru hljómsveitir að spila sem áttu svo eftir að …

    Show notes

    Late 80´s var Seattle bara útnári þar sem að ekkert var að gerast og þangað sem enginn fór sem ekki átti erindi en í bílskúrum og kjöllurum víðsvegar um borgina voru hljómsveitir að spila sem áttu svo eftir að leggja heiminn að fótum sér.

    Soundgarden eru alltaf nefndir sem einn af fjórum risum grunge tímabilsins og sú hljómsveit sem best náði að brúa bilið á milli alternative tónlistar og heavy metal.

  3. 31) George Michael

    2 h 1 minSeason 3 · Episode 31

    Hvað svo sem sumum okkar, og þar á meðal mér, finnst um Wham! þá getur enginn sagt annað en að George Michael hafi verið frábær söngvari og líka lagahöfundur og oft vanmetinn sem slíkur.Hann gaf ekki út margar …

    Show notes

    Hvað svo sem sumum okkar, og þar á meðal mér, finnst um Wham! þá getur enginn sagt annað en að George Michael hafi verið frábær söngvari og líka lagahöfundur og oft vanmetinn sem slíkur.

    Hann gaf ekki út margar sólóplötur á ferlinum en þar er að finna fjöldan allan af ódauðlegum popp lögum. Hann átti við allskonar vandamál að stríða seinni hluta æfinnar og lést langt um aldur fram 2016 aðeins 53 ára gamall.

  4. 30) Guns ´n´ Roses - The Most Dangerous Band in the World

    1 h 29 minSeason 3 · Episode 30

    Margir segja að Guns ´n´ Roses séu síðasta risa rokk bandið sem komið hefur fram á sjónarsviðið. Þeir spiluðu sína blöndu af pönki, blues og classic rock og komu með, eins og einhver sagði "danger, attitude and …

    Show notes

    Margir segja að Guns ´n´ Roses séu síðasta risa rokk bandið sem komið hefur fram á sjónarsviðið. Þeir spiluðu sína blöndu af pönki, blues og classic rock og komu með, eins og einhver sagði "danger, attitude and legitimacy" þegar hair metalið hafði gengið allt of langt í hárspreyi og eyliner.

    Þó þeir hafi bara gefið út 4 stórar plötur með frumsömdu efni á öllum sínum ferli þá er hljómsveitin enn að fylla stórar íþróttahallir út um allan heim og það er hægt að velta fyrir sér hversu mikið meir þeir hefðu getað gert ef risastór egó og allt of mikið af vímuefnum hefðu ekki sprengt hljómsveitina í loft upp eftir Use your illusion

  5. 29) Lou Reed - Með og án Velvet Underground

    1 h 22 minSeason 3 · Episode 29

    Einhver blaðamaðurinn sagði um Lou Reed: Það eru til allskonar áhrifavaldar. Sumir hafa áhrif á ákveðna bylgju tónlistar meðan aðrir hafa áhrif á ákveðna kynslóð. Áhrif Lou Reed náðu langt út fyrir eina …

    Show notes

    Einhver blaðamaðurinn sagði um Lou Reed: Það eru til allskonar áhrifavaldar. Sumir hafa áhrif á ákveðna bylgju tónlistar meðan aðrir hafa áhrif á ákveðna kynslóð. Áhrif Lou Reed náðu langt út fyrir eina tónlistarbylgju eða eina kynslóð heldur náði hann að setja sitt mark á allt frá pönkinu á fyrri hluta 8. áratugarins og öllu sem á eftir því fylgdi yfir í alternative rock 10. áratugarins

  6. 28) Metallica

    1 h 40 minSeason 3 · Episode 28

    Metallica er án nokkurs vafa ein áhrifamesta og goðsagnakenndasta metal hljómsveit sögunnar. Ferill þeirra spannar áratugi og milljónir aðdáenda um allan heim hafa hlustað á lögin þeirra, mætt á tónleika og …

    Show notes

    Metallica er án nokkurs vafa ein áhrifamesta og goðsagnakenndasta metal hljómsveit sögunnar. Ferill þeirra spannar áratugi og milljónir aðdáenda um allan heim hafa hlustað á lögin þeirra, mætt á tónleika og keypt plötur allar götur síðan Kill ´em all kom út.

    Saga Metallica er saga þrautsegju og ástríðu fyrir tónlistinni og þeir hafa alltaf haldið ótrauðir áfram sama hvað á hefur dunið

  7. 27) Billy Idol - Breski pönkarinn sem fann frægð og frama í Bandaríkjunum

    1 h 10 minSeason 3 · Episode 27

    Billy Idol er eflaust ein af mest áberandi persónum 9. áratugarins í tónlistarbransanum.Það þekkja allir ljósa aflitaða hárið, rámu röddina og glottið sem hann var alltaf með á andlitinu. En hann vann fyrir …

    Show notes

    Billy Idol er eflaust ein af mest áberandi persónum 9. áratugarins í tónlistarbransanum.

    Það þekkja allir ljósa aflitaða hárið, rámu röddina og glottið sem hann var alltaf með á andlitinu. En hann vann fyrir þessu öllu.

    Hann flytur frá Bretlandi til Bandaríkjanna með ekkert í höndunum annað en drauminn um að öðlast frægð og frama sem tónlistarmaður og það tókst honum svo sannarlega. Hann var réttur maður á réttum stað á réttum tíma og ásamt útlitinu og grípandi pop/rock lögunum þá var engin furða að MTV tækju honum opnum örmum

  8. 26) Aerosmith

    1 h 26 minSeason 3 · Episode 26

    Aerosmith eru risastór áhrifavaldur á heila kynslóð rokktónlistarmanna í Bandaríkjunum hvort sem það eru Guns´n´Roses, Van Halen eða Skid Row.Í heil 56 ár hefur hljómsveitin starfað og nánast allan þann tíma …

    Show notes

    Aerosmith eru risastór áhrifavaldur á heila kynslóð rokktónlistarmanna í Bandaríkjunum hvort sem það eru Guns´n´Roses, Van Halen eða Skid Row.

    Í heil 56 ár hefur hljómsveitin starfað og nánast allan þann tíma með sömu meðlimunum sem byrjuðu að spila saman í íbúðinni sem þeir deildu í Boston sem er alveg ótrúlegt miðað við lífernið. Að þeir séu allir ofan moldu í dag, komnir á áttræðisaldur er hreint magnað.

  9. 25) Duran Duran

    1 h 26 minSeason 3 · Episode 25

    Á sínum 48 ára ferli hafa Duran Duran farið frá því að vera ein vinsælasta hljómsveit heims með með hysterískar unglingsstelpur við hvert fótmál yfir í að vera droppað af þrem mismunandi útgáfufyrirtækjum og …

    Show notes

    Á sínum 48 ára ferli hafa Duran Duran farið frá því að vera ein vinsælasta hljómsveit heims með með hysterískar unglingsstelpur við hvert fótmál yfir í að vera droppað af þrem mismunandi útgáfufyrirtækjum og vera skítblankir og skulda svimandi háar upphæðir.

    En sama hvað á dundi þá komu þeir alltaf til baka og er hljómsveitin í dag enn skipuð fjórum af fimm uprunalegu meðlimunum og er enn í fullu fjöri.

  10. 24) Van Halen

    1 h 29 minSeason 3 · Episode 24

    Fyrsta plat Van Halen kom út í febrúar 1978 og rokktónlistin varð aldrei söm aftur. Hún kom eins og skrattinn úr sauðarleggnum inn í tónlistarumhverfi þar sem var disco annars vegar og pönk og nýbylgja hins …

    Show notes

    Fyrsta plat Van Halen kom út í febrúar 1978 og rokktónlistin varð aldrei söm aftur. Hún kom eins og skrattinn úr sauðarleggnum inn í tónlistarumhverfi þar sem var disco annars vegar og pönk og nýbylgja hins vegar og ruddi veginn fyrir það sem á eftir kom og dró gítarhetjuna og flamboyant söngvarann aftur fram í sviðsljósið auk þess að sýna að gleði og húmor áttu alveg heima í rokktónlist

  11. 23) KISS - The hottest band in the land!

    1 h 37 minSeason 3 · Episode 23

    KISS hafa verið með okkur í 52 ár og eru ekkert að fara. Þó að tónlistarpressan hafi hatað hljómsveitina allan hennar feril þá létu þeir það ekkert á sig fá og það eru ófáir tónlistarmennirnir sem hafa verið …

    Show notes

    KISS hafa verið með okkur í 52 ár og eru ekkert að fara.

    Þó að tónlistarpressan hafi hatað hljómsveitina allan hennar feril þá létu þeir það ekkert á sig fá og það eru ófáir tónlistarmennirnir sem hafa verið KISS aðdáendur á unglingsárunum og margir eru það enn.

    En KISS eru ekki bara hljómsveit heldur heimsþekkt vörumerki sem metið er á um 300 milljónir dollara

  12. 22) Prince - Margur er knár þó hann sé smár

    1 h 26 minSeason 3 · Episode 22

    Það eru engar ýkjur að kalla Prince einn áhrifamesta, hæfileikaríkasta og jafnframt afkastamesta tónlistarmann okkar tíma. Hann virtist geta spilað á hvaða hljóðfæri sem var og lögin sem hann samdi teljast í …

    Show notes

    Það eru engar ýkjur að kalla Prince einn áhrifamesta, hæfileikaríkasta og jafnframt afkastamesta tónlistarmann okkar tíma. Hann virtist geta spilað á hvaða hljóðfæri sem var og lögin sem hann samdi teljast í þúsundum.

    Tónlistin sem hann gaf út spannar allt frá disco, synth poppi og r´n´b til jazz, funk og acid rock og hafa plötur hans selst í um 150 milljón eintökum um allan heim sem gerir hann að einum af söluhæstu tónlistarmönnum allra tíma.

  13. 21) Bon Jovi

    1 h 36 minSeason 3 · Episode 21

    Hljómsveitin Bon Jovi er búin að vera starfandi samfleytt í 42 ár og innihelddur enn þrjá af upprunalegu meðlimunum.Það virðist vera alveg sama hvaða nýju straumar og stefnur koma og fara í tónlistinni, ekkert …

    Show notes

    Hljómsveitin Bon Jovi er búin að vera starfandi samfleytt í 42 ár og innihelddur enn þrjá af upprunalegu meðlimunum.

    Það virðist vera alveg sama hvaða nýju straumar og stefnur koma og fara í tónlistinni, ekkert virðist trufla vinsældir Bon Jovi og þeir standa allt af sér. Ætli galdurinn sé bara ekki sá að geta endalaust samið grípandi lög sem límast við heilann í þér og áður en þú veist af ertu farinn að syngja hástöfum með.

  14. 20) Ozzy Osbourne - The Prince of Darkness

    1 h 42 minSeason 3 · Episode 20

    Ferill Ozzy Osbourne spannaði 6 áratugi. Hann varð stjarna með Black Sabbath á áttunda áratugnum, hóf gríðarlega farsælan sólóferil á níunda áratugnum, gerðist þungarokksfrumkvöðull á tíunda áratugnum með …

    Show notes

    Ferill Ozzy Osbourne spannaði 6 áratugi. Hann varð stjarna með Black Sabbath á áttunda áratugnum, hóf gríðarlega farsælan sólóferil á níunda áratugnum, gerðist þungarokksfrumkvöðull á tíunda áratugnum með Ozzfest tónlistarhátíðinni og árið 2002 varð hann raunveruleikasjónvarpsstjarna, þökk sé MTV þáttunum The Osbournes.

    Í sínum villtustu draumum hefur hann örugglega ekki séð þetta fyrir sér þegar hann var að alast upp í litlu tveggja herbergja íbúðinni í Birmingham þar sem 8 manna fjölskyldan bjó við kröpp kjör og þurfti að notast við útikamar.

  15. 19) Bruce Springsteen

    1 h 44 minSeason 3 · Episode 19

    Ferill Bruce Springsteen spannar 6 áratugi og hefur hann gefið út 21 stúdíóplötu auk óendalegs magns af safnplötum, live plötum og allskonar box settum sem eru stútfull af lögum sem honum fannst á þeim tíma …

    Show notes

    Ferill Bruce Springsteen spannar 6 áratugi og hefur hann gefið út 21 stúdíóplötu auk óendalegs magns af safnplötum, live plötum og allskonar box settum sem eru stútfull af lögum sem honum fannst á þeim tíma ekki passa á neina af þeim plötum.

    Skilgreiningin "heartland rock" hefur verið notuð fyrir tónlist hans þar sem hann tvinnar saman rokktónlist og samfélagslega meðvitaða texta sem endurspegla líf þess fólks sem tilheyrir hinum vinnandi stéttum í Bandaríkjunum og oftast fá litla athygli

  16. 18) Ramones - Hey ho, let's go!!

    1 h 22 minSeason 3 · Episode 18

    Þegar Ramones koma fram á sjónarsviðið í byrjun 8. áratugarins færðu þeir rokkið aftur til upprunans og komu í leiðinni með uppskriftina að pönkinu. Lögin voru einföld og hröð og helst ekki mikið lengri en 2 …

    Show notes

    Þegar Ramones koma fram á sjónarsviðið í byrjun 8. áratugarins færðu þeir rokkið aftur til upprunans og komu í leiðinni með uppskriftina að pönkinu. Lögin voru einföld og hröð og helst ekki mikið lengri en 2 mínútur.

    Það væri mjög margt öðruvísi í tónlistarheiminum ef Ramones hefði aldrei notið við. En þó þeir hafi haft gríðarleg áhrif á ekki bara einstaka hljómsveitir og tónlistarfólk heldur á heilu tónlistarstefnurnar þá fengu þeir aldrei þá viðurkenningu sem þeir svo sannarlega áttu skilið meðan hljómsveitin var starfandi.

  17. 17) Eurovision - Saga keppninnar til dagsins í dag

    1 h 30 minSeason 3 · Episode 17

    Eurovision er stórmerkilegt menningarfyrirbæri og stundum veit maður ekki hvort maður er að horfa á grínþátt eða háalvarlega söngvakeppni. En það er einmitt það sem gerir þetta svo heillandi.En hvernig byrjaði …

    Show notes

    Eurovision er stórmerkilegt menningarfyrirbæri og stundum veit maður ekki hvort maður er að horfa á grínþátt eða háalvarlega söngvakeppni. En það er einmitt það sem gerir þetta svo heillandi.

    En hvernig byrjaði þetta ævintýri allt saman? Af hverju er Ísrael með í keppni sem heitir Söngvakeppni Evrópskra Sjónvarpsstöðva? Og af hverju vinnur Svíþjóð?

  18. 16) Depeche Mode

    1 h 14 minSeason 3 · Episode 16

    Þeir voru kallaðir synthesiser boy band af Bresku pressunni og Bay City Rollers of the electronic age, þegar hljómsveitin var að byrja að vekja athygli. Nintendo tónlist spiluð með einum fingri myndi ég …

    Show notes

    Þeir voru kallaðir synthesiser boy band af Bresku pressunni og Bay City Rollers of the electronic age, þegar hljómsveitin var að byrja að vekja athygli. Nintendo tónlist spiluð með einum fingri myndi ég skilgreina tónlistina sem þeirra þarna fyrstu árin. En svo skánaði þetta með hverri plötunni

    45 árum síðar, þar sem tískustraumar hafa komið og farið og tónlistarstefnur risið og fallið eru Depeche Mode enn relevant og enn að gefa út plötur og án þeirra hefðum við kannski ekki Nine Inch Nails eða Marilyn Manson.

  19. 15) Black Sabbath

    1 h 36 minSeason 3 · Episode 15

    Þann 5. júlí næstkomandi munu allir upprunalegu meðlimir Black Sabbath stíga á svið í síðasta skiptið á stórtónleikum á Villa Park í Birmingham...ef enginn þeirra hrekkur upp af áður en að þar að kemur.Því er …

    Show notes

    Þann 5. júlí næstkomandi munu allir upprunalegu meðlimir Black Sabbath stíga á svið í síðasta skiptið á stórtónleikum á Villa Park í Birmingham...ef enginn þeirra hrekkur upp af áður en að þar að kemur.

    Því er ekki úr vegi að fara í gegn um skrautlegan feril þessarar hljómsveitar sem er án nokkurs vafa ein áhrifamesta rokkhljómsveit allra tíma.

  20. 14) Phil Spector og "The wall of sound"

    1 h 20 minSeason 3 · Episode 14

    Það fór aldrei á milli mála að Phil Spector var hæfileikaríkur. Hann hlóð saman hverju hljóðfærinu ofan á annað og bjó til þetta fyrirbæri sem er kallað "Wall of sound" og dæmi um það er lagið "River deep …

    Show notes

    Það fór aldrei á milli mála að Phil Spector var hæfileikaríkur. Hann hlóð saman hverju hljóðfærinu ofan á annað og bjó til þetta fyrirbæri sem er kallað "Wall of sound" og dæmi um það er lagið "River deep, mountain high" með Tinu Turner sem væntanlega allir þekkja.

    Brian Wilson var mikill aðdáandi Spectors og tók þessa hugmynd hans yfir í Beach Boys og Jim Steinman hlustaði örugglega mjög vel og vandlega á það sem hann hafði gert þegar hann gerði plötuna "Bat out of hell" með Meat Loaf.

    En Spector átti greinilega við einhverjar persónuleikaraskanir að stríða og samskipti hans við suma af þeim tónlistarmönnum sem hann vann með, eins og t.d John Lennon og Leonard Cohen, voru í skrautlegri kantinum og samband hans við konur var langt frá því að vera til fyrirmyndar oft á tíðum og endaði eitt þannig með ósköpum.

  21. 13) Iggy Pop - Ber að ofan í rúmlega hálfa öld

    1 h 23 minSeason 3 · Episode 13

    Iggy Pop er búinn að vera að gefa út tónlist síðan 1969.Hann hefur verið kallaður "the godfather of punk" og án hans og The Stooges væri örugglega ýmislegt öðruvísi.Hann átti mjög farsælt samstarf við David …

    Show notes

    Iggy Pop er búinn að vera að gefa út tónlist síðan 1969.

    Hann hefur verið kallaður "the godfather of punk" og án hans og The Stooges væri örugglega ýmislegt öðruvísi.

    Hann átti mjög farsælt samstarf við David Bowie, hefur gert ambient jazz plötu, komið fram fyrir hönd Madonnu á innsetningarathöfn hennar í Rock´n´roll hall of fame og gaf út sína vinsælustu plötu þegar hann var orðinn 69 ára gamall.

    Og sögurnar af honum og hans stór furðulegu uppátækjum eru óteljandi.

  22. 12) Grunge: Seattle, flannelskyrtur og hermannaklossar

    1 h 9 minSeason 3 · Episode 12

    Þegar 70´s rock og punk eignuðust afkvæmi varð útkoman grunge og þetta gerðist í Seattle af öllum stöðum í heiminum. Borg sem fram að þessu hafði verið þekktust fyrir rigningu, ryðgaðar brýr og aðeins of mikið …

    Show notes

    Þegar 70´s rock og punk eignuðust afkvæmi varð útkoman grunge og þetta gerðist í Seattle af öllum stöðum í heiminum. Borg sem fram að þessu hafði verið þekktust fyrir rigningu, ryðgaðar brýr og aðeins of mikið af efnum sem voru ekki holl fyrir neinn.

    Meðan hair metalið var að tröllríða öllu þá var hrátt gítarrokk með óþarflega þunglyndislegum textum að spretta úr kjöllurum og bílskúrum í þessari borg sem enginn fór til nema eiga nauðsynlega erindi þangað og eins og hendi væri veifað skaust það upp á stjörnuhimininn í upphafi 10. áratugarins og skein þar skært þar til allir byrjuðu að deyja.

  23. 11) CBGB - Litla sóðabúllan á Manhattan sem varð vagga pönksins og nýbylgjunnar

    46 minSeason 3 · Episode 11

    CBGB var miklu meira en bara einhver sóðabúlla með veggjagroti og brotnum klósettum. Í 33 ár átti grasrót rokktónlistar í New York þar sinn samastað og fékk tækifæri til að vaxa og dafna og þar réði …

    Show notes

    CBGB var miklu meira en bara einhver sóðabúlla með veggjagroti og brotnum klósettum. Í 33 ár átti grasrót rokktónlistar í New York þar sinn samastað og fékk tækifæri til að vaxa og dafna og þar réði sköpunargleðin ríkjum.
    Þar áttu sitt athvarf allt frá Ramones og Blondie til Patti Smith, Talking Heads og Bad Brains.

  24. 10) ABBA

    1 h 42 minSeason 3 · Episode 10

    ABBA var á sínum gullaldarárum ein allra vinsælasta hljómsveit heims. Þó að hljómsveitin hafi algerlega legið í dvala í einhver 35 ár þá var hún langt frá því gleymd og grafin.Það voru allsstaðar ABBA …

    Show notes

    ABBA var á sínum gullaldarárum ein allra vinsælasta hljómsveit heims. Þó að hljómsveitin hafi algerlega legið í dvala í einhver 35 ár þá var hún langt frá því gleymd og grafin.
    Það voru allsstaðar ABBA laumuaðdáendur og komu þeir út úr öllum skúmaskotum þegar safnplatan ABBA Gold var gefin út 1992.
    Síðan þá hefur hljómsveitin gengið í algerlega endurnýjun lífdaga þar sem gerðar hafa verið bíómyndir byggðar í kring um lögin þeirra, gríðarlega vinsæll söngleikur og núna síðast sýndarveruleikatónleikar með hljómsveitinni.

  25. 9) Þegar Bretar uppgötvuðu blues: Frá Alexis Korner til Led Zeppelin

    51 minSeason 3 · Episode 9

    Hvernig kom það til að Bandarísk blues tónlist náði jafn kirfilega að festa sig í sessi í Bretlandi í byrjun 7. áratugarins og raunin varð á? Tónlist sem engin hefð var fyrir þar í landi, var ekki spiluð þar í …

    Show notes

    Hvernig kom það til að Bandarísk blues tónlist náði jafn kirfilega að festa sig í sessi í Bretlandi í byrjun 7. áratugarins og raunin varð á? Tónlist sem engin hefð var fyrir þar í landi, var ekki spiluð þar í útvarpi og var bara fáanleg á plötum eftir krókaleiðum?
    Sérstaklega þegar horft er til þess að það var engin stemming fyrir blues tónlist í heimalandinu og þeir sem enn ströggluðu við að spila þá tónlist þar rétt skrimtu.
    Breskir tónlistarmenn tóku ekki bara bluesinn upp á sína arma heldur notuðu hann til að búa til það sem núna er skilgreint sem classic rock.

  26. 8) Motown: Litla útgáfan í Detroit sem breytti tónlistarsögunni

    1 h 40 minSeason 3 · Episode 8

    Motown útgáfan var stofnuð í Detroit 1959 og á örfáum árum hafði hún breytt tónlistarsögunni. Þar lögðust allir á eitt við að skapa þetta sérstaka sound sem kennt hefur verið við Motown og stórsmellirnir runnu …

    Show notes

    Motown útgáfan var stofnuð í Detroit 1959 og á örfáum árum hafði hún breytt tónlistarsögunni. Þar lögðust allir á eitt við að skapa þetta sérstaka sound sem kennt hefur verið við Motown og stórsmellirnir runnu þaðan á færibandi.
    Frá Motown hafa komið óendanlega mörg lög sem eru löngu orðin klassísk popp lög og við þekkjum öll flytjendur eins og Supremes, Jackson 5, Marvin Gaye og Stevie Wonder

  27. 7) Britpop - Suede, Oasis, Blur og Cool Britannia

    1 h 5 minSeason 3 · Episode 7

    Britpoppið kom fram á sjónarsviðið í Bretlandi fyrri hluta 10. áratugarins. Það var efnahagsuppgangur og aukin bjartsýni hjá ungu fólki í landinu. Bæði tónlistin og textarnir sóttu fyrirmyndir í eldri Breskar …

    Show notes

    Britpoppið kom fram á sjónarsviðið í Bretlandi fyrri hluta 10. áratugarins.
    Það var efnahagsuppgangur og aukin bjartsýni hjá ungu fólki í landinu. Bæði tónlistin og textarnir sóttu fyrirmyndir í eldri Breskar hljómsveitir og til Breskrar menningar og það að vera Breti var eitthvað til að vera stoltur af.
    Og allir voru rosa hressir alla vega til að byrja með nema auðvitað Gallagher bræðurnir. Og við sem vorum á áhrifasvæði Breskrar menningar tókum hljómsveitum eins og Blur, Suede, Oasis og Pulp opnum örmum.

  28. 6) Þegar 80´s synth poppið tók yfir heiminn

    1 h 6 minSeason 3 · Episode 6

    Hvað dettur okkur fyrst í hug þegar við hugsum um 80´s? Væntanlega herðapúðar, grifflur, marglitir jogginggallar, rosalega blásið og túberað hár, Miami Vice og rifrildið um hvor væri betri Duran Duran eða …

    Show notes

    Hvað dettur okkur fyrst í hug þegar við hugsum um 80´s? Væntanlega herðapúðar, grifflur, marglitir jogginggallar, rosalega blásið og túberað hár, Miami Vice og rifrildið um hvor væri betri Duran Duran eða Wham.
    Og svo auðvitað synth allt poppið þar sem að magn og gæði fóru ekki alltaf saman, alla vega þegar líða fór á. Í þessum þætti er farið í gegn um það hvaðan synth poppið kom og hverjum datta þetta eiginlega í hug og hvernig, með aðstoð MTV Breskar hljómsveitir yfirtóku Bandaríkin og breiddu þar út boðskapinn

  29. 5) Laurel Canyon - Þar sem tónlistin hljómaði úr hverju húsi og tónlistarsagan var skrifuð

    1 h 9 minSeason 3 · Episode 5

    Frá 1965 til 1979 var Laurel Canyon staðurinn þar sem að ungar og upprennandi tónlistarstjörnur bjuggu. Þar var nóg af lausu húsnæði á góðu verði og eftir að Chris Hillman og Roger McGuinn, sem þá höfðu nýlega …

    Show notes

    Frá 1965 til 1979 var Laurel Canyon staðurinn þar sem að ungar og upprennandi tónlistarstjörnur bjuggu. Þar var nóg af lausu húsnæði á góðu verði og eftir að Chris Hillman og Roger McGuinn, sem þá höfðu nýlega stofnað The Byrds, settust þar að fylgdi fjöldi annara tónlistarmanna á eftir.
    Þú gast átt von á því að sjá Jim Morrison hjóla eftir götunum og hitt Framk Zappa og Alice Cooper í hverfisbúðinni.
    Allir voru að semja og spila tónlist.
    En ýmislegt átti eftir að hrista upp í samfélaginu þar og áður en yfir lauk og þar koma við sögu annars vegar Charles Manson og hins vegar duft unnið úr Suður-Amerískri plöntu sem hefur áhrif á miðtaugakerfið.

  30. 4) Punk - Hvaðan kom það og hvert fór það?

    48 minSeason 3 · Episode 4

    Punkið kom eins og stormsveipur inn í staðnaða og sjálfhverfa tónlistarsenu 8. áratugarins og spörkuðu hressilega í rassinn á öllum uppskrúfuðu og veruleikafyrrtu rokkstjörnum þess tíma sem sátu í villunum …

    Show notes

    Punkið kom eins og stormsveipur inn í staðnaða og sjálfhverfa tónlistarsenu 8. áratugarins og spörkuðu hressilega í rassinn á öllum uppskrúfuðu og veruleikafyrrtu rokkstjörnum þess tíma sem sátu í villunum sínum og mokuðu í sig kókaíni.
    Punkið ætlaðist ekki til að þú sætir inni í herbergi og æfðir þig í 5 ár áður en þú stofnaðir hljómsveit. Stofnaðu hljómsveit strax og lærðu á hljóðfærið um leið.
    En hvaðan tók punkið fyrirmyndir sínar? Alla vega ekki frá Emerson, Lake and Palmer svo mikið er víst. Og hvert teygði það anga sína?
    Allt um það í þessum þætti

These are the latest 40 of 133 episodes. You’ll find older episodes in the podcast’s feed.

Similar podcasts

More Arts podcasts
Is this your podcast?

Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.