Skip to content

Sirkabát #18 - PISA er ekkert venjulegt próf

October 10, 2026 · 38 min

Show notes

Er PISA-könnunin stærsta skákmót í heimi?

Niðurstöður PISA 2025 sýna að færni íslenskra grunnskólanema hefur aldrei mælst minni. En hvernig virkar PISA-könnunin í raun og veru og hvað má lesa úr niðurstöðunum? Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson og Georg Gylfason rýna í landsskýrslu PISA sem kom út nýverið, ræða flókna tölfræði sem býr að baki og velta því upp hvaða ályktanir er hægt að draga þegar frammistaða íslenskra nemenda er borin saman við önnur lönd og fyrri kannanir. Þeir útskýra hvers vegna PISA er í raun eins og risastórt skákmót þar sem andstæðingurinn er prófspurningin.

Í þættinum er meðal annars farið yfir:

  • Hvers vegna PISA er ekki próf í hefðbundnum skilningi og hvernig Elo-stig úr skák skýra útreikningana
  • Hvaðan 500 stiga viðmiðið kemur og hvað 422 stig í lesskilningi þýða í raun
  • Hæfniþrepin og hvers vegna OECD líkir þeim við fatastærðir
  • Af hverju PISA segir margt um hópa en lítið um einstaka nemendur
  • Fallið 2018–2022 í samanburði við lækkunina 2022–2025, og Ísland í samanburði við Danmörku
  • Covid, lesfimi og skortinn á árlegum mælingum
  • Hvers vegna England hefur haldið sínu striki og hvað íslenska PISA-skýrslan segir um stöðugleika í stefnumótun
  • Fjölgun nemenda af erlendum uppruna og samsetningaráhrif
  • Þýðingar á prófspurningum: skipta þær máli?
  • PISA sem hitamælir en ekki greiningartól

Sirkabát er þáttur sem Gímaldið gefur út þar sem rýnt er í fréttir í tölum og tölur í fréttum. Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

All episodes of Gímaldið

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.