Skip to content
Glælogn – hlaðvarp um norræn fræði
PodcastEducationIS

Glælogn – hlaðvarp um norræn fræði

NewHeimur í orðum – Menningararfur á pappírNovember 11, 2026 · 25 min
Episodes
24
Released
weekly
Latest episode
Nov 11, 2026

About the podcast

Fyrir alla sem þyrstir í fróðleik um bókmenntir, sögu og menningu Norðurlandanna. Fræðimennirnir Hjalti Snær Ægisson og Teresa Dröfn Njarðvík veita innsýn í menningarheim miðalda og spjalla um nýleg, fræðileg skrif. Handritagrúskarar af ýmsu tagi segja frá rannsóknum sínum. Hlaðvarpið er á vegum Árnastofnunar. Tónlist: TSS: „Drums of Congo“.

Episodes 24

  1. Heimur í orðum – Menningararfur á pappír

    25 minEpisode 24

    Forverðir gegna mikilvægu hlutverki á hvers kyns listasöfnum, forngripasöfnum og handritasöfnum. Forvörðurinn er sú manneskja innan varðveislustofnunarinnar sem gerir við skemmdir og spyrnir á móti eyðingunni …

    Show notes

    Forverðir gegna mikilvægu hlutverki á hvers kyns listasöfnum, forngripasöfnum og handritasöfnum. Forvörðurinn er sú manneskja innan varðveislustofnunarinnar sem gerir við skemmdir og spyrnir á móti eyðingunni hljóðu sem er stöðugt að verki.

    Í þessum þætti er rætt við Hildi Ploder Vigfúsdóttur, pappírsforvörð á Landsbókasafni Íslands.

  2. Minni pokinn

    51 minEpisode 23

    Bókin sem rætt er um í þættinum: Ármann Jakobsson, Minor Characters in Icelandic Sagas: A Narratological Study. Palmgrave Macmillan, 2025.

  3. Heimur í orðum – Kristniboðskóngarnir og skáldin þeirra

    28 minEpisode 22

    Bergsbók er handrit sem var skrifað á Íslandi um 1400 en flutt til Noregs á sextándu öld. Þaðan fór bókin til Danmerkur og loks til Svíþjóðar. Bergsbók er feikistór og geymir sögurnar miklu um …

    Show notes

    Bergsbók er handrit sem var skrifað á Íslandi um 1400 en flutt til Noregs á sextándu öld. Þaðan fór bókin til Danmerkur og loks til Svíþjóðar.

    Bergsbók er feikistór og geymir sögurnar miklu um kristniboðskonungana Ólaf Tryggvason og Ólaf Helga Haraldsson. Á milli sagnanna tveggja eru skrifuð stórkostleg stök trúarkvæði og tengd konungunum tveimur, þar á meðal Geisli Einars Skúlasonar og sjálf Lilja í elstu varðveittu gerð.

    Í þessum þætti fengum við Guðrúnu Nordal forstöðumann Árnastofnunar til að segja okkur frá Bergsbók – sögunum, kvæðunum og konungunum tveimur sem þar eru í forgrunni.

  4. Heimur í orðum – Uppsala-Edda

    24 minEpisode 21

    Uppsala-Edda er eitt af fjórum aðalhandritum Snorra-Eddu. Oft er texti þess á skjön við hin handritin og hefur það löngum valdið fræðimönnum heilabrotum. Í þessum þætti er rætt við Hauk Þorgeirsson …

    Show notes
    Uppsala-Edda er eitt af fjórum aðalhandritum Snorra-Eddu. Oft er texti þess á skjön við hin handritin og hefur það löngum valdið fræðimönnum heilabrotum. Í þessum þætti er rætt við Hauk Þorgeirsson handritafræðing um þennan merka grip.
  5. Hverju reiddust goðin?

    1 h 3 minEpisode 20

    Bókin sem rætt er um í þættinum: Olof Sundquist. The Demise of Norse Religion: Dismantling and Defending the Old Order in Viking Age Scandinavia (De Gruyter, 2024).

  6. Heimur í orðum – Íslendingar í Svíþjóð

    22 minEpisode 19

    Síðari hluti sautjándu aldarinnar er stórveldistími í sögu Svíþjóðar. Pólitísk og hernaðarleg ítök sænska konungsríkisins voru gríðarleg umhverfis Eystrasaltið, en slíku valdi fylgir sterk þörf fyrir skilning …

    Show notes

    Síðari hluti sautjándu aldarinnar er stórveldistími í sögu Svíþjóðar. Pólitísk og hernaðarleg ítök sænska konungsríkisins voru gríðarleg umhverfis Eystrasaltið, en slíku valdi fylgir sterk þörf fyrir skilning og hagfelldar túlkanir á eigin fortíð.

    Í þessum þætti er rætt við Margréti Eggertsdóttur, rannsóknarprófessor á Árnastofnun, um íslenska handritasafnara í Svíþjóð.

  7. Ég minnist þín Gvendur

    60 minEpisode 18

    Bókin sem rætt er um í þættinum: Margaret Clunies Ross: Skaldic Poetry as Christian Progaganda (Boydell & Brewer, 2026).

  8. Heimur í orðum – Handritin, tilfinningar og hugurinn á miðöldum

    21 minEpisode 17

    Manneskjur höfðu sömu tilfinningar á miðöldum og þær hafa í nútímanum, en sá orðaforði sem við notum til að lýsa tilfinningum hefur tekið miklum breytingum í aldanna rás. Í þætti dagsins er rætt við Sif …

    Show notes

    Manneskjur höfðu sömu tilfinningar á miðöldum og þær hafa í nútímanum, en sá orðaforði sem við notum til að lýsa tilfinningum hefur tekið miklum breytingum í aldanna rás. Í þætti dagsins er rætt við Sif Ríkharðsdóttur bókmenntafræðing um tilfinningar í miðaldabókmenntum.

  9. Úti alla nóttina

    59 minEpisode 16

    Greinar sem rætt er um í þættinum: John McKinnell, “Useless Knowledge? The Paradox of Alvíssmál,” Saga-Book 41/2017, 79–96. Frog, “Preserving Blunders in Eddic Poems: Formula Variations in Numbered Inventories …

    Show notes

    Greinar sem rætt er um í þættinum:

    • John McKinnell, “Useless Knowledge? The Paradox of Alvíssmál,” Saga-Book 41/2017, 79–96.
    • Frog, “Preserving Blunders in Eddic Poems: Formula Variations in Numbered Inventories of Vafþrúðnismál and Grímnismál,” Scripta Islandica 72/2021, 43–91.
  10. Finnbogi kemur rammur inn

    1 h 11 minEpisode 15

    Greinar sem rætt er um í þættinum: Martina Ceolin: “Endeavouring to Grasp the Elusive: A New Study of Finnboga saga ramma,” Gripla 2024, 279–307. Basil Arnould Price: “Queer Indigenous Relationality in Finnboga …

    Show notes

    Greinar sem rætt er um í þættinum:

    • Martina Ceolin: “Endeavouring to Grasp the Elusive: A New Study of Finnboga saga ramma,” Gripla 2024, 279–307.
    • Basil Arnould Price: “Queer Indigenous Relationality in Finnboga saga ramma,” Speculum 2024:2, 381–408.
  11. Heimur í orðum – Meyjar og völd

    26 minEpisode 14

    Konungsdóttirin Mábil sterka frá Vallandi er öllum fremri í riddaralistum. Hún drýgir miklar hetjudáðir í bardögum og beitir óhefðbundnum aðferðum við að klekkja á helsta óvini sínum, Medeu drottningu í …

    Show notes

    Konungsdóttirin Mábil sterka frá Vallandi er öllum fremri í riddaralistum. Hún drýgir miklar hetjudáðir í bardögum og beitir óhefðbundnum aðferðum við að klekkja á helsta óvini sínum, Medeu drottningu í Grikklandi. Sömuleiðis ver hún Móbil systur sína frækilega gegn ásókn karla sem vilja kvænast henni og heimta þannig krúnuna.

    Í hlaðvarpsþætti dagsins segir Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir okkur frá Mábilar rímum en hún hlaut nýlega viðurkenningu Hagþenkis fyrir bók sína Meyjar og völd. Rímur og saga af Mábil sterku.

  12. Söngur, galdur, kveðandi

    43 minEpisode 13

    Greinar sem rætt er um í þættinum: Brian McMahon, „Old Norse Poetry in Performance: Perils, Pitfalls and Possibilities,” Old Norse Poetry in Performance (Routledge, 2022). Pétur Húni Björnsson, „‚ıð Beſta eꝛ …

    Show notes

    Greinar sem rætt er um í þættinum:

    Brian McMahon, „Old Norse Poetry in Performance: Perils, Pitfalls and Possibilities,” Old Norse Poetry in Performance (Routledge, 2022).

    Pétur Húni Björnsson, „‚ıð Beſta eꝛ quæðeð fm̄ flutt': Kveðnar Drápur og kveðnar rímur‘,“ „Old Norse Poetry in Performance: Perils, Pitfalls and Possibilities,” Old Norse Poetry in Performance (Routledge, 2022).

  13. Heimur í orðum – Einu sinni voru handrit ekki helgir gripir

    18 minEpisode 12

    Í dag umgöngumst við íslensku handritin af mikilli varkárni, nánast eins og um helga gripi væri að ræða. En það gerðu fyrrum eigendur þeirra ekki endilega. Þeir hikuðu ekki við að bæta við texta handrita, taka …

    Show notes

    Í dag umgöngumst við íslensku handritin af mikilli varkárni, nánast eins og um helga gripi væri að ræða. En það gerðu fyrrum eigendur þeirra ekki endilega. Þeir hikuðu ekki við að bæta við texta handrita, taka bækur í sundur og jafnvel breyta myndskreytingum eftir eigin smekk.

    Í þessum þætti segir Beeke Stegmann, rannsóknardósent við Árnastofnun, okkur frá Skarðsbók Jónsbókar og hvernig viðhorf miðalda til handritanna voru frábrugðin varðveislustefnu nútímans.

  14. Fjöllin skjálfa

    52 minEpisode 11

    Greinar sem rætt er um í þættinum: Declan Taggart, „All the Mountains Shake: Seismic and Volcanic Imagery in the Old Norse Literature of Þórr,“ Scripta Islandica 68/2017, 99–122. Mathias Nordvig og Felix Riede …

    Show notes

    Greinar sem rætt er um í þættinum:

    Declan Taggart, „All the Mountains Shake: Seismic and Volcanic Imagery in the Old Norse Literature of Þórr,“ Scripta Islandica 68/2017, 99–122.

    Mathias Nordvig og Felix Riede, „Are There Echoes of the AD 536 Event in the Viking Ragnarok Myth? A Critical Appraisal,“ Environment and History 24/3:2018, 303–324.

  15. Heimur í orðum – Skortur eða gnægð? Viðaröflun norrænna manna á Grænlandi og áhrif hennar á hið daglega líf

    20 minEpisode 10

    Grænland var numið af norrænu fólki á seinni hluta 10. aldar. Ályktanir um viðarskort á Grænlandi á miðöldum eru hluti af hugmyndum manna um óhagstæð náttúruskilyrði sem leiddu til endaloka norrænu byggðanna …

    Show notes

    Grænland var numið af norrænu fólki á seinni hluta 10. aldar. Ályktanir um viðarskort á Grænlandi á miðöldum eru hluti af hugmyndum manna um óhagstæð náttúruskilyrði sem leiddu til endaloka norrænu byggðanna þar.

    Þær hugmyndir byggja hins vegar ekki á rannsóknum á viðarnotkun, eingöngu ályktunum sem dregnar hafa verið út frá rituðum heimildum og nútímaaðstæðum. Lísabet Guðmundsdóttir fornleifafræðingur hefur rannsakað málið ofan í kjölinn. Í dag spjöllum við um Grænland á miðöldum.

  16. Bæði þrjósk og þver

    1 h 3 minEpisode 9

    Greinar sem rætt er um í þættinum: Aðalheiður Guðmundsdóttir, „Um myrkur sem mæðir og sögur sem græða,“ Ritið 2025:2, 35–60. Andrea Maraschi, „Medieval Iceland: Changelings on the Margins,“ The Exeter Companion …

    Show notes

    Greinar sem rætt er um í þættinum:

    Aðalheiður Guðmundsdóttir, „Um myrkur sem mæðir og sögur sem græða,“ Ritið 2025:2, 35–60.

    Andrea Maraschi, „Medieval Iceland: Changelings on the Margins,“ The Exeter Companion to Changeling Lore: The West Eurasian and Mediterranean Tradition (Exeter: University of Exeter Press, 2026), 78–91.

  17. Heimur í orðum – „Ónýtt“ í erlendu safni

    14 minEpisode 8

    Það getur verið mikil kúnst að rekja uppruna og sögu handrita. Við spjöllum við Halldóru Kristinsdóttur, sérfræðing hjá Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni, um uppgötvun sem hún gerði þegar tvö handrit …

    Show notes
    Það getur verið mikil kúnst að rekja uppruna og sögu handrita. Við spjöllum við Halldóru Kristinsdóttur, sérfræðing hjá Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni, um uppgötvun sem hún gerði þegar tvö handrit sem höfðu verið aðskilin voru sameinuð á tölvuskjá.

  18. Helmingurinn lygi

    1 h 16 minEpisode 7

    Greinar sem rætt er um í þættinum: Philip Lavender, „Skjaldar þáttr Danakonungs: A Lost Fornaldar saga?“, Opuscula – Bibliotheka Arnamagnæana XVI:2016, 89-103. Philip Lavender, „Sailing and Sinking in the Sea …

    Show notes

    Greinar sem rætt er um í þættinum:

    Philip Lavender, „Skjaldar þáttr Danakonungs: A Lost Fornaldar saga?“, Opuscula – Bibliotheka Arnamagnæana XVI:2016, 89-103.

    Philip Lavender, „Sailing and Sinking in the Sea of forgery: The Tradition of Fake Sagas in Seventeenth and Eigteenth Century Sweden and Denmark“, Faking it! The Performance of Forgery in Late Medieval and Early Modern Culture (Brill, 2022), 263-295.

  19. Heimur í orðum – Dróttkvæði handan góðs og ills

    23 minEpisode 6

    Við spjöllum við Hauk Þorgeirsson miðaldafræðing um lífsviðhorf og gildi höfðingja víkingaaldar eins og þau birtast í dróttkvæðum.

  20. Drakk ég í gær

    1 h 13 minEpisode 5

    Greinar sem rætt er um í þættinum: Judy Quinn: “Liquid Knowledge: Traditional Conceptualisations of Learning in Eddic Poetry,” Along the Oral-Written Continuum: Types of Texts, Relations and their Implications …

    Show notes

    Greinar sem rætt er um í þættinum:

    Judy Quinn: “Liquid Knowledge: Traditional Conceptualisations of Learning in Eddic Poetry,” Along the Oral-Written Continuum: Types of Texts, Relations and their Implications (Brepols, 2010), 183–226.

    Ann Sheffield: “Men Who Brew: Masculinity and the Production of Drink in Medieval Icelandic Literature,” Scandinavian Studies 2023:1, 85–107.

  21. Heimur í orðum – Codex Lindesianus

    17 minEpisode 4

    Bak við luktar dyr í Eddu leynist sannkallaður fjársjóður: íslensku handritin. Vitnisburður um horfna veröld, heill heimur í orðum. Í dag tökum við tali Svanhildi Óskarsdóttur, rannsóknarprófessor við …

    Show notes

    Bak við luktar dyr í Eddu leynist sannkallaður fjársjóður: íslensku handritin. Vitnisburður um horfna veröld, heill heimur í orðum.

    Í dag tökum við tali Svanhildi Óskarsdóttur, rannsóknarprófessor við Árnastofnun, sem segir okkur frá lítilli bók sem ferðaðist eftir krókaleiðum alla leið frá Breiðafirði til Manchester á Englandi.

  22. Ekki rista þetta nema þú kunnir það

    54 minEpisode 3

    Bókin sem rætt er um í þættinum: Þórgunnur Snædal, Rúnir á Íslandi (Stofnun Árna Magnússonar, 2024).

  23. Passið ykkur á myrkrinu

    58 minEpisode 2

    Greinar sem rætt er um í þættinum: Jan Alexander van Nahl: “When Darkness Rises: On the Narrative Psychology of Darkness and Night in the Sagas of Icelanders,” Saga-Book 2024, 33–58. Miriam Mayburd: “It was a …

    Show notes

    Greinar sem rætt er um í þættinum:

    Jan Alexander van Nahl: “When Darkness Rises: On the Narrative Psychology of Darkness and Night in the Sagas of Icelanders,” Saga-Book 2024, 33–58.

    Miriam Mayburd: “It was a Dark and Stormy Night: Haunted Saga Homesteads, Climate Fluctuations, and the Vulnerable Self,” Paranormal Encounters in Iceland 1150–1400 (Medieval Institute Publications, 2020), 21–38.

  24. Hér kemur sólin

    54 minEpisode 1

    Greinar sem rætt er um í þættinum: Carolyne Larrington, “Eddic Poetry – A Case Study: Sólarljóð,” A Critical Companion to Old Norse Literary Genre (Boydell & Brewer, 2020), 245–258. Pete Sandberg: “Dis-embodied …

    Show notes

    Greinar sem rætt er um í þættinum:

    Carolyne Larrington, “Eddic Poetry – A Case Study: Sólarljóð,” A Critical Companion to Old Norse Literary Genre (Boydell & Brewer, 2020), 245–258.

    Pete Sandberg: “Dis-embodied cognition and sensory perception in Sólarljóð,” Sensory Perception in the Medieval West (Brepols, 2016), 195–206.

Is this your podcast?

Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.